Tip:
Highlight text to annotate it
X
[Skipped item nr. 1]
[Skipped item nr. 2]
Hvar eru þau?
Pabbi! Merrill frændi!
Pabbi!
Morgan?
Bo?
Bo, hvar er Morgan? Bo?
Ert þú líka
í drauminum mínum?
Þetta er ekki...
- Pabbi!
Morgan?
Hvað er á seyði?
Geltið í hundunum
vakti okkur.
Ertu meiddur?
Ég held að Guð
hafi gert þetta.
Gert hvað, Morgan?
BUCKS S ÝSLU PENNS YLVANÍU
72 KM FRÁ FÍLADELFÍU
Lee? Mér er jafnvel sama
þótt það hafi verið hann.
Það nægir mér
að þú ræðir við hann.
Það var einkennilegt
að finna akrana svona.
Það kom fát á krakkana.
Það væri ekki undarlegt
ef við vissum
að Lionel og Wolfington-bræðurnir
hefðu verið að verki.
Í kvikmyndahúsi.
Ertu viss?
Allt í lagi. Þakka þér
fyrir biðlundina, Lee. Bless.
Houdini pissaði.
Ég held að hann sé lasinn.
Farðu með hann út.
Ég hringi til Crawfords læknis.
Hann sinnir ekki dýrum.
- Hann veit hvað gera skal.
Þú brást skjótt við, Caroline.
Ég hringdi fyrir tveimur tímum.
Frú Kindleman
sneri sig á ökkla
eins og hún sagði, þegar hún
forðaði sér undan skólakrökkum
sem renndu sér fram
hjá henni á hlaupabretti.
Hún fór í búðina
hjá Thorton í morgun
og fór að hrækja
á nýju hlaupabrettin.
Þegar ég kom þangað var hún
búin að hrækja yfir allt þarna.
Hún hlýtur að hafa
verið með kvef.
Ég missi matarlystina
í heila viku.
Hvað kom fyrir
á akrinum þínum?
Bitarnir brenna aftur
við hjá pabba.
Vatnið er mengað.
Þú veist ekki einu sinni
hvað það þýðir.
Það er ekki mengað.
Helltu vatninu í skálina hans.
Skrítið bragð af því.
- Nei.
Hann sleikir afturendann
á sér daglega. Honum er sama.
Houdini?
Hlauptu ekki, Bo.
Hvað er að, væni?
Hættu þessu, Houdini.
Sjáðu hvar stilkarnir
eru bognir, séra.
Þeir eru ekki brotnir.
Hvers konar vél getur beygt
stilk án þess að brjóta hann?
Það er ekki hægt í höndunum.
Þetta er of fullkomið.
Lionel og Wolfington-bræður
virðast ekki hafa verið að verki.
Þeir geta ekki migið án þess
að væta buxurnar sínar.
Ég held að þetta hafi ekki
gerst hjá neinum öðrum.
Theo Henry minntist ekki
á neitt við mig í gær.
Því varstu þar?
Nokkur dýr í sýslunni
hafa hegðað sér undarlega.
Sum þeirra hafa verið ofbeldisfull.
Veldur veira þessu?
Ég held ekki,
séra minn.
Þau eru óróleg,
á varðbergi.
Næstum eins og þegar þau
finna lyktina af rándýri,
pissa á sig og hvaðeina.
Caroline,
ég bið þig að hætta
að kalla mig séra.
Hvað er að?
Ég heyri ekki
í börnunum mínum.
Hann réðst á mig.
Hann vildi drepa Bo.
Meiddi hann þig?
- Nei.
Mér þykir það leitt, Morgan.
Hvar varstu?
Houdini er veikur.
Bittu Isabelle bak við skúrinn,
gættu þess að rammbinda hana.
Hvað er að?
Það er skrímsli við herbergið mitt.
Get ég fengið vatnsglas?
Hvað um vatnið
við rúmið þitt?
Það bragðast
eins og það sé gamalt.
Um hvað ertu að hugsa?
Því talarðu við mömmu
þegar þú ert einn?
Þá líður mér betur.
Svarar hún þér nokkurn tíma?
Nei.
Hún svarar mér ekki heldur.
Lionel og Wolfington-bræður
eru komnir aftur.
Tími til kominn
að lumbra á þeim.
Þetta er ekki skynsamleg
lausn á vandanum.
Lee er vinur minn.
Þetta er sonur hans.
Við gerum honum greiða.
Við förum út fyrir og kringum
húsið hvor í sína áttina.
Verum með læti, óðir af bræði,
látum þá gera í buxurnar.
Neyðum þá þangað sem við
hittumst hinum megin við húsið.
Skýrðu "verum með læti."
Blóta og þess háttar.
- Þú vilt að ég blóti.
Þú meinar það ekki.
Bara til að sýnast. Hvað er að?
Það er ekki sannfærandi
þegar ég bölva.
Hafðu þá bara hátt.
Skýrðu "hávaða."
Ætlarðu að gera þetta?
- Nei.
Viltu að þeir steli
næst úr húsinu?
Þegar ég segi þrír.
Einn,
tveir, þrír!
Ég er að springa af reiði!
Við lúberjum þig, ræfill!
Við slítum af ykkur hausinn!
Ég er að tryllast!
Tími til kominn
að lumbra á ykkur!
Ég blótaði.
- Ég heyrði það.
Hvernig gat hann...?
Ertu viss um að þetta
sé Lionel Prichard?
Ertu hrifinn af labbrabbtækinu?
Áttu gamla barnatalstöð?
Gömlu barnatalstöðina hennar Mo.
Þú getur notað hana
sem labbrabbtæki.
Það er bara viðtæki
en dugir alveg.
Þangað til einhver lætur þig fá
gamalt labbrabbtæki af stöðinni.
Bo,
lækkaðu í þessu
þangað til Paski fer.
Þú ert of gömul
til að gera þetta.
Þú tekur vatnsglas og drekkur
það. Hvað er að þessu?
Það er ryk í því.
- Þessu?
Hár.
Þessu.
Morgan fékk sér sopa af því.
Amöburnar hans eru í því.
Hvernig líður þér, Merril?
Vel.
Hvernig er vinnan
á bensínstöðinni?
Örvandi.
Ég minntist aldrei á það en ég
hélt að þegar þú fluttir hingað
með bróður þínum eftir...
Það var fallega gert.
Ég kem víst að litlu liði.
Þú hjálpar þeim.
Mér þykir það leitt.
Það sem ég veit fram að þessu
að það var mjög dimmt.
Já, það var dimmt.
Getið þið ekki
lýst honum neitt?
Finnst ykkur það ekki
vera dálítið skrítið?
Ég veit ekki hvort þetta
er risi eða dvergur.
Hann var örugglega
ekki dvergur.
Allt í lagi.
Hann var hávaxinn.
Ég myndi segja það.
- Trúlega.
Yfir 180 sentímetra?
Það var mjög dimmt.
- Já.
Hversu viss ertu um
að þetta hafi verið karlmaður?
Ég þekki engar stelpur
sem eru svona fráar á fæti.
Ég hef séð konur
á Ólympíuleikunum
sem kunna svo sannarlega
að spretta úr spori.
Þessi maður komst upp á þakið
á svipstundu, þrjá metra.
Það er hástökk kvenna
á Ólympíuleikunum.
Konur í Skandinavíu
geta stokkið yfir mig.
Ég veit að þú segir skoðun þína.
Ég veit bara ekki hvað þetta er.
Utanbæjarkona kom við
á matsölustaðnum í gær.
Hún fór að æpa og bölva af því
að uppáhaldssígarettur hennar
voru ekki til
í sjálfsalanum.
Hún hræddi
nokkra viðskiptavini.
Enginn hefur séð
hana eftir það.
Við vitum ekki neitt
um manneskjuna sem þið sáuð.
Við ættum að halda
öllum möguleikum opnum.
Hvar er fjarstýringin?
Ég veit það ekki, elskan.
Leitaðu undir sófapúðunum.
Að frátöldum þeim möguleika
að skandinavísk íþróttakona
hafi verið að hlaupa í gærkvöldi,
hvað annað er hugsanlegt?
Ég er ekki búin að spyrja
og kann ekki við kaldhæðni.
Eigið þið einhverja
óvildarmenn?
Kannski sóknarbarn
sem var ósátt við að þú skyldir
láta af prestsstarfinu?
Ég held ekki.
Þetta var dónalegt hjá mér með
skandinavísku íþróttakonuna.
Ég er býsna sterkur
og frár á fæti.
Ég hljóp eins hratt og ég gat
og þessi maður
lék sér að okkur.
Það er bara matur
undir sófanum.
Skiptu bara um stöð.
- Ég gerði það.
Og?
- Það er sami þátturinn á öllum stöðvunum.
Á öllum stöðvunum?
Hækkaðu í tækinu, Bo.
Akurhringirnir birtust fyrst
síðla áttunda áratugarins
með endurvöktum áhuga
á geimverum.
Snemma á níunda áratugnum
var þeim vísað á bug sem gabbi.
Þessi nýja endurvakning
er af allt öðrum toga.
Þeir birtust svo hratt
og í svo miklum mæli
að það bendir til samvinnu
hundruð einstaklinga
í mörgum löndum.
Takmarkaður fjöldi
skýringa er á þessu.
Annaðhvort er þetta
snilldarlegasta gabb allra tíma
eða í stórum dráttum
raunveruleg fyrirbæri.
Geimverur.
Hvað í ósköpunum
er um að vera?
Ég grennslaðist fyrir
eftir að ég sá akurhringina.
Tveir eða þrír menn geta
hannað svona hringi á einni nóttu
með því að nota fjalir og kaðla.
- Er það satt?
Þannig voru hringirnir
áður fyrr.
En núna eru þeir
svo margir.
Hvernig geta svona margir
verið viðriðnir málið?
Ég get ekki hugsað skýrt.
Ég ætla aftur á stöðina, fá mér
kaffisopa og reyna að hugsa.
Síðan hringi ég kannski í einhverja.
En það sem ég sagði
í húsinu gildir enn þá.
Fjölskylda þín
hefur mátt þola margt.
Þessi börn þurfa síst
á því að halda
að hugsa um brjálæðislega
atburði í heiminum.
Farðu með þau í bæinn
og reynið öll að dreifa huganum.
Gott læknislyf.
Þetta er gott heilræði.
Farðu vel með þig,
Graham.
Þessi mynd var tekin í gær
af myndatökumanni
í Bangalore, borg
á Suður-Indlandi.
Í 18. sinn sem akurhringir finnast
í landinu undanfarna 3 sólarhringa.
Merrill frændi,
kveiktu á útvarpinu.
Þessi merki eiga að sjást
af himnum ofan.
Þú mátt ekki heldur hlusta
á útvarpið í smátíma.
Peninga fyrir bók.
Bara eina bók.
Komdu aftur til að borða pitsu
eftir stundarfjórðung.
Þetta er bara vitleysa.
Þeir vilja bara
selja gosdrykki.
Ég hef horft á þessar
fréttir í allan dag.
Ég hef séð tólf gosdrykkja-
auglýsingar hingað til. Tólf!
Áttu nokkuð bækur
um geimverur?
Trúirðu þessum þvættingi?
- Ég held að við eigum eina bók.
Hún barst hingað fyrir mistök.
Við geymdum hana fyrir ferðamenn.
Í síðustu hilluröðinni,
þriðja bók til vinstri, elskan.
Því ekki að tala umbúðalaust?
Þetta eru greinilega bara hermikrákur.
Einhver býr til fyrsta
akurhringinn einhvers staðar...
Vildirðu ekki fá asmalyf, séra minn?
Fyrir Morgan Hess.
Ég er ekki lengur "séra."
...eftir klukkustund fá 200 manns
sömu stórsnjöllu hugmyndina
og þetta jaðrar við að vera múgsefjun.
Má ég biðja þig um greiða,
séra minn?
Ég þarf að létta á samviskunni.
Viltu hlusta á mig?
Tracye, ég er ekki
lengur prestur.
Þú veist að ég hef ekki
verið það í hálft ár.
Allar þessar fréttir
í sjónvarpinu...
Joe Gills talaði um heimsendi.
Ég er dálítið hrædd.
Ég þarf að létta
á samviskunni.
HERINN
Ég veit hvernig liggur í þessu.
Er það?
Tveir menn sögðust hafa séð
ókunnuga menn undanfarið.
Þeir gátu ekki sagt mér
hvernig þeir höfðu litið út
af því að þeir leynast
í skuggunum.
Enginn hefur meiðst, þú skilur.
Þannig áttaði ég mig á því.
Ég skil.
Þetta kallast könnun.
Það er hernaðaraðgerð.
Maður sendir könnunarhóp
til að athuga aðstæður.
Ekki til að ráðast til atlögu
heldur til að meta ástandið.
Leggja mat á hættuna.
Gæta þess
að öllu sé óhætt.
Óhætt fyrir hvað?
Fyrir alla hina.
Ertu nokkuð með bækling?
Vissulega.
Spilaðirðu hafnabolta?
Fjárinn, ég þekki þig.
Þú ert Merrill Hess.
Ég var viðstaddur þegar
þú slóst boltann 150 metra
yfir vinstri vegginn
og settir met.
Það var vél í boltanum.
Metið stendur enn, ekki satt?
Kylfan er uppi á vegg heima.
Þú átt tvö met
í hringhöggum.
Fimm.
Því ertu ekki í atvinnumennsku
og græðir á tá og fingri
meðan fallegar konur
sleikja tærnar á þér?
Af því að hann
á annað met,
í því að kýla vitlaust
þrjú högg í röð.
Halló, Lionel.
Merrill er fyrsta flokks
aulabárður.
Hann sveiflaði kylfunni
alltaf af alefli.
Það skipti ekki máli hvað þjálfarinn
sagði né hver var í höfninni.
Hann sveiflaði bara
kylfunni af alefli.
Hann var eins og skógarhöggs-
maður að höggva niður tré.
Merrill hefur kýlt oftar vitlaust
en tveir leikmenn samanlagt.
Áttu í alvöru met í því
að kýla vitlaust?
Mér fannst það rangt
að sveifla ekki kylfunni.
Það er mengað.
Carl, það er eitthvað að vatninu.
Það er ekkert að vatninu.
Bo hefur haft áhyggjur
af vatni alla ævi.
Það er eins og kækur,
nema hvað það er ekki kækur.
Er það satt?
Þrettánda auglýsingin!
Ég ætla að kaupa bókina.
Ég bölvaði 37 sinnum í síðustu viku.
Ég sagði fjögurra stafa orðið
nokkrum sinnum
en aðallega fjandinn og andskotar.
Er "skepna" blót?
Það fer eftir því
hvernig orðið er notað.
"John, þú ert skepna af því
að þú kysstir Barböru."
Blót.
Þá er það ekki 37 sinnum
heldur í 71 skipti.
Voru margir í lyfjabúðinni?
Ég vil ekki að þið verðið lengur
ein hjá Tracey Abernathy.
Er það skilið?
Er þetta hann?
Já.
Hver er hann?
Hvað er þetta?
Barnatalstöðin
hennar Bo.
Ég fann hana í kjallaranum.
Ég nota hana sem labbrabbtæki.
Hvað ef það nemur
merki frá þeim?
Það gerir það ekki.
En það heyrðist ekki
svona merki áður.
Fífl sem aldrei hafa átt kærustu
standa að baki akurhringjunum.
Þeir eru 30 ára og finna
dulmál í sameiningu,
greina grískar goðsagnir,
búa til leynifélög
og aðrir strákar sem ekki eiga
kærustu geta gengið í þau.
Þeir eru að þessari vitleysu svo
þeim finnist þeir vera sérstakir.
Bjánar gerðu þetta fyrir 25 árum.
Nýir bjánar gera þetta núna.
Þetta eru bara truflanir,
Morgan.
Hækkaðu í því
og heyrðu bara.
Þetta er dulmál.
Því geta þeir ekki
náð sér í kærustur?
Má ég sjá þetta?
Þetta er hávaði.
Tækið er bilað, Morgan.
Kannski duga nýjar rafhlöður...
Merkið gæti horfið.
Þetta er einmitt það
sem bjánarnir vilja.
Ég ætla út úr bílnum.
Verið kyrr.
Heyrðuð þið raddirnar?
En ekki á ensku. Heyrðirðu
raddirnar, Merrill frændi?
Ég heyrði þær, Morgan.
Tækið nemur sendingar
frá öðru labbrabbtæki.
Já.
yfðu mér að sjá það.
Hættið þessu!
Þess vegna horfum við
ekki á sjónvarp.
Fólk fyllist þráhyggju.
Ég sleppi þessu.
Nei, pabbi.
- Gerðu það ekki.
Merkið hverfur.
Slepptu ekki.
Merkið skýrist eftir sem
maður heldur því hærra.
Ég er með tækið.
Bo, ég vil ekki að þú
klifrir upp á bílinn.
Hættið!
Tvær af verunum
tala saman.
Isabelle, þér mun
líða eins og kjána
þegar í ljós kemur að þetta
reynist vera hugarburður.
Þetta er tímasóun hjá þér!
Ég tilkynni þetta ekki né neitt það
sem þú gerir við akrana mína
blöðunum, sjónvarpsstöðvunum
né neinum öðrum.
Þú verður ekki frægur
út á þetta.
Allt í lagi.
Kveikjum á sjónvarpinu.
...birtist fyrst fyrir 52 mínútum.
Mexíkóborg og bandarískir
embættismenn hafa staðfest
að þetta séu ekki loftför
úr flugher þjóðanna.
Ljósin sáust fyrst
úr farþegaþotu Air Mexico
á leið frá Mazatlan til New York
þegar furðuhlutirnir fóru inn
í lofthelgi Mexíkóborgar.
Það var rétt hjá bjánunum.
Við verðum
að taka þetta upp.
Ballettæfingin mín.
Heyrðu, Bo. Þetta er
stórmerkilegur atburður.
Allt sem er skrifað í vísinda-
bókunum á eftir að breytast.
Saga framtíðar heimsins
er núna í sjónvarpinu.
Við verðum að taka þetta upp svo að
þú getir sýnt börnunum þínum þetta
og sagt að þú hafir verið
uppi á þessum tíma.
Líka út af börnunum þínum, Bo.
Ballettæfingin mín.
- Pabbi?
Finndu aðra spólu.
Merrill frændi,
ég nota spóluna þína.
Sundfatamódel
Þetta er bein útsending frá Mexíkóborg.
Þessari mynd hefur ekki
verið breytt né stækkuð.
Það sem fyrir augu ber
er raunverulegt, ótrúlegt.
Allt í vísindabókunum
á eftir að breytast.
Ég sagði ykkur það.
Sumir halda sennilega
að þetta sé heimsendir.
Það er satt.
Heldurðu að þetta
gæti verið heimsendir?
Já.
Hvernig geturðu sagt það?
Vildirðu ekki
heyra þetta svar?
Gastu ekki þóst vera
eins og þú varst alltaf?
Huggað mig?
Það má skipta fólki
í tvo hópa.
Þegar lánið leikur við fólk
lítur fyrri hópurinn
á það sem heppni
frekar en tilviljun.
Þau líta á það sem tákn.
Merki þess að einhver
þarna uppi gæti þeirra.
Seinni hópurinn lítur
á þetta sem hundaheppni,
ánægjulega atburðarás.
Fólkið í seinni hópnum
tortryggir ábyggilega þessi ljós.
Í huga þeirra getur
brugðið til beggja vona.
Það gæti verið slæmt
og það gæti verið gott.
En innst inni
finnst þeim, hvernig svo
sem fer, að þau séu ein.
Og sú trú vekur þeim ótta.
Þetta fólk er til.
En það eru fjölmargir
í fyrri hópnum.
Þegar þau sjá þessi ljós
horfa þau á kraftaverk.
Innst inni finnst þeim
að hvernig svo sem fari
þá verði einhver
til að hjálpa þeim.
Og það kveikir vonarneista
í huga þeirra.
Þú verður því að spyrja þig
hvers konar maður þú ert.
Af því tagi sem sérð þessi tákn?
Sérð kraftaverk?
Eða heldurðu
að fólk sé bara heppið?
Eða líttu svona
á spurninguna:
Er hugsanlegt að það
séu engar tilviljanir?
Ég var einu sinni
í þessu boði.
Ég sat í sófanum
hjá Röndu McKinney.
Hún sat þarna, falleg
og einblíndi á mig.
Ég hallaði mér fram
og kyssti hana
og varð ljóst að ég væri
með tyggjó uppi í mér.
Ég sneri mér við,
tók út tyggjóið,
setti það í bolla hjá sófanum
og sneri mér aftur við.
Randa McKinney
kastaði upp.
Ég vissi strax og það gerðist
að það væri kraftaverk.
Ég hefði getað verið að kyssa
hana þegar hún kastaði upp.
Þá hefði ég orðið fyrir
varanlegu sálartjóni.
Ég hefði kannski
aldrei náð mér.
Ég trúi því
að kraftaverk séu til.
Þessi ljós eru kraftaverk.
Þarna sérðu.
Hvor gerðin ertu?
Finnst þér að ég
hafi hughreyst þig?
Já.
Hvað er þá að?
Ég sagði þér aldrei lokaorð
Colleenar áður en hún dó.
Hún sagði "sjáðu."
Síðan urðu augun í henni
dálítið líflaus.
Svo sagði hún:
"Sveiflaðu kylfunni af alefli."
Veistu af hverju
hún sagði það?
Taugaboð bárust frá heilanum
í henni þegar hún var að deyja
og handahófskenndar minningar
um okkur birtust í huga hennar.
Enginn gætir okkar, Merrill.
Við erum öll ein á báti.
Hvað veistu?
Það varð slys. Ölvaður ökumaður...
- Nei. Ray sofnaði undir stýri.
Er hann ómeiddur?
- Já.
Colleen spurði líka að því.
Talar hún?
Í hvaða sjúkrabíl er hún?
Hún er ekki í sjúkrabíl.
Til að vernda börnin.
Þau fóru að horfa
á sjónvarpið um fimmleytið.
Þau ættu að vera að vera í kanínu-
leik eða þykjast að halda teboð.
Hvað er kanínuleikur?
- Er það ekki leikur?
Skólunum var lokað.
Það gerðist svolítið athyglisvert.
Hvað er klukkan?
- 11 f.h.
Geimverurnar eru farnar.
En þær eru í raun ekki farnar.
Við sjáum þær bara ekki.
Snemma í morgun
flaug fugl inn á svæðið þar sem
þær svifu. Hann datt niður dauður.
Það náðist á upptöku.
Það var sem fuglinn hefði
flogið á vegg á himnum.
Hausinn á fuglinum kramdist.
Talið er að verurnar hafi
ósýnilega hlíf af einhverju tagi.
Geimskipin svífa
enn um loftin.
Sumir halda að þau séu
orðin fleiri, út um allt.
Það er kenning
um akurhringina.
Að þeir gætu verið
eins konar kennileiti
sýnilegt leiðsögukerfi
svo að geimverurnar
geti siglt í skipunum.
Samræmt ferðir sínar.
Það er vit í því.
Geimverurnar geta ekki
lesið hugsanir okkar.
Auðvitað.
Í þessari bók stendur
allt um geimverur.
Að þær séu trúlega afar litlar,
á stærð við mig...
"...þegar heilinn í þeim þroskaðist
þurfti líkaminn ekki að þroskast."
Og þær eru grænmetisætur
"af því að þeim varð ljóst
hvað slíkur matur
væri þeim hollur."
Hver skrifaði þessa bók?
Vísindamenn sem voru
ofsóttir fyrir skoðanir sínar.
Þeir eru atvinnulausir.
- Gleymdu því ef þú ætlar að skopast að því.
Þetta er alvörumál.
Ég veit ekki
hvað hljóp í mig.
Þetta eru myndir.
Dr. Bimboo, einn höfunda...
Bimboo?
- Pabbi.
Ég spurði bara um nafnið hans.
- Það gætti kaldhæðni í rödd þinni.
Geimverur myndu heimsækja
okkur af tveimur ástæðum.
Til að ná sambandi
vegna könnunar
og efla þekkingu sína
á alheiminum.
Eða af því að þær
eru fjandsamlegar.
Auðlindir þeirra hafa gengið
til þurrðar og þær vilja nýta okkar.
Þetta líkist húsinu
okkar svolítið.
Sömu gluggarnir.
Þetta er skrítið.
Nú er nóg komið
af dr. Bimboo í bili.
Allir þurfa að róa sig
og borða ávexti eða eitthvað.
Faðir.
Ég ætla út. Enginn
fer út héðan. Enginn.
Hvert ætlarðu?
Heim til Rays Reddys.
Af hverju?
- Ég held að hann hafi hringt hingað.
Heldurðu nokkuð
að eitthvað illt gerist, Morgan?
Nú? Fannstu
eitthvað aftur á þér?
Er það slæmt?
Ég læt ekki neitt slæmt
koma fyrir þig.
Ég vil ekki að þú deyir.
Hver sagði að ég dæi?
Hver sagði að ég dæi?
R. REDDY
DÝRALÆKNIR
Halló, Ray.
Hvað kom fyrir?
Ég skrifaði símanúmerið þitt
niður til að hringja til þín.
Númerið hefur verið
hjá símanum í hálft ár.
Þegar ég vissi
að veran væri í húsinu
datt mér ekki neitt annað
númer til að hringja í.
Þakka þér fyrir komuna, séra.
Það var lítið, Ray.
Ég vann svo lengi fram eftir
þetta kvöld.
Ég hafði aldrei fyrr
sofnað undir stýri.
Aldrei síðan þá.
- Ekki.
Enginn bíll sást
nær alla nóttina.
Ef ég hefði sofnað þá
hefði ég endað í skurði
með höfuðverk.
Ég hlýt að hafa sofnað þá.
Þessar 15 sekúndur þegar ég keyrði
fram hjá henni meðan hún gekk.
Það var eins og þetta
hefði átt að fara svona.
Ef þetta er heimsendir
þá er ég í klandri.
Fólk sem drepur eiginkonur
presta er illa séð í himnaríki.
Hvert ætlarðu?
Að vatninu.
Eins og ég skil það
eru þessir akurhringir
hvergi nálægt vatni.
Ég held að þeim
sé illa við vatn.
Það getur ekki verið
verra en að vera hérna.
Sástu eitthvað, Ray?
Ég veit hvað ég gerði þér.
Ég lét þig véfengja trú þína.
Ég harma það mjög sem
ég gerði þér og þínum.
Ekki opna búrið mitt. Ég fann
eina veru þar og læsti hana inni.
Þessa skelfilegu mynd tók
hinn 42 ára Romero Valadarez
í gær á sjöunda afmælisdegi sonar síns
í Passo Fundo í Brasilíu.
Myndin var send á fréttastofuna
og síðan var hún send
til okkar gegnum gervitungl
fyrir fáeinum mínútum.
Við fyrstu sýn er talið
að þetta séu ósviknar myndir.
Það sem þið munuð sjá kann
að vekja ugg í brjósti ykkar.
Komið, krakkar!
Vamonos!
Halló?
Lögreglan er komin.
Ég starfa með þeim.
Ég er lögreglumaður.
Ég vil bara tala við þig.
Við vitum öll um gabbið.
Við fórum með nokkra
vini þína í löggubíl.
Segðu okkur bara hvað þú heitir,
af hverju þú gerðir það
og þá færðu sömu
refsingu og þeir.
Kastaðu lífi þínu ekki á glæ, vinur.
Litaraft þeirra breytist. Þess vegna
sáum við þá ekki um kvöldið.
Segðu mér, Morgan.
Í þessari bók þinni...
Var því lýst hvað gerðist
ef verurnar eru fjandsamlegar?
Já.
Það stóð að þær myndu
sennilega gera innrás.
Þær myndu beita herkænsku-
brögðum og berjast í návígi.
Þær myndu ekki nota tækni sína
eða berjast í lofti
af því að verurnar vita að við
myndum beita kjarnorkuvopnum
og þá kæmi plánetan
þeim ekki að notum.
Hvernig getur nokkur vitað það?
Þetta er út í hött.
Hvað fleira stóð í bókinni?
Að afleiðingar innrásar
væru tvenns konar.
Verurnar berjast
og verða sigraðar
og snúa aftur af fullum þunga
hundruð eða þúsundum ára síðar.
Hver er hin niðurstaðan?
Geimverurnar fara
með sigur af hólmi.
Fyrirgefið.
Hvaða bók er þetta?
Er þetta að gerast
í raun og veru?
Ég heyrði þá tilgátu að þeim
væri illa við staði nálægt vatni.
Kannski væri okkur óhætt
nálægt vatni.
Mér heyrist þetta
vera skáldskapur.
Ég sá eina af verunum
heima hjá Ray Reddy.
Ég fann það skýrt á mér
að hún vildi vinna mér mein.
Við getum trúað þessu með
vatnið, látið niður dótið og farið.
Eða við getum verið
um kyrrt hérna.
Falið okkur á heimili okkar.
Beðið og séð hvernig fer.
Kannski of harkaleg viðbrögð
en ég er sáttur við það.
Hvort heldur er
þá verðum við saman.
Þeir sem vilja fara
að vatninu rétti upp hönd.
Þeir sem vilja vera heima
rétti upp hönd.
Atkvæði mitt telst tvöfalt.
- Kjaftæði! Þú svindlar!
Ég hef tvöfaldan atkvæðishlut
af því ég er fulltrúi tveggja foreldra.
Við vitum ekkert enn.
Við erum óhult hérna.
Ég vil ekki fara burt.
Við bjuggum hérna með mömmu.
Það tengist þessu ekki neitt.
Ég vil breyta atkvæði mínu.
- Það er ekki hægt.
Þeir sem vilja vera heima
rétti upp hönd.
Þetta er fáránlegt.
Þú tapar,
þrír gegn tveimur.
Við verðum að negla
fyrir alla glugga.
Hvernig vitum við hvort
fjalirnar komi að gagni?
Verurnar virðast eiga erfitt með
að komast fram hjá búrdyrum.
Þessar upplýsingar koma
frá alþjóðlegri stöð okkar.
Pabbi! Merrill frændi!
Amman bætist í hóp Nairóbí,
Peking og Jerúsalem
og þar sáust ljósin síðast.
Þessi ljós eru
í tæplega 274 borgum.
Talið er þau sjáist
í 400 í viðbót innan stundar.
Þau birtast innan við mílu
frá akurhringjum.
Hringirnir voru leiðarmerki.
Verurnar bjuggu til kort.
Þær verða innan
við mílu frá okkur.
Pabbi?
Talið er að koma geimskipanna
sé undanfari árásar.
Mér skjátlaðist.
Verurnar eru fjandsamlegar.
Þetta er eins og
í Stríði heimanna.
Hersveitir hafa verið kallaðar
saman um heim allan.
Hundruð þúsunda hafa farið
í hof, samkunduhús og kirkjur.
Guð veri með okkur öllum.
Ég held áfram
að negla fyrir gluggana.
Er allt í lagi?
Einhver maður var með skilti
sem boðaði heimsendi.
Kvíddu engu.
Læturðu ekkert henda okkur?
- Aldrei.
Ég vildi óska
að þú værir pabbi minn.
Hvað sagðirðu?
Segðu aldrei neitt
svona aftur. Aldrei.
Okkur vantar fjalir fyrir
svefnherbergisgluggana
Við neglum fyrir
svefnherbergisdyrnar.
Hvar sofum við?
- Í fjölskylduherberginu.
Hvað um Isabelle?
Við setjum hana
í bílskúrinn eftir kvöldmatinn.
Ég smyr samlokur.
Ég vil fá spagettí.
Við ættum að borða hratt.
- Mér líst vel á spagettí.
Hvað viltu, Morgan?
- Hvað sem er?
Steikt brauð
og kartöflustöppu.
Nú líst mér á þig.
Hvað um þig, Merrill?
Grillaðan kjúkling.
Vel valið.
Ég ætla að fá mér
ostborgara með beikoni.
Aukabeikoni.
Hvað er að öllum?
Borðið.
Kannski ættum við að fara með bæn.
- Nei.
Því ekki?
- Við förum ekki með bæn.
Bo finnur eitthvað slæmt á sér.
Mig dreymdi svolítið.
- Við förum ekki með bæn.
Borðið.
- Ég hata þig.
Gott og vel.
Þú lést mömmu deyja.
- Morgan.
Ég sóa ekki mínútu í viðbót
af lífi mínu í bænir.
Ekki mínútu í viðbót.
Er það skilið?
Við munum njóta
þessarar máltíðar.
Enginn getur hindrað okkur í
að njóta þessarar máltíðar.
Hættu að gráta!
- Æptu ekki á hana!
Fyrst þið ætlið ekki að borða
ætla ég að bragða á öllu.
Árás geimveranna er hafin.
Drífðu þig, Graham!
Hef ég nokkru sinni sagt þér
hvað fólk sagði við fæðingu þína?
Þú komst út úr mömmu þinni
og grést ekki einu sinni.
Þú opnaðir bara augun
og leist í kringum þig.
Augun í þér voru stór og dýrleg.
Allar konurnar tóku andköf.
Þær tóku bókstaflega andköf.
Þær sögðu:
"Hún er eins og engill."
"Við höfum aldrei séð
svona fallegt barn."
Veistu hvað gerðist svo?
Þær settu þig á borðið til að þrífa þig
og þú leist á mig og brostir.
Sagt er að svona ung börn
geti ekki brosað.
Þú brostir.
Förum niður.
Við gleymdum Isabelle.
Eigum við að slökkva ljósin?
Verurnar vita nú þegar af okkur hérna.
Pabbi?
Veistu hvað gerðist
þegar þú fæddist?
Þú komst út og mömmu
þinni blæddi áfram
svo að læknarnir náðu í þig
áður en ég gat séð þig.
Þeir eru á þakinu.
Meðan henni var sinnt
spurði hún bara um þig.
Þeir eru komnir inn.
Ég vildi að mamma þín sæi þig fyrst
af því að hana hafði
dreymt um þig alla ævi.
Henni batnaði. Komið var með þig
inn og þú lagður í fangið á henni.
Og hún leit á þig
og þú leist á hana.
Þið störðuð hvort
á annað mjög lengi.
Og síðan sagði hún mjúklega:
"Halló, Morgan.
Ég er mamma þín."
"Þú lítur alveg eins út
og mig dreymdi."
Háaloftsdyrnar.
Förum. Drífið ykkur.
Við gleymdum
silfurpappírshjálmunum.
Hvernig getum við
skorðað dyrnar?
Þeir lesa hugsanir okkar.
- Þú hræðir Bo.
Ég er þegar hrædd.
Merrill.
- Ég er að leita!
Þeir vita um innstu
hugsanir okkar.
Ég er ekki tilbúinn.
Merrill!
Ég er með það!
Pabbi!
Hvar er Bo?
Það er allt í lagi með mig.
Hvað er að gerast þarna úti?
Ég get ekki einu sinni gert
mér það í hugarlund.
Vonandi gengur þeim betur
en okkur. Við erum hjálmalaus.
Þeir hafa bara hátt.
Þeir reyna ekki að komast inn.
Því eru þeir að þessu?
Til að beina athygli okkar að dyrunum?
Þeir dreifa athygli okkar.
- Frá hverju?
Í bókinni stendur að þeim
takist vel að leysa vandamál.
Þeir finna leið hingað inn.
Morgan, láttu mig
fá vasaljósið.
Áður fyrr var kolum
sturtað niður í kjallarann.
Það er kolastokkur hérna.
Ég finn fyrir lofti.
Ég líka!
Loftstraumurinn verður sterkari.
- Ég er nálægt því!
Hvað er að?
Togaðu í hann!
Hefurðu hann?
Togaðu í hann! Togaðu í hann!
- Ég hef hann!
Við erum ekki
með lyfið hans.
Vertu óhræddur, Morgan.
Við hægjum á þessu saman.
Finndu brjóstið á mér.
Finnurðu það lyftast reglulega?
Andaðu eins og ég.
Andaðu eins og ég.
Mig dreymdi þetta.
Einbeittu þér. Ég veit að þetta
er sárt. Vertu hraustur, vinur.
Þetta líður hjá.
Þetta líður hjá.
Gerðu mér þetta ekki aftur.
Ekki aftur.
Ég hata þig.
Ég hata þig!
Árásin nærist á óttanum.
Óttastu ekki það sem gerist.
Trúðu því að hún líði hjá.
Trúðu því.
Bíddu bara.
Vertu óhræddur.
Loftið er að koma.
Trúðu.
Við þurfum ekki að vera hrædd.
Þetta er að líða hjá.
Hérna kemur loftið.
Vertu óhræddur.
Hérna kemur loftið.
Vertu óhræddur, Morgan.
Finndu brjóstið á mér.
Andaðu með mér. Saman.
Loftið fer í lungun í okkur.
Saman.
Saman. Við erum eins.
Við erum eins.
Við ættum að spara vasaljósin.
Bíllinn hans Rays
sveigði út af veginum,
lenti á Colleen og síðan á tré.
Hún klemmdist á milli.
Hvað merkir "klemmdist?"
Bíllinn...
Bíllinn klippti í sundur nær
allan neðri hluta líkama hennar.
Hvað sagðirðu?
Henni verður ekki bjargað.
Líkami hennar er klemmdur
með þeim hætti
að hann er lifandi þegar
hann ætti ekki að vera það.
Bíllinn heldur
líkamanum saman.
Hún finnur lítið til.
Hún talar næstum eðlilega.
Við drógum ekki bílinn burt
svo að þú gætir komið
og verið hjá henni
meðan hún er með rænu.
Það verður ekki lengi.
Skilurðu það
sem ég sagði þér?
Caroline,
er þetta í síðasta sinn
sem ég tala við konuna mína?
Já.
Fólk heldur að geimverurnar
ætli að ná völdum á jörðinni.
Kjaftæði.
Ég og vinur minn sáum þær.
Ég fann ljósaperur.
Verurnar eitruðu fyrir þessari
fjölskyldu og drógu hana burt.
Enginn trúir mér en þær komu
ekki til að ná völdum á jörðinni.
Þær komu til að taka okkur
og geyma okkur sem matarbirgðir.
Við erum mjög heppin
að verurnar skuli vera að fara.
Eru þær að fara?
- Það var sagt.
Hvað höfum við sofið lengi?
Í tæpar tólf stundir.
Sagt var að geimverurnar
hefðu notað eiturgas.
Þær gefa það í smáum skömmtum.
Margir dóu.
En eru þær á förum?
Þær fóru í skyndi í morgun.
Eins og eitthvað hefði hrætt þær.
Geimverurnar skilja
þær særðu eftir hérna.
Því eru þær á förum?
Fólk hlýtur að fundið leið
til að sigra þær.
Allir hafa sína veikleika.
Þú hélst að við hefðum
ekki nóttina af.
Heyrðu mig.
Það er sumt sem ég ræð við
en annað sem ég ræð ekki við.
Ég þoli það ekki
þegar eldri bróðir minn,
sem er allt sem ég þrái að vera,
fer að glata trúnni á allt.
Ég sá augnaráðið þitt í nótt.
Ég vil ekki sjá þetta
augnaráð framar.
Mér er alvara.
Allt í lagi.
Hann hefur verið svona um hríð.
Hann þarf að fá lyfið sitt.
Hefur nokkuð verið sagt
um svæðið okkar?
Hættan er liðin hjá í Fíladelfíu
og afskekktum sýslum.
En hver veit það með vissu?
Hann er ekki nógu hraustur.
Ef hann fær annað kast...
- Ég veit.
Við verðum að vera viss
áður en við opnum dyrnar.
Þetta nægir mér.
- Mér líka.
Sæktu líka sprautuna. Hann
þarf kannski að fá adrenalín.
Menn eru hóflega bjartsýnir.
Fólk gerir þetta í sjónvarpinu.
Það dansar.
- Já, svona.
Langar þig að sjá þetta?
Ég kem með sjónvarpið hingað.
Bardaginn snerist við
í Austurlöndum nær.
Í þremur borgum fannst frumstæð
leið til að sigrast á geimverunum.
Við höfum ekki nánari
fregnir að svo stöddu.
Bíddu, Merrill!
Sæll, elskan.
Sæl, elskan.
Ég var bara í gönguferð
fyrir kvöldmatinn.
Þú hefur gaman af því
að fara út að ganga.
Þetta átti að fara svona.
Er þetta sárt?
Ég finn lítið til.
- Gott.
Segðu Morgan að fara í leiki.
Það er allt í lagi að vera kjánalegur.
- Ég skila því.
Segðu Bo að hlusta á bróður sinn.
Hann hugsar alltaf um hana.
Ég segi henni það.
- Og segðu Graham...
Ég er hérna.
Segðu honum...
...að sjá.
Segðu honum að sjá.
Og segðu Merrill
að sveifla kylfunni af alefli.
Þú verður að spyrja þig
hvers konar maður þú ert.
Af því tagi sem sér tákn?
Sér kraftaverk?
Er það hugsanlegt
að það séu engar tilviljanir?
Sveiflaðu af alefli, Merrill.
Merrill.
Sveiflaðu af alefli.
155 metrar
Þess vegna varstu með asma.
Það getur ekki verið heppni.
Lungun í honum voru lokuð.
Eitrið komst ekki inn.
Lungun í honum voru lokuð.
Komdu ekki við hann.
Gefðu honum smástund.
Graham.
Gefðu honum andartak.
Pabbi?
- Ekki snerta hann!
Graham.
Ekki.
Ekki.
Pabbi?
Hvað kom fyrir?
Bjargaði einhver mér?
[Skipped item nr. 847]