Tip:
Highlight text to annotate it
X
þetta er greinilega
meiri háttar bilun.
Forseti þeirra er bófi.
Ég er enginn bófi.
Robert Kennedy var skotinn
inni í danssalnum.
Drottni sé lof að við
skulum loks vera frjáIs.
Leyniskytta skaut
að Kennedy forseta.
Hefurðu verið meðlimuri
í Kommúnistaflokknum?
Hæ-hó, Silfri!
194 1...
þetta ár verður
alræmt í sögunni.
Hér er lokaþáttur útvarps-
þáttanna Góðar fréttir 1939.
Gott kvöld, íbúar Norður-
Ameríku og allir sjómenn.
það eina sem við þurfum
að óttast er óttinn.
CQ,
þetta er W-9 GFO.
CQ, þetta er W-9 GFO.
Viltu svara?
CQ...
W-9 GFO kallar.
Svaraðu.
CQ, þetta er W-9 GFO.
Er einhver þarna?
Enginn svarar mér.
Smáskref, Ellie.
Smáskref.
CQ, þetta er W-9 GFO.
Viltu svara?
Ég heyri, W-9 GFO.
K-4 WLD er hér.
Hvað á ég að segja?
Vertu bara eðlileg.
Hvar ertu, K-4 WLD?
Svaraðu.
Pensacola. Skipti.
Hvar er Pensacola?
Hér er smávísbending.
Appelsínusafi.
Náði því. K-4 WLD.
Hvernig er veðrið í Flórída?
Pensacola í Flórída.
þú mátt eiga það,
Neisti.
1786 kílómetrar.
Prýðilegt.
það lengsta til þessa.
Getum við heyrt alla
leið til New York?
Vissulega.
Getum við heyrt alla
leið til Kaliforníu?
Ég sé ekki ástæðu
til annars.
Getum við heyrt alla
leið til Alaska?
Á mjög björtum degi.
Getum við heyrt
alla leið til Kína?
Á einstaklega
björtum degi.
Getum við talað
við tunglið?
Við eigum að geta það
með nógu sterkri talstöð.
Getum við talað
við Júpíter
eða næstu plánetu
fyrir handan hann?
Ekki segja nafnið.
Hér er vísbending.
Húla-gjörð.
Satúrnus. Getum við
talað við Satúrnus?
Pabbi, getum við
talað við mömmu?
Ég efa að öflugasta
talstöð nái svo langt.
Hættu nú þessu hangsi.
Pensacola.
Falleg mynd.
Farðu nú að sofa.
Pabbi.
Heldurðu að það sé
fólk á öðrum stjörnum?
Ég veit það ekki,
Neisti.
En ég segi...
að ef það erum
bara við...
er það ansi mikil
sóun á rými.
CQ, þetta er W-9 GFO.
Svaraðu. þetta er
W-9 GFO.
Ég þarf stærra loftnet.
Hvað finnst þér,
doktor Arroway?
Er þetta ekki fallegt?
Hann dugir.
þorpið er átta
kílómetra héðan.
það er verslun
í veitingahúsinu.
Allt sem við þurfum er
pantað frá San Juan.
Hvenær fæ ég að kíkja?
Clark sagði að þú gætir ekki beðið.
Fyrsta vakt þín verður í kvöld.
Farðu til baka.
Aðeins til baka.
þar var eitthvað.
þarna.
-þarna?
-Heyrirðu þetta? það er þarna.
1221,46. það er
á L-bylgjunni.
Aðgættu hnitin.
Ég geri það.
þetta kemur ekki
héðan úr nánd.
Hér er það. J-1741
plús 2748.
Skráð 4. nóvember 1982.
Slagstjarna.
Breytingin á slögunum hlýtur
að hafa ruglað mig.
það hlýtur að hafa orðið
slagtitringur.
það er frábært að hlusta.
Flestir eru hættir því.
Ég geri það af gömlum vana.
Allt verður eðlilegra.
Ellie.
Kent Clark.
Sagt er að þú
hafir unnið...
í Owens-dal undir
stjórn Drumlins.
Hvernig líkar þér við hann?
Svona vel? Ég bjóst við því
eftir það sem hann sagði um þig.
Hvað var það?
Að þú værir
bráðgáfuð,
kappsöm,
leiðindaskjóða
og hefur á heilanum rannsóknir
sem hann telur jafngilda
faglegu sjálfsmorði.
Og fleira?
þetta var það
eftirminnilegasta.
Davio, dr. Vernon,
þetta er dr. Arroway.
þú hefur víst hitt Fisher, hinn
óþreytandi aðstoðarmann minn.
Og fundið lyktina
af kölnarvatninu hans.
Brook horfir á svartholið
í M-87.
Ellie kynnir sér Markarian 541
en þaðan koma gammageislar.
Hún ver dýrmætum sjónaukatíma
sínum í að hlusta á...
hlusta á...
Litla, græna karla.
Einn kominn.
Tveir milljarðar eftir.
Á Arecibo?
Sést það?
Viltu karamellupopp?
Nei, þökk fyrir.
Má ég setjast?
Heimamenn kváðu kalla
þetta "El Radar" .
Og halda að stöðin þjóni
slæmum hernaðartilgangi.
Ég held að við
séum meinlaus.
Palmer Joss.
-Ellie Arroway.
-Komdu sæl, Ellie.
Hvað eruð þið að kynna
ykkur hérna?
þetta venjulega.
Himinþokur, dulstirni,
slagstjörnur og slíkt.
Hvað ertu að skrifa?
þetta venjulega.
Nafnorð, atviksorð
og stöku lýsingarorð.
Ég vinn við verkefnið
LALÖH.
Leit að lífi á öðrum
hnöttum?
það er til.
Bíddu. Ertu við nám
eða eitthvað slíkt?
Ég er rithöfundur
og vinn að bók.
Ég er hér við
rannsóknarstörf.
Ég kanna hvaða áhrif tækni
hefur á menningu þriðja heims.
Ég leita líka að David
nokkrum Drumlin.
Hann er yfirmaður
Vísindastofnunar. Ég vil fá viðtal.
Ég býst við að þú
þekkir hann.
það er hægt að segja það.
LALÖH.
þykir fáránlegt.
Ég hef hitt hann. þetta
hlýtur að ergja hann.
Áttaviti.
þú mátt eiga hann.
þú ættir að hafa hann.
Hann gæti orðið þér
til bjargar síðar.
Viltu borða
með mér í kvöld?
Ég er ekki nógu góð, ekkert
er hafandi eftir mér.
Ég lofa að hafa
ekkert eftir þér.
Góður matur,
góður félagsskapur.
Ég verð að fara.
Drumlin kemur
á þriðjudaginn.
Nú man ég af hverju ég
tók skrifstofustarfið.
Komdu sæll, Drumlin.
Gott að þú gast
komið, David.
Hefði ég vitað að ég þyrfti
að fara með þremur flugvélum...
-hefdi ég hugsað mig um.
-Hvernig er nýja staðan?
þeir vilja nú þegar að varnarmálaráðu-
neytið fái helming fjár okkar.
Bíðurðu þess enn
að ET hringi?
það er líka gaman
að sjá þig.
Asni.
K völdið virðist ætla
að verða langt.
Við verðum að gera skattgreið-
endum grein fyrir gerðum okkar.
Hættum að eyða fé í fárán-
legar, sérteknar hugmyndir
en notum það af hagsýni
á mælanlegan hátt
og bætum líf þeirra
sem borga brúsann.
Líklega eru L-bylgjan mín
og hnattklasar í lagi.
Viltu að allar hreinar
rannsóknir hverfi?
Hvað er að hagsýnum og
jafnvel arðvænlegum vísindum?
Ekkert. Svo framarlega
sem tilgangurinn er
leit að sannleikanum eins og
takmarkið með vísindum er.
þetta er athyglisverð
skoðun manns
sem er í krossferð gegn
illsku tæknikunnáttunnar...
faðir Joss.
Ég er ekki andvígur
tæknikunnáttu
heldur þeim sem tilbiðja hana
á kostnað mannlegs sannleika.
Kent, ég þarf að tala við þig.
Viltu koma hingað?
Heldurðu að ég hafi eyðilagt
möguleikana á viðtali?
Ertu prestur?
Eiginlega ekki.
Ég lauk guðfræðiprófi
en hvarf síðan úr skóla
og vann mannúðarstörf
við að samræma viðleitni
kirkna í þriðja heiminum.
Ég gat ekki sætt
mig við einlífið.
það má segja að ég
sé klerkur
án hempu.
Viltu fara héðan?
Sérðu W-laga stjörnumerkið?
það er Kassíópeia.
Fjöldi radíóboða berst
frá Kassíópeiu A.
Ég hlusta mikið á þau.
þetta eru leifar
sprengistjörnu.
Hvenær vissirðu að þú vildir
verða stjörnufræðingur?
þegar ég var um átta ára
horfði ég á sólsetrið
og spurði pabba
hver þessi skæra
stjarna væri.
Hann svaraði að það
væri ekki stjarna
heldur stærðarpláneta
sem héti Venus
og yrði fljótlega
sýnileg.
Hann spurði hvort ég vissi
af hverju hún héti Venus.
Af því að mönnum þótti
hún falleg og skínandi.
En þeir vissu ekki
að hún er full
af eitruðum lofttegundum
og regnið er brennisteinssúrt.
Og þá var ég orðin háð.
það eru 400 milljarðar
stjarna
aðeins í okkar
vetrarbraut.
Ef ein af hverjum
milljón hefði plánetu
ef á einni af hverjum milljón
plánetum væri líf
og á einni af hverjum milljón
plánetum væri vitsmunalíf
þá væru til menningarafbrigði
í milljónatali.
En ef svo væri ekki
væri það hryllileg
sóun á rými.
Amen.
þarna lá ég og horfði
upp í himininn.
þá fann ég fyrir einhverju
sem ég þekkti ekki.
Ég veit bara að ég
var ekki einn.
Í fyrsta sinn á ævinni
óttaðist ég ekkert,
jafnvel ekki að deyja.
þetta var guð.
Er útilokað að þú hafir
fundið fyrir þessu
af því að hluti af þér hafi
þurft að finna það?
Ég er sæmilega
greindur en þetta...
þetta var utan
við greind mína.
Nei.
Ég hef farið nokkrum sinnum
í sunnudagaskóla.
Og...?
Ég kom með allar leiðinlegu
spurningarnar á borð við:
Hvaðan kom konan
hans Kaíns?
Fljótlega var pabbi
beðinn um
að halda mér
framvegis heima.
Pabbi þinn.
Er þetta hann?
Já.
Ertu nákomin honum?
Ég var það. Hann dó
þegar ég var níu ára.
Ég kynntist aldrei
móður minni.
það var leitt.
það hlýtur að hafa
verið erfitt.
Að vera einn...
Hvað segirðu um
að við tö*** til nesti á morgun
og förum upp í fjall?
Ég efa að ég geti það.
Ég þarf að vinna.
Borðum saman annað kvöld.
Ég veit um góðan stað.
Ég held ekki.
Ellie, fór eitthvað
fram hjá mér?
Nei.
Ég er orðin of sein.
Ég sagði Kent að ég
kæmi klukkan hálfellefu.
Ég reyni að reka
ekki á eftir þér.
Mig hefur lengi langað
að skoða þennan hluta.
Hvíldu þig hér
og sofðu fram eftir.
Matur er í ísskápnum.
Hvernig næ ég í þig?
Skildu eftir númerið.
Ég hringi í þig.
Pabbi.
þetta fer að byrja.
þú missir af því.
þarna kemur annar.
Fljótur.
Ég fer að koma,
ég er næstum búinn.
þarna kemur annar.
Drífðu þig, pabbi, fljótur.
Ég skal sækja lyfið.
ÚTFÖR
Ég veit að þetta er erfitt að
skilja en okkur er ekki alltaf...
ætlað að vita af hverju hlutirnir
fara eins og þeir fara.
Stundum verðum
við að telja
að þetta sé vilji guðs.
Ég hefði átt að geyma lyfið
í baðherberginu niðri.
þá hefði ég náð því fyrr.
CQ,
þetta er W-9 GFO.
Heyrirðu í mér?
Pabbi, þetta er Ellie.
Svaraðu.
þetta er Eleanor Arroway
sem sendir út á 14,2
megahertzum.
Ertu þarna?
Svaraðu.
Ertu þarna?
Pabbi, þetta er Ellie.
Sæll. Af hverju ert
þú svo snemma á fótum?
Ég var að hugsa.
Við værum góð saman.
Við gætum samið sérstaka
LALÖH-áætlun.
Veistu hvar Risaröðin
í Nýju-Mexíkó er?
þar er tilvalið
að vinna að þessu.
Um hvað ertu að tala?
Drumlin batt
enda á þetta.
Við erum heimilislaus.
Er þetta satt?
þú skilur það ekki núna
en ég er að gera þér greiða.
þú ert of efnileg til að sóa
hæfileikunum í þvælu.
Ég get ekki séð
hvað gæti orðið
mikilvægasta uppgötvun
mannkynsþvælunnar.
Til eru 400 miljarðar stjarna...
Og tveir möguleikar. Sá fyrri er
að þarna er vitsmunalíf
en of fjarri til að þú
getir náð sambandi við það.
-Í öðru lagi...
-þú tekur ákvörðun...
þarna eru bara lofttegundir
og kolefnasambönd
og þú sóar bara tímanum.
Meðan þetta gerist viltu ekki
að þú sért tekin alvarlega
og ferill þinn
verður á enda.
Og hvað um það?
þetta er líf mitt!
HRINGJA Í SÍMA
727-5905. PALMER
þetta var rétt, Kent.
Fjandinn hirði Drumlin.
Við öflum sjálf peninga.
Við förum til Nýja-Mexíkós.
það er staðfest með Chicago.
Leyfðu mér að fylgjast með.
það eru fleiri fyrirtæki
á austurströndinni.
Talaði fjárfestirinn frá
Houston aftur við okkur?
Ég ætla að slá hann
á leiðinni til Los Angeles.
Reyndu að fá
kvikmyndapeninga.
Menn hafa stórgrætt þar
á geimverum í mörg ár.
-það er sálarstyrkjandi að betla.
-það kemur í ljós.
Gerðu mér bara greiða.
Reyndu að vera ekki of...
þrasgjörn.
Ég þrasgjörn?
Hvað áttu við?
Ég ætla að athuga hvort ég
hef gleymt einhverju.
þetta er einstök stund
í sögu siðmenningar.
Nú verða framfarir
í tækninni.
Á þessari stundu getur
hugsast að tengsl skapist.
Risaröðin í Nýja-Mexíkó
ræður úrslitum um
hvort þetta tekst.
Með 27 samtengdum
sjónaukum
er hægt að leita af meiri
nákvæmni en annars staðar.
Við fáum að nota
sjónaukana.
það eina sem vantar nú
eru peningar.
Góð kynning, doktor.
En þótt stofnunin
hafi fyrirmæli um
að styðja tilraunir
minnir tillaga þín
minna á vísindi
en vísindaskáldsögu.
Vísindaskáldsögu.
það er rétt.
þetta er brjálað.
Reyndar verra en það.
Snargeggjað.
Viljið þið heyra
dálítið geggjað?
Tveir menn vildu smíða
svokallaða flugvél.
Fólk flýgur í þeim eins og
fuglar. Er það ekki fáránlegt?
Hvað um það að rjúfa
hljóðmúrinn,
fljúga til tunglsins, kjarnorku
eða leiðangur til Mars?
Vísindaskáldsaga, ekki satt?
Ég bið ykkur bara að vera
örlítið framsýn.
Færið ykkur til baka
og sjáið myndina í heild.
Hættið á dálítið sem gæti
haft gífurleg áhrif
á mannkynið,
á sögu
allra sagna.
Afsakið.
Ég hef varið þrettán
mánuðum í
að vera í herbergjum sem þessu
og tala við fólk eins og ykkur.
þetta var síðasta
tækifæri mitt.
Afsakið að ég skyldi
sóa tímanum fyrir ykkur.
Doktor.
Já, herra.
þú færð peningana.
þakka ykkur fyrir.
þökk fyrir.
F JÓRUM ÁRUM SÍDAR
Óaðfinnanlegt kast.
Bítið á, fiskar!
Frank, sjáðu
hvað hann er stór þessi.
Velkominn aftur, doktor C.
Hvernig gekk þetta?
Hvernig var ferðin?
Ég hef farið
í þær betri.
Drumlin! Er þetta
persónuleg hefnd?
Aðrir vísindamenn hafa líka
beitt áhrifum sínum.
Sakar ekki. Hunding fjármagnar
starf okkar í tvö ár.
Hið opinbera vill ekki
lengur að gyðja
eyðimerkurinnar
noti sjónaukana.
Hvað sagðirðu?
Sagt er að þú starir á truflanir tímum
saman og hlustir á þvottavélar.
þessar sögur ganga.
Ég leitaði að mynstri
í öngþveitinu.
það skiptir ekki lengur máli.
þeir hlæja að okkur
og vilja að við
hættum þessu.
Við getum unnið
í þrjá mánuði enn.
Ég byrja að leita að
fjármögnun annars staðar...
Viltu einu sinni vera
raunsæ? Málið er tapað.
þessu er lokið.
Ágætt.
Ég hætti ekki.
Ég vinn ein ef ég verð.
Ég hef gert það áður.
Gestur minn í kvöld er
guðfræðingurinn Palmer Joss.
Hann er andlegur ráðgjafi
og hefur verið ráðinn
að Hvíta húsinu.
Kallaður "Sendiherra guðs"
í New York Times.
Síðasta bók hans, "Að missa
trúna", er nú efst
á metsölulista blaðsins.
þakka þér fyrir að koma.
Margt hefur gerst hjá þér
nú síðustu árin.
það er rétt, Larry.
Ég var að hugsa, Fish.
Hverjir yrðu bestu
stjörnufræðingarnir? Hugsaðu nú.
Hverjir hafa best sambland
starfs og lífshátta?
Ég gefst upp.
Blóðsugur.
Ertu andvígur tækni
og vísindum?
Síður en svo.
Spurning mín er
bara þessi:
Erum við ánægðari
sem mannkyn?
Er heimurinn í
grundvallaratriðum betri
vegna vísinda og tækni?
Við verslum heima
og blöðum í vefnum.
En við finnum fyrir
meiri tómleikakennd,
erum meira einmana
og einangraðri
en nokkru sinni fyrr
í mannkynssögunni.
Samfélagið er
að verða tilbúið.
Okkur liggur mjög á
að komast...
Við leitum tilgangsins.
Hver er tilgangurinn?
Við erum í tilgangslausum
störfum og tö*** hrikaleg frí.
Við eyðum um of í klösum
og kaupum hluti
sem við höldum að fylli
eyðurnar í lífi okkar.
Er furða þótt við höfum
tapað áttaskyninu?
Hvert í hoppandi.
Ris til hægri.
18 stundir, 36 mínútur
og 56,2 sekúndur.
Lækkun...
plús 36 gráður, 46 mínútur
og 56,2 sekúndur.
Staðfestið.
Ris til hægri, 18 stundir,
36 mínútur
og 56,2 sekúndur.
Er einhver vakandi þarna?
Ég breyti röðinni.
LÍKLEGT MERKI FUNDID
Stjóri er með
eitthvað merkilegt.
Ris til hægri,
18 stundir...
Við vinnum að þessu!
36 stundir,
47 mínútur og 1 sekúnda.
Mjög líklega
slagasyrpa í fjórðu
undirröð.
Nú færi ég afganginn.
Staðfestið hnitin.
Athugaðu ástand
röðunarinnar.
Hún raðar öllu upp.
Kerfin samkvæmt
áætlun.
Halló,
Kannaðu allan
búnaðinn.
Hnitin staðfest. Willie
aðgætir kerfið núna.
Fylgist með
kerfisgreiningunni.
Aðgætið tilvísanaleiðréttingar.
Færið loftnet 27 um leið
og við erum komin.
Willie á að kveikja
á víðómakerfinu.
Við náðum því.
Áfram, Ellie.
Ég heyri það í heyrnartækjum.
Við verðum að vera viss.
Komdu með aðra
raðarstöðu.
Fjórum er beint að upprunanum,
hinir eru að stilla sig.
það er bilun
í 16. sjónauka.
Fjórir eru réttir, hinir
eru að stilla sig.
það er bilun í þeim
sextánda. Náðirðu því?
Hvað eigum við að gera
við upptakaröðina?
Fáist ekki um það
en látið það bíða.
Búið ykkur undir handstýringu
strax og við erum stillt.
það á að færa loftnet 27
um leið og við erum komin.
En láttu staðarsveiflutíðnina
vera óbreytta.
Ef þið týnið henni
leitið þá að henni.
Leitið á öllum sviðum
sem ykkur dettur í hug.
Hvernig gengur?
Talið við mig, strákar.
Við náum boðum sem eru
á skrítnum stað og hreyfast.
Við erum tengdir. Allt er
í lagi. Hver er tíðnin?
4,46...
23 gígahertz.
Vetni sinnum pí.
Ég sagði þetta.
þetta heyrist greinilega.
Ég fann það og er
stilltur inn á það.
Leyfðu mér að heyra það.
Hlustaðu á.
Segðu að ég sé
lygari, Fish.
þetta gætu verið flugviðvörunarboð
frá Kirkland
sem reyna að trufla okkur
en ég efast um það.
Athugið hvort fylgikerfið
heyrir þetta líka.
Færðu til baka
og gefðu upp stillingu.
-Er þetta tekið upp?
-Án afláts.
þakka þér, Elmer.
það eru engin
flugviðvörunarboð.
Hvað um Hvítusanda?
Ekki á þessari tíðni.
Aðgæti
njósnagervitunglin.
Hvernig gengur
að njósna í kvöld?
Svona nú.
Varnarstjórnin finnur engin
njósnatungl á svæðinu.
Geimskutlan Viðleitni
er aðgerðalítil.
Við vitum hvaðan
þetta kemur.
Hvað sem það er kemur
það ekki frá jörðinni.
Staðsetning?
Víxlmælirinn sýnir að það er
í stjörnumerkinu Lyru.
-Vega?
-það getur ekki verið.
Hún er aðeins
26 ljósár héðan.
-Hámarksstyrkleiki?
-Hann kemur.
Vega.
Ég mældi hana oft í Arecibo.
Alltaf neikvæð.
Hér er þetta.
Meira en 100 janský.
Jesús. Ég næ
þessu á...
Nei.
Áfram.
það byrjar að nýju.
Bíðið við.
þetta eru tölur.
þetta eru 3.
Á undan komu 2.
Tölur í tíunda veldi
Sjáum hve hátt við komumst.
Einn.
Sjö.
þetta eru prímtölur.
2, 3, 5 og 7 eru
allt prímtölur.
Útilokað að þetta sé
náttúrufyrirbæri.
Verum róleg og flettum
upp gögnum um Vegu.
það er ekkert vit í þessu.
Kerfið er of ungt.
þarna getur ekki
verið plánetukerfi
og því síður líf
eða tæknikunnátta.
Kannski eru þeir ekki
þaðan heldur í heimsókn.
Geimflaug? Kerfið er fullt
af rusli sem hún yrði fyrir.
Ekki ef þeir nota leysibyssur
og ljóseindatundurskeyti.
-þetta er ekkert fyndið.
-Hvaða skýring er önnur?
það er rétt hjá Willie.
Ef við opinberum þetta
og það er rangt
er öllu lokið fyrir okkur.
Ég vildi að Kent væri hér.
Gerum eitthvað, hvað sem þetta er.
Vega fer að setjast.
lan Broderick CSIRO Stjórnarklefa
Ástralíu
Staða staðfest. þetta er
á 4,4623 gígahertzum.
Við greinum 112 janský.
Vitið þið hvaðan
þetta kemur?
Úr miðju stjörnumerkinu.
Vegu.
Haldið áfram að hlusta.
Við höfum aftur samband.
Einmitt.
101 . Allar prímtölur
hafa verið raktar
frá 2 upp í 101 .
Hverjum segjum
við frá þessu?
Öllum.
þetta er altalað og margt
einstakt gefið í skyn.
Ekki er hægt að staðfesta
eða hafna
að fundist hafi óþekktur
hljóðgjafi í geimnum.
Koma herliðs...
þeir sem þekkja til hjá
Risaröðinni segja
að einhver vitsmunavera
hafi haft samband
og búi hún utan sólkerfis
okkar. þetta er óstaðfest.
Ég vil að allt
þetta fólk fari.
Hvar er stúlkan?
22 stöðvar um allan heim
hafa staðfest að hafa
greint merkið.
Vega er komin
undir sjóndeildarhring.
þú heyrir merkið
frá Rússum...
Sækjum dulmálsfræðingana.
Lunacharsky er í heimsókn
í Tækniháskóla Kaliforníu.
Útskýrðu þetta
fyrir mér.
Ef merkisgjafinn er svo háþróaður
af hverju svo frumstæð stærðfræði?
Af hverju ekki bara ensku?
Af því að 70%%% jarðarbúa
skilja ekki ensku.
Stærðfræði er eina
sameiginlega tungumálið.
þeir nota ekki prímtölur
af tilviljun.
Ég skil þetta ekki.
Prímtölur.
Heilar tölur sem aðeins talan 1
og hún sjálf ganga upp í.
Við höldum að þetta
geti verið hljóðviti;
þeir vilji láta
okkur vita af sér.
Ef þú vilt athygli hefur það tekist.
það er dálítið um Vegu.
Menn hafa horft á hana árum
saman en án árangurs.
Í gær var farið að senda
prímtölur þaðan. Af hverju?
það var varla í gær.
þetta hefur verið
á leiðinni í 26 ár.
Afsakaðu.
Hver ert þú?
Michael Kitz, ráðgjafi
um þjóðaröryggi.
Orðstír þinn...
Biddu mennina með byssurnar
að bíða úti.
þetta er borgaraleg
aðstaða.
Með fullri virðingu fyrir...
Afsakaðu.
Mikið er ég fegin að þú
skulir kominn aftur.
Hlustaðu á þetta.
Er þetta frábært?
-Hvaða menn eru þetta?
-Ég veit ekki baun.
Sestu. Við þurfum hjálp
við rófgreininguna.
-Ég byrja strax á þessu.
-Heyrnartólin.
Ég sný mér að efninu.
það kann að hafa verið brot
á þjóðaröryggisreglum að
tilkynna þetta um allan heim.
þetta er ekkert
einkasímtal.
Heldurðu að þetta sé bara
ætlað Bandaríkjamönnum?
Ég segi að þú hefðir átt
að ráðgast við okkur.
-Efnið gat verið viðkvæmt.
-Eru prímtölur leyndarmál?
Vegna snúnings jarðar varir
samband við Vegu ekki lengi.
Eina leiðin til að ná merkinu upp
er að starfa með öðrum stöðvum.
Ef Arroway hefði ekki verið snögg
hefðum við misst af lykilatriðum.
Allir vita þá af prímtölunum.
En ef mikilvægari boð
eiga eftir að berast...
Við þurfum hjálp til að taka
á móti og ráða þau.
þú skilur að mér ber
að vernda...
-Hlustaðu.
-Ég heyri.
Hvað heyrið þið?
Yfirtón.
Ég bað Willie að biðja Rattan
að setja aftur á 8.9247 gh.
Hér er enn fleira.
-Farðu á neikvæða tíðni.
-Ég er á henni.
Hvað er þetta?
Annað merki.
Annað merki á helmingi hærri
tíðni. það er eins...
Komið með sjónvarp.
Tengdu það við
ímyndaframkallarann.
Viltu nýjustu gögnin?
Já, þessi sem við
vorum að hljóðrita.
David, viltu útskýra
þetta fyrir mér?
það er annað merki sem gæti
verið sjónvarpssending.
Allt er til reiðu.
Dragðu fyrir.
það skín á skjáinn.
þú ert tengd.
þetta er örugglega mynd.
Reynum að ná henni.
Hvað lestu út úr þessu?
þetta eru tvö merki.
Ég aðskil þau.
-þetta er bara hávaði.
-Ég reyni að einangra hitt.
það er eitt merki enn.
Ég held það sé hljóðmerki.
Tengdu það.
Stilltu á mitt tækið.
Ég geri það.
Færðu skýrari mynd?
Ég reyni það.
Hver fjárinn.
Reyndu að fara frá þessu.
K yrr.
Snúðu þessu við.
Reyndu að fara
aftur burt.
Snúðu 90 gráður
andsælis.
Guð minn.
Hvað er um að vera?
þú trúir þessu ekki.
Talar einhver þýsku?
Ég segi Berlínarleikana,
til heiðurs
fyrstu Ólympíuleikum
á nýrri öld,
setta.
Gefðu mér samband
við Hvíta húsið.
þessi skepna myrti
20 milljónir manna
og er hún fyrsti sendiherra
okkar utan sólkerfis okkar?
Ólympíuleikarnir 1936
voru það fyrsta
sem var sjónvarpað
út í geiminn.
Endursending táknar
að einhver heyrði þetta.
Eða: " Sieg Heil, þið eruð
fólk að okkar skapi" .
þetta er óviðkomandi
stjónmálum Hitlers.
Ólíklegt er að þeir hafi skilið
þetta. Fólk verður að skilja...
Fólkið er í mjög
góðum höndum.
Nú sjáum við um þetta.
Brosið, það er
horft á okkur.
Boð utan sóIkerfisins
af óþekktum uppruna
bárust bandarískum
vísindamönnum.
þá er það Hvíta húsið.
Okkur var tjáð að forsetinn
vildi fátt segja um einstæða
viðburði dagsins og myndi ekki
svara spurningum fréttamanna.
Góðan dag.
Ég er feginn því
að ráðgjafi minn
í vísindamálum er hér.
þetta er árangur
margra ára rannsókna
sem fremstu vísindamenn
heims hafa unnið að.
Eins og með aðrar
uppgötvanir
verður haldið áfram
að athuga þessa,
skoða
og gaumgæfa hana.
Aðrir vísindamenn verða
að staðfesta þetta.
En það er augljóst
að rannnsóknin
bendir til...
Fish, hvað er að gerast?
Ellie átti að koma fram.
Ég veit það ekki.
Strákar.
þessir samfléttuðu rammar
sem við töldum hávaða
hafa greinilegt mynstur.
Ég get heyrt það.
Ef þessi uppgötvun
verður staðfest
verður það eitthvert mesta
innsæi inn í alheiminn
sem komið hefur fram.
það sem fylgir þessu
er eins víðtækt
og tilkomumikið og unnt
er að ímynda sér.
Kannski fáum við svör
við æ***ömlum spurningum
en þá vakna líka aðrar
og enn meiri
grundvallarspurningar.
Við höldum áfram
að hlusta vandlega
á þessi boð
og höldum áfram
að leita svara
og þekkingar
sem er jafngamalt
mannkyninu
en skiptir framtíð
okkar miklu.
þakka ykkur fyrir.
Verður endurmetið hvort
þetta sé öryggisógnun?
Ég svara ykkur að loknum
fáeinum leiðréttingum.
Boðin bárust á föstudaginn
klukkan 6.31 að staðar-
tíma í Klettafjöllum.
þau voru einkum
stærðfræðilegs eðlis
og þótt annað sé sagt
virðast þau lögð fram
í góðum tilgangi.
Ég endurtek: Boðin
eru góðkynja.
Forsetinn hefur rætt við
leiðtoga víða um heim.
Gripið hefur verið til
allra öryggisráðstafana.
Til að útskýra það betur sem
gerðist síðustu sólarhringa
er hér yfirmaður hópsins
sem gerði þessa uppgötvun,
David Drumlin, sérstakur
vísindaráðgjafi forsetans.
þakka þér, Rachel.
Komiði sæl.
Árið 1936 var ördauft
sjónvarpsmerki notað
til að senda út opnunarathöfn
Ólympíuleikanna.
þetta átti að sýna yfirburði
þjóðverja á sviði tækninnar.
Merkið fór frá jörðu á ljóshraða
og 26 árum síðar
lenti það nálægt stjörnu
sem við köllum Vegu.
Merkið hefur nú verið sent
til baka, magnað hrikalega,
en það bendir óneitanlega
til vitsmunalífs.
Byrjaðu, Kent.
Hraði útsendingar var 25
rammar á sekúndu
en við tö*** við 50.
Við settum hin 25 í algrím.
Við fundum ýmis merki
efst á hverjum ramma.
-Ertu viðbúin?
-Já, haltu áfram.
Sendu það, Willie.
Hér kemur þetta.
þetta er stafrænt
og gífurlega mikil gögn.
og nær upp í æðri
yfirtóna.
Sá stóri.
þið sjáið
að saman við upprunalegu
myndirnar af Hitler
voru sett þessi gögn.
Við héldum að þetta væri
hávaði en það voru gögn
í gífurlegum mæli.
þegar við tengjum þetta
upprunalega merkinu
fáum við dulmálstexta.
Engar tvær síður eru eins
og við höfum þegar skoðað
10 þúsund síður.
Hvað merkir þetta?
Við vitum það ekki. það getur
verið hvað sem er.
Fyrsta bindi alfræðisafns
vetrarbrautarinnar.
Fyrirmæli um að þeir ætli
að leggja okkur undir sig.
Móses með nokkra milljarða
nýrra boðorða.
Hve lengi er verið
að ráða þetta?
Kannski heila eilífð.
Okkur vantar góða bók...
Við verðum að fá bestu
dulmálsfræðinga sem til eru.
Stjórnstöð mín verður
á Risaröðinni.
Við höfum undirbúið
fjárhagsáætlun til bráðabirgða.
Hægan nú.
Starfið er fjármagnað
með einkafjármunum.
Við kaupum skoðunartíma
af hinu opinbera...
Hér er greinilega um
eignarnámsheimild að ræða.
Ég mæli með því við forsetann
að herinn sjái um þetta.
Hvað? þetta er
verkefnið mitt!
Enginn veit meira um þetta
en ég. David, segðu þeim...
Afsakið. Getum við
verið róleg?
Ég mun að mæla með því
að Drumlin stjórni greiningunni.
En með tilliti til reynslu Arroways
stjórnar hún aðgerðum í Risaröðinni.
Hljótt verður að hafa um það
sem kann að koma í ljós
þar til forsetinn
getur ákveðið
hvað er hentugast að gera.
Er það skilið?
Já.
Hér eru nýjustu
fréttir frá CNN.
Forsetinn sagði að boðin
frá Vega væru
"ótrúleg innsýn inn
í alheiminn".
...átök lögreglunnar
og nýnasista.
það er þá líf á öðrum
plánetum.
Nú breytist keppnin
um Ungfrú alheim.
Heilbrigðisyfirvöld víða
óttast að boðin frá Vega
gæti komið af stað
mörgum fjöldasjálfsmorðum
ekki ólí*** þeim sem urðu
í grennd við San Diego...
Jafnvel vísindamenn
verða að játa
að þetta hefur á sér
trúarblæ.
Hér er maður en samtök
hans voru ásökuð um
að rannsaka þetta
sjálf nú nýlega:
Richard Bank, forstöðumaður
Íhaldsbandalagsins.
þakka þér fyrir.
þetta er enn eitt dæmi þess
þegar vísindin vaða inn á trúmálin.
þetta eru viðbrögð þeirra
við sjónvarpi frá 4. áratug.
þeir voru að fá merkið.
þeir yrðu vonsviknir ef þeir
héIdu með Húnunum.
Nú tekur Jeremy Roth við
en hann talar
frá Risaröðinni nálægt
Socorro í Nýja-Mexíkó.
þetta kom eins og þruma
úr heiðskíru lofti.
"Boðin frá Vegu"
ollu því
að þúsundir trúaðra
og vantrúaðra
fóru að Risaröð í eyðimörk
Nýja-Mexíkós.
Margir komu til að mótmæla,
margir til að biðja
en flestir komu til
að skemmta sér.
Ég sá þetta koma
af himnum.
það hafði langt horn
og eitt stórt auga.
Ég tók að hrista það
og hrópaði.
Mér sýnist þetta
purpuralita mannætan.
TRYGGING GEGN GEIMVERUM
NÆSTI VIDK OMUSTADUR:
VEGA
HITLER LIFIR
BÍLAKLÚBBUR VEGA
JESÚS ER GEIMVERA
LIFI LAS VEGA
VEGA EDA LÍFID
Allt fyrir Vegu
En þeim mistókst þetta.
þetta eru sömu menn og hafa
hvað eftir annað
næstum steypt okkur
í glötun!
þeir hafa mengað loftið
og eitrað vatnið.
þessir vísindamenn
hafa fengið tækifæri.
Eru það svona menn
sem þið viljið að tali
við guð fyrir ykkur?
Unnið er allan
sólarhringinn.
En nú, næstum tveimur vikum
eftir að boðin bárust
eru vísindamenn í Risaröð
litlu nær.
Aðeins hafa vaknað
fleiri spurningar.
Jeremy Roth, CNN,
Socorro í Nýja-Mexíkó.
Við höldum áfram á eftir
að fjalla um merkinguna.
þetta hlýtur að eiga
einhvern veginn saman.
þetta passar ekki heldur.
Við höfum reynt meira
en milljón umraðanir.
En ég kem aldrei nema
þremur hornum saman.
Ég skil ekki
merkinguna.
TÖL VUPÓSTUR
BOD K OMA
SENDANDI ÓþEKKTUR
FARDU MED MIG
TIL YFIRMANNS þÍNS
HVER ERTU?
ÉG BÝ YFIR LEYNDARMÁLI
Einhver tróð sér inn.
HVER ERTU?
Halló?
Hver sem þú ert braustu
inn í gagnasafnið...
Ha, núna?
Hvar?
HITTUMST HÉR
KL. 23.50
Ég kem.
þú getur talið
þig heppna.
Hann lendir sjaldan
fyrir neinn.
Doktor Arroway,
vænti ég?
Herra Hadden.
Ég hef lengi
fylgst með þér.
Ég tel þig einhverja bestu
langtímafjárfestingu mína.
Og þegar um fjárfestingar
er að ræða
undirbý ég mig alltaf.
Eleanor Ann Arroway,
fædd 25. ágúst 1964
í De Pere í Wisconsin.
Móðirin, Joanna, dó úr
veikindum í kjölfar fæðingar.
Rannsóknir á þér ungri
sýndu mikla hæfni
í vísindum og stærðfræði.
Faðirinn, Theodore
var ráðlagt að hvetja þig á þessu sviði
og hann gerði það samviskusamlega
þar til hann dó
úr hjartaslagi
10. nóvember 1974.
þú útskrifaðist
úr miðskóla 1979,
næstum tveimur árum
á undan jafnöldrum þínum.
þú fékkst námsstyrk
frá MIT-skólanum
og útskrifaðist
með ágætiseinkunn
þú vannst að doktorsnámi
í Cal Tech og skrifaðir
um rúbínmeysi með
lanþaníðvotti
og hvernig þetta gerði
radíósjónauka miklu næmari.
þér bauðst síðar
kennarastaða við Harvard
en þú hafnaðir henni og tókst
að leita að lífi í geimnum
í Arecibo-athugunarstöðinni
í Púertóríkó.
Stefnubreyting varð á
framlögum ríkisins til vísinda.
þetta olli vissum
vandkvæðum
og um það leyti
frétti ég af þér.
þú lagðir öryggiskóða
okkar í hættu.
Einu sinni
var ég afbragðs
verkfræðingur.
Gerðu svo vel að setjast.
Ég fæ sjaldan gesti
en ég legg mig fram um
að láta þeim líða vel.
Býrðu hér?
Mér þykir þægilegt
að fylgja áhugamálunum
á hreyfingu.
Ég hef fengið nóg af
að vera á jörðu niðri.
Ég ætti víst
að þakka þér fyrir að hafa
bjargað mér í sífellu.
Ég tel mig vita
hvað sé pottþétt.
Earl Grey te án mjólkur
og sykurs, held ég.
Af hverju er ég hér?
Núverandi stjórnvöld
hafa verið önnum kafin
við að koma sér fyrir
vegna helsta viðburðar
á þessu árþúsundi.
Ég get kannski komið
þér aftur inn.
Ég vissi ekki
að ég væri komin út.
Kannski ekki út
en það er verið
að vísa þér út.
Ég hef haft nægan tíma
til að eignast óvini.
það eru margar
ríkisstjórnir,
hagsmunaaðilar
og jafnvel trúarleiðtogar
sem vilja mig feigan.
Ég verð fljótlega
við ósk þeirra.
En fyrst langar mig að leggja
dálítið af mörkum.
Lokavottur góðvildar í garð
jarðarbúa sem gáfu
og ég tók svo margt frá.
þú réðst þá dulmálið.
Gáfnaljósið.
Ljósin.
Fjöldi síðna
með gögnum.
Yfir 63 þúsund í allt.
Og á jaðri þeirra allra:
Raðtákn, skráningarmerki
en þau eru ekki rétt.
Víst eru þau það.
Hjá þeim sem hugsa
eins og Vegubúar.
þeir hafa meiri
vitsmuni en við.
þetta merkir gáfur sem starfa
á mörgum stigum
og í mörgum
víddum.
Já, auðvitað.
Hvar er lykillinn?
þú færð að sjá hann.
Á hverri þrívíddarsíðu
er hluti lykilsins.
þetta hefur alltaf
blasað við ykkur.
Dulmálslykillinn var
í sjálfum boðunum.
Innan fylkisins eru þessar
grundvallarjöfnur:
2 + 3 = 5 Rangt
Með þessum
grundvallarupplýsingum fengum við
eins konar almennt
vísindaorðasafn.
Nú höfum við táknin
um rétt og rangt...
þetta var lykillinn
og með honum gátum við
skilið mál þeirra
á sviði eðlisfræði, jarð- og
efnafræði. Næsta ramma, Ellie.
þegar við notum þetta á það
sem er eftir boðanna
sjáum við þetta.
þetta líkist helst
verkfræðiteikningum.
Já.
Við höldum að þetta séu
leiðbeiningar
um gerð einhvers,
einhvers konar tækis.
Tækis? Hvað gerir það?
Við vitum það ekki.
Kannski einhvers konar
fjarskiptabúnaður
eða kennslutæki.
Eða það gæti verið
eins konar samgöngutæki.
Samgöngutæki?
það er ósannað.
þú veist ekki hvað þetta er.
það gæti verið hvað sem er.
Trójuhestur og úr honum
kemur allur her Vegu.
Af hverju að hætta liðinu?
þetta gæti verið vopn.
Einhvers konar
gereyðingarvopn.
Einmitt. þegar þeir vita
af nýrri menningu
senda þeir byggingar-
teikningar utan úr geimnum.
Við aumingjarnir smíðum þetta
og splundrumst í leiðinni.
það er ástæðulaust að ætla
að þeir séu óvinveittir.
Gáfnaljós halda alltaf
að geimverur séu vinveittar.
þeim stendur engin
ógn af okkur.
þetta væri eins og við
hefðum mikið fyrir
að sálga örverum
í mauraþúfu.
Athyglisverður samanburður.
Fyndum við til sektar
ef við sálguðum nokkrum
örverum í mauraþúfu?
Ég vona að þetta sé rétt.
Ég vona það
vissulega.
En mér ber að verja
líf Bandaríkjamanna.
Mér ber því skylda til
að búast við öllu versta.
Ég neyðist til að vera
sammála þér.
Vandamál mitt er þetta:
Boðskapur þeirra er
margræður ef best lætur.
Stuðningur við þetta er
ótrúlega lítill í samtökunum.
Ef forsetinn hvikar
ekki frá stefnu sinni
snarminnkar fylgið
við hann.
þetta er út í hött.
Afsakaðu,
ungfrú.
Við vitum ekkert um gildi
þessara vera
og jafnvel ekki
hvort þær trúa á guð.
það er ekkert vit í þessu.
Ef þið spyrðuð...
Afsakaðu, doktor
Arroway.
Allir hafa málfrelsi
hér í dag.
Auðvitað. Ég skil það.
Ég átti við að þessi
boðskapur
var skrifaður á
vísindamáli.
Ef hann hefði verið trúarlegur
hefði hann birst
sem brennandi runni
eða hávær rödd af himnum.
En rödd af himnum
er einmitt það
sem þú fannst.
Afsakaðu hvað ég
kem seint.
Ég er sammála Rank um
að óhjákvæmilega
sé eitthvað trúarlegt
í dæminu.
En það réttlætir ekki
einhverjar hrakspár.
Vonandi finnum við
sameiginlegan grundvöll
og ryðjum burt hindrunum
sem hafa stíað okkur í sundur.
Ég vil að eitt sé á hreinu.
Samtök okkar láta ekki róast
af nýaldarskrúðmælgi frá...
Herra forseti!
Forsetinn kom ásamt
helstu ráðgjöfum sínum
til þeirra sem reyna
að ráða táknin.
Miðað hefur áfram
en menn eru varkárir.
Ef þið spyrjið
hvenær við vitum
til hvers vélin er
vitum við það kannski á
morgun, næsta ári eða aldrei.
þarna er sá sem er með fingur
á andlegum púlsi þjóðarinnar.
Mikið er gaman
að sjá þig.
Og þig.
Uppgötvun þín, allt þetta.
þetta er mikil réttlæting.
Ég samgleðst þér.
Í alvöru?
Forsetinn bíður,
herra Joss.
Forsetinn bíður.
Sjáumst við í móttökunni?
Ég fer ekki að sleppa henni.
Má ég tala við þig,
ungfrú Constantine?
Vissulega.
Ég á í miklum vanda.
Veistu hvar ég get fengið
verulega fínan kjól?
Vísindi eru ekki
okkar Guð
Guð skapaði manninn í líkingu
sinni, ekki sem apa.
Fáðu þér vinnu.
Sóaðu ekki almannafé!
þú ert falleg, Ellie.
-þú ert það líka.
-Ég meina það.
Ég las bókina þína.
Byrjar það nú.
Á ég að vitna í þig?
"það er kaldhæðnislegt
en það sem menn
hungrar helst í,
meiningin,
er það eina sem vísindin
hafa ekki getað veitt" .
Já.
það er eins og þú
sért að segja
að vísindi hafi
drepið guð.
En ef vísindin upplýstu
að hann hefði
aldrei verið til?
Ég held við þurfum
að fá hreint loft.
Og nokkur glös enn.
þakka þér fyrir.
Hér er hálfsvalt.
þetta er indælt.
Ég er með spurningu.
Kannastu við
Occam-rakhnífinn?
Er það einhver
hryllingsmynd?
Occam-rakhnífur er undir-
stöðulögmál og hljómar svo:
Ef allt er jafnt er einfaldasta
skýringin sú rétta.
Ég sé skynsemi í því.
Hvað er þá líklegra?
þakka þér fyrir.
Almáttugur guð
skapaði heiminn
og ákvað svo að sanna
ekki að hann væri til?
Eða
hann er ekki til
en við bjuggum hann til
svo okkur fyndist við ekki
svo lítil og einmana?
Ég veit það ekki.
Ég get ekki ímyndað mér
hvernig er að vera í heimi
þar sem guð er ekki til.
Mig langar ekki til þess.
Hvernig veistu að þú ert
ekki að blekkja þig?
Hvað mig snertir,
þá þarf ég að fá sannanir.
Sannanir?
þótti þér vænt
um föður þinn?
þótti þér vænt
um pabba þinn?
Já. Mjög.
Sannaðu það.
Kent.
Hvíta húsið.
Hver sem á sökina vil ég fá
höfuð hans á fati.
Hvað gerðist?
þetta var rétt hjá þér.
Menn hafa unnið allan
sólarhringinn í Risaröð
og puðið hefur loks
skilað árangri.
Aðalhlutinn komst á hreint
í kvöld. þetta er frá CNN
og sýnir manneskju
sem er í einhverri
rúmfræðilegri byggingu.
þessi og aðrar vísbendingar
í þessu samhengi
hafa fengið vísindamenn
til að trúa að boðin...
Forsetinn boðar til skyndifundar.
Kemur ekki á óvart.
Ætlað til að flytja einn
mann út í geiminn,
líklega til stjörnunnar
Vegu.
Segðu frá.
þetta verður búið til.
Hver fær að fara?
Forsetinn fær aðrar þjóðir til
að vera með í áhættu og kostnaði.
Hver fer?
þetta er margbrotið.
Menn frá mörgum
löndum koma til greina.
þú uppgötvaðir þetta.
þeir skilja það. þú ert
efst á stuttum lista.
það verður líka
skipað í valnefnd.
Á henni eru fræðimenn, guðfræðingar,
vísindamenn, heimsspekingar...
þú ert í henni.
Já, ég var beðinn um það.
það táknar líklega
að þú velur, ég kem til
greina og við getum ekki...
Já.
þú skilur ekki að...
Ég skil.
þú mátt vita að hvað sem
gerist og hvað mig varðar...
Gangi þér vel.
Búðu svo um að hann
einoki ekki nefndina.
Hann er ekki í henni.
Hann sagði upp starfi sínu.
Hann vill fá að fara.
Forsetinn er þegar farinn
að finna fyrir kostnaðinum.
Hermt er að kostnaðurinn
við þetta fari vaxandi
og verði meira en
300 milljarðar dala.
þannig yrði það ef til vill
dýrasta verkefni
allrar mannkynssögunnar.
Eftir margra mánaða þjark
náðist samkomulag um
að velja tíu manna hóp.
þeir hafa ýmsar stjórnmála-
skoðanir og margvíslega trú.
þetta eru margir sömu
sérfræðingar og ráðgast var við
um gerð og starf
flaugarinnar.
þeir munu taka þátt í og
fylgjast með smíðinni.
En valið á þessum mönnum
hefur verið umdeilt.
þrír þeirra eru
Bandaríkjamenn.
Margir útlendingar spyrja
hver ástæðan sé.
Bandaríkjamenn greiða
mikinn hluta kostnaðarins.
En taka ekki stórir verktakar
á borð við Hadden
þátt í kostnaðinum gegn
því að fá tæknirétt á móti?
Ýmsum þjóðum er bætt
þetta á ýmsan hátt.
Japanar vöktu athygli með því
að afsala sér geimfara
gegn því að fá að smíða
stoðkerfi flaugarinnar.
Á hvaða grunni
ætti að velja
þá manneskju sem verður
fulltrúi mannkynsins?
þetta er góð
spurning, Larry.
þótt það væri ekki annað
á manneskjan
að vera vel að sér í málinu
sem boðin bárust á.
Vísindum í þessu
tilviki.
þrátt fyrir augljósan
eldmóð þinn
hefur það verið
gagnrýnt talsvert
að þessi ferð sé
of hættuleg.
Sumir gagnrýnendanna
eru vísindamenn.
Ég hef hér eftir
Nóbelsverðlaunahafa:
"Allt bendir til
að við ráðum ekki við þetta,
það muni mistakast
og sá sem fari gjaldi
þess með lífi sínu".
Hverju svararðu þessu?
þessi boð eru frá menningu
sem er mörgum öldum eða
ármilljónum á undan okkur.
Ég held að svo háþróaðar
vitsmunaverur viti
hvað þær gera.
það eina sem er krafist
af okkur er...
Trúin?
Ég ætlaði að segja
ævintýraþrá.
Nýjustu fréttir er þær
að John Russell geimfari,
en hann þótti líklegastur
til að fara úr hópi Bandaríkjamanna,
hefur óvænt dregið
sig í hlé.
Russell talaði við blaðamenn
á heimili sínu í Houston.
Ég sagði pabba mínum
að ég vildi ekki
að hann færi.
Ekki fara, pabbi.
Ég yrði ekki stoltari
af neinu
en að fá
að vera fulltrúi
þjóðar minnar.
En hverju get ég
svarað þessu?
Embættismenn hafa
ekkert sagt
en heimildir herma
að doktor Arroway
sé nú líklegust til
að fara í ferðina.
"Hittumst í hádeginu.
Verð að tala við þig" .
Ég bjóst ekki við svona
skilaboðum frá þér.
þakka þér fyrir
að hafa komið.
Er leyfilegt að vingast
við óvininn?
Að kjörmenn og kjörnir
umgangist?
Getum við talað
um Einstein?
Auðvitað.
Um afstæðiskenninguna.
þetta tæki...
ef það er í lagi og þú ferð
til Vegu á hraða ljóssins...
-þegar þú kemur aftur...
-Ef ég kem aftur.
Ef þú kemur aftur
hefurðu elst um 4 ár en 50 ár
hafa liðið á jörðinni.
Í aðalatriðum.
Allir sem þér þykir
vænt um
eru dánir og grafnir.
Ef þú kemur aftur,
ef þú lifir þetta allt...
Sjáðu til, Palmer. Enginn segir
að þetta sé ekki hættulegt.
Okkur sem komum til greina
er fyllilega ljós hættan.
Af hverju?
þetta er sögulegt tækifæri.
Heimurinn þarfnast...
þín, Ellie.
þín sjálfrar.
Ef þú gerir þetta ertu fús
til að fórna lífinu.
þú vilt deyja fyrir þetta.
Af hverju?
Síðan ég man eftir mér
hef ég leitað
að einhverju...
ástæðu þess að við erum hér.
Hver erum við?
Ef þetta er tækifæri til að fá
að vita það að nokkru...
Ég held það sé virði
eins mannslífs.
En þú?
þú ert ótrúlega hugrökk.
Eða ótrúlega rugluð.
Ég er ringluð.
Ég er það líka.
Ég tala fyrir hönd allra þegar
ég þakka þér þolinmæðina.
Ég er með lokaspurningu,
dr. Arroway.
Ef þú hittir þessa
Vegubúa
og mættir leggja eina
spurningu fyrir þá
hver yrði hún?
Ég held hún yrði:
"Hvernig fóruð þið
að þessu?
Hvernig þróuðust þið
og lifðuð gelgjuskeiðið
í tæknifræðinni af
án þess að eyðileggja ykkur"?
Ég vil umfram allt fá
svör við þessu.
Ekki sem verst, Mike.
Ég tek undir með
dr. Bergeron
og þakka þér þolinmæðina
dr. Arroway.
Við hrifumst öll
af hreinskilni þinni
og úthaldi.
Ég held það sé komið
að lokaorðum þínum.
Ég er með spurningu.
Já, herra Joss.
Telurðu þig vera
andlega sinnaða?
Ég skil ekki tilganginn
með spurningunni.
Ég tel mig siðprúða.
Við getum vel trúað því
en Joss spyr...
Trúirðu á guð?
Sem vísindamaður
reiði ég mig á beinar
sannanir og í þessu máli
trúi ég ekki að neitt hafi
verið sannað eða afsannað.
þú svarar þá að þú
trúir ekki á guð.
Ég skil ekki hvað það
kemur þessu máli við.
95% alls mannkyns
trúa á tilvist einhverrar
æðri veru.
Ég held að spurningin
sé ákaflega mikilvæg.
Ég trúi...
Ég held að ég hafi
svarað spurningunni.
Ég er stoltur af því sem við
höfum afrekað sem mannkyn
og sem menningarsamfélag.
Mér væri illa við að sjá
allt sem við trúum á
og höfum barist fyrir
í þúsund kynslóðir,
allt sem guð hefur
gefið okkur
vera svikið
á lokastundu af því að við
sendum fulltrúa
sem lét okkar kærustu trú
ekki ganga fyrir öðru.
þakka ykkur fyrir.
Af hverju gerðirðu þetta?
Við áttum að velja
fulltrúa alls mannkyns.
Ég gat ekki samvisku minnar
vegna valið manneskju
sem trúir ekki á guð.
Manneskju
sem í alvöru heldur
að 95%%% mannkyns þjáist
af einhverri
fjöldaranghugmynd.
Ég sagði sannleikann.
Drumlin sagði nákvæmlega
það sem þið vilduð heyra.
Af fyllstu auðmýkt
og mesta þakklæti
þigg ég þennan heiður
og heiti því að leggja mig
fram sem fulltrúi þjóðarinnar,
plánetu minnar og guðs
í þessari sögulegu
ferð.
Ég þakka ykkur
frá innstu hjartarótum.
það er kjötkveðjuhugblær
á Canaveral-höfða.
Flaug alþjóðasamsteypunnar
vekur jafnmikla athygli
og verið væri að prófa hana.
David Drumlin fylgist
með tilrauninni.
Við töluðum við hann
fyrr í dag.
Við getum fylgst með álaginu
á róbotafarþegann
sem við köllum
í góðu Elmer.
Blaðamenn vilja leggja
spurningar fyrir þig
þegar þeir hafa lokið
sér af við dr. Drumlin.
þegar við losum hylkið
myndast mikil orka.
Við getum mælt álagið
og áhrifin
með því að nota
vélmenni sem farþega.
Við köllum hann
í góðu Elmer.
þakka þér fyrir.
það var lítið.
þín er beðið á staðnum.
Andartak.
-Til hamingju.
-Gott að þú gast komið.
Ég bjóst ekki við
að sjá þig hér.
Ég fylgist enn
með starfi áhafnar
í stjórnstöðinni.
það að ég uppgötvaði boðin gerir
mig að góðri almannatengslakona.
Auðvitað.
þér hlýtur að þykja þetta
ákaflega óréttlátt.
Kannski er það of vægt
til orða tekið.
þú veist ekki að ég
er sammála um það.
Ég vildi að réttlætið
skipti alls staðar máli
og þau háleitu markmið
sem þú sýndir á fundinum
væru verðlaunuð,
ekki misnotuð.
því miður búum við
ekki öll í þessum heimi.
Skrítið.
Ég hélt að heimurinn væri
eins og við gerðum hann.
Afsakaðu.
Gangi þér vel
við tilraunina.
þakka þér fyrir.
Tilraunastjóri,
allt virðist í lagi.
Ég er ferðbúinn.
ég vil að allt verði
tví- og þríyfirfarið.
Við fáum eitt tækifæri.
Gerum þetta því rétt.
Herrar og frúr, við getum
farið að ræsa flaugina.
Eftirlitsmenn, látið vita
áður en reynsluflug hefst.
-Hreyfill?
-Já.
Rafmagn?
Hreyfiafl?
Fjarskipti?
Farþegahylki?
Öryggi?
Öllum viðbúnaði fyrir
tilraunina er lokið.
Já, það er staðfest.
Stjórnandi skotpalls,
er allt í lagi hjá ykkur?
Allt er í góðu lagi
á skotpalli.
Byrjum þegar ég segi.
5...
4...
3...
2...
1 .
Núna.
-Tilraun er hafin.
-Hringir losaðir.
Næg orka virðist vera.
Tilraunin er hafin á
flugi fyrstu flaugar
sem er byggð í samvinnu
margra þjóða.
Flytja má orkuna
í kaplinum.
Raforku er beint
að flauginni.
Hringhreyfing finnst.
Alfa, Bravó, Charlie.
-Hvernig lítur þetta út, Gerry?
-Vel. Við leggjum af stað.
Ræsingin virðist eðlileg.
það lítur vel út
að sjá héðan, David.
það styttist í að hylkið
verði látið falla.
Allt er til reiðu.
-Vélstjóri, ertu enn ánægður?
-Mjög.
þetta er mjög
spennandi
hérna uppi.
Tíðnin er 9,85 kílóhertz.
ÖII hjáIpartíðnisvið
eru í góðu lagi.
þyngdarstig 1, 1.
-5%
-5% staðfest.
David, hvernig lítur
þetta út hjá þér?
Ég aðgæti það og skal
sýna ykkur það.
ÖII tæki virðast í lagi.
Við fáum góða mynd
úr vél Drumlins.
Vonandi sjáið þið það
sem ég sé.
Allt er í góðu lagi.
þetta er einstakt.
Vegna tilraunarinnar
verður Drumlin í krananum
sem er fyrir ofan flaugina.
Við eigum teiknimynd af því
hvernig talið er
að flaugin verki.
Farþegahylkinu
verður sleppt.
það fer niður í miðja hringi
og inn í flaugina.
En allir vilja vita
hvað gerist svo.
Sumir halda að hringirnir
séu eins konar hraðall
eða eitthvað slíkt
og orka fari úr þeim
í hylkið
þannig að flaugin þjóti burt
á allt að því hljóðhraða.
Aðrir halda að þetta opni
dyrnar að annarri vídd.
Hvort er rétt?
Tilraunin í dag
leiðir það í ljós.
-35%.
-Undirkerfin reiðubúin?
40% eðlileg hröðun.
Eftirlitsmenn, viðbúnir
að hefja sleppingu
þegar ég gef merki.
Allt er til taks
fyrir sleppingu.
45%.
Við erum í 45%.
Staðfestið lokun.
46.
Allir viðbúnir sleppingu
þegar ég gef merki.
48%%%.
Ég finn mjög
einkennilegan titring.
-Finnið þið hann þarna niðri?
-Geturðu staðfest þetta?
Allt virðist í lagi.
Áhafnarstjóri?
Ég sé ekkert.
Við sjáum ekkert óeðlilegt
hér niðri.
Bíðið með þetta.
Ég skoða þetta sjálfur.
Um hvað er hann að tala?
Vill hann láta
taka eftir sér?
Hann veit vissulega
að þessu er sjónvarpað.
Í minni sveit
kallast þetta ofleikur.
Ég sé 10 kílóhertz!
Hvaða þyngdarstig sjáið þið
á fyrsta og öðrum mæli?
þyngdarstigið er eins
og það á að vera.
Við staðfestum það sem Drumlin
sér. Allt er með felldu.
Ég held allt sé í lagi
en látum hann ljúka þessu.
-Hreyfill, er allt í lagi?
-Eins og allt á að vera.
Öryggisvandamál.
Ertu viss, Ellie?
Hann ætti ekki að vera þarna.
Ég þekki hann.
Gerry, komdu af stað
skyndilokuninni.
Öryggi, sendið neyðarlið
á vettvang.
Stilltu Drumlin
á örugga bylgju.
Hann er á henni.
-Heyrirðu í mér?
-Já.
Öryggið hefur
verið rofið.
Rétt fyrir aftan þig.
Hái maðurinn.
Tæknimaðurinn.
Sérðu hann?
Hann á ekki
að vera þarna.
Hann heldur á einhverju.
Takið hann!
Öryggisrof.
Hann er með sprengju.
Neyðarliðið á að fara
strax að skotturninum.
Viðbúnaður
á efsta stigi.
Brunaverðir og björgunarmenn
eiga að koma sér fyrir.
Farið öll á ykkar stað.
Verið fagmannleg.
Stillið ykkur.
Stjórnandi á skotpalli,
heyrirðu í mér?
Athöfnin í dag
þegar David Drumlin,
en hann var ráðgjafi
tveggja forseta
og vísindaakademían hafði
heiðrað ævilangt,
var lagður til hinstu hvílu
í Arlington-kirkjugarði.
Árásin í gærkvöldi...
Get ég liðsinnt þér?
Ég er með póst til þín.
augljóst sjálfsmorðsbréf
hryðjuverkamanns sem er
talinn ábyrgur fyrir sprenging-
unni á Flórída nú í vikunni.
það sem við gerum
er öllu mannkyninu
til góðs.
þetta skilst ekki núna
en í komandi hamförum
fær trú okkar
uppreisn æru.
Velkomin heim.
ÝTID Á EINHVERN L YKIL
SENDING ÚR MIR UM
comlink/ /sec.gov.394.434.13
EINKASENDING
Félagi Arroway,
við bjuggumst við
að þú hringdir.
Hadden?
Doktor.
það var fallega gert
að láta vita af þér.
Hvar ertu?
Rússar voru svo góðir
að koma mér fyrir í Mir.
Býrðu í geimstöð?
þetta er einfalt máI.
Lítið súrefni
og þyngdarleysið
er það eina sem hindrar
að krabbinn éti mig lifandi.
Ég kann reyndar mjög
vel við mig hér uppi.
það er afbragðsútsýni
úr litla herberginu mínu.
Mig langar að sýna
þér svolítið.
Hokkaido-eyja.
þar sem stoðkerfið
var gert.
Athugaðu það betur.
Fyrsta regla um eyðslu
stjórnvalda.
Af hverju að gera eina þegar
gera má tvær á tvöföldu verði?
En, það er bara hægt
að halda þessari leyndri.
Bandaríkjamenn ráða
yfir henni
en hana gerðu japanskir
undirverktakar
sem hafa líka
verið keyptir nýlega
og eru dótturfyrirtæki
Hadden-samsteypunnar.
þeir vilja enn að
Bandaríkjamaður fari.
Langar þig að fara?
Festing hefur
verið aukin
og hér er varastjórnborð
til samskipta
og þitt eigið
upptökutæki.
Venjulegar, innrauðar
og útfjólubláar linsur.
Stafræn örflaga sem taka má
upp með í þúsundir stunda.
Allt í lagi.
Ég skil
af hverju allt verður
tekið upp í ferðinni.
En mig langar að mótmæla
þessu einu sinni enn.
Á lýsingunni var
hvergi minnst á stól,
ólar til að spenna
mann niður
eða björgunarbúnað.
Getum við ekki bara
treyst upphaflegu...
Bæði bygginganefnd og rann-
sóknanefnd athuguðu efnið
og komust að því að áhrifin
eru næstum engin.
Aðalatriðið er
að enginn fer með flauginni
án þess að hafa
lágmarksvernd.
Útrætt mál.
Geimfarar hafa alltaf
fengið svona töflur.
Auðvitað hefur aldrei
verið greint frá því.
það er fljótvirkt
og sársaukalaust.
Ferðast ég í 26 ljósár
til að fremja sjálfsmorð?
Eitthvað gæti farið
úr böndunum.
það gæti orðið ófyrirséð
vélarbilun.
þú gætir orðið föst
og ekki snúið til baka.
það eru ótal ástæður fyrir
að þú farir með þetta
og þær eru líka margar
sem okkur dettur ekki í hug.
Kom inn.
þú þarft að fara
að undirbúa þig.
þakka þér fyrir.
Ég veit að tíminn
er ekki mikill.
Ég hringdi í forsetann strax
og ég frétti af flauginni.
Ég kom með Kitz.
Ég varð að hitta þig
einu sinni enn.
Ég harma þetta.
Nei, það gleður mig
að þú skyldir koma.
Ég verð að segja
þér dálítið.
Ég valdi þig ekki
af sérstakri ástæðu.
Ég valdi þig ekki
því ég vildi ekki
missa þig.
Nú ratarðu heim.
Fyrir 23 stundum
kom það öllum á óvart þegar
tilkynnt var að til væri önnur flaug
og dr. Arroway færi með henni.
Nú
brennur spurningin
á allra vörum:
Endurtekur sagan sig?
Flaugin er mjög margbrotin
og margir þættir óþekktir.
Gæti hið óhugsandi gerst?
Gæslan í Hokkaido hefur
verið ótrúlega mikil.
Engir fréttamenn hafa mátt
koma nálægt staðnum.
Hún hefur verið spennt niður.
Öll öryggistæki í lagi.
Ég náði þessu.
þetta er stjórnstöð.
Heyrirðu í mér?
Ég heyri mjög vel.
K veiktu á upptöku-
búnaðinum hennar.
SjónvarpsvéI tekur
upp og sendir.
-Heyrið þið í mér?
-Já.
Myndin er skýr.
Ég heyrði þetta,
stjórnstöð.
Við höldum áfram
að loka að þér.
Ég er tilbúin.
Ég staðfesti að
göngubrúin hverfur.
-Fjarskipti?
-Í lagi.
-Lífbjörgunarbúnaður?
-Í lagi.
Nú lokum við.
Allt er í lagi hér.
Vélstjórn, hefjið lokun.
Leyfðu mér að sækja
stól handa þér.
-Gaman að finna af þér lyktina, Kitz.
-Sömuleiðis.
Ég hefði ekki haldið
að hann notaði Polo.
Ég sé dyrnar lokast.
Lokun gengur
samkvæmt áætlun.
Dyraröðun virðist góð.
Öll tæki eru í lagi.
Ég heyrði það.
Flaugin er örugg.
Ég náði því. 30%%%.
Hvernig líður þér, EI?
Kent?
Ert þetta þú?
Svo sannarlega.
Hver hleypti þér inn?
Æðri máttarvöld
hjálpuðu mér.
það gleður mig
að þú skyldir koma.
35%%%
Ég náði því. 35%%%.
-Hreyfill?
-Í lagi.
40%%%.
Ég greini örlítinn
titring.
Aflstjórn, finnurðu
fyrir titringi?
Allt er í lagi. Hún finnur
það sama og fannst
á Höfðanum á sínum tíma.
Titringurinn er eðlilegur.
Ég náði því. 50%%%.
Titringur hefur
aukist lítillega.
Ég heyri lágtíðnihljóð.
Staðfestið þið það,
vélstjórn?
Allt virðist í lagi hér.
Líka hér.
Hvað finnst þér?
Allt er í lagi hér.
Við höldum áfram.
Eitthvað er að gerast.
Sjáið þið ljósið?
Ég sé...
Ég sé ekki hvort
það er bjart.
þarna er það aftur.
það kemur neðan frá.
Ég skal sýna ykkur þetta.
Sjáið þið það?
Nei. Sambandið rofnar.
-Getum við aukið styrkinn?
-Hann er í hámarki.
65%%%.
Efnið breytist.
það er hálfgagnsætt.
Kerfið er óskaddað.
þetta hlýtur að vera
einhvers konar
rafsegulsvið.
Náið þið þessu?
Við sjáum bara
truflanir.
þetta er að verða
hálfgagnsætt.
Ég get hvorki lýst því
né útskýrt það.
70%%%.
Samband hefur raskast
en við höldum samt áfram.
Ræsið hjálparhreyfla.
Aukakrafti bætt við.
Við getum farið
að kveikja.
Við bættum við aukakveikju.
Hvernig er hún,
líkamseftirlit?
Hjartsláttur og öndun hröð
en innan marka.
Ellie, heyrirðu í mér?
Ef þið heyrið í mér
er ég ferðbúin.
80%%%.
Titringur og þyngdarstig
eru innan marka.
Stjórnstöð, ef þið
heyrið til mín
er ég tilbúin
til brottfarar.
85%%%.
Allir kvarðar
eru eðlilegir.
90%%%. Við greinum
einhvern óstöðugleik.
þolir flaugin þetta? Við
erum rétt innan marka.
Ég er ferðbúin.
Ég er ferðbúin.
Drottinn minn dýri.
Ferðbúin!
Ég er í lagi.
100%%% hraði.
Hrikalegar rafsegultruflanir.
Mælingar sprengja alla mælikvarða.
Við nálgumst það stig að við
verðum að hætta við þetta.
Ég er ferðbúin.
STODVID
Ég heyri í henni.
Ógreinilega en hún
er þarna.
Ferðbúin.
Hún segist ferðbúin.
það er komið að þessu.
-Strengmælingar?
-Allt virðist í lagi inni í flauginni.
Allt er eðlilegt
þarna inni.
Ég er ferðbúin.
Ég er ferðbúin.
Látum hylkið falla.
þegar ég gef merki.
10,
9...
8...
7...
6...
5...
4...
3...
2...
Ég er ferðbúin.
Almáttugur.
Ellie til stjórnstöðvar.
Ellie til stjórnstöðvar.
Heyrið þið til mín?
Ellie til stjórnstöðvar.
Heyrið þið til mín?
Ég reyni
að halda upptöku áfram.
Ég fer inn
í einhvers konar göng.
Framundan er ljós.
Skært og
bláhvítt.
Geislunarleifar?
þetta er stjarna.
Ég hlýt að hafa
farið gegnum maðksmugu.
þetta er Vega!
Nú er ég í annarri
maðksmugu.
Ég vissi þetta ekki.
þær eru margar.
þær eru lifandi.
þetta er líkast
einhvers konar
flutningakerfi.
Neðanjarðarlest.
Guð.
Ég verð að halda
áfram að tala.
þetta er þrefalt,
nei, fjórfalt kerfi.
þetta er fallegt.
þau eru lifandi.
Enn ein maðksmugan.
það er meiri órói
í þessari.
Einhver
himneskur viðburður...
Nei!
Engin orð.
Engin orð
geta lýst þessu.
Ljóðlist.
þeir hefðu átt að senda
ljóðskáld.
þetta er svo fallegt.
Fallegt.
þetta er fallegt.
Ég vissi það ekki.
Halló, Neisti.
Pabbi?
Ég hef saknað þín.
Ertu ekki...?
Mér þykir leitt að hafa
ekki getað hjálpað þér.
þú ert ekki til.
Ekkert af þessu er til.
Alltaf sami
vísindamaðurinn.
Meðan ég lá þarna tókstu
hugsanir og minningar mínar.
Pensacola.
Við héldum að þetta myndi
auðvelda þér þetta.
Af hverju hafðirðu
samband við mig?
þú hafðir samband
við okkur.
Við vorum að hlusta.
Eru aðrir hér?
Margir aðrir.
Ferðast allir
með flutningakerfinu
sem þið bjugguð til?
Við bjuggum það
ekki til.
Við vitum ekki
hverjir gerðu það.
þeir voru farnir löngu áður
en við komum hingað.
Kannski koma þeir
einhvern tímann aftur.
Koma allir menningarstraumar
sem þú hefur fundið hingað?
Ekki allir.
-Er þetta eitthvert próf?
-Nei, ekki próf.
þú ert með hendur
móður þinnar.
þið eruð athyglisverð
tegund,
athyglisverð blanda.
Ykkur getur dreymt
mjög fallega
en líka fengið
hræðilegar martraðir.
Ykkur finnst þið
svo glötuð,
einangruð og einmana.
En þið eruð það ekki.
Á allri leit okkar
er það eina
sem við höfum fundið
og gerir tómleikann bærilegan
annað fólk.
Hvað gerist núna?
Núna?
þú ferð heim.
Heim?
En
ég þarf að spyrja
svo margs.
Fáum við að koma
aftur hingað?
þetta er bara
fyrsta skrefið.
Með tímanum förum
við lengra.
Aðrir verða að sjá það
sem ég hef séð.
þannig hefur þetta verið
gert í miljarða ára.
Lítil skref, Ellie.
Lítil skref.
Við erum með
sjónvarpsmyndir af Ellie.
Hún er komin til baka.
Hún er í netinu.
Hún er lifandi.
Hringdu í forsetann.
Hvernig líður henni?
Ellie, þetta er stjórnstöð.
Heyrirðu í mér?
-Hvað er um að vera?
-Ég veit það ekki.
-Hún er á lífi.
-Stilltu á hátalarakerfið.
Ellie, vertu nú róleg.
Við reynum enn að leita
að biluninni
en aðalatriðið er
að ekkert er að þér.
Hvað sagðirðu?
þetta er í lagi.
Mestu skiptir
að þér er óhætt.
Hvaða bilun?
Hvað kom fyrir?
Hvaða dagur er?
Mér þykir það leitt, Ellie.
Spurðirðu hvaða
dagur væri?
Hve lengi var ég frá?
Hylkið fór beint
í gegnum flaugina.
þú fórst ekkert.
Víst fór ég.
Ég fór.
Ég hef verið að reyna
að segja ykkur það.
Náðist engin mynd?
Aðeins þetta:
Truflanir.
þakka þér fyrir.
Ég skal sýna þér
hvað við sáum.
43 fjarstýrðar myndavélar
sýna allar það sama.
Hylkið fór beint í gegn.
Allir sáu nákvæmlega
það sama.
Ekkert gerðist.
Hvernig útskýrirðu
þetta, doktor?
Ég get það ekki.
Ég hvet ykkur til
að gera ekki meira
veður úr þessu
en efni standa til.
Fjöllum aðeins
um staðreyndir.
Við fylgjumst með því
sem gerðist.
Við gerum það
sem við teljum
að eigi að gera.
Vegna ásakana og gagnásakana
þeirra þjóða
sem stóðu að gerð
flaugarinnar
hefur forsetinn fyrirskipað
sérstaka rannsókn.
það að Michael Kitz
var valinn í nefndina,
en hann hætti nýlega
sem þjóðaröryggisráðgjafi
fyllti marga þingmenn
tortryggni.
Ég hef ekki ákveðið að bjóða
mig fram til þingmennsku.
Ég sagði upp sem
þjóðaröryggisráðgjafi
til að geta einbeitt mér
að þessari rannsókn.
Mannkynið á rétt á að vita
hvað gerðist
Samt benda allar
mælingar til
að sambandslaust hafi verið
við hylkið aðeins sekúndubrot.
Er það ekki rétt?
Já, sekúndubrot
að jarðartíma.
Að jarðartíma?
Ég held að flaugin
hafi opnað maðksmugu,
göng um rúm-tíma, öðru
nafni Einstein-Rossen brú.
Vegna almenns afstæðis
stóð þetta í 18 stundir
en það mældist brot
úr sekúndu á jörðinni.
Er það ekki satt að þessar
maðksmugur eru kenningaspár?
Engar sönnur eru á
að þær séu til.
Nei, engar beinar
sannanir.
Segðu mér, af hverju
þessar geimverur ómökuðu
sig við að sækja þig í margra
þúsunda ljósára fjarlægð en
sendu þig svo heim án sannana?
þær sögðu að þetta hefði verið
gert í miljarða ára.
þú ert ekki með sannanir
því þeir vildu það ekki.
þetta heitir í sálfræðinni
sjálfstyrkjandi blekking.
Heldurðu að þetta hafi
verið blekking hjá mér?
Já, ég held að þú hafir
fengið eitthvert kast.
Mig langar að leggja
fram aðra kenningu
og bið þig að svara þessu
sem reyndur vísindamaður.
Til að falsa merki
frá Vegu
hvað þarf til þess?
Gervitungl til að senda merkið
en þetta er ógerlegt...
það þarf gervitungl og að-
stöðu til að skjóta því á braut.
Og boðin sjálf.
Til að búa til
svo flókin boð og blanda
saman margs konar vísindum...
Væri ógerlegt.
Ógerlegt?
Er einhver til sem væri
fær um þetta?
Maður með einstaka
tæknikunnáttu
og ótakmörkuð fjárráð
og væri nógu afbrigðilegur
og sérvitur til að láta
sér detta þetta í hug?
Hadden?
S.R. Hadden.
Áttu við...
að þetta hafi verið
plat sem hann stjórnaði?
S.R. Hadden er
valdamiðlari
og þetta er síðasta hans
tækifæri til að verða ódauðlegur.
Kannski vildi hann kanna
og hagnýta nýjustu tækni
og láta ríkisstjórnir víða
um heim borga brúsann.
Kannski var þetta
lokaviðleitni hans
að láta þjóðir heims vinna
að sameiginlegu markmiði.
Kannski þetta allt.
S.R. Hadden, bráðgáfaður
og margbrotinn maður.
Kannastu við vísindareglu
sem kallast rakblað
Occams?
Já.
það þýðir að oftast sé
einfaldasta skýringin rétt.
Einmitt.
Segðu mér
hvort er líklegra
að boð frá geimverum
leiði af sér töfraflaug
sem hægt er að komast með
inn á miðja vetrarbraut
og fara í brimreið með pabba
og koma síðan til baka
sekúndubroti síðar
án nokkurra sannana.
Eða er reynsla þín afleiðing
þess að hafa óafvitandi
leikið aðalhlutverkið
í kveðjusýningu
S.R. nokkurs Hadden,
manns sem hefur ráð á og
ástæðu til að nota okkur öll
sem peð í flóknasta og
dýrasta gabbi allra tíma?
þú kemur hingað án sannana,
án gagna
og nokkurs áþreifanlegs.
Aðeins með frásögn sem
er ekki mjög trúverðug.
Ævintýrið kostaði meira
en 500 milljarða dala.
Tugir manna fórust.
Ætlarðu að sitja þarna
og segja okkur
að trúa þessu?
Viltu svara spurningunni?
Er hugsanlegt að þetta
hafi ekki gerst?
Já.
Ég játa það sem vísindamaður.
Ég verð að segja það.
Er það rétt skilið
að þú játir
að þú getir ekki staðfest
sögu þína með sönnunum?
Já.
Játarðu að þetta allt hafi
verið ofskynjun hjá þér?
Játarðu að ef þú
værir í okkar sporum
værirðu jafntortryggin
og vantrúuð og við?
Viltu þá ekki taka aftur
framburð þinn og játa
að þessi ferð inn í vetrar-
brautina hafi ekki verið farin?
Ég get það ekki.
Ég varð fyrir reynslu.
Ég get ekki sannað það
og ekki útskýrt það.
En allt sem ég veit
sem manneskja,
allt sem ég er segir mér
að það hafi gerst.
Ég hlaut nokkuð dásamlegt
sem breytti mér varanlega.
Opinberun
alheimsins
sem segir okkur
svo ekki verður um villst
hve örsmá, lítilfjörleg
og hve sjaldgæf
og dýrmæt við erum.
Opinberun sem segir okkur
að við tilheyrum einhverju
sem er stærra en við,
að við séum ekki ein.
Ég vildi að ég gæti
deilt því með ykkur.
Ég vildi
að allir, þótt það
væri aðeins eitt
andartak,
gætu fundið
lotninguna, auðmýktina
og vonina.
þetta heldur áfram
að vera vilji minn.
Dr. Arroway, má ég
taka mynd?
ELLIE UPPGÖTVADI
NÝ JAN HEIM
Séra Joss!
Hverju trúir þú?!
Sem trúarmaður, er ég bundinn
af öðrum reglum en doktorinn.
En markmið okkar er
eitt og hið sama.
Leitin að sannleikanum.
Ég, fyrir mitt leyti,
trúi henni.
Og hvað gerist núna?
Gefum við henni heiðursmerki?
Allavega almennilegar
þakkir.
Lastu trúnaðarskýrsluna
frá rannsóknarnefndinni?
Ég leit yfir hana.
Mér fannst kaflinn um myndband
dr. Arroway áhugaverður.
þar sem truflanir verða.
Haltu áfram.
Sú staðreynd að hún tók upp
truflanir vekur ekki athygli mína.
Haltu áfram.
það sem vekur athygli mína
er að hún tók upp 18
tíma af truflunum.
Áhugavert, ekki satt?
18 MÁNUDUM SÍDAR
Og þarna sjáið þið að við höfum
hafið byggingu 45 nýrra diska.
Sem þýðir að þeir allir til samans
plús allir útvarpssendar
í heiminum
gera okkur kleift að heyra lengra
út í geim en nokkurn tíma áður.
Er annað fólk þarna
úti í geimnum?
Góð spurning.
Hvað heldur þú?
Ég veit það ekki.
Gott svar.
Ertu með efasemdir?
það sem skiptir máli er að þið
leitið áfram að ykkar svari.
það er þó eitt í sambandi
við alheiminn.
Alheimurinn
er ansi stór staður.
Hann er stærri en
allt annað
sem nokkurn hefur
dreymt um áður.
Svo ef við erum hér ein
virðist það vera ansi
mikil sóun á rými.
Ekki satt?
FYRIR CARL