Tip:
Highlight text to annotate it
X
Af hverju eru skuldir svona miklar?
10 árum áður en fjármálakreppan hófst, skulduðu einstaklingar og fjölskyldur í Bretlandi samtals
480 milljarða punda.
Síðan þá, hafa skuldirnar meira en tvöfaldast.
En frá hverjum tó*** við alla þessa peninga að láni?
Var það frá stórum hópi amma sem hafa allt sitt líf sparað
til mögru áranna?
Nei.
Þegar þú ferð í bankann og tekur stórt lán, til að kaupa lítið hús,
þá koma þeir peningar ekki frá sparnaði einhvers annars.
Hann er einfaldlega búinn til, úr engu, af bankanum, með örfáum innsláttum á lyklaborði.
Hljómar fáránlega ekki satt? Þetta er þó ekki glæpur aldarinnar, svona virka
bankarnir einfaldlega. Svona lýsir Seðlabanki Bretlands þessu:
"Þegar bankar veita lán skapa þeir nýjar innstæður fyrir þá sem hafa
tekið peningana að láni."
Þessar „nýju innstæður" eru bara tölurnar sem birtast á reikningnum þínum, sem
þú getur notað til að borga fyrir nýja húsið.
Í rauninni eru um 97% allra peninga skapaðir á þennan hátt, úr engu,
þegar bankar veita lán. Hvert lán sem þeir veita skapar glænýja peninga í hagkerfinu, hvort sem
það er neyslulán, bílalán eða húsnæðislán.
En hér er vandamálið.
Ef nær allir þeir peningar sem við notum eru búnir til af bönkum þegar þeir veita lán, þá fyrir hvert
pund af peningum verður að vera pund af skuldum.
Ef við viljum meiri peninga í hagkerfið, þá verðum við að skuldsetja okkur meira gagnvart bönkunum, því
meiri lántaka frá bönkunum þýðir meira af nýjum peningum verður til.
En ferlið virkar öfugt þegar við niðurgreiðum lán; Þegar við borgum niður okkar skuldir
hverfa hreinlega peningarnir.
Þetta þýðir að ómögulegt er fyrir okkur öll að að minnka skuldir okkar. Ef við byrjum að greiða þær niður
þá minnkar peningamagnið í hagkerfinu.
Minna peningamagn í hagkerfinu þýðir minni neysla og minni neysla þýðir færri störf.
Svo, hér er eru valkostirnir: Við getum annað hvort haft meira peningamagn... og meiri skuldir...
eða við getum haft minni skuldir og... minna peningamagn.
Þegar eina leiðin til að koma peningum í umferð er að taka þá að láni frá bönkunum, sem búa
þá til, þá verðum við ávallt föst undir skuldafjalli.
En svona þarf þetta ekki að vera. Ef við tö*** valdið til að skapa pening af bönkunum,
og færum það til opinberrar stofnunar, sem er ekki að leitast eftir skammtíma
gróða,
...þá gæti sá nýji peningur, sem styður við störf og hagkerfið, verið notaður til þess að greiða niður
skuldir...
...og við gætum loksins hafið að losa okkur við skuldafjallið.