Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hvernig gengur, Leon?
Vel.
Tölum um viðskipti.
Feita svínið reynir að sölsa
undir sig starfsemi Morizios.
Morizio er sanngjarn.
Hann vill tala.
En þessi gaur má ekki
heyra það nefnt.
Hann hlustar kannski á þig.
Hann kemur í bæinn
á þriðjudögum.
Verðurðu laus?
Já, ég verð laus
á þriðjudaginn.
Gaman að sjá þig aftur, Jones.
Snyrtimennskan skiptir öllu.
Þú færð hálftíma.
Einn tíma.
Hvað?
Þetta er Tonto niðri.
Hér er maður sem vill
tala við þig.
Hvernig lítur hann út?
Hann er alvarlegur.
Segðu honum að ég komi upp.
-Hann kemur upp.
Einhver kemur upp..
einhver alvarlegur.
Mikey, opnaðu augun,
við fáum gest.
Við fáum gest.
Komdu.
Stansaðu, maður.
Tonto.
Segðu bílstjóranum að bíða
okkar baka til. Fljótur.
Hvað er á seyði, gæskur?
-Þetta er í lagi. Hallaðu þér.
Guð minn góður.
Kvikindin hafa lokað
báðum útgönguleiðunum.
Aðgættu veröndina.
Neyðarlínan.
Ég þarfnast hjálpar, menn
reyna að drepa mig.
Vertu í símanum.
Þú heyrir ekki í mér smástund.
Ég gef þér samband
við lögreglumann.
Ég heiti Jefferson.
Get ég liðsinnt þér?
Ég hringi seinna.
Rólegur. Hálf Bólivía
er í þessum töskum.
Þetta hefur ekki enn verið skorið.
Taktu það bara. Þú mátt eiga það.
Hringdu í þetta númer.
Ég tala seinna við þig, elskan.
Bless.
Þetta er Morizio.
Manstu eftir mér?
Ég sé að þú ert kominn
aftur í bæinn.
Já.. ég á við nei..
bara í dag.
Þá er óhætt að segja að þetta
sé síðasti dagur þinn hér.
Ég þarf ekki framar að sjá
á þér feitt smettið.
Það er rétt.
Leyfðu mér að tala
við vin okkar beggja.
Hann vill tala við þig.
Vertu viss um að hann skilji
þetta og láttu hann svo fara.
Skilurðu þetta?
Segðu það þá.
-Ég skil þetta.
Gott.
Guð minn góður.
Halló. Hvað var það, vinur?
Tveir af mjólk
eins og venjulega?
Af hverju faldirðu
sígarettuna?
Húsið morar allt
af rottum.
Pabbi má ekki frétta þetta.
Ég á nógu bágt samt.
Hvað kom fyrir?
Ég datt af hjólinu mínu.
Ekki segja pabba
frá sígarettunni.
Ég veit ekki hvernig það
gerðist, ég passa þetta bara.
Ég geymi það sem þú lætur mig
fá en skoða það ekki.
Ég snerti það ekki.
Ég kann ekki að þynna þetta.
Þú fékkst dópið í júní.
Þá var það 100% hreint.
Nú er júlí og þá erþað 90% hreint.
Frá júní til júlí var
blandað 10% í efnið.
Þú færð mér það bara til
að geyma það sem ég geri.
Ég veit ekki meira.
Ég er að reyna
að hjálpa þér.
En ef þú ætlar að taka þessu
illa verð ég að trufla hann.
Og ég skal segja þér.
Þegar hann er í tónlistinni
vill hann ekki láta trufla sig.
Ég segi þér sannleikann.
Ég vona það því hann hefur
lag á að þefa uppi lygar.
Það er hræðilegt..
næstum eins og sjötta
skilningarvitið.
Skiptirðu um skoðun eða þarf
ég að ryðjast þangað inn?
Ég segi sannleikann.
Gott og vel.
Stan.
Mér þykir það leitt. Hann
segist ekki hafa tekið dópið.
Auðvitað gerði
hann það ekki.
Gerðu mér greiða.
Finndu þann sem gerði það.
Fyrir morgundaginn.
Á hádegi.
Bíddu.
Ég þynnti ekki
óþverrann þinn.
Finndu það út sjálfur.
Hvern fjandann ert þú að gera hér?
Farðu inn að læra.
-Ég er búin að læra.
Farðu þá inn og hjálpaðu
systur þinni að taka til.
Og hættu að reykja
sígarettur.
Tíminn er liðinn.
Nú má ég.
Ég lem þig ef þú
skiptir um rás.
Fyrirgefðu, elskan.
Góðan dag, syfjuð.
Halló, elskan.
Elskan, lækkaðu á þessu,
mömmu er illt í höfðinu.
Hún leyfði mér það ekki.
Hún horfir bara á teiknimyndir.
Hún getur vel gert eitthvað.
Það eru fleiri með þungan
rass hér en ég.
Vill sú sem horfir bara á skrípó
hypja sig til að sækja mat?
Ég mana þig að segja
þetta aftur.
Marge, ég held að ég
hafi klúðrað öllu.
Það væri ekki í fyrsta sinn.
Þú finnur alltaf einhver ráð.
Já.
Ég gekk víst of langt
í þetta sinn.
Þú gengur of langt núna.
Ég verð of sein í vinnuna.
Hvernig væri að vinna
heima í dag?
Hún ætlar að berja mig.
Bíddu. Lokaðu
fjandans hurðinni.
Bannsett beljan!
Getur einhver svarað í símann?
-Ég er upptekin.
Þetta er Margaret McCallister,
skólastjóri Spencer-skólans
í Wildwood í New Jersey.
Er herra eða frú
Lando heima?
Þetta er hún.
Frú Lando, þegar maðurinn þinn
skráði Mathildu í skólann
sagði hann okkur að hún..
ætti við vanda að etja.
Við leggjum metnað okkar í
að hjálpa stúlkum í vanda.
En við getum lítið gert
þegar þær koma ekki í skólann.
Mathilda fór í óleyfi héðan
fyrir næstum tveimur vikum.
Þið hjónin greidduð skólagjaldið
fyrirfram í heilt ár.
Á blaðsíðu 20 í reglugerðar
bókinni sem þið fenguð
stendur að sé ekki gild ástæða
fyrir löngum fjarvistum
fáið þið gjaldið
ekki endurgreitt.
Hún er dáin.
Ég er hundleiður
á öllum þessum sóðaskap.
Enginn fer héðan fyrr en allt
er snyrtilegt. Er það skilið?
Er lífið alltaf svona erfitt
eða bara þegar við erum lítil?
Alltaf svona.
Eigðu þetta.
Ég ætla út í búð.
Vantar þig mjólk?
Einn eða tvo lítra?
Tveir lítrar?
Mér líkar alltaf kyrrðin
á undan storminum.
Hún minnir mig
á Beethoven.
Getið þið heyrt hana?
Það er eins og að leggja
höfuðið niður í grasið.
Maður heyrir það vaxa.
Vaxtarhljóðið heyrist..
Ertu hrifinn
af Beethoven?
Ég get ekki sagt það.
-Ég skal leika hann fyrir þig.
Vertu kyrr hér.
Pabbi!
Við töluðum um hádegið.
Hún er eina mínútu
gengin í eitt.
Sá sem er ekki hrifinn
af Beethoven
veit ekki hvers
hann fer á mis.
Svona forleikir eru
svo hressandi,
svo magnaðir.
En í hreinskilni sagt.
Að loknum forleiknum
á hann til að verða
hundleiðinlegur
og þá hætti ég.
Rústaðu íbúðinni.
Rústaðu henni, Malky.
Þú dáir Mozart.
Ég geri það líka.
Ég dái Mozart.
Hann var austurrískur.
Við verk af þessu tagi
er hann helst til léttur.
Ég leita því
til þeirra þyngri.
Æði.
Hvern fjandann
ertu að gera?
Haltu saman á þér
trantinum.
Brahms er líka góður.
Hvern fjandann veistu um
tónlist? Hættu þessu.
Athugaðir þú med rúmdýnuna?
-Nei.
Fjandinn.
Sjáðu hvað þú gerðir.
Sjáðu hvað þú gerðir!
Hvað ertu að gera, Stan?
Hvað ertu að gera?
Hann er dauður!
Hann eyðilagði fötin mín.
-Ég veit það.
Ég veit það en hann er dauður,
er kjötklessa. Gleymdu þessu.
Vertu rólegur.
Ég er rólegur.
Vertu hér.
Benny!
Jesús góður Kristur.
Það eru Malky og Stan.
Slakaðu á.
Svona nú.
Benny!
Við skulum fá okkur
að reykja.
Nú komum við út.
Ekki skjóta, Benny!
Farðu inn.
Jesús minn, Benny.
Maður fer í ný föt og..
Áttu eld?
Rólegur.
-Ég er rólegur.
Hvað er um að vera
þarna úti?
Þú þarft ekkert að óttast.
Lögreglan.
Af hverju látið þið fjölskylduna
ekki eiga sig?
Þetta er í lagi.
Vertu alveg rólegur.
Ég er rólegur.
Ég er rólegur.
-Getið þið ekki látið þau í friði?
Hann sagði þér
að fara inn.
Stan, það er best
að við förum inn.
Settu eldhúsið á annan endann.
Þú verður að finna óþverrann.
Sjáðu hvað þú gerðir.
Þú drapst fjögurra ára krakka.
Þurftirðu þess?
Opnið dyrnar.
Gerið það.
Hér eru þrír krakkar. Ég held
að Stan hafi drepið stelpuna.
Og fíflið Willy skaut
litla drenginn.
Þriðja barnið er horfið.
Finndu það.
Fjárinn. Stelpan er
horfin frá okkur.
Ég reyni að finna
húsvarðarkvikindið.
Ég fann það.
Stan, við fundum það.
Ég veit.
Hér er það.
Löggan er úti.
Við ættum að fara.
Löggan er úti. Við förum
en þú verður eftir.
Hvað á ég að segja þeim?
Segðu þeim
að við vinnum
störf okkar.
Hvað heitirðu?
Mathilda.
Það var leitt með föður þinn.
-Ef aðrir hefðu ekki gert það
hefði ég sjálf gert
það einhvern daginn.
Móðir þín..
Hún er ekki móðir mín.
Systir mín vildi
líka grennast.
Hún hefur aldrei
litið betur út.
Hún er bara hálfsystir mín
og tæplega þó.
Af hverju græturðu
ef þú þoldir hana ekki?
Af því að þeir drápu
bróður minn.
Hvern fjandann gerði hann?
Hann var fjögurra ára.
Hann grét aldrei, hjúfraði
sig bara að mér.
Ég var honum meiri móðir
en þetta fjandans svín
var nokkurn tímann.
Talaðu ekki svona
um svínin.
Þau eru yfirleitt miklu
betri en fólkið.
En það er skítalykt
af þeim.
Það er ósatt.
Ég er með svín
í eldhúsinu hjá mér.
Það er mjög hreint
og ilmar mjög vel.
Enginn hefur svín
í eldhúsinu hjá sér.
Jú, ég.
Ég var þar áðan en sá
ekkert fjandans svín.
Vertu kyrr, ég skal
sækja það.
Grísaðgrís, hvar ertu?
Þarna ertu.
Halló, Mathilda.
Halló, Svínki.
Hvernig líður þér í dag?
Mér hefur liðið betur.
Hvað heitirðu?
Leon.
Fallegt nafn.
Geturðu farið eitthvað?
Áttu ættingja annars staðar?
Ég verð að sækja
meiri mjólk.
Hvert í heitasta.
Ekki snerta þetta.
Leon.
við hvað starfarðu?
Við hreingerningar.
Áttu við að þú sért
leigumorðingi?
Já.
Æði.
Hefurðu drepið einhvern?
Ekki konur eða krakka,
það er reglan.
Hvað kostar að fá mann til
að drepa drullusokkana
sem drápu bróður minn?
Fimm þúsund dali
á hvern kjaft.
Hvað segirðu um
að ég vinni fyrir þig
og í staðinn kennirðu
mér að hreinsa?
Hvað finnst þér?
Ég þríf hjá þér, kaupi inn
og þvæ jafnvel af þér.
Er það samþykkt?
Nei, ekki samþykkt.
Hvað viltu að ég geri?
Ég get ekkert farið.
Dagurinn var erfiður
hjá þér í dag.
Farðu að sofa. Við sjáum
til á morgun.
Þú hefur verið mér
mjög góður, Leon.
Þetta hefur ekki
alltaf verið svona.
Skilurðu?
Góða nótt.
Svafstu vel?
Fínt, því þú verður að fara
að loknum morgunverðinum.
Hvert?
-Það er ekki mitt mál.
Lestu þetta.
Þú kannt ekki að lesa.
Ég er að læra en hef unnið
svo mikið upp á síðkastið
og er því dálítið
á eftir.
Hvað stendur þarna?
"Ég hef ákveðið hvað ég ætla
að verða: Hreinsari."
Ætlar þú að verða hreinsari?
Hérna, eigðu þetta.
Það er kveðjugjöf.
Farðu og hreinsaðu.
En ekki með mér.
Ég vinn einn.
Skilurðu það?
Bonnie og Clyde voru ekki ein.
Og ekki heldur Thelma og Louise.
Enginn var betri en þau.
Mathilda,
af hverju gerirðu
mér þetta?
Ég hef alltaf reynst þér vel,
ég bjargaði jafnvel
lífi þínu í gær hér
fyrir utan dyrnar.
Og þá berðu nú ábyrgð
á lífi mínu.
Þú hlýtur að hafa bjargað lífi
mínu af gildri ástæðu.
Ef þú rekur mig út núna er eins
og þú hafir aldrei opnað dyrnar.
Eins og þú látir mig
deyja fyrir framan þær.
En þú opnaðir þær
og því..
Mathilda..
Ég dey í kvöld ef þú
hjálpar mér ekki.
Ég finn það á mér
og vil ekki deyja í kvöld.
Þú ert bara lítil stúlka.
Taktu því ekki illa
en ég held að þú getir
það því miður ekki.
Af hverju segirðu það?
Ég hálsbrýt þig ef þú gerir
þetta aftur. Skilurðu það?
Allt í lagi.
Ég starfa ekki þannig.
Það er ekki fagmannlegt.
Það eru reglur.
Allt í lagi.
Hættu að segja "allt í lagi"
í sífellu. Allt í lagi?
Heldurðu að þú getir notað
þetta á hótelinu?
Vinur,
ég verð að nota það,
ég fer í áheyrnarpróf
í næsta mánuði og verð
að æfa mig.
En ekki eftir klukkan tíu.
Ég lofa því.
Þú verður við endann
á ganginum
svo þú truflir ekki fólk.
Gerðu svo vel
að útfylla þetta.
Pabbi,
má ég gera það? Mér finnst svo
gaman að skrá mig inn á hótel.
Takk pabbi, ég kem með þá
fljótt aftur.
Fyrsta hæð.
Takk, vinur.
Þú ert heppinn að eiga telpu
sem hefur áhuga á hlutunum.
Ég á 17 ára krakka sem gerir
ekkert allan daginn.
Má ég skilja plöntuna eftir hér
meðan ég fer upp með dótið?
Já, auðvitað.
Ég skrifa nafn bekkjarsystur
minnar. Mér býður við henni.
Ef eitthvað slæmt gerist
fær hún skammirnar.
Þá er það komið.
Kenndu mér hvernig mér
getur fallið við þig.
Ég vil verða sterk
og klár eins og þú.
Ég veit að ég er ekki
enn orðin nógu sterk.
En ég get lært
undirstöðuatriðin,
kenninguna.
Hvað finnst þér?
Bara kenninguna.
Ég þarf á þessu
að halda, Leon.
Ég þarf tíma til
að ná áttum.
Já, og ég þarf..
að fá í glas.
Sittu kyrr.
Ég skal sækja það.
Skál.
Þegar þú baðst mig um að mér
að sækja þessa elsku fyrir þig
hélt ég að heyrnin væri
farin að gefa sig.
Ég hugsaði sem svo að Leon
væri sannur fagmaður.
Enginn notar slíkt
nema byrjendur.
Ég vil halda mér í æfingu.
-Vitaskuld.
Að hafa allt á hreinu.
Ég líka.
Ég verð alltaf að vita
hvar allt er alltaf.
Því er ég alltaf hér nema ég
þurfi að fara eitthvað.
Breytingar eru
ekki góðar, Leon.
Líttu á þetta.
Vertu viss um að þetta sé það rétta.
-Ég treysti þér.
Þetta hefur ekkert hvað með
annað að gera. Mundu það.
Ég geri það.
Riffillinn er fyrsta vopnið
sem maður lærir að nota
því hann leyfir manni að halda
sig fjarri viðskiptavininum.
Þegar við verðum fagmenn
komumst við
nær viðskiptavininum.
Maður lærir síðast
að beita hnífnum.
Staðan.
Nei.
Aldrei að draga hann upp
fyrr en á síðustu stundu.
Ljós speglast í honum
og þeir sjá þig langt að.
Vertu í dökkum fötum.
Aldrei ljósari
en gólfið er.
Æfum okkur, það er besta
leiðin til að læra.
Hvern ætti ég að drepa?
Hvern sem er.
Ég kem eftir andartak.
Kærar þakkir.
Burt með ykkur þarna í jakka-
fötunum. Ég vil ekki sjá ykkur.
Þetta verður að líta
eðlilega út.
Ekki konur eða krakkar?
-Nei.
Skokkarinn í gula
og rauðgula búningnum?
Vertu róleg.
Hafðu ekki augun
af honum.
Andaðu rólega.
Fylgstu með öllum
hreyfingum hans.
Hugsaðu þér að þú
hlaupir með honum.
Reyndu að sjá fyrir
næstu hreyfingu hans.
Dragðu djúpt andann.
Bíddu..
Nú!
Það er ekkert að mér.
-Liggðu kyrr.
Eitt skot. Ekki slæmt.
Ég sé ekkert.
-Liggðu kyrr!
Getum við prófað núna
með alvöruskotum?
Ekki í dag. Tö***
saman dótið.
Haltu þessu áfram.
Hér á eftir..
Nei, þakka þér fyrir.
-Engar samræður.
Þetta virtist..
Heill Sókratesi.
Ég skal gera það.
Við gerum ekki annað
en að vinna, Leon.
Við þurfum að breyta til.
Komum í leik.
Í hvernig leik?
-Ég kann frábæran leik.
Maður hugsar og minnið batnar.
Ekki veitir af því.
Hver er það?
-Ég veit það ekki.
Ég veit ekki.
Yfirskegg.
Gene Kelly?
Gott.
Nú spyrð þú.
Pílagrímur.
Clint Eastwood?
Ég veit það ekki.
Ég gefst upp.
John Wayne.
Ég ætlaði að nefna hann.
Þetta er ótrúlegt.
Alveg stórkostlegt.
Ótrúlegt.
Þér þykir vænt
um plöntuna þína.
Hún er besti vinur minn.
Alltaf ánægð, spyr
aldrei neins.
Og eins og ég..
rótlaus.
Ef þér þykir vænt um hana
komdu henni fyrir í garði
svo hún geti skotið rótum.
Þú átt að vökva mig ef þú
vilt að ég stækki.
Það er rétt.
Þetta verður að stökkva upp,
þetta verður að vera lifandi.
Það er orðið langt
síðan síðast, Leon.
Ég hef saknað þín
og þú hefur misst
af ýmsum góðum verkum.
Ég var í æfingabúðum.
-Það er gott að æfa sig.
En það er ekki jafnvel launað
að æfa eins og að vinna.
Varðandi peningana sem ég
hef unnið mér inn
og þú hefur geymt
fyrir mig..
Vantar þig peninga?
Nei, ég er forvitinn.
Ég hef lengi unnið
og aldrei gert neitt
við peningana.
Ég hélt að einhvern
tímann gæti ég..
notað þá.
Hefurðu kynnst konu?
Þú verður að gæta þín á konum.
Manstu þegar þú komst
til þessa lands?
Þegar ég tók þig að mér?
Þú varst alger grænjaxl.
Þá þegar varstu kominn
í vandræði vegna konu.
Gleymdu því ekki.
Ég vildi að ég gæti
einhvern tímann..
Varðandi peningana mína.
Kannski..
get ég gefið
dálítið
manneskju.
Skilurðu,
til að hjálpa henni.
Þú átt peningana. Ég geymi þá
bara fyrir þig. Eins og banki.
En ég er öruggari því það er
alltaf verið að ræna banka.
Enginn rænir Tony gamla.
Og í bankanum
þarf alltaf að útfylla alls
kyns eyðublöð og hvaðeina.
Hjá Tony þarf ekkert
að lesa eða skrifa.
Hann er með allt
í höfðinu.
Ég er orðinn læs.
Það er gott, Leon.
Gott.
Þú færð peningana
þegar þú vilt þá.
Bara að spyrja um þá.
Hér eru þúsund dalir.
Nei, ég þarf þá ekki.
-Svona, taktu við þessu.
Þú átt að skemmta þér.
Þakka þér fyrir.
Gott og vel.
Ræðum um viðskiptin.
Vertu kyrr,
ég sæki skrána.
Manolo!
Mjólkurglas handa Leon,
vini mínum.
Þú verður að vera
varkár, Mathilda.
Þú mátt ekki tala við hvern
sem er úti á götu.
Rólegur, Leon. Hvaða
fjandans læti eru þetta?
Ég reykti bara
meðan ég beið.
Ég vil að þú hættir
að blóta.
Leggðu þig fram um
að tala fallega.
Og ég vil að þú
hættir að reykja.
Komdu ekki nálægt honum.
Þetta virðist furðufugl.
Ég kem fram eftir fimm mínútur.
Vertu þar sem ég sé þig.
Ég held að ég sé að verða
ástfangin af þér.
Það er í fyrsta sinn
sem ég verð það.
Hvernig veistu að það er ást
ef þetta er í fyrsta sinn?
Af því að ég finn það.
Hvar?
Í maganum
er mikill hiti.
Áður var alltaf
hnútur þar en nú
er hann horfinn.
Það gleður mig
að þú ert ekki lengur
með magaverk.
Ég held að það
tákni ekkert.
Ég er orðinn of seinn í vinnuna.
Mér er illa við að koma of seint.
Hvernig gengur að æfa sig?
Hvernig líður þér
í dag, ungfrú?
Ég er orðin hálfleið
á æfingunum.
Ég skil það
en þetta er gott hjá þér.
Engar kvartanir hafa borist.
Ég lagði klút yfir strengina
til að draga úr hávaðanum.
Það var sniðugt.
Það eru ekki allir
hrifnir af tónlist.
Ég veit það.
Við hvað starfar
faðir þinn?
Hann er tónskáld.
Það er dásamlegt.
En hann er ekki
beint faðir minn.
Hann er ástmaður minn.
Ég ætla í gönguferð.
Hvað gerirðu á laugardagskvöld?
-Hvað um kvöldverð?
Hvert ætlarðu?
-Að heimsækja vin í 6J.
Gerðu svo vel.
Þú ert önnum kafinn og því
reynum við að vera fljótir.
Lýstu nú í smáatriðum
því sem gerðist.
Maðurinn var hér og teygði
sig eftir byssu sinni.
Við skutum hann.
Hvar voru börnin?
-Ég veit það ekki.
Hefðu þau ekki átt
að vera í skólanum?
Þú sagðir í skýrslunni að þú
hefðir farið fyrstur inn.
Hurðin var brotin. Hvað gerðist?
Fórstu að settum reglum?
Ég missti góðan mann.
Hvað viljið þið mér?
Samvinnu þína.
Ég má ekki vera að svona
Mikka músar kjaftæði.
Viljið þið samvinnu?
Komið á skrifstofu mína,
herbergi 4602.
Krakkarnir ættu að vera
í skólanum.
Ég á boltann.
Skilaðu honum!
Hvert ætlarðu?
Hvert ætlarðu, maður?
Ég á boltann.
Eltu bláa bílinn.
Á ég líka að hækka tónlistina
og fara yfir á rauðu?
Ég vil að þú akir hægt,
hirðir hundrað dalina
og grjóthaldir kjafti.
Þetta er til þín..
gjöf.
Viltu að ég opni þetta?
Ég skal opna pakkann.
Hvernig líst þér á?
Fallegt?
McGuffin?
Má ég tala aðeins
við þig?
Mario, farðu á rakarastofuna.
Ég klára þetta seinna.
Hvað er títt, Leon?
Ertu búinn að gera það?
Betra en fólk.
Ég sagði þér það.
Eru vandamál?
-Nei.
Sæktu stólinn.
Tylltu þér.
Sestu.
Mér datt
í hug
að ef eitthvað
kæmi fyrir mig
einhvern daginn..
Ekkert grandar þér.
Kúlurnar hrökkva bara af þér.
Ég var að hugsa
um peningana mína.
Manstu eftir stúlkunni
sem kom hingað
um daginn?
Hún heitir
Mathilda.
Ef eitthvað kemur
fyrir mig
vil ég að þú
látir hana fá
peningana mína.
Þú getur treyst því.
Þakka þér fyrir.
Stattu upp. Ertu ekki
ánægður með starf þitt?
Matur.
Hvert á að fara?
Sérsending í herbergi
númer 4602.
Kvittaðu hér.
Góða helgi, stúlkur.
Sérsending?
Ég giska á
Kínamat.
Er hann tælenskur?
Nú veit ég.
Ítalskur matur.
Hvað heitirðu, gæska?
Mathilda.
Settu pokann á gólfið.
Gott.
Segðu nú frá öllu sem þú
veist um ítalskan mat.
Mundu að nafngreina kokkinn
sem matreiddi þetta.
Enginn sendi mig. Ég sinni
sjálf mínum erindum.
Er þetta þá eitthvað
persónulegt?
Hvaða árans skammarverk
hef ég nú unnið?
Þú myrtir litla
bróður minn.
Það var leitt.
Og nú viltu líklega
fara til hans.
Nei.
Alltaf er það
sama sagan.
Þegar við erum dauðhrædd
við að deyja
lærum við að meta lífið.
Kanntu að meta
lífið, elskan?
Já.
Það er gott.
Af því að ég hef enga ánægju af
að drepa þá
sem kunna ekki
að meta lífið.
Stan!
Ég hef leitað þín
alls staðar.
Ég leitaði uppi,
ég var þar, en kom niður..
Ég er upptekinn.
Malky er dauður.
Malky verslaði fyrir okkur
hjá Kínverjanum.
En Kínverjinn átti engan
þátt í þessu, maður.
Mér var sagt
að maðurinn hefði
komið utan frá.
Þetta væri atvinnumaður.
Hann var snöggur.
Hann birtist skyndilega. Búmm.
Kínverjinn var steindauður
eftir tvær sekúndur.
Rólegur, maður.
Ég er lögga.
Og sneri sér við og sagði við
Malky eitthvað í þessum dúr:
Ekki konur eða krakkar.
Ég held að það hafi
verið einkamál.
Dauðinn er
kenjóttur núna.
Blood,
heyrirðu þetta?
Já, ég heyri, Stan.
Vertu rólegur.
Viltu fara með hana upp
á skrifstofuna mína?
Allt í lagi.
Guð minn góður.
"Elsku Leon,
ég veit hvar mennirnir eru
sem drápu bróður minn.
Stjórnandinn er Norman
Stansfield í herbergi 4602
í byggingu fíkniefnalögreglunnar.
Ég ætla að kála þeim sjálf.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
skil ég eftir 20 þúsund
fyrir leigumorðingja.
Fimm þúsund á kjaft,
ekki satt?
Ég veit að mér líður
betur að þessu loknu.
Ég elska þig.
Mathilda."
Bíddu, ég verð ekki lengi.
Ég get ekki lagt fyrir
framan alríkisbyggingu.
"Ég ræð en þú ekki."
..Og hann gerir nákvæmlega
eins og ég sagði.
9 mm byssa,
skot
og önnur 9 mm byssa.
Hvað hafðirðu hugsað þér
að gera við allar byssurnar?
Kannski ætlaði hún að drepa
alla í húsinu.
Fjandinn sjálfur, hvað er hér?
Hádegismatur.
Varlega, hann gæti
verið eitraður.
Það eru engar
ansjósur á þessu.
"Ekki lengi," sagðirðu. Ég hef
beðið í minnst tíu mínútur.
Ég reyndi að flýta mér.
Avanti.
Manolo,
farðu með krakkana
fram í eldhús.
Ég ber mikla virðingu
fyrir störfum þínum.
Þegar þú hefur drepið fyrir
okkur á liðnum árum
höfum við alltaf
verið ánægðir.
Og einmitt þess vegna
verður þessi dagur
mjög erfiður fyrir mig.
Vonandi fyrirgefurðu
þótt ég sé í slæmu skapi.
Minn maður var drepinn hér
á þínu svæði.
Kínverjarnir sögðu
að morðinginn hefði haft
ítalskt yfirbragð.
Við héldum því að Tony
kynni að vita eitthvað.
Bíddu, það er fleira.
Þér þykir þetta skondið.
Nokkrum stundum síðar
kom tólf ára stúlka inn
á skrifstofuna mína.
Hún var alvopnuð og ætlaði
að senda mig í líkhúsið.
Veistu hver sótti hana síðar
um daginn hingað í húsið?
Það var sami
ítalski leigumorðinginn.
Ég hlakka mjög til
að hitta hann.
Rólegur, allt er
í góðu lagi.
Svafstu vel?
Ég sef eiginlega aldrei.
Ég er alltaf með annað
augað opið.
Nú man ég.
Ég hef aldrei heyrt neinn hrjóta
jafnmikið með annað augað opið.
Hrýt ég?
-Eins og barn.
Ég kaupi mjólk með morgun-
matnum. Ég verð ekki lengi.
Mundu eftir merkinu
þegar þú kemur aftur.
Tvö högg, eitt
og aftur tvö.
Já.
Ég sæki þá mjólk.
Nú læturðu ekkert
heyrast í þér.
Þú svarar með því að kinka
kolli eða hrista höfuðið.
Er hann einn?
Býst hann við þér?
Ertu með lykla
að íbúðinni?
Slærðu viss högg á hurðina
svo hann viti að það ert þú?
Alfa-lið.
Lokastaða. Við erum tilbúnir.
Farið varlega.
Áfram, áfram.
Fjárinn.
Alfa-lið. Maður er fallinn.
Þetta sagði ég.
Benny,
komdu með alla.
-Alla.. hvað áttu við?
Alla!
Taktu þetta.
Litastu um.
Hreyfðu þig ekki.
Sérðu eitthvað?
Það er maðurinn.
Hann er hér og miðar
byssu á höfuðið á mér.
Enginn má hreyfa sig.
Sleppið stúlkunni.
-Rólegur, maður.
Sleppið stúlkunni.
-Allt í lagi. Stúlkan fer.
Sleppið stúlkunni.
Taktu öxina af veggnum.
Farðu.
Þú kemur með okkur.
Almáttugur, hann
skaut hann.
Skepnan þín!
Áfram nú.
Skrúfaðu fyrir vatnið!
Við erum í klípu. Sendið
kettina. Sendið kettina.
Ég veit ekki hvað gerðist.
Ég sá þá ekki koma.
Ég sver það.
Ég fór bara út í búð og þegar
ég kom aftur voru þeir alls staðar.
Vertu ekki nálægt
glugganum.
Leon?
Komdu hingað.
Leyniskyttur.
Komum þessum bölvuðum
grasasna burt.
Hvernig komumst
við nú héðan?
Láttu mig um það.
Við förum.
En þetta er ekki nógu
stórt handa þér.
Þetta er varla nógu
stórt handa mér.
Við samþykktum að tala
ekki um þetta.
Ég leyfi þér það ekki.
Ég fer ekki.
Ég fer ekki!
Hlustaðu á mig.
Við eigum enga von saman en ég
get þetta einn. Treystu mér.
Ég er vel á mig kominn.
Og ég veit að ég á mikla
peninga hjá Tony.
Við tö*** þá og förum
saman. Bara við tvö.
Farðu.
-Nei.
Þú segir það bara svo ég
hafi ekki áhyggjur.
Ég vil ekki missa þig, Leon.
-Þú missir mig ekki.
Þú hefur kennt mér
að meta lífið.
Ég vil vera ánægður, sofa
í rúmi, festa rætur.
Þú verður ekki framar
ein, Mathilda.
Farðu nú, elskan.
Vertu nú róleg.
Farðu nú.
Hittumst hjá Tony.
Ég kála þeim öllum.
Hjá Tony eftir klukkustund.
Ég elska þig, Mathilda.
Og ég elska þig, Leon.
Það átti bara að drepa manninn,
ekki eyðileggja allt húsið.
Hér er einn á lífi.
Náðu í sjúkraflutningamann!
Við erum með særðan mann.
Færið ykkur!
Sendið hann niður stigann.
Af stað nú.
Ég er með hann.
Tveir menn koma niður.
Er allt í lagi?
Ég þarf að fá
sjúkraflutningamann hingað.
Drullið ykkur frá.
Fyrsta deild, hvernig er
ástandið í íbúðinni?
Ekkert sést fyrir reyk. Við
loftum út á fimm mínútum.
Það er komið.
Hvað? 250 menn geta ekki
fundið einn mann og stelpu.
Funduð þið stelpuna?
Hvernig gengur? Taktu
strax af þér grímuna.
Má ég sjá þetta.
Þetta er djúpt.
Þessi hér..
Ertu úr þriðja umdæmi?
Nú drögum við
upp ermina.
Gott. Ágætt. Niður með hana.
Vertu hérna í tvær mínútur.
Ég kem strax aftur.
Leyfðu mér að setja aftur
grímuna, þá er betra að anda.
Það er rétt.
Bíddu hér.
Allir út núna.
Drífum okkur. Allir út.
Farið frá. Allir frá.
Hvað ertu að gera?
Farðu út.
Stansfield?
Til þjónustu reiðubúinn.
Þetta er
frá..
Mathildu.
Fjárinn.
Leon bað mig að hjálpa þér
ef eitthvað kæmi fyrir.
Ég held að eitthvað
hafi komið fyrir.
Hann lagði til hliðar
peninga handa þér.
Ég legg til
að þar sem þú ert
svona ung
skal ég geyma þá fyrir þig
þar til þú verður eldri.
Eins og banki.
En betri en banki því það er
alltaf verið að ræna þá.
Enginn rænir Tony gamla.
En þú átt peningana.
Það eina sem þú þarft að gera
er að koma hingað annað slagið,
þá læt ég þig fá peninga
svo þú getir skemmt þér dálítið.
Hér eru hundrað dalir
sem fyrsta greiðsla.
Get ég heldur fengið vinnu?
-Vinnu?
Hvað getur þú unnið?
-Ég get hreinsað.
Ég hef enga vinnu handa 12 ára
krakka. Hættu að hugsa um það.
Þetta er búið.
Leiknum er lokið.
Leon er dauður.
Heyrirðu það?
Svona nú.
Heldurðu að mér líði
ekki líka illa?
En hann er dáinn.
Gleymdu þessari vitleysu
og farðu aftur í skólann.
Skilurðu það?
Taktu aurana og láttu mig ekki
sjá þig fyrr en eftir mánuð.
Mér finnst sem ég sé að missa
hina frægu góðsemi mína.
Foreldrar mínir
dóu í bílslysi
fyrir fjórum vikum.
Það var hræðilegt.
Ekki gafst tími til að við
kynntumst hér áður
en ég er ekki þannig kona
að ég bregðist börnum,
hvernig sem ástandið er,
hvaða mistök sem þau hafa gert.
Ég ætla að hjálpa þér og reyni
að bjóða þig velkomna aftur
en með einu skilyrði.
Þú verður að hætta að ljúga
að mér, Mathilda.
Þú átt að taka áhættu
og treysta mér.
Segðu mér nú hvað
kom fyrir þig.
Eiturlyfjalögreglan skaut
fjölskyldu mína niður
vegna dóps.
Ég komst undan með
besta manni í heimi.
Hann var leigumorðingi,
sá færasti í borginni.
Hann dó í morgun
og ef þú hjálpar mér ekki
verð ég dauð fyrir kvöldið.
Þekkirðu hana?
-Nei.
Ég hef aldrei séð hana.
Ég held að okkur verði
óhætt hér, Leon.