Tip:
Highlight text to annotate it
X
Skríddu inn, elskan! Það er kalt úti.
Af hverju snjóar, amma?
Hvaðan kemur hann?
Ó, það er löng saga, elskan.
- Ég vil heyra.
- Ekki í kvöld. Farðu að sofa.
Ég er ekki sifjaður.
Gerðu það segðu mér.
Jæja, allt í lagi.
Sjáum nú til.
Ég þarf sennilega að byrja á skærunum!
Skærunum?
Sko, það eru alls konar skæri.
Og einu sinni var meira að segja
maður sem hafði skæri fyrir hendur.
- Maður?
- Já.
- Handa skæri?
- Nei, skærahendur.
Þú þekkir setrið uppá fjallstoppnum?
Það er reimt.
Jæja...
fyrir löngu bjó uppfinningamaður
á setrinu.
Hann bjó til alls konar hluti, held ég.
Hann bjó líka til mann.
Hann lét hann fá innyfli,
hjarta, heila, allt.
Eða næstum allt.
Sko, uppfinningamaðurinn var mjög gamall.
Hann dó áður en hann kláraði manninn
sem hann uppgötvaði.
Svo maðurinn var skilinn eftir einn
ókláraður og aleinn.
Hét hann eitthvað?
Auðvitað hét hann eitthvað.
Hann hét Edward.
Avon kallar!
- Varstu ekki hérna?
- Nei, ekki síðan síðustu árstíð!
Ég kom í dag sérstaklega til að sýna þér
nýju línuna í mjú*** litum, í skuggum,
kinnalitum og varalitum.
Allt sem þú þarft til að
skerpa nýja útlitið.
Nýja útlitið. Flott!
Ég er líka með úrval
af þessu gamla góða,
prófuðum og sönnum vörum sem við
reiðum allar á árið í kring.
Svona, Peg, ég kaupi aldrei neitt af þér.
Ég veit. Bæ, Helen.
Þú þurftir ekki að hringja í mig, frú.
Þú hefðir getað gert þetta sjálf.
Er það? Það held ég ekki.
Þetta er auðvelt. Matarsígjan er
stífluð, ekkert annað.
Sjáðu þennan bolta?
Þú bara skrúfar þetta...
Og hún hoppar út.
Í sjónvarpinu segja þeir að þið
viðgerðarmenn séuð einmana.
Húsmæður verða einmana líka. Kannski áttar
þú þig ekki því við höfum ekki auglýst.
Og svo tekurðu þetta og setur þetta varlega
hérna. Passaðu þig að þvinga það ekki.
Og svo skrúfarðu þetta aftur á.
Hver gæti þetta verið?
Viltu hafa mig afsakaða augnablik?
Ekki fara neitt. Ég kem strax aftur.
Þetta er heillandi!
Ég vil ekki missa af neinu!
- Góðan daginn, Joyce. Avon kallar!
- Af hverju, Peg...
Ertu blind?
Sérðu ekki farartækið á stæðinu mínu?
- Jú.
- Skilurðu ekki að ég er upptekin?
Allt í lagi,
nú ættum við að ákveða varalit.
Elskan, líkaði þér Winsome Wahini,
sem var töfrandi á þér,
eða Bahimini Bliss?
- Mér líkaði þeir báðir.
- Jæja, frábært!
Þú heldur þó ekki að ég eigi pening?
Ding-***! Avon konan!
Ekki minn dagur.
Ó, guð minn!
Ó, þetta er svo fallegt!
Halló?
Halló?
Halló? Avon kallar!
Ó, vá!
Halló?
Ég heiti Peg Boggs.
Ég er kynniningarfulltrúi Avon í hverfinu.
Fyrirgefðu að ég ryðjist svona inn
en það er engin ástæða til að hræðast.
Þetta er risa stórt hús, ekki satt?
Guði sé lof fyrir alla þessa eróbikk tíma.
DRENGUR FÆÐIST ÁN AUGNA
LES MEÐ HÖNDUNUM
Halló?
Af hverju ertu að fela þig þarna?
Þú þarft ekki að fela þig.
Ég heiti Peg Boggs.
Ég er kyningarfulltrúi Avon í hverfinu,
og ég er skaðlaus einsog kirsuberjapæ.
Æ, æ!
Ég sé að ég hef truflað þig.
En heimskulegt af mér.
Ég ætti að fara núna.
Ekki fara.
Æ, æ!
Hvað kom fyrir þig?
Ég er ekki tilbúinn.
Niður með þessi.
Ekki koma nær. Gerðu það...
Eru þetta hendurnar þínar?
Hvað kom fyrir þig?
Hvar eru foreldrar þínir?
Móðir þín?
Faðir þinn?
Hann vaknaði ekki.
Ertu einn? Býrðu hérna aleinn?
Hvað kom fyrir andlitið á þér?
Ég meiði þig ekki.
Leyfðu mér að minnsta kosti að
gefa þér gott herpiefni.
Þetta kemur í veg fyrir sýkingu.
Hvað heitirðu?
Edward.
Ég held þú ættir bara að
koma heim með mér.
- Fyrirgefðu.
- Nei, ekki segja það.
Haltu áfram og horfðu.
Þú hefur ástæðu til að vera spenntur.
Er allt í lagi?
Halló?
Hæ. Þetta er Marge.
Ég var úti að tala við Carol og Peg keyrði
framhjá. Það var einhver með henni.
- Sástu hann vel?
- Nei.
Sagði hún þér að hún ætti von á gesti?
Ekkert. Hún hringdi dyrabjöllunni
minni í morgunsárið.
Nei,allt í lagi. Ég hitti þig á horninu.
Einmitt. Bæ.
Helvítis!
Svona, vinur. Þetta er húsið okkar.
Þú ferð bara inn
og lætur þér líða einsog heima hjá þér.
Við fáum okkur eitthvað að
borða eða drekka eða...
Hérna, vinur. Svona, þetta er
útidyrahurðin. Hér ferðu inn.
Joyce? Ég sá þenna skrítna gaur koma
keyrandi með Peg. Ég sá ekki nógu vel.
Hann virtist frekar fölur.
Er á leiðinni. Ekki gera neitt án mín.
Já! Verð þar!
Þá erum við komin.
Þetta er stofan og hér bakvið
eru svefnherbergin.
Viltu skoða myndir? Allt í lagi.
Þetta er maðurinn minn, Bill.
Hann er meistari í keilu.
Veistu hvað keila er?
Keila?
Nei. Jæja... hér eru þeir niðri
við vatnið að veiða.
Ég held að Kevin sé frekar niðurdreginn
því þeir veiddu ekkert þennan dag.
Og þetta er dóttir mín Kim.
Klædd upp fyrir þriðja árs
skóladansleikinn.
Hún er á síðasta ári núna, trúirðu því!
Hún er í útilegu í fjöllunum
með vinum sínum,
en verður komin aftur eftir nokkra daga.
Þið getið hisst þá.
Er hún ekki falleg?
Þetta er fjölskyldan mín.
Komdu.
Ég skal sýna þér restina af húsinu.
Svo geturðu bara frískað uppá þig
og verið einsog heima hjá þér.
Þarna er eldhúsið.
Fáðu þér bara hvað sem þú vilt.
Þetta eru vínber.
Og þarna bakvið eru svefnherbergin.
Ég ætla að ná í handklæði fyrir þig
og finna eitthvað sem þú getur verið í.
Veistu hvað? Ég held ég eigi eitthvað af
gömlu fötunum hans Bill hérna. Fullkomið!
Hérna. Þetta ætti að passa þér.
Ekki vera hræddur. Þetta er bara síminn.
Nú geturðu farið inní herbergi Kim og
farið í þetta. Ég kem rétt strax aftur.
Nei, nei, skæri!
Einmitt. Sko, hann fæddist
þarna upp frá eða eitthvað.
- Hefurðu séð hann áður?
- Nei, ég efast að hann hafi farið af lóðinni.
Hvernig komstu þá í samband við hann?
Heyrðu, ég verð að fara núna.
Ég tala við þig seinna, Marge. Bæ, bæ.
Fyrirgefðu, Edward, ég...
Má ég hjálpa þér með þetta?
Þakka þér.
Svona. Ó, guð, þú skarst andlitið.
Leyfðu mér að þurrka þetta af.
- Er þetta sárt?
- Nei.
Gott. Allt í lagi, klæðum þig.
Svona. Mjög fínt!
Þú ert fínn!
Helen, komdu! Hún bíður ekki eftir þér.
Ég er með rúllur í helvítis hárinu!
Hvað gerði ég við skærin mín...?
Edward, gætir þú?
Þakka þér.
Veistu, ég á vin sem er læknir
og ég held hann gæti hjálpað þér.
- Er það?
- Já.
Ég get hjálpað þér með örin...
En ég vil fletta upp í stóru Avon handbókinni
áður en ég geri eitthvað.
Kevin!
Það er ókurteisi að stara, elskan.
Hvernig heldurðu að þér liði ef
einhver væri að stara á þig.
- Mér væri alveg sama.
- Ekki mér, svo ekki gera það!
Er þetta ekki mikil breyting fyrir þig, Ed?
- Edward, elskan. Ég held hann
kjósi frekar Edward. - Auðvitað.
Hvað hefurðu verið að gera þarna
á stóra gamla staðnum?
- Er ekki einstakt útsýni þar, Ed?
- Edward!
Já?
Nei, ég bara.
Hlýtur að sjá alveg niður að sjó.
Stundum.
Bill, gæti ég fengið saltið og piparinn?
Bill, elskan. Gæti ég fengið
saltið og piparinn? Takk.
Þau eru geðveik, maður!
Þau eru örugglega hnífbeitt.
Eitt karate högg á háls á gaur...
Kevin...!
Edward,
viltu smjör á brauðið þitt?
Frábært!
Þakka þér.
Heyrðu, má ég fara með hann
í sýnikennslu á mánudaginn?
Kevin, ég er búin að fá nóg.
Heldurðu að þú getir sofið?
Ég veit að allt er skrítið núna en
bráðum finnst þér þú vera heima hjá þér.
Góða nótt.
Ljósa kremið, sem þekur, fer fyrst á
svo blandarðu og blandar og blandar.
Blöndunin er leyndardómurinn.
Meira krem til að hylja.
Hörundslitur þinn er svo ljós!
Það er smá ljósfjólublátt í þessu.
Prófum það hérna.
Nógu nálægt!
Ókei, þetta ætti að vera málið hérna.
Ég er með aðra hugmynd.
Við hyljum örin og byrjum
með alveg mjúkt yfirborð.
Bévans efni!
Þeir eru enn með 11 á stigatöflunni
og það er þrjú eitt.
Í gegnum gapið til Warren.
Nú hafa þeir breytt því í 12 stig.
Hækkaðu, Kevin, ég heyri ekkert!
Kevin!
- Það er unnið!
- Heyrðirðu þetta, hr Boggs?
- Nei, hækkaðu!
- Þetta er búið
tilheyrir sögunni!
Pabbi!
Sjáðu!
..að hlaupa fimm og bursta leikinn!
Nú dámar mér ekki.
Spólan er full!
Hvað er að gerast þarna, Peg? Hringdu.
Hæ, þetta er Marge.
Hver er hann? Hringdu.
Ég heyrði að það væri rigning í fjöllunum.
Heldurðu að krökkunum sé ekki óhætt?
Hæ, elskan. Stelpurnar eru á nálum
útaf leynigestinum þínum.
Þú getur ekki haldið honum
leyndum til eilífðar!
Þetta er alveg dásamlegt, Ed. Guð minn!
Er þetta ekki öll fjölskyldan?
Og hann svarar ógninni í fyrstu með
með því að gefa upp sjálfur.
Edward, komdu.
Nei, þetta er hræðileg hugmynd, sonur!
Farðu í bílskúrinn og náðu í olíukönnu.
Við viljum ekki að hann ryðgi.
Edward, þú gerðir okkur!
- Ó, Bill, þetta erum við!
- Já, það er rétt.
Hann er ekki frá himnum heldur
beint frá logandi helvíti.
Máttur Satans er í honum. Ég finn það.
- En þið? Ertu strax villtur með sauðunum?
- Við erum ekki sauðir.
Ekki koma nálægt mér.
Það var rétt. Farðu héðan, hlauptu!
Edward, ekki hlusta á hana!
Ekki hafa áhyggjur af henni, Edward.
Hún er bara létt klikkuð.
Hæ!
Þið eruð öll í felum
þarna einsog munkar.
Hæ, Joyce.
Skömmin þín viltu eiga óvenjulega
gestinn út af fyrir þig.
Okkur finnst það mjög eigingjarnt.
Það hefur mikið gengið á hér.
En sætt af þér að vilja afsaka ástandið.
Hvenær byrjar grillveislan?
Grillveislan?
Ætlarðu ekki að kynna gestinn fyrir...
- vinum þínum?
- Ég kem með hrásalat.
Og ég kem með ljúffengt salat!
Klukkan hvað sagðirðu?
- Bill!
- Um fimm?
Hann hefur verið sendur
til að freista ykkar!
En það er ekki of seint. Þið verðið að
ýta honum frá ykkur, reka hann burtu.
Troða niður siðspillingu náttúrunnar.
Heyrðuð þið þetta?
Hann er siðspilling náttúrunnar.
Er það ekki spennandi?
- Bæ, bæ.
- Takk kærlega.
Bill!
Þú getur hvorki haft veislu úti eða
grillveislu án kryddaðra eggja.
Þau eru bara best. Skipta sköpum.
Ó, Edward, þetta er dásamlegt!
Ég vissi ekki að þú hefðir skorið allt.
Allt í lagi, þetta er bara skráma.
Það er engin ástæða til að vera
taugaveiklaður, elskan.
Esmeralda verður ekki hérna og hinir
nágrannarnir eru virkilega indælir.
Það er engin ástæða til að vera
taugaveiklaður. Þeir eru spenntir að hitta þig!
Þú verður bara að vera þú sjálfur.
- Ég sjálfur?
- Einmitt. Bara þú góði sjálfur.
- Takk, Edward.
- Spilaðu, skæri, pappír, steinn við okkur.
Spila skæri hvað?
Ég á vin sem er læknir
og gæti hjálpað þér.
- Og hann gerði þá svona!
- Það er ótrúlegt.
- Hæ, Mike, hvernig gengur?
- Halló, Jack.
Krakkar!
Hæ, ég er George Monroe.
Aldeilis handaband sem þú hefur, Ed.
Harry! Ég sá þig á golfæfingu í síðustu viku...
Er allt í lagi?
Viltu eitthvað að borða? Ertu svangur?
Viltu kex?
- Hann er öðruvísi.
- Algerlega öðruvísi.
Ekkert grín.
- Hann er svo...
- Dularfullur.
Heldurðu að hendurnar
séu heitar eða kaldar?
Og hugsaðu þér hvað
smá stytting gæti gert.
Eða ekki gert.
Eddie.
Strákarnir og ég viljum bjóða þér
að spila með okkur á föstudagskvöldið.
Viltu það?
Bara eitt... þú getur ekki gefið!
Ég hef líka eigin fötlun.
Gerði mér aldrei neitt slæmt.
Varð fyrir flísasprengju í stríðinu og
hef ekki fundið andskotans til síðan!
Láttu aldrei neinn segja
þér að þú sért handlama.
Hver er handlama? Guð minn.
Ekki láta svona!
Þú ert ekki handlama, þú ert...
Hvað kalla þeir það... einstakur?
Ég heiti Joyce og ég tók eftir að þú
hefur ekki smakkað á salatinu
sem ég gerði sérstaklega fyrir þig.
Leyfðu mér.
- Þú verður að prófa þetta. Þetta er
uppskrift mömmu. - Lítur þetta ekki vel út?
Með þína grænu fingur gæti ég
vel þegið aðstoð heima hjá mér.
Mig langar í röð af englum!
Fyrirgefið, dömur, en hann lofaði að
koma heim til mín fyrst. Ekki satt, Eddie?
- Gerði ég það?
- Allt í lagi allir. Grípið diskana!
Súpan er tilbúin!
Ha?
Þetta er kebab.
Þetta var leikur að orðum.
Þú ættir ekki að taka
hlutunum svona bókstaflega.
"Þykjumst vera í teikniherberginu
og gestgjafinn er að bera fram tee."
"Við fáum margar litlar spurningar."
"Á maðurinn að standa á fætur
þegar hann tekur við tebollanum?"
"Má taka sykurmola með fingrunum?"
Nei.
"Er viðeigandi að þiggja annan bolla?"
"Á munnþurrkan að vera
algerlega tekin í sundur
eða á að leyfa miðhlutanum að halda sér?"
"Það er svo auðvelt að gera
niðurlægjandi mistök,
en mannasiðir segja okkur
það sem er ætlast til af okkur
og hlífa okkur við niðurlægingu
og óþægindum."
Já. Leiðinlegt.
Skiptum yfir í...
smá ljóð.
"Eitt sinn var gamall maður frá höfða,"
"Sem bjó sér fatnað úr krepi."
"Þegar spurður: Munu þau rifna?"
"Hann svaraði: Hér og þar,"
"En þau eru svo falleg í sniði!"
Einmitt.
Svona, brostu. Þetta er fyndið.
Við erum komin heim.
Andskotinn.
Það er allt rennandi.
- Ég get ekki beðið eftir að fara í sturtu.
- Og að sofa í rúmi.
Ef foreldrar mínir hafa sett
þjófavörnina á er ég í vondum málum.
Ég sagði þér að hringja í þau
og segja þeim að við kæmum fyrr.
- Gerðirðu það?
- Nei, hann vill frekar kvarta.
Hvernig á ég annars að fá athygli?
- Þú hringdir ekki í foreldra þína.
- Þeir stjórna ekki lögregluveldi.
Bæ. Takk fyrir að keyra, Denny.
Bæ.
- Ekki gleyma handleggnum!
- Ó, glætan.
Komdu, Jim, drífum okkur.
Það er einhver í herberginu mínu! Sjáðu!
Hann er morðingi! Hann er með exi!
Hann reyndi að drepa mig!
Þetta er allt í lagi.
Farðu aftur í rúmið, Kevin.
Þessa leið.
Edward ætlar að búa með okkur.
Þú þarft ekkert að vera óróleg.
Við komum þér fyrir hérna rétt bráðum.
Hér er rúm í drottningarstærð,
hvort sem þú trúir því eða ekki.
Það er umbúið og allt. Flott.
Þetta er komið.
Hvað er að? Hvað er það?
Hræddi hún þig?
Þú hefur verið lokaður inní
þessum kastala of lengi.
Þú veist ekkert um dásamlegan heim
unglingsstúlkna. Þær eru allar klikkaðar.
- Hérna, þetta róar þig.
- Hvað er þetta?
Límonaði.
Ég veit ekki hvað það er.
Þær komast á vissan aldur.
Þessir kirtlar þroskast,
líkamarnir bólgna upp...
Þær verða klikkaðar.
Kirtlar?
Já, kirtlar.
Ég reyni að hugsa ekki um það.
Gott, ekki satt?
Þú verður í Kevins herbergi í nótt
og á morgun lögum við þitt herbergi.
Af hverju þurftirðu að koma
með hann hingað?
Ég gat ekki skilið hann eftir einan.
Þú hefðir gert það sama.
Af hverju þarf hann að vera hér?
Guð minn, Kim. Ég er hissa á þér.
Hann getur ekki gert að því hvernig hann er.
- Sýndu smá samúð.
- Ég sýni samúð.
Kastaðu þá á hann kveðju.
Komdu niður, taktu í höndina á manninum.
- Taka í höndina?!
- Ekki bókstaflega.
- Guð minn, þú hræddir úr honum líftóruna!
- Hræddi ég úr honum líftóruna?
Hæ, Bill! Ég vildi bara að þið
tvö yrðuð kynnt almennilega.
Edward, þetta er dóttir okkar Kim.
Kim, þetta er Edward,
sem ætlar að búa með okkur.
Hæ.
Eddie!
Þyrstur?
Kisses! Þegiðu!
Þegiðu nú!
Elskan, ég heyri mig varla hugsa!
Litla dúllan hennar mömmu...
Viltu kalt glas af límonaði?
Límonaði?
Eitt högg á hálsinn á gaurnum
og allt er búið.
Beittustu hlutir í heiminum.
Þau skera í gegnum allt.
Og...
Ég fæ hroll af þeim.
Þú ættir að sjá trúðinn
í garðinum hjá frú Peters.
Kim!
- Ó, nei.
- Er þetta hann?
- Hann er að kalla á þig, Kimba.
- Hættu!
Edward, þú gleymdir kökunum þínum.
Ekki hafa áhyggjur, Eddie.
Hún bíður eftir þér!
- Hættu!
- Komum.
Bill, Edward borðaði
hádegismat hjá Jackie í dag
og hún er búin að gera eldhúsið
algerlega upp.
- Hver fjandinn.
- Ný málað, nýir skápar, nýtt gólf,
- nýr örbylgjuofn, ný hljóðlát uppþvottavél.
- Er það ekki frábært?
Jim, varstu ekki að segja að mamma
þín hefði líka látið gera upp eldhúsið?
Jú. Pabbi keypti sér slatta af nýju dóti.
Sjónvarp með stórum skjá, geislaspilara
myndbandstæki fyrir fjórar spólur.
Í guðanna bænum!
Hvernig ætli sé að vera svo ríkur?
Þau læsa hlutina inni.
Pabbi er með sitt eigið herbergi fyrir
dótið svo ég geti ekki notað það.
Hann vill ekki einu sinni hjálpa mér að
kaupa gamlan bíl.
Hann vill sennilega að þú borgir fyrir þig.
Það byggir karakter. Þú munt meta það.
Pabbi!
Talandi um peninga mér skilst að þú
takir ekkert fyrir garðyrkjuna, Edward.
Bill... Marge bjó til kökur fyrir hann í dag.
Elskan...
Þú kaupir ekki lífsnauðsynjar með kö***.
Og þú kaupir ekki bíl með kö***.
Ekki satt, Jim?
Það er rétt, herra. Þú getur það ekki.
Ég get ekki borðað þetta.
Hann notaði hendurnar.
Mér finnst það ekki hreinlæti.
Fyrirgefðu.
Viltu að ég hjálpi þér að
þrífa þetta, elskan?
Nei, þetta er í lagi.
Ég kem rétt strax aftur.
Alexis?
Ó, þetta getur ekki verið Alexis mín!
Hún er svo falleg! Sjá þig! Krúttið!
Hún er stórkostleg. Þakka þér!
Þetta tekur enga stund.
Hún þarf bara að ákveða stílinn.
Og þá verður þetta fínt.
Ég var að vonast eftir einverju stóru
svolítið púffað. Svolítið einsog mitt.
Ekki hafa áhyggjur, Kisses,
þetta verður allt í lagi. Þú verður svo sæt.
Já, þú ert það.
Ó! Eddie, er það eitthvað
sem þú getur ekki?
Þú gerir mig orðlausa, ég sver það.
Sjá þetta!
Hefurðu klippt hár á kvenmanni?
Viltu klippa mitt?
Þetta var mest æsandi
upplifun lífs míns.
Þau eru að ná í forstjóra fyrirtækisins!
- Ég er komin heim!
- Hæ, elskan. Við erum hérna.
Hæ.
Hvað gerðirðu við hárið á þér?
Edward klippti það. Er það ekki villt?
Halló? Ó, ég trúi ekki að
ég sé að tala við þig.
Þvílíkur heiður.
Já. Hann er hérna.
Svo þú veist allt um það.
Það er einmitt það sem
ég hef verið að nota.
Sko, ég hef verið í smá vandræðum að ná
réttu þykktinni... bara smá.
Ég reyni það.
En hugvitssöm tilgáta.
Ég geri það. Þakka þér kærlega. Bæ, bæ.
Engin furða að hún stjórni fyrirtækinu.
Veistu, hún byrjaði einsog
ég sem sölufulltrúi.
Mig hefur allta langað að tala við hana
en ég hef aldrei fyrr haft ástæðu.
Takk, Edward.
- Hafði hún hugmyndir?
- Svo sannarlega.
Ég skal gera þetta.
Edward. Við erum hérna.
Komdu látum brýna þig.
HNÍFA OG SKÆRA BRÝNINGAR
- Ertu með hann?
- Nei. Ég trúi þessu ekki.
Þetta er svo glatað.
Hæ!
Bæ.
Ert þú með lykil?
Nei.
- Ég var viss um að þeir væru í veskinu mínu.
- Við komumst ekki lengra.
Vá! Takk!
Ed! Þvílíkur gaur! Vel gert!
Þú braust hann ekki eða rispaðir.
Vertu vinur og kallaðu þegar Peg kemur.
Þvílík saga.
Einhverjar spurningar til Edwards?
Já? Kemst ég í gegn.
Stattu upp.
Hvað er það besta við nýja lífið í bænum?
Vinirnir sem ég hef eignast.
Aðrar spurningar?
Hefurðu einhvern tíma hugsað um að fara
í skurðaðgerð eða að fá gervilim?
Ég þekki lækni sem gæti hjálpað þér.
Ég myndi vilja hitta hann.
Við fáum nafnið eftir þáttinn.
Þakka þér. Þetta var indælt.
Einhver annar? Já, stattu upp.
En þá værir þú einsog allir aðrir.
Já, ég veit.
Ég held hann myndi vilja það.
En þá fyndist engum þú sérstakur.
Þú yrðir ekki í sjónvarpinu eða neitt.
Hvað sem gerist þá verður
Edward alltaf sérstakur.
Fleiri spurningar? Já. Stattu upp.
Vinnan þín er svo áhugaverð,
sérstæð og einstök.
Hefurðu einhver plön
um að opna eigin snyrtistofu?
Ó, þar er hugmynd!
Einhver annar? Já. Stattu upp.
Áttu kærustu?
Auðvitað. Er það ekki, Kim?
- Er það ekki, Kim?
- Frábært! Þá byrjar hann.
Hættu þessu, kúlurass.
- Þú byrjaðir.
- Og?
Hvað með það, Edward?
Er einhver sérstök kona í þínu lífii?
Allt er í lagi. Við gerum hlé
og komum strax aftur eftir þessi skilaboð.
Af hverju ertu að hlæja? Hann meiddi sig!
- Þetta var bara smá lost.
- Smá lost?!
Ég vildi að við hefðum tekið þetta upp.
Ég gæfi eistað á mér fyrir að sjá þetta aftur.
Ertu ekki spenntur?
Þetta er svo spennandi!
Bíddu þangað til ég sýni þér það.
Einmitt það sem við vorum að leita að.
Ég vil kalla hana Shear Heaven!
Og þá erum við komin.
Hérna ætla ég að setja
röð af nýjum speglum.
Og hérna bakvið held ég...
Eddie! Komdu, krúsí.
Hérna bakvið heila röð að nýjum
snyrtivörum. Og meðfram hér...
- Peg gæti selt snyrtivörur.
- Já... auðvitað.
Og hérna þvoum við hárið.
Og hér stend ég...
og býð kúnnana velkomna.
En hérna bakvið er það
sem ég vil virkilega sýna þér.
Eddie... Þetta er það
sem ég vil virkilega sýna þér.
Hérna er geymslan þar sem við geymum allt,
og það sem ég þarf frá þér í dag
er að hjálpa mér að taka ákvörðun.
Elskan, nei!
Nei, ekki. Þetta er hættulegt.
Sestu bara hérna...
Ég er með slár.
Viltu að ég máti þær fyrir þig?
Já.
Allt í lagi.
Þessi er mitt uppáhald.
Þvi hún er gul...
Og hún er notuð...
til að taka litlu hárin sem
pirra þig á hálsinum.
Og svo er það þessi gömul fjólublá
sem þú vefur um þig einhvern vegin svona.
Mér finnst þessi flott.
Eddie, þú titrar.
Ég líka!
Ég hef beðið eftir þessari stund svo lengi.
Edward!
Edward, komdu aftur!
Þú getur ekki gert þetta!
Velcro límband, elskan.
- Það hangir á mælaborðinu.
- Ég hef aldrei séð það þar.
- Fyrirgefið að ég er seinn.
- Hæ, Edward.
Fyrirgefðu,
við þurftum að fara á undan þér. Hérna.
Edward, afkastaðir þú miklu í dag?
Frú Monroe sýndi mér
hvar stofan á að vera.
- Þú gætir haft búðaborð fyrir snyrtivörur.
- Væri það ekki frábært?
Frábært.
Svo sýndi hún mér bakherbergið
og þar fór hún úr öllum fötunum.
Edward, það er ótrúlegt hvað ég er
spenntur. Ég er í sjöunda himni.
Þetta mun kenna þér heilmikið.
Það er ekkert einsog að vera
eigin atvinnurekandi.
Ég hef aldrei verið það sjálfur
en ég hugsa að það sé frábærasta ánægja
sem vinnandi maður getur fengið.
Er þá ekki bankinn næstur?
Bankinn?
Já. Fá lán og byrja.
Engar áhyggur. Með þína hæfileika
og mannorð verður það ekkert mál.
Engin inneign,
ekkert um störf sem þú hefur unnið,
enginn sparnaður,
engar fjárfestingar...
engin kennitala
þú gætir alveg eins ekki verið til.
- Ekkert veðlán.
- Nei, við erum með annað á húsinu.
Skipta meðmælin engu?
Sástu að kona bæjarstjórans getur
ekki beðið eftir að verða viðskiptavinur?
Við einfaldlega getum þetta ekki.
Fáðu þér kennitölu,
stofnaðu reikning og kauptu þér bíl.
Þú hefur forréttindi.
Þú getur fengið spjald fyrir fatlaða
og lagt hvar sem þú vilt.
Ég trúi þessu ekki. Þetta er hneyksli.
Ekki hafa áhyggjur. Þetta er ekki búið.
Við fáum pening einhvers staðar.
- En það er innbrot.
- Foreldrar mínir eru tryggðir í topp.
Hvað kostar þetta þau?
Smá rifrildi og ekkert annað.
- Við getum þetta ekki.
- Gaurinn borgar með peningum fyrir draslið.
Ég vil þetta ekki.
Viltu ekki eiga sendibíl þar sem við
getum verið ein? Og dýnu aftur í?
Af hverju geturð ekki gert það?
Því herbergið er læst og við
þurfum Edward til að koma okkur inn.
Geturðu ekki tekið lykilinn
þegar hann sefur?
Það eina sem hann heldur
fastar um er typpið.
- Hnífskarpi gerir allt fyrir þig.
- Það er ekki rétt.
- Nei? Af hverju spyrðu hann ekki?
- Það er ekki sanngjarnt.
- Þá hvað? Það er engin önnur leið.
- Það hlýtur að vera.
Sko, ég er búinn að tæma heilann.
Viltu ekki að við eignumst sendibíl?
Jú.
Jim, það er kveik!
Ljósin kveikna sjálfkrafa.
Þau eru ekki heima um helgina, ég sagði það.
Út af innbrotsþjófum.
- Slökktirðu á þjófavörninni?
- Já. Komum.
Ég þoli þetta ekki.
Ertu viss um að hann viti ekki
að þetta er heima hjá Jim?
- Stal þessi frá ykkur?
- Talið lágt!
Ég sagði þér að hann stal því. Komum!
Segðu foreldrum hans
og þau láta hann skila því.
Heyrðu, ég reyndi það.
Þú sagðir Kim að þú ætlaðir að gera þetta.
Komdu!
Ókei, komum.
Helvítið hafði vírana aðskilda. Komdu!
Nei, Jim, við getum ekki skilið hann eftir!
- Komdu.
- Ég geri þetta ekki!
- Komdu, Kim.
- Stoppaðu!
Láttu mig niður!
Við vitum að þú ert þarna inni!
Við erum að taka kerfiið af svo þú komist út!
- Denny, snúðu við!
- Ekki möguleiki.
Jim, þeir geta ekki handtekið þig
fyrir að setja eigin þjófavörn á.
Við segjum þeim að við
höfum orðið hrædd og hlaupið.
- Ég ger ekki aftur til baka.
- Við verðum!
Nei. Faðir minn myndi kæra.
- Son sinn?
- Sérstaklega son sinn.
Og ef Edward kjaftar drep ég hann!
- Denny, snúðu við!
- Nei!
Þu verður!
Haldu höndunum uppi svo við sjáum þær!
Upp með hendurnar!
Hann heldur á einhverjur. Líkist hnífum.
Slepptu vopnunum!
Ég endurtek, slepptu vopnunum!
Ég bið þig einu sinni enn.
Þetta er síðasta viðvörun. Slepptu vopnunum.
Ef þú gerir það ekki verðum við að
skjóta. Ekki láta okkur gera það, félagi.
Slepptu vopnum. Slepptu þeim!
Núna!
Við erum líklega að fást við geðsjúkling.
- Tilbúnir að skjóta!
- Nei!
- Færið ykkur, konur!
- Þetta eru ekki vopn, þetta eru hendur hans!
Gerið það. Við þekkjum hann.
Allt í lagi. Handjárnið hann.
- Megum við hitta hann núna?
- Við verðum að halda honum í nótt.
- Verður hann að vera í fangelsi heila nótt?
- Þið getið sótt hann í fyrramálið.
Ó, Edward!
Halló, Edward.
Ó, Edward, elskan. Ég kenni mér um.
Hvað í guðs nafni varstu að hugsa, sonur?
Af hverju var ég ekki betri fyrirmynd?
Þú sást hvað ég öfundaði foreldra Jims.
Hvað ætlaðir þú að gera við þetta dót?
Ég sagði "Við fáum peninga
fyrir stofunni einhvernveginn",
en ég meinti ekki að stela.
Elskan, þjófnaður er ekki leiðin.
Þjófnaður er ekki leið að neinu.
Nema veseni.
Og þú ert í aldeilis í því.
Ó, Edward. Af hverju gerðirðu þetta?
- Helvítis sjónvarpsþættir!
- Til fjandans með þá alla!
Eða fékk einhver þig til að gera þetta?
Verður hann í lagi?
Þau ár sem hann eyddi í einangrun hafa
ekki kennt honum muninn á réttu og röngu.
Hann hefur engan samanburð.
Hann hefur verið algerlega án leiðsagnar.
Þar fyrir utan gefur vinna hans,
garðskúlptúrarnir, hárstíllinn og það
til kynna að hann er mjög hugmyndaríkur...
karakter.
En skilningur hans á því sem við köllum
raunveruleika og rökhugsun er vanþroskaður.
En verður í lagi með hann þarna úti?
Ó, já. Hann verður í lagi.
Heyrðu, þú gætir haldið vöku fyrir mér
hafandi áhyggjur af þér. Passaðu þig.
Það vildi svo til að ég var vakandi
svo ég heyrði lætin...
Ég vissi allan tíman, innra með mér,
að það væri eitthvað að honum.
- Þetta hefði getað verið mitt hús.
- Eða einhverra okkar, en...
Ég varaði ykkur við.
Ég sá merki Satans á honum.
Þið hlusuðuð ekki á varnarorð mín en
núna gerið þið það. Því þið sáuð það líka.
Edward, vertu hérna.
- Hvað viltu segja þér til varnar?
- Ekkert.
- Hann vill ekki tala.
- Þú verður að segja eitthvað.
- Hann getur ekki talað núna.
- Engin komment? Engar athugasemdir?
Varstu leiddur í gildru?
Hvað varstu að hugsa?
Hvað hefurðu sjálfur að segja?
- Eitt komment.
- Seinna.
Guð minn, Lois, ég sé þig örugglega
í jólaboðinu áður en
ég fæ þig hingað í klippingu!
Auðvitað höfum við það þetta ár.
Við höfum það hvert ár. Af hverju ekki?
Jæja!
Þú heldur það kannski en það er rangt.
Þú ert kominn.
Meiddu þeir þig nokkuð?
Varstu hræddur?
Ég reyndi að biðja Jim að fara til baka
en það er ekki hægt að biðja Jim um neitt.
Takk fyrir að segja þeim ekki að við...
Það var ekkert.
Það hlýtur að hafa verið hræðilegt
þegar þeir sögðu þér hver ætti heima þarna.
Ég vissi að Jim ætti heima þarna.
Er það?
Já.
Af hverju gerðir þú þetta þá?
Því þú baðst mig um það.
Kimba!
Kimmy!
- Ekki!
- Hvað er að þér?
Hvenær ætlarðu að hætta?
Ég gerði það sem ég gat.
Gamli kallinn heldur að hann sé þroskaheftur
svo hann er frjáls. Hvað meira viltu?
- Þú gætir sagt sannleikann.
- Þú líka. Þú varst þarna líka!
- Þú vissir að ég vildi ekki gera þetta.
- En þú gerðir það samt.
Ég skil ekki af hverju þú
ert með þennan skít.
Þú gætir kannski bætt fyrir
tjöldin og handklæðin,
en það verður erfitt að
bæta trúnaðartraust okkar til þín.
Pabbi.
Smá siðfræði. Þú gengur niður götu.
Finnur ferðatösku fulla af peningum.
Það er enginn í kring. Engin mennsk
manneskja er vitni. Hvað gerir þú?
A: Heldurðu peningunum.
B: Notarðu þá til að kaupa gjafir
fyrir vini og elskendur.
C: Gefurðu fátæ*** þá.
D: Skilarðu þeim til lögreglunnar.
- Pabbi, þetta er mjög heimskulegt.
- Kim...!
- Ég myndi eiga peningana.
- Róaðu þig.
Edward?
Eigum við að fara í keilu eftir
kvöldmat? Það væri gaman.
Hittirðu ekki Jim í kvöld?
Nei.
Við vorum með geðveika sýnikennslu í dag.
Ein kom með kassa af barna dóti.
Tíu eða tólf. Algerlega nöktum.
- Engin hár eða neitt.
- Elskan, pabbi þinn er ekki búinn enn.
Takk, elskan. Edward, við bíðum.
Gefa það til þeirra sem ég elska?
Ó, Edward, það virðist vera það sem
þú ættir að gera en svo er ekki.
Fáviti, það vita allir að þú
átt að láta lögregluna fá þá.
Vel hugsað, Kevin.
Hugsið um það krakkar.
Það er það góða við það.
Ég myndi gera það.
Við erum ekki að reyna að rugla hann
heldur auðvelda hlutina. Slepptu því gríninu.
Mér er alvara, pabbi.
Það er miklu fallegra.
Slepptu fallegu.
Við erum að tala um rétt og rangt.
Þegiðu!
Engin furða að a umingja Edward læri ekki
rétt frá röngu af því að búa fjölskyldunni!
Heyrðirðu hvað hann gerði
við gluggatjöldin hennar Peg?
Það er ótrúlegt að þau ætli þrátt fyrir
allt að hafa veisluna. Ætlar þú?
Ég held ekki.
Hann nauðgaði Joyce næstum,
hótaði henni með þessum hnífum.
Það er kraftaverk að hún slapp.
Ég hef ekkert á móti Bill og Peg, en...
Ég veit. Þau eru með unglings
dótturina heima.
Aumingjans fólkið!
Eftir það sem kom fyrir mig.
Geturðu ímyndað þér?
Hvað sagðirðu um jólaboðið?
Ég sagðist vona að við kæmumst.
Ég laug líka.
Edward? Viltu klippa mig?
- Aftur?
- Já, auðvitað!
Ég er stolt að hafa minn eigin
hárgreiðslumeistara.
Hæ, elskan.
- Kevin, viltu spila skæri, pappír, steinn?
- Nei.
- Af hverju ekki?
- Það er leiðinlegt. Mér leiðist að vinna alltaf.
- Tilfinningar fólks. Smá mannasiði!
- Ég verð úti.
Skiptir ekki máli, elskan. Klipptu bara.
GLEÐILEGA HÁTÍÐ
Ég sá þrú skip koma siglandi
Á jóladags morgun
Það þarf eitthvað annað.
Hvað finnst þér, elskan?
- Fleiri bjöllur?
- Allt í lagi.
Mamma, finnst þér í alvöru að
við ættum að hafa þessa veislu?
Auðvitað finnst mér við ættum
að hafa þessa veislu.
Það er einmitt það sem við þurfum til að
róa allt og allt verður eðlilegt á ný.
Ertu með fleiri bjöllur, elskan?
Nú er nóg komið.
Þetta er bara skráma, Jim, í alvöru.
Þetta er allt í lagi.
- Snertirðu hana aftur drep ég þig.
- Þetta er ekki neitt.
- Hringdu á lækni. Hann skar Kim.
- Nei!
Láttu hana vera. Ég meina það!
Þú snertir ekkert án þess að eyðileggja
það. Af hverju ertu annars hérna?
Sestu hérna niður og bíddu þar
til ég kem með klaka.
Vertu þarna. Ég kem strax.
Drullaðu þér héðan!
Drullaðu þér héðan! Farðu! Skrípi!
Edward, hvert ertu að fara?
Hvar er hann?
- Hann reyndi að meiða þig.
- Hann gerði það ekki og þú veist það.
Ertu klikkuð? Ég sá hann!
Jim, ég elska þig ekki lengur.
Ég vil að þú farir. Farðu!
Í alvöru?
Og missa þig til þessa?
Hann er ekki mennskur.
Farðu bara héðan. Farðu!
Pabbi, sástu hvert Edward fór?
Ég veit það ekki.
Hann ráfaði niður götuna.
- Við verðum að finna hann, mamma.
- Pabbi þinn finnur hann.
Farðu inn. Ég sé um þetta.
Ég fer að finna hann.
Edward!
Ég hringi á lögregluna!
Sérðu allt blóðið, elskan?
Og þetta er bara smá skráma.
Halló. Ég er hér til að hitta
manninn með hendurnar.
Hann er ekki hér. Þakka þér.
Ó, guð.
Helen, sástu hann í alvöru?
Já! Sjáðu!
Ég er að leita að manninum með skærin.
- Guði sé lof að þú ert hér.
- Hann fór þessa leið, herra.
Allt í lagi, slappið af.
Farið heim. Við sjáum um þetta.
Farið bara heim.
- Djöfull. Djöfull.
- Þið verðið að gera eitthvað!
Ég er viss um að pabbi
þinn finnur hann bráðum.
Hvað er klukkan?
Næstum 8.30. Frábær veisla.
Mamma, hvar eru þeir?
- Guð, ég vona að hann sé í lagi.
- Ég líka, elskan.
Veistu þegar ég kom með Edward
hingað til að búa með okkur
hugsaði ég hlutina ekki til enda.
Og ég hugsaði ekki hvað gæti
komið fyrir hann.
Eða okkur. Eða nágrannana.
Og nú held ég kannski...
að það væri best ef hann færi
aftur þarna upp.
Því þar er hann óhultur.
Og við gætum orðið eðlileg á ný.
Ég fór hálfa leið til Whitmans.
Og ég sá hann hvergi.
Förum í bílinn og leitum að honum.
- Hvar er Kevin núna?
- Hjá Max.
Ó, í guðana bænum!
- Hvert ert þú að fara?
- Með ykkur.
- Vertu hér ef einhver kemur.
- Við komum rétt strax, elskan.
Lögreglan!
Edward?
Er í lagi með þig?
Já. Ert þú í lagi?
Hvar eru allir?
Úti að leita að þér.
Haltu utan um mig.
Ég get það ekki.
Ég veit það er dálítið of snemma
fyrir jólin, Edward, en...
Ég er með gjöf handa þér.
Gleymdu því að halda í hendina á henni.
Pældu í skemmdunum sem hann
gæti gert öðrum hlutum.
Já, það er klikkað.
Mér finnst vera líða yfir mig eða
ég þurfi að æla eða eitthvað.
Seinna. Farðu fyrst
með mig heim til hennar.
Svona. Ekki láta mig keyra.
Gerðu það!
Jesús. Kannski hafði hún
rétt fyrir sér um þig.
- Keyrðu bara!
- Slappaðu af!
- Sjáumst á morgun. Hringdu í mig.
- Allt í lagi.
Hafa þeir náð honum?
- Hverjum?
- Honum! Kripplingnum.
Láttu mig vita þegar þeir gera það.
Láttu okkur öll vita.
Einsog góður strákur.
Kevin.
Er í lagi með þig?
Þetta er allt í lagi.
- Edward, hættu!
- Ég er vinur þinn!
Hjálpið okkur!
Hvað ertu að gera? Láttu hann vera!
- Slepptu mér!
- Ha?
Kevin!
- Komdu þér í burtu!
- Edward, komdu heim!
Hlauptu.
Kevin er í lagi!
Þetta var smá skráma!
Hann er farinn. Truflum hann ekki.
Látum hann eiga sig.
Áfram, hlauptu.
- Hvað gerðist? Er hann dáinn?
- Náðuð þið honum?
Þetta er búið. Farið heim.
Það er ekkert meira að sjá.
Hvað gerðist þarna úti?
Ég vil vita það! Ég vil svör!
Þetta er búið.
Hvar er hann?
Komdu hingað!
Ég vil spyrja þig að svolitlu!
Sjáðu þetta! Ég trúi þessu ekki.
Þeir náðu honum ekki. Ég er farin.
Nei! Það er ekki góð hugmynd.
Eru þau að koma?
Meiddi ég Kevin?
Nei. Hann er í lagi.
Hann var bara hræddur.
Edward, ég var svo hrædd.
Ég hélt þú værir dáinn.
Ekki ég.
Nei!
Nei!
Jim, hættu!
Nei!
Hættu. Eða ég drep þig.
Láttu hana vera!
Bless.
Ég elska þig.
Er hann þarna?
Hann er dáinn.
Þakið féll á hann.
Þeir drápu hvorn annan.
Þið sjáið það sjálf.
Sjáið?
Ég er farin heim.
Joyce...
Hún sá hann aldrei aftur.
Ekki eftir þetta kvöld.
Hvernig veistu?
Því ég var þarna.
Þú hefðir getað farið þangað.
Þú gætir það enn.
Nei, ástin.
Ég er gömul kona núna.
Ég vil frekar að hann muni mig
einsog ég var.
Hvernig veistu að hann er enn á lífi?
Ég veit það ekki.
Ekki fyrir víst.
Ég trúi því að hann sé það.
Áður en hann kom hingað snjóaði aldrei.
En eftir það snjóaði.
Ef hann væri ekki þarna núna
held ég að það myndi ekki snjóa.
Stundum dansa ég enn í honum.