Tip:
Highlight text to annotate it
X
Ég var alltaf í uppreisn.
En á hinn bóginn
þráði ég ást og samþykki samfélagsins
og hafnaði hávaðasama,
geggjaða ljóðskáldinu.
En ég er það sem ég er.
Sögumaður, JOHN LENNON
Úr 100 klst af viðtalsefni
TITTENHURST-LANDAREIGNIN
Ascot, Englandi - 1971
-Góðan daginn.
-Góðan daginn.
Fólk segir: "Af hverju skráirðu
líf þitt eins og dagbók?"
Sem Bítill, er hvert lag og hver plata
og hver mynd til vitnis
um tíðarandann hverju sinni.
En við vissum það ekki fyrr en síðar.
Þegar ég fór að vera með Yoko
fórum við að skrásetja í miðjum klíðum.
Bakgrunnurinn verða augu og sólsetur.
Undarlegt, ekki satt?
Hvernig hljómar Imagine?
Svona: "Ímyndið ykkur
að himnaríki væri ekki til,
"það er auðvelt. Ekkert helvíti.
"Aðeins himinn. Ímyndið ykkur fólkið.
"Lifir í samtímanum." Hvað sem er.
Þú heyrir plötuna.
Ég tengi Imagine við Ascot
og samveru í garðinum.
Þetta var spennandi
og fallegur tími fyrir okkur.
PHIL SPECTOR - Plötuframleiðandi
-Ég geri How? fyrst.
-Allt í lagi. Settu upp How?
Við byggðum stúdíó við húsið
og tó*** upp nokkur lög þar líka.
Ég ólst upp hjá frænku minni.
Foreldrar mínir skildu þegar ég var 4 ára.
Ég eyddi tíma með móður minni
fram að þeim aldri.
Þá fór faðir minn. Hann var sjómaður.
Þú getur ímyndað þér það, á stríðstímum.
Og hann fór og ég ólst upp hjá frænku.
Ég varð að vera áreiðanleg
því ég ól upp dreng.
Þetta var starf mitt.
Hann kom aldrei heim í tómt hús.
Hann áttaði sig ekki á því
hvernig ég vissi um
uppátæki hans.
MARY ELIZABETH SMITH
Mimi, frænka Johns
Hann var frumlegur og alltaf í fararbroddi.
Hann sóaði aldrei tímanum.
Hann sinnti alltaf teikningum, ljóðagerð,
eða lestri. Hann las mikið.
Og hann söng sig í svefn á hverju kvöldi.
Þegar ég var 16 ára
kynntist ég aftur móður minni í fjögur ár.
Hún kenndi mér tónlist.
Hún kenndi mér fyrst á banjó
og þá lærði ég á gítar.
Því miður ók lögreglumaður
á frívakt á hana
og var hann drukkinn.
Ég missti hana í tvígang. Å 5. ári
þegar ég flutti til frænku
og aftur þegar ég var að endurnýja kynnin.
Þetta var erfiður tími fyrir mig
og þetta gerði mig afar bitran.
Viðhorf mitt var virkilega erfitt
á unglingsárunum.
Ég varð fyrir áfalli.
Ég vissi ekki hvernig ég gat
lifað á tónlistinni
fyrr en ég kynntist rokkinu.
Líf mitt gjörbreyttist þegar það gerðist.
Þú sást þessar myndir
með Elvis og fleirum
þegar við vorum enn í Liverpool.
Og allir biðu eftir að sjá hann. Ég líka.
Allir æptu þegar hann birtist á skjánum.
Mér fannst þetta góður starfi.
Hann var grófur, tilbúinn
og alls ekki mín týpa. Til að byrja með.
CYNTHIA LENNON - Fyrrum eiginkona
En það var ógerlegt
að standast þessa dulúð.
Hann gekk um án gleraugnanna sinna,
með gítar á öxlinni
og drápssvip.
Við Paul hittumst þegar ég söng
Be Bop a Lula fyrst á sviði.
Sameiginlegur vinur kom með hann
á tónleika með The Quarry Men.
Við hittumst og ræddum málin
eftir tónleikana.
Ég sá hæfileika hans.
Hann lék á gítarinn baksviðs
og tók Twenty-Flight Rock
með Eddie Cochran.
Ég snéri mér að honum
á þessum fyrsta fundi og sagði:
"Viltu ganga í bandið?"
Hann samþykkti það næsta dag.
Paul kynnti mig síðan fyrir George
en Paul var félagi minn.
Hamborg? Syndaborgin?
Nei, auðvitað ekki.
Þú mátt ekki fara þangað.
Hann sagði: "Láttu ekki svona, Mimi,
við þénum 100 pund á viku. "
Hann fór því að lokum.
Ég man þegar drukkinn Þjóðverji
reyndi að komast á sviðið
og John Lennon var að borða...
ALLAN WILLIAMS - Umboðsmaður
og hann kastaði í hann hnífnum sínum.
Það stöðvaði hann ekki
svo hann sparkaði í fésið á honum
og þannig af sviðinu.
Bærinn var því fullur af uppreisnarseggjum
sem dýrkuðu Bítlana
og sendu þeim bjórkassa upp á svið.
Og þeir voru ofurölvi á sviðinu.
Öllum tónleikum lauk með slagsmálum.
Å einum staðnum þar sem þeir spiluðu
urðu þeir að fela sig bak við píanóið
því þá var vinsælt
að kasta stólunum í bandið.
Við snérum síðan aftur til Liverpool
og vorum nokkuð vinsælir.
Allir héldu að við værum þýskir.
Bill var frá Hamborg og þeir sögðu:
"Þú talar virkilega góða ensku."
VELKOMIN Á THE CAVERN
Mér var sagt að hann spilaði á The Cavern.
Þetta var gamall vínkjallari
sem hafði verið breytt í klúbb.
Brian fór þangað.
Hann stóð baka til
og hlustaði á drengina fjóra
en það sem hann sá
var lítill neisti.
Og hann bauðst strax til þess
að verða umboðsmaður þeirra.
Ég heillaðist strax af tónlist þeirra,
taktinum...
BRIAN EPSTEIN - Umboðsmaður
...og kímnigáfu þeirra á sviðinu.
Og á eftir, þegar ég hitti þá,
heillaðist ég aftur af persónutöfrum þeirra.
Og þarna byrjaði allt.
Það tók um átta mánuði
að ná því stigi að hafa plötusamning
og fá fyrstu plötuna útgefna.
Hún hét Love Me Do.
Það var afar heppilegt...
GEORGE MARTIN - Framleiðandi
að okkur skyldi koma svona vel saman.
Við unnum vel saman í hljóðverinu.
Það urðu engir árekstrar milli manna.
En ég var afar heppinn
að hafa kynnst þeim.
George hafði ekki spilað rokk
þegar við hittum hann
og við höfðum aldrei verið í hljóðveri,
það var því margt að læra.
Hann hafði góða þekkingu
á tónlist og góðan bakgrunn.
Hann þýddi fyrir okkur
og stakk upp á mörgu.
Og hann fann upp
á frábærum tækniatriðum.
Þegar Bítlarnir voru þunglyndir
og fannst þeir ekki stefna að neinu
og að ástandið væri vonlaust
sagði ég: "Hvert stefnum við, félagar?"
Og þeir sögðu: "Å toppinn, Johnny!"
Og ég sagði: "Hvar er það, félagar?"
Og þeir svöruðu:
"Å hæstasta af því bestasta!"
Ég sagði: "Einmitt!"
Þá tó*** við gleði okkar.
Þegar ég var Bítill
hugsaði ég: "Við erum
besta grúppan í heiminum. "
Þessi trú gerði okkur
að því sem við vorum.
Það var tímaspursmál
þar til allir áttuðu sig.
ásamt hennar hátign,
Elísabetu drottningu, drottningarmóður
Takk fyrir.
Í síðasta laginu þarf ég aðstoð ykkar.
Fólkið í ódýru sætunum
á að klappa saman lófum.
Þið hin eigið að fitla við skartið ykkar.
Við ætlum að syngja lagið
Twist and Shout.
BÍTLARNIR
BÍTLASÝNINGIN
Við ættum þá kannski að taka Imagine.
Er þetta ballaða?
Já, ég kenni ykkur það.
Imagine endurspeglaði hluta af honum.
Endurspeglaði draum hans um heiminn.
Hugsjón hans.
Þetta var eitthvað sem hann vildi
segja við heiminn.
Það er fallegt.
Já.
-Mér líkar þetta best...
-Hvað með annað píanó?
Ef við notum annað píanó
og förum áttund hærra eða eitthvað
-þá yrði það fallegt.
-Við gætum notað þetta...
Í staðinn fyrir rafgítarinn.
Þetta er fínlegt lag.
Hann gæti kannski spilað
efri tónana á píanóið.
-Við gætum notað hljóðnema...
-Þetta er málið.
-Hvíta píanóið?
-Já.
Ég nota það hvíta því ég vildi það.
-Já.
-Já.
Því við vildum gera húsið.
Þegar pabbi flutti til Tittenhurst
hringdi hann í mig í fyrsta skipti
í afar langan tíma.
Það var spennandi fyrir mig
að hitta hann aftur
eftir langan aðskilnað.
Á þessum tíma bjó ég í...
Ekki litlu húsi
en aðstæðurnar voru allt aðrar.
Þetta var í götu með mörgum húsum
og mörgum vinum.
Og Tittenhurst var gríðarstór
höll sem stóð á 99 ekrum,
þarna voru gólfkerrur,
stöðuvatn með lítilli eyju á...
Þetta var skemmtilegur staður.
Þetta var allt önnur reynsla.
Frábær. Ég dýrkaði staðinn.
Ég man ekki eftir
að hafa séð hann sem barn.
Þetta var á uppgangsárum Bítlanna
og ég var sívinnandi.
Ég íhugaði ekki áhrifin á hann.
Ég hugsaði ekki um það.
Móðirin var heima. Ég var í burtu.
Strákar um 24 eða 25 ára
eru of uppteknir af ferlinum.
John neyddist til að vera íhlaupafaðir.
Hann skrifaði mér og sagði:
"Það syrgir mig
að ég skuli hafa yfisést það
"að Julian hefur vaxið úr grasi,
"að hann sé ungur maður núna
og ég sakna hans hræðilega.
"Ég hef verið aumingi
"því ég hef ekkert sinnt honum
"og lesið blöðin
og rekið hann út úr herberginu
"því hann var með hávaða."
Þarna áttaði hann sig skyndilega
á því að hann var faðir,
Julian var sérstök manneskja,
ekki ímyndun hans
þegar hann kom heim í þá daga.
Þið farið til Bandaríkjanna
snemma á næsta ári
og þið munið koma fram
í þætti Ed Sullivan.
John, breskar poppstjörnur
hafa ekki verið vinsælar í Bandaríkjunum.
Hvernig mun ykkur vegna?
Það get ég ekki sagt.
Það er ekki undir mér komið.
Vonandi gengur allt vel.
Aðlagið þið sýningu ykkar
að nýjum áheyrendum?
Nei. Það er engin sýning,
við gerum það sem við gerum.
Ferðin til Bandaríkjanna var spennandi
en ég varð að hafa hægt um mig
því það yrði ekki vinsælt
meðal æstra aðdáenda
ef þeir vissu að John
ætti konu og barn heima.
Hvað segiði um þau ummæli
að þið séuð bara
að herma eftir Elvis Presley?
Það er ósatt!
Látiði klippa ykkur hérna?
-Nei, takk.
-Ég klippti mig í gær.
-Það er satt.
-Það er satt.
Hann hefur gleymt einhverju.
-Nei.
-Þið hefðuð átt að sjá hann í fyrradag.
Hvað haldiði að tónlist ykkar
geri þessu fólki?
Geri það ánægt.
Það hlýtur að vera, þau kaupa hana.
-Hvað gerir það svo spennt?
-Við vitum það ekki.
Annars myndum við stofna
annað band og reka það.
Við komum um hálfsex um morguninn
til að sjá þá.
Og við erum bara reknar lengra í burtu.
Við fáum svo ekki að sjá þá.
Ég á allar Bítlaplöturnar heima
og við fengum ekki að sjá þá.
Hverslags lögregluvernd?
Ég vildi taka í lurginn...
WASHINGTON, D.C. - 11. febrúar, 1964
NEW YORK
BÍTLARNIR VINNA AMERÍKU
VIL ELSKUM YKKUR - EKKI FARA
BÍTLARNIR Í HEIMSREISU
Þetta var eins og fellibylur.
Þú hugsaðir: "Hvað gengur á?"
Og: "Hvernig komst ég hingað?"
Ég man síðast eftir að hafa spilað
í klúbbi og svo þetta.
Fékkstu tækifæri, John,
til að komast einn í burtu
án þess að einhver þekkti þig?
Við fengum lánuð nokkur auðkýfingahús.
Auðvitað.
Þið hefðuð efni á
að kaupa nokkur slík hús, ekki satt?
Það er ódýrara að fá þau lánuð.
Við fórum á vatnaskíði. Eða þannig.
Skemmti konan þín sér?
Hún elskaði það. Hver? Hver?
Ekki segja að hann sé giftur.
Það er leyndarmál.
Fyrirgefðu.
Það var engin sérstök gæsla
og einn aðstoðarmannanna
sagði okkur frá undarlegum náunga
sem hélt sig í garðinum okkar á nóttunni.
John taldi sig bera ábyrgð á þessu fólki
því það hlustaði á hans lög.
Þannig leið honum.
Ekki rugla lögunum saman við líf þitt.
Þau gætu vísað í líf þitt
en það gerir margt.
Við hittumst. Ég er bara maður.
Ég sem lög.
Ég taldi mig vita með því að hitta þig.
Vita hvað?
Að allt smellur saman.
Það gerir það ef þú ert í vímu.
Það smellur allt saman.
Eins og þegar þú sagðir:
"Strákur, þú munt bera þessa byrði
í langan tíma." Það var bara...
-Það var Paul sem söng þetta.
-Var það Paul?
En það tilheyrir okkur.
Hann syngur um okkur.
Manstu eftir þessu:
"Þú getur sýnt sjálf þitt.
Geturðu troðið þér alls staðar?"
Þetta er orðaleikur.
Þetta lag er helber vitleysa.
Dylan gerir þetta. Það gera þetta allir.
Þú tekur orð og skeytir þeim saman
og kannar hvort þau þýða eitthvað.
Sum gera það, önnur ekki.
Síðasta plata mín fjallar um það
er ég vakna af draumi.
Þú getur lifað í draumi allt lífið
og síðan er því lokið.
Varstu með engan í huga
þegar þú söngst þetta?
Hvernig þá?
Hvernig gat ég hugsað um þig?
Ég veit ekki, kannski ekki mig.
En þetta er allt... Þetta eru allir.
Ég hugsa um mig eða Yoko,
ef þetta er ástarlag.
Ég segi: "Ég skeit stórt í dag
og ég hugsaði um það í morgun
"og ég elska þig, Yoko," eða eitthvað.
Ég syng um mig og líf mitt
og það er í lagi ef það tengist lífi annarra.
Ertu svangur?
Já.
Gefum honum eitthvað að borða.
Ég náði því loksins.
Það er gott að vinna með þér, Phil.
Alveg frábært.
Ég hef unnið með mörgum
og þetta var frábært. Virkilega frábært.
Heldurðu að Bítlarnir hafi
ekki lagt sig alla fram
við að vera Bítlarnir?
Þetta gagntók ungdóminn,
allt þetta tímabil.
Þegar allir aðrir voru að slæpast...
unnum við allan sólarhringinn.
Bítlaæðið var óraunverulegt.
Og ég át og drakk eins og svín
og hrópaði hljóðlega á hjálp.
Þetta var viðburður.
Það heyrðist engin tónlist.
Við fórum síðan að látast syngja.
Stundum bilaði eitthvað
og enginn vissi neitt.
Í síðasta mánuði báðu
75 ungmenni frá Pennsylvaniu
drottninguna um að aðla Bítlana.
Það hefur ekki gerst.
En það gleður mig í dag
að tilkynna inngöngu þeirra
í heiðvirðustu reglu breska heimsveldisins.
Til hamingju, John, George, Ringo og Paul.
Hvernig brugðust þið við?
Ég gerði...
Sem þýðir hvað?
Jibbí.
Þið lifið allir þægilegu lífi.
Hefur þetta haft áhrif á skrif ykkar,
Paul og John?
Það er auðveldara að skrifa í hægindum
en á hörðum bekk.
Áður en við hittumst
máttum við hýrast á hörðum bekkjum,
þekktur hryllingur í Liverpool.
Þá eru hægindin betri.
Frá því að vera óþekktir í kjallara
í Liverpool fyrir fjórum árum
í að vera í Buckingham-höll.
Við erum allir kátir.
-Takk fyrir.
-Til hamingju.
Bítlarnir komu til Japan í dag
á ferðalagi sínu um Austurlönd.
Handan Kyrrahafsins, í Bandaríkjunum,
rísa deilur um athugasemdir
sem John Lennon gerði:
"Kristni mun hverfa.
"Hún mun hverfa og skreppa saman.
Við erum vinsælli en Jesús. "
Í Tókýó braust út ofbeldi
þegar hægrisinnaðir ofstækismenn
mótmæltu áhrifum Bítlanna
á japanska æsku.
Þetta er Tommy Charles.
Ef þú, sem amerískur unglingur,
ert móðgaður vegna ummæla
hóps af erlendum söngvurum,
sem grafa undir...
guðsótta okkar og þjóðerniskennd,
hvetjum við þig til
að taka Bítlaplötur þínar,
myndir og minjagripi
og koma með þau á eftirtalda staði.
Þegar Bítlarnir spila í Memphis
þann 19. ágúst
verður þeim eytt í risastórum bálkesti
á stað sem brátt verður greint frá.
Haldið áfram að hlusta á Rocky.
Þessi trúardeila,
ég veit að þú vilt lítið tjá þig um hana,
óttastu að upp úr sjóði
þegar þú kemur til Bandaríkjanna?
Já, en ég vona að allt endi vel.
Bítlarnir eru hæfileikaríkir
en þeir verða að gæta orða sinna
því þeir eru í þannig aðstöðu
að fjölmargir unglingar
líta upp til þeirra.
Þegar þeir segja svona hluti
trúa sumir unglingar hverju sem er.
Ég segi ekki að við séum betri
eða ber okkur saman við Jesús Krist
sem persónu
eða tilvist Guðs, hvað sem það er.
Ég sagði þetta og það var rangt
eða misskilið. Og nú allt þetta.
Viltu meina að Bítlarnir
séu vinsælli en Kristur?
Þegar þetta var sagt var það
í samræðum við náinn vin
sem ég þekki og er blaðamaður.
Og ég tjáði mig um hluti
sem ég hafði nýlesið
um Kristni og notaði einfalt orðbragð
en þannig tala ég venjulega.
Hvað gleður ykkur mest
við allt þetta skjall,
við þessa guðlegu dýrkun á ykkur?
Ekki segja þetta.
-Hann sagði það.
-Þið sáuð þetta öll.
MID-SOUTH LEIKVANGURINN
BÍTLATÓNLEIKAR
Trúarreglan Ku Klux ***...
ætlar að láta sjá sig kvöldið
sem þeir spila á leikvanginum.
Og við ætlum að nota
ólíkar leiðir til að stöðva tónleikana.
Þetta eru þekkt hryðjuverkasamtök
og ég held að við höfum...
Hryðjuverkasamtök?
Við höfum leiðir til að stöðva þetta
ef þetta verður niðurstaðan.
Hvaða leiðir?
Ég vil ekki segja þetta,
en það kemur margt á óvart
á mánudagskvöld þegar von er á þeim.
Þið lögreglumenn sem eruð staðsettir
fremst við sviðið fyrir aftan tálmann
farið til hr. Morris Shapiro, sjúkraliða,
og hann mun útvega ykkur eyrnatappa
til að forða ykkur frá höfuðverk.
Hann á bómull ef tapparnir klárast.
-Er það skilið?
-Já, herra.
Tónlistin heyrðist ekki.
Þetta var nokkurs konar
skrípasýning.
Bítlarnir voru sýningaratriðið
og tónlistin skipti engu.
Tilgangurinn með bandinu
var að skapa tónlist,
ekki að vera sirkus.
Eftir síðustu tónleikaferð Bítlanna
þar sem Ku Klux *** brenndi
Bítlaplötur og mér var lýst
sem satanista eða eitthvað,
ákváðum við að hætta ferðalögum.
Það var nóg komið.
En ég hræddist það að hætta.
Þetta voru eins og endalokin.
Engin fleiri ferðalög. Þá fór ég að hugsa:
"Hvað ætlarðu að gera allan daginn?"
Ég sagði því já við *** Lester
um að gera þessa mynd með honum
og fór til Almería á Spáni í sex vikur.
Í hljóðveri í London
hafa Bítlarnir komið saman
í fyrsta skipti í fjóra mánuði
til að taka upp nokkur lög.
UPPTÖKUVER EMI
Lagahöfundarnir halda áfram
sama hvað á bjátar.
Já, við semjum eflaust lög til eilífðarnóns
hvað sem hinir gera
því annað er ekki hægt.
Þú semur hvort sem þér
líkar það betur eða verr.
Tónleikaferðalögin í Ameríku
og á Englandi...
Spilið hér?
Það kemur að því að þeir vinna ekki lengur
því þeir gera ekki það sem við gerum
hvað plötur eða myndir varðar.
Allt var leyfilegt þegar við gerðum
Sergeant Pepper
því við vorum orðnir vinsælir.
Ég vissi að ég hefði frjálsar hendur
í hljóðverinu.
Og ég vissi að þeir vildu gera tilraunir.
Við slökuðum því á og tó*** áhættu.
Og þá tala ég um Strawberry Fields
sem var í byrjun Pepper
þótt það rataði ekki á plötuna.
Þetta var eitt besta lag hans.
Ég vissi ekki um neyslu þeirra áður.
Ég vissi að þeir reyktu hass.
Og jafnvel eftir Sergeant Pepper
var ég óviss um gjörðir þeirra.
Ég vildi ekki vita það
því ég var ósamþykkur.
Þeir voru eins og skólakrakkar.
Þeir földu það fyrir mér.
Ef þeir vildu fá sér smók
fóru þeir úr hljóðverinu.
Þeir læddust inn á kaffistofu
og læstu hurðinni
eins og óþekkir strákar á salerninu.
Þeir fóru og földu sig,
fjarri skólastjóranum.
Súrealisminn hafði mikil áhrif á mig
því ég áttaði mig á því
að ímyndun mín var ekki geðveiki.
Ímyndun er raunveruleiki minn.
Blaðamaður spurði: "Hefurðu prófað LSD?"
Ég varð annað hvort að ljúga
eða segja satt.
Ég játaði því.
Og það var hans að segja frá því.
Hann var spurður í sjónvarpinu:
"Hví sagðirðu þetta?"
Rétt eins og yfirlýsingin...
Þeir spurðu: "Prófaðirðu?" Og hann játaði.
En hann segir í sjónvarpinu:
"En þú sýnir þetta ekki.
"Ég vil ekki að neinn viti þetta.
Þetta er einkamál..."
Rétt eins og Kristsummælin.
En þeir spurðu mig og ég svaraði.
Og þetta varð stórmál.
Ég sagði satt
og sannleikurinn getur verið sár.
Þetta er sannleikurinn.
Sonur minn kom heim með teikningu
og sýndi mér undarlega konu á flugi.
Ég spurði hvað þetta væri. Hann sagði:
"Lucy í skýjunum með demanta."
Mér fannst þetta fallegt
og skrifaði strax lag um þetta.
Lagið hafði verið gefið út,
sömuleiðis platan.
þegar tekið var eftir stöfunum "LSD".
Ég hafði ekki hugmynd.
Eftir þetta kannaði ég
öll lögin til að athuga stafsetninguna.
Það var ekkert athugavert við hin lögin.
Þetta var málinu óviðkomandi.
EPSTEIN (Bítlaprinsinn) LÁTINN 32 ÁRA
HLJÓÐI MAÐURINN FRÁ LIVERPOOL
SEM FRAMLEIDDI STJÖRNUR
Við fengum þær hræðilegu fréttir
að Brian hefði látist.
Hann hafði tekið of stóran skammt.
Við vorum í losti því Brian var miðdepillinn
í því sem við vorum að gera. Föðurímynd.
Skyndilega var það allt horfið.
Allt fór úr böndunum.
Miða, takk.
EUSTON-STÖÐ, LONDON - 1967
Eftir fyrirlestur sem allir sáu
til að hitta Maharishi
var þeim boðið í helgarferð til Bangor
til að hugleiða og kynnast hugleiðslunni.
Þeir þráðu frí frá geðveikinni.
Við fórum því öll í lest til Bangor.
Ég var að venju síðust
með handfarangurinn.
Og risavaxinn lögreglumaður
stöðvaði mig.
Ég komst ekki í lestina.
Það síðasta sem ég sá var höfuð Johns.
Ég veit ekki hvað hann sagði
en það var eflaust:
"Í almáttugs bænum, Cyn, þú ert of
hægfara. Gastu ekki verið með okkur?"
Þá gafst ég upp.
Ég get ekki lýst þessu.
Venjulega hefði ég ekki brotnað saman.
Ég hefði verið róleg
og vitað að ég hefði hvort eð er komist.
En þarna var ég svo döpur
og fannst þetta til merkis um líf okkar.
"Ég fer út á næstu stöð."
Og það reyndist satt.
Yoko var með sýningu í London
í lndica-galleríinu.
Ég frétti að þetta yrði viðburður.
Ég fór því kvöldið fyrir opnunina.
Og það fyrsta sem blasti við
þegar inn var komið var hvítur stigi,
málverk í loftinu og sjónauki í bandi.
Ég gekk upp stigann
og tók um sjónaukann.
Hann hékk þarna.
Það stóð "já"með smáu letri.
Hefði staðið þarna "nei"
-eða eitthvað klúrt...
-Eitthvað kaldhæðið.
Eins og "rán" eða eitthvað,
hefði ég yfirgefið staðinn,
en vegna þess jákvæða
hugsaði ég: "Þetta er fyrsta sýningin
sem heilsar mér hlýlega."
Ég ákvað því að sjá afganginn
og þá hittumst við.
Við fórum ekki að vera saman
fyrr en 18 mánuðum síðar.
Við fórum á stefnumót
og ég átti lítið hljóðver
með fullt af upptökutækjum.
Og við tó*** upp Two Virgins
og ég sýndi henni
allar upptökurnar mínar og slíkt.
Mér fannst þetta frábært. Ég gerði svona
á upptökunum og hún...
Við tó*** upp alla nóttina.
Um morguninn elskuðumst við
í sólarupprásinni.
"Óvænt."
Við mynduðum kápuna sjálf
og gáfum út Two Virgins.
Þetta var yfirlýsing og vakning.
Þetta er ég, nakinn,
með konunni sem ég elska.
Þegar þú varst með Bítlunum
tjáðirðu þig þá nokkuð um pólitík?
Í fyrsta tónleikaferðalaginu
var það látið ósagt
að hr. Epstein hindraði okkur í
að tjá okkur um stríðið í Víetnam.
Og áður en við fórum aftur til Ameríku
sögðum við George við hann:
"Við förum ekki nema að ræða um stríðið."
Voruð þið spurðir?
Við vorum spurðir í sífellu
og það var kjánalegt
að láta eins og í gamla daga
þegar listamenn máttu ekki tjá sig
um nokkurn skapaðan hlut.
"Þegar þú talar um eyðileggingu,
sleppið mér, haldið mér."
Hvað áttu við með því, John?
Ég er ekki viss. Ég held
að það megi sleppa mér
ef allt fer til fjandans, en ég er óviss.
Ég er mannlegur
og skipti um skoðun eftir aðstæðum.
Ég hafna ofbeldi.
John Lennon og kærastan hans,
japanska leikkonan Yoko Ono,
voru í gær handtekin fyrir
að nota marijúana.
Í dag komu þau fyrir dómstól hér í London.
Hann er þekktur fyrir að vera
"sérvitri" Bítillinn.
John Lennon leitar ákafur að bifreið sinni
því annars verður hann múgnum að bráð.
John, Cynthia er betri en hún!
Stúlkan sem stóð nærri mér sagði:
"Cynthia er betri en hún."
Þegar við hittumst fyrst
fundum við fyrir þeirri tilfinningu...
að vilja ekki vera saman.
Vegna þess
að við vissum að þetta var málið
og við vildum ekki taka þátt.
Og þegar við byrjuðum síðan saman
vissum við að þetta yrði málið.
Það leið síðan ár, held ég,
þar til við giftum okkur.
Já, sem betur fer
vorum við bæði samþykk.
En ekki alltaf.
En að lokum
tó*** við þátt og gleymdum ágreiningi.
Sem betur fer hitti ég þig á réttum tíma.
Því miður er það rétt.
En,
að lokum,
hvað mun gerast.
Við vitum það sem betur fer ekki.
Sem betur fer
er ég ástfangin af þér.
Því miður er það gagnkvæmt.
LÁTTU HÁRIÐ VAXA!
Þetta eru önnur friðsamleg mótmæli.
Hvað táknar pokinn?
Því við trúum á samskipti.
Það er, ef við höfum eitthvað að segja
eða einhverjir aðrir
geta þeir tjáð sig án þess að rugla þig
með hörundslit, hárlengd eða...
Hvað ertu með sítt hár?
Þú verður að giska!
Skiptir engu. Orðin skipta öllu.
Gefið okkur tækifæri á friði.
Við getum þá allavega vakið hlátur,
við viljum vera heimstrúðar
því heimurinn er of alvarlegur núna
og of mikið þenkjandi.
MAÐUR ÁRATUGARINS
John Lennon, maður áratugarins.
Taka eitt.
Hversu vongóður ertu
um framtíðina, John?
Ég er vongóður því það er til fólk
sem
ég er samsinna með.
Ég er ekki galinn. Ég er ekki einn.
Þetta er bara á persónulegum nótum.
Woodstock, lsle of Wight,
allar fjöldasamkomur æskunnar,
vekja með mér von.
Ég hef Yoko þegar ég er dapur.
Sjöundi áratugurinn
var bara morgunstundin.
Það er ekki enn komið að kvöldverði.
Ég get ekki beðið. Ég gleðst yfir að vera til.
Og þetta verður frábært, og það verða...
Ég sé að þú keyrir líka.
Ég geri þetta fyrir ástina og listina.
GREIPALDIN
-Hann vildi bara...
-Fyrir listina.
Ef þið haldið að þið þekkjið mig eða eigið
hlutdeild í mér vegna tónlistarinnar
og teljið að mér sé stjórnað
eins og hundi í bandi
vegna þess að ég geri hlutina með henni,
þá farið til fjandans, bróðir eða systir.
Þið vitið ekki neitt.
Ég er ekki hér fyrir ykkur.
Ég er hér fyrir mig og hana.
Eru þetta áheyrendur
sem þið haldið í burtu?
Ég reyni að fá þá til að hleypa ykkur inn.
Þessa leið.
Má ég spyrja ykkur bæði
um það sköpunarferli
sem þið farið í gegnum núna?
Þið verðið að skilja, sérstaklega þú, John,
að þetta einangrar þig frá fólkinu
sem dýrkaði þig hér á landi.
-Mörgum.
-Það skilur þig ekki lengur.
Einangrunin hófst þegar ég kynntist Yoko.
Og fólki líkar ekki við þá
sem sækja um skilnað.
Það má gera það í hljóði,
en við getum það ekki.
Það halda því allir
að John sé orðinn galinn.
En ég varð bara ástfanginn
eins og svo margir
sem eru þegar giftir,
sem giftu sig afar ung.
Við erum ekki ofurmenni
og svívirðingar særa okkur.
Við þolum gagnrýni á verk okkar.
En breska pressan skrifaði
að Yoko væri ljót.
Ég hef aldrei lesið slíkt áður
jafnvel þótt viðkomandi hafi verið ljótur.
Það er ekki skrifað um slíkt.
"Ljóta konan." Og hún er ekki ljót.
Þótt svo væri þá réttlætti
það ekki þessa grimmd.
Hræðilega ljótt fólk er sagt "aðlaðandi",
bara upp á sportið.
Svona meðhöndlun fengum við
og þetta særir.
John!
Yoko!
Þú ert með vitlaust vers.
Við viljum það með skýjunum.
Við ætlum að syngja saman þann hluta.
Hvað er að þér, Philip?
Það er síðasta erindið.
"Ég kallaði nafn þitt í miðri skýjahulu.
"Ó, Yoko." Við stoppuðum hér, manstu?
Þú ert að spila það núna.
Við viljum það ekki.
Við viljum það sem hann tók upp eftir á.
"Ný og frjáls." Það var í erindinu,
eftir síðustu línuna.
Hann gerði nýja útgáfu, manstu?
-Við viljum hana. Allt í lagi?
-Við erum þar.
Endirinn á laginu er eins og restin af því.
Við syngjum saman: "Ó, Yoko."
Látið ekki svona!
Viltu ekki gleyma þessu, elskan?
Slakaðu á í smástund.
John, viltu syngja þetta
fyrir hann einu sinni?
Við tö*** við hérna.
Förum í næsta lag.
Við Yoko,
þegar við hittumst,
ákváðum við að... Við vissum
að allt sem við gerðum
myndi verða fréttnæmt.
Hvort sem það eru Richard eða Liz
eða einhver að gifta sig
eða hvað sem okkar líka gera,
það endar í blöðunum.
Við ákváðum því að nota rýmið
sem okkur var úthlutað með því að giftast
og auglýsa frið.
Þetta var leikrit.
Þetta var því sjö daga...
blaðamannafundur í rúminu.
Rúmfundur.
Fyrsta daginn hömuðust þeir
við að komast inn
og töldu kynlíf vera í spilinu.
Þeir fundu tvær manneskjur
að tala um frið.
Jafnvel þótt þú getir sigrað yfirvaldið
á eigin leik
þá trúi ég ekki á leikinn. Ghandi fór rétt að.
Ekkert ofbeldi, engar aðgerðir, jákvæðni,
eða hvað sem það kallast.
Er ekki til betri leið til að boða frið
en að sitja í rúminu,
borða þrjár máltíðir daglega...
Þetta eru aðrir tímar.
Allt snýst um sölumennsku.
Við gerum þetta ef það dugar.
Hvort sem mótmælt er aðstæðum
sem búið er við,
aðstæðum sem unnið er við
eða aðstæður í veröldinni.
-Má ég tala við þig?
-Auðvitað.
Allt í lagi, Rog.
Skilaboðin voru send, Roger.
Ég held að boðin skili sér. Boðin um frið.
Heldurðu ekki að boðin um frið
séu að skila sér?
Jú, hann heldur það. Við hittum fullt
af flottu fólki, rétta fólkinu.
-Ekki satt?
-Fyrir morgundaginn?
Morgundaginn? Hver veit?
Ég er hræðilega ófrumlegur fasisti.
Hvernig hefurðu það?
John og Yoko, Al Capp, teiknari.
HÁRFRIÐUR
Það hafa margir komið.
Það er ég viss um.
Eitt af því
sem vakti áhuga minn var
að þið sögðust vera feimið fólk.
Við erum það.
Samt eru þetta...
-Sannar þetta að við séum ekki feimin?
-Auðvitað ekki.
Aðeins feimnasta fólk í heimi
myndi gera svona myndir.
Er feimið fólk einhvern tíma nakið?
Heldurðu ekki að feimið fólk...
Rífst ég um lýsingu ykkar á sjálfum ykkur?
Ef þetta er ekki mynd af feimnu fólki
þá vil ég vita hvað feimni er.
-Þvílíkur viðbjóður!
-Finnst þér þetta viðbjóður?
Auðvitað ekki.
Ég fordæmi fólk sem heldur það.
Það ættu allir að sanna
að þeir hafi skapahár.
Þið hafið gert það.
Og ég fagna ykkur fyrir það.
Þú getur sannað það ef þú vilt.
Af hverju sannarðu það ekki núna...
Það eru engir hagsmunir fyrir því.
Þér hlýtur að hafa fundist
heimurinn vilja vita
hvernig einkastaðir þínir líta út.
Og nú veit heimurinn það.
Þetta er eitt besta framlag
skemmtunar og menningar á okkar tímum.
Gott að þú tókst eftir.
Ég vil þakka...
Það er erfitt að taka ekki eftir.
Þú gafst upp lag sem segir,
leiðréttu mig annars:
"Þetta er ekki auðvelt.
Ég verð krossfestur hvar sem ég fer."
Kjaftæði. Ég sagði þetta ekki, heldur:
"Þetta er ekki auðvelt.
Þú veist hversu erfitt þetta er.
"Eins og hlutirnir ganga
munu þeir krossfesta mig." Og þig, elskan.
Þetta er ekki lagið mitt. Þetta tjáir ekki...
Við erum saman í heiminum.
Það er satt. Við erum gift í þessum heimi.
Það er eins og að vera fastur í...
Þetta er afar vond hugsun.
Þetta getur setið í mér
og ég vakna öskrandi.
Þetta er ekki satt.
Þú segir þetta við hann, ekki mig.
Þetta er ykkar ofsóknarkennd.
Allir eru giftir...
Nei, þetta er spurning um smekk.
Hvað viltu vita?
Í textanum segirðu
að þeir ætli að krossfesta þig.
-Já, ef þú tekur það bókstaflega.
-Hvað áttu við?
-Það táknar hvað sem þú vilt.
-Hvað viltu að það tákni?
Þeir krossfesta mig og þig og alla aðra.
En þú segir: "Þeir ætla að krossfesta mig."
-Ef þú tekur þetta bókstaflega...
-Ég er þú.
Ég... Við erum öll eitt.
Þú færð ekki að tala fyrir mig.
Fyrir hvern talarðu?
Ég ákvað það, hr. Capp.
Það er of mikið frelsi...
Ég tala almennt fyrir hönd fólks,
-á ljóðrænan hátt.
-Þú talar fyrir ykkur...
Sem fulltrúi mannkyns
tala ég fyrir okkur öll
hvort sem þér líkar það eða ekki.
Ég er ekki hluti af þeim hópi
sem þú stendur fyrir.
Þú talar kannski fyrir mannkynið,
minn hópur er ekki eins loðinn.
En þú talar fyrir þinn hóp.
-Þú tilheyrir eigin hópi.
-Allir hérna inni
tilheyra mannkyni. Hver og einn.
Nei, þú talar ekki fyrir minn hóp.
Þú semur ekki lög fyrir mig.
Ég vil að það sé ljóst í Kanada.
Sérstaklega fyrir þér.
Kate Smith má syngja lögin mín.
Fyrir hvern teiknarðu?
Fyrir peninga. Rétt eins og lögin þín.
Nákvæmlega sama ástæða.
Og sama ástæðan fyrir þessu líka,
ef satt skal segja.
Heldurðu að ég geti ekki þénað
á annan hátt
en að sitja í rúminu í sjö daga
og hlusta á rugl í fólki eins og þér?
Ég gæti samið lag á klukkutíma
og þénað meira.
Ekki segja þetta.
Þú ferð í rúmið svo fólk eins og ég
komi og sjái þig.
En ekki fyrir peninga, þú ert að segja það.
Það skaðar þig ekki
fyrir utan nokkur legusár.
En ég gæti þénað fé
á auðveldari hátt en þetta.
Ég skal segja þér
hvað gæti skaðað þig. Ég.
Ég þéna meira á að teikna fólk
eins og þig en að rífast við það.
Og það er skemmtilegra að teikna það
því þá get ég kvatt.
Ég vil heldur syngja
en geri þetta af góðri ástæðu.
Þegar þú sagðir:
"Hlusta á rugl í fólki eins og þér."
Mér var boðið hingað.
Þú vissir af komu minni.
-Já.
-Það er rétt.
Við gerum þetta því ekki fyrir peninga.
-Þú gafst í skyn...
-Þú kannt ekki mannasiði.
Kannt þú mannasiði?
-Ég er gestur þinn. Og jafnvel þótt...
-Og ég er þinn.
Nei! Þetta er þitt herbergi!
Hr. Capp, má ég segja eitt?
Ég nýt allra samræðna.
Ég vil bæta því við að...
Þarftu að lifa með þessu?
Það er gott að...
lndæll náungi.
Ég skil að þú viljir frið.
Þú færð ekki mikinn frið.
Gaman að kynnast þér, frú Nu.
Þú átt að svara frú Nu...
Gaman að kynnast þér, Barabbas.
Ég er viss um að hinir þrír
mennirnir séu Englendingar.
Hvað þýðir það?
-Hugsaðu um það.
-Út með það.
Ég reyni það. Núna, Derek.
Í almáttugs bænum!
Ég læt ekki þetta fólk móðga þig.
Hættu. Við buðum honum. Hann segir satt.
Fyrirgefðu mér.
Það er ekki mitt að fyrirgefa þér,
heldur sálfræðingsins þíns.
Þú veist það er ekki auðvelt
Þú veist hversu erfitt það er
Eins og málin þróast
Munu þeir krossfesta Capp
Einn, tveir. Einn, tveir, þrír, fjórir.
Þegar John byrjaði með Yoko
sagði hann: "Yoko er núna hluti af mér.
"Með öðrum orðum, eins og ég hef hægri
og vinstri hönd, þá hef ég Yoko."
"Og þar sem ég er, þar er hún. "
Það var erfitt að eiga við þetta.
Hún birtist skyndilega í stjórnherberginu.
Enginn sagði mér neitt.
Við vorum ekki kynnt
en hún sat bara þarna
og áhrif hennar voru greinileg.
Allir voru pirraðir á því.
Þegar við komum að Let it Be
gátum við ekki tekið þátt lengur.
Við sáum í gegnum hvorn annan
og leið illa.
Fram að þessu trúðum við heitt
á það sem við vorum að gera
og dagsverki okkar. Allt varð að vera rétt.
Og við trúðum.
Skyndilega trúðum við ekki.
Mér er sama. Ég spila
það sem þú vilt að ég spili.
Eða alls ekki, ef þú vilt það.
Ég geri það sem þér þóknast.
Við gátum það því ekki lengur.
Að lokum voru töfrarnir horfnir.
Myndavélin í herberginu
gerði okkur það ljóst.
Þetta var fölsk staða
og þetta voru endalokin.
Þessi vonbrigði
ólu af sér ótrúlega hugmynd
um að halda tónleika
á þaki höfuðstöðva Apple.
Enginn okkar vissi
að þetta yrðu síðustu opinberu
tónleikar Bítlanna.
PAUL HÆTTIR Í BÍTLUNUM
Er þetta viðskiptalegur
eða tilfinningalegur skilnaður
hjá Bítlunum?
DEREK TAYLOR - Blaðafulltrúi
Líklega bæði. En þetta er skilnaður.
Hann spyr sjálfur
en veit ekki hvort þetta sé tímabundið
eða varanlegt. Það er satt.
Enginn okkar veit það.
Halda samningar hans við Apple?
Já, þeir eru samningsbundnir
og ég held að þeir vilji halda áfram.
Þeir rifust aldrei um peninga.
Hvaða persónulega ágreining
vísar hann í...
Ég veit það ekki.
Þetta snýst líklega um þroska.
Þeir voru eitt sinn bara fjórir.
Núna eru þeir giftir og með börn.
Koma einhverjir í stað Bítlanna?
-Nei.
-Nei.
Bítlarnir eru einstakir.
Það kemur enginn í staðinn.
-Hvað heillar?
-Við ólumst upp með þeim.
Þeir byrjuðu ungir og við vorum ung.
Og við þróuðumst með þeim
og uxum úr grasi.
Þeir tilheyra okkur, skilurðu?
En það kemur enginn í staðinn. Aldrei.
JESÚS DÓ FYRIR ÞIG, JOHN LENNON
Yoko, er teið ferskt?
-Já.
-Nokkuð ferskt.
Þetta er Bítlakona að laga te
fyrir einn af hinum fjórum frábæru
fyrrverandi Bítlum.
-Hinir þremur frábæru.
-Þremur frábæru.
Ég sé að Phil Bítill gerir sig að fífli.
Hittirðu aðra Bítla þessa dagana?
Ég sá Bítil. Ed Bítil.
-Ed Bítil. Hvernig hefur hann það?
-Fínt.
Hann var að fara í tónleikaferðalag.
Gengur honum illa þessa dagana?
-Í 5. sæti í Svíþjóð.
-Í Svíþjóð, ég skil.
Paul samdi lög sem voru
eins og einkaskilaboð.
Þau komu John í uppnám.
Þannig gerðist það.
Þetta var eins og svar til Paul,
frekar en skilaboð.
Allt í lagi. Hætta.
Ég samdi lagið How Do You Sleep?
á Walls and Bridges.
Ég man ekki nafnið.
Steel and Glass, sem fjallaði um nokkra.
Þá áttaði ég mig á því
að þetta var um mig.
Ekki um Paul, heldur mig.
Ég ræðst á sjálfan mig.
En ég harma tenginguna. Eða þannig.
Hann lifði þetta af.
Okkar tilfinningar skipta einar máli.
Ekki það sem höfundurinn
eða áhorfandinn hugsar.
Við erum sáttir.
Frábært.
Ég er afar upptekin eiginkona,
svo ekki sé meira sagt.
Ó, nei! Þeir verða að segja
að þetta hafi verið gabb.
Hvað?
"Rúmlega Lennons."
"Kæri, hr. Lennon. Samkvæmt
upplýsingum sem ég fékk í andaglasi
"trúi ég að það verði reynt
að ráða þig af dögum.
"Andinn sem hafði samband
var Brian Epstein.
"Hann sagði árásina verða gerða 6. mars...
"Hr. Epstein sagði einnig
að Paul McCartney væri á lífi í London."
LENNON SKILAR SÍNU
"Lennon lítilsvirðir ekki drottninguna
með því að skila orðunni.
"Honum er skítsama
"um viðhorf til Biafra eða Víetnam.
"Eða í hvaða sæti plötur hans
eru á vinsældarlistunum.
"Hann gerir sig að fífli."
-Hann beið í marga tíma.
-Manstu eftir mér?
Ef ég á að komast á forsíðuna
geri ég það með orðinu "friður".
En þú ert fáránlegur.
Í augum sumra. Mér er sama...
-Þú ert of góður fyrir þetta.
-Ef það bjargar lífum...
GLORIA EMERSON
Blaðamaður N.Y. Times
Þú heldur ekki... Þú lifir í draumaheimi.
-Þú talaðir við...
-Telur þú þig hafa bjargað lífum?
Hvað veistu um mótmæli?
Ég veit margt um þau.
Þau eru meira en bara
að senda bílstjórann í bílnum þínum
aftur til Buckingham-hallar.
Þú ert snobb! Eina leiðin til að...
Þú ert falskur!
Geturðu ekki fórnað einhverju
sem hefur meira vægi?
Orðan var engin fórn,
hún var til skammar...
Hverju mótmæltirðu?
-Þú sagðir að ég vissi ekki...
-Þetta er auglýsing fyrir frið.
-Skilurðu það?
-Nei.
-Stór friðarauglýsing.
-Þetta er klúrt og sjálfshyglandi.
Auglýsirðu John Lennon eða frið?
Viltu miðstéttartákn um frið?
Vitrænar stefnuyfirlýsingar
skrifaðar af misheppnuðum fræðimönnum?
Enginn les þær.
Það er vandinn við friðarhreyfinguna.
Ég dáðist afar mikið af þér.
Leitt að þér líkaði klippingin, ljúfan,
og þér fannst ég vera hæðinn og fyndinn.
Og þér líkaði Hard Day's Night
en ég hef þroskast.
-En það hefur þú ekki gert.
-Er það?
Já.
STRÍÐINU LOKIÐ! EF ÞIÐ VILJIÐ
Gleðileg jól frá John & Yoko
John Lennon
frestaði friðarherferð sinni í dag
til að ræða opinskátt um eiturlyf.
Það er ekki gott að prédika og segja:
"Ekki nota þau." Það virkar ekki.
Það er eins og ef kirkjan
bannaði þér að drekka og sofa hjá
sem krakki. Það gerir það ekkert.
En ef fólk tekur eftir því sem við segjum,
við höfum lifað í dópheiminum
og það jafnast ekkert á við það
að vera edrú.
En þú þarft von og von er eitthvað
sem þú byggir með sjálfum þér.
Lundúnarlögreglan gerði fjöldamargar
erótískar myndir upptækar
eftir popparann og listamanninn
John Lennon.
Héraðsdómstóll mun úrskurða
hvort þetta sé klámfengin list
eða hvort sýna megi hana almenningi.
Ég hef rætt teikningar mínar við Yoko.
Hún sannfærði mig um það
að allt sem ég teiknaði eða skrifaði
væri mikilvæg tjáningarleið.
Ég ætti ekki að bara að sýna vinum.
Ég ætti að leggja allt á borðið.
Þegar við bjuggum í New York
tók hann eftir líkindunum við Liverpool.
Bryggjurnar.
Ég sagði: "Þetta er eins og að fara aftur
til Liverpool. Þetta er stór Liverpool."
Ég hef hitt marga borgarbúa sem kvarta
en enginn flytur.
Þetta er besti staðurinn í heimi.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Skjöl sem birt voru í dag
sanna að viðamikil rannsókn FBl
frá því snemma á 8. áratugnum
var hluti af tilraun stjórnvalda
til að vísa John Lennon úr landi.
Lennon berst fyrir veru sinni í BNA
Er enginn möguleiki á því
að stjórnvöld reyni
að ofsækja Lennon-hjónin?
Alls ekki. Svona meðferð
fá allir þeir sem sakfelldir
hafa verið vegna eiturlyfja.
Í upphafi var ég eltur á bíl.
Síminn minn var hleraður.
Og fólk taldi mig þá vera bilaðan.
Meira þá en núna.
"Lennon, vitleysingurinn þinn,
hver á að elta þig?
"Hvað vilja þeir?"
Ég segi þetta. Hvað vilja þeir? Ég ætla ekki
að valda þeim vandræðum.
ELLIOT MINTZ - Fréttamaður
Hvar sem John fór spurði fólk hann
hvort Bítlarnir myndu taka upp þráðinn.
Og þótt við værum vinir
bar mér skylda sem fréttamanni
að spyrja spurningarinnar.
Taka þeir upp þráðinn?
Það er möguleiki. Ég veit ekki af hverju
en það er möguleiki.
-Viltu að það gerist?
-Ég mun njóta þess þá.
Viltu hafa frumkvæðið?
Ég veit ekki, Elliot. Þú þekkir mig,
ég nota innsæið.
Ef ég fæ þessa hugmynd á morgun
gæti ég hringt og sagt: "Gerum eitthvað."
Ég get ekkert sagt.
Það gerist ef það gerist.
Þú útilokar það þá ekki?
Nei. Minningar mínar eru ljúfar
og sárin eru gróin.
Við gerum það ef það gerist.
Þá tö*** við upp. Ég veit það ekki.
Svo fremi sem við semjum tónlist.
Fólk hefur safnast saman í allan dag
til að sjá John Lennon syngja
hér í kvöld á góðgerðartónleikum.
John hefur vart sést á sviði
síðan Bítlarnir hættu fyrir sex árum.
Dömur og herrar, John Lennon!
Ég var þarna farinn að átta mig á því
að heimurinn vildi ekki
að við ynnum saman.
Þetta var árið 1973.
Mig langaði að segja við John:
"Viltu ekki fara til L.A. og skemmta þér?
"Láttu mig vera."
Ég vildi hugsa rökrétt
því ég gat það ekki lengur.
Hún bókstaflega kastaði mér á dyr.
Ég sagði: "Allt í lagi, ég fer."
Ég hafði verið giftur á undan Yoko
og ég giftist henni um leið
þannig að ég var piparsveinn
síðast um tvítugt.
Ég hugsaði mér mér: "Jibbí!"
Týnda helgin samanstóð
af ótrúlegum veisluhöldum...
fíflalegum uppákomum,
og, að ég held, síðustu tilraun Johns
til að sýna manndóm sinn.
Þetta var fráhvarf hans
frá sakleysi og æsku
og hann vildi verða alvarlegur maður,
vera með Yoko og eiga barn.
Og þetta er... Sumir halda steggjapartý.
John átti týnda helgi
sem entist í 14 mánuði eða um það bil.
Það varð einhver að vera með John
og ungfrú Pang virtist rökrétt val.
John verður ekkert úr verki
nema að hafa einhvern hjá sér.
Og Yoko stakk upp á því
að hún yrði frábær félagsskapur
fyrir John í þessari sendiför.
Týnda helgin sem allir tala um
var ekki svo týnd.
Fólk sá meira af John
en það hafði lengi gert.
Og hann var á útopnu.
Hann hafði tekið upp nokkrar plötur,
Mind Games, Rock 'n'Roll
og Walles and Bridges.
Og hann vann með Ringo að plötunni.
Þarna var líka David Bowie
en þeir unnu saman
að fyrsta lagi David Bowies
sem varð frægt, Fame.
Einnig Elton John þegar við gerðum
Caribou. Það gekk mikið á.
Við skemmtum okkur vel.
Keith Moon, Harry, ég og Ringo
bjuggum saman í húsinu.
Það voru stundir.
En þetta varð nokkuð villt.
Ég drakk eins og 18 eða 19 ára
og lét eins og ég væri enn í menntó.
Það eina hræðilega
sem ég get sagt um John Lennon
er að hann drakk illa.
Hann gat ekki hætt ef hann byrjaði.
Tvær blöndur og hann var heillandi,
sagði gamlar sögur,
var fyndinn og yndislegur.
Á þeirri þriðju
byrjaði hann að urra
og varð síðan óviðráðanlegur
Þetta var fyrsta kvöldið
sem ég drakk Brandy Alexander
sem er koníak og mjólk.
Ég var með Harry Nilsson
sem var ekki eins þekktur og ég.
Þeir sögðu bara: "Allt í lagi,
"þú ættir að fara, hr. Lennon."
Þeir fóru síðan með mig út.
Það voru mistök, ég er mannlegur.
Ég var fullur í Liverpool
og rústaði símklefum,
það rataði ekki í blöðin þá.
Fred Astaire og Ginger Beer!
Dansinum er lokið.
-Við erum búin með dansinn.
-Gerum auglýsinguna núna.
Ég geri myndirnar upptækar
þar til ég fæ græna kortið.
Ég var stjórnlaus
og enginn hafði auga með mér.
Ég þurfti einhvern til að elska mig.
Það var enginn til að styðja mig
og ég brotnaði niður.
Það versta var aðskilaðurinn við Yoko
og það að ég þurfti að vera með henni
og vildi vera með henni
og gæti ekki lifað án hennar.
Sean fæddist 9. október,
eins og ég, við erum næstum tvíburar.
Það er gaman að hanga heima.
Ég var alltaf heimakær.
Ég held að margir tónlistarmenn séu það.
Ég hef lokað mig svo af heima
og algjörlega breytt um hugsunargang
að ég hugsaði ekkert um tónlist.
Gítarinn hékk bak við rúmið mitt.
Ég tók hann ekki niður í fimm ár.
Sú staðreynd að faðir minn...
hætti nánast allri tónlistargerð
til að ala mig upp.
Mér líður vel að vita það.
Hann spilaði fyrir mig heima.
Ég áttaði mig ekki á því að hann væri Bítill
fyrr en ég sá Yellow Submarine.
Þá setti ég hlutina í samhengi.
Ég spurði um þetta. Hann sagði:
"Já, þetta eru Bítlarnir.
"Ég var Bítill, en þetta er búið núna."
"Þessu er lokið
og ég eyði tímanum með þér."
Hvað finnst þér skemmtilegast við sirkus?
Trúðarnir og smáhundarnir.
Myndirðu gefa allt upp á bátinn
og ganga í sirkus?
Ég hef þegar gert það
en veit ekki hvert ég stefni.
Heilsaðu.
Við borðum hádegismat á sunnudegi
þann 12. apríl.
Halló, við borðum í sjónvarpinu!
Ég tók stressköst yfir því
að ná ekki á vinsældarlistann
eða að hafa sést á Studio 54
með Mick og Biöncu.
Ég var ekki lengur til.
Ég vissi að það var líf fyrir utan það.
Ég hugsaði með mér:
"Þetta minnir mig á það þegar ég var 15."
"Ég varð ekki að semja 15 ára,
ég gerði það því mig langaði."
Þá gat ég skyndilega
gert það aftur auðveldlega.
Ég samdi öll lögin á Double Fantasy
á þremur vikum.
Meðan ég söng og samdi
og vann með henni
reyndi ég að sjá fyrir mér
fólk á mínum aldri.
Ég söng fyrir það. Ég sagði:
"Hér er ég. Hvar eruð þið?
"Hvernig gengur sambandið?
"Komstu í gegnum það allt?
"Var 8. áratugurinn ekki leiðinlegur?"
"Hér erum við.
Höfum 9. áratuginn skemmtilegan."
-Fæ ég áritun, John Lennon?
-Já.
Ég verð að fá að heilsa!
Ég trúi ekki að ég hafi hitt þig.
Ég sver það.
Hvenær spila Bítlarnir aftur?
Á morgun.
Þú ert að ljúga. Hvenær spilið þið aftur?
Ég dýrka plötuna þína. Bláu plötuna.
-Hver er þetta?
-John Lennon, úr Bítlunum.
Ég trúi því ekki.
Við höfum stjórnina. Ég trúi enn á ást,
frið, á jákvæða hugsun.
Líf boðar von.
Ég sá alltaf vinnu mína
sem eitt heildstætt verk
og ég held að því verki verði ekki lokið
fyrr en ég er dáinn og grafinn.
Vonandi er langt í það.
Fyrirboðarnir voru margir
þegar litið er um öxl.
En ég hafði miklar áhyggjur af honum.
Og,
ég sagði við John:
"Þetta er of mikið annríki.
"Þetta er byrði á okkur.
"Dagskráin er of þéttskipuð
og þú þarft hvíld.
"Þú og Sean ættuð að fara til Bermúda."
Og
hann sagði: "Ekki núna.
"Ég ætla að vera með þér,
hvað sem öllu líður."
Og,
þannig var þetta.
John Lennon var skotinn í gær fyrir framan
íbúðabyggingu sína í New York...
Íbúar segja mann um fertugt
hafa beðið tímunum saman...
Hann lést á gjörgæsludeild
Roosevelt-spítala...
...eitt sinn kallaður verndarengill Bítlanna,
lést í kvöld fertugur að aldri.
AF HVERJU?
VIL ELSKUM ENN JOHN
MUNIÐ ÁSTINA JOHN LENNON 1980
AÐ EILÍFU
Það var enginn
veggur á milli okkar lengur.
Það var alltaf eitthvað á milli okkar
en svo var ekki lengur.
Við gátum raunverulega...
"Hæ, pabbi, ég vil hitta þig.
Er það í lagi?" "Já."
Það er erfitt að skýra tilfinningar,
að kljást við
þessar aðstæður,
sérstaklega þegar við vorum
að verða svo nánir.
Tónlist hans
mun lifa að eilífu í hjarta mínu
og í hjörtum svo margra.
Vegna þess hversu viðkvæm hún var.
Hún sýndi viðkvæman mann
sem þótti vænt um fólk
og kunni að tjá sig svo vel.
Fyrstu árin eftir dauða hans
grét ég þegar ég heyrði tónlistina.
En ég komst yfir það.
Ég sakna mest nærveru hans,
þess sem við gerðum saman,
samræðnanna.
Hann reyndi að kenna mér á gítar.
Það gekk ekki.
Ég þarfnaðist bara nærveru hans.
Hann var eiginmaður minn, elskhugi.
Hann var vinur minn.
Hann var félagi minn.
Og
hann var gamall hermaður
sem barðist með mér.
ÞETTA ER EKKI HÉR
Framleiðendurnir vilja þakka
öllum kvikmyndagerðarmönnunum...
sem áttu hér hlut að máli.