Tip:
Highlight text to annotate it
X
Google tækjastikan í Internet Explorer
Í dagsins önn
gerir Google tækjastikan þér kleift að nýta tímann þinn á vefnum betur.
Tækjastikan er viðbót í Internet Explorer sem þú getur sótt eða sem þú ert
nú þegar með uppsetta.
Hún birtist efst í vafranum og gerir þér kleift að leita á Google
hvar sem þú ert á vefnum.
Þú getur líka leitað á öðrum vefsvæðum Google,
s.s. í myndum, fréttum og kortum. Þannig að þegar þú ert að skoða dagatalið
úr skóla barnanna þinna
og sérð að Einar er með útileik á döfinni geturðu auðveldlega séð hvar hann er
með Google kortum,
fengið leiðarlýsingu og haldið af stað.
Tækjastikan inniheldur önnur verkfæri sem spara tíma.
Orðaleit og áherslumerking birta þér leitarorðin þín í fljótu bragði
og þú getur hoppað beint yfir í viðeigandi hluta síðunnar með Quick Scroll.
Og þegar Emma þarf aðstoð við heimalærdóm í samfélagsfræði slærðu bara inn
setningu úr ræðu landsföðurins sem hún er að læra um,
velur leitarniðurstöðu og þú ferð beint í þann hluta ræðunnar
og Emma getur skilað verkefninu fullkláruðu.
Þú getur notað tækjastikuna til að þýða vefsíður sem eru á öðrum tungumálum
með einum smelli. Svo þegar þú ert að skipuleggja fjölskyldufríið
til útlanda
geturðu lesið tillögur frá innfæddum. Google+ er innbyggt í tækjastikuna
svo auðvelt er að deila efni með vinum.
Verkfæri eins og Sjálfvirk útfylling gera netkaup mun hraðvirkari.
Gakktu bara úr skugga um að þú sért skráð(ur) inn á tækjastikuna
með Google reikningnum þínum.
Þú getur líka sérsniðið tækjastikuna með því að bæta við eða fjarlægja hnappa
eftir því hvort þú notar verkfærin mikið eða ekki neitt.
Þar sem stillingarnar þínar eru vistaðar á reikningnum þínum geturðu líka notað þær
þegar þú notar aðrar tölvur með Internet Explorer.
Google tækjastikan gerir vefskoðun einfalda, þægilega
og gagnlega.