Tip:
Highlight text to annotate it
X
Alþjóðleg fræðslumiðstöð Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) tók úrræðin saman í samvinnu við Samtök verslunarráða í Evrópu (EUROCHAMBRES)
innan ramma samþykktar um vitundarvakningu fyrirtækja um baráttuna gegn staðalímyndum kynjanna („Raising the awareness of companies about combating gender stereotypes“),
að beiðni aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu-, félagsmála og jafnra tækifæra.
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Samtökin Caritas Sozialis veita þjónustu snemma og seint á lífsleiðinni.
Við sérhæfum okkur í leikhópum, leikskólum og umönnun fyrir aldraða.
Við höfum verið með leikhópa frá 1995.
Við erum með 3 leikhópa og 2 smábarnahópa.
Alls erum við með 105 börn.
Af starfsmönnum eru 10% karlar og 90% konur.
Sögulega hafa konur verið í meirihluta í umönnunarstarfsgreinum.
Sama á við um leikhópana, fólk heldur að börn fái
betri umönnum frá konum en körlum.
En þetta er að breytast,
þó það gerist afar hægt,
en ég held að við séum á réttri braut.
Ég heit Christian Paul.
Ég er 27 ára og eini karlkennarinn í leikhópunum hjá CS Playgroup.
Jú, það eru karlkennarar og kvenkennarar í leikhópum.
Hvað olli því að þú ákvaðst að verða kennari í leikhópum?
Fyrir um 14 árum
fæddist litla systir mín.
Ég var 13 og ég lék mikið við hana.
Svo mamma sagði:
„Þarna sérðu! Þú getur unnið við þetta!
Verið kennari í leikhópum!“
...allir saman…
Yfirleitt þarf maður sem karl að finna sína leið
í atvinnugrein þar sem konur eru ríkjandi og fá viðurkenningu.
Það er fyrsta skrefið, held ég.
Einu atriði má ekki horfa framhjá, auðvitað.
En það er að umönnunarstörf eru afar illa launuð
og karlar leita eðlilega í starfsgreinar þar sem launin eru hærri.
En Christian var kyrr hjá okkur
og við erum mjög ánægð og stolt af því.
Ég komst að nokkru áhugaverðu í viðtölunum, en það var
að eftir 3 eða 4 spurningar, þegar ég spurði karlana
sem vildu fá starf í umönnunargreinum
„hver eru markmið þín til meðallangs tíma?“
þá svöruðu þeir,
„ég myndi vilja stjórna hópnum þegar þar er komið“.
Þegar ég spurði konur að því sama svöruðu þær,
„Ég vil fyrst fá starfið, ná áttum og svo þegar börnin mín eru orðin nógu gömul,
gæti farið svo að ég myndi vilja verða stjórnandi“.
Þarna eru tvær gjörólíkar leiðir.
Í öllum aðildarríkjum ESB er litið á umönnun barna, fullorðinna og öryrkja sem kvennastörf.
Hin hlið málsins eru neikvæð áhrif af foreldrahlutverkinu á atvinnu kvenna,
bæði sem meðaltal í ESB (-12,4 prósentustig!) og í nærri því hverju einasta landi, en það er jákvætt fyrir karla.
Árið 2007 var atvinnustig karla með börn undir 12 ára 7,3 prósentustigum hærra en barnlausra karla!
Ennfremur er tenging á milli þess hve tiltæk dagvistun er fyrir börn og áhrifa foreldrahlutverksins á atvinnustig.
Jafnvel þó verulegur munur sé á milli aðildarríkja ESB eykst þörfin á umönnunarþjónustu allsstaðar.
Umönnun barna, aldraðra eða öryrkja er vaxandi starf.
Því skyldu karlar ekki nýta sér það?
Sem samstarfsmaður og kennari er yndislegt að vera með honum.
og það er auðvelt að vinna með honum.
Hann á mjög auðvelt með samskipti við börnin og þau kunna mjög vel við hann.
Þau eru virkilega hrifin af honum!
Í rauninni, þegar maður byrjar, lítur fólk á mann eins og maður sé skrítinn,
foreldrar, jafnvel samstarfsmenn
en það breytist fljótt í mjög góða tilfinningu
því það er mikilvægt
að karlkennarar séu líka til staðar.
Lena vinnur með Christian í leikhópnum.
Mér finnst mikilvægt að hafa karlkennara í leikhópum, karl-umönnunaraðila
því þeir leggja eitthvað annað til starfsins.
Karlar og konur bregðast við ákveðnum aðstæðum með mismunandi hætti.
Og það er gott fyrir börnin síðar í lífinu. Þau ættu að kynnast þessu snemma.
Á síðustu 3 mánuðum hef ég tekið eftir
hvernig Julian bregst við Christian og svarar spurningum hans, og það er mjög mikilvægt fyrir þroska hans.
Ég held að stöðugt fleiri karlar séu nú að bætast í starfið og því ber að fagna.
Foreldrarnir hafa alltaf viljað að það væru fleiri karlar og þeir eru afar áhugasamir.
Eftir þessa reynslu ákváðum við að það ættu að vera 3 karlar meðal starfsmanna í leikhópnum
því okkur finnst það almennt mikilvægt fyrir þroska barna
að þau hafi samskipti við fólk af báðum kynjum.
Því finnst mér fjölgun karla hérna jákvætt skref.
En jafnvægið á milli karla og kvenna er enn ekki eins gott og það gæti verið.
Sú klisja að konur séu ríkjandi í leikhópum
er ekki besta staðan, held ég.
Því fullkominn leikhópur væri samansettur til jafns
af körlum og konum.
Þannig gætum við virkilega sinnt starfinu
og uppfyllt um leið þarfir barnanna.
Eru konur fæddir umönnunaraðilar? Nei, það er bara staðalímynd.
Hvað eru konur? Hvað eru karlar?
Einstaklingar með eigin einkenni, kunnáttu og reynslu.
Til eru karlar sem geta, eins og margar konur, verið góðir kennarar og umönnunaraðilar.
Jafnvægi á milli karla og kvenna í öllum störfum mun leiða til réttlátari heims,
þar sem frábær frammistaða og aukin velmegun fæst með því að brúa bilið á milli kynjanna.
Núna eru konur 80% og karlar 20% .
Ég kysi frekar 50/50%,líka í stjórnunarstöðum.
Ég er viss um að við gætum náð því
ef til vill á 10 árum.
Frábært, fínt
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Rit þetta nýtur stuðnings áætlunar Evrópusambandsins um atvinnu og félagslega samstöðu (2007-2013).
Þeirri áætlun er stjórnað af aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála og jafnra tækifæra.
Tilgangur áætlunarinnar er fjárhagslegur stuðningur við framkvæmd markmiða Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála eins og lýst
er í framkvæmdaáætluninni um félagsmál, og stuðla þannig að því að markmið Lissabonáætlunarinnar nái fram að ganga á þessum sviðum.
Áætlunin er gerð til sjö ára og beinist að öllum hagsmunaaðilum sem geta hjálpað við þróun viðeigandi og áhrifaríkrar löggjafar og stefnumótunar í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins,
fríverslunarsamtö*** Evrópu, evrópska efnahagssvæðinu,mögulegum aðildarríkjum og löndum sem ekki koma enn til greina sem aðildarríki.
Tilgangur PROGRESS er að styrkja framlag Evrópusambandsins til stuðnings við skuldbindingar og aðgerðir aðildarríkja til að skapa fleiri og betri störf og stuðla að meiri samstöðu í samfélaginu.
Í þeim tilgangi mun PROGRESS beita sér fyrir:(1) greiningu og ráðgjöf varðandi stefnu í málaflokkum PROGRESS,
(2) eftirliti og skýrslugjöf varðandi framkvæmd á löggjöf og stefnu Evrópusambandsins með tilliti til málaflokka PROGRESS,
(3) stefnuflutningi, fræðslu og stuðningi meðal aðildarríkja varðandi markmið og forgangsatriði Evrópusambandsins, og
(4) miðlun sjónarmiða hagsmunaaðila og þjóðfélagsins í heild.
Nánari upplýsingar má nálgast á:http://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=327&langId=en
Upplýsingarnar sem er að finna í þessu riti endurspegla ekki endilega afstöðu eða skoðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Hvorki framkvæmdastjórnin né aðrir sem starfa á vegum hennar bera ábyrgð á því hvernig upplýsingarnar í þessu myndbandi gætu verið notaðar.