Tip:
Highlight text to annotate it
X
Verkefni án tölvu | Boðhlaupsforritun
(Kiki Prottsman - Thinkersmith) Boðhlaupsforritun er afar skemmtilegt verkefni
sem kennir margt fleira en bara tölvunarfræði.
Stundum eru allir að verða svolítið eirðarlausir
og þú vilt koma þeim upp á fæturnar.
Þetta er ágæt leið til að bæta svolítilli spennu í tölvunarfræði.
Svo þú skiptir öllum í tvo hópa
sem standa í röð og hlaupa eins og í boðhlaupi.
Sá fyrsti í hverjum hópi hleypur þvert yfir herbergið
þar sem þú ert með teikningu á rúðustrikuðu blaði.
og autt blað til að nota.
Hlauparinn skrifar niður hvað á að gera fyrst til að búa til þessa mynd,
hleypur til baka að röð sinni og klukkar næsta leikmann
sem hleypur yfir til að skrifa næsta skref.
Þetta er frábær leið til að deila hugmyndinni
um villuleit, að þurfa að lesa yfir sína eigin vinnu,
og að þurfa að fara yfir vinnu fólks sem það vann á undan þér.
Þau munu fljótt skilja hversu mikilvægt það er að passa sig
að vanda sig við kóðun þegar allt teymið treystir á þig.