Tip:
Highlight text to annotate it
X
Skjalalistinn þinn er nú hluti af Google Drive.
Sem fyrr hefurðu aðgang að öllum skránum þínum á einum stað
og getur auðveldlega deilt þeim með öðrum.
Google Drive fylgir tölvuforrit fyrir Mac og PC sem setur upp Drive möppu
í tölvunni þinni.
Hvað sem þú dregur í þessa möppu samstillist sjálfkrafa
við Google Drive á vefnum
og öll tækin þín.
Þú getur áfram búið til ný skjöl, kynningar og töflureikna.
Og nú geturðu einnig notað önnur forrit.
Við bættum við nýju töfluyfirliti svo þú getir séð skrárnar í fljótu bragði.
Og flettisvæðið vinstra megin hefur verið einfaldað.
„Drifið mitt“ inniheldur allar skrár og möppur sem þú hefur búið til, hlaðið inn eða fært þangað.
Þessi mappa samstillist við Google Drive í tölvunni þinni.
Ef þú vilt samstilla skrár sem aðrir hafa deilt með þér við tölvuna þína dregurðu þær
úr „Deilt með mér“ og yfir í „Drifið mitt.“
Smelltu á „Meira“ fyrir fleiri leiðir til að skoða skrárnar,
á borð við „Virkni“ sem sýnir allt sem þú eða aðrir hafa nýlega breytt.
Áður var þetta kallað „Upphafssíðan.“
Til að finna skrá geturðu leitað og síað eftir skráartegund eða eiganda.
Þú getur jafnvel leitað að texta í innskönnuðum skjölum og myndum sem innihalda engan texta.
Með hjálp Google Drive er allt dótið þitt saman á einum stað.
Uppfærðu í dag með því að fara á drive.google.com.