Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hefurðu einhvern tíma velt fyrir þér af hverju það er svona mikið af skuldum? Eða af hverju hagfræðingar og stjórnmálamenn virðast
óhæfir til að leysa skuldavandann?
Ástæðan fyrir að þeir geta ekki leyst hann er sú að þeir eru að reyna að laga og bæta
núverandi bankakerfi. En núverandi peningakerfi er að þrotum komið. Það er núverandi
kerfi sem hefur grafið okkur í allar þessar skuldir.
Á næstu þremur mínútum verða færð rök fyrir hvernig skipan peningakerfisins tryggir
að meirihluti fólks og fyrirtækja eru skuldug og af hverju það að leyfa bönkunum að
halda áfram sinni vanabundnu starfsemi er það versta sem við getum gert fyrir hagkerfið og þjóðfélagið
í heild sinni.
En hvaðan telur þú að allar þessar skuldir hafi komið? Margir myndu gera ráð fyrir að
að banki þurfi að fá peninga frá sparifjáreigenda áður en hann getur lánað lánþega. Enda,
er það ekki það sem bankar ganga út á? Taka við peningum frá einstaklingum og fyrirtækjum sem þurfa ekki á þeim að halda og lána
fólki og fyrirtækjum í fjárþörf.
Ekki alveg.
Hér er staðreynd sem fáir vita af. Bankar þurfa ekki að hafa aðgengi að
raunverulegum peningum til að geta veitt ný lán.
Þegar húsnæðislán er tekið er það ekki veitt af
sparnaði ömmu einhvers gömlu úti í bæ.
Nei. Þess í stað kveikja þeir á tölvu og stimpla inn tölur sem koma inn á reikninginn þinn.
Þú færð helling af peningum á reikninginn þinn og einnig helling af skuldum, sem þú
borgar svo af næstu áratugina.
En peningarnir sem þú tókst að láni voru skapaðir úr engu og aðeins ritaðir á reikninginn þinn.
Við vitum að það er erfitt að trúa þessu, en það er óþarfi að trúa okkur í blindni.
Englandsbanki segir sjálfur að: „Þegar bankar veita lán búa þeir til ný
innlán fyrir þá sem tóku lánið.“ Þessi innlán eru aðeins
tölurnar á reikningnum þínum.
Þá sagði Martin Wolf, aðalhagfræðingur Financial Times: „Grundvallarvirkni
nútíma peningakerfi er sköpun peninga úr engu af einkabönkum í gegnum, oft á tíðum,
fífldjarfa útlánastarfsemi.“
Þannig að nánast allir peningar sem við notum í dag eru búnir til úr engu, af bönkum, þegar
þeir veita lán.
Og eina leiðin fyrir almenning til að komast yfir nýja peninga er að
skuldsetja sig gagnvart bönkunum.
Með öðrum orðum, nánast hvert pund sem við þurfum til að halda hagkerfinu gangandi, til að halda búðum,
verksmiðjum, skólum og heilsugjæslu gangandi, verður fyrst að vera tekið af láni frá viðskiptabanka.
Og ef einn einstaklingur á milljón pund, verða aðrir að skulda milljón pund.
Ef við reynum að skulda ekkert geta bankarnir ekki lánað nýja peninga og hagkerfið
hægir á sér og stöðvast.
Þetta þýðir í reynd að valdið til að skapa peninga er á höndum einkaaðila.