Tip:
Highlight text to annotate it
X
Þessa mynd tók Wide Field Camera 3 myndavél Hubbles
af risavöxnu vetnisgasskýi
sem bjart ungstirni lýsir upp.
Myndin sýnir hve ofsafengin lokastig stjörnumyndunar geta verið
þegar unginn hristir upp í hreiðri sínu.
51. þáttur: Stjörnumyndunarsvæðið S 106
Kynnir Dr. J, einnig þekktur sem Dr. Joe Liske
Í nokkur þúsund ljósára fjarlægð í stjörnumerkinu Svaninum
er stjörnumyndunarsvæðið Sh 2-106 eða S106.
Þótt litadýrðin sé himnesk er ekkert friðsælt við þetta svæði.
Í miðju þokunnar er ung stjarna, S106 IR, að fæðast.
Í ofsafengnum lokastigum myndunar sinnar
varpar stjarnan frá sér efni á ógnarhraða sem tætir gasið og rykið.
Þrívíðar myndir sýna hve mikið stjarnan
hefur mótað umhverfi sitt í flókin mynstur.
Stundaglaslögun þokunnar er afleiðing stróka
frá stjörnunni sem rekast á vetnisgasið sem hún er að myndast úr.
Við ytri brúnir þessara geila hefur gasið þjappast saman
vegna þrýstingsins og myndað stafnhögg.
Stjarnan er um 15 sinnum massameiri en sólin
og er á lokastigum myndunar sinnar.
Brátt sljákkar í henni og við taka fullorðinsárin
þegar hún sest á meginröð.
Í augnablikinu er S106 IR enn á kafi í móðurskýi sínu
en rís gegn því.
Efnið sem stjarnan sendir frá sér mótar ekki aðeins stundaglaslögunina
heldur verður vetnisgasið óstöðugt.
Margslungin mynstrin eru greinileg á þessari mynd.
Ungstirnið veldur ekki aðeins óstöðugleika í gasskýinu, heldur er hún sjálf að hitna
upp í um 10.000 gráður á Celsíus.
Geislun stjörnunnar örvar gasið svo það glóir eins og flúrljósalampi.
Ljósið frá þessu glóandi gasi er litað blátt á myndinni
sem Hubblessjónaukinn tók í sýnilegu og innrauðu ljósi.
Köld, þykk rykslæða, sem hér sést í rauðu,
skilur á milli glóandi gassvæðanna.
Þetta dökka efni hylur stjörnuna nánast alveg,
en ungstirnið sést með naumindum
í gegnum þykkasta hluta rykslæðunnar.
Skýið sjálft er fremur lítið miðað við stjörnumyndunarsvæði,
um það bil tvö ljósár á breidd.
Það er um það bil helmingurinn af fjarlægðinni milli sólar og Proxima Centauri,
næsta nágranna sólar í geimnum
svo hún er miklu minni en þekktari stjörnumyndunarsvæði
eins og Sverðþokan í Óríon og Kjalarþokan.
Hubblecast er framleitt af ESA/Hubble í Stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli í Þýskalandi.
Hubblessjónaukinn er alþjóðlegt samstarfsverkefni NASA og Geimvísindastofnun Evrópu
www.spacetelescope.org
Handrit ESA/Hubble