Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hafið þögn.
Taka hefst.
Viðtal við Cody Maverick,
taka eitt.
Af hverju takið þið
viðtal við mig?
Við vinnum við gerð
raunveruleikaþátta.
Þarf ég ekki að fá
spurningarnar áður?
Nei. Þær eru léttar.
Viltu standa
á þessum kassa?
Þarna?
Hvað er þetta?
Þetta er hljóðgræja
eða hljóðnemi.
Blessaður. Ég heiti Cody.
Hvað ertu gamall,
14 eða 15 ára?
Ég er orðinn 17 ára.
Kanntu eitthvað annað
en að brima?
Eins og að syngja og dansa?
-Já.
Nei, ég kann bara að brima.
-Ræfill.
Þegiðu Glenn, hættu þessu.
Við erum að gera
bíómynd um Cody.
Þarf hann að vera hérna?
-Myndin verður frábær.
Ég fer í biðröð
til að sjá hana ekki.
Byrjum aftur.
Fyrst við tölum um brettabrim,
viltu segja okkur þína
skoðun á því? -Að brima.
Hvar á ég að byrja?
-Á byrjuninni.
Um leið og fyrsta
aldan hóf sig
byrjuðu menn að brima.
Þeir þurftu ekki annað
en rekaviðarbút
eða klakastykki og þeir fóru
á fulla ferð.
Og þeir urðu strax
háðir því.
Fram til þessa voru þetta bara
gamlir brimarar sem tóku sexuna
og lágu bara á þessum
risastóru brettum.
Þeir voru frumherjarnir
en menn vissu ekki
hvað það var að brima
fyrr en Z
sýndi takta sína.
Geturðu sagt okkur hver hann var?
-Hver Z var?
Þú spyrð einmitt
rétta manninn.
Z er málið.
Z gat brimað.
Hafið var ekkert fyrr en Z
fór á brettið.
Hafið var fundið upp
fyrir hann.
Hann lét allt flakka
því hann þorði að lifa.
Og hann óttaðist
ekki dauðann.
Hann kom á suðurskautið
þegar ég var polli.
Menn höfðu aldrei séð
annað eins.
Skyndilega birtist hann.
Hann sigldi á öldunum.
Sveif yfir þeim líkt og hann
væri þyndarlaus.
Þarna voru allir samankomnir
og hann gekk beint til mín.
Hann gaf mér þetta rosalega
og einstaka Z-hálsmen.
Og hann sagði:
,,Aldrei gefast upp, stráksi.
Finndu leið.
Það gera sigurvegarar.''
Hann var bestur.
Allir litu upp til hans,
virtu hann og dáðu.
Og dag einn ætla ég
að verða eins og hann.
Ég hef brimað frá því
ég var smásnáði.
Ég hef brimað frá því
ég var smásnáði.
Ég man varla eftir mér
öðruvísi en á brettinu.
Ég vil komast héðan
og þetta er farmiðinn minn.
Ég er rosalegur.
Langbestur á eyjunni.
Það hljómar eins og grobb
en það er satt,
ég er bestur.
Suðurskautslandið
Skjálfandi
Ég er fæddur og uppalinn
hér á Skjálfanda.
Sumar
Ég hef búið hér alla ævi.
Þarna flokka þeir fiskinn.
Ég veit ekkert
heimskulegra.
Ég vann þarna.
Bara til að friða mömmu.
Gamli góði Skjálfandi.
Hann er glataður.
Ég vann mig upp,
byrjaði í sardínunum,
fór svo í makrílinn
og endaði í plokkfisknum.
Mikið strit.
-Annað en sumir.
Já, eins og strákkvikindið
á spýtunni.
Mitt hús? Þarna niður frá.
Hjá brettunum.
Ég bý þarna með mömmu
og Glenn bróður mínum.
Hann var agnarsmátt egg.
Edna Maverick
Móðir Cody
Ekki mikill bógur.
Glenn var stóra eggið.
Cody það litla.
Engum að kenna.
Hann er bara svona.
Glen
Bróðir Cody
Hann er í sjónum
allan daginn...
Hann er svo ábyrgðarlaus.
Það er mikil ábyrgð
að unga út eggjum.
Cody bróðir skilur það ekki.
Hann þarf að taka sér tak.
Það þarf hörkutól
til að liggja á eggi.
Þú ættir að vita það.
-Kiddi, komdu til pabba.
Hann vill skera sig úr hópnum,
alltaf að tönnlast á því.
Enginn má vera að því að...
Það eru bara sex mánuðir
í deginum.
Takk fyrir að koma.
Ég vildi ekki missa af þessu.
-Takk fyrir að koma.
Hvernig gekk?
Hann er stóri bróðir
og ég litli bróðir.
Ég snerti þig ekki.
Kem ekki við þig.
-Sástu þetta?
Ekki.
-Ég gerði ekkert.
Hann lætur mig ekki í friði.
Ég þurfti að berjast fyrir öllu.
Jafnvel kássunni hennar mömmu.
Ég var heppinn að halda lífi.
-Hann átti erfiða æsku.
Eins og ég sagði...
hann þekkti aldrei
pabba sinn.
Bubbi Maverick
(Látinn)
Það þýðir lítið
að spyrja mig,
ég var of ungur
til að muna það.
Hann var ekki eini pabbinn
hér á eyjunni
sem var étinn.
Það hlýtur samt
að hafa verið áfall.
Nei, ekki fyrir mig.
Hver er svo draumurinn?
Að fara burt.
Að fara burt.
Það er frábært.
Viltu drykk?
Hann vill flýja
til að forðast ábyrgð.
Þetta er alveg nýtt.
Frekar ólíkt þeim.
-,, Ég á mér draum.''
Er þetta ólíkt honum?
-Hættu þessu.
Þú ert svo dónalegur.
Ekki myndi ég gera þetta.
Þú myndir bara
ekki nota munninn.
Það er munurinn
á okkur tveimur.
Ég þoli þetta ekki lengur.
Sjáðu hvað þú gerðir.
Þetta snýst um mig, ekki þig.
Af hverju er hann hérna?
Já, einmitt. Mamma!
Því eru allir svona
dómharðir?
Ég skil mömmu.
Henni er ekki sama,
að vissu leyti.
Og kannski líka
af því hún veit
að fólk hugsar:
,, Cody er ræfill.
Cody er þetta.
Cody er hitt.''
Ég er Cody.
Ég vil vera ég.
Hvenær fæ ég frið
til þess?
Veistu hvað ég er kallaður?
Draumasmiðurinn.
Raggi Belafonte
Brimskipuleggjandi
Ég finn þessa krakka,
kem með þá hingað
og veiti þeim tækifæri
til að mannast.
Mín mesta gleði sem brim-
skipuleggjandi var að uppgötva Z
og sjá hann komast
á toppinn.
Ég trúi því ekki enn.
Hann var mér sem sonur.
Mér þótti svo vænt
um hann.
Getum við gert stutt hlé?
Hvernig er hárið?
Tíminn líður.
Þegiðu.
Er það glatað?
Bara nokkrar spurningar
enn um Z.
Ég held að menn langi
frekar að heyra
sögu Ragga Belafonte
og ekki að undra.
Z er eiginlega
viðfangsefni...
Fáum kókossafa-
gaurinn hingað.
Og hvað með gaurinn
sem sópar?
Megum við heyra um þitt
leiðinlega og innantóma líf?
Burt með fjaðrirnar.
Hættu!
Ég hef ekki allan daginn,
ég er að vinna.
Láttu það koma!
Velkomin í SPEN-sportið.
Þetta er Samúel Örn
og við erum stödd í höfuðborg
brimaranna Mör-gæ eyju
í tilefni 10. brimbrettamótsins
í minningu Z.
Atvinnubrimararnir ótrúlegu,
Kalli og Þór,
segið okkur hvers
brimararnir mega vænta.
Öldurnar skipta öllu.
Þær eru fullkomin blanda
fegurðar og hættu.
Jafnvel atvinnumenn óttast
þetta svæði.
Þessi staður er kallaður
grafreiturinn.
Þaðan hafa fáir brimarar
átt afturkvæmt.
Áttu við að þarna
hafi orðið dauðsföll?
Einmitt.
-Vottum þeim virðingu með þögn.
Ef grafreiturinn
hræðir ekki keppendur
ætti Tankur tætari Einars
að sjá um það.
Tankur er nífaldur titilhafi.
Ég fyrirmynd? Nei.
Tankur ""tætari"" Einars
Nífaldur titilhafi
En ég held að allir ættu
að líta upp til mín.
Krakkar ættu að þykjast
vera Tankur.
Eða þeir geta reynt það.
Gangi þeim vel.
Langar þig ekki
að hjálpa þeim,
kenna krökkunum að brima
og vera með þeim?
Ég hef ekki áhuga á því.
En þarna kemur aldan mín.
Tankur Einars,
alltaf góður.
Farið ekki langt.
En snúum okkur aftur
að keppninni.
Ég vildi segja að ég
er í leit að nýju undri.
En það er önnur saga.
Heimsleitin mikla,
78. dagur.
Hann leitar ekki.
Ég finn mörgæsirnar.
Mikki Abromowitz
Hæfileikaútsendari
Ég finn hæfileikamenn.
Raggi, stjórinn, hefur
sent mig út um allt.
Í hverjum sjó, vatni og polli.
Það er fáránlegt.
Ég tek svo mikið
af mígrenipillum.
Stressið er að drepa mig.
Ég held þetta ekki út.
Þú ættir að prófa
blástursopið, maður.
Maður fer í annarlegt
ástand.
Ég tapaði veðmáli.
Afsakið.
Kann nokkur á þessum
eyðimerkurklaka að brima?
Cody Maverick kann það.
-Dásamlegt. Takk.
Þú veist að þú
ert á hálum ís.
Afsakið, ég er að leita
að Cody Maverick.
Hefur nokkur séð Cody Maverick?
-Ég er Cody Maverick.
Mikki Abromovits
frá minningarsjóði Z.
Komstu til að hitta mig?
Þú kannt að renna þér.
En sá heiður.
lndælt. Frábært.
Þú kannt að brima.
Er það ekki?
-Þú verður að sjá taktana.
Geturðu staðið á brettinu?
-Ég verð fljótur.
Þegar þú sérð hvað ég get
verður allt gott
og ég kem með þér.
Yndislegur dagur.
Mamma! Hann kom. Mikki.
Hann er kominn.
Hann gefur mér tækifæri.
Viltu sjá mig brima?
Nei, ekki núna.
-Bara í þetta sinn.
Ég er upptekin.
Ég er að saxa.
Þá það.
Óskaðu mér góðs gengis.
Passaðu þig á stóru öldunum.
Jæja, drífum í þessu.
Þú hefðir átt
að vera hér í gær.
Þá var fín alda hér.
Ég fór í 360° eins og
ekkert væri. Það var æði.
Rosalegt!
Settu í gang.
Nei! Bíddu! Gefðu mér
eitt tækifæri enn.
Ég þarf bara eitt tækifæri.
-Þú fékkst það.
Farðu ekki.
-Því miður, stráksi.
Bíddu eina sekúndu.
-Kannski næsta ár. Af stað.
Förum. Hann er að koma.
-Bara eina öldu.
Ég hef aldrei unnið neitt.
Mig langar að sigra
einu sinni.
Áður leitaði ég
að söngfuglum.
Piparfuglum fyrir revíu
í Brasilíu.
Það er skemmtanabransi.
Piparfuglar... -Bíddu!
Ég fer til Mör-gæ,
sama hvað þú segir.
Kemur ekki til mála.
Þetta er keppni
fyrir alvörubrimara.
Kemst þessi drusla ekki hraðar?
Gefðu í, fiskibolla!
Greyið. Ég vorkenni honum.
-Bíddu!
Sáuð þið þetta?
Hann náði næstum brettinu.
Næst náum við því.
En hvað um það...
-Bíddu!
Við náðum þér.
Þú ert þyngri en ég hélt.
Okkur tókst það.
-Takk fyrir.
Samvinna borgar sig.
Ég er Jói kjúll. -Takk, Jói.
Þú mátt aldrei gera neitt
þessu líkt í keppninni.
Er ég með?
-Já.
Því þetta var skemmtilegt
á hrollvekjandi hátt.
Það var lagið.
Ég heiti Cody Maverick
frá Skjálfanda. En þú?
Nei, ég er ekki
frá Skjálfanda.
Hvaðan ertu?
Ég er frá Silungapolli.
Þar brima ég.
Ég var eini brimarinn þar
og margir héldu að ég væri
klikkaður en ég er vanur því.
Ég þekki það.
Er það?
-Já.
Rosalegt.
Freðinn rass!
-Hjálpið kjúllanum.
Raggi Belafonte kynnir
Ragga ***
Varaðu þig!
-Hræðilegt!
Kalli og Þór.
Hvað segið þið gott?
Allt gott, takk.
-En þú?
Allt fínt. Sjáumst.
Rosalegt.
Snertið ekki
Smokkfiskur á prjóni
Z var hér
Sjáðu, ég stend
þar sem Z stóð.
Bragðaðu þetta.
Nei, takk.
-Bara einn bita.
Jæja, þá. Bara einn bita.
Hvað segirðu svo?
Ekki slæmt, það bragðast
líkt og kjú...
Hvað er kjú-kjú?
Víkið! Fjárans.
Ég er ástfanginn.
Hjálp, ég er að drukkna!
Af hverju stendurðu hér?
Talaðu við hana.
Ég tala ekki við hana.
-Henni líst vel á þig.
Hún kallaði þig ,,fjárans''.
Takk, aftur.
Þetta er í þriðja sinn í vikunni
sem þú missir meðvitund.
Það hlýtur að vera slæmt
fyrir heilann.
Ég veit það.
Bless, Lani.
Þetta var glæsilegt.
Þú bjargaðir lífi hans.
Það var ótrúlegt.
Komstu til að keppa?
Ég fylgist með þér.
Í alvöru?
Viltu horfa á mig?
Já, af strandvarðapallinum.
Það er mitt starf.
Það er vinnan þín.
-Ætlarðu að kyssa hana?
Hvað er á seyði?
-Láttu ekki svona, Jói.
Þú sagðist vera ástfanginn.
-Ég sagði það ekki.
Hann er svo skotinn í þér.
-Sjáumst seinna.
Ég er í frábærri vinnu.
Keppnin fer að byrja
svo það er mikið um að vera.
Lani
Strandvörður
Maður þarf að fylgjast
ennþá betur með.
Maður má ekki missa af neinu
með svo marga í sjónum.
En ferill minn er flekklaus.
Ég hef ekki misst neinn.
Otf hefur munað litlu en...
Hjálp!
-Ég lít af þér í eina...
Segðu eitthvað sætt.
-Eins og hvað?
Segðu eitthvað, snertu hana.
-Sýndu mér það.
Ég er Laní. Þú ert ég.
-Ertu alveg viss?
Ég legg mig allan fram.
-Sleppum því.
Hvað er að?
Sjáðu þetta!
Minnismerki Z.
Manstu ekki?
-Nei, eiginlega ekki.
Brimbrettaheimurinn
hefur misst frækinn garp.
Z hélt í sína
síðustu ferð í morgun
í keppni við upprennandi
brimara, Tank Einars.
Z sást síðast svamla út
í öldurótið í Mör-gæ flóa.
Vinir Z komu saman
til að heiðra minningu hans.
Ég hitti alltaf.
Hann hefur góðan kastugga.
Hættu þessu!
Þrisvar sinnum í röð.
Prófaðu sjálfur.
Bíddu við. Sjáðu þetta.
Hættu!
-Þetta er Z-hálsmen.
Þetta er ekki fyndið
Hvað ertu að gera?
Sjáið síðasta
aðdáanda Z!
Víkið. Farið frá.
Þú skalt ekki nefna hann á nafn.
-Hann gat ekkert.
Þegiðu!
-Ekkert er sama og núll.
Þú verður aldrei jafngóður
og Z, Blankur.
Hættið nú, strákar.
Elskum friðinn.
Ekki blanda kærustunni
í þetta!
Láttu vin minn vera.
Nú tekur vel á.
Þetta er gott.
Viltu taka rassvöðvana líka?
Þetta er gott.
Nú er nóg komið, strákar.
Ég skora á þig hvar
og hvenær sem er.
Af hverju ekki
hér og nú?
Mikki, láttu hann
hafa bretti!
Hver vill sjá krílið
takast á við meistarann?
Smávaxnir eru bestir!
Við fáum einvígi
á brimbrettum.
Það eru Tanks Einars
og Jerrys...
Cody.
-Cody Maverick.
Cody Mavenkirk. Sá vinnur
sem nær stærstu öldunni.
Kvíðir þú fyrir að keppa
á móti Tanki?
Því skyldi ég
vera kvíðinn?
Gefið þeim gott klapp!
Ég nota hausinn á þér
fyrir beitu.
Reyndu það, skögultönn.
Komdu.
Skögultönn?
Ég á þessa!
Hvernig verður að skella sér
í sjóinn
með alla þessa
áhorfendur?
Það verður frábært.
Þetta verður mín besta alda.
Ég vona að þetta
náist á mynd
því þið viljið sjá það
aftur og aftur.
Þetta verður æðislegt!
Ég get ekki horft á þetta.
Strákgreyið.
-Þetta var glæsilegt!
Ég er bestur!
Tankurinn!
Við bíðum nánari frétta.
Strandvörðurinn
dró hann á land.
Svona fer þegar menn
takast á við Tankinn.
Hvernig líður honum?
-Hann lifir.
Ég get hjálpað nema það sé blóð.
Tilhugsunin ein...
Hjálpið kjúklingnum.
Er allt í lagi, Tankur?
-Mig vantar eldsneyti.
Mikki, náðu í brettið.
Svona, svona.
Vann ég?
Ég vann, er það ekki?
Þú áttir að vera kyrr
á Skjálfanda.
Þú jafnar þig.
Sérðu þetta.
Ljósálfar alls staðar.
Hvernig líst ykkur á að Cody
keppi og sigri kannski?
Af hverju hlærðu?
Af því hann segir ,, kannski'' .
Eins og það sé mögulegt.
Eins og þú getir eitthvað.
Hvaða möguleika áttu?
Á ég ekki mikla
möguleika?
Ég á möguleika.
Ég er ekki slakur.
Auli! Komdu
og hjálpaðu mér.
Vaknaðu! Ég þarf aðstoð.
Hunskastu nú á lappir
og hjálpaðu mér.
...yndislegur draumur.
Þekktir þú nokkuð Sillu?
-Nei.
Bíddu. Hvað?
-Hvað?
Hver er þetta?
Hann er brimari. Hann meiddist.
-Hverjir eru þetta?
Þeir eru með honum.
Láttu sem þú sjáir þá ekki.
Komdu.
-Hvað ertu að gera?
Hjálpaðu honum,
þá fara þeir.
Farið burt!
-Hjálpaðu honum!
Hvar viltu fá hann?
-Hvergi. Það er málið.
Enga ókunnuga.
-Ég veit það.
Þetta er neyðartilfelli.
Hann lenti í rosa öldu.
Lenti hann á rifi?
-Ég veit það ekki.
Er ekki viss.
Ég náði honum eftir...
Er hann kærastinn þinn?
-Nei.
Bíddu. Mér sýnist hann
hafa stigið á Eld-ígul.
Stigið á mig?
Ertu að grínast?
Hann dansaði á mér.
Sjáið þið bara.
Brotin, brotin, farin,
brotin...
Þetta er slæmt.
Þetta er afar slæmt.
Þetta var sárt.
-Þú jafnar þig.
Ég átti víst ekki
að taka þetta.
Nú kemst eitrið út.
Ótrúlegt.
Hvað er ótrúlegt?
-Að þú lifir.
Þetta er ekkert mál.
Ég get læknað fótinn.
Hvar er hún? Ég var að leita...
-Þetta er sög.
Hann má ekki hreyfa sig.
Eitrið breiðist út
um allan líkamann.
Hérna er það.
Hvað ertu að gera?
-Hvað er hann að gera?
Þetta er pottþétt lækning
sem ég lærði hjá töfralækni.
Þetta gerir kraftaverk.
Hvað? Nei! Ekki þetta!
-Ekki hvað?
Hvað ætlar hann að gera?
Drífum í þessu.
Hættu.
-Gerum þetta.
Laní, geturðu líkt
eftir vatnsnið?
Þetta er ógeðslegt.
-Vatnsnið?
Svona nú.
-Nei, nei.
Reyndu nú að þegja.
Hvað sagði ég?
Haltu fætinum, Laní. Svona.
Rotaðu hann eða eitthvað.
Ég er að verða tómur.
-Ég reyni það!
Hvernig hefurðu haft það?
Ígulker í fótinn.
Það hljómar ekki vel.
Hvernig læknar maður það?
Maður pissar á það.
Það er ógeðslegt.
-Já!
Hvað sit ég lengi
uppi með hann?
Þangað til honum batnar.
Komdu fljótt aftur
og komdu með skelfisk.
-Nei.
Hann er að klárast.
Ég get það ekki. Þú verður
að sjá um þig sjálfur.
Gerðu það.
-Bless.
Komdu með skelfisk!
-Já, já.
Ég vil ekki tala um Cody
ef ykkur er sama.
Hann tapaði. Það er hans
vandamál, ekki mitt.
Læturðu þér aldrei annt
um velferð annarra?
Honum líður vel. Hann fæddist
í sjónum. Hann er mörgæs.
Sástu ölduna sem felldi hann?
-Það fylgir því að brima.
Mér er ekki sama!
Sjáið litlu leggina.
Labbi, labb.
Svona labba ég.
Búmm sjigga sjigga.
-Hvað er þetta búmm sjigga?
Ég þoli ekki blóð.
Ég þoli ekki blóð.
Ég þoli ekki blóð.
Cody!
Hefurðu nokkuð séð Cody?
Hann er ekki hér.
Hvað segirðu, vinur?
Ég vaknaði í morgun
og vissi ekki hvar ég var.
Það er ekki gott
að vakna þannig.
Á fætur. Morgunmatur.
Vaknaðu nú.
-Ég vil það ekki.
Hvernig er fóturinn?
Hann er fínn en höfuðið
á mér... -Gott.
Komdu nú. Stattu upp.
Hvaða...
Ég fékk víst heilahristing.
Þú ættir að hitta bróður minn Glenn.
Þið væruð góðir saman.
Æ, nei. Hvar er hálsmenið mitt?
Sástu hálsmenið mitt?
Það gerir ekkert til.
Þú getur keypt nýtt
í glingurbúðinni hans Ragga.
Þetta er ekki venjulegt hálsmen.
Hann gaf mér það sjálfur.
Hver? -Z.
Hann kom á Skjálfanda.
Hann var sá eini
sem hafði trú á mér.
Hann sagði mér að gefast
aldrei upp og finna leið
því það gera sigurvegarar.
-Jæja.
Það er fyndið því svo
klúðraði ég öllu.
Hverju skiptir
hvað Z sagði?
Þú verður að finna
þína eigin leið.
Ég hef enga leið.
Jú, víst. Fylgdu þessari.
Þá kemstu á norðurströndina.
Jæja, gaman að kynnast þér.
Gangi þér vel.
Hvað geri ég nú?
Ég fer ekki á ströndina
og ekki heim.
Maður sér fyrir sér það
sem maður ætlar að gera.
En ekki þetta.
Hvað ertu að gera hér?
Hérna.
-Þakka þér fyrir.
Svalt að þú skyldir koma.
Takk fyrir.
Hertu hnútinn vel.
Ef hann losnar í keppni
týnirðu því.
Ég tek ekki þátt
í neinni keppni.
Keppnin snýst ekki bara um
að vinna Tank Einars.
Sjáðu þetta.
Veistu á hverju þú situr?
Þetta er kóatré.
Bestu brimbretti heims
eru gerð úr því.
Er það?
-Áttu kóabretti?
Ég á ekkert bretti.
Langar þig...
Langar þig að smíða bretti?
Nei.
-Hvað?
Ég arka alla þessa leið
með hálsmenið
og býðst til að smíða bretti
fyrir þig en þú segir nei.
Stattu á lappir.
Við smíðum bretti.
Þetta verður besta
brettið þitt.
Allt í lagi.
Þetta er svalt.
Af hverju ertu
að leita að Cody?
Við höfum þekkst
alveg síðan...
síðan í gær
ef ég man rétt.
Við eigum margt
sameiginlegt.
Ég þekkti pabba eiginlega
ekkert heldur.
Bobbi kjúll
(6 bitar í fötu)
Af hverju smíðum við brimbretti
úti í miðjum frumskógi.
Ég skil þetta ekki.
Þetta er enginn
spurningaleikur.
Höldum bara áfram
með brettið.
Ég velti bara fyrir mér...
ertu brimari eða...
En fyndið.
Tala minna, ýta betur.
Af hverju ýtum við þessu?
Veltum því bara.
Fyrirgefðu, þetta var
ekki viljandi.
Ég vissi ekki af fætinum
á þér. Meiddirðu þig?
Fyrirgefðu.
Þetta var ekki viljandi.
Cody. Bolurinn!
-Já, ég veit.
Auli! Stoppaðu!
Taktu í klifurjurtina!
Togaðu.
Ég er að toga.
-Togaðu!
Hjálpaðu mér upp svo ég
geti rassskellt þig.
Ég hélt að ég hefði drepið þig.
Er allt í lagi?
Næst þegar ég segi þér
að velta ekki...
Hvað er þetta?
Þetta er strönd.
Sandur, vatn, sól.
Þetta er allt saman eins.
Komum okkur burt.
Komdu, maður.
Kíkjum á þetta.
Heldurðu að það sé allt í lagi
með Cody og Aulann?
Það er leitt að vita
af honum einum.
Hann hefur gott af
að fá eitthvað að gera.
Hérna er gamall brettaskúr.
Að sjá þetta.
Þetta eru Z-bretti.
Stór Z-bretti. Hann notaði þetta
á opna ástralska meistaramótinu.
Þetta notaði hann
á Skjálfanda.
Z átti heima hérna.
Hér bjó hann og hér
smíðaði hann brettin.
Vissirðu af þessu?
Af hverju vildirðu
ekki koma hingað?
Svo fór hann að þessum kofa.
Z
og þá skildi ég...
að þetta væri hann.
Við söknum þín
-Til Z með söknuði.
Ég sá að hann þurfti
að fá að vera einn.
Ég vildi ekki
spyrja hann neins
svo ég stóð bara
og þagði.
Þú ert Z!
Ég trúi þessu ekki.
Þú ert á lífi!
Þannig á maður
að haga sér, held ég.
Af hverju ertu á lífi?
Hvað gerðist?
Segðu mér allt.
Byrjaðu á byrjuninni.
Þú meiðir þig, stráksi.
Rólegur.
Fólk sagði að þú værir dáinn
en þú ert bara í felum.
Það gerðist eitthvað,
er það ekki?
Þú sást eitthvað sem þú
áttir ekki að sjá.
Ég vissi það!
Ertu bilaður? Það er ekkert
samsæri. Ekkert stórmál.
Hvað gerðist?
-Ég vil ekki ræða það.
Allt í lagi, ég skil.
Ég verð hérna ef þig vantar
eitthvað eða vilt tala.
Langar þig að tala núna?
Farðu.
-Ég skil. Ég fer.
Nema þú...
-Cody!
Já, allt í lagi.
Ég vil ekki ljúga.
Þetta er frábært, maður.
Þetta breytir öllu.
Keppnin hefst
eftir nokkra daga.
Ef ég fæ hann
til að þjálfa mig...
Þá gæti ég sigrað.
Mig dreymir um það.
Ég vil að sá draumur rætist.
Sigurvegarar finna
alltaf leið.
Sigurvegari er sá...
Þeir setja sér markmið
og stefna á það.
Þeir skeyta ekki
um fé eða frægð.
Sigurvegari eins og...
Sá sem skemmtir sér best
í öldunum.
Það er rosalega gaman.
Ég skil. Ég nýt þess
að sjá aðra tapa.
Þeir brima vegna ánægjunnar,
sæluvímunnar
og hægu endursýninganna
sem er mitt...
Farðu í sjoppuna þarna
og fáðu þér haltu kj...!
Best er þegar margir
eru lélegir.
Varstu að spyrja um það?
Sigurvegari er sá sem hrindir
mér ekki af brettinu
og skemmir það á meðan ég
reyni að ná öldu.
Sérstaklega Tankur.
Hann er ekki sigurvegari.
Tankur er ruslafata
full af skít.
Ég man ekki eftir mér
öðruvísi en á bretti.
Mamma setti mig strax á það.
Ég held hún hafi skotið
mér beint á brettið.
Af hverju finnst þér
svona gaman að brima?
Það er gaman að vera
miðpunkturinn
af því að þar á ég heima.
Og augngoturnar frá dömunum
skemma ekki.
Þessi glampi.
Það er æðislegt.
Það er svo gaman
að faðma þær.
Skilurðu hvað ég meina?
-Ég held það.
Eiginlega.
-Komið með mér.
Verið úti eða deyið
Ég setti þetta sjálfur.
Hér eru dömurnar mínar.
Þetta er Ýr.
Þessi dama heitir Anný.
Sissa litla. Díana.
Veistu af hverju hún
heitir Díana? -Nei.
Það er löng saga.
Sigþóra. Helga. Og Kiddý.
Jenný. Eins og í
sjónvarpsþáttunum.
Teresa.
þetta er Teresa mín.
Þessi Teresa, er hún...
-Óþekk stelpa.
Og hérna.
Hérna verður mjög
sérstök dama. Lína.
Ég ætla að segja þetta aftur.
Lína. Ó, já.
Hún er ljúf stúlka.
Tankur. Ertu enn
að pússa bikarana?
Nei, ég var að tala
við vini mína.
Ég ætla að pússa þá seinna.
Hvenær kemur hann út?
Filman er að verða búin.
Herra Z!
Af hverju ertu ekki dáinn?
Ég er dáinn.
Hvað ertu að gera?
Hver sagði að þú...
Snúðu við.
Komdu þér í land.
Komdu og kenndu mér tökin.
Nei.
-Komdu!
Náðu í bretti og komdu.
Þú mátt drepa þig
mín vegna.
Hvort þú mátt.
En ekki skemma brettið.
Hvernig á að snúa við?
Þetta er ekki stutt bretti.
Sestu aftast.
Nú kemur alda!
Ef þú rústar brettinu
rústa ég hinni löppinni á þér.
Ég er að reyna að sigla
þessum kanó eða hvað þetta er?
Reyndu ekki svona mikið á þig.
Slakaðu á.
Hvað áttu við?
Langar, mjúkar strokur.
Stinga djúpt. Djúpt!
-Ég er að því!
Upp með nefið! Upp!
Passaðu þig! Þú ferð kollhnís.
Hvað ertu að gera?
Gerðu það komdu.
Ég læri aldrei neitt
ef þú ert á stöndinni.
Þá lærirðu bara ekki neitt.
Komdu nú.
-Ekki fyrr en þú kemur út í.
Þú kemur víst.
Hann sér ekki
einu sinni ölduna.
Hvaða öldu?
-Þessa þarna.
Fimm, fjórir, þrír,
tveir og...
Láttu mitt dót vera.
Fyrirgefðu. Ég vildi læra
hjá þeim besta.
Ég er hættur að brima.
-Hvað þá?
Hvað meinarðu með því?
Langar þig að læra að brima
almennilega? -Auðvitað.
Þá þarftu að smíða
þitt eigið bretti.
Hvað áttu við með að þú sért...
-Heyri ekki.
Má ég bara spyrja hvernig...
-Smíðum bretti.
Segðu mér frá brettinu þínu.
Það er bara úr pálmatré.
Þetta er ekki besta
bretti í heimi
en þetta er samt ágætt.
Frumbyggjar á Hawaii trúðu
að ,,mana'' eða hjarta manns
flyttist yfir í brettið
meðan hann smíðaði það.
Hvað heldurðu um það?
Hvað er að sjá hárið á þér?
Þú gætir geymt fisk þarna.
Draumabrettið mitt er öflugt.
Svo er hægt að setja
fullt af aukahlutum á það
eins og svona
sprengjuvörpu.
Vitið þið hver á þetta bretti?
Ég held að Kjúllinn eigi það.
-Hafið þið séð hann?
Hann er þarna.
Ég finn það í nöggunum.
Ertu ekki smeykur í skóginum?
Það er hættulegt.
Skógurinn er friðsælasti
staðurinn á plánetunni.
Haltu honum kyrrum.
-Draumurinn minn rættist.
Að vera hér með Z
að gera þetta.
Þetta er kóaviður.
Bestu brettin
eru úr kóaviði.
Ég teiknaði þessar útlínur.
Viltu hafa mikla sveigju
eða litla?
Ég veit það ekki.
Þú vilt hafa hana þarna
mitt á milli. Trúðu mér.
Ég er sérfræðingur.
Hérna eru verkfærin.
Mundu að brettið er þarna
inni einhvers staðar.
Og þú ert bara að reyna
að finna það.
Að afhjúpa það.
Hvert handtak skiptir máli.
Af hverju brosirðu?
Ekki brosa.
Ég er ekki að brosa.
Ég er spenntur.
Þetta er ekki eins og
að pjakka í klaka.
Það þarf þolinmæði
og vandvirkni.
Allt í lagi.
Má ég fá verkfærin?
Hérna, taktu þetta.
Byrjaðu.
-Takk fyrir.
Þá byrjum við.
Hvað ertu að gera?
Þú verður að fara
rétt að.
Sjáðu. Fylgdu æðunum.
Fylgja æðunum.
Sérðu hvað ég geri?
Láttu verkfærið
um að vinna. Sérðu?
Eins og þegar þú nærð öldu.
Þú lætur ölduna um vinnuna.
Þú berst ekki við hana.
Enginn berst við öldurnar.
Langar strokur.
Vanda sig.
Finndu brettið
inni í viðnum.
Hægt og mjúklega.
-Já, ég skil.
Sjáðu þetta.
Þú þarft bara...
Nú get ég þetta.
Fylgdu...
Má ég núna?
Má ég núna?
Já. Ég gleymdi mér.
Fyrirgefðu.
Þetta er þitt bretti.
-Mitt bretti.
Fylgja æðunum. Ég veit.
Mundu að skoða það
af og til.
Langar strokur, fylgja æðunum.
-Ekki of langar.
Hér kemur það.
Þú ferð rangt að.
-Leyfðu mér...
Ég get ekki vandað mig þegar þú
ert með nefið ofan í mér.
Leyfðu mér að smíða brettið.
Á ég að hjálpa þér?
-Nei, þú þarft þess ekki.
Ekki hjálpa mér.
Viltu ekki aðstoð?
-Nei, ég vil enga aðstoð.
Gott og vel.
-Ég vil smíða brettið mitt.
Smíðaðu það sjálfur.
-Þakka þér fyrir.
Mér er sama hvernig
það lítur út.
Þú ætlar að nota það.
-Gott. Þakka þér fyrir.
Það er þarna inni í trénu.
Farðu þangað, takk!
Ekki skera þig.
Þetta er þriðji dagurinn.
Ég sá nokkra Mör-gæja.
Ég heiti Jói kjúll. Jóhann.
Sem er lenging á Jói.
Ljúft, maður.
Mér leið eins og kóngi.
Fór í heitan pott.
Það var víst
konunglegur pottur.
Það varð heitt og mikil gufa.
En svitaholurnar opnuðust vel.
Mjög flott. Þeir færðu mér
mat í pottinn.
Það var bæði matur
og sýning.
Þótt ég skemmti mér vel
lét ég verkefnið ganga fyrir.
Takk fyrir. Sjáumst seinna.
Ég verð að þjóta.
Ekki aftur.
Veistu hvað fleira?
Ég var með brettið.
Brettið var fínt.
Alveg frábært.
Hvernig gengur?
-Það gengur mjög vel, maður.
Það virtist svolítið gróft.
Gróft? Brettið líktist...
Það er í smíðum.
Heldurðu að það standist
stórar öldur?
Ég held að það standist
hvaða öldu sem er.
Bíddu aðeins.
Segjum að ég sé stór alda.
-Nei, heyrðu mig...
Hvert ætlarðu?
-Bíddu við!
Hvert ertu að fara?
-Þetta er mitt bretti.
Viltu ekki fara
og prófa það?
Kannski ég geri það.
Drasl, hvað? Sjáðu.
Það var laglegt.
Glæsilegt.
Þetta á að vera skemmtilegt.
Keppnin hefst eftir þrjá daga.
Ég hef ekki tíma fyrir skemmtun.
Engan tíma fyrir skemmtun.
Cody!
-Hvað?
Komdu með skelfisk
í leiðinni.
Ég kem ekki aftur!
Hann kemur.
-Nei!
Hann kemur aftur.
Finnst ykkur góður
grillmatur? -Já.
Hér er viður.
Ég sóaði heilum degi
og hef ekkert í höndunum.
Ég ætlaði að kíkja
til þín og Aulans.
Hann er Z.
Hvernig komstu að því?
Við fórum niður á strönd?
-Tókst þér að fá hann þangað?
Ég hef reynt að ná honum
úr þessu tré í 1 0 ár
en þú færð hann niður
á strönd á fyrsta degi.
Það er frábært.
Alveg ótrúlegt!
Langar þig að skemmta þér?
Langar þig í mikið fjör?
Eða viltu kannski
fara aftur til Z?
Fyrirgefðu. Ég átti ekki
að bjóða þér.
Hvað?
-Mig langar að skemmta mér.
Ágætt.
-Þarf ég að fá mér piparmyntu?
Segðu til.
-Nei, það er óþarfi.
Z tók okkur á háhest
og það var svo gaman.
Þetta er minn uppáhaldsstaður
á Mör-gæ.
Er það?
-Ég vildi ég væri átta ára.
Til hvers er þetta?
Ekki viltu skera þig.
Bíddu. Hvað ertu að gera?
Ég fer, það er betra...
Ég fer niður. Nei!
Þetta er brjálæði!
Ekki berjast á móti.
Slakaðu á.
Nú fer ég fram úr þér.
Hvað gerist nú?
Þetta er ekki keppni!
Bíddu, ekki til vinstri...
Gefstu upp, snigill.
Þetta er búið!
Ekki aldeilis!
Gefstu upp, auli!
Ég vann!
-Til hamingju.
Þú ættir að koma þér
upp úr þessu.
Af hverju? Sjáðu mig.
Þetta er fallegt.
Sjáðu þetta.
Hvað er þetta?
Sérðu þetta þarna uppi?
Þetta eru glóormar.
Og þú ert fyrir neðan þá.
Já, þetta er kúkur.
Sum fýla er vond
en önnur góð.
Þetta er góð fýla.
-Góð fýla?
Má ég segja nokkuð
persónulegt?
Við erum saman í sturtu.
Þú mátt segja það sem þú vilt.
Mér er alvara.
Ég öfunda þig
svo mikið. -Jæja?
Ég gat ekki fengið Z
til að hreyfa sig í 1 0 ár
en svo birtist þú og...
Honum finnst mikið
til þín koma.
Ég veit ekki. Ég var
leiðinlegur við hann.
Nei, það er ekki rétt.
-Jú, ég var leiðinlegur.
Víst var ég það.
-Hættu því þá.
Hverju skiptir það þig?
Hann er frændi minn
og eini ættingi minn.
Þú segir ekki.
Ekki gera það, Z.
Sjáum til. Það er sterkara
en ég hélt, Cody.
Ef þú brýtur það...
-Þá væri það brotið.
Hættu þessu, maður.
Sjáðu þetta.
Ekkert er betra en að vera
í öldufallinu. -Er það?
Betra en að vinna
til verðlauna og allt það.
Að vera í öldufallinu
er hámarkið.
Að fara inn í ölduna
og komast út úr henni aftur.
Við biðjum ekki um meira.
Það er eiginlega ólýsanlegt.
Ekkert stenst samanburð
við það.
Þeirri reynslu kynnast
ekki margir
svo það er mjög sérstakt.
Svo reynir maður
að rifja það upp.
Maður þráir að muna það
eða upplifa það aftur.
Maður verður háður því.
Þegar maður er kominn inn
vill maður ekki fara út.
Það er ótrúlegt.
Já, ekkert jafnast á við það.
En burtséð frá því...
hvað gefur öldudalurinn
marga punkta?
Hvað gildir hann
í keppninni? -Punkta?
Veistu hvern þú
minnir mig á núna?
Ég býð upp á gleði.
Sérðu að það stafar gleði
frá mér? Hvað er að?
Við erum í beinni.
-Gott.
Ég efa ekki að þetta
minningamót um Z
verður það besta
hingað til.
Það styttist óðum
í keppnina
og spennan eykst greinilega
hér á Mör-gæ eyju.
Þetta var fljótgert.
Mig svimar.
Hvað haldið þið?
Þegar ég var að leita að Cody
rakst ég á vini mína
með heita pottinn.
Ég skil.
Þið virðist svangir.
Ykkur langar víst
í snarl.
Smokkfiskó á el prjónó.
,, Bragðast eins og kjúklingur!''
Sjáðu þetta! Hefurðu séð
vin minn, Cody?
Hann minnir á mörgæs.
Hann er bæði svartur
og hvítur.
Hvernig lærðirðu að brima?
-Ég horfði á Z.
Þá varst þú varla fæddur.
Er það ekki?
-Það held ég ekki.
Laní. Hún er góður kennari
af því hún...
Sóði! Ekki aftur.
Ég held að hann þurfi
að fara strax á klósettið.
Hvað nú? Brettið er klárt.
Er brettið klárt?
-Já.
Æfum okkur þá.
-Loksins!
Megum við fá mynd...
-Notið þá aðdráttarlinsuna.
Z! Komdu!
Hvert ertu að fara?
-Ætluðum við ekki að æfa?
Ekki í sjónum.
Hvað ertu að hugsa?
Viltu brima eins og
Z gerði? -Já.
Ég hef nokkur hæfnispróf.
Til er ég.
-Settu þetta á augun.
Svona.
-Augun í mér.
Nú þú, Cody.
-Getum við æft í alvöru?
Hvað heldurðu að við
séum að gera?
Við látum eins og
vitleysingar.
Gott. Þú ert að læra.
Stór alda nálgast!
Úr leik!
Nú er nóg komið!
-Slappaðu af!
Þetta er fáránlegt
Finnst þér gaman?
-Ég þoli þig ekki.
Þessi er stór. Hægfara.
Hann tekur heljarstökk.
Allt í lagi. Nú þú.
Engin gleði. Fallinn.
Ég er farinn að skilja þetta.
Ég veit hvað þú átt við.
Frábært. Bara að þið
skemmtið ykkur.
Vaknaðu.
Morgunmatur!
Nei, góði. Þú verður að vakna
fyrr á morgnana.
Tveir... einn.
Þetta er skemmtilegt.
Finnst þér gaman?
-Já. Nú er gaman.
Jæja, Cody, þú náðir!
-Hvað?
Þér tókst það!
Þú ert tilbúinn. Brimum!
Ekki stríða mér.
Eigum við að brima? Já!
Sjáðu...
Ég vissi ekki að þú
gætir brimað.
Slakur!
Langt, hægt, mjúklega.
Eins og að smíða brettið.
-Einmitt.
Allt í lagi.
-Er þetta ekki góð tilfinning?
Þú ert í sjónum, Z!
-Komdu út í. Syntu!
Laní, þakka þér fyrir.
Sjáðu þetta!
Laglegt! Svona, já!
-Glæsilegt!
Z er mættur!
Þetta er lífið.
Er nokkuð betra?
Hvorki sorg né sút
finnst í sál
þess sem spilar það á.
Ég þarf smá hjálp
á háa tóninum.
Stórfínt.
Er þetta eina lagið sem þú kannt?
-Eiginlega.
Á ég að syngja það aftur?
Það er svona.
Ekki? Þá það.
Þarna plataði ég þig.
Þú stóðst þig
frábærlega í dag.
Þú varst sjálfur ekki slæmur.
-Það er honum að þakka.
Ég kom þér bara á sporið.
Ein spurning.
Viltu heyra lagið?
-Nei.
Það er eitthvað
á þessa leið...
Myndirðu vilja koma
og sjá mig brima á morgun?
Já, við brimum báðir.
Í keppninni.
Hvaða keppni?
Minningarmótið um Z.
Manstu eftir því?
Ég veit að það
er til mikils mælst
en það væri mér mikils virði
ef þú kæmir.
Sækist enn eftir öllu því?
-Algjörlega.
Af hverju viltu að ég mæti?
Ég hélt að þig myndi langa það.
Er það nokkuð mál?
Það er ekkert mál.
-Af hverju viltu ekki koma?
Ég kem ekki.
-Af hverju ekki?
Hættu þessu nú.
-Maturinn kólnar.
Af hverju ertu í felum?
-Í felum?
Af hverju ertu í felum?
-Ég verð að borða þetta ein.
Því léstu þig hverfa
eftir að þú fórst á kaf?
Aldan.
Þann dag skipti
sigurinn mig öllu.
Ég vissi að ég
myndi sigra Tank.
En svo, þú veist...
hann fór að hringsóla
í kringum mig.
Ég sá hvað hann var að gera.
Ég gat ekki leikið það eftir.
Breyttir tímar, þú skilur.
Ég vildi ekki snúa aftur
til aðdáendanna á ströndinni.
Allir að glápa á Z
sem tapaði. Útbrunninn.
Z er dauður
og þannig verður það.
Nú skal ég spila fyrir þig.
Hvað með að ,,gefast ekki upp
og finna sína leið''?
Þú gefst upp!
Já, ég gefst upp.
Það er mín leið.
Að gefast upp.
Ég hélt að þú
værir maðurinn.
Ef þú ert ekki sáttur
finndu þá þína leið.
Blandaðu mér ekki í það.
Ég klúðraði þessu.
Ég er ómögulegur.
Núna vantaði mig stuðning.
Ég þarfnaðist hans.
Það er erfitt að missa
einn pabba en...
Hvað áttu við?
-Ekkert.
Ekkert. Gleymdu því.
Friður.
Ég kem í friði.
Cody!
-Jói!
Ég hef leitað að þér
um allt. -Að mér?
Ég missti þig ekki á hvalnum.
Ég missi þig ekki núna.
Þakka þér fyrir.
Takk, innilega.
Rosalegt.
Þeir eru að byrja.
Förum!
Bíddu aðeins, Jói.
Fyrirgefðu. Heyrðu,
ég lærði málið þeirra.
Mig vantar brettið.
Ég veit ekki hvar það er.
Ég verð að finna það.
Sjáumst við rásmarkið.
Sjáumst seinna.
10. mótið í minningu Z
er að hefjast
og þetta er langþráð stund.
Himinháar öldur skella
hérna á ströndinni.
Kalli Steindórs,
á hættuskalanum 1-10,
hvað gefurðu þessu?
-20.
Rob?
-Þetta verður sárt.
Ég er hræddur
og ég er í stúkunni!
Hvað ert þú að gera hér?
Þú drepur þig.
Gerðu þetta ekki.
Manstu hvernig fór síðast?
Gott að sjá þig aftur.
-Er þér alvara?
Þú verður vinsæll.
Trúðu mér, fólkið
verður stórhrifið.
Ég vænti mikils af þér.
-Þakka þér fyrir.
Hér er stórfrétt.
Cody Maverick er mættur.
Kafarakóngurinn er mættur
svo skimið eftir hákörlum.
Þeir verða á sveimi
því sjórinn verður rauður.
Hér verður blóðbað í dag.
Takk! Raggi Belafonte. Lítill
gaur, mikið hár, stórt hjarta.
Að sjá þetta.
Ég drekki þér, rindill.
Þig mun iðra þess
að hafa klakist út.
Viltu sjá bikarana mína?
Arnaldur, nei.
24 brimarar berjast um...
Hjálpi mér!
Nú eru þeir 18.
Hvað ætli Cody
sé að hugsa
eftir að hafa verið tekinn
í bakaríið fyrr í vikunni?
Hann verður að einbeita sér
og beina orkunni á rétta braut.
Þetta er ekkert líf.
Þú ert lélegur.
Þú áttir að vera kyrr
á Skjálfanda.
Honum tókst það!
Frábært.
Þetta var einstaklega
vel gert hjá Cody.
Sáuð þið þetta?
Ég hélt að ég myndi
detta en svo...
slakaði ég á
og þá kom það.
Við höfum séð
ótrúlega brimara hér
við svakalegar aðstæður
en mér datt ekki í hug
að þessir þrír yrðu efstir.
Það kemur ekkert á óvart
að Tankur Einars
hafi flogið í úrslit.
Og Cody Maverick snýr vörn í sókn
eftir rassskell fyrr í vikunni.
Og Jói kjúll frá Silungapolli.
Hver hefði veðjað á hann?
Ég hef aldrei séð
önnur eins úrslit.
Við komumst í úrslit.
-Er það? Fáum við að brima meira?
Er þetta ekki spennandi?
Þetta er flott.
Tankur elskar ykkur.
Þetta verður léttasta
mótið hingað til.
Heyrðirðu þetta?
Þetta verður víst létt.
Eru ekki allir í stuði?
Hvern viljið þið sjá
vinna bikarinn?
Það skiptir mig engu.
Vinir eru það besta
í heiminum.
Vinir eru varanlegir en enginn
veit hvað verður um bikara.
Þetta var magnað, vinur.
-Ég er hrifinn, vinur.
Þakka ykkur fyrir.
Úrslitin.
Já, ég veit.
Ég get ekki einu sinni....
hugsað um að vinna.
Þetta er of mikið.
Þú ætlaðist ekki til meira.
-Hvað?
Hvað áttu við?
Í gær fór ekki á milli mála
að sigur skiptir þig meiru
en Z og ég.
En kannski ferðu heim
með þennan asnalega bikar.
Láttu ekki svona, Laní.
Hlustaðu nú á mig.
Ef þú vinnur náum við langt.
Sjáið þennan strák.
Hann er meistari!
Tankur er nífaldur meistari.
Hann valtar yfir þig.
Ég býst við að hann vinni.
Keppnin er um annað sætið.
Fyrst valta ég yfir þig
svo steiki ég kjúllann.
Þetta ský er alveg
eins og kettlingur.
Cody og Tankur fara af stað.
Mín!
Og Tankur hefur öldu.
Tankur er að fíflast,
hann stoppar Cody af.
Cody nær að halda sér.
Tankur Einars fer á kaf!
Þetta hef ég aldrei
séð áður!
Gaman væri
að sjá það aftur.
Cody reynir að ná öldunni
sem Tankur stal af honum.
Tankur stríðir honum.
Gáir ekki að sér.
Og þarna missir hann tökin.
Tankur fer á kaf.
Þarna sýnir Cody nýjan stíl.
Við köllum hann Maverickinn.
Sjáið þetta.
Cody fær mörg stig.
Hann er svo sætur.
Með litlu loppurnar og...
veiðihárin.
Jói kjúlli skellir sér
beint í ölduna.
Af stað! -Þessi kjúklingur
þarf enga hjálp.
Ég flýg!
Cody og Jói jafnir en Tankur
hefur ekkert stig. Ótrúlegt.
Brimarar,
þetta er síðasta aldan.
Þá er komið að því.
Úrslitaaldan -Já!
Þessi alda lofar
góðu öldufalli.
Cody ætti að fá stig núna.
En bíðið við!
Tankur er mættur.
Hann virðist ætla að ryðja
kjúklingnum úr vegi.
Hvað er Cody að gera?
Áfram Jói!
-Já! Áfram!
Ég trúi þessu ekki.
Cody var að vinna
en Tankur þröngvar honum út fyrir
svæðið og inn í grafreitinn.
Tankur, passaðu þig!
-Passaðu þig sjálfur!
Áfram, Cody.
Svamlaðu! Áfram! Hraðar!
Hættu því! Hættu!
-Hvað?
Láttu ölduna bera þig!
Þú verður að tímasetja þetta.
Þú lendir nákvæmlega
hér hjá mér.
Fimm... fjórir...
Þrír... tveir ... einn.
Hvar er Cody?
Ekki snerta þetta!
Þetta er til minningar
um ungan brimara
sem fórnaði lífinu
fyrir íþrótt sem hann unni.
Þarna ertu.
Ég trúi þessu ekki!
Þú komst hingað.
Þú bjargaðir lífi mínu.
Þakka þér fyrir.
Láttu ekki svona.
Þú fellir okkur!
Ég tapaði.
Ég líka.
Förum nú.
Fæ ég smá hjálp?
Þú kannt þetta.
Langar strokur.
Já, einmitt.
Mjúklega, já.
Jói Makkenró var hvatning
fyrir ungu kynslóðina.
Megi hann hvíla í friði.
En hver býður í þetta bretti?
Býður nokkur 30?
Láttu þetta vera.
-Ef þú vilt bjóða í...
Komdu með þetta.
Komið þið sæl.
Hvað segið þið gott?
-Hjálpi mér!
Já, þetta er ég.
Planki, ertu ekki hress?
Þú ert með sand
á milli sundfitanna.
Hvar varð um þig, Z?
-Hvað gerðist?
Ég villtist um tíma.
En strákurinn þarna, Cody,
hann kom mér aftur
á sporið.
Viljið þið slökkva á þessu?
Ég vil fá frið.
Sjáið þetta!
Hvernig líst ykkur á?
Viljið þið ræða um stjörnu?
Menn finna stjörnur.
Ég endurlífga þær.
Hér er lifandi goðsögn,
dömur mínar og...
Þegirðu.
-Hvað? Þegja?
Ég er engin goðsögn.
Ég leita bara að flottri öldu
og góðum vinum.
Strákar, öldurnar eru
á norðuströndinni!
Ég kem með þér, Z.
Komið þið hingað.
Ekki fara!
Hann tekur ósigurinn
nærri sér.
Tankur, hvernig er að tapa
eftir níu sigra?
Ég kyssti hana ekki.
Þið fáið hana ekki!
Viljið þið segja nokkur orð?
-Sæll, Þór.
Þú fórnaðir titlinum
til að hjálpa Jóa. Af hverju?
Það er vinátta.
Hvernig tilfinning er að vinna?
-Vann ég?
Hættið! Ég segi mömmu.
Ég á þetta!
Lína, ó, Lína!
Þið labbið ekkert frá mér.
Ég er Raggi Belafon...
Slökkvið á þessu.
Mikki! Þú ert rekinn!
Ég get ekki hugsað mér
betri dag.
Þessi reynsla var...
Þetta var ótrúlegt.
Ég hef aldrei á ævinni
eignast betri vin.
Þetta er svalt, ég hef allt
sem ég þarf.
Hjálp!
Ég er orðinn þreyttur
á að tala um mig.
Er það í lagi?
Eruð þið komnir
með nóg efni?
Já.
-Ágætt. Hafið það gott.
Magnað!
Auðvitað erum við stolt.
Hver móðir væri stolt.
Við erum yfirfull
af stolti.
Hann lét drauminn rætast.
Hann fór bara og nú kemur
hann heim með bikarinn.
Ég hlakka svo til
að sjá bikarinn.
Reyndar er enginn bikar.
Fékk hann þá stóra skel
eða hvað?
Engin skel. Enginn bikar.
Hann vann ekki. -Hvað?
Var það slæmt?
Var valtað yfir hann?
Hann komst í úrslit.
-Númer tvö? Það er ósigur.
Það snýst ekki allt
um sigur, Glenn.
Hugsaðu um hvað Cody gerði.
Hvað segirðu?
,,Sigur er ekki allt?''
Það gengur ekki upp.
Ég vona að þú líkist Cody
einhvern tíma.
Viðtalinu er lokið.
Munið þið þegar ég sagði
ykkur að fara?
Og munið þið hvenær
þið ætluðuð að fara?
Við ætluðum að...
-Þið ættuð að fara.
Þetta er tæknibúnaður.
Ég get kippt þessum Hollywood-
græjum úr sambandi.
Þetta ljós, hvað sem það heitir
og þessi hljóðnemi.
Farið aftur til Hollywood.
Þetta hefði Cody
aldrei gert.