Tip:
Highlight text to annotate it
X
Velkomin til hins stórkostlega Hollands: þar sem túlípanar vaxa, vindmyllur snúast, morgunmaturinn
er súkkulaði, íbúarnir eru iðnir, og hafið reynir að sökkva öllu.
Nema hvað, þetta er ekki Holland. Kíkjum nú á:
Munurinn á Hollandi, Niðurlöndum (og hellingi í viðbót)
Hið rétta nafn þessarar túlípanaræktandi myllubyggjandi, hagelslag-étandi
gámaskipssiglandi, sæsigrandi þjóðar er: Niðurlönd.
Það er skiljanlegt að ruglast, enda hefur þetta svæði heitið ýmsum nöfnum síðustu þúsund ár
þar á meðal: Niðurlenska lýðveldið, Belgísku sambandsríkin og Konungsríkið Holland
en það er ekki bara saga landsins sem veldur þessum ruglingi, þar sem Niðurlöndum
er skipt í tólf fylki:
Groningen Drenthe
Overijssel Gelderland
Limburg Brabant
Zeeland (Sem, vel á minnst, er Sjálandið sem gerir þetta Sjáland nýtt)
Friesland (með krúttleg lítil hjörtu á fánanum)
Flevoland Utrecht, og nú kemur ruglið:
Noord (Norður) Holland og Zuid (Suður) Holland
Vegna þessa er jafn rangt að kalla Niðurlönd "Holland" og að kalla Bandaríkin "Dakota."
en ólíkt Dakota-fylkjum, sem eru að mestu tóm fyrir utan stöku skuggabaldur,
eru Hollöndin tvö fjölmennustu fylkin og í þeim má finna helstu ferðamannastaðina, eins og
Amsterdam og Keukenhof.
Ef það er niðurlenskt, og þú hefur heyrt um það, er líklegt að það sé í öðru Hollandinu.
Meira að segja ferðamálasíða ríkisins heitir Holland.com. Opinberlega vegna þess að
það hljómar hlýlegar, en óopinberlega vegna þess að það er líklega það sem fólk er að leita að
Ruglið er ekki búið enn: íbúar Hollandanna heita Hollendingar, en
allir borgarar Niðurlanda kallast "Dutch" og tungumálið sömuleiðis, en á því segir maður
"Nederlands sprekende Nederlanders in Nederland," sem hljómar eins og þeir vilji
frekar kalla sig Niðurlendinga sem tala niðurlensku. Á meðan segja nágrannar þeirra, þjóðverjar: "Deutsche
sprechen Deutsch in Deutschland," sem hljómar eins og þeir vilji kalla sig Dutch frekar en þjóðverja.
Vegna þessa málfarsmisskilnings kalla Ameríkanar Pennsylvaníu-Hollendinga Hollendinga,
þó þeir séu í raun þjóðverjar.
Tö*** saman: Þetta land heitir Niðurlönd, þar búa Niðurlendingar sem tala niðurlensku,
landið Holland er ekki til, en fylkin Norður- og Suður-Holland eru til.
Náðirðu þessu? Flott, því þetta verður bara flóknara hér eftir.
Niðurlönd eru hluti af samnefndu konungdæmi: Konungsríkinu Niðurlöndum.
sem er stjórnað af niðurlensku konungsfjölskyldunni
Konungsríkið samanstendur af þremur öðrum löndum, og til þess að finna þau þurfum við að sigla
frá ísköldum Norðursjónum til Karíbahafs að Aruba, Curaçao og Sint Maarten.
Þetta eru ekki hjálendur, heldur fullvalda ríki innan niðurlenska konungsríkisins
og sem slík hafa þau eigin ríkisstjórnir og eigin gjaldmiðla.
Fyrir landafræðinördana:
Aruba og Curaçao eru stakar eyjur, en Sint Maarten er bara syðri helmingurinn af lítilli
eyju sem heitir Sankti Marteinn, en hinn helmingurinn er undir yfirráðum Frakka og heitir einnig
Saint-Martin. Svo þó Belgía aðskilji Niðurlönd og Frakkland á Evrópukortinu, eiga Konungsríkið
Niðurlönd og Lýðveldið Frakkland landamæri hinum meginn á hnettinum
á svo ágætri eyju að hún var nefnd í þrígang.
En af hverju nær Konungsríkið Niðurlönd alla leið til Karíbahafs á annað borð? Svarið er heimsveldi.
Á 17. öld yfirtóku Niðurlendingar allar verðmætar hafnir sem þeir komust yfir, í stöðugri leit að
að nýjum verslunartækifærum. Um tíma hét austurströnd Ameríku "Nýju Niðurlönd" og höfuðborgin
var Nýja Amsterdam. Nýja Sjáland minntumst við á áðan, og nálægt því er konungur
eyjanna, Nýja Holland. Nú er heimsveldið fallið, en þessar þrjár karabísku eyjar eru leifar þess.
Fjögur lönd í einu konungdæmi er ekki einsdæmi, en þar endar sagan þó ekki, af því að
landið Niðurlönd teygir anga sína til Karíbahafs og þriggja eyja í viðbót:
Bonaire, Sint Eustatius og Saba.
Þetta eru ekki lönd í konungsríki, heldur borgir í landinu Niðurlöndum
og bera það með sér. Íbúar þessara fjarlægu borga kjósa í niðurlensku
kosningunum rétt eins og Hollendingar, en undarlegt nokk, tilheyra borgirnar engu
fylki, og notast ekki við niðurlenska gjaldmiðilinn, Evrur, heldur Dollara. Þetta er eins og
ef Hawai'i væri ekki fylki, heldur hluti af District of Columbia
og notaðist við Yen.
Þessar borgir í landinu Niðurlöndum og þessi lönd í konungsríkinu
Niðurlöndum, nefnast einu nafni niðurlensku karíbaeyjar. Íbúar þeirra eru niðurlenskir
ríkisborgar, og þar sem Konungsríkið Niðurlönd er í Evrópusambandinu,
eru þessir niðurlensku karíbaskeggjar líka Evrópubúar.
Tö*** saman: Þetta eru 6 karabískar eyjar, fjögur lönd, tólf fylki, tvö Hollönd,
tvö Niðurlönd og eitt konungdæmi, allt saman niðurlenskt.