Tip:
Highlight text to annotate it
X
Rachel!
Leyfðu mér að sjá.
- Má ég sjá?
- Sá á fund sem finnur. Og ég fann það.
Í garðinum mínum.
Sá á fund sem finnur!
Bruce?
Bruce?
Mamma!
Hr. Alfreð!
Dreymdi þig?
Martröð.
Verra en þessi staður?
Þeir ætla að berjast við þig.
- Aftur?
- Þar til þeir drepa þig.
Geta þeir drepið mig
fyrir morgunmatinn?
Þú ert í helvíti, litli karl,
og ég er djöfullinn.
Þú ert ekki djöfullinn.
Ég æfi mig á þér.
Í einangrun!
- Af hverju?
- Til verndar.
- Ég þarf enga vernd.
- Vernd fyrir þá!
Inn.
Viltu svo ólmur berjast
við glæpamenn
að þú lætur loka þig inni til
að berjast við einn í senn?
Þeir voru reyndar sjö.
Ég taldi sex, hr. Wayne.
Hvernig veistu hvað ég heiti?
Heimurinn er of lítill
til að Bruce Wayne hverfi,
sama hversu lágt
hann kýs að lúta.
Hver ertu?
Ég heiti Ducard en ég
er fulltrúi Ra's Al Ghul,
manns sem undirheimunum
stendur mikill stuggur af.
Maður sem getur
vísað þér veginn.
Því heldurðu að ég þurfi þess?
Maður eins og þú er hér
aðeins sjálfviljugur.
Þú hefur kannað
glæpaheiminn
en hver sem ætlun þín var,
þá hefurðu sannarlega
villst af leið.
Og hvaða veg getur
Ra's Al Ghul boðið?
Veg manns sem deilir
hatri hans á hinu illa
og óskar þess að þjóna
sönnu réttlæti.
Veg Skuggadeildarinnar.
- Þið eruð sjálfskipaðir lögverðir.
- Nei, nei.
Sjálfskipaður lögvörður
þóknast bara sjálfum sér.
Hann getur verið sigraður
eða lokaður inni.
En ef maður verður
ósigrandi bardagamaður,
ef maður helgar sig hugsjón
og ef þeir geta
ekki stöðvað mann,
þá verður maður
eitthvað allt annað.
Hvað?
Goðsögn, hr. Wayne.
Á morgun verðurðu látinn laus.
Ef þér leiðist að kljást við
þjófa og vilt afreka eitthvað,
þá vex fágætt blóm
í austurhlíðunum.
Tíndu eitt af þessum blómum.
Ef þú getur borið það
upp á fjallstindinn,
þá finnurðu kannski það
sem þú leitaðir að.
Og að hverju leitaði ég?
Aðeins þú getur vitað það.
Þú snýrð til baka.
Þú ferð til baka.
Ra's Al Ghul?
Bíðið.
Að hverju leitarðu?
Ég leita
að bestu leiðinni til
að berjast við ranglæti.
Að fylla þá ótta
sem níðast á þeim óttaslegnu.
Til að stjórna óttanum í öðrum,
verður maður fyrst
að ná tö*** á eigin ótta.
Ertu tilbúinn að byrja?
Ég get varla staðið...
Dauðinn bíður þess ekki
að þú sért tilbúinn.
Dauðinn er hvorki
tillitssamur né sanngjarn.
Og áttaðu þig á því að hérna
stendurðu andspænis dauðanum.
Tígur.
Jujitsu.
Pardus.
Þú ert hæfileikaríkur
en þetta er ekki dans.
Og þú ert hræddur,
en ekki við mig.
Segðu okkur eitt, hr. Wayne.
Hvað óttastu?
Bruce?
Það er allt í lagi.
Það er allt í lagi.
Þú jafnar þig.
Þurfum við sjúkrabíl,
hr. Wayne?
Ég skorða beinið og fer
með hann í myndatöku síðar.
Ljómandi, herra.
- Mér þykir það afar leitt.
- Hann nær sér.
Þú hlaust ansi mikla byltu,
hr. Bruce.
Og af hverju hljótum
við byltu, Bruce?
Svo okkur lærist
að sigrast á erfiðleikum.
Aftur leðurblökurnar?
Þú veist af hverju
þær réðust á þig.
- Þær óttuðust þig.
- Óttuðust mig?
Allar verur finna til ótta.
Jafnvel þær sem eru ógnvekjandi?
Einkum þær ógnvekjandi.
Mig langar að sýna þér svolítið.
Heldurðu að mamma þín
verði hrifin af þeim?
Já.
Heldurðu að það sé tími
til að fara á fætur?
Kannski.
Þú ferð ekki aftur í rúmið.
Smíðaðirðu þessa lest, pabbi?
Gotham reynist fjölskyldunni
vel en borgin hefur þjáðst.
Ólánsamt fólk hefur mátt
þola mikla raunatíma.
Við reistum ódýrt almanna-
samgöngukerfi fyrir borgina
í miðjunni,
Wayne Turninn.
- Vinnurðu þar?
- Ég vinn á spítalanum.
Betri menn stjórna fyrirtækinu.
Betri?
Áhugasamari menn.
Getum við farið?
Gerðu það.
Allt í lagi. Förum.
- Hvað er að, Bruce?
- Nei, það var ég.
Ég þurfti bara hreint loft.
Ég hef lítið gaman
af óperu, Bruce.
Komdu. Förum.
Veskið, skartgripana!
Í hvelli!
- Allt í lagi.
- Drífið ykkur!
Vertu rólegur.
Vertu rólegur.
Hérna.
Það er allt í lagi.
Það er allt í lagi.
Taktu það bara og farðu.
Skargripana, sagði ég!
Thomas!
Bruce.
Það er allt í lagi.
Vertu óhræddur.
Er þetta frakki pabba þíns?
Það er allt í lagi.
Komdu.
Það er allt í lagi.
Það er allt í lagi.
Gordon.
Gleðifréttir.
Við náðum honum, sonur sæll.
Þú ert í góðum höndum.
Við hugsum um veldið.
Það bíður eftir þér
þegar þú verður stór.
Ég ætlaði að útbúa
svolítinn kvöldmat.
- Gott og vel.
- Alfreð?
- Já, hr. Bruce?
- Það var mér að kenna.
Ég lét þau fara úr leikhúsinu.
- Ef ég hefði ekki orðið hræddur...
- Þú gerðir ekki neitt.
Það var hann og aðeins hann.
Skilurðu?
Ég sakna þeirra, Alfreð.
Ég sakna þeirra sárt.
Ég líka, hr. Bruce.
Ég líka.
Finnst þér þú bera ábyrgð
á dauða foreldra þinna?
Reiði mín verður sektar-
kenndinni yfirsterkari.
Komdu.
Þér hefur lærst að dylja
sektarkenndina með reiði.
Ég kenni þér að horfast
í augu við hið sanna.
Við kennum þér að berjast
við sex hundruð menn.
Þú getur horfið.
Við kennum þér að
vera ósýnilegur.
Ósýnilegur?
Avi!
Ninja skilur að ósýnileiki
snýst um þolinmæði og fimi.
Vertu ávallt vakandi
fyrir umhverfinu.
Ninjitsu notar sprengipúður.
- Sem vopn?
- Eða til að beina athyglinni annað.
Leikrænir tilburðir
og blekking eru áhrifarík.
Þú verður að vera meira en
maður í huga andstæðingsins.
- Hver er hann?
- Hann var bóndi.
Þá reyndi hann að stela landi
granna síns og varð morðingi.
- Núna er hann fangi.
- Hvað verður um hann?
Réttvísin.
Glæpir verða ekki liðnir.
Glæpamenn þrífast á vilja
samfélagsins til skilnings.
Þú áttir ekki sök
á dauða foreldra þinna.
Faðir þinn átti sök á því.
Reiði breytir því ekki
að pabbi þinn gerði ekkert.
- Maðurinn var með byssu.
- Myndi það aftra þér?
Ég hef hlotið þjálfun.
Þjálfunin er ekki neitt,
viljinn skiptir sköpum.
Viljinn til athafna.
Gefstu upp.
Þú hefur ekki sigrað mig.
Þú fórnaðir fótfestu
fyrir banahögg.
Nuddaðu bringuna á þér.
Þú þarft ekki að hugsa
um handleggina.
Þú ert sterkari en faðir þinn.
Þú þekktir ekki föður minn.
En ég þekki ofsann
sem knýr þig áfram.
Reiðin kæfir harminn
þar til minningin
eitrar hug þinn.
Og þú óskar þess að ástvinur
þinn hefði aldrei verið til
svo að þú hefðir
losnað við sársaukann.
Ég var ekki alltaf
hérna í fjöllunum.
Einu sinni átti ég eiginkonu.
Mesta ástin mín.
Hún var tekin frá mér.
Ég komst að því eins og þú
að til eru misindismenn
sem berjast þarf við
af festu og vægðarlaust.
Reiði þín veitir
þér mikinn mátt
en ef þú lætur það gerast
þá tortímir það þér.
Eins og fór næstum fyrir mér.
- Hvað stöðvaði reiðina?
- Hefnd.
Það gagnast mér ekkert.
Af hverju, Bruce?
Af hverju hefndirðu
ekki foreldra þinna?
Ferðu aftur til Princeton
að loknum vitnaleiðslum
eða get ég fengið þig
til að dvelja aðeins lengur?
Ég fer alls ekki til baka.
- Kanntu illa við þig þar?
- Ég kann vel við mig þar.
Þeir eru bara öðruvísi.
- Ég undirbjó svefnherbergið.
- Nei.
Herbergið mitt verður í lagi.
Með allri virðingu, Wayne-
setrið er húsið þitt.
Nei, Alfreð.
Það er hús föður míns.
- Faðir þinn er dáinn, hr. Wayne.
- Og þetta er grafhýsi.
Ef ég fæ að ráða
þá læt ég rífa húsið.
Þetta hús hefur hýst sex
ættliði þína, hr. Wayne.
Er þér ekki sama, Alfreð?
Þetta er ekki fjölskylda þín.
Mér er ekki sama því góður
maður gerði mig ábyrgan
fyrir því sem var honum kærast
í öllum heiminum.
Ungfrú Dawes bauðst til
að aka þér í vitnaleiðsluna.
Hún vonast til að fá
þig ofan af því að mæta.
Á ég að láta sem foreldrar
mínir hafi ekki verið til?
Ég segi þér ekki hvað
þú gerir við fortíðina.
Sumum okkar er annt um hvað
þú gerir við framtíðina.
Hefurðu ekki glatað
trúnni á mig enn?
Aldrei.
Alfreð geymir niðursoðna
mjólk í efstu hillunni.
Sér hann ekki að þú ert
nógu stór til að ná í hana?
Gamlir siðir eru víst lífseigir.
- Það aftraði okkur aldrei.
- Nei.
Hvernig líður mömmu þinni?
Hún saknar þessa staðar.
Ég líka.
Já.
En hann er ekkert án þeirra
sem gæddu hann lífi.
- Núna er það bara Alfreð.
- Og þú.
- Ég verð ekki hér áfram, Rachel.
- Þú komst bara aftur út af vitnaleiðslunni.
Bruce, það er víst ekki nokkur leið
til að sannfæra þig um að mæta ekki.
Einhver í þessari vitnaleiðslu
ætti að flytja mál foreldra minna.
Okkur þótti öllum vænt
um foreldra þína, Bruce.
Það sem Chill gerði
er ófyrirgefanlegt.
Af hverju leyfir yfirmaður
þinn þá honum að fara?
Í fangelsinu var hann með
Carmine Falcone í klefa.
Hann ber vitni og kemst fyrr
á skilorð fyrir bragðið.
Rachel, þessi maður varð
foreldrum mínum að bana.
Ég get ekki gleymt því.
Þú verður að skilja það.
Gott og vel.
Kreppan lék verkamenn
eins og hr. Chill verst.
Hann framdi hryllilega glæpi
en ágirnd stjórnaði þeim ekki
heldur örvænting.
Hann hefur þegar setið inni
í 14 ár og verið samstarfsfús
í einni mikilvægustu
rannsókn þessa embættis
og við förum þess á leit
að honum verði sleppt fyrr.
Hr. Chill?
Hr. Dómari.
Ég óska þess á hverjum degi
að ég gæti tekið þetta aftur.
Ég var örvilnaður
eins og margir þá
en það breytir ekki
því sem ég gerði.
Mér skilst að einn úr Wayne-
fjölskyldunni sé hérna í dag.
Vill hann segja eitthvað?
Hann kemur út!
Hann kemur út!
Joe! Joe!
Falcone biður að heilsa!
Komdu, Bruce.
Við þurfum ekki að sjá þetta.
Ég þarf þess.
Saksóknarinn skildi ekki kröfuna
um opinbera vitnaleiðslu.
Falcone mútaði honum
til að lokka fram Chill.
Ég ætti kannski að þakka þeim.
- Þú meinar það ekki.
- En ef mér er alvara, Rachel?
Foreldrar mínir eiga skilið réttlæti.
Þú talar ekki um réttlæti
heldur hefnd.
- Stundum er það eins.
- Nei, aldrei, Bruce.
Réttlæti snýst um samræmi.
Hefnd um það að bæta vanlíðan.
- Þess vegna er kerfið hlutlaust.
- Kerfi ykkar bregst.
Er þér annt um réttlæti?
Hugsaðu um annað en sárindi þín.
Þessi borg er spillt.
Talað er um kreppuna eins og
hún sé liðin. Það er rangt.
Falcone stuðlaði að glæpum
og eiturlyfjasölu á götunum,
græðir á örvilnuðu fólki
og nýir Joe Chill verða til.
Falcone banaði kannski ekki
foreldrum þínum, Bruce,
en hann eyðileggur allt
sem þau stóðu fyrir.
Ef þú vilt þakka honum
fyrir þá er hann hérna.
Við vitum öll hvar hann er.
Meðan vondir eru ríkir og góðir
hræddir þá stöðvar enginn hann.
Gott fólk eins og foreldrar
þínir sem rísa gegn ranglæti,
það fólk er farið.
Hvaða möguleika á borgin
þegar þeir góðu gera ekkert?
- Ég er ekki í hópi þeirra góðu, Rachel.
- Hvað áttu við?
Í öll þessi ár langaði mig að drepa hann.
Núna get ég það ekki.
Pabbi þinn myndi
skammast þín fyrir þig.
Þú ert hærri en þú virðist
í slúðurblöðunum, hr. Wayne.
Engin byssa?
Ég er móðgaður.
- Þú hefðir getað sent þakkarskeyti.
- Ég kom ekki til að þakka þér.
Ég vildi sýna þér að ekki
óttast allir í Gotham þig.
Aðeins þeir sem þekkja mig.
Svipastu í kringum þig.
Þú sérð tvo borgarráðsmenn,
mann frá verkalýðsfélagi,
löggur í fríi
og dómara.
Ég skyti þig hiklaust
hérna frammi fyrir þeim.
Slíkt vald er ekki hægt að kaupa.
Það er vald óttans.
Ég óttast þig ekki.
Þú hefur engu að tapa.
En þú hefur ekki
hugsað málið til enda.
Þú hefur ekki hugsað um
vinkonu þína hjá saksóknara.
Þú hefur ekki hugsað
um gamla yfirþjóninn.
Menn eins og þú
hafa svo miklu að tapa.
Þú heldur að sakir þess að foreldrar
þínir voru skotnir
að þá þekkirðu ljótu hliðina
á lífinu en svo er ekki.
Þú hefur aldrei kynnst örvilnan.
Þú ert Bruce Wayne,
prins Gotham.
Þú ert víðkunnur.
Ekki koma hingað með reiði
til að sanna eitthvað.
Þennan heim skilurðu aldrei
og maður óttast alltaf
það sem maður skilur ekki.
Allt í lagi.
Það máttu eiga
að þú ert kjarkaður.
Kjarkaðri en pabbi þinn.
Chill sagði mér frá kvöldinu
þegar hann myrti foreldra þína.
Hann sagði að pabbi þinn
hefði beðist vægðar.
Beðist vægðar
eins og hundur.
Þú áttir að þjóra betur.
- Fyrir hvað?
- Frakkann þinn.
Allt í lagi.
Láttu mig fá hann.
Þetta er fínn frakki.
Gættu að því hver sér
þig í þessu.
- Þeir leita að mér.
- Hverjir?
Allir.
Þetta er snotur frakki.
Fórstu að kenna í brjósti
um glæpamennina?
Í fyrsta sinn sem ég stal
var það út af hungri.
Ég glataði skilningnum
á réttu og röngu.
Og þegar ég ferðaðist,
kynntist ég óttanum
áður en maður fremur glæp
og fögnuðinum þegar vel gengur.
En ég varð aldrei einn þeirra.
Mér er sama hvað þú heitir.
Þú ert glæpamaður.
Ég er ekki glæpamaður.
Segðu það þeim sem átti þetta.
Þú ferðaðist um heiminn til
að glöggva þig á glæpamönnum.
En glæpamaður er
ekki margbrotinn.
Og það sem þú óttast mest
er hið innra með þér.
Þú óttast mátt þinn.
Þú óttast reiði þína,
þrána eftir afrekum
eða ódæðum.
Þú verður að horfast
í augu við ótta þinn.
Þú ert tilbúinn.
Andaðu.
Andaðu.
Andaðu að þér ótta þinn.
Horfstu í augu við hann.
Þú verður að verða ótti
til að skilja ótta.
Þú verður að lifa
við ótta annarra manna.
Og menn óttast það mest
sem þeir sjá ekki.
Þú verður að verða
skelfileg hugsun.
Vofa.
Verða hugmynd!
Finndu óttann hylja
skilningarvit þín.
Finndu mátt hans
til að afmynda,
til að stjórna.
Og finndu hvernig þú
getur öðlast þennan mátt!
Sigrastu á aðalótta þínum.
Sameinastu myrkrinu.
Einbeittu þér.
Einbeittu þér.
Stjórnaðu skilningarvitunum.
Þú mátt ekki skilja
neitt merki eftir.
Ég hef ekki gert það.
Hrífandi.
Við höfum hreinsað ótta þinn.
Þú ert tilbúinn
að leiða þessa menn.
Þú ert tilbúinn til að verða
félagi í Skuggadeildinni.
En fyrst sýnirðu skuldbind-
ingu þína við réttlætið.
Nei.
Ég er ekki böðull.
Samúð þín er veikleiki
sem óvinir þínir deila ekki.
Því er hún svona mikilvæg.
Hún skilur okkur frá þeim.
Þú vilt berjast við glæpamenn.
Þessi maður er morðingi.
- Það ætti að rétta yfir þessum manni.
- Hver ætti að gera það?
Spilltir kerfiskarlar?
Þú veist best að glæpamenn
hæðast að lögum samfélagsins.
Þú getur ekki leitt þessa menn
nema þú viljir gera það sem
þarf til að sigra hið illa.
Og hvar leiði ég þessa menn?
Gotham.
Sem einn besti sonur
Gotham-borgar
þá glímirðu við verstu
bófana og áform þeirra.
- Hvernig þá?
- Tími Gotham er liðinn.
Eins og Konstantínópel
eða Róm til forna,
er borgin orðin gróðrarstía
þjáninga og ranglætis.
Henni verður ekki bjargað
og verður að deyja.
Þetta er ein veigamesta
starfsemi Skuggadeildarinnar.
Við höfum sinnt
henni öldum saman.
Tortíma verður Gotham-borg.
Þú getur ekki haft trú á þessu.
Ra's Al Ghul bjargaði okkur
frá örvilnun og vonleysi.
Í staðinn biður hann um kjark
til að gera það sem þarf.
Ég fer aftur til Gotham
og berst við svona menn
en ég verð ekki böðull.
Bruce, þín vegna, það
verður ekki aftur snúið.
- Hvað ertu að gera?
- Það sem þarf, vinur.
Ég segi honum að þú
hafir bjargað lífi hans.
Hr. Wayne, þú hefur
verið lengi í burtu.
- Já.
- Þú ert afar tískulegur.
Að skítnum undanskildum.
Verðurðu lengi í Gotham, herra?
Jafnlengi og þörf krefur.
Ég vil sýna Gotham
að glæpir og spilling
ráði ekki ríkjum.
Í kreppunni barðist fyrirtæki
föður þíns
við fátæktina.
Hann taldi sig hvetja ríka
til að bjarga Gotham-borg.
Tókst það?
Eiginlega.
Morðið á þeim vakti þá ríku
af værum blundi.
Óvænta atburði þarf til
að vekja fólk af værum blundi
og ég get það ekki
sem Bruce Wayne.
Sem maður
er ég hold og blóð
og get verið tortímt.
Sem tákn...
Sem tákn er ógerlegt
að spilla mér,
- ég get verið ofurmannlegur.
- Hvaða tákn?
Eitthvert tákn sem allir
kannast við.
Eitthvað ógnvekjandi.
Ég geri ráð fyrir að þar sem
þú glímir við undirheimana
sé táknið persóna sem verndar
ástvini þína fyrir hefnd.
Ertu að hugsa um Rachel?
Ég var reyndar að
hugsa um mig, herra.
Hefurðu sagt einhverjum
að ég kem aftur?
Ég gat ekki leyst flækjurnar
vegna komu þinnar frá dauðum.
- Dauðum?
- Þú hefur verið í burtu í sjö ár.
Léstu lýsa mig látinn?
Það var Earle. Hann fór með
fyrirtækið á hlutabréfamarkað.
Hann vildi selja hluta-
bréf þín í fyrirtækinu.
Þessi hlutabréf eru
ansi mikils virði.
Það er þá gott að ég
skyldi ánafna þér allt.
Já, herra.
Og þú mátt fá Rollsinn
lánaðan, ef þú vilt.
Fylltu bara bensíngeyminn
áður en þú skilar honum.
Mr. Zsaz er jafnhættulegur
sjálfum sér og öðrum
og fangelsið er ekki
tilvalið fyrir endurhæfingu.
- Dr. Crane!
- Ungfrú Dawes?
Finnst þér að morðingi mafíunnar
eigi ekki að vera í fangelsi?
Ég hefði varla borið vitni
um það nema það væri rétt.
Þriðji skósveinn Falcones
sem þú sagðir geðbilaðan.
Glæpasamtök hljóta
að laða að þá geðbiluðu.
Eða þá spilltu.
Hr. Finch.
Þú ættir að skýra
fyrir ungfrú Dawes
hvaða ásakanir á hendur mér
embætti þitt heimilar henni.
- Hvað ertu að gera, Rachel?
- Hvað ertu að gera, Carl?
Ég vernda þig.
Falcone mútaði nær öllum
í borginni.
- Slepptu þessu.
- Hvernig geturðu sagt þetta?
Mér er annara um þig
en það að góma Falcone.
Það er sætt.
Við höfum rætt þetta fyrr.
Aftur skaðræðisleðurblaka.
Þær hreiðra um sig
á landareigninni.
Ekki fleiri greiða.
Einhver er að snuðra.
Við gerum hvor öðrum greiða.
Ég kem með sendingarnar.
Við borgum þér fyrir þetta.
Kannski hef ég meiri áhuga
á greiðum en peningum.
Mér er það vel ljóst að þú
óttast mig ekki, Falcone.
En þú veist fyrir hvern ég
starfa og þegar hann kemur...
Kemur hann til Gotham?
Já.
Þá vill hann ekki heyra að þú
hafir stofnað öllu í voða
bara til að forða skósveinum
þínum frá fangelsisvist.
- Hver hrellir þig?
- Það er stúlka hjá saksóknara.
- Við mútum henni.
- Ekki þessari.
Hugsjónamanneskja?
Það er líka til lausn á því.
- Ég vil ekki vita það.
- Jú, víst.
Mikill hagnaður
er í þessum deildum.
Thomasi Wayne hefði ekki
þótt þungavopnaframleiðsla
hentugur hornsteinn
fyrirtækis okkar.
Það var fyrir 20 árum,
Fredericks.
Ég hygg að 20 árum síðar
getum við leyft okkur
að hætta að hugsa um það
sem Thomas hefði gert.
Góðan dag.
Hjá hr. Earle.
Já, hann mætir í kvöldverðinn
annað kvöld.
Góðan dag.
Ég vil hitta hr. Earle.
Hvert er nafnið?
Bruce Wayne.
Thomas hefði ekki farið
með fyrirtækið á markað.
En það gerum við
sem ábyrgir stjórnendur.
Jessica?
Jessica?
Hvar ertu?
- Fylgstu með kúlunni og núna...
- Af hverju svarar enginn í símann?
Það er Wayne-samsteypan.
Þeir hringja örugglega aftur.
Bruce?
Þú átt að vera dauður.
Leitt að valda þér vonbrigðum.
- Þú verður að líta á þetta.
- Hefurðu hitt hann?
- Hvern?
- Wayne.
Það hefur verið í fréttunum.
Hann er kominn aftur.
Þú veist eflaust að ég
get ekki stöðvað þetta.
- Við förum á markað.
- Ég skil.
Og ég fæ myndarlega
upphæð fyrir hlutabréfin.
Ég hyggst ekki
skipta mér af því.
Ég er í atvinnuleit.
Ég vil kynnast fyrirtækinu
sem fjölskylda mín stofnaði.
Veistu hvar þú vilt byrja?
"Hagnýt vísindi"
vöktu áhuga minn.
Deild Fox.
Ég læt hann vita að þú kemur.
Þú ert líkur pabba þínum.
Þú ert eini afkomandi
Wayne-ættarinnar.
Hérna áttu heima.
Velkominn heim.
Umhverfisverkefni, varnar-
verkefni, neytendavörur.
Allt frumgerðir.
Ekki í framleiðslu.
Ekkert?
Hvað var þér sagt
að færi fram hérna?
Mér var ekki sagt neitt.
Earle sagði mér frá þessu
þegar hann sendi mig hingað.
Blindgata.
Staður til að hindra að ég
bakaði stjórninni vandræði.
Komdu.
- Varstu í stjórninni?
- Þegar faðir þinn sat við stjórnvölinn.
Þekktirðu föður minn?
- Já.
Ég hjálpaði honum að
smíða lestina.
Þá erum við komnir.
Kevlar-belti.
Gasknúin segulkrókbyssa.
Trefjar sem þola 350 pund.
Dásamlegt verkefni,
lest pabba þíns.
Lá inn í Wayne-Turna,
ásamt vatninu og rafmagninu.
Gerði þá að óopinberri
miðstöð Gotham-borgar.
Earle lét Turnana auðvitað
enda í niðurníðslu.
Nomex-búningur fyrir
fótgönguliða.
Tvöfalt Kevla-efni,
hert samskeyti.
- Erfitt að rífa það?
- Hnífur vinnur ekki á því.
- Skotheldur?
- Stöðvar allt nema beint skot.
Því var búningurinn
ekki settur í framleiðslu?
Líf hermanns var ekki talið
300 þúsund dala virði.
Hvað veldur þessum áhuga
þínum á búningnum, hr. Wayne?
Ég vil fá hann lánaðan.
Við hellaskoðanir.
Hellaskoðanir?
Já, til að kafa og skoða hella?
Áttu von á því að lenda
í skothríð í hellunum?
Ég vil síður að Earle viti
að ég fái hann lánaðan.
Hr. Wayne,
mér finnst
að þú eigir þetta allt
hvort sem er.
Kveiktu ljósin.
Heillandi.
Þú hefur þó félagsskap.
Þetta hlýtur að vera lægsta
undirstaða suðausturálmunnar.
Í Þrælastríðinu átti
langalangaafi þinn
þátt í því að flytja frelsaða þræla
með leynd norður á bóginn
og mig grunar að þessir
hellar hafi komið sér vel.
Alfreð! Komdu hingað!
Ég sé allt héðan, herra.
Við pöntum meginhlutann
af hettunni frá Singapúr.
Gegnum leppfyrirtæki.
Reyndar. Síðan
pöntum við eyrun
hjá kínversku fyrirtæki.
- Við setjum þetta sjálfir saman.
- Einmitt.
Það þurfa að vera stórar pantanir
til að forðast grunsemdir.
- Hversu stórar?
- Tíu þúsund.
- Við eigum þó varahluti.
- Já.
Þú vilt víst ekki fá
eitthvað af þessu.
Ég býð þér það áfram
í von um að þú vitkist.
Það er ekkert viturlegt
við það sem þú gerir, Flass.
Ef þú þiggur ekki neitt
þá verðum við órólegir.
Ég er ekki uppljóstrari.
Hverjum er hægt að segja
nokkuð í svona spilltum bæ?
Ekki snúa þér við.
Þú ert góð lögga.
Ein fárra.
Hvað viltu?
Carmine Falcone flytur
inn eiturlyf vikulega.
Enginn stöðvar hann.
Af hverju?
Hann mútaði réttu mönnunum.
Hvað þarf til að taka hann fastan?
Beita Faden dómara
þrýstingi og nógu hugrakkan saksóknara
til að sækja hann til saka.
Rachel Dawes.
Hver ert þú?
Þú sérð merkið mitt.
Ertu bara einn maður?
Núna erum við tveir.
Við?
Kyrr!
Hver fjárinn var þetta?
Bara vitfirringur.
Hvað er það í dag?
Viltu skoða fleiri hella?
Nei. Í dag er það
stökk á milli bygginga.
Stökk á milli bygginga?
- Er það eins og fallhlífastökk?
- Það má segja það.
Áttu nokkuð létt efni?
Ég á tilvalið efni.
Það kallast minnisklútur.
Tekurðu eftir einhverju?
Yfirleitt sveigjanlegt
en ef rafmagn fer í gegnum það
endurraðast sameindirnar
og efnið verður stíft.
Hvaða lögun er möguleg?
Það má sníða það
að hvaða formi sem er.
Of dýrt fyrir herinn?
Það var ekki selt fyrir
hellaskoðanir né húsastökk.
- Heyrðu, hr. Fox.
- Já, herra?
Ef þér þykir það óþægilegt...
Ef þú vilt ekki segja mér
hvað þú ert að gera,
þarf ég ekki að ljúga
þegar ég er spurður.
En ekki halda að ég sé fífl.
Gott og vel.
Hvað er þetta?
Stökkvarinn?
Þú hefur ekki áhuga á þessu.
Hann var smíðaður fyrir
brúargerð.
Í bardaga stukku tveir
svona yfir fljót.
Maður gerir svona
og þá stekkur hann hátt...
Ekki núna!
Ekki núna, herra!
Slökkt á aukahreyfli.
Okkur tókst aldrei að fá brúna
til að starfa rétt
en þessi gripur er í góðu lagi.
Hvernig líst þér á?
Áttu hann til í svörtu?
Ég þarfnast þín við
höfnina á fimmtudaginn.
- Vandamál?
- Ég vil engin vandræði
- með lokasendinguna.
- Allt í lagi.
Sagt er að manneskja hjá
saksóknara sé þér til ama.
- Er það satt?
- Og að væn verðlaun
bjóðist þeim sem vill leysa það.
Hvað áttu við, hr. Flass?
Hefurðu séð stelpuna?
Það er sæta aðstoðarkona
saksóknarans.
Er það ekki of mikil áhætta
fyrir samtökin þín?
- Jafnvel í þessum bæ.
- Aldrei vanmeta Gotham-borg.
Fólk er rænt á leið heim
úr vinnu alla daga vikunnar.
Stundum gerist eitthvað slæmt.
Það er eitthvað að grafítinu, herra
Næstu tíu þúsund
standast kröfurnar.
- Við fengum þó afslátt.
- Já.
Leyfist mér að leggja til að
þú forðist að lenda á höfðinu?
Af hverju leðurblökur, hr. Wayne?
Leðurblökur skelfa mig
og tímabært er að
óvinir mínir óttist mig.
Hvað er þetta?
Haldið áfram.
Þetta lítur vel út þarna.
Fara bangsarnir beint
til dópsalanna?
Já. Og kanínurnar fara
til mannsins í Narrows.
- Hver er munurinn?
- Það er best að þú vitir það ekki, vinur.
Ekki fást um leyndarmál illmenna.
Steiss?
Steiss?
Hvað?
Hver fjárinn...
Ég kanna þetta.
Það er eitthvað á seyði.
Þú skalt forða þér.
Hvar ertu?
Hérna.
Keyrðu. Fjárinn.
Hvað ertu eiginlega?
Ég er Leðurblökumaðurinn.
Laglegur frakki.
Takk.
Kyrr!
Já, forðaðu þér bara!
Falcone sendi þá
til að drepa þig.
- Hvers vegna?
- Þú gerðir honum lífið leitt.
- Hvað er þetta?
- Vogarafl.
- Til hvers?
- Til að koma skriði á málin.
Hver ertu?
Maður eins og þú.
Ég geri þeim lífið leitt.
Er allt í lagi?
- Menn Falcones?
- Breytir það nokkru?
Við náum aldrei að
bendla hann við það.
Ég væri ekki of viss um það.
Hvað er þetta eiginlega?
Losið hann.
Leðurblaka gómar
glæpaforingja
Óviðunandi.
Mér er sama þótt það sé
klíkukeppni, verndarenglar
eða Hjálpræðisherinn.
Af götunni með þá
og af forsíðunni.
Sagt er að það hafi bara verið
einn maður eða vera.
Það var asni í búningi.
Þessi maður færði okkur
einn aðalglæpaforingja
borgarinnar.
Enginn tekur lögin í sínar
hendur í borginni minni.
Skilurðu það?
- Nú er ekki hægt að leyna þessu.
- En það má múta Faden dómara.
Ég hef sannanir gegn Faden.
Hvað um þessa leðurblöku
sem er á allra vörum?
Jafnvel þótt þeir sverji að
risaleðurblaka hafi barið þá,
þá fannst Falcone á vettvangi.
Eiturlyf, fingraför, farmskrár.
Allt frá leðurblökugaurnum.
Drífum í þessu.
- Leðurblökur eru náttverur.
- Kannski leðurblökur.
Jafnvel forríkir glaumgosar
geta ekki sofið til kl. 3.
Gjald þess að lifa tvöföldu lífi,
óttast ég.
Tilburðir þínir vöktu hrifningu.
Leikrænir tilburðir og blekking
eru áhrifarík vopn, Alfreð.
Þetta er góð byrjun.
Ef þetta eru fyrstu
áverkarnir af mörgum,
væri ráð að finna
hentuga afsökun.
Til dæmis póló.
Ég læri ekki póló, Alfreð.
Undarlegir áverkar,
ekkert félagslíf,
menn spyrja hvað
Bruce Wayne geri
við tímann og peningana.
Hvað vill maður eins og ég gera?
Keyra sportbíla.
Vera með kvikmyndastjörnum.
Kaupa það sem er ekki falt.
Ef þú þykist skemmta þér
þá kynnirðu jafnvel
að lenda í smáóhappi.
Sir.
- Það kom svolítið upp á, herra.
- Allt í lagi.
Strandgæslan fann eitt
fraktskipa okkar í gærkvöldi.
Það er stórlaskað. Áhöfnin
er horfin, trúlega dáin.
Skipið flutti frumgerð af vopni.
Það er örbylgjusendir.
Það er hannað fyrir hernað
í eyðimörk en svo virðist
sem einhver
hafi ræst hann.
Það notar örbylgjur til
að eyða vatnsforða óvinarins.
Tjónið á skipinu var gríðarlegt.
Sjálft vopnið er...
Horfið?
Já.
Fínn bíll.
Þú ættir að sjá hinn bílinn.
Hann gerði dálítið sem
lögreglunni hefur ekki tekist.
Enginn má taka lögin
í sínar hendur.
Hann gerir þó eitthvað.
Hjálpaðu mér, Bruce.
Maður sem klæðist leðurblöku-
búningi er greinilega vanheill.
En hann kom Falcone
á bak við lás og slá.
Og nú vill löggan stöðva
hann. Hvað segir það þér?
Þeir eru afbrýðisamir.
Laugin er til skrauts
og vinkonur þínar eru naktar.
Þær eru evrópskar.
Ég verð að biðja þig að fara.
Það snýst ekki um peninga.
Ég kaupi þetta hótel
og set nýjar reglur
um laugina.
Mér finnst Leðurblökumaðurinn
eigi skilið að fá orðu.
Og spennitreyju
til að festa hana á hann.
Bruce?
Rachel?
Ég frétti að þú værir
kominn aftur.
Hvað ertu að gera?
Bara að synda.
Það er gaman að sjá þig.
Þú varst lengi í burtu.
- Ég veit það. Hvað er að frétta?
- Það sama.
Starfið verður erfiðara.
Þú getur ekki breytt
heiminum hjálparlaust.
Á ég annars úrkosti?
Þú ert of upptekinn
við að synda.
Rachel, allt þetta...
Það er ekki ég.
Innst inni er ég...
meira.
Komdu, Bruce!
Bruce!
Þú getur keypt fleiri hótel.
Bruce.
Innst inni ertu kannski enn
sami fíni strákurinn og áður.
En gjörðir þínar segja til
um hver þú ert í raun.
Dr. Crane, þakka þér
fyrir að koma.
Það var lítið.
Skar hann sig á púls?
Hann ber trúlega við
brjálsemi en ef eitthvað...
Já, allur er varinn góður.
Ég afber þetta ekki lengur.
Þetta er mér um megn.
Veggirnir þrengja að mér,
bla, bla, bla.
Eftir að hafa borðað þennan mat
í nokkra daga verður það satt.
- Hvað viltu?
- Ég vil vita
hvernig þú hyggst sannfæra
mig um að þegja.
Um hvað?
Þú veist ekki neitt.
Þú vilt ekki að löggan kanni
nánar eiturlyfin sem þeir tóku.
Ég veit um tilraunir þínar
á vistmönnunum hjá þér.
Ég starfa ekki með manni án þess
að vita um leyndarmál hans.
Hrottarnir sem þú notaðir.
Ég á hrottana í þessum bæ.
Ég hef smyglað dópinu
þínu mánuðum saman.
Hann hefur eitthvað mikið á prjónunum.
Og ég vil taka þátt í því.
Ég veit hvað hann segir,
að við ættum að drepa þig.
Jafnvel hann nær mér ekki
hérna. Ekki í bænum mínum.
Langar þig að sjá
grímuna mína?
Ég nota hana
í tilraunum mínum.
Þú skelfist mig líklega ekki.
En þessir vitfirringar
afbera þetta ekki.
Hvenær náði sá vitlausi
völdum á vitlausrahælinu?
Þeir æpa
rétt eins og þú núna.
Þetta er engin uppgerð.
Ég reyni að fá hann fluttan
í örugga álmu á Arkham.
Ég get ekki veitt honum meðferð hérna.
Óveður er í aðsigi.
Úrþvættin eru óróleg af því
þú bauðst Falcone birginn.
Það er byrjun. Félagi þinn
var við höfnina með Falcone.
Hann er handbendi bófa
í aukavinnu.
Þeir skiptu sendingunni á milli sín.
Helmingurinn fór til salanna.
Af hverju?
Hvað um hinn helminginn?
- Flass veit það.
- Hann vill ekkert segja.
Hann talar við mig.
Loeb kom gríðarstórri
sérsveit á fót til að ná þér.
- Hann heldur að þú sért hættulegur.
- Hvað heldur þú?
Ég held að þú reynir
að hjálpa til.
En mér hefur skjátlast áður.
Drífðu þig.
Flass, ég þarf að brauðfæða börn.
Finnst þeim falafel vont?
Hvert áttu hin eiturlyfin að fara?
Ég vissi það aldrei.
- Ég sver við Guð að ég veit það ekki.
- Sverðu við mig!
Ég veit það ekki.
Ég vissi það aldrei.
Þau fóru til einhvers manns
áður en þeir fóru til salanna.
Af hverju?
Það var eitthvað annað
í eiturlyfjunum.
Hvað?
Ég fór aldrei á afhendingar-
staðinn. Það var í Narrows.
Löggur fara bara þangað
þegar þær eru margar.
Sýnist þér ég vera lögga?
Nei!
Ég er að tala um þennan!
- Hvað er að?
- Hann á ekki að vera til.
Þetta skip fór frá Singapúr
með 246 gáma en kom með 247.
Ég get mér til það sé eitthvað
sem ég á ekki að finna þarna.
Við viljum ekki vita hvað
er í gámi hr. Falcones.
Núna er annar háttur á.
Opnaðu hann.
Hvað er þetta eiginlega?
Það ert þú, er ekki svo?
Þú hefur verið á allra vörum.
- Komdu!
- Ekki æpa á hann!
Hinir krakkarnir trúa mér ekki.
Eyðið öllum sönnunargögnum.
- Best að kveikja í staðnum.
- Allt í lagi.
Er eitthvað að?
Sestu. Fáðu þér drykk.
Þú lítur út eins og maður
sem tekur sig of alvarlega.
Viltu heyra álit mitt?
Þú þarft að ljóma meira.
Alfreð?
Alfreð?
Taktu blóð úr mér.
Taktu eitrið, eitrið...
Eitrið, eitrið.
Bruce.
Af hverju hljótum við byltu?
- Hvað var ég lengi rænulaus?
- Í tvo daga.
Þú átt afmæli.
Megi þú lengi lifa.
Ég hef fundið fyrr þessi áhrif
en þetta var mun öflugra.
Þetta var ofskynjunarlyf,
vopn, í úðaformi.
Þú hefur verið í röngum
klúbbum, hr. Wayne.
Ég hringdi í Fox þegar þér
versnaði eftir fyrsta daginn.
Ég greindi blóðið úr þér,
einangraði efnahópinn
og prótínhvatana.
Á ég að skilja þetta?
Nei. Ég vildi bara að þú
vissir hve erfitt það var.
- Ég bjó til mótlyf.
- Geturðu búið til meira?
Ætlarðu að anda að þér
lyfinu aftur, hr. Wayne?
"Þú veist það, hr. Fox.
Maður er úti á kvöldin
í leit að einhverju örvandi.
Ég kem með það sem ég á.
Mótlyfið ætti að gera
þig ónæman í bili.
Alfreð, alltaf ánægjulegt
að hitta þig.
Lucius.
- Viltu ekki koma inn?
- Ég verð að fara.
- Ég vildi bara skilja þetta eftir.
- Þakka þér fyrir.
Rachel?
Einhver virðist hafa lítið sofið.
Þetta hlýtur að hafa verið
ansi merkilegt tilefni.
Ég á afmæli.
Ég veit það. Ég kemst
því miður ekki í kvöld.
Ég kom bara með gjöfina.
Stendur annað til hjá þér?
Yfirmaður minn hefur verið
týndur í tvo daga
og hérna þýðir það að ég ætti að
byrja að leita á botni árinnar.
- Rachel.
- Afsakaðu.
Rachel Dawes.
Hver heimilaði það?
Sendu Crane þangað strax.
Segðu Lehmann að við þurfum
að skila mati til dómarans.
Hvað er að?
Crane flutti Falcone til Arkham
á sjálfsvígsvöktun.
Ætlarðu til Arkham?
Það er í Narrows, Rachel.
Njóttu veislunnar, Bruce.
- Sum okkar þurfa að vinna.
- Farðu varlega.
Til hamingju með afmælið.
Sá á fund sem finnur
En gestirnir koma, hr. Wayne.
Hafðu ofan af fyrir þeim
þar til ég kem.
Segðu þeim brandara.
Skemmtirðu þér vel?
Bill? Hvað er stórlax
eins og þú að gera hérna?
Mig vantar upplýsingar.
Wayne-samsteypan,
47-B, 1-ME.
1- ME.
Örbylgjusendir sem eyðir
vatnsforða óvinarins.
Sagt er að þeir hafi prófað
vatnsefni í loftinu
en er það ekki bannað?
Ég vil fá allar upplýsingar
um þróun þessa verkefnis,
öll gögn, skrár, varaafrit,
á skrifstofu mína tafarlaust.
Týndirðu þínum?
Ég sameina deildina þína
og gagnageymsluna
og ég rek þig.
Fékkstu ekki minnisblaðið?
Fuglahræða.
Fuglahræða.
Fuglahræða.
Ungfrú Dawes,
þetta er afar óvænt.
Ég hef ekkert meira um
skýrluna að segja.
- Ég vil spyrja um skýrsluna þína.
- Eins og hvað?
Hentar það ekki 52 ára manni
sem aldrei hefur verið geðveill
að fá taugaáfall þegar hann
er í þann mund að verða ákærður?
Þú sérð að það er ekkert
hentugt við einkenni hans.
- Fuglahræða.
- Hvað er fuglahræða?
Sjúklingar fá ofskynjanir,
beina vænisýki sinni oft
að ytri kvalara,
yfireitt fornmyndum.
Í þessu tilfelli, fuglahræðu.
- Er hann á lyfjum?
- Geðlyfjunarfræði er aðalsvið mitt.
Ég er öflugur talsmaður.
Úti fyrir var hann risi.
Hérna getur hugurinn
aðeins veitt manni vald.
Njóttu umskiptanna.
Ég virði vald hugarins
yfir líkamanum.
Þess vegna geri ég þetta.
Ég starfa við að halda bófum
eins og Falcone í steininum.
Ég vil að geðlæknisráðgjafi
hafi aðgang að Falcone,
þar á meðal blóðrannsóknum. Fáðu að
vita hvaða lyf þú hefur gefið honum.
- Þá snemma í fyrramálið.
- Í kvöld.
Ég hef þegar hringt
á Lehmann á Sýsluspítalanum.
Eins og þú vilt.
Þessa leið.
Það er svolítið sem þú ættir að sjá.
Hérna búum við lyfið til.
Þú ættir kannski að anda því
að þér. Það tæmir hugann.
Hver veit um þig hérna?
Hver veit það?
Hann er hérna.
Hver?
Leðurblökumaðurinn.
- Hvað gerum við?
- Það sem allir gera
þegar snuðrari er á kreiki.
- Hringjum í lögregluna.
- Viltu fá lögguna hingað?
Þeir geta ekki stöðvað okkur.
En Leðurblökumanninum er
það lagið að trufla mann.
Komið honum út, lögreglan
nær honum. Af stað.
- Hvað um hana?
- Hún á stutt eftir.
Ég gaf henni risaskammt.
Hugurinn þolir ekki mikið.
Af stað.
Það sem sagt er um hann...
Getur hann í alvöru flogið?
Ég frétti að hann geti horfið.
Við komumst að því.
Er það ekki?
Viltu fá að kenna
á eigin meðulum?
Hvað hefurðu verið
að gera hérna?
Fyrir hvern starfarðu?
Ra's...
Ra's Al Ghul.
Ra's Al Ghul er dáinn.
Fyrir hvern starfarðu?
Crane?
Dr. Crane er ekki hérna núna,
en ef þú vilt panta tíma...
Leðurblökumaður! Leggðu
vopnin frá þér og gefstu upp.
Þú ert umkringdur.
- Eftir hverju bíðurðu?
- Liðsauka.
- Liðsauka?
- Leðurblökumaðurinn er þarna inni.
Sérsveitin kemur,
en ef þú vilt fara
kem ég á eftir þér.
Sérsveitin er á leiðinni.
Hvað kom fyrir hana?
Crane gaf henni ofskynjunarlyf.
Eitur sem veldur ofsahræðslu.
Ég kem henni til bráðatæknana.
Þeir geta ekki hjálpað henni
en ég get það.
Farðu með hana niður. Hittumst
í húsasundinu við Narrows.
Crane hefur smyglað eitrinu,
falið það í lyfjum Falcones
og síðan hellt því í vatnsforðann.
- Hvað hefur hann í hyggju?
- Ég veit það ekki.
Starfaði hann fyrir Falcone?
Hann minntist á einhvern
annan. Einhvern verri.
Hún þarf að fá mótlyfið áður
en skaðinn verður varanlegur.
- Hvað á hún langt eftir?
- Ekki langt.
Hvað er þetta?
- Liðsauki.
- Hvert í...
Afsakið.
- Hvernig líður henni?
- Hún fjarar út. Við verðum að fara.
Ég næ í bílinn minn.
Ég kom með bílinn minn!
Bíllinn þinn?
Ég verð að fá mér einn svona.
- Hann er í farartæki.
- Hvaða gerð og litur?
Þetta er svartur...
skriðdreki.
Vertu róleg.
Það var eitrað fyrir þér.
Ég næ honum.
Andaðu rólega.
Haltu þér.
- Hvað ertu að gera?
- Stytta okkur leið.
Sveit 1 til jarðar, lokið rampann af!
Engin undankomuleið
er af þakinu.
Dreptu á vélinni!
Farðu frá bílnum.
- Treystu mér.
- Vopnakerfi ræst.
Hvaða maður er þetta?
- Hvert fer hann?
- Hann er á þakinu!
- Eftir hvaða götu fer hann?
- Hann er ekki á götu!
Hann flýgur á húsþökunum!
Segðu mér þó
hvernig hann lítur út.
Sleppum því.
Ég elti hann.
Við nálgumst hann óðfluga.
Við eltum bíl grunaða
á vesturleið á l- 17.
- Sveit 1 til jarðar,
- Hann er horfinn.
Við sjáum ekki bílinn.
Útakstursleið níu er lokuð.
Við könnum húsagöturnar.
Hulinshjálmur ræstur.
Vertu vakandi.
Þarna er hann!
Þraukaðu!
Rachel!
Hr. Wayne, þetta
kom frá FOX. A.
- Komst þessi óþverri í vatnsleiðslurnar?
- Já.
Gerðu vatnsveitunni viðvart.
Það hlýtur að mega einangra það.
Þú skilur ekki.
Þeir settu allt saman í vatnið.
Gjörvallur vatnsforði
Gotham er mettaður af því.
Af hverju höfum við ekki
fundið fyrir áhrifunum?
Hlýtur að vera efni sem
fer inn gegnum lungun.
Hvernig líður þér?
Hvar erum við?
Af hverju komstu
með mig hingað?
Ef ég hefði ekki gert það
værirðu gengin af vitinu.
Þér var birlað eitur.
- Það var dr. Crane.
- Hvíldu þig. Gordon er með Crane.
Er Gordon vinur þinn?
Ég get ekki leyft mér
að eiga vini.
Ég gef þér róandi lyf.
Þú vaknar heima.
Láttu Gordon fá þetta.
Ekki treysta neinum.
- Hvað er þetta?
- Mótlyfið.
Annað fyrir Gordon,
hitt fyrir fjöldaframleiðslu.
Fjöldaframleiðslu?
Crane var bara peð.
Við verðum að vera viðbúin.
Þegar þú sagðir mér frá áætlun
þinni um að bjarga Gotham,
var það eina sem hindraði
mig í að fá geðlækna
það þegar þú sagðir að það
væri ekki vegna spennunnar.
- Það er ekki út af spennunni.
- Hvað kallarðu þetta?
Fjári spennandi sjónvarpsefni.
Það er kraftaverk að
enginn skyldi láta lífið.
Ég mátti ekki vera að því
að fara eftir umferðarreglum.
Þú ert orðinn gagntekinn
af þessari ófreskju þinni.
Ég nota þessa ófreskju til
að hjálpa öðrum, eins og pabbi.
Thomas Wayne þurfti ekki
að sanna neitt fyrir neinum.
Ekki heldur fyrir sjálfum sér.
Það er Rachel, Alfreð.
Hún var dauðvona.
Hún er niðri. Þú verður
að fara með hana heim.
Okkur er báðum annt um Rachel.
En það sem þú gerir verður að ná lengra.
Það má ekki vera
neitt persónulegt.
- Er Fox enn hérna?
- Já, herra.
Við verðum að senda
þetta fólk burt strax.
Þetta eru gestir Bruce Waynes.
Þú þarft að gæta að nafni...
Mér er sama um nafn mitt.
Ekki bara nafn þitt.
Þetta er nafn föður þíns.
Og það er eina arfleifð hans.
Ekki eyðileggja hana.
- Hr. Earle.
- Til hamingju með afmælið.
Þakka þér fyrir.
Hvernig gekk hlutabréfaboðið?
Svimandi hátt verð.
Hverjir keyptu?
Alls kyns sjóðir
og verðbréfastofur.
Það er svolítið tæknilegt.
Mestu skiptir að
- framtíð fyrirtækisins er tryggð.
- Afbragð.
Hún hefur aðeins fengið
sér of mikið, óttast ég.
Hver var áætlunin, Crane?
Hvernig ætlaðirðu
að koma eitrinu í loftið?
Fuglahræða.
Fuglahræða.
Fyrir hvern starfaðirðu, Crane?
Það er um seinan.
Þú getur ekki stöðvað það.
Þakka ykkur fyrir.
Og þakka þér fyrir þetta.
Það var lítið.
- Ég veit að þú notar það vel.
- Ég hef þegar gert það.
Hve langan tíma tekur
að fjöldaframleiða það?
Margar vikur.
Því spyrðu?
Einhver hyggst dreifa eitrinu
með því að nota vatnsforðann.
Vatnsforðinn dugir ekki við
að dreifa innöndunarlyfi.
Hvað þá?
Nema maður hafi nægilega
öflugan örbylgjusendi.
Örbylgjusendi eins og þann
sem samsteypan glataði.
Glataði?
Earle rak mig fyrir að spyrja
of mikið um það.
Farðu og búðu til meira mótlyf.
Ég held að lögreglan þurfi
eins mikið og hægt er.
Aðgangsheimild mín
var afturkölluð.
Það aftrar ekki manni
eins og þér, er það?
Ætli það.
- Þú verður að hitta mann.
- Ekki núna, frú Delane.
Ber ég það rétt fram,
hr. Ra's Al Ghul?
Þú ert ekki Ra's Al Ghul.
Ég sá hann deyja.
En er Ra's Al Ghul ódauðlegur?
Eru aðferðir hans
yfirnáttúrulegar?
Eða brellur til að leyna
því hver þú ert, Ra's?
Maður sem klifrar
á húsþö*** að næturlagi,
getur unnt mér það
að ég villti á mér heimildir.
Ég bjargaði lífi þínu.
Ég sagði þér að varast
samúð, Bruce.
Þú átt sökótt við mig.
Slepptu þessu fólki.
Þú mátt gjarna skýra
ástandið fyrir þeim.
Takið eftir!
Takið eftir.
Ég...
Takk fyrir að koma hingað
í kvöld og drekka vínið mitt.
Í alvöru.
Staðreyndin við það
að vera Wayne er sú
að aldrei er skortur
á sníkjudýrum eins og ykkur
til að fylla setrið manns.
Skál fyrir ykkur. Þökk fyrir.
- Þetta nægir, Bruce.
- Ég er ekki búinn.
Skál fyrir ykkur öllum,
ykkur loddurunum,
öllum svikulu vinunum ykkar,
smjaðurslegum sleikjum
sem brosa sætt til mín.
Látið mig vera.
Farið.
Hættið að brosa.
Þetta er ekki grín. Farið.
Fjörið er búið, farið.
Eplið féll óralangt
frá eikinni, hr. Wayne.
Skemmtileg ræða.
En tilgangslaus. Ekkert
af þessu fólki á langt eftir.
Uppátæki þín á hælinu
knýja mig til aðgerða.
Crane vann þá fyrir þig.
Eitrið hans er úr lífrænu
efni sem er í bláu blómunum.
Hann gat gert vopn úr því.
Er hann ekki í Skuggadeildinni?
Auðvitað ekki. Hann hélt að ætlunin
væri að krefjast lausnargjalds.
Þú ætlar að sleppa eitri
Cranes í borginni.
Síðan sjá borgarbúa
tortímast í skelfingu.
Þú ætlar að bana
milljónum manna.
Aðeins kaldhæðinn maður segir
þetta fólk eiga sér "líf."
Glæpur. Örvænting.
Svona á maðurinn ekki að lifa.
Skuggadeildin hefur
stöðvað spillingu
í þúsundir ára.
Við eyðilögðum Róm.
Fylltum verslunarskip af rottum.
Brenndum London til grunna.
Hvenær sem siðmenning nær
hámarki í hnignun sinni,
komum við aftur á jafnvægi.
Enn má bjarga Gotham.
Gefðu mér lengri tíma.
Hér er gott fólk.
Þú verð svo spillta borg
að við höfum smeygt okkur
inn í alla innviði hennar.
Tími til kominn að hefja leikinn.
Þú varst glataður þegar
ég fann þig í fangelsinu.
En ég hafði trú á þér.
Ég fjarlægði ótta þinn
og sýndi þér braut.
Þú varst besti nemandinn.
Þú ættir að standa við hlið
mér og bjarga heiminum.
Ég stend þar sem ég á heima,
milli þín og íbúa Gotham.
Enginn getur bjargað Gotham.
Þegar skógur verður of villtur
er hreinsunareldur óumflýjanlegur.
Á morgun sér heimurinn stærstu
borg heims tortíma sjálfri sér.
Þá verður ekki hægt að stöðva
hreyfinguna til samræmis.
- Hefurðu áður ráðist á Gotham?
- Auðvitað.
Í tímans rás hafa vopn okkar
orðið margbrotnari.
Í Gotham reyndum við
nýtt vopn. Hagfræði.
En við vanmátum
vissa borgara Gotham,
eins og foreldra þína.
Skotnir af þeim sem
þau reyndu að hjálpa.
Skapa nægilegt hungur
og allir verða glæpamenn.
Dauði þeirra varð til þess
að borgin bjargaði sjálfri sér
og Gotham hefur
tórað upp frá því.
Við erum komnir aftur
til að ljúka verkinu.
Og núna þvælast engir
hugsjónamenn fyrir okkur.
Þig skortir kjark eins og pabbi
þinn til að gera það sem þarf.
Ef einhver stendur
í vegi fyrir sönnu réttlæti,
gengur maður aftan að þeim
og stingur þá í hjartað.
- Ég ætla að stöðva þig.
- Þú lærðir aldrei
að skeyta um umhverfið.
Réttlæti er jafnvægi.
Þú ætlaðir að brenna mig inni.
Við erum þá kvittir.
Gættu þess að enginn komist út.
Eru þeir allir farnir?
- Hve margir úr hámarksöryggisgæslu?
- Allir.
Raðmorðingjar, nauðgarar.
Láttu þá lyfta brúnum,
enginn má sleppa af eyjunni.
Já, ég læt lyfta brúnum
þegar ég fæ allar sveitir til
að ná morðóðu brjálæðingunum
sem ganga lausir þarna.
Vonandi ertu ekki
í slökkviliðinu.
Hr. Wayne! Hr. Wayne!
Til hvers eru armlyfturnar
ef þú getur ekki lyft súlu?
Hvað hef ég gert, Alfreð?
Allt sem ætt mín,
faðir minn reisti.
Arfleifð Waynes er meira
en bara byggingar, herra.
Ég vildi bjarga Gotham.
Mér mistókst.
Af hverju hrösum við?
Svo að okkur lærist
að standa aftur upp.
Hefurðu ekki gefið mig
upp á bátinn ennþá?
Aldrei.
Niður!
Áreitni!
Þetta er áreitni!
Kannski langar þig að sjá
harkalega valdbeitingu.
Óðan mann með byssu.
Íbúarnir eru ævareiðir við
að sjá fáheyrt lögregluofbeldi
þegar fangarnir
voru handsamaðir.
Við erum í þann mund
að lyfta brúnum.
Ég er saksóknari,
hleyptu mér fram hjá.
- Hættu þessu, Flass!
- Þegiðu!
Gordon, það er komin
manneskja til þín.
- Hvað viltu hingað?
- Vinur okkar sendi mig með þetta.
Það verkar á móti eitri Cranes.
Vonandi þarftu það ekki.
Ekki nema honum takist
að koma óþverranum í loftið.
Allt í lagi, sá síðasti.
Þeir vilja lyfta brúnni
eftir 3 mínútur.
Best að fara með þig af eyjunni
áður en þeir lyfta brúnum.
Af stað!
Ég finn ekki mömmu.
Hvað þykistu vera að gera?
Herrar mínir,
tímabært að láta orðið ganga.
Og orðið er...
...ótti.
Vaxandi þrýstingur.
Þarna.
Þessi vatnsleiðsla
er undir Narrows.
Það er allt í lagi.
Þetta er Loeb.
Einhver svari mér.
Svarið!
Þetta er Gordon.
Hvað er eiginlega á seyði þarna?
Við þurfum liðsauka. Þyrlur,
sérsveitir, óeirðarlögreglu.
Öll óeirðarlögregla
borgarinnar er á eyjunni.
Hún er alveg óstarfhæf.
Það er allt í lagi.
Enginn meiðir þig.
Auðvitað!
- Crane?
- Nei. Fuglahræða!
Gordon,
það er enginn eftir hérna.
Er ég einn á báti?
Í Narrows er allt
að verða vitlaust.
Þetta er bara byrjunin. Ef
þeir sleppa eitrinu í borginni
hindrar ekkert tortímingu
Gotham vegna múgskelfingar.
- Hvernig fara þeir að því?
- Þeir nota lestina.
Einfalda sporið fylgir vatns-
leiðslunum undir Wayna-Turnum.
Ef þeir koma tækinu í
Wayne-stöðina
verður keðjuverkun og allur vatnsforði
borgarinnar gufar upp.
Gotham verður þakið
þessu eitri.
Ég kem í veg fyrir að hann
hlaði lestina. Hjálpaðu mér.
- Hvað vantar þig?
- Kanntu á beinskiptan bíl?
Þarna eruð þið þá!
Það er ekkert að óttast
nema sjálfan óttann.
Ég ætla að hjálpa ykkur.
Leðurblökumaðurinn
bjargar okkur.
- Hann kemur.
- Ekki kíkja.
Þetta er Gordon.
Búist til að lækka brúna.
Ég sagði þér að hann kæmi.
Bíddu!
Þú gætir dáið.
Segðu mér þó hvað þú heitir.
Það skiptir ekki hver
ég er undir yfirborðinu
en gjörðir mínar segja
til um hver ég er í raun.
Bruce?
Þú tókst ráð mín um leikræna
tilburði of bókstaflega.
- Því lýkur hérna.
- Fyrir þig og lögregluna.
Ég þarf að fást við hina
í Gotham.
Hafðu mig afsakaðan.
Ég þarf að tortíma borg.
- Get ég ekki sigrað tvö peð þín?
- Eins og þú vilt.
GPS-staðsetningartæki tengt.
... 100 stikur.
Herrar mínir.
Hver heimilaði þetta
eiginlega?
Fjarlægð til Wayne-Turna,
þrjár mílur.
Þrýstingurinn fer gegnum
leiðslurnar og sprengir þær.
Ef þrýstingurinn nær til okkar,
þá mun vatnsforði borgarinnar
springa í loft upp!
Beygðu til hægri
á næstu gatnamótum.
Þú lærir aldrei.
Fyrirgefðu.
- Kunnuglegt. Kanntu ekkert nýtt?
- Hvað um þetta?
Þú ert kominn til Wayne-Turna.
Rýmdu húsið.
Við erum á miðjunni
og þetta springur!
Vopnakerfið ræst.
Fínn bíll.
Vopnbúinn.
Þrýstingur á hættumörkum
Vertu óhræddur, Bruce.
Svona nú.
Þú ert bara venjulegur
maður með herðaslá.
Þess vegna gastu ekki barist við
ranglæti og stöðvað lestina.
Hver minntist á
að stöðva lestina?
Já!
Þú lærir aldrei að skeyta
um umhverfi þitt!
Hefur þér loks lærst að gera
það sem nauðsynlegt er?
Ég drep þig ekki,
en ég þarf ekki að bjarga þér.
- Fundurinn er þegar byrjaður.
- Hvaða fundur?
Fox, ég minnist þess
að hafa rekið þig.
Þú gerðir það.
Ég fékk aðra vinnu.
Þína.
Með leyfi hvers?
Leðurblökumaðurinn komst
kannski á forsíðuna
en Bruce Wayne lenti á síðu 8.
Drukkinn billjarðamæringur
kveikir í heimili sínu
Bruce Wayne.
Því þykist þú geta ákveðið
hver stjórnar samsteypunni?
- Ég er eigandinn.
- Um hvað ertu að tala?
Fyrirtækið fór á hlutabréfa-
markað fyrir viku.
Ég keypti nær öll hlutabréfin
gegnum góðgerðafélög og sjóði.
Þetta er svolítið tæknilegt
en mestu skiptir
að framtíð fyrirtækis
míns er trygg.
Er það ekki, hr. Fox?
Jú, hr. Wayne.
Fékkstu ekki minnisblaðið?
Mér þykir leitt ég skyldi
ekki segja þér það, Rachel.
Mér þykir það leitt.
Daginn sem Chill dó,
þá sagði ég margt hræðilegt.
En það var satt.
Ég var bleyða með byssu
og réttlætið snýst
um meira en hefnd.
Ég hætti aldrei að hugsa um þig.
Um okkur.
Þegar ég frétti að þú værir
kominn aftur,
þá kviknaði vonarneisti.
En þá komst ég að þessu
með grímuna þína.
Leðurblökumaðurinn
er bara tákn, Rachel.
Nei, þetta
er gríman þín.
Raunveruleg ásýnd þín er það
sem glæpamennirnir óttast núna.
Maðurinn sem ég elskaði,
maðurinn sem hvarf,
hann kom aldrei aftur.
En kannski er hann
einhvers staðar þarna.
Einhvern tíma þegar Gotham þarf
ekki lengur Leðurblökumanninn,
þá sé ég hann aftur.
- Þú sannaðir að mér skjátlaðist.
- Í sambandi við hvað?
Faðir þinn væri
mjög hreykinn af þér.
Rétt eins og ég.
Hvað hyggstu fyrir?
Endurreisa setrið.
Í upprunalegri mynd,
stein fyrir stein.
Í upprunalegri mynd,
herra?
Já. Því spyrðu?
Mér datt í hug að þetta
væri tilvalið tækifæri
til að bæta undirstöðurnar.
- Í suðausturhorninu?
- Já, herra.
- Laglegt.
- Ég fann enga mafíuforingja.
- Jæja, aðstoðarvarðstjóri?
- Núna er ég foringi.
Þú komst góðu til leiðar.
Spilltar löggur eru smeykar,
kveiktir vonarneista.
- En?
- Narrows er glatað.
Við höfum ekki náð Crane
né helmingi fanganna í Arkham.
Við náum þeim.
Við getum komið á lögum
og reglu í Gotham á ný.
- Hvað um stigmögnun?
- Stigmögnun?
Ef við berum hálfsjálfvirkar
byssur kaupa þeir sjálfvirkar.
Ef við verðum í Kevlar-vesti
kaupa þeir kúlur sem rjúfa brynju.
- Og hvað?
- Og þú ert í grímu
og stekkur af húsþö***.
Til dæmis þessi gaur.
Vopnað rán, tvö morð.
Hann er hrifinn af því
leikræna, eins og þú.
Skilur eftir nafnspjald sitt.
JÓKER
Ég kanna málið.
Ég þakkaði þér aldrei fyrir.
Og þú þarft þess aldrei.
Ripped by:
SkyFury