Tip:
Highlight text to annotate it
X
Alþjóðleg fræðslumiðstöð Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) tók úrræðin saman í samvinnu við Samtök verslunarráða í Evrópu (EUROCHAMBRES)
innan ramma samþykktar um vitundarvakningu fyrirtækja um baráttuna gegn staðalímyndum kynjanna („Raising the awareness of companies about combating gender stereotypes“),
að beiðni aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu-, félagsmála og jafnra tækifæra.
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Papyrus hefur starfað í pappírsiðnaðinum í rúmlega 126 ár
og okkur finnst við þekkja greinina ansi vel.
Við einbeitum okkur aðallega að pappírsprentun – öllum tegundum – þeim flutningi sem því fylgir,
sérhæfingu okkar í pappírsgeiranum og öllu því sem fylgir
að veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustu og umönnun.
Nú eru starfsmenn 58.
Þeim fjölgar í 60 á næsta ári.
Gildi okkar eru traust, við höfum mikla trú á okkur og öllum sem við vinnum með.
Hér er sánan okkar.
Við notum hana við allskonaruppákomur og við sýnikennslu.
Maður þarf svalandi drykk eftir sánuna og því erum við með litla krá hérna.
Það voru jafnréttislögin 2006 sem komu öllu af stað.
Við fórum að velta fyrir okkur hvaðþessi lagabreyting mundi þýða fyrir okkur.
Við réðum utanaðkomandi ráðgjafa.
Papyrus er ef til vill besta dæmið um hvernig framfylgja á nýju jafnréttisáætluninni á vinnustað.
Hlutverk ráðgjafans var eiginlega að fylgjast með okkur,
meta jafnréttið í launum og hvernigvið komum fram hvert við annað o.s.frv.
Þeim varð ljóst að það vareitthvað bogið við vinnuandann.
Jafnréttisstaðan var ekki fjarri því að vera góð
en mat ráðgjafans varpaði ljósi á fáeinatriði sem við höfum nú rætt og unnið í.
Við ræddum mikið um viðhorf og hegðun og hvernig
við ættum að taka tillit til samstarfsmanna.
Við héldum þá umræðu í vörugeymslunni.
Allir gátu tekið þátt og lagt sitt af mörkum við að búa til sameiginlegar grunnreglur.
Ég myndi segja að vinnuandinn hafi klárlega batnað eftir það.
Við leggjum okkur fram um að vera gagnsærri
í því hvernig við komum fram hvert við annað g taka tillit til munar eins og kyns,
á milli okkar og annarra.
Ákvörðunin um að skipuleggja viðtölin og matið hefur
haft verulega áhrif á velferð starfsfólksins,
en það er jú tilgangurinn með þessari jafnréttisáætlun.
Pólitísk skuldbinding um kynjajafnrétti hefur aukist undanfarin ár.
Mörg aðildarríki hafa sett lög og gripið til aðgerða til að brúa kynjabil
og ná fram jafnrétti á milli kvenna og karla.
Það er verkefni lítilla og meðalstórra fyrirtækja að hrinda skuldbindingunni
í framkvæmd og færast nær kynjajafnrétti í hagrænu tilliti.
Allt starfsfólk fyrirtækisins tekur þátt:
atvinnuveitendur, stjórnendur, verkstjórar og starfsfólk.
Það krefst þekkingar á þeim þáttum sem valda misrétti.
Sérfræðingar og ráðgjafar geta verið virkir samstarfsaðilar lítilla
og meðalstórra fyrirtækja til að skilja tilhögun
og leggja til aðferðir og verkfæri til að draga úr misrétti.
Þeir geta leiðbeint fyrirtækjum við að skapa á vinnustaðnum umhverfi velferðar.
Við hjá Papyrus Oy í Finnlandi komumá fót teymi til að fjalla um þessi málefni af og til.
Í umfjöllun sinni notar teymið réttan orðaforða fyrir viðfangsefnin
og reynir að byggja upp eins konar hugtakaramma til að ræða um jafnrétti.
Í tengslum við þetta settum við saman hóp fólks sem vinnur
á mismunandi sviðum innan fyrirtækisins og kemur saman af og til.
Hann veltir þá fyrir sér hvernig eigi að koma
þessum hugmyndum um jafnrétti í framkvæmd
og innir síðan af hendi þá vinnu sem þarf til þess.
Það er mín skoðun að vinnuandinn sé góður, fólk er tillitsamt
og ber virðingu hvert fyrir öðru þrátt fyrir það sem greinir okkur að.
Við reynum að tryggja að öllum finnist gott að vinna hér.
Það er tekið tillit til sérhvers starfsmanns.
Lögin krefjast þess að atvinnuveitendur
fari að nokkuð strangri jafnréttisstefnu í launum.
Í nýja launakerfinu er skýrt tilgreint, í samræmi við jafnréttislögin,
að greiða skuli sambærileg laun fyrir sambærileg störf.
Við fórum yfir launakerfið með ráðgjafanum
og skoðuðum hvort launamismunur væri réttlætanlegur.
Við hjá Papyrus Finland Oy höfum reynt að greina þetta
með því einfaldlega að meta störf allra,
gerð vinnustöðvar og ábyrgðarstig, fyrir utan störfin
í vörugeymslunni því þau eru bundin verktakagreiðslum.
Markmið okkar er að tryggja að starfsmenn sem vinna á sama atvinnustigi fái sömu laun.
Það merkir að þegar við metum stöður starfsmanna og viðkomandi laun,
metum við ekki einstaklingana sem eru í stöðunum, heldur störfin sjálf.
Markmiðið til meðallangs og langs tíma er að jafna launin þannig
að þau stemmi nákvæmlega við það sem þau ættu að vera.
Þar sem jafnrétti kynjanna verður hluti af viðskiptaskipulagi
og verður skuldbinding allra starfsmanna, kann launabilið
á milli kvenna og karla jafnvel að hverfa.
Samt er bilið á launum kynjanna viðvarandi innan ESB.
Í því felst mikilvægasta afleiðing alls misréttis kynjanna á vinnumarkaðinum.
Það er engin ástæða til þess að konur og karlar sem eru í sömu stöðu
og vinna sama starfið fái ekki sömu laun.
Það kemur í veg fyrir að fyrirtæki haldi í hæfar konur,
og þannig missa þau af möguleikum þeirra og úrræðum.
Ef þú sinnir jafnrétti kynjanna þá sinnirðu fyrirtækinu þínu.
Jafnrétti á vinnustað er á ábyrgð allra.
Við deilum öll þeirri ábyrgð.
Afnemum staðalímyndir kynjanna,leyfum hæfileikunum að njóta sín
Rit þetta nýtur stuðnings áætlunar Evrópusambandsins um atvinnu og félagslega samstöðu (2007-2013).
Þeirri áætlun er stjórnað af aðalskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála og jafnra tækifæra.
Tilgangur áætlunarinnar er fjárhagslegur stuðningur við framkvæmd markmiða Evrópusambandsins á sviði atvinnu- og félagsmála eins og lýst
er í framkvæmdaáætluninni um félagsmál, og stuðla þannig að því að markmið Lissabonáætlunarinnar nái fram að ganga á þessum sviðum.
Áætlunin er gerð til sjö ára og beinist að öllum hagsmunaaðilum sem geta hjálpað við þróun viðeigandi og áhrifaríkrar löggjafar og stefnumótunar í öllum 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins,
fríverslunarsamtö*** Evrópu, evrópska efnahagssvæðinu,mögulegum aðildarríkjum og löndum sem ekki koma enn til greina sem aðildarríki.
Tilgangur PROGRESS er að styrkja framlag Evrópusambandsins til stuðnings við skuldbindingar og aðgerðir aðildarríkja til að skapa fleiri og betri störf og stuðla að meiri samstöðu í samfélaginu.
Í þeim tilgangi mun PROGRESS beita sér fyrir:(1) greiningu og ráðgjöf varðandi stefnu í málaflokkum PROGRESS,
(2) eftirliti og skýrslugjöf varðandi framkvæmd á löggjöf og stefnu Evrópusambandsins með tilliti til málaflokka PROGRESS,
(3) stefnuflutningi, fræðslu og stuðningi meðal aðildarríkja varðandi markmið og forgangsatriði Evrópusambandsins, og
(4) miðlun sjónarmiða hagsmunaaðila og þjóðfélagsins í heild.
Nánari upplýsingar má nálgast á:http://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=327&langId=en
Upplýsingarnar sem er að finna í þessu riti endurspegla ekki endilega afstöðu eða skoðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Hvorki framkvæmdastjórnin né aðrir sem starfa á vegum hennar bera ábyrgð á því hvernig upplýsingarnar í þessu myndbandi gætu verið notaðar.