Tip:
Highlight text to annotate it
X
Því ekki að kalla tímabilið
Stóra hroll eða Bitru öldina?
Ég meina bara,
hvernig vitum við að það er ísöld?
Útaf öllum ísnum.
Hlutirnir kólnuðu bara smá.
Hjálp.
Svona, krakkar, áfram. Umferðin gengur.
Já en, pabbi.
Ekkert en. Leikið útrýmingu seinna.
Allt í lagi. Áfram, krakkar.
Jæja, hvar er Eddie?
Hann sagðist vera á barmi
tímamótaskrefs í þróunarkenningu.
Í alvöru?
Ég flýg.
Þvílíkt tímamótaskref.
- Varaðu þig.
- Þú ert að fara í vitlausa átt.
Klikkaði mammút.
Gerðu heiminum greiða.
Færðu málin þín af veginum.
Ef ég væri með svo stuttan rana,
myndi ég ekki draga athygli að mér, vinur.
Gefðu mér tækifæri.
Við höfum kjagað áfram í allan dag.
Gjörðu svo vel, fylgdu fjöldanum.
Það verður hljóðlátara þegar þú ferð.
Komum. Ef hann vill
frjósa í hel, er það hans mál.
Ég er vaknaður.
Komið á fætur, allir saman.
Zak? Marshall?
Bertie? Sveppur frændi?
Hvar eru allir? Svona, strákar,
við missum af búferlaflutningunum.
Þeir hafa farið án mín.
Þeir gera þetta á hverju ári.
Af hverju? Elskar mig enginn?
Þykir engum
vænt um Sid letidýr?
Allt í lagi, ég fer þá bara aleinn.
Ógeðslegt.
Breiði búkur, haltu þér næst í skefjum.
Ó, nei. Oj bara.
Ég trúi þessu ekki. Fersk villtjurt.
Frank, hvar gastu fundið...?
- Gjörðu svo vel. Fáðu þér.
- Fífill.
- Ég hélt að frostið hefði gengið frá þeim.
- Öllum nema einum.
Það gerir mig svo... Mig langar að... Oj.
Þetta hefur sko ekki verið minn dagur.
veistu hvað ég á við, félagi?
En það sull. Nashyrningar
eru með pínulitla heila. Vissirðu það?
Bara staðreynd. Engin móðgun. Þú fattaðir
líklega ekki hvað ég er að tala um.
Namm.
Fífill. Hlýtur að vera
sá síðasti í ár.
- Carl.
- Rólegur, Frank.
Hann skemmdi salatið okkar.
Mín mistök.
Þetta voru mín mistök. Láttu mig...
Í alvöru, láttu mig sjá um þetta.
Hvað er þetta?
Könglar. Ó, hamingjan sanna.
Þeir eru uppáhaldið mitt.
Ljúffengur. Þvílík máltíð.
En látið mig ekki einoka þá alla.
Hérna, fáðu þér líka.
Bragðgóðir, eða hvað. Gjörið svo vel.
Nú?
- Láttu bara eins og ég sé ekki hér.
- Ég vildi hæfa hann á fullri ferð.
- Það er fínt. Skemmtum okkur með hann.
- Láttu þá ekki reka mig í gegn. Ég vil lifa.
- Farðu af mér.
- Svona nú, þú ert bara með uppsteyt.
Við tö*** bara loðnu lostætiskörfuna
okkar og förum.
Ef ekki þeir í dag,
þá einhver annar á morgun.
Ég vil frekar að það sé ekki í dag, ókei?
Við skulum hálsbrjóta þig
svo þú finnir ekki neitt.
Augnablik. Ég hélt að
nashyrningar væru grænmetisætur.
- Frábær ábending.
- Þegiðu.
Hver segir við ætlum
að borða hann eftir að við drepum hann?
Ég kann ekki við dýr
sem drepa sér til skemmtunar.
- Segðu þetta hlutdrægu spendýri
- Ég er hlutdrægt spendýr.
Ókei, ef annar ykkar getur komist yfir
pyttinn fyrir framan ykkur, fáiði letidýrið.
Einmitt, aumingjarnir ykkar.
Takið eitt skref og drepist.
- Varstu að blekkja þá, ha?
- Þetta var blekking.
Náðu honum.
Fífill?
Við gátum þetta.
- Þú ert með svo falleg augu.
- Farðu af andlitinu á mér.
Úpps, við erum stórfínt gengi.
Hvað segirðu um að halda suður saman?
Endilega.
Hoppaðu upp og slakaðu alveg á.
Vá, í alvörunni?
Bíddu, ætlarðu ekki suður?
Árstíðaskiptin, flutninga eðlishvötin.
- Hringir þetta bjöllu?
- Það held ég ekki. Bless.
Ókei. Takk fyrir hjálpina.
Nú get ég séð um þetta.
Bragðarefurinn þinn.
Bíddu þangað til við komumst niður.
Að halda suður er ofmetið.
Hitinn, múgurinn - til hvers?
Er þetta ekki fínt? Þú og ég,
tveir piparsveinar á ferð í óbyggðum.
Þig langar bara í lífvörð
svo þú verðir ekki aukaréttur einhvers.
Þú ert svo klókt spendýr.
Ókei, vísaðu veginn hr. Mikill...
Hvað var nafnið.
- Manfred.
- Oj.
Hvað með Manny fúli mammút?
Eða Manny Minna-má-nú-sjá... Manny hinn...
Hættu að elta mig.
Ókei, svo þetta er vandamál. Þú munt
ekki vita af mér. Ég skrúfa bara fyrir talið.
Sjáðu litla sæta barnið, Diego.
- Er ekki indælt að hann verði hjá okkur í
morgunmat? - Hann erjú morgunmaturinn.
Einkum þar sem pabbi hans felldi hálfa
hjörðina okkar, og gengur svo í skinnunum.
Auga fyrir auga, heldurðu það ekki?
Sýnum honum hvað gerist
þegar hann káfar upp á sverðketti.
Gerðu flokkana viðbúna.
Við gerum árás í dögun.
Og færðu mér barnið á lífi.
Ef ég á að njóta hefndar minnar,
vil ég að hún sé fersk.
Ég er búinn að vera.
- Er þetta skýlið þitt?
- Þú ert stór. Þú ert með mikinn við.
- Ég er lítill.
- Þú ert með hálfa spýtu.
En með litlu spýtunni minni
og háþróuðum heila mun ég framkalla eld.
Heillandi.
Við munum sjá hvort hugvit
nær ekki að sigra líkamsafl í kvöld?
Hélt ég hefði séð neista.
Einhver möguleiki á að smjúga
inn með þér, Manny, gamli vin?
Er ekki einhver annar sem þú getur pirrað?
Vinir? Fjölskylda? Eitruð skriðdýr?
Fjölskyldan yfirgaf mig.
Þeir sko eiginlega fluttu án mín.
Þú sást ekki hvað þeir gerðu síðasta ár.
Þeir vöknuðu snemma
og bundu útlimi mína.
og kefluðu mig með hagamús,
földu sporin sín, ferðuðust
á vatni svo ég fyndi ekki lyktina,
og... hver þarfnast þeirra, hvort sem er?
Hvað með þig? Áttu fjölskyldu?
Þú ert þreyttur. Ég skil.
Við tölum saman á morgun.
Manfred? Gætirðu fært þig aðeins til hliðar?
Gerðu það. Enginn sofnar svona hratt.
Þarna er Diego. Hörfum aftur.
- Hvar er barnið?
- Ég missti af því niður í fossana.
Þú misstir af því?
- Ég vil fá þetta barn.
- Ég skal ná því.
Eins gott, nema að þú
viljir koma í staðinn fyrir það.
Við förum upp að Hálfahnjúki.
Hittu okkur þar.
Það er eins gott að það sé á lífi.
Getum við treyst þér fyrir þessu?
Komum okkur.
Hún tekur hár af öxlinni á mér og segir,
''Ef þú dansar auka pörunardans,
veldu þá kvendýr
með sama feld-lit og þú.''
Ég hélt að næst myndi hún
leita að skordýrum á mér.
Ef þú finnur maka, áttu að vera trúr.
Í þínu tilfelli, þakklátur.
- Í burtu með þig nú.
- Mér finnst lífstíðar-mökun heimskuleg.
Það er nóg eftir af Sid fyrir fleiri.
Sjáðu þetta. Það er í lagi með hann.
Hún er farin.
Ertu ekki að gleyma einhverju?
- En þú varst að bjarga honum.
- Ég er enn ekki laus við síðustu björgun.
En þú getur ekki skilið hann eftir hér.
Sjáðu, þarna er reykur.
Þetta er hjörðin hans uppi á hæðinni.
- Við ættum að skila honum.
- Fáum eitt á hreint. Hér eru engir ''við''.
''Við'' vorum aldrei í gangi. Reyndar
væri enginn ''þú'' til ef ekki væri fyrir mig.
- Bara upp hæðina.
- Hlustaðu vandlega. Ég ætla ekki að fara.
- Jæja þá, vertu fífl. Ég skal sjá um hann.
- Það er gott.
Þú sem getur ekki séð um sjálfan þig.
Þetta verð ég að sjá.
Ég skal skila þér. Við þörfnumst
ekki þessa lúalega mammúts, eða hvað?
Ónei.
Þú ert skömm fyrir móður náttúru.
Veistu það?
Ekkert mál. Þetta er fínt.
Ég mun deyja.
- Þessi bleiki hlutur er minn.
- Reyndar tilheyrir hann okkur.
''Okkur''? Þið tveir eruð frekar skrýtið par.
Það eru engir ''við''.
Ég skil. Getið ekki eignast eigið,
svo þið viljið ættleiða.
Mér þykir leitt að trufla
þetta mas, en við verðum að fara.
Barnið? Takk.
Ég var að skila honum í hjörðina sína.
Góð tilraun, skögultanni.
- Kallarðu mig lygara?
- Nei.
Þú varst að hugsa það.
Ég kann ekki við þennan kött.
Hann er huglesari.
- Ég heiti Diego, vinur.
- Manfred, og ég er ekki vinur þinn.
Fínt. Ef þú ert að leita mannanna,
eyðirðu tímanum til einskis. Þeir eru farnir.
Takk fyrir ráðlegginguna. Hypjaðu þig nú.
Ég skal hjálpa þér að skila því
til hjarðarinnar, en láttu mig svo vera.
- Ókei, samþykkt. Hvað er vandamálið?
- Þú ert vandamálið.
Þú ert stressaður, og borðar því of mikið.
Það er erfitt að verða feit grænmetisæta.
Ég er ekki feitur. Feldurinn er svo mikill.
Hann gerir mig búttaðan að sjá.
Ókei, þú ert með feitt hár.
Þegar þú vilt tala, verð ég til reiðu.
Hvað ertu að gera? Skildu það eftir á syllunni.
- Við ættum að tryggja að þau finni hann.
- Góð hugmynd.
Bíddu.
Ekki, hlífðu mér.
- Þetta er vandamál.
- Hvað nú?
Þetta er meiriháttar.
- Ég sagði ykkur þau væru farin.
- Sjáðu hver er hér.
Þarftu ekki að slægja
eitthvert aumingjans dýr?
Þau hafa varla farið langt.
Þessa leið, eða þessa leið?
Þú veist ekki mikið
um að rekja slóð, er það?
Ég er letidýr. Ég sé tré,
borða lauf. Þannig rek ég slóð.
Þið voruð bara aðeins of seinir.
Viðurinn er enn grænn.
Þau héldu norður fyrir tveimur tímum.
Hann verður þér bara skapraun.
Gefðu mér barnið. Ég get rakið
slóð mannfólks miklu hraðar en þú.
Og þú ert bara
góður meðborgari að hjálpa til?
- Ég veit bara hvert mannfólkið er á leiðinni.
- Jökulskarð.
Allir vita að þau
hafa þorp hinu megin.
Ef þú kannt ekki að rekja slóð, nærðu
þeim aldrei áður en snjórinn lokar leiðinni.
Sem verður líklega á morgun.
Þannig að annaðhvort gefurðu mér barnið,
eða ferð og villist í blindhríð. Valið er þitt.
Hér er litli gleðigjafinn þinn.
Við skilum honum til mannfólksins.
Stóri, vondi, tígri-vígri
er skilinn eftir. Aumingja tígri-vígri.
Sid, tígri-vígri ætlar að vísa veginn.
Má ég aðeins tala við þig?
Því fyrr sem við finnum fólkið,
losna ég við herra Fýlu slef-smetti,
og barnið líka.
Júmbó verður ekki alltaf
með þér til að vernda þig.
Og þegar sá dagur kemur, legg ég til þú hafir
auga með bakinu þínu, því ég skal éta það.
Hr. Ofurslóð.
Komdu fremst, þar sem ég sé þig.
Hjálp.
Þú verður að láta það hætta.
Ég þoli þetta ekki lengur.
- Ég hef étið verur sem kvörtuðu minna.
- Hann engist allur sundur og saman.
- Passaðu hausinn.
- Settu það niður.
Erðanú, ''taktu það upp, settu það niður...''
- Nefið er þurrt.
- Sem þýðir að eitthvað er að því.
- Einhver ætti að sleikja hann.
- Ég skal gera það.
- Hann er í svona barnadóti.
- Og hvað?
Ef hann poppar, hvert fer það þá?
- Menn er ógeðslegir.
- Jæja þá, þú. Gáðu að poppun.
- Af hverju er ég poppunar-prófari?
- Þú vildir skila honum,
þú ert smár og lítilfjörlegur,
og ég kýli þig ef þú gerir það ekki.
- Eitthvað fleira?
- Núna, Sid.
Ég meina, hamingjan sanna.
Varúð. Á leið í gegn.
- Varið ykkur.
- Viltu hætta að veifa þessu dóti.
Ég renn.
Það er hreint. Gabbaði þig.
Viltu hætta þessu?
Gerðu þetta aftur. Honum líkar það.
Mér líður líka betur af því.
Hérna, haltu á því.
Snúðu honum til mín.
Hvar er barnið?
Hér er það.
Hættu þessu. Þú hræðir hann.
- Hann er líklega svangur.
- Hvað með smá mjólk?
- Það væri indælt.
- Ekki þú. Barnið.
Ég er ekki beint á mjólkunarstigi núna, vinur.
- Þú ert of neðarlega í fæðukeðjunni...
- Nóg komið.
Matur.
Ég veit ei, en hef heyrt sagt
við heimsendi sé afar svalt.
Undirbúið ykkur fyrir Ísöld.
Verndið lífsmáta dúdúfugla.
Að komast lífs af
aðgreinir dúdúa frá skepnum.
- Ísöld?
- Ég hef heyrt um þessa rugludalla.
- Boðflennur.
- Ekki detta ofan í.
- Ef það gerist, munið þið örugglega...
- Boðflennur.
..brenna og deyja.
Megum við fá melónuna aftur?
Sá litli er svangur og...
Nehei. Þetta er
einka-forðinn okkar fyrir Ísöldina.
Heimskauts-hitastig mun
neyða okkur ofan íjörðina í milljarð ár.
Og forðinn ykkar er þrjár melónur?
Ef þið eruð of heimskir til að plana fram á við,
eruð þið dauðadæmdir.
Burtu með þig.
Náið melónunni aftur.
Allir sem einn, árás.
Melónan.
Þarna fór síðasti kvenfuglinn.
- Náði henni.
- Náði henni ekki.
Síðasta melónan.
Nú verðum við að finna meiri mat.
Einmitt, lengra til hægri.
- Sjáið þetta. Málsverður og skemmtun.
- Vinstri.
Nú er að finna máltíð
sem samsvarar sigursælli hetju.
En ó? Óvinur?
Svona nú. Þorirðu í mig?
Leyfar verðugar svo göfugrar...
Háttatími, krakkakríli.
Hin sigursæla endurkoma.
Já, það.
Ég er svo saddur. Hvað með
góða-nótt koss fyrir stóra vin þinn, Sid?
- Hann er sofandi.
- Ég var að tala við þig.
Þá það, ég ætla að koma mér fyrir.
Allt í lagi, góða nótt.
Viltu hætta þessu?
Allt í lagi. Ég var að reyna að slaka á.
Hey.
- Hvert þó í...?
- Rífðu mig á hol. Það verður þitt síðasta verk.
- Ég er hér að vinna, þú sóun á feldi.
- Ergilegur, Diego?
Er of erfitt
að eltast við hjálparvana smábörn?
- Hvað eruð þið tveir að vilja hér?
- Soto er að verða þreyttur á að bíða.
Hann sagði ''Komdu aftur með barnið,
eða slepptu því að koma aftur.''
Ég er með skilaboð til Soto.
Segið honum að ég komi með barnið.
Og segið honum að ég komi með mammút.
- Mammút?
- Mammútar ferðast aldrei einir.
Þessi gerir það,
og ég er að leiða hann að Hálfahnjúki.
Sjáið allt þetta kjöt. Náum honum.
Ekki strax. Við þurfum allan flokkinn
til að fella þennan mammút.
Gerið alla viðbúna.
Nú.
- Hvar er barnið?
- Týndirðu því?
Það er svo ljótt. Hreinlega aðdáunarvert.
Hæ, krútt. Hæ, litli skallakútur.
- Hvar fannstu það?
- Aumingja barnið, aleitt í óbyggðunum.
Sverðkettir voru að umkringja hann.
- Svo ég þreif hann bara.
- Svo hugrakkur.
Hann þarfnaðist mín,
og ég vildi óska að ég ætti líka mitt eigið.
Í alvöru? Þessu hrífst ég af hjá karldýri.
En ó. Hver myndi ekki vilja
eiga fjölskyldu, segi ég ætíð.
- Hvar hefurðu haldið þig?
- Veistu...
Sætt barn, ekki satt? Eins og ég segi, dömur...
Hvað er eiginlega að þér?
Afsakið, dömur. Haldið áfram
að marínerast og ég kem strax aftur.
Kynþokkafullar.
Hann er ekki mikill að sjá,
en fjölskyldu-gaurar eru vandfundnir.
Segjum tvær.
Þeir viðkvæmu eru alltaf étnir.
Gerðu það, ég bið þig. Ég þarfnast hans.
- Myndarlegur gaur eins og þú?
- Þetta segirðu, en meinar ekki.
Í alvöru. Sjá þig bara.
Þessar dömur, þær eiga enga möguleika.
- Þú hefur grimmilega kímnigáfu.
- Láttu mig ekki vera fyrir þér.
- Takk. Þú ert sannur félagi.
- Án litla Bleiks.
Ég þarfnast hans.
Jæja, dömur, hvar vorum við?
- Carl.
- Rólegur, Frank.
Snoturt skott á leið hjá, og hann
breytist í villidýr. Og tígurinn...
Einmitt, hr. Ofurslóð.
Getur ekki einu sinni fundið letidýr.
Hver er ég? Ljósmóðirin?
Hvað ertu að glápa á, beinapoki?
Sjá þig. Þú átt eftir að
verða stórkostlegt rándýr.
Eða þannig. Hvað hefurðu til að bera?
Þú ert með litla feldpjötlu.
Engar vígtennur, engar klær.
Bara lög af húð pökkuð í mauk.
Hvað er svona ógnandi við þig?
Virðist þér þetta
vera gæludýragarður? Ha?
Allt í lagi, klári gaur.
Þú átt skilið að fá hvíld.
Finnst þér þetta fyndið? Hvað um þetta?
Þú verður létt máltíð fyrir uglurnar.
þú ert hugrakkt lítið kríli.
Það má nú segja.
Þökk sé hamingjunni.
Tígur.
Hjálp.
- Hvar er barnið?
- Manfred er með hann.
Settu mig bara upp í þig.
Svona nú. Flýttu þér. Hann náði mér.
Hjálp.
- Burtu með þig.
- Hann fór þessa leið.
Þarna.
Tígurinn náði honum á undan okkur.
Bíddu hægur.
Hann er vissulega dauður.
Kjötætur fá alla skemmtunina.
Jeminn, mér finnst leitt að valda þeim
vonbrigðum. En þú veist hvernig þetta er.
Allt í lagi, takk. Þú mátt setja mig niður núna.
Strákar, ég hélt okkur lægi á.
Diego, spýttu þessu út úr þér.
Þú veist ekki hvar það hefur verið.
Vá. Eina örskotsstund,
hélt ég að þú myndir éta mig.
- Ég borða ekki ruslfæði.
- Hélt að þú myndir...
Ég hélt að þú myndir... ætlaðirðu það?
Svona, bíðið aðeins.
Getið þið beðið aðeins, takk?
Strákar.
Takk fyrir að bíða.
Þrír, tveir, einn...
Hann er trúr sem Strokkur.
- Hættu þessum látum.
- Hann byrjaði.
Mér er sama hver byrjaði. Ég mun ljúka því.
Nútíma byggingarlist. Hún endist aldrei.
- Þú ert villtur.
- Ég veit nákvæmlega hvar við erum.
Spyrðu hann til vegar.
- Ég þarf þess ekki.
- Fínt, ég skal spyrja hann.
Félagi. Hefurðu séð mannfólk fara hér hjá?
Ég dýrka þennan leik. Ókei.
Þrjú orð. Fyrsta orð. ***. Nei. Traðk.
Láttu mig reyna. Hrúga.
Góður. Hrúga af löngum tönnum og klóm.
Hrúga af úlfum? Hrúga af...
Hrúga af björnum? Hrúga af flóm?
Veiðihárum? Hrúga af nefjum?
- Skrápdýrum?
- Hrúga af tómum lygum.
Vandamálahrúga. Hrúga af höggum.
Hrúga af fuglum.
Hrúga af fljúgandi fiskum.
Frábærar fréttir. Ég fann styttri leið.
- Hvað áttu við?
- Ég á við styttri en lengri leiðina í kring.
Ég veit hvað styttri leið þýðir.
Annaðhvort náum við þeim við Jökulskarð,
eða tö*** lengri leiðina og missum af þeim.
Þarna í gegn? Hvað heldurðu að ég sé?
Á þessum tíma á morgun,
gætirðu verið frjáls mammút.
Eða barnfóstra. Ég þreytist aldrei á feluleik.
Strákar. Takið eftir þessu.
Tígurinn fann styttri leið.
Nei takk. Ég vel lífið.
Þá legg ég til að þú takir styttri leiðina.
- Ertu að hóta mér?
- Hreyfðu þig, letidýr.
Vel gert, tígur.
Fljótir. lnn.
Ókei, ég kýs styttri leiðina.
Strákar, höldum saman.
Það er auðvelt að villast hér inni.
Strákar?
Fiskur.
Viltu halda hópinn, takk?
Það er nóg að þurfa að passa eitt barn.
Náði þér.
Foringi, ísjaki framundan.
Hver er til í næstu umferð?
Segðu stráknum að vera gætnari.
Sjáðu. Tígrar.
Allt er í lagi. Sjáðu, tígrarnir
eru bara í eltingaleik við antilópurnar.
- Með tönnunum.
- Komdu, förum í eltingaleik.
Þú ert hann.
Einmitt. Jæja, hvar eru letidýrin?
Letidýr sjást aldrei.
Hefurðu tekið eftir því?
- Sjáðu, mammút.
- Einhver hefur nappað mér.
Þessi feiti lítur alveg eins út og þú.
Og hann á fjölskyldu.
Hann er hamingjusamur.
Sjáið, hann leikur við ungann sinn.
Skilurðu? Þetta er þitt vandamál.
Þetta er það sem mammútar eiga að gera.
Finna kvenkyns mammút, eignast börn...
- Hvað?
- Þegiðu.
En...
Viltu sjá þetta.
Tígrinum tókst það. Þarna er Hálfihnjúkur.
Næsta stöð, Jökulskarð.
- Hvernig gat ég efast um þig?
- Heyrðirðu það, litli gutti?
Þú ert næstum kominn heim.
- Sveittir fætur.
- Þurfum við fréttatilkynningu
- þegar líkami þinn gerir eitthvað?
- Leiddu hann hjá þér.
Í alvöru. Fæturnir mínir eru mjög heitir.
Segðu að þetta hafi verið maginn í þér.
Ég er viss um að þetta var bara þruma.
Upp úrjörðinni?
Áfram, haltu í við mig.
Ég gerði það ef þú hreyfðist.
- Ég vildi óska ég gæti stokkið svona.
- Óskin er uppfyllt.
- Áfram, hreyfið ykkur hraðar.
- Hefurðu tekið eftir hraun-ánni?
Haltu á Bleika.
Ertu í lagi?
Svona, segðu eitthvað. Hvað sem er.
Hvað? Ég heyri ekki í þér.
Þú stendur ofan á rananum mínum.
- Ertu í lagi?
- Hversvegna gerðirðu þetta?
Þú hefðir getað dáið, við að bjarga mér.
Svona er gert í hjörð.
Maður passar upp á hvern annan.
Takk.
Ég veit ekki um ykkur,
en við erum skrýtnasta hjörð sem ég hef séð.
Ég get ekki beðið eftir
að koma klónum í þennan mammút.
Enginn snertir mammútinn
fyrr en ég fæ barnið.
Fyrst sker ég afturhlutann hans í stykki.
- Ég set hvíta kjötið í eina hrúgu og...
- Hættu þessu. Ég er banhungraður.
Næst, bógurinn. Stundum
seigur, en einstaklega safaríkur.
- Ég sagði þér að hætta þessu.
- Sparaðu kraftana.
Mammútar falla ekki auðveldlega.
Það er aðeins ein leið til þess.
Fyrst neyðirðu þá út í horn.
Útilokar flótta.
Og þegar þið þrír hafið gómað hann,
Ræðst ég á hálsinn.
Við verðum að koma
barninu burt úr vindinum.
- Hversu langt í viðbót?
- Þrjár mílur.
Ég þarf hvíld.
Við komumst þangað á morgun.
- Hvað ertu að gera?
- Koma letidýrum á kortið.
Því ekki að vera raunsærri
og teikna hann liggjandi?
Og gerðu hann kringlóttari.
- Fullkomið.
- Ha ha, ég man ekki hvernig á að hlæja.
Ég er snillingur.
Héðan í frá þurfið þið að
kalla mig Sid, Meistara logans.
Meistari logans, skottið á þér brennur.
Þakka þér. Héðan í frá
ætla ég að kalla þig Diego.
Meistara Snertu mig og þú ert dauður.
Ég er bara að grínast, litli kjúkuhaus.
Ástarfuglar.
Sjáið þetta.
Ég trúi þessu ekki.
Komdu hingað, litli tvífætlingur.
Komdu hingað, litli krakkaormur.
Komdu til Sid frænda.
Þessa leið.
Farðu til hans.
Vel unnið. Haltu áfram að æfa þig.
Sjáið þetta. Litli náunginn okkar er að
þroskast.
Allt í lagi, komdu. Háttatími, klumpur.
Sjá þennan stóra væskil.
Veistu, ég hef aldrei átt
vin sem myndi hætta lífi sínu fyrir mig.
Manny er góður náungi.
Það er hann.
Góða nótt.
Best að þrífa þig. Hvað ætli að pabbi þinn
segi ef hann fær þig til baka allan illþefjandi?
Leyfðu mér bara að hreinsa þetta.
Þetta lítur vel út. Aðeins smá hér.
- Þú ert sætur hreinn, litli gutti.
- ég held hann sé farinn að líkjast mér.
Hvað heldur þú?
- Við skulum hætta við.
- Af hverju?
Ef við björgum honum, verður hann
veiðimaður. Hverja heldurðu að hann veiði?
Kannski ekki okkur
ef við björgum honum.
Og kannski vex á hann feldur
og langur háls og hann kallar þig mömmu.
- Hvað er að þér?
- Ekkert. Komum okkur. Skottið frýs af mér.
Ertu frosinn þarna fyrir aftan?
- Farið þarna niður.
- Hvað?
- Þangað og fylgið mér.
- Hvað gengur á?
Fyrir rótum Hálfahnjúks,
bíður ykkar fyrirsát.
- Hvað?
- Hvað meinarðu, fyrirsát?
- Gabbaðirðu okkur.
- Ég þurfti það.
- Ég átti að ná barninu, en svo...
- komstu með okkur heim í matinn.
- Þú ert útilokaður úr hjörðinni.
- Mér þykir þetta leitt.
Þér finnst það ekki. Ekki enn.
- Hlustið, ég get hjálpað ykkur.
- Vertu hjá mér. Við berjumst í gegn.
Nei. Hópurinn er of sterkur.
Þið verðið að treysta mér.
Treysta þér? Því í ósköpunum
ættum við að treysta þér?
Því ég er eina vonin ykkar.
Sælar, dömur.
- Sjáið hver hefur ákveðið að mæta.
- Ég var farinn að hafa áhyggjur af þér.
Engin ástæða til þess. Eftir svona tvær
mínútur geturðu svalað hefndarþorsta þínum.
Alveg indælt.
Ég sé letidýrið. Og hann er með barnið.
Ekki láta þá vita um stöður ykkar fyrr en þið
sjáið mammútinn. Komum honum á óvart.
Þú vilt stúta einhverjum, er það ekki?
- Ég vil stúta.
- Eftir hverju ertu þá að bíða?
Ég sagði bíðið eftir mammútnum.
Bakklórari. Leggist í duftið.
Gobbedígobb.
Sjáumst, elskurnar.
Því miður, félagar. Hann er smá kalinn.
Náið honum.
Gettu hvað?
Ókei, fylgdu mér. Við náum í Sid
og forðum okkur meðan við getum.
Svona nú, fellið mammútinn.
Þarna er hann.
Einmitt. Hvar er barnið?
Hinir hæfustu lifa af.
Það held ég ekki.
- Hvað ertu að gera?
- Láttu mammútinn í friði.
Fínt. Ég skal fyrst fella þig.
Við unnum.
Vorum við ekki frábært gengi?
Vorum? Hvað meinarðu, við erum enn gengi.
Fyrirgefðu að ég gabbaði þig.
Þú þekkir mig -
ég er of latur til að ala á óvild.
Hættu þessu, kríli.
Þú verður að vera sterkur.
Þú verður að sjá um Manfred og Sid.
Aðallega Sid.
Þú getur nú náð þér eftir þetta. Þú ert tígur.
Sjáðu til, ég skal bera þig.
Svona nú, hvað segirðu þá?
Komdu nú, Diego.
Segðu honum að hann jafni sig, Manny.
Hlustið, þið verðið að skilja mig hér eftir.
Ef mennirnir komast gegnum skarðið,
náið þið þeim aldrei.
Þú þurftir ekki að gera þetta.
Svona er gert í hjörð.
Gleymdu okkur ekki.
Allt í lagi?
Við gleymum þér ekki.
Bless.
Einmitt. Hvar er barnið?
Komum, höldum suður.
Sparaðu röddina.
Þú veist að menn kunna ekki að tala.
Er allt í lagi með þig?
Níu líf, vinur.
Ég gæti kysst þig.
Velkominn aftur, félagi. Viltu far?
Nei takk. Ég þarf að bjarga
þeirri litlu reisn sem ég hef enn.
Þú ert með okkur í hóp.
Reisn er þessu óviðkomandi. - Ég þigg farið.
- Klifraðu upp.
- Lyftu mér, félagi.
Júhú, hott. Eða ekki hott. Hvort sem er.
Þetta verða bestu flutningar hingað til.
Ég sýni ykkur vatnsholurnar mínar. Ég verð
brúnn þegar sveppurinn í feldinum þornar.
- En aðlaðandi.
- Þetta Ísaldar dæmi allt er að verða gamalt.
Veistu hvað ég væri til í?
Upphitun jarðar.
- Láttu þig dreyma.
- Nei, í alvöru...
20.000 ÁRUM SÍÐAR
Þýðandi fyrir Visiontext:
Ragnheiður Guðmundsdóttir
ICELANDIC