Tip:
Highlight text to annotate it
X
Los Angeles flugturn
þetta er Transworld 22.
Við erum á niðurleið.
Hreyflar tvö og...
Neyðarkall...
Festið sætisólar
Andrew? Þetta er
faðir þinn.
Halló?
Þú hringir aldrei aftur svo ég
veit ekki hvað ég get gert.
Ef þú hringir aldrei
aftur í mig
getum við ekki
átt samskipti.
Ég veit ekki hvernig
ég get sagt þetta.
Nú verður þú
að koma heim.
Í gær...
Móðir þín lést
í gær, Andrew.
Hún drukknaði.
Hún drukknaði
í baðkarinu í gær.
Tíu manns sóttu um vinnu í dag.
Fólk frá Idaho og Flórída.
Hvað vilja þau frekar en
hlutverk í Allir elska Raymond?
Þau vilja starfið þitt.
Þetta má ekki gerast aftur.
Tvö borð bíða og þú
ert hálftíma of seinn.
Ef ég segi það aftur
fer starfið þitt...
til Todd Slauson
frá Duluth í Minnesota.
Með eða án kolsýru?
Þjónn 10, ert þú
með heyrnartólin?
Þú gleymdir pöntun 41
fyrir borð númer 101.
Hvaða rugl er þetta?
Ertu í kaffi?
Nei, ég er bara
að fíflast í þér.
Við ætlum að fá fjóra
Ketel í Red Bull og...
Ég ætla að fá Ketel Cosmo
í Red Bull og brauð strax.
Við erum ekki með brauð.
Hvað áttu við? Hvernig er
hægt að eiga ekki brauð?
Þetta er víetnamskur staður
og við erum ekki með brauð.
Þú ert ekki frá Víetnam.
Nei, það er rétt.
Fæ ég eitthvað til að tyggja?
Bambus eða hvað sem er.
Ég skal athuga
hvað ég finn.
Þjónn númer 12,
flug númer 121
beint til Newark
fer frá hliði 32.
Fjandinn.
- Andskotinn.
- Hvað segirðu?
Largeman, hvað ert þú
að gera hérna?
Þetta er mamma mín.
- Fjandinn.
- Fjandinn.
- Ég samhryggist.
- Já.
Velkominn heim.
Takk.
Hvað ertu nú að gera?
Ertu ennþá að leika?
- Býrðu ekki í L. A?
- Einmitt.
Það er svalt. Ég hef heyrt
að það sé brjálaður staður.
Frændi minn er rithöfundur þar.
Hann segir að allt sé brjálað.
Hann er að skrifa handrit
að snjóbrettamynd.
Ég veit það ekki...
Ég ætti að kynna ykkur.
Þið gætuð unnið saman.
- Ekki spurning.
- Hvað ætlarðu að gera í kvöld?
Ekkert sérstakt. Ég verð
í bænum í nokkra daga.
Komdu með okkur. Við ætlum
að fara til Gleasons.
Það verður rosapartí
eða eitthvað þarna.
- Svo er sagt.
- Svo er sagt.
- Er það?
- Hann á heima uppi á hæðinni.
Við förum þangað þegar við
höfum grafið mömmu þína.
- Ég verð að fara í sturtu.
- Já, ég líka.
Vissirðu að mamma þín
lét breyta baðherberginu?
Fyrirgefðu,
hvað segirðu?
Síðan ég kynntist henni sýndi
hún aldrei áhuga á neinu.
Skyndilega vaknaði hún
fyrir mánuði
og vildi breyta
baðherberginu.
Ég hjálpaði henni.
- Það hefur verið gaman.
- Ég sauma.
Ég bjó til skyrtu
handa þér.
Það var gott.
Þakka þér fyrir.
Viltu máta hana núna?
- Núna?
- Ef ég skyldi þurfa að breyta henni
áður en þú ferð og kemur
ekki aftur í níu ár.
Ég vil vera viss
um að hún passi.
Þú verður hrifinn
af efninu.
Ég notaði afgangana
frá mömmu þinni.
Sæll.
Hvernig líður þér?
Hvernig var annars
leikritið, frú Lincoln?
Ég veit ekki hvað ég get sagt.
Mér þykir þetta leitt.
Hvernig líður þér?
Ágætlega en ég hef samt
fengið slæma höfuðverki.
Þeir koma leiftursnöggt.
Eins og elding í höfðinu.
Í eitt augnablik
og svo hverfa þeir.
Ég hélt að þú gætir látið
líta á mig meðan ég er hérna.
Farðu til Cohen læknis
strax í fyrramálið.
Hann er taugasérfræðingur.
Ég hringi til hans.
Hann kemur þér að.
Þetta er eflaust ekki neitt.
- Húsið lítur vel út.
- Það er ágætt.
Við höfum unnið mikið
að því undanfarið.
Er það?
Reyndar ekki. Ég veit ekki
hvers vegna ég sagði það.
Ég sé að baðherberginu
hefur verið breytt.
Já, það er nýtt.
Það er gott
að fá þig heim.
Það er mikilvægt
að kveðja.
Það er gott að þú hafðir
tíma fyrir þetta.
- Settu hendur á höfuðið.
- Hvað segirðu?
Ég sagði þér að fara
upp með helvítis hendurnar.
130 á 40-svæði. Ertu seinn
eða ertu bara þreyttur?
- Ég var bara...
- Haltu kjafti.
- Largeman.
- Kenny?
Skrambinn.
Hvað segir þú gott?
Allt ágætt.
- Mamma þín dó.
- Ég veit það.
- Ertu þess vegna kominn heim?
- Einmitt.
- Ertu lögga, Kenny?
- Já, ég veit.
Hvers vegna?
Ég veit það ekki. Mér datt
ekkert betra í hug að gera.
Þetta er mjög svalt.
Fólk hlustar á mann.
Það verður
að hlusta á mig.
Sjáðu þetta.
Hérna er öryggið.
- Þetta er svalt.
- Og öll fríðindin.
Ef ég verð fyrir skoti
fæ ég fullt af peningum.
Síðast þegar ég sá þig varstu
að sniffa kók af pissuskál.
Ég varð að vaxa úr grasi
og fullorðnast.
Auk þess græddi ég
ekkert á fiskmarkaðinum.
Enginn þekkti mig
og ég fékk ekkert að ríða.
Nú er staðan
mun betri hjá mér.
Talandi um það...
- Hvernig stóð ég mig?
- Hvað áttu við?
Allt þetta áðan.
Eins og lögga?
Þegar ég sagði þér
að halda kjafti.
Ég hélt að þú værir fífl
og það er jákvætt.
Það er flott.
Hver andskotinn?
Ertu nú orðinn
kvikmyndastjarna?
Lékstu íþróttamann?
Ég sá það ekki.
Það var ekki merkilegt.
- De Niro og allt.
- Hvað segirðu?
- Hann er frábær.
- Já.
- Deer Hunter?
- Einmitt.
Við ættum
að spjalla saman.
Ég á fullt af góðum hugmyndum.
Þú gætir leikið mig.
Löggusögur.
Ekki spurning.
Það hljómar vel.
- Fjandinn sjálfur.
- Blessaður.
- Hvað segir þú?
- Allt fínt en þú?
- Hvað segir þú?
- Gefið manninum bjór.
Hann bíður ekki eftir bjór.
Hann er kvikmyndastjarna.
Hann er De Niro
okkar Jerseybúa.
Hvað ertu að gera
heima, Largeman?
- Ég er bara...
- Tala við blaðamenn.
Það var lagið.
Serpico og allt.
Attica.
Haltu kjafti.
Var þetta gott?
Blaðamannadæmið?
Þetta var spuni.
Þú mátt nota þetta.
Allt í lagi. Ég skal
sýna þér nokkuð.
Blessaður, Largeman.
Hvernig hefur þú
haft það, maður?
- Blessaður, Jesse.
- Hvað segirðu?
Ég hef ekki séð þig svo lengi.
Ertu ekki að slá í gegn?
Ég náði að selja
þögla franska rennilásinn.
- Hvað áttu við?
- Ég hannaði þetta.
Það er franskur rennilás
sem er alveg hljóðlaus.
- Hvað fékkstu fyrir hann?
- Mjög mikið.
Hvað ertu þá
að gera núna?
Ekki neitt.
Mér hefur aldrei
leiðst svona mikið.
Fyrsta mánuðinn fór ég
og keypti fullt af dóti.
En annars hef ég
ekki gert neitt.
Er einhver með jónu?
Gjörðu svo vel.
Nei, takk.
Nei? Ég hélt að þú
værir kvikmyndastjarna.
- Nei.
- Hérna.
Gleyptu þetta þá.
Velkominn heim.
Við sjáumst síðar.
- Eigum við að fara í leik?
- Förum í flöskustút.
Ég fer ekki í flöskustút.
Hvað erum við gömul?
- Hversu gamlar eru þær?
- Þær eru löglegar. Held ég.
Við vorum að gleypa
helling af alsælu.
Hvað annað
eigum við að gera?
- Það er rétt.
- Auðvitað.
Ég er með.
- Þetta er Dana.
- Sæll.
Blessuð.
Hver á að gera?
Þetta verður góð nótt.
Er þetta ekki gott?
Ég reyni að spara sykurpúðana
en það er ekki hægt.
Ég enda alltaf með fullt
af flögum og bleika mjólk.
Ég gleymi mér.
Jæja, Tim...
Hversu lengi hefur þú
unnið hjá Miðalda-tímum?
Þrjú ár en ég hef bara
verið riddari í tvö ár.
Maður verður
að vinna sig upp.
Ég vann í hesthúsinu
og í eldhúsinu.
Þegar ég byrjaði
sá hann um hrásalatið.
- Nú er það ekki jafn gott.
- Ég hrærði bara í því.
Ekki vera hógvær.
Herra Hógværð sigraði
burtreiðarnar í gær.
- Til hamingju.
- Það er ekki merkilegt. Þetta er leikið.
Hvað kom aftur fyrir þig
í framhaldsskólanum?
Það gerðist eitthvað
en ég man ekki hvað.
- Hann var laminn í klessu.
- Það er ekki satt.
Hvað veist þú um það?
Tyrell Freeman buffaði hann.
- Ég barði hann líka.
- Hann barði tennurnar úr þér.
Hann braut bara
eina tönn.
Hvað ert þú að gera, Mark?
Ertu að grafa lík?
Mark ætlar að fara
í fasteignabransann.
- Tim talar klingónsku.
- Hvað segirðu?
- Það er ekki satt.
- Þú kannt það.
- Hvað er klingónska?
- Eins og í Star Trek?
- Hann talar tungumálið.
- Það er ekki satt.
Jú, hvers vegna
ertu svona feiminn?
- Ekki vera feiminn, Tim.
- Þetta er bara bull.
Galdrakarlinn í vinnunni
er Star Trek lúði.
Ekki vera feiminn. Segðu það
sem þú sagðir í gærkvöldi.
- Nei.
- Segðu það sem þú sagðir við hana í gær.
Kuntar petiki maya.
Al *** su.
Ertu að grínast?
Það þýðir að hann vilji
finna maka eftir orrustu.
- Ég sagði það ekki.
- Víst.
Ég sagði það ekki í gær.
Þetta þýðir "Drepum Kirk."
Eða "Hallelúja".
Það fer eftir samhenginu.
Þú hefur ruglað
þessu saman við...
... plejit amor eke
frek ize ka.
Þetta var flott.
Veistu hvað það þýðir?
Ég veit það.
Drullaðu þér út úr húsinu mínu
áður en ég sker af þér hausinn.
Hann er riddari.
Hann er bara
skyndibitariddari.
Ég ætti að drífa mig.
Takk fyrir morgunkornið.
Ég skemmti mér
mjög vel í gær.
Það stendur "Pungur"
á enninu á þér.
- Fávitinn þinn.
- Mamma gerði það.
Á vorin finnur krókódíllinn
nýjar leiðir til að veiða.
Sagðir þú Large
frá spólunum?
Nei, ég ætla ekki
að kaupa þessar spólur.
- Hvaða spólur?
- Um fasteignasölu.
Þú gætir grætt hundrað þúsund
dollara á fyrsta árinu.
Þú ættir að sjá bátinn
sem kynningargaurinn á.
Hann var með skemmtiþátt
í Kína, alveg moldríkur.
Ég held að Mark
sé fullkominn í þetta.
Hættu að tala um þetta.
Þetta er svikamylla.
Þá geri ég það. Ég ætla
að safna fyrir spólunum.
Ég veit hvað gæti orðið
úr þér ef þú reyndir á þig.
Ég reyni á mig
hvern einasta dag.
Ég vinn eins og skepna
við að moka grafir.
Ég er 26 ára og mér liggur
ekkert á. Liggur þér á?
Láttu mig bara vera.
Ég rek ekki á eftir þér.
Ég geri þetta sjálf.
Gerðu það sjálf.
Þá færðu ekki að koma
í snekkjuna mína.
En Large má koma
hvenær sem hann vill.
En þú mátt ekki
taka vin þinn með þér.
Fjandinn.
Ég verð að fara
á fundinn.
Allt í lagi.
Ég elska þig.
- Ég elska þig líka.
- Ég elska þig.
- Gaman að sjá þig, Large.
- Já, sömuleiðis.
Ekki vera hérna inni
í allan dag.
Ég tók rafhlöðurnar
úr kolmónoxíðskynjaranum.
Hann var í gangi
í alla nótt.
Hún gerir mig brjálaðan.
Mér finnst ég verða
að gera hana stolta af mér.
Mér finnst fínt að vera
ómerkilegur. Þá sef ég betur.
- Hvað er klukkan?
- Ég hef ekki hugmynd.
Ég verð að fara.
Ég heiti Andrew Largeman
og ég er allt of seinn.
Allt í lagi, Andrew.
Þú verður bara
að fylla þetta út.
- Við köllum á þig.
- Þakka þér fyrir.
Fáðu þér sæti.
Sæl, frú Lubin.
- Komdu sæl.
- Fáðu þér sæti og við köllum á þig.
- Þakka þér fyrir.
- Það var lítið.
Blessaður.
Farðu.
Hæll.
- Einhverjar uppástungur?
- Hvað segirðu?
- Einhverjar uppástungur?
- Sparkaðu í punginn á honum.
Sparkaðu í punginn
á honum.
Ég vil ekki eyðileggja
möguleikann á fjölgun.
Hafðu ekki áhyggjur.
Ég á þrjá Doberman-hunda.
Það er nauðsynlegt að sparka
reglulega í punginn á þeim.
Hann hlýtur að verða
búinn að þessu bráðum.
Ekki strax. Hérna
kemur varaliturinn.
- Frú Lubin?
- Já.
- Þú mátt koma núna.
- Komdu, Arthur.
Mér finnst ég
vera svo notaður.
Takk fyrir hjálpina
eða góða ásetninginn.
- Ég þekki þig.
- Varst þú í Columbia skólanum?
Nei, þú varst í sjónvarpinu.
Þroskahefti leikstjórnandinn.
- Já.
- Ertu þroskaheftur í raun og veru?
- Nei.
- Svalt.
Þú stóðst þig vel. Ég hélt
að þú værir þroskaheftur.
Þú varst eins góður og Corky
en hann er samt ekta.
Þú gætir rústað honum ef það
væri til Óskar þroskaheftra.
Þakka þér fyrir.
Takk kærlega.
Ég þarf að klára
að fylla þetta út...
- Ekkert mál.
- Takk.
Frændi minn er leikari. Jake
Winters. Þú þekkir hann varla.
Hann lék einu sinni dverg
eða eitthvað í X ena.
- Það er samt svalt.
- Þakka þér fyrir.
Guð minn góður.
Þegar þú hélst ræðuna
fyrir allan völlinn.
Svo rétti faðir þinn
þumlana upp.
Það var hjartnæmt.
- Færðu meira að gera?
- Ég er í áheyrnarprófum...
Ertu svo ekki þroskaheftur?
Jake er lélegur leikari.
Það sést ekki í X ena
vegna loðna dvergabúningsins
en þegar við vorum lítil
setti hann upp ódýra
Andrew Lloyd Webber söngleiki
á háaloftinu. Það var glatað.
Algjör hryllingur.
En smávaxið fólk fær
of lítið að gera.
Ég hef blaðrað
allt of mikið.
Nú fer ég. Þú þarft
að fylla þetta út.
Á hvað ertu að hlusta?
- The Shins. Kannast þú við þá?
- Nei.
Þú verður að heyra eitt lag.
Það breytir lífi þínu.
Fyrirgefðu, þú verður
að fylla þetta út.
Vandamál. Gætir þú
hlustað á meðan?
- Ég ætti að geta það.
- Er það? Frábært.
Þetta er mjög flott.
- Hvers vegna ertu hérna?
- Hvers vegna ert þú hérna?
Ég er að bíða eftir vini.
Hvað með þig?
- Ég er...
- Fyrirgefðu hvað ég er forvitin.
Ég er svo forvitin.
Ég ætlaði ekki að vera það.
Fyrirgefðu mér.
Ég fæ höfuðverki og ég
vil láta athuga þetta.
Svalt.
- Andrew Largeman?
- Já?
- Þú mátt koma.
- Allt í lagi.
- Gaman að kynnast þér.
- Þú gerðir það ekki. Sam.
- Andrew.
- Gaman að kynnast þér.
- Gangi þér vel með höfuðið.
- Þakka þér fyrir.
Engar áhyggjur, Sam.
Þú ert næst.
- Herra Andrew Largeman?
- Já, komdu sæll.
- Það er ekkert að þér.
- Hvað segirðu?
Bara grín. Hvað ætti ég
að vita um það?
Ég er Cohen læknir.
Hvað get ég gert
fyrir þig í dag?
Ég hef fengið mjög
slæma höfuðverki.
Þeir vara aðeins
í augnablik.
Eins og þruma eða rafmagn
og svo hverfur það.
Litíum?
Hversu lengi hefur þú
tekið litíum?
Ég hef tekið slík lyf
síðan ég var tíu ára.
Og Paxil, Zoloft,
Celexa og Depakote?
Hjálpaði þetta
þér eitthvað?
Nei.
Ég veit það ekki.
Nú sé ég að kannski
er ekkert að mér.
En ég veit það ekki
því síðan ég man eftir mér
hef ég verið á lyfjum.
En ég skildi þau eftir heima.
Þetta er fyrsta skipti í langan
tíma sem líkaminn er lyfjalaus.
Þetta fer hratt úr þér.
Á ég að skrifa lyfseðil?
Mér datt í hug
að taka mér smá frí.
Hefurðu rætt þetta
við geðlækninn þinn?
Geðlæknirinn minn
er pabbi minn.
Hann vill helst
að ég hætti ekki.
Hann heldur að þetta
veiti mér hamingju.
Líkaminn getur gert
ótrúlegustu hluti
þegar hann er þjáður
af streitu og kvíða.
Ég fann ermahnappa fyrrverandi
vinar í veski eiginkonunnar.
Ég fékk ekki stinningu
í eitt og hálft ár. Til dæmis.
Ég held að það
sé ekki málið
því ég finn hvorki
fyrir streitu né kvíða.
Miðað við allt litíumið
ættirðu ekki að heyra í mér.
Í fyrsta lagi
ætti faðir þinn ekki
að vera geðlæknirinn þinn.
Því átti að breyta fyrir löngu
og hann veit betur.
Í öðru lagi get ég
ekkert sagt um það
hvort þú ættir að taka lyfin
því ég þekki ekki sögu þína.
En mitt mat, þar sem þú
ert að borga fyrir það,
er að lyfin gætu
verið ágætis skyndilausn.
En fyrr eða síðar, ef þú
ferð ekki í meðferð,
mun það sem er í höfðinu á þér
finna leið upp á yfirborðið.
- Er allt í lagi?
- Já.
Auðvitað er allt í lagi.
Þú ert lifandi.
Komdu og leyfðu mér
að skoða þig betur.
Farðu úr skónum. Ég þarf
að klóra í fæturna á þér.
SKAUFASUGA, HOLLYWOOD,
AUMINGI, RÆKJUTYPPI
Hvers vegna varstu
þarna í raun og veru?
Ég lét hlaða mig.
Ég er vélmenni.
- Lýgur þú mikið?
- Hvað er mikið?
Nóg til að fólk
kalli þig lygara?
- Fólk kallar mig ýmsum nöfnum.
- Er lygari eitt þeirra?
Ég gæti svarað neitandi
en það gæti verið lygi.
Þá verð ég líklega
að treysta þér.
- Geturðu það?
- Ég get reynt það.
Hver á þetta hjól?
Afi minn átti það.
Þetta var eini arfurinn
og ég fékk þetta.
Mér finnst það flott.
Nú átt þú að bjóða mér
far heim til mín.
- Er það?
- Já.
Viltu far heim?
Já, en ég fer ekki
í hliðarvagninn.
- Hvers vegna ekki?
- Þeir eru fyrir tíkur.
Sá sem situr þarna
er tíkin þín.
Þess vegna ætti ég
að sitja fyrir aftan þig.
Haltu þér fast.
Ég held mér.
Vindurinn næðir
um hárið á mér.
Stundar þú
svifdrekaflug?
Kærastinn ætlaði að sækja mig
en hann komst ekki.
Á hann tvímennings-
reiðhjól eða hvað?
Hann á Ninju sem fer
miklu hraðar en þetta.
- Hvernig hjálm ertu með?
- Það má nota hann í þetta.
- Hvernig er höfuðið?
- Ég lifi daginn af.
- Farðu til hægri hér.
- Allt í lagi.
- Þarftu að gera eitthvað?
- Hvað áttu við?
Ég þekki gaur, Jesse,
sem á stórt setur hérna.
Hann vill fá mig í heimsókn
en ég vil ekki vera lengi.
Svo mér datt í hug
að ef þú kemur líka
gæti ég þurft að skutla þér
heim þegar ég vil fara.
Þú ert aldeilis
hugaður, Andrew.
Gaman að kynnast þér.
Mætti ég nota þig?
- Ekta Hollywood hegðun.
- Það er ekki þannig.
Þetta verður gaman.
Við getum notað merki.
Þú gefur mér merki með því
að toga í eyrað á þér.
Þá segist ég verða
að skutla þér heim.
Þá förum við.
Gætum við líka
notað dulnefni?
Ef þú vilt.
Allt í lagi, en ekki
reyna að ræna mér.
Frændi minn er mannaveiðari
og hann drepur þig.
Þú ert lygamörður.
Eruð þið tilbúin?
Er ég fyrsti strákurinn
sem þú býður heim?
Nei, en ég laug því
að kærastinn ætti Ninju.
- Á hann ekki mótorhjól?
- Nei, ég á ekki kærasta.
Kannski á hann Ninju,
hvar sem hann er.
Þetta byrjar vel.
Allt í lagi.
Ég lýg stundum.
Ég er skrýtin.
Ég lýg um hvað sem er
en veit ekki hvers vegna.
Þetta er kækur. Stundum
heyri ég mig segja eitthvað
og hugsa svo: "Þetta var
ekki nálægt sannleikanum".
Hvernig veit fólk
hvað er satt?
Ég fæ alltaf samviskubit
og játa að ég laug.
- Geturðu treyst því?
- Opnaðu dyrnar.
Niður, Kevin.
Mamma.
Sparkaðu í punginn
á þeim. Mamma.
Niður með ykkur.
Hver vill éta?
Vilt þú éta? Þá skaltu
láta hann í friði.
Svona, út með ykkur.
Fyrirgefðu, við höfum ekki
tíma til að þjálfa þá.
- Hver hefur tíma til að þjálfa þá?
- Mamma.
- Þetta er Andrew.
- Velkominn.
Afsakaðu en það er
allt í rusli hérna.
Ég sagði þér að henda
járnhjólinu úr hamstrabúrinu.
- Ég gleymdi því.
- Þess vegna er Jelly dauður.
Til allrar lukku náði ég
Peanut Butter út í tæka tíð.
Við fengum
einu hamstrana
sem kunna ekki
á hamstrahjól.
Það er kassi
á eldhúsborðinu.
Þú mátt sjá um þetta.
Ég verð að fara í vinnuna.
- Gaman að kynnast þér, Andrew?
- Já, sömuleiðis.
Settu fötin í þurrkarann
og jarðaðu Jelly.
Hér á ég heima.
- Þetta er fínt.
- Það er ekki satt.
Þú segir það bara því þér
dettur ekki annað í hug.
Nei, þetta er notalegt
en þið eruð of snemma með tréð.
Við höfðum ekki tíma
til að taka það niður.
Svo kom haust og við
ákváðum að hafa það uppi.
Guð minn góður. Þú ert
alveg að fara yfir um.
- Þig dauðlangar að fara.
- Nei, þetta er fínt.
- Viltu sjá herbergið mitt?
- Auðvitað.
Þetta er Andrew og þetta
er bróðir minn, Titembay.
- Gaman að kynnast þér.
- Sömuleiðis.
- Það var leitt með Jelly.
- Það er allt í lagi.
Ég geymdi makkarónur
og ost handa þér.
Þakka þér fyrir.
Ég er orðinn
of seinn í skólann.
- Gaman að kynnast þér.
- Sömuleiðis.
Við sjáumst.
Hér er það. Ekkert fínt
en samt... Hvað?
Er það Titembay?
Þetta er undarlegt.
Þú ert að fara yfir um.
Þig langar að fara
og það er allt í lagi.
- Hættu þessu.
- Hverju?
Þessu sem þú gerðir.
Mig langar að vera hérna.
Trúðu mér, mín fjölskylda
er undarlegri en þín.
Allt í lagi.
- Hvað með Titembay?
- Hann er bróðir minn.
- Var hann ættleiddur?
- Nokkurn veginn.
Mamma ættleiddi hann
af Sally Struthers.
Það kostaði jafn mikið
og kaffibolli á dag.
"Hvernig geturðu
ekki hjálpað börnunum?"
Við gátum ekki annað
en að hjálpa börnunum.
Við sendum honum myndir
og bréf í nokkur ár
en gleymdum honum þegar ég
fékk áhuga á skautum.
Einn daginn hringdi síminn
og þar var Titembay.
Hann var í fatahreinsuninni
hinum megin við götuna.
Hann var í háskóla og hafði
áður búið í ættbálki
og vildi eiga fjölskyldu.
Hann hefur búið hérna síðan þá.
Ja, hérna.
Ég veit, hann er ótrúlegur.
Þú ættir að heyra sögurnar.
Hann barðist svo mikið
fyrir því að mennta sig.
Mér finnst ég vera löt
ef ég hugsa um afrek hans.
Hann er að læra
afbrotafræði í Rutgers
en var áður svona barn
með flugur í andlitinu.
Þetta er alveg
ótrúleg saga.
Ég veit það. En þetta er satt,
ég gæti ekki logið þessu.
Þetta er Kitla.
Hvað er Kitla?
Kitla er uppáhaldshluturinn
minn í öllum heiminum.
Það eina sem er eftir
af Fóstru, teppinu mínu.
Kitla er það eina
sem eftir er.
- Kom fellibylur?
- Þegiðu.
Ég hef átt þetta
síðan ég var ungabarn.
Ég var færð heim
af spítalanum í þessu.
- Eins og Grátmúrinn.
- Hvað áttu við?
Grátmúrinn er...
Það er helgasti staður gyðinga
fyrir bænir í Ísrael.
Það eru einu leifar musteris
sem Rómverjarnir eyðilögðu.
- Ertu ekta gyðingur?
- Hvað áttu við?
Ertu það ekki?
Ég er gyðingur en ég er
enginn ekta gyðingur.
Ég geri ekkert
eins og gyðingur.
Ég fer ekki í musteri og þekki
enga gyðinga sem gera það.
Gyðingar fara á einum degi,
Yom Kippur, degi iðrunar.
Ég skil.
Flest musteri eru
með færanlegum veggjum
svo þennan eina dag
þegar allir iðrast
er nóg pláss fyrir
allan mannfjöldann.
Ég trúi ekki á Guð.
- Bara Kitlu?
- Ég trúi á Kitlu.
- Við ætlum ekki að kela.
- Hvað segirðu?
Eyðilagði ég ekki
þetta augnablik?
- En við förum ekki að kela.
- Ég hafði það ekki í huga.
Ég er svo glötuð.
Þetta var alveg...
Gleymdu að ég sagði þetta.
Það var kjánalegt.
Veistu hvað ég geri ef mér
finnst ég vera ófrumleg?
Hvað?
Ég geri hljóð eða eitthvað
sem enginn hefur gert áður
og þá verð ég einstök aftur,
þótt það sé bara í andartak.
- Hefur enginn gert þetta?
- Nei, ekki á þessum stað.
Þú sást algerlega frumlegt
andartak í sögu mannsins.
- Þú ættir að prófa.
- Nei, takk.
- Gerðu það.
- Nei, þetta dugði okkur báðum.
Ertu feiminn?
Þú getur gert eitthvað
sem enginn hefur gert áður
og enginn getur
endurtekið.
Ef allt bregst
verður þú samt
alltaf gaurinn
sem gerði þetta.
- Hvernig var þetta?
- Ég hef gert þetta áður.
Ég verð að grafa hamsturinn
áður en hundarnir éta hann.
Viltu hjálpa mér?
- Ja, hérna.
- Já.
- Þetta er...
- Ég veit það.
Við erum ekki slæmir
gæludýraeigendur.
Við höfum bara átt
svo mörg gegnum tíðina.
Auk þess er mikið
af þessu fiskar.
Á eftir þér.
Allt í lagi.
Sestu niður.
Um hvað ertu að hugsa?
- Núna?
- Já.
- Þessa stundina?
- Já.
Að ég hafi gert mikið
af þessu undanfarið.
- Farið á stefnumót?
- Nei, ekki stefnumót.
Er þetta stefnumót?
Þetta er ekki stefnumót.
Jarðarfarir.
Hvers vegna?
Hver annar dó?
Þess vegna kom ég heim.
Ég sagði þér ekki frá því.
Mamma mín lést.
Það er skrýtið
að segja það upphátt...
Mamma dó og þess vegna
kom ég heim aftur.
Ég samhryggist.
Guð minn góður.
Hér ertu kominn
í aðra jarðarför.
Jelly jafnast ekki á við hana
þótt við elskuðum hann en...
- Ég samhryggist þér.
- Þetta er allt í lagi.
Það er allt í lagi.
Ég held að hún
hafi viljað það.
Hvernig dó hún?
Hún drukknaði.
Hún var þverlömuð.
Hún var í hjólastól
og... þú veist.
Hún var í baði og hlýtur
að hafa runnið eða eitthvað.
Þeir segja það.
Ég veit það ekki.
En hún drukknaði.
Þannig dó hún.
Hvenær?
Þetta var...
Síðasta sunnudag.
Guð minn góður.
Hvers vegna
ert þú að gráta?
Ég veit það ekki.
Fyrirgefðu.
Ég er ekki alltaf svona
en ég bara...
Þetta er svo sorglegt.
Þetta er...
Þetta er svo sorglegt.
Þetta er raunverulegur
harmleikur eða þannig.
Tölum um eitthvað annað.
Reynum að einbeita
okkur að Jelly núna.
Hvað er verra en að tala
um einhvern annan sem dó
meðan maður jarðar
náinn vin sinn?
- Hvað eigum við að gera?
- Ég veit það ekki.
Þetta er aðeins önnur mín.
Þú ert sérfræðingurinn.
Oftast segjum
við eitthvað.
Ég skal byrja.
Ég þekkti þig ekki, Jelly
en þú varst gott gæludýr.
- Áttir í vandræðum með hjólið.
- Þetta er ekki fyndið.
Jelly, þú varst
stórkostlegt gæludýr.
Fyrirgefðu að ég gleymdi
að taka hjólið úr búrinu.
Fyrirgefðu mér.
Bless.
Vonandi kunnir þú
vel við mig.
Mér dauðbrá. Hvers vegna
gerir þú þetta alltaf?
- Ég hef lítið séð þig.
- Ég hitti gamla vini.
Cohen hringdi.
Það er ekkert að þér.
Ég er að komast
að því sjálfur.
- Hvenær ætlar þú að fara?
- Líklega á morgun.
Ég þarf að gera
ýmislegt í L.A.
- Ég þarf eflaust að finna vinnu.
- Við verðum að tala saman.
Já, hvernig?
Ég meina, hvenær?
Hvað ertu að gera núna?
Ekki núna, ég þarf
að hitta Mark vin minn.
En seinna í kvöld?
- Þá tölum við saman.
- Allt í lagi.
Við eigum það inni
hvor hjá öðrum.
Já.
Hún á það inni
hjá okkur.
Já.
Gott.
Fyrirgefðu ef ég
gerði þér bilt við.
Hvernig gastu skilið
allt litíumið eftir?
Ég ætlaði að biðja þig
að gefa mér smá.
Maðurinn er ótrúlegur.
Gott að fá þig heim.
Bærinn er klikkaður.
Allir eru dópistar hérna.
Þetta er eins og í Brave New
World. Hefurðu lesið hana?
Hver skrifaði hana?
Aldous...
Aldous eitthvað.
Hvað um það...
Þar er til Alfa, Beta
og Ypsílon fólk...
Huxtable.
Höfundurinn heitir
Aldous Huxtable.
Andrew, viltu sjá myndband
með Sam á skautum?
- Ekki, mamma.
- Auðvitað.
Hún var svo góð. Hún hefði átt
að fara á Ólympíuleikana.
Ég hefði aldrei
getað það.
Þú gast það alveg, ekki kenna
flogaveikinni um þetta.
Leyfðu mér að sjá það.
Sýnum honum sýninguna
í Flórída. Krókódílinn.
- Mér er alvara, mamma.
- Ekki vera svona feimin.
- Leyfðu mér að sjá það.
- Hún vill að þú sjáir það.
Auðvitað ætti hann að sjá
hversu hæfileikarík þú ert.
- Ég var það.
- Komið hingað.
Komdu.
- Hvað ertu að gera?
- Leita að fingraförum.
Viltu færa vettvanginn
inn í eldhús?
Ég ætla að sýna Andrew
Sam á skautum.
Einhver pissar á tölvuna mína
og sökudólgurinn er í sigtinu.
- Það var ekki ég.
- Förin benda til hundanna.
Sestu í sófann.
Ég trúi ekki að þú ætlir
að sýna honum þetta.
Sjáðu, þarna er hún.
- Ert þú krókódíllinn?
- Þú sérð það á höndunum.
Tvöfalda skrúfan.
Og lending.
- Er hún ekki góð?
- Hún er frábær.
Allt í lagi.
- Ja, hérna.
- Þegiðu.
Það er rétt hjá henni,
þú ert virkilega klár.
Þetta var æðislegt
en við verðum að fara.
Ég vildi bara sýna honum
hversu hæfileikarík...
- Ekki láta svona.
- Elskan mín.
Jæja, burt með ykkur.
Bíddu augnablik.
Faðmaðu mig.
Ég elska þig svo mikið
og er svo stolt af þér.
- Ég elska þig líka.
- Skemmtið ykkur vel.
- Takk fyrir matinn.
- Faðmaðu mig líka.
- Drífum okkur.
- Ég vil faðmlag.
- Góða nótt. Sjáumst, Tim.
- Blessaður, Tim.
Friður út, félagi.
Þetta var það eina
sem mér fannst skemmtilegt,
að þykjast vera
einhver annar.
Einu tilboðin mín núna
eru að leika fatlað fólk.
- Það er ekki fyndið.
- Sérðu ekki spaugið?
Ef þú hlærð ekki að sjálfum þér
virðist lífið allt of langt.
Að hverju eigum við
að hlæja varðandi þig?
Ég laug aftur.
Ég er flogaveik.
- Hvenær eigum við að hlæja?
- Ég...
Ég fékk kast á lögfræðistofunni
sem ég vinn á.
Ég fékk engar tryggingar
án réttra forvarna.
- Hvernig forvarnir eru það?
- Hjálmurinn sem ég var með.
Það er fyndið.
Ég er eina manneskjan
með hjálm í vinnunni
sem slekkur ekki eld
eða keyrir kappakstursbíl.
En ég get ekki hætt þarna.
Tryggingarnar eru ótrúlegar.
Þess vegna hlæ ég.
Auðvitað græt ég líka.
En þess á milli
reyni ég að hlæja.
Ég sé hversu bjánalegt það er
að taka öllu of alvarlega.
Auk þess hlakka ég
til þess að gráta vel.
Það er mjög gott.
Ég hef ekki grátið
síðan ég var lítill.
Ég grét ekki
í jarðarför mömmu.
Ég reyndi það.
Ég hugsaði um allt það
sorglegasta sem ég þekki.
Ein mynd úr Life tímaritinu
hefur alltaf ásótt mig
og ég hugsaði um hana
en ekkert kom.
Þess vegna varð ég
virkilega sorgmæddur.
- Því ég er svo dofinn.
- Hvað áttu við?
- Bara að...
- Hæ, píka.
Blessaðir, strákar.
Sam, þetta eru Mark og Dave
og þú manst eftir Jesse.
- Blessaðir.
- Gaman að kynnast þér.
Afsakaðu að ég sagði píka.
Ég vissi ekki af þér.
- Það er allt í lagi.
- Glæsilegt.
Förum á skallann.
Einn, tveir, þrír.
Hvað ertu að gera?
Largeman, stökktu
í helvítis laugina.
Vatnið er svo heitt.
Kanntu ekki að synda?
Auðvitað kann ég
að synda.
Haltu þig í grunnu lauginni.
Ég kann ekki hjartahnoð.
Þú ert eins og
blautur bifur.
Ég missti af nokkru
sem eðlilegir krakkar gera.
Ég vildi að ég hefði misst
af nokkrum slí*** hlutum.
Þekkirðu það augnablik
þegar þú uppgötvar
að húsið sem þú ólst upp í
sé ekki lengur heimili þitt?
Þú átt ennþá stað
fyrir draslið þitt
en hugmyndin um heimili
er alveg horfin.
Mér finnst ég
ennþá eiga heimili.
Þetta gerist þegar þú flytur.
Einn daginn hverfur það.
Þér finnst þú aldrei
geta fengið það aftur.
Þú færð heimþrá eftir stað
sem er ekki til í raun.
Kannski er þetta
nokkurs konar eldskírn.
Þú finnur þetta ekki
nema þú skapir þér
nýja hugmynd um heimili
fyrir sjálfan þig.
Fyrir börnin og fjölskylduna
sem þú ætlar að stofna.
Þetta er hringrás.
Ég veit það ekki en ég
sakna hugmyndarinnar.
Kannski er fjölskyldan
ekki meira en það.
Hópur fólks sem saknar
sama ímyndaða staðarins.
Kannski.
Ertu tilbúinn?
Hvers vegna eru
engin húsgögn hérna?
Ég keypti stól en ég var
ekki ánægður með hann.
- Hvar er hann?
- Hann er að halda á okkur hita.
Þögull franskur rennilás.
Lukkunnar pamfíll.
Ef ég hefði kynnt þöglan
franskan rennilás í skólanum
hefði ég verið sendur
burt miklu fyrr.
- Hvers vegna varstu sendur burt?
- Heyrið í stúlkunni.
- Ég var ekki sendur burt.
- En þú sagðir það.
Ég var bara sendur
í heimavistarskóla.
Ég var ekki sendur burt
eins og á eitthvert hæli.
Hvers vegna varstu
sendur í heimavist?
Ég var sendur
í heimavistarskóla
því þau óttuðust
að ég væri hættulegur.
Nú langar þig að fara.
Þú ert að fara yfir um.
Þetta var fyndið.
Hvers vegna héldu þau
að þú værir hættulegur?
- Þú ert hnýsin.
- Nú...
- Já, hvað?
- Ertu hommi?
Trommur...
Ég er ástæðan fyrir því
að hún var í hjólastól.
Ég hrinti henni.
Þá er það komið.
- Haltu kjafti.
- Þegiðu.
Þetta er satt.
Hvers vegna?
Þetta var bara
fáránlegt slys.
Eitt af því sem maður sér
milljón sinnum í höfðinu
og maður skilur hversu
mikið slys þetta var.
Alla mína ævi var hún
þunglynd af engri ástæðu.
Einn daginn þegar ég var
aðeins níu ára gamall
hataði ég hana
fyrir það.
Þá hrinti ég henni.
Það var saklaust. Ég var
bara svekktur því ég...
- Því þú gast ekki veitt henni gleði?
- Einmitt.
Alla aðra daga
hefði hún öskrað á mig
og sent mig upp í herbergi.
En þennan ákveðna dag
var hurðin á uppþvottavélinni
óvart opin.
Lásinn var ónýtur
og hurðin opnaðist stundum.
Helvítis lásinn.
Það er ótrúlegt hversu
mikið lífið hefur mótast
af örlitlu plaststykki.
Hún datt um hurðina,
rak hálsinn í eldhúsborðið
og varð lömuð frá mitti.
Viltu bera saman
skrýtnar fjölskyldur?
En mamma þín var í hjólastól
löngu áður en þú fórst.
Ég var bara níu ára.
Ég var sendur í meðferð
og ég fékk lyf
sem áttu að hafa
hemil á reiðinni.
Ég hef stöðugt verið
á lyfjum síðan þá.
Þegar ég var sextán ára
ákvað pabbi minn
að þetta væri ekki rétta
umhverfið fyrir mig.
Hann sendi mig í heimavist
og ég hef ekki komið síðan þá.
- Fyrr en núna.
- Í jarðarförina hennar.
Fyrr en núna,
í jarðarförina.
Ég trúi ekki að þroskahefti
leikstjórnandinn sé pilluæta.
Jesse?
Hvar er gufubaðið?
- Ég skal sýna henni það.
- Nei, ég get það.
Þú skalt finna
handklæði handa henni.
Viltu far, elskan?
- Ertu ekki í því núna?
- Hvað áttu við?
Mamma segir þetta þegar ég
er að komast að einhverju.
Þá segir hún
að ég sé í því.
Ég leit á þig meðan þú
sagðir mér þessa sögu
og það er greinilegt
að þú ert í því.
Ég held að það sé rétt.
Ég er í því núna.
Einmitt, eigum við
að skipta um umræðuefni?
- Tölum um eitthvað gott.
- Eitthvað gott?
Að glasið sé hálffullt?
Hvernig er staðan?
Ég er létt núna.
- Hvað með þig?
- Ég er léttur.
Ég er hrifinn af þér.
Þá er það komið.
Ég hef það.
Ég kann að steppa.
Viltu sjá það?
Ég vil endilega
sjá þig steppa.
- Hvað ertu að gera?
- Safnar þú Eyðimerkurstorms-spjöldum?
Já, þetta eru
miklir safngripir.
Veistu hvað þetta
verður mikils virði?
- Er þér alvara?
- Já, þetta er mjög góð fjárfesting.
Ég á fullt af svona
fjárfestingum hér og þar.
Einn daginn sel ég þetta
og lifi góðu lífi.
Hvað færðu mikið
fyrir þetta?
- Hvað er þetta?
- "Nætursjónauki".
Ég veit það ekki.
Kannski tvo eða þrjá.
- Dollara?
- Já.
Ég sel þetta ekki strax.
Kanntu ekki að fjárfesta?
Ég ætla að lifa
af þessu dóti.
Heilt safn er margra
þúsunda virði.
- Áttu allt safnið?
- Næstum því.
Hornin eru beygluð
á "Vinsamlegu árásinni"
og einhver stal
"Wolf Blitzer."
Hvað ætlar þú
að gera í dag?
Ég ætla að gefa þér
litla kveðjugjöf
en ég verð fyrst
að finna hana.
- Geturðu skutlað mér?
- Já, en ég bara...
Hvað?
- Ekkert, ég bara...
- Segðu mér það.
Ég sagði Sam að ég ætlaði
að vera með henni í dag.
Hún má koma líka.
Mér er alveg sama.
Ég trúi ekki að við
séum í Handi-World.
Mig vantar peninga.
Ekki vera svona sekur.
- Hvernig er ég sekur?
- Andrew Largeman?
- Nei, Benson.
- Æ, nei.
- Hver er það?
- Ekki gefa honum símanúmerið þitt.
Blessaður,
hvað segir þú?
- Andskotinn sjálfur.
- Hvað segirðu?
Ég hef ekki séð þig
síðan í skólanum.
Ég hélt að þú hefðir
framið sjálfsmorð.
Hvað áttu við?
Drapstu þig ekki?
Var það einhver annar?
Það var ekki ég.
Hverjir drápu sig?
Gleason-strákurinn
og Tina líka.
- Hvaða Tina?
- Þú manst eftir henni.
Hún var með lystarstol
og æfði fimleika.
- Fimleika Tina? Hvernig gerði hún það?
- Ég veit það ekki.
- Ég jarða bara gyðinga.
- Það voru svefnpillur.
Eða bíll í bílskúr.
Ég man það ekki.
Afsakið, þetta er Karl
og þetta er Sam.
Ég þarf að finna þetta.
Bíðið hérna.
Er þetta þungt?
Allt í lagi.
Lékst þú ekki
í sjónvarpsþætti?
Jú, það var bara
sjónvarpsþáttur.
Ertu að vinna hérna?
Það er svalt.
Bara í smástund. Ég ætla
að stofna eigið fyrirtæki.
Reyndar ætti ég
að tala við þig um það.
Mig vantar svona gáfað fólk.
Gefðu mér símanúmerið þitt.
Já, ekki spurning.
Það væri sniðugt.
Ég vil tala við ykkur bæði
um einstakt tækifæri
fyrir ykkur
og ástvini ykkar.
Við eigum öll drauma.
Ég á drauma.
Ég vil tala við ykkur
um æsispennandi tækifæri.
Við verðum að fara.
- Gaman að sjá þig, Karl.
- Gefðu mér númerið mitt.
- Já, ég hringi í þig.
- Hann er með það í bókinni.
- Gaman að hitta þig.
Hvers vegna falla aularnir
alltaf fyrir pýramídabraski?
Hvers vegna eru gellurnar
aldrei að selja manni drasl?
- Er hann í slíku braski?
- Já, með hreinsiefnadrasl.
Ertu að kaupa hnífa?
Mig vantar ekki hnífa.
- Ég vil skila þessu.
- Ertu með kvittun?
Nei, reyndar ekki.
Þetta var gjöf.
- Hvers vegna viltu skila þeim?
- Þeir eru ekki nógu beittir.
- Ekki nógu beittir?
- Ekki í það sem ég vil nota þá.
Þeir gátu ekki
skorið sundur dósir.
Keyptirðu þá til þess
að skera sundur dósir?
Nei, en auglýsingin sagði
að ég gæti gert það.
- Ekki með þessum hnífum.
- Það fylgir brýni.
- Prófaðir þú það?
- Já.
Þeir eru bara...
Mig langar ekki í þá.
Þeir eru ekki nógu beittir.
Gott og vel.
Galli í skilareglum
Handi-World.
Ég þarf ekki kvittun ef ég
skila hlut undir 40 dollurum.
Hversu oft gerir þú það?
Einu sinni við hvern starfsmann
og bíð svo eftir nýjum.
Það vinnur enginn lengi þarna.
Nema Karl Benson.
Þetta er síðasti dagurinn.
Ég get lánað þér peninga...
Mig vantar ekki
peningana þína.
Fáðu lánað hjá Jesse.
Hann er milljónamæringur.
Ég sé sjálfur um mína peninga
og þarf enga greiða frá öðrum.
Það eina sem er verra en greiði
er greiði sem snýst um peninga.
Förum. Ég þarf að hitta
gaur vegna hláturgaskúts.
Hvaða staður er þetta?
Maður sér inn
í hótelherbergi.
Komdu, nagli.
Þegiðu.
Hvað segirðu, félagi?
Við erum á hraðferð.
Bíðið aðeins.
Hann er að koma.
Ég er að koma.
Þetta var magnað.
Ég ætti að taka
þessa hóru.
- Hvernig veistu að hún sé hóra?
- Auðvitað er hún hóra.
Svona gellur ríða
ekki svona gaurum
nema það sé fyrir dóp,
peninga eða frægð.
Julia Roberts
giftist Lyle Lovett.
- Hver í fjandanum ert þú?
- Þetta eru Sam og Large.
Hvers vegna ertu að koma
með svona fólk hingað?
Þetta er gaurinn
sem þarf að fá hlutinn.
Ég er með hláturgasið.
Hvert eigum við að fara?
- Fylgja blöðrur með?
- Er ég afmælistrúður?
Það fylgja engar blöðrur.
Sjúgðu þetta af stútnum.
Ég þarf að fá kútinn aftur
því ég borgaði tryggingu.
Allt í lagi.
Bíddu hægur.
Hver sá túttur?
Lyftið upp hendi
ef þið sáuð túttur.
Takk fyrir. Því ættuð þið
öll að halda kjafti.
Veistu hvar Kiernan-
grjótnáman er?
- Er hún ekki í Newark?
- Einmitt.
Hún er við enda
Hillside og Rivington.
Hún sést ekki frá veginum
en hún er þarna.
Leggið bílnum við hliðið
og stökkvið yfir það.
Innst í námunni er ruslahaugur
sem Albert nokkur stjórnar.
Hann fann gripinn
sem þú leitar að.
Ég hringi í hann
svo hann viti af ykkur.
- Bíddu. Hvert erum við að fara?
- Vertu þolinmóður.
Ég hef verið það í allan dag
en þetta er síðasti dagurinn.
Ég nenni ekki
að leita að dópi.
Ef ég hefði ætlað
að gefa þér kók
hefði ég farið á fótboltaæfingu
í skólanum fyrir fimm tímum.
Við erum búnir að spilla
saklausu stúlkunni nóg.
- Ég er ekki saklaus.
- Jú, mér líkar það svo vel.
Ég vil ekki að hann fari
með þig í einhverja grjótnámu
til að finna krakkhórur
sem sniffa terpentínu
og hunda sem nauðga hver öðrum
eða hvað sem bíður okkar.
Ég hef aldrei séð þig
svona æstan áður.
- Hann er að vernda mig.
- Hvað með það?
- Hann er hrifinn af mér.
- Ekki vera sniðug.
Hann er orðinn
riddarinn minn.
Ekki tala um riddara.
Það er viðkvæmt umræðuefni.
Ég ætla að drepa þennan
helvítis mæðrariðil.
Skemmtilega orðað.
Þú þarna...
Guð minn góður.
Ég vissi ekki
að þetta væri hérna.
Þeir ætluðu að reisa
kringlu hérna.
Ég man að ég las
um það í blaðinu.
Þeir voru að grafa en rákust
á þetta náttúruundur.
Þetta er nokkurs konar
neðanjarðar Miklagljúfur.
Nú er málið um þessar
framkvæmdir fyrir dómi.
Hugsið ykkur manninn
sem berst fyrir því
að reisa kringlu
á einstöku fyrirbæri.
Fólk dýrkar kringlur.
Finnum guttann og förum.
Ætlarðu ekki að segja
okkur hvað þetta er?
- Það kemur á óvart.
- Það fer að rigna.
Hérna er það.
Bankaðu og skiptu
á Eyðimerkurstorms-spjöldum.
Ekki gera grín að áhugamálinu.
Mér er sama þótt þú sért fífl.
Gott og vel.
- Mark?
- Já, Albert?
Komið inn.
Er ykkur ekki kalt?
Ornið ykkur við eldinn.
Ég ætla að svæfa hana
og kem fljótt aftur.
Það er ótrúlegt að hvert
sem við förum í dag
- verður allt furðulegra.
- Hvað áttu við? Þetta er fínt.
Þetta er gamall bátur
í botni grjótnámi.
Þetta er varla
botninn, félagi.
Sástu ekki gljúfrið?
Þetta er Faye,
eiginkona mín.
Sæl og velkomin.
Fáið ykkur sæti og látið
fara vel um ykkur.
- Það er hörkurigning úti.
- Já, hún kom skyndilega.
Í svona veðri ímynda ég mér
að þetta sé örkin mín.
En ef þetta er heimsendir
höldumst við varla á floti.
- Vill einhver te?
- Já, takk.
Langar þig í te?
Ég kem fljótt aftur.
Hvaða staður er þetta?
Hvað gerir þú hérna?
Þetta er Kiernan-misgengið.
Enginn veit hvað þetta er.
Við getum ekki kannað það
meðan málaferlin standa yfir
svo ég var ráðinn
til að passa þetta.
En það veit enginn að ég
fer niður á nóttunni.
Hversu djúpt er þetta?
Þakka þér fyrir.
Enginn veit það
í raun og veru.
Ég ímynda mér
að það sé endalaust.
Það er undarlegt starf.
Að gæta óendanlegs hyldýpis.
Já, það er víst.
Við verslum líka
með gamla skartgripi.
Það er líklega undarlegt
að við búum hérna.
- Alls ekki.
- Mér datt það ekki í hug.
Okkur finnst það
mjög mikilvægt.
Hvers vegna?
Hvað heldurðu að þú finnir?
Það er skemmtileg hugmynd
að finna kannski eitthvað
eða gera eitthvað einstakt
sem enginn hefur áður gert.
- Hyldýpi Alberts.
- Kannski. Hver veit?
Það er bara sjálfsálitið
og skiptir engu máli.
Ef ég get verið með konunni
og fallega barninu okkar
skiptir ekkert
annað máli.
Viljið þið ekki fá það
sem þið komuð að sækja?
Það væri frábært.
Það tók tíma að finna þetta
en ég skulda Diego greiða.
Þetta er það.
Þakka þér fyrir.
- Já.
- Í alvöru.
Gangi ykkur vel í rigningunni.
Viljið þið fá ruslapoka?
- Já.
- Það væri fínt.
Bless.
- Heyrðu, Albert.
- Já.
Gangi þér vel að kanna
óendanlega hyldýpið.
Þakka þér fyrir.
Heyrðu...
Sömuleiðis.
Ég veit ekki hvort ég
hitti þig aftur.
Viltu ekki vita
hvað er í pokanum?
Í sannleika sagt er mér
alveg sama núna.
Hvað er þetta?
Þetta er uppáhaldshálsmen
móður minnar.
Ég væri að ljúga ef ég segði
að þetta hefði verið áætlunin.
En ég fann það aftur.
Það er einhvers virði.
Snerist allur
dagurinn um þetta?
Þú vildir það ekki í jörðinni.
Það er betra að þú fáir það.
Allt í lagi.
Ef þig vantar Kato
veistu hvar ég er.
Þetta er skrýtið...
Þetta vekur upp gamla
minningu um mömmu.
Ég var lítill
og grét vegna einhvers.
Hún ruggaði mér
fram og til baka.
Ég man að ég horfði
á litlu kúlurnar,
kastast fram
og til baka.
Svo lak hor
úr nefinu á mér.
Hún rétti mér
ermina sína
og sagði að ég mætti
snýta mér í hana.
Ég man að ég hugsaði,
þótt ég væri ungur:
"Ja, hérna."
"Þetta er ást."
Þetta er ást.
- Ég sé eitt.
- Þegiðu.
Jú, við ættum
að geyma það.
Vertu alveg kyrr.
Við gætum sett það í úrklippu-
bókina mína ef ég ætti hana.
Kemur ekki meira?
- Ég held ekki.
Ég held að það sé ekki
meira á leiðinni.
Láttu mig vita ef það gerist
og þá kem ég með glasið.
Þetta var góð hugmynd.
- Hver ert þú?
- Nýja vinkona þín, Sam.
Viltu þurrku?
Komdu til mín.
- Þetta er svo sárt.
- Ég veit það.
En svona er lífið.
Þótt það sé ekki meira.
Þetta er lífið.
Þetta er raunverulegt.
Stundum er þetta
andskoti sárt.
Í sannleika sagt er þetta
það eina sem við eigum.
Hvernig líður þér?
Ég er öruggur.
Ég er svo öruggur
þegar ég er með þér.
Eins og ég sé heima.
- Pabbi.
- Já.
Komdu inn.
- Fyrirgefðu að ég vakti þig.
- Nei, ég var að lesa.
Hvar hefur þú verið?
Alls staðar.
Undanfarna daga hef ég verið
á undarlegu ferðalagi.
- Þú hefur forðast mig.
- Það er ekki satt.
Jú, kannski er það rétt.
Þú hlýtur að geta fundið
ýmsa hluti í lífinu
til að vera
reiður vegna.
En ég skil ekki hvers vegna
þú ert mér svona reiður.
Ég vildi bara að við
yrðum hamingjusöm aftur.
- Ég vildi ekkert annað.
- Hvenær vorum við hamingjusöm?
Þú segir þetta alltaf.
Hvenær var það?
Hvenær vorum við hamingjusöm?
Ég man ekki eftir því.
Ef svo væri gæti ég
reynt að laga ástandið.
Við verðum að reyna
að bæta okkar samband.
Við getum það ef þú fyrirgefur
þér fyrir það sem þú gerðir.
Það sem ég gerði.
Gerum það.
Við erum hérna.
Nú fyrirgef ég mér.
Ertu tilbúinn?
Ég var lítill drengur
og þetta var ónýtur lás.
Þetta er það sem mér
finnst um málið.
Ég er hættur
að taka þessi lyf.
Ég hef verið dofinn
fyrir öllu í lífinu.
Fyrir það...
Fyrir það er ég kominn
til að fyrirgefa þér.
Þú sagðist bara vilja
það sem við áttum áður.
Kannski vildi mamma
að þessu gæti lokið.
Kannski vil ég
ekkert frekar
en að þú leyfir mér
að finna fyrir einhverju,
jafnvel þótt
það sé sársauki.
Þú ert að gera þetta
gegn læknisráði.
Er það ekki ansi
stór ákvörðun?
Þetta er lífið mitt.
Ég hef beðið í 26 ár eftir því
að eitthvað annað hefjist.
Nei, það er ekki slæm ákvörðun
því þetta er allt sem ég á.
Nú sé ég að þetta
er allt sem ég á.
Við spjörum okkur
og þú veist það.
Við verðum ekki eins
hamingjusamir og þú vildir
en í fyrsta skipti
skulum við leyfa okkur
að vera bara
það sem við erum.
Þá verður allt betra.
Ég held að allt
verði þá betra.
Um hvað ertu að hugsa?
Ætlar þú nokkuð
að koma aftur?
- Auðvitað kem ég aftur.
- Þú gerir það ekki.
Þú skilur ekki
að þetta er gott.
Þú veist að þetta gerist
ekki oft á ævinni.
Ég meina...
Við getum unnið
úr þessu saman.
Ég vil hjálpa þér.
Við þörfnumst hvors annars.
Ég hef ekki logið í tvo daga.
Er það satt?
Nei.
Þetta er ekki samtal
um að þessu sé lokið.
Ég er ekki að setja
punkt fyrir aftan þetta.
Ég er bara að setja
kommu á þetta.
Því ég held að ef ég
nái ekki áttum sjálfur
og reyni að lenda
á eigin fótum,
muni ég klúðra þessu
og ég vil það ekki.
Ég verð að fara.
Ég rak geðlækninn minn
og mig vantar nýjan.
Ég hringi í þig
þegar ég lendi.
Ég hringi í þig...
Líttu á mig.
Líttu á mig.
Þú breyttir lífi mínu.
Þú breyttir lífi mínu
á aðeins fjórum dögum.
Þetta er upphafið
á einhverju miklu.
En þessa stundina
verð ég að fara.
Komdu.
Fáið ykkur sæti
eins fljótt og þið getið.
- Hvað ertu að gera?
- Manstu eftir hugmyndinni
um að finna sjálfan mig
og koma svo aftur?
- Að setja kommu?
- Já, það er kjaftæði.
Það er hræðileg hugmynd
og ég geri það ekki.
Eins og þú sagðir,
þá er þetta allt.
Þetta er lífið.
Ég elska þig,
Samantha.
Ég hef aldrei áður
verið svona viss.
Ég er í tómu rugli og þarf
að vinna úr ýmsum málum
en ég vil ekki eyða
meiri tíma án þín.
- Já.
- Ég held að ég geti þetta. Ég vil það.
- Verðum við ekki að gera það?
- Jú.
- Ekki satt?
- Jú.
Hvað gerum við nú?
Hvað gerum við nú?
Íslenskur texti:
Jóhann Axel Andersen