Tip:
Highlight text to annotate it
X
Við erum tengd
á allan hátt
og allt sem við gerum og segjum
varpar skugga á eða lýsir leiðina.
Ef þú finnur fyrir höfnunartilfinningu
ertu ekki ein/n á báti
því það er eldmóður í sál þinni
sem talar af sannleika sem þú hefur ávallt þekkt.
Gleymdu fullkomnun
og þrýstingi frá jafningjum
og brenndu safn
alls ótta.
Og úr öskustónni
mun ást þín rísa,
eins og fuglinn Fönix á heiðskírum himni,
djúprauði fuglinn sem aldrei deyr
mun rísa á ný.
Við erum tengd
og við höfum val
því hver dagur byrjar nýr.
Sólin skín nú fyrir þig
og þú endurspeglast
í hverju brosi.
Og hvert hjarta sem þú veitir innblástur
kyndir eldtungur sálarelds þíns.
Deilum hlátrinum
og bjóðum tárin velkomin
og megi hér eftir brenna
allur okkar ótti
og úr öskustónni
mun ást okkar rísa,
eins og fuglinn Fönix á heiðskírum himni,
djúprauði fuglinn sem aldrei deyr
mun rísa á ný.
Gleymdu fullkomnun
og þrýstingi frá jafningjum
og brenndu safn
alls ótta.
og úr öskustónni
alls ótta. 0:02:55.144,0:03:00.463 eins og fuglinn Fönix á heiðskírum himni,
djúprauði fuglinn sem aldrei deyr
mun rísa á ný�