Tip:
Highlight text to annotate it
X
Evrópu samstarfsvettvangur samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og Transgender kristilegra trúarhópa
[music and people talking, not understandable]
[welcome to the conference 2010 in Barcelona, in Catalan and English]
Samstarfsvettvangurinn European Forum var stofnaður árið 1982 í París
og byrjaði sem lítill hópur 16 einstaklinga úr 7 hópum frá 5 löndum.
tilgangurinn er að vinna að jafnrétti fyrir samkynhneigða, tvíkynhneigða og Transgender einstaklinga
innan og í samstarfi við kristnar kirkjur í Evrópu.
Við erum sífellt stækkandi þverkirkjulegt samstarfsnet 41trúarhóps frá 20 Evrópulöndum.
Það sem við gerum er að styrkja hvert annað og þá einstaklinga sem verða fyrir mismunun.
Við erum einnig fulltrúar aðildarhópa í þverkirkjulegum samræðum innan,
Kirkna og við réttindahópa og stjórnmálasamtök.
Þing European Forum kemur saman á Hvítasunnu á hverju ári í mismunandi borgum í Evórpu,
til samtals og samfélags og er það einnig aðalfundur samtakanna.
Við biðjum, höldum þverkirkjulegar messur, íhugum; ásamt námskeiðshaldi, hringborðsumræðum og fyrirlestrum.
Við bjóðum einnig upp á sérstakar stundir fyrir konur og karlmenn.
Við erum samtök sem berjumst gegn mismunun hverskonar og vinnum einnig að trúmálum og réttindum LGBT einstaklinga.
Við erum hluti ólíkra menningarheima, hefða og trúar. Gildi okkar eru vinátta og kærleikur.
Við ræðum saman af virðingu fyrir hvert öðru í öllu okkar starfi.
Við eigum einnig opinber samskipti við Heimsráð kirkna (WWC)
og við erum einnig aðilar að evrópudeild ILGA.
Við tö*** þátt í alþjóðlegum viðburðum.
Við höfum Agapé sjóðinn sem styrkir starf ýmissa hópa í mið og austur Evrópu.
Það er sérstaklega tvennt sem við leggjum áherslu á
fyrir fólk til að geta þróað og unnið að eigin réttindum.
Hluti af því er að segja manns eigin sögu.
Svo við ákváðum að við yrðum að fá fólk til að segja sögur af perósnulegri reynslu sinni.
Við höfum safnað saman nærri eitt hundrað sögum lesbía, kristinna kvenna um gjörvalla Evrópu.
Og þar segir fólk frá reynslu sinni af trú eða efa
og reynslu sinni af kirkjunni og fólki sem henni tilheyrir.
Ég held að þetta sé góð leið. Þegar við birtum þessar sögur höfum við sönnun þess að við erum alls staðar
og að við erum til í öllum kirkjum alls staðar í Evópu. Þetta eru mjög mikilvæg skilaboð.
Hitt atriðið sem við teljum mikilvægt er að kenna og þjálfa fólk
til að geta mætt þeirri rökræðu sem margir íhaldssamir stjórnmálamenn og kirkjuleiðtogar
Nota gegn samkynheigðum innan kirkjnnar og einnig í stjórnmálum.
[singing the hymn “Courage (to follow the law of love)”]
Ég er prestur í mótmælendakirkjunni í Þýskalandi
og því er það mjög mikilvægt fyrir mig að geta tengt saman andleg málefni og trú
í leitinni að sjálfsmynd hins samkynhneigða einstaklings.
Því vil ég leggja áherslu á tvennt.
Í fyrsta lagi hef ég mikinn áhuga á helgisiðum og að finna leiðir fyrir trúarlega tilbeiðslu
og líka til að lýsa verkum okkar og baráttu fyrir mannréttindum
Innan hinna ýmsu kirkjudeilda í Evrópu og víðar.
Það var mér mjög mikilvægt að við gátum deilt sögum okkar eða litlum hluta þeirra
og opnað leiðina fyrir aðra að segja líka frá
lífi sínu, vonum, draumum og efa
og spurningum um hvernig þeir geti lifað í sátt við sjálfa sig og trúnna.
og í þeirri vitneskju að við lifum á 21 öldinni en ekki í fortíðinni.
Þetta var því mjög mikilvægt námskeið og við fengum mikið af jákvæðum viðbrögðum
og ég held að það sé einmitt námskeið af þessum toga sem við reynum að leggja áherslu á innan European Forum
og við viljum halda áfram með til framtíðar.
European Forum er ekki einungis frábær samstarfsvettvangur þar sem fólk nýtur þess að hittast
heldur líka leið til að vera í virku sambandi við kirkjur,
og eiga samtal við þær og fulltrúa þeirra, biskupa o.s.frv.
Fyrir mig persónulega þýddi þetta að ég var fulltrúi á heimsþingi kirkna í Harare árið 1988.
Við gátum tekið þátt og talað um samkynhneigð og kynhneigð.
Ég hef verið mjög heppin í mínu lífi því ég upplifði aldrei mismunun.
Ég kynntist mörgum vinum í LGBT kristilegum hópum
og það var svo eðlislægt að fá að skilja sjálfa sig betur í gegnum frásögninga.
Við höldum stundum að það sé bara til ein kirkja, hin Rómversk Kaþólska,
en í heiminum eru svo margar kirkjur,
þar sem kemur saman ólík guðfræði og ólíkar upplifanir og leiðir til trúariðkunar.
Margir samkynhneigðir, sérstaklega yngra fólk, yfirgefa kirkjur sínar.
Allir kristnir ættu að gæta að og vernda unga LGBT einstaklinga
og það sem við getum gert í framtíðinni er að vinna saman.
LGBT hreyfingin í heild sinni til að efla jákvæða mynd trúarinnar.
Þetta er leiðin til að koma á breytingum innan okkar kirkjudeilda.