Tip:
Highlight text to annotate it
X
Lærðu að fá leiðarlýsingar með nýju Google kortunum.
Það er auðvelt að fá leiðsögn.
Byrjaðu í leitarreitnum og leitaðu að tiltekinni staðsetningu.
Smelltu síðan á Leiðarlýsing,
Bættu við upphafsstað.
Ýmsir samgöngukostir birtast á kortinu og undir leitarreitnum.
Til að fara í hina áttina smellirðu á örvarnar vinstra megin.
Bestu leiðirnar birtast sjálfkrafa en þú getur valið að skoða akstursleiðsögn, almenningssamgöngur,
göngu- eða hjólaleiðarlýsingu.
Besta leiðin að áfangastaðnum er alltaf auðkennd fyrst, með bláu.
Skoðaðu aðra valkosti með því að smella á leiðarlínur eða á milli upplýsingaspjaldanna.
Ef þú ætlar á bíl skaltu smella á „Valkostir“ til að forðast hraðbrautir og tolla.
Eða smelltu á „skref fyrir skref“ til að sjá nákvæmar aksturleiðbeiningar.
Smelltu á „Fullt kortayfirlit“ til að fara til baka.
Ef þú ætlar að nota almenningssamgöngur geturðu séð leiðayfirlit í hnotskurn.
Smelltu á Fleiri valkostir og tímar til að sjá ferðina myndrænt.
Leiðakerfakönnuðurinn auðveldar þér að bera saman ferðir eftir fjölda leiða, ferðatíma
og gönguvegalengd.
Smelltu á einhverja af leiðunum til að fá nákvæma leiðarlýsingu.
Hvort sem þú ert heima eða á ferðinni koma Google kort þér á áfangastað.
Við kynnum nýju Google kortin.