Tip:
Highlight text to annotate it
X
Tölvur eru mjög góðir í einu og það er að endurtaka skipanir.
Okkur mönnunum leiðist fljótt ef við þurfum að gera það sama aftur og aftur
En tölva getur gert það sama mörgum milljón sinnum eða jafnvel svo milljörðum skipti,
án þess að leiðast og geta gert það mjög vel
Þannig að ef ég vildi til dæmis
óska öllum á Facebook til hamingju með afmælið með því að senda þeim tölvupóst,
gæti það tekið mig meira en heila öld að skrifa öll þessi tölvubréf til allra.
En með aðeins nokkrum línum af kóða, get ég útbúið kerfi
sem sendir öllum á Facebook tölvupóst og óskar þeim til hamingju með afmælið.
Það er það sem lykkjur eru og ástæðan fyrir mikilvægi þeirra,
og er eitthvað sem tölvur geta gert mjög vel.
Í þessu dæmi er markmið þitt að færa fuglinn
svo hann hitti svínið. Nú ætlum við að nota "repeat"-bálkinn, endurtekningabálkinn
til þess að gera þetta með mjög einföldum hættu. Þú getur annað hvort gert þetta með því
að gefa tölvunni "move forward"-skipun, færa-áfram
fimm sinnum og færa fuglinn eitt skref í hvert sinn í átt til svínsins.
Eða þú getur bara sagt tölvunni "move forward", að "halda áfram", einu sinni,
og sagt henni svo að endurtaka það, "repeat", 5 sinnum, og hún gerir þá nákvæmlega það sama.
Til þess að gera þetta, dregur þú "move forward"-skipunina, færa-áfram,
og setur hana svo inn í "repeat"-bálkinn, endurtekningabálkinn
Og þú getur smellt á hann og sagt hversu oft þú vilt að endurtaka bálkinn
til að segja honum hversu mörg skref þú vilt taka áfram. Svo er annað í þessu
þú getur sett eins margar skipanir og þú vilt inn í "repeat"-bálkinn, endurtekningabálkinn.
Í þessu dæmi ert þú að segja honum að færa sig áfram og beygja til vinstri,
sem hann mun gera fimm sinnum. Jæja, vel gert og skemmtið ykkur :-)