Tip:
Highlight text to annotate it
X
Alþjóðleg fræðslumiðstöð Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) tók úrræðin saman í samvinnu við Samtök verslunarráða í Evrópu (EUROCHAMBRES)
innan ramma samþykktar um vitundarvakningu fyrirtækja um baráttuna gegn staðalímyndum kynjanna („Raising the awareness of companies about combating gender stereotypes“),
að beiðni aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu-, félagsmála og jafnra tækifæra.
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Við störfum í næststærstu borg Bretlands
og á síðustu 50 árum hefur áherslan færst úr framleiðslugreinum í skapandi greinar.
Eins og þið sjáið þá er þetta verksmiðja sem framleiðir búðinga og skrifstofurnar mínar eru hérna.
Punchrecords var í fyrstu sjálfstæð plötubúð sem seldi aðallega svarta tónlist.
Frá búðinni spratt hugmyndafræði...
… þannig að við notuðum fagurfræði Hip Hop menningarinnar og unnum með hana í skólunum.
Síðan fórum við að halda vinnufundi.
Það eru um það bil 10 ár síðan.
Svo merki kostenda eru neðst frekar en...
Já, já
Ég skil
Kjarnastarfsemi Punchrecords er á þremur ákveðnum sviðum:
Menntunarþjálfun, kynning hátíða og atburða og svo tónleikaferðalög
Þau hjá Punch eru brautryðjendur.
Þau hjálpa starfandi tónlistarmönnum listamönnum að þroskast.
Þetta er mjög lífleg, ung og klárlega skrifstofa þar sem konur eru í meirihluta.
Þegar við réðum aðra konuna fór þetta fyrst
að verða spennandi því listamennirnir voru oftar karlar.
Tónlistin og listgreinarnar sem við vinnum í,
… sem er svört tónlist og Hip Hop, þar eru aðallega karlar í forgrunni.
Þannig að það var núningur á milli þess sem við höfðum fram að færa
sem framtíðarsýn fyrirtækisins og þess sem listamennirnir vildu.
Það misvægi olli vandræðum.
Því fengum við ráðgjafa til að aðstoða yfirstjórnendur fyrirtækisins og suma listamennina.
Þegar maður ætlar að vinna í...
... mjög karllægri listgrein eins og Hip Hop, fylgir því ýmislegt sem taka þarf á
og ég átti mjög erfitt í fyrstu með að framfylgja áætlunum mínum um fyrirtækið.
Fyrirtæki í samkeppni leita að nýjungum og sköpunargleði.
Þeim er ljóst að hæfileikar eru kynlausir.
Þau ryðjast gegnum staðalímyndir karla og kvenna um hegðun, getu og kunnáttu.
Þau vilja fá rétta fólkið á réttan stað,
þekkja þann kraft sem felst í hvatningu og hjá þeim gildir í verki að
„fólkið er besta auðlindin okkar“.
Þegar fyrirtækin þora að verða brautryðjendur og brjóta niður staðalímyndir komast þau að
raun um að þau fá þá viðurkenningu að vera meðal bestu vinnustaðanna.
Hæft fólk flokkast til þeirra:
hæft fólk sem færir þeim hollustu, ástríðu og hæfni.
Slík fyrirtæki geta jafnvel sigrast á núverandi kreppu.
Þau eru að gera það.
Það sem gerðist var... þarna kom rétta fólkið inn í fyrirtækið á réttum tíma.
Þannig sáu þeir sem fyrir voru í fyrirtækinu með aðeins öðruvísi hætti hvað gerist þegar konum fjölgaði.
Það sem er spennandi við breytinguna er langtímasýn fyrirtækisins.
Ég er verkefnastjóri hér hjá Punch
Ég heiti Kate og er skrifstofu- og verkefnastjóri hjá Punchrecords.
Allt er orðið skilvirkara. Ég held að samtöl…
Liðsandinn er frábær.
Punch-teymið er ótrúlega áhugasamur hópur.
Og andrúmsloftið innan Punchrecords er opið.
Vegna þess að við sinnum hlutverkum okkar af hollustu og ástríðu eru samskiptin okkar góð.
Gott, umhverfið er mjög skapandi, Wiki-legt...
Það eru engar hindranir.
Hér er raunverulegur skilningur á hvar mörk fólks eru og mér finnst það skipta höfuðmáli.
Ég sem stefnu fyrirtækisins, sinni ráðningum...
Til að tryggja að við hlúum að jafnréttismenningu þegar við leitum eftir umsækjendum hef ég sett nýtt blað aftast
í umsóknina þar sem umsækjendur mega tilgreina hvort þeir eru karl eða kona,
hvort bakgrunnur þeirra er afrískur eða hvítur og svo framvegis.
En ég geng alltaf úr skugga um að það blað sé tekið úr umsókninni svo ekkert sé vitað um bakgrunn
umsækjandans og því hægt að einbeita sér að fullu að starfsferli hans.
Helstu ástæður þess að við notum það fyrirkomulag er til að sjá hvort ráðningaraðferðir
okkar ná til fólks með mismunandi bakgrunn.
Ekki endilega til að við fáum örugglega konur eða fólk úr þjóðernisminnihlutahópum,
heldur til að tryggja að við höfum aðgang að þeim tækifærum sem búa innan þessa fyrirtækis.
… við erum öll lífleg og vinaleg og vinnum náið saman…
Það eru engin fordæmi í nútímanum um núverandi samdrátt,
hvort sem er í Evrópu eða annars staðar í heiminum.
Þetta er hnattræn kreppa í eftirspurn og atvinnu.
Auð þess vekur það upp spurningar um framtíð okkar:
hvernig eigum við að takast á við málefni samfélagsins og umhverfisins?
Hvernig tryggjum við lífsgæði og mannsæmandi vinnu?
Fyrr eða síðar hefur það áhrif á okkur öll, karla og konur.
Það mun krefjast mikillar vinnu og nýrrar hugsunar að komast út úr kreppunni.
Framlag bæði kvenna og karla skiptir sköpum.
Við getum afkastað meiru, betur og með faglegri hætti,
og í þessu felst árangurinn aðallega af blönduðu hagkerfi og vinnuafli innan fyrirtækisins.
Hlutverk fyrirtækjanna er nauðsynlegt til að koma hagkerfinu af stað aftur þannig að kynjajafnvægi,
félagsleg og hagkvæm sjálfbærni ríki.
Þetta er einstakt tækifæri sem við megum ekki missa af!
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Rit þetta nýtur stuðnings áætlunar Evrópusambandsins um atvinnu og félagslega samstöðu (2007-2013).
Þeirri áætlun er stjórnað af aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála og jafnra tækifæra.
Tilgangur áætlunarinnar er fjárhagslegur stuðningur við framkvæmd markmiða Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála eins og lýst
er í framkvæmdaáætluninni um félagsmál, og stuðla þannig að því að markmið Lissabonáætlunarinnar nái fram að ganga á þessum sviðum.
Áætlunin er gerð til sjö ára og beinist að öllum hagsmunaaðilum sem geta hjálpað við þróun viðeigandi og áhrifaríkrar löggjafar og stefnumótunar í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins,
fríverslunarsamtö*** Evrópu, evrópska efnahagssvæðinu,mögulegum aðildarríkjum og löndum sem ekki koma enn til greina sem aðildarríki.
Tilgangur PROGRESS er að styrkja framlag Evrópusambandsins til stuðnings við skuldbindingar og aðgerðir aðildarríkja til að skapa fleiri og betri störf og stuðla að meiri samstöðu í samfélaginu.
Í þeim tilgangi mun PROGRESS beita sér fyrir:(1) greiningu og ráðgjöf varðandi stefnu í málaflokkum PROGRESS,
(2) eftirliti og skýrslugjöf varðandi framkvæmd á löggjöf og stefnu Evrópusambandsins með tilliti til málaflokka PROGRESS,
(3) stefnuflutningi, fræðslu og stuðningi meðal aðildarríkja varðandi markmið og forgangsatriði Evrópusambandsins, og
Nánari upplýsingar má nálgast á:http://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=327&langId=en
(4) miðlun sjónarmiða hagsmunaaðila og þjóðfélagsins í heild.
Upplýsingarnar sem er að finna í þessu riti endurspegla ekki endilega afstöðu eða skoðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Hvorki framkvæmdastjórnin né aðrir sem starfa á vegum hennar bera ábyrgð á því hvernig upplýsingarnar í þessu myndbandi gætu verið notaðar.