Tip:
Highlight text to annotate it
X
Með Hangouts On Air er lítið mál að senda út afdrep til heimsbyggðarinnar í beinni
og taka þau upp sem YouTube vídeó.
Byrjaðu með því að smella á „Stofna afdrep“.
Bjóddu fólki að vera með í afdrepinu.
Gefðu afdrepinu heiti og smelltu á „Virkja Hangouts On Air“.
Lestu og samþykktu lagaskilmálana til að halda áfram. Þú þarft aðeins að gera þetta í eitt sinn.
Þegar þú ræsir Hangouts On Air í fyrsta sinn biðjum við þig um að tengja YouTube reikninginn
til að við getum tekið upp afdrepin og sett þau á rásina þína á YouTube.
Smelltu á „Fara í afdrep“. Afdrepið hefst en hafðu ekki áhyggjur, hvorki útsendingin
né upptakan hefjast strax.
Þegar í afdrepið er komið skaltu athuga lýsinguna og myndavélina til að þú lítir nú vel út.
Til að streyma afdrepið í beinni á öðru vefsvæði skaltu afrita og líma tengilinn til að fella afdrepið inn.
Þegar þú ert tilbúin(n) skaltu smella á „Hefja afdrep“. Nú hefst bein útsending afdrepsins á prófílnum
þínum á Google+, YouTube reikningnum þínum og þeim vefsvæðum þar sem þú hefur fellt það inn.
Þegar útsendingin er í gangi sjá áhorfendur allt sem þú sérð í afdrepinu
fyrir utan spjallsamtöl
og hve margir eru að horfa á útsendinguna.
Þú getur þaggað í fólki í afdrepinu ef það er hávaði í bakgrunni hjá því.
Eða smelltu á vídeó einhvers til að gera það að aðalskjá.
Þegar öllu er lokið birtist opinber færsla með upptöku af afdrepinu, til að allir sem misstu af
afdrepinu í beinni geti líka fengið að njóta þess.
Stofnaðu þitt fyrsta afdrep í Hangouts On Air í dag og leyfðu heiminum að njóta þess með þér.