Tip:
Highlight text to annotate it
X
Nýttu þér ítarlegt myndefni nýju Google kortanna til að kanna heiminn.
Nokkrar leiðir eru til að opna myndefnið: Upplýsingaspjöldin fyrir neðan leitarreitinn
og myndaræman sem er neðst á skjánum.
Auktu fyrst aðdráttinn og smelltu hvar sem er á kortinu.
Heimilisfang og myndefni götusýnar birtist á upplýsingaspjaldi.
Smelltu á smámyndina til að opna götusýn og skoðaðu þig um með því að halda
músarhnappinum inni og draga eða með áttavitanum.
Smelltu síðan einfaldlega á veginn sem þú vilt ferðast eftir.
Viltu skoða fyrirtæki á svæðinu áður en þú mætir á staðinn?
Opnaðu götusýn eða skoðaðu innviðina með því að smella á „Skoða að innan“.
Ef þú vilt sjá heiminn með augum einhvers annars skaltu skoða myndir sem notendur
hafa sent inn, táknaðar með myndavélartákni.
Ekki láta þar við sitja! Skoðaðu nýju myndakynningarnar með því að smella á smámyndir með spilunartákni.
Þrívíddarupplifunin er búin til úr myndum sem notendur eins og þú hafa sent inn og er í boði
fyrir fleiri en 60.000 vinsæla staði um allan heim.
Loks geturðu skoðað jörðina úr lofti með því að opna yfirlitið Jörðin.
Ef vafrinn þinn styður það geturðu aukið aðdráttinn og séð byggingar í þrívídd.
Stjórnborðið neðst til hægri gerir þér kleift að halla og snúa sjónarhorninu.
Eða minnkaðu aðdráttinn... og njóttu útsýnisins.
Við kynnum nýju Google kortin.