Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hæ öllsömul.
Í þessari viku er ég stoltur af því að taka þátt með nemendum, kennurum, fyrirtækjum og
stofnunum í að taka stór skref til að styðja
tölvunarfræði í skólum í Bandaríkjunum.
Að tileinka sér þessa færni er ekki einungis mikilvægt fyrir framtíð þína,
heldur líka fyrir framtíð landsins okkar.
Ef við viljum Ameríka í fremstu röð,
þá þurfum við unga Bandaríkjamenn, eins og þig,
til að ná fullum tö*** á tækjum og tækni
sem mun breyta því hvernig við gerum nánast allt.
Þess vegna bið ég þig um að taka þátt.
Ekki bara kaupa nýjan tölvuleik,
skapaðu tölvuleik.
Ekki bara að sækja nýjasta appið,
hjálpaðu til við að hanna það.
Ekki bara að spila í símanum þínum,
forritaðu hann.
Enginn fæðist sem tölvunarfræðingur,
en með smá vinnu og smá stærðfræði og vísindum,
þá getur nánast hver sem er orðið slíkur.
Þessi vika er tækifæri til að prófa.
Og ekki láta neinn segja þér að þú getir það ekki.
Hvort sem þú ert ungur maður eða ung kona,
hvort sem þú býrð í borg eða sveit,
þá munu tölvur spila stórt hlutverk í framtíð þinni.
Og ef þú ert tilbúin(n) til að vinna og leggja þig fram við lærdóm,
þá er í þínum höndum að móta framtíðina.
Takk öllsömul!