Tip:
Highlight text to annotate it
X
(Trina Roy - verkfræðingur hjá Pixar) Ég byrjaði í hugbúnaði með vinnu við
Shrek reyndar fyrir löngu, löngu síðan.
Maður notar þessar undirstöðu einingar
lykkjur og teljara og algrím.
Maður notar þessa hluti á hverjum einasta degi og
smám saman byggir maður úr þeim
og úr verður tæki sem listamaður getur tekið
og unnið með það og gert virkilega ótrúlega hluti með því
Hæ þarna, svo þú kláraðir ferningana þína - vel gert.
Við ætlum að hafa þetta svolítið auðveldara í þetta sinn.
Við ætlum að hafa sömu ferningana
en ætlum að nota nokkuð sem kallast teljaralykkja.
Teljari endurtekur sig eins og venjuleg lykkja,
en í hverri umferð
er bætt við tölu.
Þú sérð teljaralykkju hérna,
hún var sótt úr flokknum lykkjur.
Síðan hefur þú fallið teikna ferning
sem þú hefur verið að nota allan tímann.
Síðan ferð þú bara inn í flokkinn breytur
og dregur út kubb fyrir teljara og setur hann í reitinn fyrir lengd.
Þá hefurðu fengið eitthvað sem segir
telja með teljara - frá 50 til 90 um 10 - teikna ferning.
Það sem þetta gerir
er að fyrst teikna ferning með hliðar 50,
síðan bætir það 10 við teljarann,
og teiknar aftur, og í hverri umferð bætir það 10 við.
Þannig færð þú ferninga í stærð 50, 60, 70, 80, 90.
Svo uppvakningurinn á eftir að verða fínasti listamaður.
Vel gert!