Tip:
Highlight text to annotate it
X
PRAG Í TÉKKNESKA LÝÐVELDINU
M amast ekki við því
að þú hafir aukavinnu.
En hún vill síður að hún
felist í sölu leyndarmála.
Ef leikrænu tilburðirnir
eiga að hræða mig,
skjátlast þér, Bond.
Ef M teldi víst
að ég væri óheiðarlegur
hefði hún sent tvöfalt 0.
Fríðindi svæðisstjóra...
hefði einhver verið hækkaður
í tvö 0 myndi ég vita það.
Það eru engin dráp í skýrslunni
þinni og það þarf... -Tvö til.
Þetta er synd.
Við náðum varla að kynnast.
Ég veit hvar þú geymir byssuna.
Það telst hæfileiki.
Það er rétt.
Hvernig dó hann?
Uppljóstrarinn þinn?
Á kvalafullan hátt.
Lét hann þig finna fyrir því?
En hafðu engar áhyggjur.
Annað skiptið er...
Já.
Mjög svo.
James Bond - 007
staðfesting stöðu
Hvernig get ég treyst ókunnugum
manni fyrir peningunum mínum?
Þú baðst okkur að kynna ykkur.
Fyrirtæki mitt ábyrgist ekki annað.
White hefur víst sagt þér
að ég hafi útvegað
mörgum frelsisbaráttumönnum
örugga bankaþjónustu.
Trúirðu á Guð,
herra Le Chiffre?
Nei.
Ég trúi á sanngjarna vexti.
Ég vil enga áhættu
í fjárfestingum.
Samþykkt.
Get ég nálgast þá
hvar sem er í heiminum?
Já.
Ég hef peningana. Seldu aðra
milljón hluti fyrir fram
af Skyfleet-bréfunum.
Þú veist víst að það
samræmist ekki markaðsspám.
Enginn býst við öðru
en að þessi bréf hækki.
Gerðu það.
Virðist vera okkar maður.
Brunaör í andlitinu.
Ætli sprengjuframleiðendur
séu tryggðir fyrir slíku?
Hann fer af stað.
Hann stefnir beint á mig.
Hættu að fitla við eyrað.
Hvað?
-Niður með höndina!
Burt með byssuna.
Ég þarf að fá hann lifandi.
SENDIRÁÐ NAMBUTU
Blóðug tár stafa einungis
af sködduðum táragöngum.
Ekkert ískyggilegt.
Allt saman.
Ég hef tvær tvennur
og þú 17,4% líkur á að ná röð.
Starfsmaður bresku leyniþjónustunnar
myrðir óvopnaðan fanga
Hvenær fellur Ellipsis úr gildi?
Innan 11/2 sólarhrings, ég held...
-Nei.
Við höfum hvort sem er
ekki meiri tíma.
Gefðu gestunum
fimm mínútur til að fara
annars fleygirðu þeim fyrir borð.
Hverjir halda þeir að þeir séu?
Jafnvel forsætisráðherra veit betur
en að spyrja um störf okkar.
Hvílíkur hópur af sjálfumglöðum
og sérhlífnum svínum.
Þeir hugsa bara um
hvað birtist í fjölmiðlum.
Og hvernig gat Bond
verið svona heimskur?
Gefðu honum tvöfaldann-0 status, hann
fagnar með því að skjóta sendiráð.
Hvar í fjandanum er hann?
Áður fyrr hefði njósnari
farið yfir eftir slíkt klúður.
Mikið sakna ég kalda stríðsins.
SKILABOÐ:
ELLIPSIS - LEIT
ÓSKRÁÐ NÚMER
Staðartími: BAHAMAEYJAR
PARADÍSAREYJA
SIGLINGAKLÚBBURINN
HERNAÐAR UPPLÝSINGAR
Þú ert svei mér djarfur.
-Fyrirgefðu.
Næst skal ég skjóta
myndatökumanninn fyrst.
Eða sjálfan þig.
Þú réðst inn í sendiráð.
Þú braust einu óbrjótanlegu
regluna um alþjóðasamskipti.
Og það til að drepa mann
sem engu skipti!
Við vildum bara yfirheyra hann.
MI6 DREPUR ÓVOPNAÐAN FANGA
Í guðanna bænum. Þú átt að sýna
einhvers konar dómgreind.
Ég gerði það.
Ég hélt að gott væri að losna
við einn sprengjuframleiðanda.
Einmitt.
Hann var einn.
Við viljum komast að því hvar net
hryðjuverkamanna fær fjármagn
og þú gefur okkur
einn sprengjuframleiðanda!
Það er ekki mikil yfirsýn.
Og hann er ekki hugsjónamaður.
Hann er launmorðingi.
Og það er þínum ofþroskaða
gikkfingri að þakka
að við vitum ekki hver
réð hann eða hvers vegna!
Og hvernig uppgötvaðirðu
hvar ég bý?
Á sama hátt og ég
uppgötvaði nafnið þitt.
Ég hélt að M væri handahófsval,
ég vissi ekki að það þýddi...
Ef þú segir eitt orð enn
læt ég drepa þig.
Ég vissi að það væri ótímabært
að veita þér stöðuhækkun.
Mér skilst að líkur 00-manna
á langlífi séu afar litlar
svo þau mistök verða skammlíf.
Það er kannski ofvaxið
skilningi bitlauss verkfæris,
en hroki og sjálfsvitund
fer sjaldnast saman.
Viltu þá að ég sé hálfur munkur
og hálfur launmorðingi?
Allir bófar geta drepið.
Þú þarft að gleyma stoltinu
og dæma stöðuna án tilfinninga.
Ég þarf að vita að ég geti treyst þér
og að þú vitir hverjum megi treysta.
Þar sem ég veit það ekki
skaltu koma þér út.
Farðu og stingdu hausnum í sandinn
og hugleiddu framtíð þína.
Því þessir fantar vilja
að þér verði refsað.
Og mér er skapi næst
að láta þá hafa þig.
Og Bond...
Aldrei brjótast inn hjá mér aftur.
Frú.
SIGLINGAKLÚBBURINN
Góðan dag og velkominn
í Siglingaklúbbinn.
Hæ. Hæ.
Halló.
Ætlarðu að taka bílinn
eða láta mig bíða?
Að sjálfsögðu.
Fyrirgefðu, herra minn.
Öryggisverðir á bílastæði.
Algjörlega ótrúlegt.
Handtök 3
Dagsetning 6. Júlí 2006
EFTIRLITSMYNDAVÉLAR
6. JÚLÍ 2006
Velkominn í Siglingaklúbbinn.
Ætlarðu að innrita þig?
Já. En ég á ekki pöntun.
Allt í lagi.
Við höfum hús með útsýni yfir hafið.
-Frábært.
Gætirðu gert mér greiða?
Ég var hérna í gærkvöldi...
og lagði bílnum við hliðina
á fallegum Aston Martin.
Það er skammarlegt,
en ég rakst í hurðina. Veistu...
Herra Dimitrios.
-Einmitt.
Ég myndi ekki nefna það.
Hann bregst illa við slæmum fréttum.
En ef ég vildi endilega finna hann?
Hann er í húsi ofar á ströndinni.
Takk fyrir.
Hvað?
-Hann er á Bahamaeyjum.
Vaktirðu mig til að segja mér
frá fríinu hans?
Hann notaði nafn þitt og lykilorð
til að fara inn á netsíðuna okkar.
Hvernig veit hann það?
Ég er að reyna
að komast að því.
Hvern er hann að skoða?
-Alex Dimitrios.
Þann skíthæl.
Nú eru það samstarfsmenn...
Le Chiffre.
Við höfum átt gott kvöld,
við erum búin að drekka nokkra drykki.
Get ég aðstoðað þig?
Gott kvöld. Tvöfaldan romm
og sóda, takk.
Gott hjá þér!
Já.
Má ég spila með ykkur?
-Ó, gott kvöld. Hvernig hefurðu það?
-Gott kvöld.
Litli blindur
og stóri blindur.
Ég er með.
Veðmálið er þitt.
Ef þetta er til lukku
kemur það tveim tímum of seint.
Tvö hundruð til þín.
Veðmálið er þitt.
Ég veit það.
Fimm í kall.
-Þú átt að gera.
-Par af sjöum.
Hár ás.
Pass eða leggja undir.
Pass.
-Og til þín.
Fimm þúsund.
Fimm í kall.
Pass.
-Til þín.
Allt saman.
Nei, bíddu.
20 þúsund.
Aðeins það sem er á borðinu.
Því miður.
Þetta er á borðinu. Þetta er
bíllinn minn. Viltu leggja undir?
Því miður, herra Dimitrios.
Gefðu honum færi á að vinna
það sem hann tapaði.
Sýnið spilin, herrar mínir.
Þrír kóngar.
Þarna fórstu með kvöldið mitt.
Þrír ásar.
Ásarnir vinna.
Og bílastæðamiðann.
Takk.
Herra.
Takk fyrir.
Engin furða að hann
hafi verið í slæmu skapi.
Fyrirgefðu.
Má ég gefa þér far heim?
Þá myndi hann alveg
missa stjórn á sér.
Ég er ekki svo harðbrjósta.
Jæja, kannski ertu ekki í æfingu.
Kannski.
Hvað segirðu um drykk hjá mér?
Hjá þér?
Er það hér nálægt?
-Mjög nálægt.
Einn drykk.
Gott kvöld
og velkominn aftur.
Velkomin heim til mín.
Ég skil ekki alveg
hvernig það er mín sök.
Þetta er þín áætlun.
Ég útvegaði bara manninn.
Mann sem var undir eftirliti
bresku leyniþjónustunnar.
Sem fær mig til að efast um
að ég geti treyst þér.
Gerðu það þá ekki.
Sama er mér.
En mér er ekki sama
um orðstír minn.
Ég hef annan sem vill
taka þetta að sér.
Hann þarf bara
nánari upplýsingar...
og greiðslu.
Þú ert víst hrifinn
af giftum konum.
Það einfaldar málin.
Hvað laðar konur að föntum?
Þú, maðurinn minn...
Mér buðust mörg tækifæri
til að vera hamingjusöm,
svo margir indælir menn.
Af hverju geta indælir menn
ekki verið líkari þér?
Af því þá væru þeir slæmir.
Já.
En mun áhugaverðari.
Hvað gerir manninn þinn slæman?
Það er víst eðli hans.
Eðli starfs hans?
Það er leyndarmál,
er ég hrædd um.
Ég er líka hrædd um að þú sofir
hjá mér til að komast að honum.
Hversu hrædd?
Ekki nógu hrædd til að hætta.
Má ég spyrja þig
persónulegrar spurningar?
Það virðist viðeigandi.
Veistu hvað "ellipsis" táknar?
Ætti ég að spyrja hann?
Kannski seinna.
Já, elskan.
Ég er á síðasta flugi í kvöld
til Miami.
Ekki vaka eftir mér.
Ég kem aftur í fyrramálið.
Já, ég skil.
Sjáumst á morgun.
Hann er víst á leið til Miami
með seinasta flugi
svo þú hefur alla nóttina
til að spyrja spurninga.
Fyrst svo er...
þurfum við meira kampavín.
Gott kvöld. Herbergisþjónusta.
Gæti ég fengið flösku af kældu
Bollinger Grand Année.
Og Beluga-kavíar.
Já, með öllu.
-Og er það fyrir tvo, herra?
-Hvað?
Nei, fyrir einn.
LÍKAMS HEIMAR
Bíddu hérna.
Númer 53.
Heimur líkamans og von Hagen
bjóða gestum
að skoða hin ýmsu
kerfi líkamans
svo sem meltingar-,
tauga- og æðakerfi.
Get ég vinsamlegast fengið athygli
ykkar, herrar mínir og frúr?
Það sem hér gefur að líta
er afar sérstakt.
Þetta er skemmtunarmenntun.
Skilaboð
SEND BOÐ
12425550199 - ELLIPSIS
...í leikrænum stellingum
og íþróttalegum
sem sýna raunverulega
innbyrðis afstöðu líffæranna.
ELLIPSIS
Hringir 12425550199
Halló.
Ekki skilja bifreiðar ykkar
eftir eftirlitslausar.
Velkominn til
Alþjóða Flugvallar Miami.
Það er bannað að leggja
við gangstéttina....
Þetta er Bond.
Ég þarf að tala við hana.
Það má ekki trufla hana.
Get ég tekið skilaboð?
Finndu hana. Láttu hana hringja
í öryggisgæsluna á Miami-flugvelli.
Það gæti verið sprengja hér.
Flýttu þér!
Má ég setja þig á bið?
-Ég bjóst við því.
Bond? Hvern fjandann
ertu að gera?
Ég hringi seinna.
AFHJÚPUÐ Á MIAMI-FLUGVELLI
Frumgerð Skyfleet S570.
"Stærsta flugvél heims
verður afhjúpuð í Miami í dag."
NEYÐARÚÐAR HUNSAÐIR
Guð minn góður!
Bond? Bond!
Markmið hans
er Skyfleet-frumgerðin.
Henni verður skotið
á loft í dag.
Ég verð að hætta.
Stop! Stop!
Færið ykkur! Af stað!
Sölufrestur bréfanna rann út.
Ég veit ekki hvert tapið er.
101 milljón,
260 þúsund dalir.
Einhver hefur lekið upplýsingum.
-Ertu með allt sem þú þarft?
-Já.
Ég ætla að taka nokkrar
myndir í viðbót...
Þú staflar upp líkunum.
Hún var pyntuð áður.
Þú drapst eiginmanninn
svo það var enginn annar
til að yfirheyra.
Gæti hún hafa komið þér í vanda?
Nei.
Nafn þitt eða hvað vakti fyrir þér?
-Nei.
Dimitrios var milligöngumaður.
Hann vissi hvar hann
gæti nálgast vopn.
Hann starfaði með öllum
sem áttu peninga.
Í mörg ár vann hann með manni
sem við þekkjum sem Le Chiffre
sem annast bankaviðskipti
fyrir hryðjuverkamenn.
Hann sá um fjárfestingar með
aðgangi hvar sem var í heiminum.
Gott að þú ert kominn.
Frá Albaníu, höldum við.
Undrabarn í skák.
Stærðfræðisnillingur
sem sannaði sig í pókerspili.
Svo þú getir haft auga með mér?
Já.
Við greiningu
hlutabréfamarkaðarins eftir 11/9
fann CIA mikla fyrir fram sölu
á bréfum flugfélaga.
Þegar bréfin hrundu 12/9
græddi einhver formúu.
Sama gerðist í morgun með Skyfleet,
eða átti að gerast.
Fyrirtækið væri á barmi gjaldþrots
ef frumgerðin hefði skemmst.
Þess í stað tapaði einhver rúmum
100 milljónum á að veðja á rangan hest.
Heldurðu að það sé Le Chiffre?
Það myndi skýra pókerspilið með háu
upphæðunum sem hann efndi til
í Casino Royale í Montenegro.
10 þátttakendur,
10 milljóna dala lágmark.
Sá sem vinnur fær allt.
Hugsanlega 150 milljónir dala.
Ágætt. Þá vitum við hvar hann er.
Viltu snyrtilegt dráp
eða bara viðvörun?
Við viljum fá hann lifandi.
Le Chiffre á ekki 100 milljónir.
Svo hann hefur braskað
með fé kúnnanna.
Þeir verða ekki kátir þegar þeir
uppgötva að það sé horfið.
Hann má ekki vinna í spilinu.
Ef hann tapar hefur hann
engan stað að flýja á.
Við veitum honum skjól
í skiptum fyrir allt sem hann veit.
Þú tekur sæti manns sem spilar
fyrir fjárfestingasamtök.
Samkvæmt Villiers ertu besti
pókerspilarinn í liðinu.
Ég vildi að svo væri ekki.
Ég myndi biðja þig að vera
tilfinningalega hlutlaus
en það er víst ekki þinn vandi.
Nei.
Þú þarft ekki að hafa samband.
Við vitum hvar þú verður.
Þú getur hætt að látast.
Þú vissir að ég myndi ekki
stinga hausnum í sandinn.
Og ég vissi að þú
værir sjálfum þér líkur.
Takk fyrir.
Ég hef peningana.
Hvern eyri.
Það fékkst fjárveiting
úr ríkissjóði fyrir spilafénu.
HM FÉHIRSLA
VESPER LYND
Vesper.
Vonandi skammaðirðu
foreldra þína fyrir nafngiftina.
Thank you.
Yfirmaður þinn hlýtur
að hafa góð sambönd.
Ég hef aldrei séð svo mikið fé
fært svo fljótt.
Eða svo glæsilega.
Má ég spyrja hvar það sé?
10 milljónir voru sendar
á reikning þinn í Montenegro
með leyfi fyrir öðrum 5 telji ég
fjárfestinguna hyggilega.
Þú hefur væntanlega
velt fyrir þér að ef þú tapar
mun ríkisstjórnin
fjármagna hryðjuverk.
Hvað líst þér á?
Svo það snýst um
möguleika og líkur.
Ég óttaðist að heppni
spilaði inn í.
Bara ef maður gerir ráð fyrir
að bestu spilin vinni.
Svo þú myndir blekkja?
Hefurðu heyrt um það?
Þá veistu líka að maður
spilar með mótleikarann
en ekki spilin á hendinni.
Ertu fær í að sjá í gegnum fólk?
-Já.
Þess vegna hef ég orðið var
við kaldhæðnislega tóninn.
Nú veit ég að peningarnir
eru í góðum höndum.
Líst þér vel á þessa áætlun?
Það er þá áætlun.
Ég hélt að við hættum
milljónum dala
og hundruðum mannslífa í spili
sem byggðist á heppni.
Hvað annað geturðu
getið þér til um?
Um þig, ungfrú Lynd?
Fegurð þín er vandamál.
Þú óttast að vera ekki
tekin alvarlega.
Líkt og allar hugsandi
og aðlaðandi konur.
Já. En þessi kona gengur of langt
með eilítið karlmannlegum klæðnaði
og meiri ágengni
en stallsysturnar
...sem gefur henni meiri stingandi
hegðunarmáta...
og um leið minnka líkurnar á
að karlkyns yfirmennirnir
taki henni vel
og veiti henni stöðuhækkun
því þeim sýnist óöryggi
hennar vera hroki.
Vanalega hefði ég giskað á einbirni,
en þú hunsaðir athugasemdina
um foreldra þína
svo ég verð að segja
munaðarleysingi.
Gott og vel.
Af fötunum að dæma varstu í Oxford
og heldur að fólk klæðist svona.
En þú berð þau með fyrirlitningu
svo ég giska á
að þú komir úr fátækt
og skólafélagarnir
hafi sífellt minnt þig á það.
Einhver góður maður greiddi þá
skólagönguna sem skýrir reiðina.
Þú hélst strax að ég
væri munaðarleysingi
svo ég giska á
að eins sé um þig.
Það er rétt.
Ég kann vel við pókeraðferðina.
Það var viðbúið því MI6 vill
lítt aðlagaða, unga menn...
sem víla ekki fyrir sér að fórna
öðrum til að vernda þjóðina.
Þú veist,
brosmilda, fyrrverandi
sérsveitarmenn með rándýr úr.
Rolex?
-Omega.
En fallegt.
Við vorum að kynnast svo ég get ekki
sagt að þú sért kaldrifjaður fantur.
Auðvitað ekki.
En það er auðvelt að ímynda sér
að þú lítir á konur sem einnota gaman
frekar en mikilvægan feng.
Svo þrátt fyrir töfra þína,
herra Bond...
mun ég hafa augun
á fé ríkisstjórnarinnar
en ekki á þínum
gerðarlega bakhluta.
Tókstu eftir honum?
Jafnvel bókarar hafa ímyndunarafl.
Hvernig var lambið?
Á teini.
Maður finnur til hluttekningar.
Vertu sæll, herra Bond.
Vertu sæl, ungfrú Lynd.
Splendide-hótelið, herra.
-Takk fyrir, herra.
-Takk fyrir.
Þetta eru lokafyrirmæli.
Við erum víst mjög ástfangin.
Ertu vanur að láta sendla um
að segja þér slíkt?
Bara þegar lítill tími
gefst fyrir rómantík.
Ég er Arlington Beech,
ég er atvinnuspilamaður
og þú ert ungfrú Broadchest, erfingi...
Ég er það ekki.
-Þú verður að treysta mér.
Nei, það geri ég ekki.
Við erum búin
að vera saman lengi
svo við deilum svítunni á hótelinu.
Fjölskylda mín er rammkaþólsk
svo siðseminnar vegna
verða tvö svefnherbergi þar.
Það er leitt að trúin aðskilji okkur.
Trú og vel læst hurð.
Verður þetta vandamál?
Engar áhyggjur.
Þú ert ekki mín manngerð.
Greind?
Ógift.
Velkominn.
Hvað er nafnið?
James Bond.
Pöntunin er skráð á Beech.
Velkominn, herra Bond.
-Kvitta þú, elskan.
Þú ert fulltrúi ríkissjóðs.
Njóttu dvalarinnar.
Það mun ég gera.
En fyndið.
Le Chiffre hefur góð sambönd.
Hann veit hver ég er
og hvaðan féð kemur.
Hann ætlar samt
að spila við mig.
Svo hann er haldinn
örvæntingu eða hroka.
En hvort sem það er
segir það nokkuð um hann.
Í staðinn fær hann bara nafn
sem hann veit fyrir.
Og nú veit hann nokkuð um þig.
Hann veit að þú ert gálaus.
Bíddu eftir næstu.
Hér er ekki nóg pláss fyrir mig
og sjálfumgleði þína.
Mr. Bond?
Þetta er til þín.
-Takk fyrir.
Ég elska þig líka, M.
Ég heiti René Mathis.
Ég er þinn maður á staðnum.
Veit hann að við
fylgjumst með honum?
Le Chiffre? Ég held ekki.
Líklega af því að ég er bara einn.
Lendirðu í vanda mun ekkert lið
birtast á næstu hæðarbrún.
Le Chiffre kom í gær
...and spent the time reestablishing
old relationships.
Þeir lögreglustjórinn
eru nú mestu mátar.
Þetta er hann, með yfirvaraskeggið.
Yfir vinstri öxlina á mér.
Það gæti gert okkur lífið leitt.
Og jafnvel styttra.
Hann fer ekki mjög fínt í hlutina.
Mér datt í hug
að kaupa þjónustu hans
en við getum ekki
yfirboðið Le Chiffre.
Það er leitt að játa það,
en bókararnir virðast stjórna MI6.
Ekki að ég hafi neitt
við bókara að athuga.
Margir þeirra eru indælisfólk.
Svo ég ákvað að ódýrara væri
að veita fulltrúa hans upplýsingar
um að við hefðum mútað
lögreglustjóranum.
Er ekki ótrúlegt hvað hægt er
að gera með Photoshop?
Ég held að líkurnar
séu að snúast þér í hag.
Já?
Handa þér.
Ætlastu til að ég klæðist þessu?
Þú þarft að vera stórglæsileg
þegar þú kemur og kyssir mig
svo mótleikararnir hugsi um flegna
hálsmálið en ekki spilin sín.
Heldurðu að þú getir það?
Ég skal gera mitt besta.
Takk.
Ég fékk kvöldjakka.
Það eru kvöldjakkar
og svo eru kvöldjakkar.
Þetta er seinni gerðin.
Þú þarft að líta út fyrir
að eiga rétt á sæti við borðið.
Hvernig...
Hann er sérsniðinn.
Ég áttaði mig strax á þér
þegar við hittumst.
-Gott kvöld, herra.
-Gott kvöld.
Takk fyrir.
Þú tekur víst sæti Bliss.
Velkominn, herra Beech.
Eða er það Bond?
Ég er í dálitlum vanda.
Ekki myndum við vilja það.
Dömur og herrar, velkomin.
Það er ekkert hámark
í þessu spili.
Fimm spil í borði,
tvö á grúfu.
Herra Mendel hér frá Basel-banka
gætir veðfjárins.
Hver ykkar hefur lagt fram
10 milljónir dala.
Við það má bæta 5 milljónum
með rafrænni millifærslu.
Peningarnir verða í vörslu
þar til ég kem aftur
og vinningshafinn
slær inn lykilorðið sitt
...inn í dullykilinn...
...þannig verður öll upphæðin
millifærð...
á þann bankareikning sem óskað er.
Herra Bond?
Við förum eftir stafrófsröð.
Sláðu inn lykilorðið þitt.
Minnst sex stafi.
Hæsta spil ræður
hver fær síðustu gjöf.
Það er herra Gallardo.
Herra Kaminofsky hefur
litla blindan, 5 þúsund dali
og herra Fukutu stóra blindan,
10 þúsund dali.
Góða skemmtun.
Fjórir spila.
Þú átt leik.
Pass.
50 þúsund í pottinn.
Hann sér það.
Pakkar.
Pakkar. Tveir spila.
Monsieur Le Chiffre.
100 þúsund í pottinn.
Áttirðu ekki að blasa
við mótleikurunum?
Var það? Fyrirgefðu.
Gangi þér vel, elskan.
Þú átt leik, herra Bond.
Monsieur Bond?
Fyrirgefðu. Hvað var það?
100 þúsund?
Hann sér það.
Halló.
Það er víst óþarft að segja þér
hvað þú sért glæsileg.
Helmingur mannanna við borðið
er enn að horfa.
Kampavín.
Monsieur Le Chiffre.
200 þúsund í pottinn.
Herra minn, sýndu spilin.
Fullt hús fyrir Le Chiffre.
Tvistar með níum.
Herra Bond?
Pakkar.
Viltu kalla á barþjóninn?
Þurran martíní, takk.
Þrír hlutar Gordon-gin,
einn af ***,
hálfan af Kina Lillet,
hrista, bera fram á klaka
með sítrónuberki.
Ég fæ það sama.
-Ég líka.
Alveg sjálfsagt.
Komdu líka með einn handa mér.
Slepptu ávextinum.
Eruð þið búnir?
Vill einhver spila póker?
Sumum liggur á.
Hafið mig afsakaðan.
Þú bragðast vel.
Ég hélt að við hefðum hætt
við hlutverkin.
Bara við þau sem voru gagnslaus
en við tó*** upp önnur.
Er hann að horfa?
-Já.
Gott.
Ég er í hlutverkinu,
örg því þú tapar svo hratt
að við verðum farin
fyrir miðnætti.
Raunar endurspeglar hlutverkið
tilfinningar mínar.
Pass.
Þetta er hreint ekki slæmt.
Ég þarf að finna nafn á þetta.
Það var þessi virði
til að uppgötva aðferðirnar.
Hvað áttu við?
Kippina sem hann felur
þegar hann blekkir.
Blekkir? Hann hafði bestu höndina.
-Sem hann fékk með síðasta spilinu.
Líkurnar voru 23 á móti 1
og hann vissi það.
Hann hafði ekkert
þegar hann hækkaði fyrst.
Þetta var heppni.
Fékkstu hlerunartækið?
100 þúsund í pottinn.
Takk.
Þú átt leik, Monsieur Fukutu.
Kannski þetta takist.
Hann sér það.
Monsieur Le Chiffre.
Dömur og herrar.
Við höfum spilað
í fjórar klukkustundir.
Nú verður hlé.
Við höldum áfram eftir klukkustund.
Ég fer að gefa skýrslu
um þessa skemmtun.
Jæja?
Langar þig að gera hvað við mig?
Ég hef ekki hugmynd um
hvað þú átt við.
Þú sagðist ekki geta beðið þess
að vera ein með mér. Komdu.
Hvað er svona mikilvægt?
Fyrirgefðu.
Hvar eru peningarnir mínir?
Gott kvöld.
Ég á pakka hér.
Takk fyrir.
Heldurðu að þú getir tapað slíku fé
án þess að eftir því sé tekið?
Peningarnir þínir
eru ekki í hættu.
Opnaðu þetta.
Þú færð þá á morgun.
Alla.
Ég mundi taka hönd fyrir svikin
en þú þarft hana fyrir spilin.
Réttu fram höndina.
Réttu fram höndina,
mín fagra...
eða ég tek höfuðið.
Farðu upp á herbergi
og bíddu eftir mér.
Stigann.
Hann mótmælir ekki einu orði.
Þú ættir að finna þér nýjan kærasta.
Farðu og finndu Mathis.
Segðu honum
að losa okkur við líkin.
Farðu núna. Fljót!
Þú hefur skipt um skyrtu, herra Bond.
Vonandi svitnarðu ekki
yfir þessu litla spili okkar.
Svolítið.
En ég er rólegur meðan ég
græt ekki blóðugum tárum.
Ef allir eru tilbúnir
höldum við áfram með spilið.
Mér finnst eins og hendurnar
séu blóðugar. Ég næ því ekki.
Má ég sjá?
Þetta er betra.
Er þér kalt?
Já.
Hérna.
Lentirðu í vanda með líkin?
Ekki miklum.
Þótt menn séu dauðir
geta þeir samt hjálpað til.
Ég vil að Le Chiffre
sé á varðbergi.
Hann mun velta fyrir sér
hvaðan næsta árás komi.
Hvernig hefur stúlkan okkar það?
Bræddi hún þitt kalda hjarta?
Hann sér það.
Pakkar.
Hann sér það.
Þrír spila.
300 þúsund.
Veðmál. Þrjúhundruð þúsund.
Hann sér það.
Þrír spila.
Pass.
Monsieur Bond?
500 þúsund.
Sjáðu. Kækurinn.
Hann er að blekkja.
James hafði rétt fyrir sér.
Þú átt leik.
Hækkar. Milljón.
Einhver veit víst meira en ég.
Pakkar.
Tveir spila.
Þú átt leik.
Tvær.
Hækkar aftur.
Tvær milljónir.
Og það er komið að þér.
Ég legg það allt undir.
Það eru 14 milljónir
og 500 þúsund.
Þú átt leik, herra Bond.
Bond verður að leggja allt undir
til að láta hann sýna spilin.
Sýna.
Sýnið spilin, herrar mínir.
Fullt hús.
Kóngar með ásum.
Monsieur Le Chiffre.
Fjórir gosar.
Le Chiffre vinnur.
Þú hefur víst haldið
að ég væri að blekkja.
Vinsamlegast.
Við gerum hlé í klukkustund.
Á eftir verður stóri blindur
200 þúsund.
Góður leikur.
Ég þarf hinar 5 milljónirnar
til að komast aftur að.
Ég get ekki látið þig fá þær.
Mér urðu á mistök.
Ég var óþolinmóður, kannski
hrokafullur, en ég get unnið hann.
Mér þykir það leitt.
Leitt?
Því segirðu ekki að þér þyki leitt
að Le Chiffre vinni
og haldi áfram að fjármagna
voðaverk og myrða saklaust fólk?
Þú tapaðir vegna stoltsins
og það sama stolt þolir það ekki.
Málið snýst um það.
Þú myndir halda áfram að tapa.
Jæja þá, þú ert bjáni.
Hvað þá?
-Þú ert bölvaður bjáni.
Horfðu í augun í mér.
Ég get unnið hann,
þú veist það.
Slepptu handleggnum á mér.
*** martíní.
Hristan eða hrærðan?
-Sýnist þér ekki að mér sé sama?
Komdu stelpunni burt.
Undarlegur leikur.
Ég ætti að kynna mig
þar sem við erum skyldir.
Felix Leiter, bróðir
frá höfuðstöðvunum í Langley.
Þú ættir að hafa meira sjálfstraust.
Ég held að þú vinnir hann
ef þú heldur ró þinni.
Hefði unnið.
Hafðu mig afsakaðan.
Ætlarðu ekki að vera með?
Nei.
Mér blæðir spilapeningum.
Ég endist ekki mikið lengur.
Þú hefur meiri möguleika.
Ég skal fjármagna þig.
Ég er að bjóða þér peninga
til að spila.
Bara eitt. Ef þér tekst það
handtekur CIA hann.
Hvað með vinningsféð?
Sýnist þér við þurfa
á því að halda?
Eigum við að hækka blinda boðið?
Því ekki það?
Ég veðja.
Hækka.
Og pakka.
Afsakið.
Hann sér það.
Hækka.
Hækka. 500 þúsund.
Pakkar.
Takk fyrir.
Vinningur.
Slepptu mér.
Þú ert stóri blindur.
Litli blindur, gjörðu svo vel.
Hver er þetta?
-007.
Bond hefur verið byrlað eitur.
Hann er að fá hjartaáfall.
Vertu rólegur.
Gerðu nákvæmlega það sem ég segi
eða þú lifir ekki tvær mínútur.
Ég hlusta.
Taktu fram hjartatækið.
Vitum við hvað þetta er?
-Við erum að kanna það.
Festu lóðin við bringuna.
Aukin hjartsláttartíðni. Digitalis.
Það er amfetamín
í sjúkrapakkanum.
...blóðþrýstingslyf. Adrenalín?
Um leið og hann er hlaðinn...
-Lidocaine! Það dugar.
Ekki þrýsta á rauða hnappinn strax.
Hjartað stoppar!
Það er bara tími til að hlaða
einu sinni áður en líður yfir hann.
Taktu bláu blöndusprautuna.
Í æðina á miðjum hálsinum.
Það virkar gegn Digitalis.
Þú hefur nokkrar sekúndur,
Þú verður að halda hjartanu gangandi.
Ýttu á rauða hnappinn núna, Bond.
Þrýstu á fjandans hnappinn!
-Þrýstu núna!
Er allt í lagi með þig?
-Mig?
Þakka ykkur fyrir.
-Ekkert að þakka.
Komdu þér nú á spítala.
-Ég geri það.
Um leið og ég er búinn
að vinna spilið.
Þú ætlar þó ekki
að fara aftur inn?
Mér dettur það ekki í hug.
Ein milljón.
Allt í pottinn.
Sýnið spilin, herrar mínir.
Tvær tvennur.
Ásar með sjöum.
Drottning vinnur.
Fyrirgefðu.
Síðasta umferðin
var næstum búin að drepa mig.
Nú hefst lokaumferðin
svo ekki er lengur hægt
að kaupa sig inn.
Stóri blindur er milljón dalir.
Fjórir spila.
Þú átt leik.
Pass.
Það eru strax komnar
24 milljónir í pottinn.
Pass.
Allir pass.
Fjórir spila.
Pass.
Allt í pottinn.
Sex milljónir.
Sex milljónir. Allt inn.
Fimm milljónir. Allt inn.
Veðið er sex milljónir.
Hækka.
12 milljónir.
40 milljónir, 500 þúsund.
Allt í pottinn.
Hækka. Allt í pottinn.
Ég held að ég fái að sjá þetta.
Hann sér það.
115 milljónir í pottinum.
Sýnið spilin, herrar mínir.
Litur. Ás, kóngur, drottning.
Fullt hús.
Áttur með ásum.
Hærra fullt hús.
Ásar með sexum.
Monsieur Bond.
Fimma og sjöa í spaða.
Röð í lit.
Fjarki upp í áttu.
Hæstu spilin.
Herra Bond vinnur.
Handa þér.
-Þakka þér fyrir.
Til hamingju.
Þú átt hann.
-Bestu þakkir, bróðir.
Til hamingju.
Ég held við ættum að fagna.
Þú varst næstum dauður
fyrir hálftíma.
Komdu, ég er banhungraður.
Takk fyrir.
Mathis segir að Bandaríkjamennirnir
hafi tekið Le Chiffre.
Þeir fara með hann úr landi í nótt.
Ég held að ég kalli þetta Vesper.
Vegna beiska eftirbragðsins?
Þegar maður hefur bragðað það
vill maður ekki annað.
Þetta var gott hjá mér.
-Já, mjög gott.
En þú hlærð að því.
Frekar að þér.
-Það er allt í lagi.
Ég veit hvað þetta er.
Það er alsírskur ástarhnútur.
Virkilega? Ég hélt að það
væri bara skart.
Nei, þú hélst það ekki.
Þú hefur fengið þetta að gjöf.
Hann er heppinn.
Þú átt svo auðvelt
með að gleyma.
Ertu ekki leiður yfir
að hafa drepið mennina?
Þá væri ég ekki fær
í mínu starfi.
Ég trúi þér ekki.
Þú átt valkost.
Þótt þú hafir gert eitthvað
þarftu ekki að halda því áfram.
Því vill fólk sem hlustar ekki
á hollráð endilega gefa þau?
Heldurðu að ég geti ekki
farið að mínum eigin ráðum?
Ég held að eitthvað
reki þig áfram.
Og ég held að ég fái aldrei
að vita hvað það er.
Mathis þarfnast mín.
Góða nótt.
Til hamingju aftur.
Mathis.
Ég er hræddur um
að Mathis vinur þinn...
sé í rauninni vinur minn.
Þú hefur ræktað líkamann vel.
Þvílík sóun.
Þú veist,
...ég skildi aldrei þessar
flóknu pyntanir.
Það er svo ofureinfalt
að valda manni meiri sársauka
en hann fær þolað.
Og að sjálfsögðu...
felst það ekki bara í kvölunum
heldur vitneskjunni um...
að ef þú látir ekki undan
verði lítið eftir
til að bera kennsl á þig.
Eina spurningin er...
ætlarðu að láta undan áður?
Ég vil fá peningana.
Lynd gefur mér reikningsnúmerið
ef hún er ekki búin að því.
Svo mig vantar bara lykilorðið.
Lykilorðið, takk.
Mig klæjar dálítið...
þarna niðri.
Gætirðu hjálpað mér?
Nei!
Hægra megin!
Þú ert undarlegur maður.
Já!
Já, já, já.
Nú fá allir að vita að þú drapst
við að klóra mér á pungnum.
Drapst ég?
Drapst ég?
-Já.
Því þú færð ekki lykilorðið
svo kúnnarnir þínir
munu elta þig uppi
og skera þig í stykki
meðan þú andar enn.
Því ef þú drepur mig
hefurðu engan stað að felast á.
Þú hefur á röngu að standa.
Jafnvel eftir að ég slátra þér
og kærustunni
munu þínir menn taka mér
opnum örmum.
Því þeir þarfnast
vitneskju minnar.
Yfirsýnar þinnar.
Láttu mig fá lykilorðið
og ég skal þyrma henni.
Ef þú flýtir þér gæti hún
verið í heilu lagi.
Þú ætlar víst ekki
að segja mér það.
Nei.
Þá held ég...
að ég fóðri þig á því
sem þú virðir svo lítils.
Ég fæ peningana.
Segðu þeim að ég
nái peningunum.
Peningar eru samtökunum
ekki jafn mikilvægir
og að vita hverjum
sé treystandi.
Francesco.
Vesper.
Nei.
Ekki hann.
Ekki Mathis.
Nei.
Ég sæki lækninn.
Ekki hann.
Hefurðu nokkra hugmynd?
Hvað?
Af hverju þeir leyfðu ykkur
að halda lífi.
Hvar er hún?
Sofandi.
Ég á að fá þig
til að drekka þetta.
Það er bara undarlegt...
að drepa alla hina
en skilja ykkur tvö eftir.
Næstum eins og verið sé
að segja okkur eitthvað.
Sástu morðingjann?
Nei.
Þetta er synd.
Drekktu í botn.
Manstu nokkuð fleira?
Eitthvað sem gæti hjálpað okkur.
Hjálpað okkur?
Eða hjálpað þér?
Halló.
Er allt í lagi með þig?
Ég get ekki neitað mér
um að vekja þig.
Þú horfir alltaf á mig eins og þú
hafir ekki séð mig árum saman.
Það er eins og endurfæðing.
Ef þú hefðir verið að fæðast
værirðu þá ekki nakin?
Það er rétt.
Þú getur fengið mig hvar sem er.
Er það?
Já. Hér. Þar.
Hvar sem þú vilt.
Þýðir það að þér sé
að verða hlýtt til mín?
Já, þannig myndi ég lýsa því.
Það er bara svo stutt síðan ég
hefði lýst tilfinningum þínum...
ég er að leita
að betra orði en óbeit.
Ég er hrædd um að ég
sé margslungin kona.
Það er ástæða
til að vera hræddur.
Frábær tímasetning.
Herra Mendel.
Hvernig gengur í Sviss?
Ég vil ekki reka á eftir þér
en 120 milljónir eru mikið fé.
Svo sannarlega.
Komstu nokkuð með súkkulaði?
Því miður.
Ef þú vildir slá inn
reikningsnúmerið...
Og svo lykilorðið.
Það getur þú gert.
Ef ég vissi það.
V-E-S-P-E-R.
Féð hefur verið millifært.
Afsakið ónæðið.
-Auf Wiedersehen.
-Auf Wiedersehen, Herr Mendel.
Veistu, James...
Þótt ekkert væri eftir af þér...
annað en brosið
og litli fingurinn,
værirðu samt meiri karlmaður
en nokkur sem ég hef kynnst.
Það er af því þú veist
hvað ég get með litla fingrinum.
Ég hef ekki hugmynd um það.
-En þig dauðlangar að vita það.
Þú ætlar víst ekki
að hleypa mér inn.
Skjöldurinn þinn er aftur kominn upp.
Það er ekkert við því að gera.
Ég á engan skjöld eftir.
Þú ert búin að afklæða mig.
Það sem er eftir af mér...
Það sem er eftir...
hvað sem ég er...
er ég þinn.
M saknar mín ekki
í nokkra daga.
Hún verður upptekin
við að yfirheyra Mathis.
Mathis?
Manstu að ég sagði ykkur
frá kippum Le Chiffres?
Mathis sagði Le Chiffre það.
Þannig tókst honum að vinna.
Sama gildir um eftirlitstækið
þótt ég sakni þess ekki.
Ég get ekki trúað því.
Ekki ég heldur.
Ég hélt að hann stæði
við bakið á mér.
En þar lærði ég lexíu.
Hafa allir kippi?
Já.
Allir.
Allir nema þú.
Kannski elska ég þig vegna þess.
Elskarðu mig?
Nóg til að sigla með þér um
heiminn þar til við fáum vinnu.
En þú verður að vinna því ég veit
ekki hvað heiðarleg vinna er.
Er þér alvara?
Eins og þú sagðir...
ílengist maður í mínu starfi
verður engin sál lengur til að bjarga.
Ég fer með það litla
sem ég á eftir.
Er það nóg fyrir þig?
MI6
TRÚNAÐARLEGT ÖRUGGT INNIHALD
M: Hér með tilkynni ég uppsögn
mína sem tekur gildi strax.
Þinn einlægur,
James Bond.
Sendir skilaboð 01 Uppsögn
-Láttu ekki svona.
-Nei. Nei.
Hættu! Ég verð að fara í bankann.
Hvað er klukkan?
Hvað þurfum við mikið
til að sigla í mánuð?
Ég hef alveg nóg.
Ég vil borga minn hluta
af þessu stefnulausa ráfi.
Þú ert hætt að bera hálsmenið.
Það var kominn tími til.
Nógur tími til að jafna þig?
Til að gera þér grein fyrir að þú
getir gleymt fortíðinni.
Þótt yfirmaðurinn þinn
geti það ekki.
Kem aftur eftir mánuð.
Upp með þig.
Ég sæki peningana
og þú birgðirnar.
Hittumst hér eftir hálftíma.
Sæl, M.
-Ég fékk uppsögnina.
Já?
Við tölum um það seinna.
Hér hjá mér er indæll maður
frá ríkissjóði
sem spyr hvenær þú ætlir
að leggja inn vinninginn.
Það er synd. Ég hélt að þeir
myndu ekki sakna hans.
Ég sagði honum
að vera rólegur.
Þú leggur hann inn í dag.
Ég er á leiðinni í bankann.
Herra Mendel fyrir James Bond.
Halló.
Mendel? Ég kemst ekki að fénu
á reikningnum mínum.
Það var fært á reikninginn
sem fyrirtæki þitt gaf okkur.
Svo virðist sem verið sé
að leysa það út einmitt núna.
Hvar?
-Í Feneyjum í útibúinu
á Markúsartorginu.
Gettler - eftir hálftíma.
Er nokkuð vandamál?
Ég drep hana!
Leyfðu mér.
Mér þykir fyrir þessu, James.
Hún átti kærasta.
Frakka af alsírskum uppruna.
Þau voru innilega ástfangin.
Honum var rænt af samtökunum
sem Le Chiffre starfaði fyrir.
Og þeir hótuðu að drepa hann
ef hún hlýddi þeim ekki.
Við áttum að sjá það fyrir en oft
erum við upptekin af óvinunum
og gleymum að hafa auga
með vinunum.
Hvernig gengur?
Hún skildi símann sinn eftir.
Hún hlýtur að hafa vitað
að ég myndi skoða hann.
Hún vissi hvernig þú ert.
Þetta hreinsar þá Mathis.
-Nei.
-Nei?
-Nei.
Við sönnuðum að hún sé sek,
ekki að hann sé saklaus.
Haltu áfram yfirheyrslunum.
Þú treystir engum, er það?
Nei.
Þá hefurðu lært þína lexíu.
Flýttu þér hingað.
Við þörfnumst þín.
Geri það.
Ef þú þarft meiri tíma...
Til hvers?
Verkinu er lokið.
Tæfan er dauð.
Hefurðu velt fyrir þér af hverju
þeir drápu þig ekki um kvöldið?
Er það ekki augljóst?
Hún fékk lífi þínu þyrmt
í skiptum fyrir peningana.
Hún vonaði örugglega
að hún fengi að halda lífi.
En hún hlýtur að hafa vitað
að hún gengi í opinn dauðann.
Og nú fáum við aldrei að vita
hver var á bak við þetta.
Slóðin er köld.
Leitar
Vesper Lynd
Skilaboð
Til James:
Herra White +3926222431
Herra White?
Við þurfum að tala saman.
Hver er þetta?
Ég heiti Bond.
James Bond.
Icelandic