Tip:
Highlight text to annotate it
X
Það eru margir ólíkir einstaklingar í mínu lífi. Menntaskólavinir, fjölskyldan mín, samstarfsfólk
og hjólafélagar - bara sem dæmi.
Það er margt sem ég vil deila með öðrum en samt vil ég ekki deila öllu með öllum.
En ef að deila á netinu væri líkara samböndum í raunheimum, þar sem þú getur valið
hver fær að vita hvað?
Með hringjum get ég deilt partímyndum með menntaskólavinunum.
Eða reiðhjólaævintýrum með hjólahópnum mínum.
Og ég náði frábærum myndum í útskrift systur minnar og vil vera viss um að fjölskyldan
geti séð þær.
Það er mjög einfalt að búa til hringi.
Þegar ég set fólk í hringi á Google+ sér það að ég hafi tengst þeim, en það fær
ekki að sjá í hvaða hring ég setti það.
Og ég vil ekki alltaf sjá uppfærslur frá öllum. Þannig aðstoða Hringir mig við að minnka
áreitið með því að velja þá aðila sem ég vil heyra frá.
Hringir gera þér kleift að deila því sem skiptir máli með þeim sem skipta máli.
Skelltu þér því á dansgólfið: Rósa frænka þarf ekkert að vita...