Tip:
Highlight text to annotate it
X
Útbreiðslustarf
Stephane Guisard dýrkar stjörnurnar.
Ekki skrítið að hann hafi dálæti á norður Chile líka.
Hér er útsýnið út í alheiminn með því besta sem gerist á jörðinni.
Því skyldi engan undra hvers vegna hann dýrkar Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli
— auga Evrópu á himninum.
Stephane er franskur verðlaunaljósmyndari og rithöfundur.
Hann er líka einn af ljósmyndurum ESO.
Glæsilegar myndir hans sýna vel afskekkta Atacamaeyðimörkina,
fullkomna hátækni-risasjónauka
og mikilfengleika næturhiminsins.
Líkt og aðrir ljósmyndarar ESO út um allan heim
hjálpar Stephane til við að breiða út boðskap ESO.
Boðskap forvitni, undrunar og innblásturs,
sem miðlað er í gegnum samvinnu og útbreiðslustarf.
Samvinna hefur ætíð verið grunnurinn að árangri ESO.
Fyrir fimmtíu árum
tók Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli
til starfa með stofnríkjunum fimm:
Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Svíþjóð.
Fljótlega fylgdu önnur Evrópuríki í kjölfarið.
Danmörk árið 1967, Ítalía og Sviss árið 1982. Portúgal árið 2011.
Bretland árið 2002.
Síðasta áratug hafa Finnland, Spánn, Tékkland og Austurríki
bæst í hóp stærstu stjarnvísindasamtaka Evrópu.
Nú síðast varð Brasilía 15. aðildarríki ESO
og fyrsta ríki utan Evrópu til að taka þátt.
Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér?
Saman tryggja aðildarríkin bestu mögulegu stjarnvísindarannsóknir
í stærstu stjörnustöðvum heims.
Og þátttakan er góð fyrir efnahag þeirra líka.
ESO starfar náið með iðnaði í Evrópu og Chile.
Vegir hafa verið lagðir.
Fjallstindar jafnaðir.
Ítölsku iðnaðarsamtökin AES
byggðu aðalmannvirki VLT sjónaukanna fjögurra.
Hver sjónauki vegur um 430 tonn.
Samtökin smíðuðu líka risahvolfin í kringum þá, hvert á stærð við tíu hæða byggingu.
Þýski glerframleiðandinn Schott bjó til hina viðkvæmu spegla VLT
sem eru meira en átta metra breiðir en aðeins tuttugu sentímetra þykkir.
Í REOSC í Frakklandi
voru speglarnir slípaðir með nákvæmni upp á milljónasta úr millímetra,
áður en þeir voru sendir í langferðina til Paranal.
Á meðan þróuðu háskólar og rannsóknastofnanir í Evrópu
ljósnæmar myndavélar og litrófsrita.
Sjónaukar ESO eru byggðir fyrir fé skattgreiðenda.
Þína peninga.
Þess vegna getur þú tekið þátt í veislunni.
Til dæmis eru heilmiklar stjarnfræðiupplýsingar á vef ESO,
þar á meðal mörg þúsund fallegar ljósmyndir og myndskeið.
ESO gefur líka út tímarit, fréttatilkynningar
og heimildarmyndir eins og þá sem þú ert að horfa á núna.
Og út um allan heim
leggur Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli sitt af mörkum til sýninga og vísindahátíða.
Óteljandi leiðir til að uppgötva alheiminn!
Vissir þú að VLT sjónaukarnir fjórir eru nefndir eftir
uppástungu ungrar stúlku frá Chile?
Hin 17 ára Jorssy Albanez Castilla
stakk upp á nöfnunum Antu, Kueyen, Melipal og Yepun
sem þýða sólin, tunglið, Suðurkrossinn og Venus í Mapuche tungumálinu.
Mikilvægt er að fá nemendur eins og Jorssy til þátttöku.
Þar koma menntaverkefni ESO til sögunnar,
eins og verkefni og fyrirlestrar í skólum.
Þegar reikistjarnan Venus gekk fyrir sólina árið 2004
var sérstöku verkefni beint að nemendum og kennurum í Evrópu.
Og árið 2009, á Alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar,
náði ESO til milljóna skólabarna út um allan heim.
Þegar öllu er á botninn hvolft eru börn dagsins í dag, stjörnufræðingar framtíðarinnar.
En þegar kemur að útbreiðslustarfi er ekkert sem slær út sjálfan alheiminn.
Stjörnufræði er myndræn vísindagrein.
Ljósmyndir af vetrarbrautum, stjörnuþyrpingum og stjörnumyndunarsvæðum vekja áhuga.
Þegar rannsóknir standa ekki yfir
eru sjónaukar ESO stundum notaðir í Cosmic Gems verkefnið
sem snýst eingöngu um að taka myndir til að miðla vísindunum til almennings.
Ein mynd segir jú meira en þúsund orð.
Almenningur getur jafnvel tekið þátt í að útbúa þessar glæsilegu myndir
í gegnum Hidden Treasures keppnirnar.
Rússneski stjörnuáhugamaðurinn Igor Chekalin varð hlutskarpastur í keppninni árið 2010.
Glæsilegar myndir hans eru byggðar á raunverulegum vísindagögnum.
Aðildarríki, iðnaður og háskólar.
Með samstarfi á öllum hugsanlegum stigum
hefur ESO orðið að einum farsælustu stjarnvísindasamtö*** heims.
Og í gegnum útbreiðslustarfið er þér boðið að taka þátt í ævintýrinu.
Þú getur uppgötvað alheiminn!