Tip:
Highlight text to annotate it
X
Mikið af fólki tekur lífs sitt á hverjum degi vegna þessa Tabú.
Biblían er mjög hættulegur texti.
Í FPÖ [Austurríska þjóðernisflokknum] sögðu þeir að samkynhneigð sé menning dauðans.
Ef það er ekki hægt að víkja smá frá hefðinni til þess eins að unglingar finni að
þeir lifi í ekki í ógnandi umhverfi og þar með að koma í veg fyrir að þeir taki sitt eigið líf.
Þá geturðu ekki talað um að elska náungann.
Biblían inniheldur mjög hættulegan texta. Það eru þó nokkrir textar sem segja fólki að vera á móti samkynhneigðum.
Það er til dæmis einn texti sem segir að ef tveir menn hafa mök, þá verði að taka þá báða af lífi.
Í textanum stendur: „Blóð þeirra skal vera á þeim“. Þetta er í Þriðju Mósesbók. Þetta er að sjálfsögðu í Torah.
Í kóaraninum er ekki sagt að þeir skulu vera drepnir, en þeim á að refsa.
Ofsatrúarmenn og ofstækismenn eru allstaðar. Möguleikinn á því að einhver opni svoleiðis bók og drepi einhvern er eitthvað sem
gæti alltaf gerst, svo lengi sem að þessi texti heldur áfram að vera blessað sem Guðs orð.
Það eru margir prestar sem styðja brúðkaup samkynhneigðra
En hver og einn les það sem hann vill og túlkar það þannig að það henti honum.
Ég held að samkynhneigð sé ólögleg í 71 landi og í 8 af þessum löndum er dauðarefsing.
Í sumum löndum eru það aðeins 2 prósent þjóðarinnar sem sætta sig við samkynhneigð
Í Indlandi eru til hof þar sem má sjá myndir af samförum samkynhneigðra og líka gagnkynhneigðra.
Í Japan og í Kína var þetta líka svona, hægt að sjá það í myndlist og bókmenntum.
Í Perú og Ekvador eru lesbískar táningsstelpur sem eru sendar á heislustofnanir þar sem þeim er svo nauðgað vegna þess að foreldrar þeirra vita ekki hvað á að gera við þær.
Erkibiskupinn í Oaxaca í Mexíkó, sagði fyrir stuttu að engin góð og heiðvirð kona eða maður myndi vilja vera samkynhneigð/ur.
Aðrir hafa talað gegn rétti okkar til þess að vinna sem kennarar.
Síðasta ár á milli 800 og 1000 rabbínar ; Ég veit ekki hvort það var bara í Bandaríkjunum eða á heimsvísu;
sögðu að það væri samkynhneigðum að kenna að það varð jarðskjálfti í Haítí.
Berlusconi sagði sem dæmi að það væri betra að koma fram við konu eins og hann
Þrátt fyrir að hann hjá sefur hjá stúlkum undir aldri, heldur en að vera hommi.
Það eru ekki bara stjórnmálamenn á hægri vængnum sem tala svona, heldur til dæmis einn vinstri stjórnmála maður,
Evo Morales frá Bólivíu, sagði að ástæðan fyrir því afhverju svona margir samkynhneigðir eru í Evrópu
sem er náttúrlega algjör vitleysa, því að í Bólivíu eru alveg jafn margir þar og eru hér.
Samkynhneigð er bara ekki eins áberandi þar sem að fólk getur ekki lifað frjálst,
út af fólki eins og honum sem skjóta fram hugmyndum um hommafælni,
Hann sagði að ástæðan fyrir því afhverju svona margir samkynhneigðir eru í Evrópu er vegna þess að maturinn þar er genabreyttur.
Þegar samkynhneigð brúðkaup urðu leyfð samkvæmt lögum á síðasta ári í Argentínu, þá sagði erkibiskupinn í Buenoes Aires
Að þetta væri stríð gegn Guði.
Að sjálfsögðu fann hann stuðning fyrir því í Biblíunni.
Þeir segja að þetta sé undantekning og einnig eitthvað sem er ónáttúrlegt, en þeir vita ekki að samkynhneigð
hefur verið skjalfest nákvæmlega í 500 dýrategundum og alveg síðan árið 1500.
Við erum ekki svo ólík dýrum. Samkynhneigð er til staðar, sérstaklega hjá þróaðri tegundunum.
Til dæmis á hjá öpum.
Börn hafa ekki samband við samkynhneigða eða þau vita það ekki.
Vandamálið er að í skólanum er mikið talað um rasisma, og að taka minnihlutahópa í sátt,
En það er ekki talað um fælni fyrir samkynhneigð. Því er alltaf sleppt.
Það blótsyrði sem er algengast á skólalóðinni, samkvæmt kennurum í Þýskalandi, er ´´hommi‘‘ og ´´faggi‘‘.
Kennararnir koma ekki í veg fyrir það og margir þeirra jafnvel styðja þetta.
Afsakaðu! Getið þið ekki gert þetta heima hjá ykkur? Þetta er ógeðslegt!
´´Við ætlum að gera smá grín. Eruð þið tilbúin?´´ og þau segja ´´já, auðvitað‘‘.
Fyrir flesta unglinga er þetta ekki auðvelt því að það tekur þig tíma til að samþykkja þetta, vegna þess að það er litið niður á þetta í samfélaginu.
Börn hafa ekki samband við aðra samkynhneigða, eða þau vita það ekki.
Og þess vegna er sjálfsmorðstíðni á meðal samkynhneigðra unglinga svo miklu hærri heldur en hjá gagnkynhneigðum.
Það er þess vegna mjög hættulegt að nota orðið ,,hommi‘‘ í neikvæðri merkingu.
Táningsstúlkur sem eru lesbíur þjást oft mikið vegna þess.
Kirkjan talar alltaf gegn samkynhneigðum brúðkaupum og segir að það sé tilgangur hjónabands að fjölga sér.
Samt má fólk sem getur ekki eignast barn, giftast.
Sem dæmi má 50 ára gömul kona giftast og enginn gerir neitt vandamál úr því.
Það er líka vegna þessara hefð að samkynhneigðir hafa mjög oft mjög lágt sjálfsálit
og þess vegna tala þau ekki um þeirra réttindi á almannafæri
og því miður er fólk sem er hefur virkilegar áhyggjur, eina fólkið sem talar um þetta.
Þetta var alveg eins hjá svertingjum í Bandaríkjunum. Það voru alltaf svertingjar sem börðust gegn kynþáttahatri.
Þannig er þetta líka hjá samkynhneigðum, þó að ég sé ekki alveg sammála um hvernig barist er fyrir réttindum
Einu sinni á ári í mörgum borgum eru svokallaðar gleðigöngur haldnar en fyrir mér eru þær tilgangslausar.
þær staðfesta aðeins þá fordóma sem fólk hefur.
Held að margir meini þetta kaldhæðnislega. Þetta sýnir nákvæmlega einkennin sem þjóðfélagið gefur okkur
og þú hlærð að sjálfu þér. En flest fólk skilur það ekki og heldur að samkynhneigðir
eru aðeins þetta klikkaða fólk sem gengur um hálf nakið á götunum.
Margt fólk skilur ekki að við eru alveg eins og allir aðrir, og það að við klæðum okkur ekki alltaf mjög skringilega og á ögrandi hátt
og það líf sem við lifum er ekki mjög frábrugðið því sem aðrir lifa. Ég vakna á morgnanna, fæ mér morgunmat
Ég tannbursta mig, fer í sturtu, síðan fer ég upp í háskóla eða í vinnu, eftir það fer ég heim
Og ég lifi ekki mjög frábrugðu lífi frá flest öðru fólki.
En fólk skilur það ekki, þar sem að flest samkynhneigt fólk felur sig því að það þorir ekki að koma fram.
Og vegna áhrifanna frá Sádí Arabíu gerðu þeir þetta saknæmt...
Halló! Þetta er viðtal. Þið megið taka þátt í því ef þið viljið.
- Heyrðiru hvað hann sagði? – ha/hvað? - ,,er þetta karókí?‘‘