Tip:
Highlight text to annotate it
X
Kl. 8 f.h. ELIAS-CLARKE
Vinnumiðlun
Hvaða strætó stoppar hér?
Konur NU
Láta til sín taka
Gangi þér vel.
BAKARÍ
útgáfa
elias-clarke
Sæl. Ég á pantaðan tíma hjá
Emily Charlton.
Andrea Sachs?
-Já?
Frábært. Undarleg kímnigáfan
hjá vinnumiðlun. Fylgdu mér.
Ég var önnur aðstoðarmanneskja
hjá Miröndu
en aðalaðstoðarmanneskjan fékk
stöðuhækkun og ég tók við af henni.
Þig vantar einhvern í þinn stað.
-Ég er að leita.
Miranda rak síðustu tvær stelpurnar
eftir nokkrar vikur.
Okkur vantar einhvern
með bein í nefinu.
Skilurðu mig?
-Að sjálfsögðu. Hver er Miranda?
Almáttugur. Ég læt sem ég hafi
ekki heyrt þessa spurningu.
Hún er aðalritstjóri Runway.
Og goðsögn þar að auki.
Ef þú vinnur í ár fyrir hana
geturðu valið úr störfum.
Milljónir stúlkna gæfu allt fyrir starfið.
-Þetta virðist gott tækifæri.
Það væri gott ef ég kæmi
til greina fyrir starfið.
Andrea,
Runway er tískublað,
maður verður að hafa áhuga á tísku.
Hví heldurðu að ég hafi ekki
áhuga á tísku?
Guð minn góður.
Nei, nei, nei!
Hvað amar að?
Hún er á leiðinni.
Láttu alla vita.
Hún átti ekki að mæta fyrr en kl. 9.
Bílstjórinn sendi mér textaskilaboð,
andlitssnyrtirinn fór í bakinu.
Þessu fólki er ekki treystandi.
Hver er hún?
-Ég get ekki rætt um hana.
Takið eftir.
Hysjið upp um ykkur brækurnar!
Var einhver að borða laukkringlu?
Fyrirgefðu, Miranda.
Drífa sig.
Hvað er svona erfitt
við að staðfesta bókun?
Mér þykir það leitt.
Ég staðfesti...
Ég hef engan áhuga á
að heyra um vanhæfni þína.
Segðu Simone að ég vilji ekki stúlkuna
sem hún sendi fyrir brasilíska stílinn.
Ég bað um snyrtilega, spræka, brosandi
en fékk sóðalega, þreytta og þrútna.
Samþykktu veisluboðið
frá Michael Kors.
Bílstjórinn skilar mér kl. 9:30
og sækir mig stundvíslega kl. 9:45.
Hringdu í Natalie hjá Dýrðarréttum
og afþakkaðu í 40. sinn.
Ég vil ekki marengsköku. Ég vil
böku fyllta með rabarbara.
Minntu fyrrum manninn minn á
að foreldrafundurinn er í Dalton.
Hringdu í manninn minn
og biddu hann að hitta mig
á veitingastaðnum
sem við Massimo fórum á.
Segðu Richard að ég hafi séð
myndirnar sem hann sendi
fyrir greinina um
kvenfallhlífahermennina
og þær voru allar óaðlaðandi.
Er ómögulegt að finna aðlaðandi
grannan kvenfallhlífahermann?
-Nei.
Fer ég fram á of mikið?
-Nei.
Alls ekki.
Ég þarf að sjá allt
sem Nigel hefur í höndum
fyrir aðra forsíðutilraun Gwyneths.
Ætli hún sé búin að létta sig.
Hver er þetta?
Enginn.
Vinnumiðlun sendi hana
varðandi starf aðstoðarmanneskju.
Ég tók viðtal við hana fyrir þig.
Hún er vonlaus
og hentar engan veginn...
Best að ég sjái um það sjálf.
Stúlkurnar tvær sem þú valdir
stóðu sig alls ekki,
svo sendu hana inn til mín.
Fleira var það ekki.
Allt í lagi.
Hún vill hitta þig.
-Er það?
Snögg.
Taskan er forljót.
Láttu hana ekki sjá hana.
En þetta er...
-Drífa sig.
Hver ert þú?
Ég heiti Andy Sachs.
Ég er nýútskrifuð úr
Northwestern háskólanum.
Og hvað ertu að gera hérna?
Ég tel mig geta staðið mig vel
sem aðstoðarmanneskja þín.
Og...
Ég kom til New York til að verða
blaðamaður, sendi inn urmul umsókna
og fékk loksins
boð frá Elias-Clarke
og ræddi við Sherry
hjá vinnumiðlun og...
Ég hef um þetta eða
Bílablaðið að velja.
Lestu ekki Runway?
-Nei.
Hefurðu heyrt mig nefnda áður?
-Nei.
Og þú hefur hvorki vit
né skilning á tísku.
Nú....
Það fer eftir því hvað maður...
Nei, nei.
Ég var ekki að spyrja þig.
Ég var aðalritstjóri
Daily Northwestern.
Ég vann landskeppni
háskólablaðamanna með greinum
um verkalýðsfélag húsvarða
sem fletti ofan af arðráni...
-Fleira var það ekki.
Gott og vel. Það er rétt.
Ég á ekki heima hér.
Ég er ekki horuð eða glæst
og ég fylgist lítið með tísku,
en ég er klár.
Ég er fljót að læra og harðdugleg.
-Hér er einkaviðtal
Cavalli fyrir Gwyneth.
Vandinn er að hún lítur út eins og
dansari í Las Vegassýningu
með þennan umfangsmikla
fjaðraða höfuðbúnað.
Takk fyrir að taka á móti mér.
Hver er þessi sorglega manneskja?
Er fyrir og eftir grein í gangi
sem ég veit ekki af?
Andrea.
Bíddu við.
Varstu ráðin hjá tískublaði?
Var tekið símaviðtal við þig?
Láttu ekki eins og asni.
-Nei, ég bara...
Miranda Priestly er fræg
fyrir að vera óútreiknanleg.
Hvernig veist þú hver hún er
en ekki ég, Doug?
Ég er stelpa undir niðri.
Það útskýrir ýmislegt.
Í alvöru talað,
Miranda Priestly er stórlax.
Milljónir stúlkna gæfu allt fyrir starfið.
Gott mál.
En ég er ekki ein af þeim.
Maður verður að byrja
einhversstaðar.
Tö*** sem dæmi grenið
sem Nate vinnur í.
Spáðu í það.
Pappírsservíettur? Halló?
Já og Lily sem vinnur
í myndlistasalnum við...
Fyrirgefðu.
Hvað gerirðu eiginlega þar?
Ég hef þegar fundið
draumastarfið mitt.
Sérfræðingur í fyrirtækiskönnunum.
-Kannanafræðingur.
Það er satt. Ömurlegt starf.
-Nei.
Ömurlegt. Hundleiðinlegt.
-Slakaðu á.
Ég er að reyna.
-Fáðu þér drykk.
Ég ætla að gera það.
-Mig langar að skála.
Fyrir störfum sem greiða leiguna.
Fyrir störfum sem greiða leiguna.
-Já. Fyrir störfum sem greiða leiguna.
Þú ættir að sjá hvernig stelpurnar
hjá Runway eru klæddar.
Ég á ekkert til að vera í.
Þú svarar í símann
og sækir kaffi.
Þarftu kvöldkjól til þess?
Mig grunar það.
Mér finnst þú alltaf líta vel út.
Vitleysan vellur upp úr þér.
Komdu.
-Já.
Förum heim.
Ég veit hvað við getum gert
án þess að klæðast einni spjör.
-Þú segir ekki?
Halló?
-Andrea.
Miranda hætti við greinina
um haustjakkana fyrir september.
Hún ætlar að nota
Sedona tökuna fyrir október.
Mættu strax á skrifstofuna.
Sóttu kaffið hennar í leiðinni.
-Núna?
Náðu í penna og skrifaðu þetta:
Engin froða,
fitusnautt mjólkurkaffi,
extra sterkt og þrjá kaffi
með rými fyrir mjólk.
Brennandi heitt.
Og ég meina heitt.
Halló?
-Hvar ertu?
Ég er að koma. Já.
Skrambinn.
Hvað hefur orðið af kaffinu mínu?
Hrökk hún upp af eða eitthvað?
Nei. Guð...
Mikið var.
Þetta er erfitt starf
sem þú hentar engan veginn fyrir.
Ef þú klúðrar
þá fæ ég að kenna á því.
Hengdu kápuna upp.
Ekki kasta henni frá þér.
Hvar er hitt umbrotið?
-Það er á leiðinni.
Þetta er fyrsti hluti tískulínunnar
sem við ræddum...
Númer eitt, tvö og þrjú
er að við svörum símanum.
Það verður að svara símanum
í hvert sinn sem hann hringir.
Hún verður ansi reið
ef símsvarinn svarar.
Ef ég er ekki við...
Andrea, Andrea.
Þú hreyfir þig ekki frá skrifborðinu.
Hvað ef ég þarf að...?
Hvað? Nei. Einu sinni skrapp
aðstoðarmanneskja frá
því hún skar sig á bréfahnífi.
Og Miranda missti af Lagerfeld
rétt áður en hann fór
í 17 tíma flug til Ástralíu.
Hún vinnur núna hjá
Sjónvarpsvísi.
Þú ferð ekki fet frá skrifborðinu.
Skrifstofa Miröndu Priestly.
Nei, hún er ekki við.
Hver...?
Já, ég skila því til hennar.
Enn einu sinni.
Mundu að við sinnum
gjörólíku starfi.
Þú sækir kaffi
og ferð í sendiferðir.
Ég sé um stundaskrána hennar,
stefnumót og útgjöld,
og mikilvægast af öllu, ég fer með henni
til Parísar á haustsýninguna.
Ég fæ að klæðast nýjustu tísku.
Ég fer á sýningar og í veislur.
Ég hitti alla hönnuðina.
Það er guðdómlegt.
Allt í lagi, vertu kyrr.
Ég þarf að fara í listadeildina
og afhenda bókina.
Ha...?
-Þetta er bókin.
Þetta er eftirlíking
af núverandi tölublaði.
Við sendum það heim til Miröndu
á hverju kvöldi og... Ekki snerta.
Hún skilar því inn á morgnana
með athugasemdum.
Það er venjulega í verkahring
annarrar aðstoðarmanneskju,
en Miröndu er annt um einkalíf sitt
og vill ekki ókunnuga heim til sín.
Þar til hún sannfærist um
að þú ert ekki rugludallur
sé ég um það indæla verk
að bíða eftir bókinni.
Emily? Hvað ef ég...?
-Bjargaðu þér.
Halló, skrifstofa frú Priestly.
Ég átti við það.
Skrifstofa Miröndu Priestly.
Hún er á fundi.
Get ég tekið skilaboð?
Allt í lagi.
Geturðu stafað fyrir mig
"Gabbana"?
Halló?
Líklega ekki.
Ég giskaði á stærð 39.
En fallegt af þér.
Ég held ég þurfi þá ekki.
Miranda réði mig.
Hún veit hvernig ég lít út.
-Veist þú það?
Emily.
Emily?
Hún er að tala við þig.
Við tö*** af skábandinu og...
-Nei, ég bað ekki um það.
Mikið var, Emily. Hversu oft
þarf ég að öskra á þig?
Ég er Andy.
Ég heiti Andy.
Andrea, en allir kalla mig Andy.
Ég þarf 10 eða 15 pils frá Calvin Klein.
-Hvernig pils viltu...?
Ónáðaðu einhvern annan
með spurningum þínum.
Sjáðu til þess að við höfum Pier 59
kl. 8 f.h. á morgun.
Minntu Jocelyn á að ég vilji sjá
smátöskurnar sem Marc er að gera.
Segðu Simone að ég taki Jackie
ef Maggie er upptekin.
Er Demarchelier
búinn að staðfesta?
Er Demarcheli...?
-Demarchelier. Er hann...
Hringdu í hann.
Allt í lagi.
Og, Emily...
Já?
Fleira var það ekki.
Það er þóttafullt skeytingarleysið...
Ertu búin að ná í Demarchelier?
Demarchelier.
Láttu það eiga sig.
Veistu hvar...? Ó.
Miranda Priestly er á línunni.
Patrick er á línunni!
Hún kallaði á mig
og spurði mig um Pier 59.
Svo sagði hún eitthvað um Simone,
Frankie og einhvern annan.
Og hún þarf pils frá Calvin Klein.
Svo minntist hún á eitthvað smátt.
Nefndi hún einhver sérstök pils?
-Nei.
Minntist hún á stíl?
-Ég reyndi að spyrja.
Maður spyr aldrei Miröndu.
Ég skal sjá um þetta
og þú ferð til Calvin Klein.
Ég?
-Ég biðst afsökunar.
Ertu vant við látin?
Þarftu að mæta á
herfilega pilsaráðstefnu?
Miranda?
-Ertu komin?
Ég er rétt ókomin.
Ég hringi um leið og...
Halló?
-Komdu við í leiðinni
hjá Hermès og náðu í 25 hálsklúta
sem við pöntuðum fyrir Miröndu.
Cassidy gleymdi heimavinnunni í Dalton.
Sóttu hana.
Miranda fór að hitta Meisel.
Hún verður kaffiþyrst
þegar hún kemur til baka.
Heitt kaffi.
-Geturðu endurtekið fyrsta...? Halló?
Guð minn góður.
Voðalegan tíma tók þetta.
Ég er í spreng.
Hefurðu ekkert pissað síðan ég fór?
-Nei.
Ég var föst við skrifborðið.
Ég er í spreng.
Sæl.
Kápan. Hengdu upp kápuna.
-Já.
Vertu viðbúin. Yfirferðin
er kl. 12:30 og fólk er stressað.
Síminn á ekki eftir að stoppa.
Yfirferðin. Auðvitað.
Já. Ritstjórar koma með valkosti
fyrir myndatöku og Miranda velur.
Hún velur allt
fyrir hvert einasta tölublað.
Þetta er mjög mikilvægt.
Að þú skulir ekki vita það.
Ertu tilbúin?
-Hæ, hæ.
Þegar ég er búin á klósettinu
ætla ég í mat með Serenu.
Þetta er hún, hin nýja ég.
-Sæl.
Sagði ég ekki?
-Ég hélt þú værir að grínast.
Nei, hreinasta alvara.
Ég fæ 20 mínútur í mat
og þú 15.
Þú ferð í mat þegar ég kem til baka.
-Fínt.
Í hverju er hún eiginlega?
-Pilsi ömmu sinnar.
Rjómakássa.
Merkilegur valkostur.
Veistu ekki að appelsínuhúð
er helsta innihald í rjómakássu?
Lifa stelpurnar hér á loftinu?
Já, síðan stærð 2 varð að 4
og stærð 0 varð að 2.
Ég nota stærð 6.
Sem er stærð 14 í dag.
Skrambinn.
-Engar áhyggjur.
Áttu ekki örugglega
gerviefnaflíkur í stöflum?
Ég skil.
Þér finnst fötin mín forljót.
En ég ætla ekki að vinna
við tísku að eilífu
og sé enga ástæðu til að breyta
sjálfri mér bara fyrir starfið.
Satt segirðu.
Þessi margbilljóna iðnaður
veltur einmitt á því, ekki satt?
Innri fegurð.
Halló?
Gott og vel. Komdu.
Miranda flýtti yfirferðinni
um hálftíma.
Hún mætir alltaf
15 mínútum of snemma.
Sem þýðir...?
-Þú ert sein.
Komdu. Afsakið.
-Skrambinn!
Hr. Ravitz.
-Nigel.
Gengur blaðið vel?
-Besta septemberútgáfa til þessa.
Gott. Ég frétti að Miranda hætti við
haustjakkana og valdi Sedona tökuna.
Hvað kostar það mig?
-Kringum 300.000.
Jakkarnir hljóta að hafa verið
asskoti ljótir.
Irv Ravitz.
-Fyrirgefið.
Þetta er Andy Sachs,
Nýi aðstoðarmaður Miröndu.
Til hamingju, unga dama.
Milljónir stúlkna gæfu allt fyrir starfið.
Bless, bless.
Stjórnarformaður Elias-Clarke.
Irv Ravitz.
Þú veist hvað sagt er:
Lítill maður, gífurlegt sjálfsálit.
Nei. Ég hef séð þetta allt áður.
Theyskens er að reyna
að endurhanna neðarlega mittislínu.
Hvar eru allir hinir kjólarnir?
-Það eru nokkrir hérna.
Fylgstu með og hlustaðu.
-Það getur verið áhugavert...
Nei.
Nei, ég bara skil þetta ekki.
Hvað er svona erfitt við
að setja saman góða yfirferð?
Þið hafið haft fleiri klukkutíma
til að undirbúa ykkur.
Þetta er óskiljanlegt.
Hvar eru auglýsingaflíkurnar?
Við erum með flíkur frá Banana...
-Við þurfum fleiri.
Þetta er...
Þessi gæti... Hvað finnst þér...?
-Já. Þú þekkir mig.
Ég er með ef þú lætur mig fá
ballettkjól og von um danssal.
En finnst þér hann líkjast um of...?
-Lacroix í júlíblaðinu?
Það hvarflaði að mér, en nei,
ekki með réttum fylgihlutum.
Hvar eru beltin sem fylgja kjólnum?
Er enginn undirbúinn hérna?
Hérna. Valið er erfitt.
Beltin eru svo ólík.
Missti ég af einhverju?
Nei, nei.
Mér finnst beltin bara vera
nákvæmlega eins.
Ég er enn að læra um þetta dót...
"Þetta dót"?
Ég skil. Þú heldur að þetta
snerti þig á engan hátt.
Þú opnar fataskápinn
og velur til dæmis
þessa luralegu bláu peysu,
því þú vilt gefa þá mynd
að þú takir sjálfa þig of alvarlega
til að velta þér upp úr tísku,
en það sem þú veist ekki
er að peysan er ekki bara blá.
Hún er ekki grænblá eða asúrblá.
Peysan er himinblá.
Og þú hefur ekki
hugmynd um þá staðreynd
að árið 2002, hannaði Oscar de la Renta
tískulínu af himinbláum kjólum
og síðan kom Yves Saint Laurent
með himinbláa herjakka.
Okkur vantar jakka við.
Skyndilega var himinblár
í tískulínu átta ólíkra hönnuða.
Síðan síaðist himinblár
út til stórverslananna
og hríslaðist að lokum
í Bónusverslanir
þar sem þú hefur fundið
peysuna á útsölu.
Þessi blái litur stendur fyrir
milljónir dollara og ótalmörg störf.
Það er broslegt að þú skulir halda
að þú hafir tekið ákvörðun
sem fríar þig frá tískuiðnaðinum,
þegar þú klæðist peysu
sem var valin fyrir þig
af fólkinu í þessu herbergi
úr stafla af einhverju "dóti."
Þá sagði ég
að ég sæi engan mun
á milli tveggja nákvæmlega eins belta.
Þú hefðir átt að sjá
hvernig hún horfði á mig.
Ég hélt að húðin ætlaði
að renna af andlitinu á henni.
Þetta er ekkert fyndið.
Hún er ekki ánægð nema allir séu
stressaðir, kvíðnir og örvæntingafullir.
Og glamrararnir dýrka hana.
Hverjir?
-Þær eru kallaðar "glamrarar."
Út af látunum í pinnahælunum
á marmaragólfinu í móttökunni.
Eina sem heyrist er:
Það er eins og þær séu að finna upp
lækningu við krabbameini.
Tíminn og orkan
sem þetta fólk eyðir
í ómerkileg minnstu smáatriði.
Og til hvers?
Svo það geti eytt
öðrum $300.000 á morgun
við að endurgera efni
sem var í lagi til að byrja með
til að selja fólki hluti
sem það vantar ekki.
Ég er ekki svöng lengur.
-Hvað þá?
Nú skil ég hví þær eru svona horaðar.
-Nei, nei. Láttu mig fá þetta.
Það er Jarlsberg-ostur
í samlokunni sem kostaði $8.
Veistu hvað?
Ég þarf bara að
halda þetta út í eitt ár.
Þá get ég gert það
sem ég ætlaði mér í New York.
Ég má ekki láta Miröndu
hafa áhrif á mig.
Slakaðu á, kisulóra.
Góðan daginn, Miranda.
-Gefðu mér samband við lsaac.
Ég sé engan morgunverð.
Hvar eru eggin mín?
Afsakið!
Náðu í ljósmyndirnar
frá undirfatatökunni.
Láttu athuga bremsurnar
á bílnum mínum.
Hvar er miðinn sem ég var með
í gærmorgun?
Stelpurnar þurfa ný brimbretti
eða eitthvað álíka sjóbretti
fyrir vorfríið.
Halló?
-Tvíburana vantar líka sandala.
Sæktu skóna mína til Blahnik
og náðu síðan í Patriciu.
-Hver er það?
Vertu þæg! Vertu þæg!
Keyptu litla borðið sem mér
líkaði svo vel í búðinni við Madison.
Pantaðu borð í kvöld á staðnum
sem fékk svo góð meðmæli.
...koma í dag.
Hvar eru allir?
Vinnur enginn hérna?
...East Side.
Gefðu mér samband
við Demarchelier.
Miranda Priestly er í símanum...
Allt í lagi.
Patrick er á línunni.
Guði sé lof að það er föstudagur.
Miranda verður í Miami
svo við verðum í fríi um helgina.
Pabbi er að koma frá Ohio.
Við ætlum út að borða
og sjá Chicago.
Ætlar þú að gera eitthvað
um helgina?
Já.
Já, Nate var mjög hrifinn.
Hann sótti um hérna
en var ekki með næga reynslu.
Hérna.
-Hvað er þetta?
Ég vil ekki að þú
hafir áhyggjur af leigunni.
Pabbi? Hvernig vissir þú...?
-Ekki...
Ég kála mömmu.
Takk.
Það er gaman að sjá þig.
-Sömuleiðis, vinan.
Viltu lesa yfir mér núna
eða eigum við að borða fyrst?
Ég ætlaði að leyfa þér
að klára brauðið fyrst.
Nei, það er óþarfi.
Láttu mig heyra það.
Við höfum bara áhyggjur.
Þú sendir okkur tölvupóst
frá skrifstofunni um miðja nótt.
Launin eru léleg.
Þú færð ekki að skrifa neitt.
Það er ekki satt.
Ég skrifaði tölvupóstinn.
Ég er að reyna að skilja hví
manneskja sem komst inn í Stanford
ákveður frekar að gerast blaðamaður
og endar í svona starfi.
Þú verður að treysta mér, pabbi.
Það opnar margar dyr
að vera aðstoðarmaður Miröndu.
Emily fer með Miröndu til Parísar
eftir nokkra mánuði
og hittir þar ritstjóra og blaðamenn
frá öllum helstu tímaritunum
og eftir ár gæti ég verið
í þeirri aðstöðu.
Skilurðu? Þetta er
tækifærið mitt. Þetta er...
Tækifærið mitt. Þetta er...
yfirmaðurinn minn.
Fyrirgefðu, pabbi.
Ég verð að svara.
Halló, Miranda?
-Það er búið að aflýsa fluginu mínu.
Það er eitthvað leiðindaveður.
Ég þarf að komast heim í kvöld.
Það eru tónleikar hjá tvíburnum
í skólanum á morgun.
Hvað?
-Í skólanum.
Ekkert mál. Ég athuga málið.
-Gott.
Halló. Ég veit að fyrirvarinn er stuttur
en áttu laust flug
fyrir yfirmann minn
í kvöld frá Miami til New York?
Já. Hvaða þotu sem er.
-Hérna. Takk.
Frá Miami til New York.
-Takk.
Já, í kvöld. Ég þarf...
Ég hélt þú ætlaðir...
-Nei. Það er hérna, vinan.
Ég er að reyna að bóka flug í kvöld
frá Miami til New York.
Já, ég veit að það er fárviðri.
Eru engin flug?
Hvað meinarðu, engin?
Þetta er fyrir Miröndu Priestly.
Hún er viðskiptavinur.
Hún hefur flogið með ykkur.
Já, halló.
Ég þarf að bóka þotu í kvöld
frá Miami til New York.
Já. Afsakaðu eitt augnablik.
-Hvað?
Halló? Miranda, sæl.
Ég er að reyna að bóka flug
en það eru engin sö*** veðurs.
Hvaða vitleysa.
Þetta er smásúld.
Það hlýtur að vera flug.
Hringdu í Donatella.
Fáðu þotuna hennar.
Hringdu í alla sem við þekkjum
sem eiga þotu.
Hringdu í alla. Þetta veltur á þér.
Þetta er þitt starf.
Komdu mér heim.
Almáttugur.
Hún kálar mér.
Ætlast hún til þess að
þjóðvarðliðið sæki hana?
Auðvitað ekki.
Er það möguleiki?
Komdu nú. Komdu.
SÖNGLEIKURINN
CHICAGO
Flutningur stúlknanna
var hreint yndislegur.
Þær léku Rachmaninoff.
Það hrifust allir.
Allir nema ég,
því ég var ekki á staðnum.
Miranda, mér þykir það leitt.
-Veistu hví ég réði þig?
Ég ræð alltaf sömu stúlkuna.
Glæsilega, granna stúlku
sem elskar auðvitað tímaritið.
En oftar en ekki reynast þær vera...
...ég veit ekki, óhæfar. Og...
...heimskar.
Svo kemur þú með þína
tilkomumiklu starfsskýrslu
og heldur ræðu um
svokallaðar vinnureglur
og ég hélt þú yrðir öðruvísi.
Ég hugsaði með mér:
"Ráddu hana. Taktu áhættu.
Ráddu kláru, feitu stelpuna."
Ég hélt í vonina.
Guð, ég lifi á því.
Allavega, þú ollir mér
meiri vonbrigðum en...
En nokkur þessara heimsku stúlkna.
Ég gerði allt sem í mínu valdi stóð.
Fleira var það ekki.
Fyrirgefðu,
hvert þykist þú vera að fara?
Hún hatar mig, Nigel.
Og það er mitt vandamál því...
Bíddu, nei. Það er ekki mitt vandamál.
Ég veit ekki hvað ég get gert betur
því ef ég geri eitthvað rétt
tekur enginn eftir því.
Hún hrósar manni aldrei.
En ef ég geri eitthvað rangt
þá er hún skelfilega grimm.
Hættu þá.
Hvað þá?
Hættu.
-Hætta...
Ég get ráðið stúlku í þinn stað
innan fimm mínútna.
Stúlku sem þráir starfið.
Nei, ég vil ekki hætta.
Ekki segja það.
Ég var bara að segja
að ég vil fá smá viðurkenningu
fyrir að leggja mig alla fram.
Andy, í alvörunni.
Þú ert ekki að reyna.
Þú ert að kvarta og kveina.
Hvað viltu að ég segi?
Viltu að ég segi: "Aumingja þú,
Miranda er svo vond við þig,
aumingja þú, aumingja Andy"?
Vaknaðu, stærð sex.
Hún er bara að sinna starfinu.
Þú vinnur á stað
sem hefur birt verk
mestu listamanna sögunnar:
Halston, Lagerfeld, de la Renta.
Það sem þeir gerðu og sköpuðu
var miklu meira en list.
Því þú lifir og hrærist í því.
Augljóslega ekki þú.
En sumt fólk gerir það.
Heldurðu að þetta sé bara tímarit?
Þetta er ekkert venjulegt tímarit.
Þetta er leiðarljós vonar fyrir...
Ég veit ekki.
Ungan dreng sem elst upp
ásamt sex bræðrum á Rhode lsland,
sem þykist fara á fótboltaæfingar
en tekur saumatíma í staðinn
og les Runway við vasaljós
undir sænginni á kvöldin.
Þú veist ekki hve margar goðsagnir
hafa gengið hér um og það sem verra er,
þér er alveg sama.
Því þessi staður,
sem margir gæfu allt til að vinna á,
þú lætur þér bara sóma að vinna hér.
Og þú vilt vita af hverju hún
kyssir þig ekki á ennið
og gefur þér gullstjörnu
fyrir heimavinnuna í lok dagsins.
Opnaðu augun, elskan.
Ég klúðraði.
Ég vil ekki klúðra vinnunni
en ég veit ekki hvað ég get gert...
Nigel? Nigel, Nigel.
Nei.
Ég veit ekki hvað þú vilt að ég geri.
Það er ekkert hérna í stærð sex,
ég get lofað því.
Þetta eru allt sýnishorn,
stærðir tvö og fjögur.
Allt í lagi, þú mátar þetta...
Og...
-Slá?
Þú tekur allt sem ég
rétti þér og brosir.
Þessi Dolce hentar þér.
Og skór...
Jimmy Choos.
Manolo Blahnik.
Nancy Gonzalez, æðislegt.
Narciso Rodriguez.
Þetta er geggjað.
Þetta gæti passað. Hugsanlega.
-Ha?
Yfir í Chanel.
Þú verður að eiga Chanel.
Ertu að koma? Við þurfum
að fara í snyrtideildina
og Guð má vita
hvað það tekur langan tíma.
Ég veit ekki af hverju
Miranda réði hana.
Ekki ég heldur.
Við vorum í snyrtideildinni
og hún tók upp Shu Uemura
augnhárakrullara og sagði:
"Hvað er þetta?"
Um leið og ég sá hana
þá vissi ég
að hún yrði gjörsamlega
misheppn...
Skrifstofa Miröndu Priestly.
Nei, hún er ekki við
en ég skila því til hennar.
Allt í lagi, takk. Bless.
Hvernig...?
Ertu í Ch...
-Chanel stígvélum?
Já.
Þú lítur vel út.
Hvað?
Hún lítur vel út.
-Æ, þegiðu, Serena.
Sjáumst á morgun.
-Góða nótt. Farðu vel með þig.
Passaðu fingurinn.
Jæja...
...hvað finnst þér?
Ég held við ættum að drífa okkur
áður en kærastan sér til mín.
Kjólarnir eru glæsilegir, Ralph.
Við ætlum að nota þann vínrauða...
...fyrir forsíðuprufuna...
Við eyddum heilli önn
í að læra um kartöflur.
Kreistu frönskuna.
Finnurðu hvað hún er stinn?
Hæ. Fyrirgefið hvað ég er sein.
Það kom upp vandi
í fylgihlutadeildinni.
Ég þurfti að finna pýton-ennisband.
-Pýton er í tísku.
Ég er með spennandi gjafir handa öllum.
Eruð þið tilbúin?
Hvað er þetta?
-*** og Olufsen sími.
Charlie Rose sendi Miröndu
símann í afmælisgjöf.
Ég fletti upp á honum á netinu.
Hann kostar 1100 dollara.
Hvað þá?
-Já.
Ég er með ýmsar vörur.
Mason Pearson hárbursta.
Clinique snyrtivörur.
Svei mér þá,
ég elska starfið þitt.
Hér er ein í viðbót...
...smágjöf.
Viltu hana? Viltu...
-Má ég fá, má ég fá!
Henni líkar taskan.
-Guð minn góður!
Þetta er nýjasta Marc Jacobs taskan!
Hún er allsstaðar uppseld.
Hvar fékkstu hana?
-Miranda vildi hana ekki, svo...
Nei, nei. Taskan kostar $ 1900.
Ég get ekki þegið hana.
Víst.
-Hví þurfa konur allar þessar töskur?
Þegiðu.
-Þú velur eina, setur draslið í hana
og þá er það komið.
-Tíska snýst ekki um notagildi.
Fylgihlutur er einfaldlega myndfræði
sem sýnir persónulegt mat
einstaklingsins.
Og þeir eru fallegir.
-Einmitt.
Runway snýst um meira
en flott veski.
Hér er ritgerð eftir Jay Mclnerney,
grein eftir Joan Didion
og meira að segja viðtal við
Christiane Amanpour.
Það hefur einhver
verið að drekka Kool-Aid.
Hvað áttu...?
Nate.
-Ég skal svara.
Já, það er grýlan.
-Leyfðu mér að tala við hana.
Nei. Ég þarf símann. Lily, nei, nei!
-Segðu henni að steikja eigin egg.
Það fer yfir á símsvarann!
Látið mig fá símann!
Hæ, Miranda.
Ekkert mál.
Ég kem eins og skot.
Þið þurftuð ekki
að láta eins og fífl.
Afsakið.
Ég er að leita að James Holt.
Hann er þarna.
-Takk.
Það var ekkert.
Ég kem efninu frá mér
og vona að þeim líki það.
Afsakið. Ég er Andy.
Ég er að sækja fyrir Miröndu Priestly.
Ó, já. Þú hlýtur að vera
hin nýja Emily.
Já.
-Gleður mig að kynnast þér.
Má ég sjá töskuna.
Mjög flott.
Aðþrengd, gaddað leður,
handunnin, með málmrönd.
Mjög flott.
Hver hannaði töskuna?
Þú.
Fylgdu mér.
Gjörðu svo vel. Þetta er uppkast
af kvöldkjól Miröndu fyrir sýninguna.
Einnig af aðalhönnuninni
fyrir vortískuna. Háleynilegt.
Ég skal ekki líta af því.
-Gerðu það.
Komdu. Þú vinnur fyrir Miröndu,
þú hlýtur að þurfa drykk.
Afsakið, stúlkur.
Gefðu henni púns.
Það er rótsterkt.
Góða skemmtun.
Hann var ekki að grínast.
Með púnsið.
Ég drakk það í síðustu veislu.
Ég vaknaði í Hoboken klæddur
engu nema slá og kúrekahatti.
Jæja þá.
Skynsamlegt.
Sæll.
-Christian Thompson.
Christian Thompson?
Þú ert að grínast.
Nei, þú... Þú skrifar fyrir
uppáhaldstímaritin mín.
Ég skrifaði um greinasafn þitt
fyrir háskólablaðið.
Sagðirðu hvað ég væri
myndarlegur og hrífandi?
Nei, en...
-Hvað gerir þú?
Mig langar að vinna fyrir blöð eins og
New Yorker eða Vanity Fair.
Ég er líka rithöfundur.
-Þú segir ekki?
Ég ætti að lesa greinarnar þínar.
Sendu þær.
Í alvöru?
Það væri... Takk.
Það væri frábært.
Í augnablikinu vinn ég sem
aðstoðarmaður Miröndu Priestly.
Þú segir ekki.
En leiðinlegt. Það er...
Miranda gengur frá þér.
Fyrirgefðu?
-Þú virðist indæl og klár.
Þú hentar ekki starfinu.
Ég verð að fara.
Það var gaman að kynnast þér,
stelpa Miröndu.
Emily?
Hringdu á skrifstofu James Holt.
Ég vil flýta forsýningunni.
Í dag kl. 12:30. Láttu alla vita.
Vertu tilbúin eftir hálftíma.
Þeir eiga ekki von á okkur
fyrr en á þriðjudag.
Gaf hún útskýringu?
-Já. Hún útskýrði
hvert einasta smáatriði.
Síðan greiddum við hvor annarri
og slúðruðum um American Idol.
-Ég skil þig.
Hvað er forsýning?
-Góðan daginn, Miranda.
Miranda krefst þess að sjá tískulínu
hönnuðanna fyrir sýningu.
Gaman að sjá þig.
-Halló.
Og gefur hún álit sitt?
-Á sinn hátt.
Þessi árstíð hófst hjá mér
með hugleiðslu
á gatnamótunum
milli Austurs og Vesturs.
Ef hún kinkar kolli einu sinni
er það gott. Tvisvar er mjög gott.
Hún hefur aðeins brosað einu sinni
og það var hjá Tom Ford árið 2001.
Obi-belti.
Hún hristir hausinn
ef hún er ekki hrifin.
Þennan kjól hönnuðum við
sérstaklega og eingöngu fyrir þig.
Síðan getur hún sett
stút á varirnar.
Sem þýðir... ?
Hörmung.
Farðu bara.
Ég veit.
-Ég skil þetta ekki. Mér blöskrar.
Ég tala við hann.
-Þú sérð um þetta.
Ætlar hann að breyta tískulínunni
að því hún setti stút á varirnar?
Þú hefur ekki náð þessu enn.
Eina álitið sem skiptir máli
er hennar álit.
Hringdu í manninn minn og staðfestu...
-Mat hjá Pastis? Búin.
Mig vantar föt til skiptanna.
Ég er búin að senda klæðnaðinn
á tökustað.
Gott. Og Andrea, ég vil að þú
komir með bókina til mín í kvöld.
Biddu Emily um lykilinn.
Gættu þessa vel.
-Að sjálfsögðu.
Ég hlýt að hafa gert eitthvað rétt
víst ég má koma með bókina.
Ég er enginn rugludallur.
Og hún kallaði mig Andreu.
Hún kallaði mig ekki Emily.
Er það ekki frábært?
Jú, húrra.
Það er mjög mikilvægt að þú
gerir nákvæmlega eins og ég segi.
Allt í lagi.
Bókin er tilbúin kl. 10, 10:30
og þú verður að bíða eftir henni.
Þú sækir föt Miröndu úr hreinsun
og afhendir ásamt bókinni.
Bílinn fer með þig
beint heim til Miröndu.
Þú hleypir þér inn.
Andrea. Ekki tala við neinn.
Ekki horfa á neinn.
Þetta er mjög mikilvægt.
Þú ert ósýnileg. Er það skilið?
Þú opnar dyrnar
og ferð inn í anddyrið.
Þú hengir fötin inn í skáp
á móti stiganum.
Og þú skilur bókina eftir
á borðinu með blómunum.
Ansans.
-Dyrnar til vinstri.
Allt í lagi.
Takk.
Þú getur látið okkur fá bókina.
Hvaða borð?
-Komdu bara upp.
Nei, ég má það ekki.
-Það er allt í lagi. Komdu.
Já, komdu.
-Hættið að tala.
Þú getur komið upp með bókina.
Emily gerir það alltaf.
Er það? Já.
Hún gerir það alltaf.
Er það? Allt í lagi.
Hvað átti ég að gera,
ganga út í miðri ljósmyndatöku?
Ég þurfti að fara af fjármálafundi.
Ég sat og beið.
-Ég sagði þér að farsímar
virka ekki þar.
Ekkert samband.
Ég vissi að allir á
veitingastaðnum hugsuðu:
"Hér bíður hann eftir henni,
eina ferðina enn."
Allt í lagi.
Þetta var ekki svo slæmt.
Ég lofa.
Tvíburarnir sögðu halló
og ég sagði halló og síðan
fór ég með bókina upp.
Fórstu upp?
Þú fórst upp. Almáttugur.
Af hverju skreiðstu ekki upp í rúm
og baðst hana um að lesa sögu?
Ég gerði mistök.
Ég veit það.
Andrea, þú skilur mig ekki.
Það gæti stofnað Parísarferðinni
í hættu ef þú ert rekin. Ef það gerist
leita ég að þér á öllum skyndibitastöðum
á þriggja ríkja svæðinu.
Bíddu við.
Ætlar hún að reka mig?
Ég veit það ekki.
Hún er ekki ánægð.
Andrea.
Miranda, hvað varðar gærkvöld...
-Mig vantar Harry Potter bókina
fyrir tvíburana.
Ég fer eins og skot
til Barnes og Noble.
Dastu og rakstu litla
hausinn þinn í gangstéttina?
Ekki svo ég muni.
-Við eigum allar útgefnu bækurnar.
Tvíburarnir vilja vita
hvað gerist næst.
Viltu fá óútgefna handritið?
Við þekkjum alla í útgáfu.
Það ætti ekki að vera vandamál.
Og þú getur allt, ekki satt?
Já, Bobbsey?
Ég veit, elskan. Mamma
er á fullu að reyna að fá bókina.
Hún er svo þver. Ég gæti
hringt í sjálfa J. K. Rowling.
Ég fæ ekki eintak af bókinni.
Stelpurnar fara til ömmu sinnar kl. 4,
svo reddaðu bókinni fyrir 3.
Að sjálfsögðu.
-Og steikin mín þarf að vera tilbúin
eftir 15 mínútur.
Ekkert mál.
Ég hef fjóra tíma
til að redda ófáanlegu handriti.
Smith og Wollenskys
opna ekki fyrr en 11:30.
Hvar fæ ég steik?
Sjáumst eftir 15 mínútur.
Óskaðu mér góðs gengis.
Nei.
Já, já, ég hef verið að bíða.
Það er fyrir Miröndu Priestly.
Þetta er mjög mikilvægt.
Já, ég veit að það er ófáanlegt
en ég var að velta fyrir mér
hvort þú gætir gert hið ófáanlega
fáanlegt, ef það er möguleiki?
Já, ég er að hringja
út af Harry Potter handritinu.
Nei. Það óútgefna.
Ekki séns? Geturðu sagt
að það sé fyrir Miröndu Priestly?
Ég held að það gæti skipt máli.
SHAKESPEARE Á BÍLASTÆÐINU
Eftir Christian Thompson
Ég hringi aftur.
Sæll. Þú manst líklega ekki eftir mér.
Við hittumst í veislu James Holt.
Ég vinn fyrir Miröndu Priestly.
Harry Potter handritið?
Nú ertu að grínast.
Mér þykir leitt að spyrja
en ég er á barmi örvæntingar.
Segðu henni að það sé ógerlegt.
Komdu með plan B.
Við erum að tala um
Miröndu Priestly.
Það er ekkert B plan.
Það er aðeins A plan.
Er hún komin?
Er búið að reka mig?
Ég segi þetta sjaldan
við aðra en sjálfa mig
en þú verður að slaka á.
Fjandinn sjálfur.
Kápa, taska.
Hvað er þetta?
Mig langar ekki í þetta.
Ég borða hádegisverð með Irv.
Ég kem kl. 3. Hafðu kaffið tilbúið.
Ef þú ert ekki komin með
Harry Potter bókina þá
geturðu sleppt því
að koma til baka.
Halló?
Hætt? Ertu viss?
Mér mistókst. Hún rekur mig hvort eð er.
Ég get alveg eins sagt upp.
Andy, gott hjá þér.
Til hamingju. Þú ert frjáls.
Já, heyrðu, ég hringi síðar.
-Allt í lagi.
Halló?
-Ég er snillingur. Mér er alvara.
Það ætti að reisa minnisvarða
mér til heiðurs.
Þú segir ekki.
-Ó, jú.
Vinur vinar gerir forsíðuna
og hún var með eintak.
Ó, nei, það þýðir
að ég gerði eitthvað rétt.
Það er bara...
Málið er, Christian, ég var...
Drífðu þig ef þú vilt handritið.
Ég hitti þig á St. Regis.
Afsakið.
Velkomin til St. Regis.
Get ég aðstoðað?
Já, ég mælti mér mót
á King Cole barnum.
Gjörðu svo vel.
Þú hefur eina klukkustund.
-Takk.
Eitt eintak. Hvað eiga tvíburarnir
að gera við það? Deila því?
Nei, ég gerði tvö eintök.
Ég lét útbúa kápu
og lét binda handritið
svo það líktist ekki handriti.
Þetta er aukaeintak fyrir þig,
til vonar og vara.
Hvar eru þessi frábæru eintök?
Ég sé þau hvergi.
Þau eru hjá tvíburunum.
Á lestinni á leiðinni til ömmu.
Get ég gert eitthvað
fleira fyrir þig?
Fleira var það ekki.
Gott og vel.
Hæ.
-Hæ, ég fór til Dean og DeLuca.
Jarðarberin kosta heila $5.
En þar sem þú sagðir upp
finnst mér að við ættum að fagna.
Heyrðu, Nate...
Ertu enn að gera heimavinnuna
fyrir tvíburana þó þú hafir sagt upp?
En göfuglynt af þér.
-Eftir að við töluðum, áttaði ég mig á
að það er ekkert vit í að kasta
frá sér margra mánaða vinnu.
Ég gafst upp í smástund.
Annað hvort það eða starfið er ömurlegt
og yfirmaður þinn er klikkaður.
Gott og vel.
Hvað um það.
Þetta er starfið þitt.
Nate.
Ekki láta svona.
Ég er sama persóna og áður.
Ég hef enn sömu drauma.
Allt í lagi?
Ég lofa. Sama Andy.
Flottari föt.
Mér líkaði gömlu fötin.
Í alvöru?
Hvað með hálsmenin?
Líkar þér þau?
Nei? Hvað með kjólinn?
Hann er nýr.
Ég er í fleiru sem er nýtt
sem gæti vakið áhuga þinn, en...
Hvað með þetta?
Þér líkar það ekki,
Best að halda áfram með...
Er þetta númer tvö?
Er þetta tvö?
Hæ.
-Hæ. Snúðu þér við, vinan.
Ég næ þessu. Greinin heitir
"Borgarfrumskógur," ekki rétt?
Já. Nútímakonan
gefur villidýrinu lausan taumann
og leggur undir sig borgina.
Gott. Farðu.
Stundum finnst mér ótrúlegt að ég þvæli
um þetta allan daginn. Bobby, komdu.
Takk.
-Láttu Miröndu fá þetta
eins fljótt og auðið er. Og segðu
að ég skipti Rocha út fyrir Dior.
Frábært, það verður gaman.
Hvernig væri að bæta viðmótið?
-Fyrirgefðu.
Ég gæti látið fyrirsæturnar
rífa þig í sig.
Dagurinn hefur verið annasamur.
Og persónulíf mitt hangir á bláþræði.
Velkomin í klúbbinn. Það gerist
þegar framinn tekst á loft.
Láttu mig vita þegar allt hrynur.
Þá færðu stöðuhækkun.
Nei. Allt í lagi, febrúar.
Bakhlið blaðsins.
Hefur einhver talað við
fólkið hennar Salma?
Já. Hún vill vera á sumarforsíðunni
því hún er að leika...
Nei. Ég ætla líka að taka út grein
Toobin um hæstaréttarkonur.
Konu. Og ég vil sjá annað uppkast
af hvernig velja skuli
lýtalækna. Hún er leiðinleg.
Og hönnunin fyrir
"Jólaopnuna" opnuna...
Hún er ekki enn nógu góð.
Ég skal kíkja á hana.
-Hvað með Testino?
Hvar stöndum við?
-Zac Posen
er að gera mótlistarjakkaföt,
svo ég lagði til
að Testino myndaði þau
í Noguchi garðinum.
Fullkomið.
Guði sé lof að einhver mætti til vinnu
í dag. Hvað með fylgihluti fyrir apríl?
Mér datt smelt í hug:
armbönd, eyrnalokka...
Nei, við gerðum það í hittifyrra.
Hvað annað?
Það er mikið um blómamunstur
svo mér datt í hug...
Blóm? Fyrir vorið?
Byltingarkennt.
Okkur datt í hug að ljósmynda það
á iðnaðarsvæði. Andstæða
kvenlegs blómamunsturs gegn
grófhefluðum bakgrunni myndi skapa
skemmtilega spennu...
-Nei.
Sem myndi...
Er einhver með eitthvað
sem ég get notað?
Bakteríuskæðar þurrkur, til dæmis?
Hvernig er kvefið?
-Það er að gera út af við mig.
Styrktarsýningin er í kvöld.
Ég hef hlakkað til í marga mánuði.
Ég neita að vera veik.
Ég ætla að klæðast Valentino.
Brátt fara allir að fara
til að hafa sig til
svo þú skalt fara með Fendi tösku
Miröndu í sýningarsalinn
og svo máttu fara heim.
Er það? Það er frábært.
Fullkomið. Ég þarf að skreppa
í bakaríið áður en lokar.
Nate á afmæli.
Við ætlum að halda veislu og...
Ég heyri þetta:
Og ég vil heyra þetta:
Bless.
Ég elska starfið mitt,
ég elska starfið mitt.
Halló?
Ég vil ganga úr skugga um
að þið séuð báðar
undirbúnar fyrir
gestalistann í kvöld.
Ég hélt að aðalaðstoðarmanneskja
færi bara á styrktarsýninguna.
Það á við þegar viðkomandi
hefur ekki ákveðið
að vera gangandi veiruplága.
Þú kemur og hjálpar Emily.
Fleira var það ekki.
Þetta eru allir gestirnir.
Miranda býður öllum. Okkar starf
er að sjá til þess að þau haldi
að hún þekki alla með nafni.
Ég hef undirbúið mig í fleiri vikur.
Verð ég að læra öll nöfnin fyrir kvöldið?
-Engan kjánaskap, Andrea. Líka þessi.
Byrjið án mín.
Ég kem eins fljótt og ég get.
Andy, þetta er afmælið hans...
Allt í lagi, drífðu þig bara.
Trúðu mér, ég geri það.
Ég vil ekkert síður en...
Æðislegur. Ég hringi
um leið og ég legg af stað.
Passar hann á mig?
-Já.
Smá olía og fiskilína,
þá er allt hægt.
RUNWAY Fagnar
TÍSKUÖLDINNI
Í rauninni ekki.
Þetta er í raun
helsti viðburður tímabilsins og...
Guð. Andy, þú ert svo smart.
Takk, Em. Þú ert svo grönn.
Er það?
-Já.
Ég er að grenna mig fyrir París.
Ég er á nýjum megrunarkúr.
Ég borða ekkert
og þegar er næstum liðið yfir mig
borða ég ostbita.
-Það virkar greinilega.
Ég veit. Ég er bara einni gubbupest
frá fullkominni þyngd.
Þetta er John Folger, nýi hönnuður
Chelsea Rep leiklistarskólans.
John.
-Komdu sæl.
Takk fyrir að koma.
-Það er alltaf gaman að sjá þig.
Hættu þessu iði.
Fyrirgefðu. Ég er svo sein.
Sættu þig við það.
Þú verður að vera hér.
Emily. Komdu.
Er þetta ekki Jacqueline Follet
frá franska Runway?
Ó, guð, Miranda hatar hana.
Hún átti að mæta
þegar Miranda var farin.
Ég vissi það ekki.
-Já.
Miranda. Stórkostlegur
viðburður, að vanda.
Þú komst með Jacqueline.
En gaman. Mikið er gott að þú
gast komið á samkomuna okkar.
Nema hvað. Ég hagræði
öllu árinu í kringum hana.
Við erum þér afar
þakklát fyrir það.
Ciao.
-Fékkstu miðann frá mér?
Já.
Við ræðum það á miðvikudag.
-Já.
Engin viðskipti í kvöld.
-Nei.
Góða skemmtun.
Em?
-Takk.
Guð hjálpi mér.
Ég get ekki munað
hvað hann heitir.
Ég sá nafnið hans í morgun.
Ég veit hvað það er.
Það hefur að gera með...
Bíddu, hann er...
Guð, ég á að vita þetta.
Þetta er Franklin sendiherra.
Og hann yfirgaf konuna sína
fyrir hana, Rebeccu.
Rebecca.
Sendiherra.
-Miranda, þú ert glæsileg.
En fallegt af þér.
-Takk.
Velkominn í siðmenninguna.
Þú hlýtur að vera feginn.
Að sjá þig.
-Halló.
Þú ert guðdómleg.
Guði sé lof að ég
bjargaði starfinu.
Mér tókst að ráða
fram úr ýmsu sjálf.
Ég virðist ekki vera
eins indæl og þú hélst.
Ég vona ekki.
Ef ekki væri fyrir
ansans kærastann
myndi ég heilla þig
upp úr skónum hér og nú.
Talarðu virkilega svona við fólk?
Greinilega.
Ég verð að fara.
Ertu viss? Ritstjórinn minn
fyrir New York tímaritið er inni.
Ég gæti kynni ykkur.
Þú sendir mér efni til að lesa.
Manstu?
Já.
-Ég verð að viðurkenna
að ég las bara tvær greinar
því þú sendir risastóran pakka.
En það sem ég las var ekki slæmt.
Ég held þú hafir hæfileika, Andy.
Hann ætti að hitta þig.
Hví kemurðu ekki inn?
Bara fyrir einn drykk.
Ég gæti svo sem þegið einn...
Nei, því miður.
Ég verð að fara.
Allt í lagi.
Ég bið að heila kærastanum.
Fyrirgefðu, Roy.
Geturðu keyrt hraðar?
Nate skilur þetta örugglega.
Já.
Hæ.
Til hamingju með afmælið.
Nate, mér þykir þetta leitt.
Ég reyndi að fara
en það var mikið í gangi
og ég varð að vera á staðnum.
Gleymdu því.
Ég ætla að kasta mér.
Getum við talað saman?
Þú ert mjög falleg.
Andrea?
Ertu með bókina?
París er mikilvægasta vika ársins.
Ég þarf að hafa með mér úrvalalið.
Emily flokkast ekki lengur í þann hóp.
Bíddu, viltu að ég fari...?
Nei. Miranda, Emily myndi deyja.
Líf hennar snýst um París.
Hún hefur svelt sig í fleiri vikur.
Ég get það ekki, Miranda, því miður.
Ef þú ferð ekki, getur þér varla
verið alvara með framtíðina.
Hvorki hjá Runway
né öðrum útgáfufyrirtækjum.
Þú hefur valið.
En...
-Fleira var það ekki.
Heyrðu, Andy.
-Já.
Ætlarðu að koma að sofa?
Já, eftir smá stund.
Andrea, ekki gleyma
að láta Emily vita.
Láttu hana vita strax.
Ekki svara.
Ekki svara. Ekki svara.
Ekki svara...
-Hæ.
Emily.
-Hæ. Fyrirgefðu hvað ég er sein.
Miranda vildi hálsklúta frá Hermès.
Hún sagði það í gær.
Ég gleymdi því eins og asni.
Ég fór auðvitað yfir um.
-Emily, ég þarf að tala við þig.
Ég hringdi heim til Martine
og hún opnaði snemma...
Afsakið. Hún opnaði snemma
fyrir mig og ég hef þá, sem er gott.
Allt í lagi, Emily,
þegar þú mætir
þarf ég að tala við þig.
Vonandi ekki annar Miröndu vandi.
-Ekki beinlínis.
Gott, því ég þarf að gera
svo margt áður en ég fer.
Ég sver það...
Guð minn góður!
Emily?
Mér er sama þó hún hafi ætlað að reka
þig eða lemja með sjóðandi skörungi,
þú áttir að neita.
Emily, ég gat ekki annað.
Þú þekkir hana.
Góða besta,
það er ömurleg afsökun.
Takk.
Veistu hvað fer alveg með mig?
Það varst þú sem sagðir
að þér stæði á sama um þetta drasl.
Þér er alveg sama um tísku,
þú vilt verða blaðamaður.
Djöfuls kjaftæði!
Ég veit þú ert reið,
ég álasa þér ekki.
Viðurkenndu það, þú seldir sálu þína
daginn sem þú klæddist Jimmy Choos.
Ég sá það. Og veistu
hvað gerir mig alveg æfa?
Fötin sem þú færð,
þú átt þau ekki skilið.
Þú borðar kolvetni,
í guðanna bænum!
Almáttugur!
Þetta er svo óréttlátt.
Emily...
-Farðu.
Emily, ég...
-Farðu.
Ertu að fara til Parísar
á tískusýningarnar?
Það er flottasti tískuviðburður ársins.
Hvern færðu að hitta, Galliano?
-Já.
Og Lagerfeld?
-Já.
Og Nicolas Ghesquière.
-Nú ertu farinn að hræða mig.
Sýningin er ótrúleg.
Ég er svo stolt af þér.
Takk.
Byrjaðu á myndunum aftast
og færðu þig fram.
Eins og ég hannaði það.
Algjör snilld. Þú dáir verkin.
Auðvitað.
-Og þig...
vil ég kynna ákveðinni persónu.
List og kynlíf. Vísaðu veginn.
Sjáumst á eftir.
-Allt í fína.
Halló.
Halló, stúlka Miröndu.
Sæll.
Ég var að hugsa um þig.
Láttu ekki svona.
Ég segi satt.
-Nei.
Ég er að skrifa um Gaultier
fyrir Interview.
Og skipuleggja Parísarferðina
og fór að velta fyrir mér
hvort þú yrðir þar.
Reyndar ætla ég að fara.
Frábært.
Ég gisti á æðislegu litlu hóteli.
Beint á móti falafel veitingastað
sem breytir lífi þínu.
Því miður, ég verð önnum kafin.
Þú verður að breyta lífi
einhvers annars.
Það er vandinn.
Ég er ekki viss um að ég geti það.
Lily.
Lily, ég þekki hann úr vinnunni.
Já, þið voruð mjög fagmannleg.
-Þú gerir of mikið úr þessu.
Sú Andy sem ég þekki
er brjálæðislega ástfangin af Nate,
mætir alltaf fimm mínútum of snemma
og finnst Club Monaco
vera með hátískufatnað.
Ég hef þekkt þá Andy í 16 ár.
En þessi kona?
Þessi glæsipía
sem laumast um í afkimum
með ókunnum,
sætum tískugaur?
Ég þekki hana ekki.
Lily.
-Góða skemmtun í París.
Ertu að fara til Parísar?
Já, það var að koma upp.
Ég hélt að París væri
meiriháttar mál fyrir Emily eða...
Frábært. Ætlar þú líka
að argast í mér?
Heyrðu, Andy.
Andy!
Andy, hvað er að þér?
-Ég gat ekki annað.
Miranda spurði. Ég gat ekki neitað.
-Ég veit.
Þetta er svar þitt við öllu:
"Ég gat ekki annað."
Eins og þú hafir neyðst til að taka
starfið og takir engar ákvarðanir.
Þú ert reiður því ég vinn frameftir
og missti af afmælinu. Fyrirgefðu.
Heldurðu að ég sé 4 ára?
-Þú hatar Runway. Og Miröndu.
Þér finnst tíska heimskuleg.
Það er augljóst.
Andy, ég sýð púrtvínsþykkni
allan daginn...
Ég er ekki beinlínis í friðarsveitunum.
Mér væri sama þó þú
værir nektardansmær
svo lengi sem þú
gerðir það af ráðvendni.
Þú sagðir að þetta væri bara starf.
Þú gerðir grín að
stelpunum hjá Runway.
Hvað gerðist?
Þú ert orðin ein af þeim.
Hvaða vitleysa.
-Það er ekkert að því.
Viðurkenndu það bara.
Þá getur við hætt að þykjast
eiga eitthvað sameiginlegt lengur.
Þér er ekki alvara.
-Víst.
Kannski þessi ferð
komi á góðum tíma.
Kannski ættum við
að taka okkur pásu.
Nate?
Fyrirgefðu. Bíddu aðeins.
Bara svo þú vitir það,
persónunni sem þú svarar alltaf,
það er sambandið sem þú ert í.
Ég vona að þið séuð
hamingjusamar.
Halló, Miranda.
Miranda.
Hvað segirðu? Gaman að sjá þig.
Takk fyrir að koma.
Líkar þér tískulínan?
-Fullkomlega.
Það skiptir öllu.
Mjög, mjög mikilvægt.
Þetta er nýja Emily.
Halló. Hvað segirðu gott?
Allt fínt.
-Gleður mig að kynnast þér.
Sömuleiðis.
-Fannst þér sýningin góð?
Miranda. Horfðu hingað.
-Hingað.
Miranda. Nigel.
Helstu gæslumenn tískunnar.
Miranda, hver er staða Runway
á franskri tísku andstætt amerískri?
Ég hef verið að hugsa.
Þú skuldar mér enn fyrir Harry Potter.
Er það, já?
-Að sjálfsögðu.
Ertu að vinna í kvöld?
Nei, Miranda á kvöldverðarboð.
-Frábært, þú ert laus.
En vandinn er le kærastinn.
Ekki segja mér,
er kærastinn non plus?
Þér stendur á sama.
Þú ert ekkert desolé.
Engan veginn.
Hvenær á ég að sækja þig?
Ég hringi í þig.
Christian, ljósmynd!
Þarna ertu.
Við þurfum að fara yfir sætaskipanina.
Fyrir hádegisverðinn.
-Já, ekkert mál.
Ég er með hana hérna.
Fyrir alla muni,
vertu ekkert að flýta þér.
Þú veist hvað bið á vel við mig.
Allt í lagi.
Við þurfum að færa
Snoop Dogg yfir á borðið mitt.
En borðið þitt er fullt.
Stephen kemur ekki.
Stephen er...
Þarf ég þá ekki að sækja Stephen
á flugvöllinn á morgun?
Ef þú talar við hann
og hann hættir við skilnaðinn,
já, þá máttu sækja hann.
Þú ert svo eftirsótt, svo sæktu.
Við þurfum að hafa samband við
Leslie þegar við komum til New York
og láta hana halda
blaðaumtali í lágmarki.
Annar skilnaður.
Þvert yfir "síðu sex."
Ég get rétt ímyndað mér
hvað verður skrifað um mig:
"Grýlan. Haldin frama-áráttu.
Snjódrottningin fælir burt
annan herra Priestly."
Rupert Murdoch ætti að greiða mér
fyrir öll blöðin sem ég hef selt fyrir hann.
Hvað um það, mér er...
Mér stendur á sama
hvað er skrifað um mig.
En stúlkurnar mínar.
Það er svo óréttlátt þeirra vegna.
Þetta er...
...enn eitt áfallið.
Önnur vonbrigði.
Annar faðir. Föðurímynd.
Farinn.
Allavega, málið er...
Málið er...
Við þurfum að finna sæti
handa Donatella,
því hún talar varla
við nokkurn mann.
Mér þykir þetta leitt, Miranda.
Ég get afbókað kvöldið ef þú vilt.
Enga vitleysu.
Hví ættum við að gera það?
Get ég gert eitthvað fleira?
Sinntu starfinu.
Fleira var það ekki.
Mig vantar ferðaáætlun Miröndu
fyrir morgundaginn.
Komdu inn.
-Takk.
Hver valdi fötin á þig?
Ó, þetta...
Ég skellti mér bara í eitthvað.
Snúðu þér við.
Leyfðu mér að sjá. Snúðu.
Þetta er virkilega... Nei.
-Já? Gott.
Þú ert glæsileg.
Starfi mínu er lokið.
Við skulum fagna.
Ég næ í kampavín.
Hvað erum við að halda upp á?
Við ætlum að skála fyrir
draumastarfinu mínu.
Starfinu sem milljónir stúlkna
gæfu allt fyrir.
Sem ég fékk fyrir mörgum mánuðum.
Ég er ekki að tala um þig.
James Holt.
-Já.
Massimo Corteleoni ætlar að fjárfesta
í fyrirtæki James og færa út kvíarnar.
Töskur, skór, ilmvötn, allur pakkinn.
Og James vantar meðeiganda.
Og sá maður er ég.
Veit Miranda...?
-Miranda veit þetta
því hún mælti með mér.
Guð, nei. Geturðu ímyndað þér?
En... Þú ert á förum.
Ég get ekki ímyndað mér Runway án þín.
-Ég veit.
Ég er svo spenntur!
Í fyrsta sinn í 18 ár
fæ ég að stjórna mínu eigin lífi.
Almáttugur!
Ég get farið til Parísar
og skoðað París.
Til hamingju.
Nigel, þú átt þetta skilið.
Heldur betur, stærð sex.
Fjögur.
-Í alvöru?
Skál.
-Skál fyrir þér.
Fyrir okkur.
-Má ég skoða þig.
Mig langar bara að segja
að það er ýmislegt sem Miranda gerir
sem ég er ósammála.
Þú hatar hana.
Viðurkenndu það.
Nei.
-Hún er alræmdur sadisti.
Og ekki á jákvæðan hátt.
Hún er harðskeytt.
En ef Miranda væri karlmaður
þá tæki enginn eftir neinu
nema hve fær hún væri.
Fyrirgefðu, ég trúi þessu ekki.
Þú ert að verja hana?
-Já.
Saklausa stúlkan
með sínar einlægu blaðagreinar?
Þú ert komin í samkrull
við óvininn, vina mín.
Þetta var illa sagt.
Nei. Það er æsandi.
-Æsandi?
Í alvöru?
-Já.
Veistu hvert við erum að fara? Því...
Já.
-Ég er villt.
Engar áhyggjur.
Ég þekki borgina til hlítar.
Þetta er uppáhaldsstaðurinn minn.
Gertrude Stein sagði:
"Ameríka er föðurland mitt
og París er heimaborg mín."
Alveg satt.
Hvað gerirðu?
Skrifarðu þessa vitleysu hjá þér
og geymir til að nota
á okkur stúlkurnar?
Ég er Christian Thompson.
Þannig er ég.
Þannig ertu. Gott og vel.
Ég starfa sjálfstætt.
Ég hef mikinn frítíma.
Ég gat aldrei skilið
af hverju allir
voru svona hrifnir af París.
Borgin er svo falleg.
Nei, því miður, ég get þetta ekki.
Við Nate vorum að skilja
fyrir tveimur dögum og ég get ekki...
Ég er búin að drekka of mikið
og heyrnin... Sjónin...
Dómgreindin er fyrir bí.
Nei, ég þekki þig varla.
Ég er í ókunnri borg.
Ég hef ekki fleiri afsakanir.
Guði sé lof.
Já.
RUNWAY
HÁTÍSKA
Hæ. Hvað er þetta?
Hvað sýnist þér?
Þetta er eftirlíking.
Já. Af...?
Hvernig ameríska Runway mun líta út
þegar Jacqueline Follet
tekur við sem aðalritstjóri.
Á að láta Miröndu fara?
Já. Hún ætlar að ráða mig
til að sjá um ritstjórnargreinarnar.
Kemur þetta þér á óvart?
Jacqueline er miklu yngri en Miranda.
Hún kemur með nýjan andblæ.
Svo ekki sé minnst á að Runway
í Ameríku er ein kostnaðarsamasta bók
í bransanum.
Jacqueline sinnir sama starfi
fyrir miklu minni pening.
Og Irv er kaupsýslumaður.
Miranda verður eyðilögð.
Líf hennar snýst um Runway.
Hann getur ekki gert þetta.
-Það er frágengið.
Irv lætur Miröndu vita
eftir veisluna fyrir James.
Veit hún ekki af þessu?
Hún er stór stelpa.
Hún jafnar sig.
Ég verð að fara.
Andy. Andy, þetta er frágengið.
Þetta er búið og gert, elskan.
Ég er ekki elskan þín.
Guði sé lof. Þú ert við.
-Afsakið?
Ég verð að tala við þig.
Það varðar Jacqueline Follet.
Skrattinn sjálfur.
Já?
-Halló.
Hr. Ravitz, afsakaðu ónæðið,
en gæti ég...
Ertu alveg búin að tapa þér?
Ég verð að tala við þig.
Ekki ónáða mig aftur.
-En... Miranda!
Miranda?
Miranda.
Bíddu, ég verð að tala við þig.
Irv ætlar að ráða Jacqueline Follet
sem aðalritstjóra Runway.
Christian sagði að hann
ætlaði að vinna fyrir hana.
Irv lætur þig vita í dag. Ég hélt
ef þú vissir þetta gætirðu lagað það.
Finn ég lykt af sverðliljum?
-Hvað þá?
Nei. Ég tók skýrt fram...
Ef ég sé sverðliljur
verð ég mjög vonsvikin.
Í 72 ár, hefur Runway
verið meira en tímarit.
Það hefur verið leiðarljós
glæsileika og þokka.
Miranda Priestly er besti
gæslumaður þessa leiðarljóss.
Hún hefur sett staðal
sem hvetur fólk um heim allan.
Dömur mínar og herrar,
má ég kynna Miröndu Priestly.
Þakka þér fyrir, kæri vinur.
Þakka ykkur öllum fyrir að koma
til að lofsyngja
vin okkar, James Holt.
En áður en ég tala um James
og öll hans afrek
langar mig að færa ykkur fréttir.
Eins og mörg ykkar vita,
fjárfesti Massimo Corteleoni nýlega
í útþenslu James Holt merkisins.
Það gerir hönnun
þessa framsýna listamanns
að alheimsmerki,
sem er virkilega spennandi framtak.
Runway og James Holt
eiga margt sameiginlegt.
En fyrst og fremst er það
staðföst yfirburðastefnan.
Það ætti því ekki að koma
neinum á óvart
að þegar kom að því
að velja nýjan forstjóra
yfir James Holt lnternational
þá valdi James eftirmann sinn
úr fjölskyldu Runway.
Það er mér mikil ánægja
að tilkynna ykkur
að sú persóna er vinur minn
og virtur samstarfsfélagi til margra ára,
Jacqueline Follet.
Og snúum okkur nú að aðalviðburðinum:
Fögnum James Holt.
Við hjá Runway erum stolt
að hafa verið meðal fyrstu...
Hún gerir vel við mig
þegar rétti tíminn kemur.
Ertu viss um það?
Nei.
En ég vona það besta.
Ég get ekki annað.
Þú hélst að ég vissi það ekki.
Ég hef vitað það í þó nokkurn tíma.
Það tók mig smá stund að finna
manneskju í stað Jacqueline.
Og starf James Holt
var svo fáránlega yfirborgað
að hún stökk á það.
Svo ég varð að segja Irv
að Jacqueline væri ekki á lausu.
Sannleikurinn er sá,
að það getur enginn sinnt mínu starfi.
Að henni meðtalinni.
Allir aðrir sem komu til greina
hefðu ekki ráðið við starfið
og tímaritið hefði orðið fyrir skaða.
Sérstaklega hvað varðar listann.
Listinn yfir hönnuði, ljósmyndara,
ritstjóra, rithöfunda, fyrirsætur,
sem ég uppgötvaði
og kom á fót
og hafa lofað að fylgja mér
þegar og ef ég ákveð
að hætta hjá Runway.
Svo hann íhugaði málið betur.
Mér þótti mikið til koma hvað þú
reyndir ítrekað að vara mig við.
Ég hélt ég myndi aldrei segja þetta,
Andrea, en í rauninni...
Ég sé sjálfa mig í þér.
Þú skynjar hvað fólki vantar
og hvers það þarfnast
og þú ert sjálfstæð.
Ég held ég sé ekki þannig.
Ég gæti aldrei gert neinum
það sem þú gerðir Nigel.
Þú ert þegar búin að því.
Við Emily.
Það er ekki...
Nei, það var allt annað.
Ég hafði ekkert val.
Þú valdir.
Þú valdir frama.
Ef þú vilt frama eru slíkar
ákvarðanir nauðsynlegar.
En ef ég kæri mig ekki um þetta?
Hvað ef ég vil ekki lifa
sama lífi og þú?
Láttu ekki eins og kjáni, Andrea.
Svona líf dreymir alla um.
Það vilja allir vera við.
Ég þarf að mæta í vinnu
eftir 20 mínútur.
Hvað er á seyði?
Ég vildi bara...
Ég vildi segja þér
að þú hafðir rétt fyrir þér.
Að... ég sneri baki
við vinum mínum og fjölskyldu
og öllu því sem ég trúði á...
Og til hvers?
-Fyrir skó.
Og blússur.
Og jakka og belti og...
Nate...
...fyrirgefðu.
Ég flaug til Boston
á meðan þú varst í burtu.
Ég fór í viðtal á Oak Room.
Og?
Þú ert að horfa á nýja
matsveininn þeirra.
Ég flyt eftir tvær vikur.
-Það er frábært. Til hamingju.
Ég veit ekki hvernig ég lifi
án grillaðra ostasamloka, en...
Ég held þeir selji brauð í Boston.
Og jafnvel Jarlsberg-ost.
Kannski dettur okkur
eitthvað í hug.
Heldurðu það?
Já.
Hvað með þig?
Hvað tekur núna við?
Ég er að fara í atvinnuviðtal í dag.
Jæja?
Ætlarðu að klæðast þessu?
Þegiðu. Ég er flott.
Andy. Greg Hill.
Halló.
-Fylgdu mér.
Þessar úrklippur eru frábærar.
Greinin um húsverðina
er einmitt í okkar anda.
Eina spurningin er: Runway?
Þú varst tæpt ár þar.
Hverslags pæling var það?
Ég lærði heilmikið.
Ég klúðraði samt á endanum.
Ég hringdi eftir meðmælum
og ***ð stelpa tók við skilaboðum
og ég veit ekki af fyrr en ég fæ fax
frá sjálfri Miröndu Priestly.
Hún sagði að af öllum
aðstoðarmanneskjum
hafir þú valdið henni
mestum vonbrigðum.
Og ef ég réði þig ekki
væri ég fífl.
Þú hefur gert eitthvað rétt.
Skrifstofa Miröndu Priestly.
Hæ, Emily, þetta er Andy.
Ekki skella á.
Ég þarf að biðja þig um greiða.
Þarft þú að biðja mig um greiða?
-Já.
Málið er,
að öll fötin sem ég fékk í París,
þau henta ekki mínum lífstíl
svo ég var að velta fyrir mér
hvort þú gætir losað mig við þau.
Ég veit það nú ekki.
Þetta er nú dálítið frekt af þér
og ég verð að minnka þau.
Ég drukkna í þeim.
En ætli ég hjálpi þér ekki.
Ég sendi Roy eftir þeim í dag.
Takk, Em, ég met það mikils.
Gangi þér vel.
Það verður erfitt fyrir þig
að fylla þetta sæti.
Vonandi veistu það.
Ég skil ekki hvað er svona erfitt
við að fá bílinn á réttum tíma.
Farðu af stað.