Tip:
Highlight text to annotate it
X
Þetta er ESOcast!
Vísindi í fremstu röð og lífið á bak við tjöldin
hjá ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli.
Milli 14. og 16. desember 2012
setti loftsteinadrífan Geminítar upp
glæsilega sýningu á himninum
yfir Paranal stjörnustöð ESO.
Gianluca Lombardi, einn af ljósmyndurum ESO
kom myndavélinni sinni fyrir
og ljósmyndaði sjónarspilið.
Hér sést það sem hann sá
á þeim 40 klukkustundum sem myndirnar voru teknar.
Geminítar eru loftstainaregn sem stefnir
frá stjörnumerkinu Tvíburunum.
Ár hvert plægir jörðin sig í gegnum braut
virka smástirnisins 3200 Phaethon
og rykið breytist í ljós
þegar það brennur upp í lofthjúpnum.
Leysigeisli VLT býr til gervistjörnu
hátt í lofthjúpi jarðar
sem hjálpar til við að ná mjög skýrum myndum.
Þegar loftsteinarnir eru skoðaðir betur
sést að sumir skildu eftir sig reykslóðir.
Alþjóðlega geimstöðin
lét líka sjá sig.
ESOast er framleitt af ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli www.eso.org
ESO, Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli, er fremsta fjölþjóðlega stjarnvísinda- og tæknisamtök heims
ESO er afkastamesta stjörnustöð í heiminum, bæði þegar geimsjónaukar og sjónaukar á jörðinni
Handrit ESo; þýðing: Sævar Helgi Bragason