Tip:
Highlight text to annotate it
X
Leitin er öflugri en nokkru sinni fyrr í nýju Google kortunum.
Prófaðu með því að leita að tilteknum stað og skoða staðsetningarupplýsingar sem
birtast á upplýsingaspjöldunum fyrir neðan leitarreitinn.
Veistu hvað þú vilt en ert ekki viss um hvar þú nálgast það?
Prófaðu að leita að flokki staða, .t.d. „kaffi nálægt Central Park“
Þú færð jafnvel upp tengda leit sem hjálpar þér að finna bestu niðurstöðurnar.
Allar leitarniðurstöðurnar birtast á kortinu og heiti fyrirtækisins kemur fram á áberandi stað.
Skoðaðu betur: Sérstök tákn hjálpa þér að sjá hvers kyns fyrirtæki er um að ræða.
Stóru rauðu táknin standa fyrir mest viðeigandi niðurstöður leitarfyrirspurnarinnar.
Taktu eftir að þegar þú smellir á tákn aðlagar kortið sig og birtir vegi og staði
sem tengjast hverri staðsetningu.
Þegar þú velur stað birtast upplýsingaspjöld með gagnlegum upplýsingum um fyrirtækið.
Áður en þú velur hinn fullkomna stað skaltu skoða myndefni götusýnar eða skoða hann
betur með því að smella á „skoða að innan.“
Þegar þú hefur ákveðið hvert skal halda er leiðsögn, afgreið***ímar, umsagnir og fleira innan seilingar.
Götur og staðir sem mest eru viðeigandi birtast og einfalt er að sjá hvernig þú kemst á staðinn.
Og hvernig þú kemst aftur heim.
Við kynnum nýju Google kortin.