Tip:
Highlight text to annotate it
X
[Tónlist]
Daria Musk: Ég byrjaði að semja lög þegar ég var 14 ára og mig dreymdi um að kannski væri
stærri hópur til staðar sem ég gæti sungið fyrir. Kannski væri fólkið mitt einhvers staðar þarna úti.
Svo ég skráði mig á Google+. Það virkaði sniðugt og skemmtilegt. Og ég setti upp
handskrifað skilti sem á stóð „Tónleikar í hangout +Daria Musk.“
Ég ýtti á „Stofna hangout“ og það var enginn á svæðinu. Guð, hugsaði ég,
ég hef spilað nægilega oft fyrir tómum sal til að þekkja tilfinninguna.
Rétt í því birtist andlit, síðan annað og annað – og það sem kom mér á óvart var hversu fljótt
þetta varð alþjóðlegt.
Við höfum haldið þrenna stóra tónleika í hangout og yfir 200.000 manns horfðu á
þriðju tónleikana í hangout. Það hafa því allir fengið tækifæri.
Mér datt í hug að taka „+1 Me,“ því það er Hangout lagið.
[Sungið: I watched the sunrise in Norway through your laptop screen…]
Að hitta fólk í hangout er svo ekta og færir mig nálægt áhorfendanum.
– ég get svo fylgt því eftir með því að gefa tónlistina mína út.
Í raun gátum við tekið hljóðrásina frá fyrstu hangout-tónleikunum mínum og notað fyrir
fyrstu tónleikaplötuna mína.
[Sungið af Daria og R.A.M.: …Baby plus one me baby plus one me...]
Ef þú ferð núna á Google+ og sýnir að þú ert að gera eitthvað merkilegt mun fólk
taka eftir þér. Þannig virkar þetta.
Fólk finnur samstarfsaðila og aflar aðdáenda frá öllum heimshornum, á augabragði.
[Sungið: Love love love, The way you move me...]
Google+ breytti sannarlega lífi mínu, breytti hjarta mínu. Það breytti öllu í einu vetfangi.
[Sungið: …love love love]