Tip:
Highlight text to annotate it
X
Alþjóðleg fræðslumiðstöð Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) tók úrræðin saman í samvinnu við Samtök verslunarráða í Evrópu (EUROCHAMBRES)
innan ramma samþykktar um vitundarvakningu fyrirtækja um baráttuna gegn staðalímyndum kynjanna („Raising the awareness of companies about combating gender stereotypes“),
að beiðni aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu-, félagsmála og jafnra tækifæra.
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Fyrirtækið starfar á sviði samskipta.
Við erum samskiptafyrirtæki. Við sinnum líka þýðingum, skrifum texta...
prófarkalestri, útgáfu...
Reksturinn skiptist því í nokkrar einingar.
Ég heiti Ruth Minten, framkvæmdastjóri TxT-IBIS.
TxT-IBIS er samskiptafyrirtæki sem hefur nú starfað í 20 ár.
Reksturinn byggir á því að í Belgíu eru tvö tungumál.
Upprunalega vorum við þýðingafyrirtæki en þróuðumst í fyrirtæki með mismunandi viðskiptaeiningar.
Hjá TxT-IBIS starfa nú 20 manns
Starfsumhverfið hjá TxT-IBIS er mjög ólíkt því sem ég hef séð hjá öðrum fyrirtækjum sem ég hef unnið hjá.
Það er ákaflega afslappað.
Við höfum nú unnið í þessari byggingu í fjögur ár.
Skrifstofan er opið rými en það eru nokkrar lokaðar skrifstofur þar sem fólk getur unnið í næði.
Sú staðreynd að við sitjum öll við sama stóra borðið
ætti að gefa hugmynd um hver stefna fyrirtækisins er.
Stjórnendur setjast niður með teyminu.
Hér vinna bæði karlar og konur.
50% af starfsfólki TxT-IBIS eru karlar og 50% konur.
Sá sem ég vinn nánast með er ungur karlmaður.
Mér finnst það mjög mikilvægt að hafa eins marga karla
og konur vegna þess að bæði kynin hafa sína séreiginleika.
Með því að leiða þau saman náum við fram dýrmætum samlegðaráhrifum.
Mér finnst það meiriháttar ávinningur fyrir fyrirtækið.
Þegar við þurfum nýtt fólk í teymið afla ég umsækjenda á grunni þess hvað þeir geta gert.
Kunnátta er mikilvæg, ekki kyn.
Það er utanaðkomandi fyrirtæki sem metur stjórnunarteymið, til að hvetja þau til dáða.
Þannig mat er gott fyrir virkni fyrirtækisins og er ánægjulegt fyrir bæði starfsmenn og stjórnendur.
Þegar ég varð framkvæmdastjóri fyrir einu ári leiðbeindi Ruth mér og ég fékk mikið út úr því.
Til að byrja með prófuðum við stjórnunarkunnáttu mína og könnuðum hve langt ég gæti aukið hana...
...og haldið áfram að hvetja fólk.
Það kemur sér mjög vel að hafa einhvern hjá sér sem metur mann.
Mér fannst, sem framkvæmdastjóra, að ég nyti stuðnings hinna framkvæmdastjóranna.
Fyrir sex vikum tók ég til dæmis þátt í Jump Forum...
... fyrir konur sem eru frumkvöðlar og framkvæmdastjórar.
Sveigjanleiki: ef fólk er ánægt heima verður það líka ánægt í vinnunni
Hvað þýðir sveigjanleiki?
Á vinnumarkaði okkar er sveigjanleiki það sem getur af sér meiri samkeppnishæfni.
Sveigjanleiki hefur víða merkingu.
Fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki merkir það að vera ávallt til taks,
uppfylla þarfir viðskiptavinarins á réttum tíma og geta sinnt mörgum verkefnum.
Fyrir fólk er sveigjanleiki aðferð til að samræma vinnu og einkalíf.
Á grunni virðingar og gagnkvæmni hefur sannast að sveigjanleiki er aðferð sem nýtist öllum.
Hvernig virkar hann?
Til að ná mestu afköstum þurfa lítil og meðalstór fyrirtæki skýrt skilgreind markmið,
gegnsætt mat og ábyrgt, skuldbundið fólk.
Aðgerðir til samræmingar gera bæði körlum og konum
kleift að úthluta tíma á sanngjarnari hátt og bæta eigin velferð.
Á slí*** grunni er hægt að byggja hágæðaafköst sem eru varanleg.
Ég heiri Bram Van Meervenne. Ég er yfirritstjóri hjá TxT-IBIS.
TxT-IBIS er mjög sveigjanlegt.
Ég á tvö börn og ef ég þarf að vera heima vegna annars þeirra get ég það á meðan ég útvega dagvistun.
Sveigjanleiki virkar í báðar áttir.
Venjulega vinn ég fjóra daga í viku.
Stundum vinn ég yfirvinnu eða tek vinnu með mér heim, en ávallt innan ásættanlegra marka.
Vinnuveitandinn er sveigjanlegur varðandi vinnutíma.
Ef ég bið um að fá að fara fyrr,
til dæmis til að sækja börnin snemma í skólann, skilur yfirmaðurinn það.
Ég held að fjölskyldan skipi mikilvægan sess hjá þessu fyrirtæki.
Ég er líka móðir. Börnin mín eru nú fullorðin en þau voru einu sinni lítil.
Ef ég fengi fjárstuðning frá stjórnvöldum myndi mig langa
til að setja á fót dagvistun fyrir börn starfsmannanna...
og annarra fyrirtækja á svæðinu.
Það er góð hugmynd því það er ekki auðvelt að finna dagvistun fyrir börn lengur en 6 tíma á dag.
Snjöll lítil og meðalstór fyrirtæki bæta aðgerðir til samræmingar líka fyrir karla.
Þannig ná þau fram þreföldum jákvæðum áhrifum:
Laða til sín unga karla sem vilja nútildags gott jafnvægi vinnu og einkalífs.
Þau halda í hæfar konur.
Þau veita bæði konum og körlum vinnuumhverfi þar sem þau geta fullnýtt hæfileika sína.
Til að ná góðu jafnvægi á milli vinnu og einkalífs þarf að vera til staðar dagvistun á viðráðanlegu verði.
Sá fjöldi aðildarríkja fer vaxandi þar sem sjóðum er úthlutað til lítilla
og meðalstórra fyrirtækja til að koma á fót dagvistunarþjónustu.
Í því felst bæði tækifæri og erfitt viðfangsefni, ekki aðeins fyrir stór fyrirtæki,
heldur ekki síður fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru nátengd heimasvæðum sínum og samfélögum.
Sveigjanleiki er ein stærsta eign TxT-IBIS.
Í gegnum árin hefur mér tekist að vera sveigjanlegur gagnvart óskum viðskiptavina...
Líka út frá sjónarmiði efnahagslífsins hnattrænt.
Við eigum auðvelt með að bregðast við viðskiptatækifærum vegna
þess að starfsmenn okkar sinna margskonar verkum.
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Rit þetta nýtur stuðnings áætlunar Evrópusambandsins um atvinnu og félagslega samstöðu (2007-2013).
Þeirri áætlun er stjórnað af aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála og jafnra tækifæra.
Tilgangur áætlunarinnar er fjárhagslegur stuðningur við framkvæmd markmiða Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála eins og lýst
er í framkvæmdaáætluninni um félagsmál, og stuðla þannig að því að markmið Lissabonáætlunarinnar nái fram að ganga á þessum sviðum.
Áætlunin er gerð til sjö ára og beinist að öllum hagsmunaaðilum sem geta hjálpað við þróun viðeigandi og áhrifaríkrar löggjafar og stefnumótunar í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins,
fríverslunarsamtö*** Evrópu, evrópska efnahagssvæðinu,mögulegum aðildarríkjum og löndum sem ekki koma enn til greina sem aðildarríki.
Tilgangur PROGRESS er að styrkja framlag Evrópusambandsins til stuðnings við skuldbindingar og aðgerðir aðildarríkja til að skapa fleiri og betri störf og stuðla að meiri samstöðu í samfélaginu.
Í þeim tilgangi mun PROGRESS beita sér fyrir:(1) greiningu og ráðgjöf varðandi stefnu í málaflokkum PROGRESS,
(2) eftirliti og skýrslugjöf varðandi framkvæmd á löggjöf og stefnu Evrópusambandsins með tilliti til málaflokka PROGRESS,
(3) stefnuflutningi, fræðslu og stuðningi meðal aðildarríkja varðandi markmið og forgangsatriði Evrópusambandsins, og
(4) miðlun sjónarmiða hagsmunaaðila og þjóðfélagsins í heild.
Nánari upplýsingar má nálgast á:http://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=327&langId=en
Upplýsingarnar sem er að finna í þessu riti endurspegla ekki endilega afstöðu eða skoðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Hvorki framkvæmdastjórnin né aðrir sem starfa á vegum hennar bera ábyrgð á því hvernig upplýsingarnar í þessu myndbandi gætu verið notaðar.