Tip:
Highlight text to annotate it
X
Verkefni án tölvu | Lagasmíðar
(Kiki Prottsman - Manstu hvernig það er þegar þú leitar uppi lagatexta
og þeir sýna viðlagið bara fremst í textanum
og í því sem eftir er af söngnum
er bara vísað til baka í viðlagið?
Það er svona sem maður kallar á fall.
Í þessari kennslustund ætlum við að hafa viðlagið í byrjun textans
og svo syngjum við textann og förum til baka,
og við tö*** eftir því að bekkurinn syngur ekki orðið "Viðlag".
Þau fara sjálfkrafa efst þar sem við höfum viðlagið
og syngja það.
Við notum þetta sem góða kynningu
til að hjálpa okkur að skilja hvað forrit er að gera
þegar það skilgreinir og kallar á fall.
Við notum kunnugleg lög þar á meðal "Old MacDonald"
til að tala um hvernig kallað er á viðlagið aftur og aftur
og hvernig viðlag getur stundum breyst
Þegar maður hefur lag eins og Old MacDonald,
þar sem viss orð breytast,
þá er það frábært tækifæri til að kynna hugmyndina um stika -
að færa yfir ákveðin orð svo að maður geti sent
auka upplýsingar til fallsins.
Þegar við erum viss um að allir skilji þetta,
getið þið tekið kunnugleg lög og brotið þau upp sjálf,
athugið hvort þið getið fundið út úr því saman.