Tip:
Highlight text to annotate it
X
Verkefni án tölvu | Algrím
(Amy Hirotaka - Code.org) Kennslustund sex kennir algrím
og miðlar hversu mikilvægt það er að vera eins skýr og hægt er.
Þessi kennslustund er í tveimur hlutum.
Fyrsti hlutinn notar tangram,
en það eru púsl sem líta svona út.
Ef þú ert ekki með tangram stykki,
getur þú eða nemendur þínir búið þau til.
Nemendur verða að útskýra fyrir bekkjarfélaga hvernig á að
raða púslunum í tiltekið mynstur,
en félaginn fær ekki að sjá upprunalega mynstrið.
Í seinni hluta verkefnisins,
biðjum við nemendur að reikna út á hve marga
mismunandi vegu er hægt að brjóta blað
svo úr verði 16 eins ferhyrningar.
Síðan verður það rætt hvernig margar lausnir
geta leitt til sömu niðurstöðunnar
og hvers vegna sumar lausnir eru betri í ákveðnum tilfellum.