Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hvað viltu?
Bjór.
Ég á bara hlandvolgan Chango.
Það er minn uppáhaldsbjór.
Þetta er fjári gott.
Ég myndi segja að þetta væri besti
bjór sem ég hef fengið.
Raunar...
Vantar þig eitthvað?
Ég er bara feginn að vera á lífi.
Ég var staddur aðeins lengra upp frá.
Þekkirðu Saragosa?
Ég var á barnum þar. Ekkert ólíkur
þessum, þeir eru með bjór.
Ekki eins góða og þessa en allt að því.
Og ég sá svolítið
sem þið trúið aldrei.
Þarna sat ég einn og sjálfur.
Nú, þessi bar...
var fullur af lágkúrulegu liði.
Ég meina, ekki eins og hér.
Nei, ég meina slæmt lið.
Sem var eins og það
hefði ekkert gott í hyggju.
Ég er bara einn.
Mér finnst það fínt.
Á meðan er ýmislegt í gangi.
Undir borðum.
Ekki of augljóst...
en ekki of leynilegt heldur.
Svo...
þarna sit ég...
og inn gengur...
sá stærsti Mexíkani
sem ég hef nokkurn tíma séð...
eins og hann eigi staðinn.
Enginn vissi hvað halda
ætti um hann.
En þarna var hann
og inn gekk hann.
Hann var líka dökkur yfirlitum.
Ég meina ekki dökkur á hörund.
Þetta var öðruvísi.
Það var eins og hann gengi alltaf
í skugga.
Við hvert skref sem hann steig
í átt að ljósinu...
hélstu að andlit hans myndi koma
í ljós en ekkert gerðist.
Það var eins og ljósin deyfðust...
bara fyrir hann.
Svo þessi gæi...
sest við barinn...
pantar sér sódavatn, hallar sér
aftur og segir ekkert.
Pantaði hann gos?
Ég hafði ekki áhuga á drykknum hans.
Ég hafði áhuga á því sem hann hélt á.
Eins konar taska,
frekar þung.
Og hann setti þennan hlut við hliðina
á sér eins og þetta væri stúlkan hans.
Svo skyndilega talaði mannfíflið.
Maður gat séð að hann var að ræða
viðskipti því barþjónninn var æstur.
Sérstaklega þegar hann sagði...
Hann sagði eitthvað í líkingu við:
"Tík" eða...
" Bucho."
Það var það.
Bucho!
Hann æsti barþjóninn heilmikið.
Sumir þessara óárennilegu náunga...
ekki eins og þessir drengir, heldur
skítseiði, urðu æstir líka.
Tóku upp byssur og hnífa.
Reyndu koma einhverju í gang.
Nú, ókunnugi maðurinn...
hann rýkur upp af barstólnum.
Hann rýkur inn í mitt herbergið
með töskuna sína.
Rýkur inn.
Ég veit ekki hvað hann er að gera,
en í tveimur handtö*** er taskan opin...
og hann tekur upp þá stærstu handbyssu
sem ég hef nokkurn tíma séð.
Þetta var bara byrjunin.
Og stóðstu bara þarna? Hljópstu ekki
í skjól eða slóst í hópinn?
Ég var alveg frosinn.
Allt sem ég gat gert var að horfa...
á þetta fyrirbæri rústa staðnum.
Það var ótrúlegt.
Ótrúlegir slóðar æddu fram
og fengu verðskuldaðan dauðdaga.
Ekki misskilja mig, þetta voru ekki
klassamenn eins og þið hér.
Alls ekki.
Nei, þessir gæjar voru heimsins
verstu skítseiði.
Mér þykir það leitt en þeir fengu
það sem þeir áttu skilið.
Þetta var dómsdagur.
Hann grípur einn þessara náunga...
eina náungann sem enn andaði.
Hann fer að veiða upp úr
honum upplýsingar.
Og ég sá á hvíslinu...
að náunginn gaf upp þær réttu.
Hann sagði alla sólarsöguna.
Alla heilu söguna.
Hann sagði þessum ókunnuga
manni allt.
Allt?
Get ég fengið hreinni krús?
Þessi er skítug.
Fjandinn hirði þig.
Þetta er sú hreinasta sem ég á.
Alla vega...
án aðvörunar...
án nokkurrar vísbendingar...
snýr hinn ókunnugi sér við...
og sér...
mig.
Sástu andlit hans?
Andlit hans?
Nei.
Augun.
Og gerði hann þér ekkert?
Eiginlega ekki. Hann sneri sér
að náunganum á gólfinu.
Sá ókunnugi skaut hann...
gekk yfir til barþjónsins
borgaði og fór.
Lifði barþjónninn af?
Barþjónninn er aldrei drepinn.
En...
þegar hann nálgaðist dyrnar...
VlÐSKIPTAVINURINN HEFUR
ALLTAF Á RÖNGU AÐ STANDA
Nei, maður, barþjónninn fékk
verri útreið en allir hinir.
Hérna.
Þetta er í boði hússins...
ef þú getur rifjað
upp hvernig andlit hans var.
Takk, en nei takk.
Ég er að fara héðan.
Því að ég held...
að hann sé á leið hingað.
Takk fyrir, drengir!
Farið vel með ykkur!
Komdu hingað.
Vertu kyrr.
Hver er þetta?
Þetta er eini vinur þinn.
Finnst þér þú ekki vera full varkár?
Einn daginn áttu eftir að leggjast
of harkalega á þetta og skjóta þig.
Hvað viltu?
Hann er hérna.
Ég sagði nafnið hans
og þeir fóru yfir um.
Er Bucho hérna?
Aðra stundina hlustuðu þeir ekki
á orð sem ég sagði...
en þegar ég minntist á hann...
hlustuðu þeir.
Og skyndilega höfðu þeir mikinn áhuga
á því hver þú værir.
Svo ég sagði þeim vel smurða
og ýkta sögu.
Hversu ýkta?
Nokkuð ýkta.
Þú varst stærsti Mexíkani sem ég
hafði séð.
Frábært.
Ég ýkti en þeir gleyptu við þessu.
Ég lofa þér því að þeir eru að gera
í buxurnar núna.
Hvert fer ég?
Tarasco-barinn er góð byrjun.
Ekki gera úr þessu blóðbað eins
og síðast.
Það var ekki mér að kenna.
Auðvitað ekki.
Þeir byrjuðu.
Eins og þú vilt. Mundu bara...
að Bucho hefur fullt af bófum en
án þeirra er hann dauðans matur.
Sparaðu skotin.
Skyndilega...
ertu orðinn stóri bróðir minn.
Mér finnst ég bera ábyrgð á þér.
-Má ég spyrja þig að svolitlu?
-Hverju?
Hvað gerist þegar hann er dauður?
Þegar Bucho er dauður...
er þessu lokið.
Hann er sá síðasti.
Hefndinni lokið. Auga fyrir auga.
Verðurðu þá ánægður?
Ég held það.
Ég vona það.
Ég hef ekki kraft í þetta lengur.
Þú hafðir það aldrei.
Ekki þú heldur.
Ég var að hringja
í Oro Verde-barinn í Saragosa.
Það svaraði ekki.
Láttu mig vita ef þú fréttir eitthvað.
Ég vil efla eftirlit með öllum aðgerðum.
Það þýðir að það á að tví-og þrítékka
allt, jafnvel föstu kúnnana.
Ég sé um það.
Hvar er bíllinn minn? Er hann tilbúinn?
Hversu lengi þarf ég að bíða?
Ég sendi hann til baka.
Aftur? Ég hefði getað verið búinn
að þessu sjálfur.
-Og hvað er þetta?
-Þetta er frændi systur minnar.
Hann vantar vinnu og vildi sýna
þér bardagahæfileika sína.
Kallarðu það hæfnispróf,
að berjast við Pipon?
Ef hann getur ekki sigrað Cristos,
hef ég ekki áhuga.
Komdu út!
Enn sem komið er,
er hann ekkert sérstakur.
Lúberðu hann!
Það var lagið.
Hann mun aldrei dansa framar.
-Þar fór Cristos.
-Ég sagði þér það.
Hlustaðu. Þetta er það sem
ég vil að þú gerir.
Farðu með nokkra menn og settu
í kringum Tarasco og La Azteca.
Þessir Kólombíumenn vilja vita
hvort ég ráði við meira magn.
Þeir fylgjast nógu vel
með okkur fyrir.
-Heyrðu?
-Hvað?
Hvað með hann?
Settu fótinn í gifsi.
Og velkominn í fjölskylduna.
Hversu mikið í dollurum?
Fjandinn.
Eigum við að borga honum...
eða drepa hann?
Meira fyrir okkur...
Ég þarf að borga af húsinu.
Drepum hann.
Afsakið.
En...
ég vann einu sinni á bar...
svo ég veit hvernig á að þjóna fólki.
Og ég vil bara segja ykkur
að þjónustan hér...
þarfnast tafarlausra umbóta.
Hvað meinarðu?
Hvað meina ég?
Þjónninn okkar...
hvar er hann?
Ekki segja mér að hann sé
enn á baðherberginu.
Hann kom aldrei aftur til að athuga
hvort við vildum eitthvað annað.
Hann kom aldrei með reikninginn.
Við vildum reikninginn svo við gætum
komið okkur í burtu héðan.
Hérna.
Þetta ætti að vera nóg.
Og ekki búast við þjórfé.
Ef þú ferð ekki vel með mig,
býð ég þér ekki út.
Og bjórinn bragðast eins og þ***.
-Við vitum það!
-Af því við pissum í þá!
Og það er ekki allt!
Lélegur bjór, léleg þjónusta.
Geta þær ekki haldið sig úti?
2 cervezas.
Þetta er handa ykkur.
Augnablik.
Ég vildi bara sjá gítarinn.
Spilarðu?
Já, en þú?
Svolítið.
Spilaðu eitthvað.
Ekki núna.
Þetta er gítar pabba en hann
spilar ekki lengur.
Nú?
Það er ekki vinnu að hafa fyrir farand-
söngvara. Svo hann horfir á sjónvarpið.
Mér þykir leitt að heyra það.
Hann var hvort eð er ekki svo góður.
Ekki eins góður og ég verð. Hlustaðu.
Losaðu aðeins um fingurna.
Svona.
Skilurðu hvað ég meina?
Losaðu um þá.
Hvernig gerirðu þetta?
Allt í lagi.
Láttu mig fá hann.
Gleymdu þessari hönd, skilið?
Þú vilt verða sneggri.
Þetta er galdurinn.
Skilurðu?
Gott.
Æfðu þetta á...
hverjum degi.
Allan daginn.
Næst...
sýni ég þér hvernig þú spilar lag...
með því sem þú hefur lært.
Æfðu þig.
Þetta minnir mig á brandara.
Það kemur náungi inn á bar...
Iabbar að barþjóninum og segir: ...
" Barþjónn, ég er með veðmál
handa þér.
Ég veðja 300 dollurum
að ég get pissað...
í glasið þarna hinu megin...
án þess að dropi fari til spillis."
Barþjónninn lítur á glasið.
Það er í tíu feta fjarlægð.
Hann segir: ...
" Ertu að segja að þú viljir veðja 300
dollurum um að þú getir pissað...
að þú getir pissað héðan...
í þetta glas án þess að dropi,
fari til spillis?"
Kúnninn lítur upp og segir: ...
" Einmitt."
Þjónninn svarar: " Ég tek veðmálinu."
Náunginn segir: "Allt í lagi."
Tekur út tillann.
Hann hugsar um glasið.
Hann hugsar um glasið.
Hugsar um tillann.
Tilli, glas, tilli, glas,
tilli, glas, tilli, glas.
Svo byrjar hann að pissa.
Hann pissar út um allt.
Hann pissar á barinn.
Hann pissar á stólana,
á gólfið, á símann.
Á þjóninn!
Hann pissar alls staðar nema
í fjárans glasið!
Barþjónninn hlær. Hann er 300
dollurum ríkari. Þarna er hann...
Pissið lekur af andlitinu á honum.
Hann segir: " Þú ert meira fíflið, maður!
Þú pissaðir alls staðar annars
staðar en í glasið!
" Þú skuldar mér 300 dollara, puta."
Náunginn segir: " Hafðu mig afsakaðan
í smá stund."
Hann gengur innar á barinn.
Þar eru tveir náungar að spila
billjarð.
Hann gengur til þeirra.
Kemur aftur að barnum.
Segir: "Gjörðu svo vel. 300 dollarar."
Barþjónninn segir: ...
"Af hverju ertu svona glaður?
Þú varst að tapa 300 dollurum, fífl!"
Náunginn segir:
"Sérðu mennina þarna?
Ég veðjaði 500 dollurum
við hvorn þeirra...
um að ég gæti pissað á barinn þinn...
gólfið þitt, símann þinn og þig...
og að þú yrðir ekki einu sinni reiður...
heldur hamingjusamur."
Þetta er fyndið, ekki satt?
" Þú yrðir hamingjusamur!"
Gettu hvað?
Hann stóðst ekki prófið.
Þú...
stóðst það hins vegar með ágætum.
Já, ég vissi að ég myndi gera það því...
ég og Bucco...
-við erum gamlir vinir.
-Bucho
Hann líka.
Og þessi náungi...
-Ég kynntist honum í dag.
-Farðu inn.
Vel gert.
-Vel gert.
-Farðu inn.
Það er gaman að sjá að þið
hugsið um hvert smáatriði.
Þetta er flott, ese, flott.
Þú vísar veginn.
BILAÐ
Þarna inn?
Ógeðslegt.
Hvað vilt þú?
Ég er bara að leita að vinnu.
Hér er enga vinnu að fá.
Ég skil.
Er hægt að fá eitthvað að drekka?
Er eitthvað í töskunni?
Já.
Hvað?
Gítarinn minn.
Ertu viss um að þú viljir ekki heyra mig
spila áður en þú neitar mér um vinnu?
Við viljum bara sjá hvað er
í töskunni.
Ef innihaldið er það sem
þú segir það vera...
geturðu drukkið eins og þú vilt.
En ég er búinn að segja þér þetta.
Ég er tónlistarmaður.
Þetta er gítarinn minn.
Ekki snerta hann!
Komið honum í burtu!
Fljótir.
Hvernig hefurðu það?
Hvað er þetta?
Þetta er gítar.
Þetta er gítar.
Við heyrðum um tösku fulla af byssum.
Ég veit.
Ég varð að vera viss.
Ég skil.
Þetta er hann!
Já.
Þetta er ég.
Ég hef ekkert á móti þér
svo vertu rólegur.
Vertu rólegur.
Ég er bara að leita að manni
sem kallar sig...
Ekki strax.
Hver fjárinn gengur á?!
Er þetta í gangi núna?
Fylgstu með honum!
Hver fjárinn gengur á?
Vinir þínir?
Ég sver að ég veit ekki hver
fjárinn gengur á!
Fjárinn!
Þú náðir mér ekki!
Á fætur.
Komdu hingað.
Ég er að leita að manni sem kallar
sig " Bucho" .
Það er allt og sumt.
En þið þurftuð að velja erfiðu leiðina.
Hlustaðu á mig.
Ég vil ekki drepa þig.
Ég vil bara að þú farir með mig
til hans. Skilið?
Varstu að reyna að skjóta mig í bakið!
Fífl!
Ef þú vilt fara...
farðu þá.
Ef þú ætlar að vera um kyrrt...
slakaðu þá á.
Fjandinn hirði þig!
Peningarnir eru enn baka til.
Sem og sendiboðinn.
Sendiboðinn liggur á gólfinu
með þrjár kúlur í höfðinu.
-Tavo hlýtur að hafa skotið hann.
-Hvar er Tavo?
Tavo er úti.
Hvar?
Tveimur húsaröðum fjær.
Segðu honum að koma sér hingað!
-Ég vil fá að vita hvað gerðist!
-Hann er dáinn.
Ég get sagt þér, stjóri...
að sá sem gerði þetta
gerði þetta ekki fyrir peninga.
Hann var að leita að mér.
ÉG ER AÐ LEITA BUCHO - M
Þið hafið heyrt sögur um mann
með gítartösku fulla af byssum.
Þetta eru sögur.
Þetta eru bara sögur.
Ég get ekki trúað því.
Sjáið þið ekki að það er lokað?!
Við verðum að finna hann.
Þú sagðir að Kólombíumennirnir
væru að fylgjast með okkur.
Svo við finnum hann strax.
Hann er líklega farinn úr bænum.
Hann veit að ég er hérna.
Hann fer hvergi.
Hvar er ég?
Í bókabúð.
Bókakaffi.
Hvað gafstu mér inn?
Verkjalyf.
Ég er að framkvæma aðgerð.
Hvar eru allir?
Ég lokaði snemma
svo enginn myndi koma.
Það kemur hvort eð er enginn.
Af hverju?
Það les enginn.
Átt þú þetta? Allar þessar...
bækur?
Ég á þetta.
Foreldrar mínir létust.
Ég erfði húsið og svolitla peninga.
Ég er með íbúð upp.
Af hverju bókabúð?
Það hefur aldrei verið bókabúð
í þessum bæ.
Svo ég fékk þessa frábæru hugmynd.
Ertu viss um að þú vitir
hvað þú ert að gera?
Skilurðu núna af hverju ég á bókabúð?
Allt í lagi. Er ekki sjúkrahús hérna?
Treystu mér. Þú vilt ekki fara
á sjúkrahús hér.
Þú færð aldrei vinnu hér.
Hvað þá?
Gítarinn.
Það ræður enginn tónlistarmenn hérna.
Ég veit.
Ég nota hann til að ná í stelpur.
Láttu ekki svona!
-Sérðu þetta?
-Ég sé hana.
Nafn þitt var ritað á þessa kúlu.
Þú veist ekki einu sinni nafn mitt.
Það er rétt.
Ég veit ekki hvað þú heitir.
Reykirðu?
Nei.
Takk.
Þetta er það minnsta sem ég get gert
fyrst þú bjargaðir lífi mínu.
Fáðu þér fleiri.
-Hvað er þetta?
-Verkjalyf.
Heitt vatn.
Fjárinn!
Hvað ertu að gera?!
-Fyrirgefðu.
-Þú ert brjáluð.
Slakaðu á. Hérna, þetta er kalda vatnið.
Betra?
Best að sauma þig saman.
Komdu þér út!
Ég veit hver þú ert.
Í alvöru?
Þú ert þessi náungi sem maður
er alltaf að heyra sögur um.
Þú drepur eiturlyfjasala.
Þekkirðu Bucho?
Ég vona að þú haldir ekki að þú
getir náð Bucho einn.
Þekkirðu hann?
Já.
Ég á nokkra vini sem ég get hringt í.
Ég á inni hjá þeim greiða.
Ekki kvarta.
Þetta væri beint ef þú hefðir ekki
hreyft þig svona mikið.
Þetta ör er verst.
Hvernig fékkstu það?
Ég gerði það sjálfur, fyrir löngu.
Ég vil ekki vita hvað þetta er.
Þetta hefur bjargað lífi mínu
nokkrum sinnum.
Þú mátt eiga þessa.
Nei, takk.
Nei, ég þarfnast hennar ekki.
Viltu hjálpa mér?
Ég held að ég geti ekki hjálpað þér.
Ég verð að skilja dótið mitt hér
eftir í nokkrar mínútur.
Allt í lagi.
Ég get treyst þér, er það ekki?
Jú.
Í alvöru?
Allt í lagi.
Hvert ertu að fara?
Ég verð að fara til kirkju.
Til hvers?
Til að játa syndir mínar.
Ég er syndari.
Ég veit.
Þakkaði ég þér fyrir?
Nei, þú gerðir það ekki.
Ég mun gera það.
Hvernig líst þér á?
Skotheldar rúður...
hliðarnar...
húddið.
Einmitt það sem þú vildir.
Hlustaðu...
það koma ekki fleiri sendiboðar í dag,
nema einn í Hidalgo.
Haldið ykkur í burtu þaðan.
Afgangurinn af bænum er fyrir ykkur.
Takið bílinn og finnið hann!
Ég fer á trukknum mínum.
Taktu bílinn.
Þess vegna fékk ég hann.
Ef þið sjáið einhvern ókunnugan...
drepið hann. Ég get ekki tekið
fleiri sjénsa.
Lúgan er skotheld.
Hún virkar eins og hlíf
þegar skotið er út um lúguna.
Líttu á þennan náunga.
Þetta virkar.
Farið nú og náið honum.
Ég vil að þið takið hana með. Þú þarft
alla þá hjálp sem þú getur fengið.
Þú líka.
Blessaðu mig, faðir, því ég hef syndgað
með því að drepa nokkra menn.
Þú segir ekki.
Eftir því sem ég hef heyrt, hreinsaðirðu
út allan Tarasco-bar.
Vel gert. Nú er hver byssumaður í
Coahuila að leita að þér.
Hlutirnir fóru úr böndunum.
Ég sagði: Engin frekari blóðböð.
Ég sagði þér það. Bucho er sá síðasti.
Svo er ég hættur.
Nei, ég er hættur.
Þeir drápu konuna sem þú elskaðir.
Síðan skutu þeir
í gegnum hendina á þér.
Tvö stig. Vaknaðu!
Það er ekki hægt að hefna
fyrir svona nokkuð.
Gleymdu þessu.
Treystu mér...
þetta er mál sem þú vilt ekki
fylgja eftir.
Hvað meinarðu?
Ég hef kannað málið og Bucho
er ekkert lamb að leika við.
Treystu mér.
Ég get ekki farið án Buchos.
Gerir þú ekki ráð fyrir að lifa lengur?
Fínt. En það geri ég.
Ef þú þarfnast frekari aðstoðar...
ekki hringja í mig.
Hringdu í Campa og Quino.
Þeir eru brjálaðir.
Ég ætti að geta treyst á þig!
Þeir dagar eru liðnir.
Bíddu aðeins! Láttu ekki svona!
Gangi þér vel. Ekki láta skjóta þig.
Viltu játa syndir þínar?
Kannski seinna, faðir. Því miðað við
það sem ég er að fara að gera...
þá þyrfti ég að koma strax aftur.
Sjáðu til...
ég hringdi ekki út af þessu fyrr því...
ég get séð um þetta.
Já, hann getur hvergi farið.
Ég er með menn á eftir honum.
Sendirðu einhvern?!
Hversu lengi hefur hann verið hér?
Hver er hann?
Um hvað ertu að tala?
Við getum séð um þetta.
Slíkur maður myndi bara
rústa staðnum...
og draga að okkur athygli.
Hvernig lítur ykkar maður út?
Ég verð að vita það eða rangir menn
gætu verið drepnir.
Næst hringi ég fyrr en ég veit
að við getum séð um þetta...
Fjárinn!
Hvert er símanúmerið í bílnum mínum?
Fífl, hvert er farsímanúmerið mitt?!
Númerið!
Það er í bílnum þínum, stjóri.
Hvert er fjárans númerið á símanum
í bílnum?
Fjárinn.
-Hvað ertu að gera? Komdu þér í burtu.
-Þú getur ekki farið svona.
Ég þarfnast þín.
Mig dreymdi hana aftur.
Og hvað með það!
Hlustaðu á mig!
Þú hefur rétt fyrir þér.
Þú hefur rétt fyrir þér.
Kannski ætti ég að hætta.
Loksins segirðu eitthvað af viti
því ég get sagt þér það...
að ef þú heldur svona áfram
verður þessu fljótt lokið.
Komdu inn!
Passaðu þig!
Hvar er hann?
Við verðum að drepa hann.
Þetta er ég aftur.
Þessi maður sem þið senduð?
Hvernig lítur hann út?
Bara svo ég viti það.
Svo mitt fólk ruglist ekki í ríminu.
Dökkhærður á brún og brá.
Ég gerði ráð fyrir því.
Get ég fengið fleiri smáatriði?
Með húðflúr á brjóstinu.
Með húðflúr af konu á brjóstinu.
Hvað fleira?
Engin vopn?
Hnífakastari.
Og...?
Og smápeninga svo hann geti hringt
í ykkur og gefið skýrslu.
Já, allt í lagi.
Þetta ætti að duga, takk.
Við höldum okkur frá honum.
Já, takk fyrir.
Fjandinn!
Þetta er það sem ég var að tala um.
Okkar eigið fólk að fylgjast með okkur.
Hann er búinn að vera hérna síðan
í morgun að fylgjast með okkur.
Aumingjar!
Farið og finnið hann!
Fara og finna hvern?
Það er enginn annar!
Þeir segja að hann sé kólombískur en í
raun og veru eru þeir á eftir þér.
Það er einhver annar þarna úti.
Og ég vil finna hann núna!
Hver annar?
Gítarleikarinn?
Sá náungi er goðsögn.
-Goðsögn.
-Þú trúir aldrei neinu.
Það á eftir að verða þér að falli.
Ég fer með ykkur.
Ég get ekki treyst þér fyrir þessu.
Núna er ég í hættu.
Manito!
Af hverju ertu ekki að æfa þig?
Ég sagði þér það, maður.
Á hverjum degi, allan daginn.
Ég get ekki spilað á þennan gítar.
Komdu.
Hvert ertu að fara?
Ég er að fara að sækja gítarinn minn.
Ég bíð hér.
Þetta er hérna rétt hjá.
Hvað er hérna rétt hjá?
Gítarinn minn. Ég vil sýna þér
hvað ég hef verið að æfa.
Heimski krakki.
Bíddu hérna.
Það á enginn annar að vera hér.
Sérðu? Nú kemur hann.
Sérðu? Ég get spilað á þennan.
Ekki einu sinni reyna það.
Láttu mig fá gítarinn.
Gítarinn!
Fariði.
Fjandinn.
Er þetta gítar pabba þíns?
Er það út af þessu sem hann vinnur
ekki lengur?
Þeir skipta á gíturum á nokkura
daga fresti.
Hvað færð þú?
Pabbi minn þarf ekki að vinna.
Hann horfir á sjónvarpið.
Hann segir að þeir feli það
út um allt.
Dömur með barnavagna,
kirkjan...
bókabúðir. Spurðu Carolinu.
Hún segir þér það sama.
Hún gerir þetta líka.
Hvað? Jesús.
-Hvað sagðirðu honum?!
-Hverjum?
-Vinnurðu fyrir hann?
-Ég vinn ekki fyrir neinn.
Ég vil fá að vita hvað þú sagðir!
-Ekkert.
-Ekkert?!
Um hvað ertu að tala?!
Þú sagðir að ég væri í kirkjunni!
-Ég hef ekki sagt neitt við neinn!
-Líttu á mig!
Þú ert að vernda hann!
-Nei!
-Þú ert að því!
Ef svo væri, hefði ég sagt honum
að þú værir hér!
Þú vilt ekki að hann deyi!
Ég vil ekki að neinn deyi!
Það bjargar engu að drepa hann.
Skilurðu?!
Veistu hvað ég skil?
Ég skil að þú ert engu betri en hann.
Sama bullið!
Það er hægt að kaupa alla.
Ekki alla.
Þú ert svo góður, ha?
Sérðu þessa bókabúð? Ég á hana.
Einhver kemur og skilur eftir pakka.
-Tveimur dögum síðar...
-Hversu mikið?
kemur einhver annar
og sækir hann.
Ég leigi pláss!
-Það er allt og sumt.
-Hversu mikið?!
Bakherbergið.
Hversu mikið borgar hann þér?
50.000 dollara á ári.
50.000 dollara.
Í reiðufé.
Að sjá þig. Þú ert allur í klessu.
Komdu hérna.
Upp á borðið.
Ég opnaði ekki þennan stað bara
til að horfa á hann hnigna.
Það var enginn hagnaður.
Ég hefði orðið að loka.
Einn daginn gengur Bucho inn
með tösku fulla af peningum...
og segir við mig:
" Carolina, taktu þetta...
og haltu viðskiptum þínum áfram...
og ég læt þig fá 50.000 dollara á ári."
Þeir hafa gert það sama fyrir
fullt af fólki hér.
Þeir nota viðskipti okkar
sem yfirskin.
Ég notaði svolítið af peningunum
til að halda staðnum opnum.
Og ég faldi afganginn
og hugsaði með mér...
að einn góðan veðurdag...
þegar ástandið væri orðið
virkilega slæmt hér...
ætti ég peninga til að fara.
En ég get ekki farið.
Því að þegar þú ert einu sinni
byrjaður, geturðu ekki hætt.
Sá sem nálgaðist það mest
að vera bróðir minn...
var að deyja.
Ég get ekki hætt því sem ég er að gera.
Ég get það ekki.
Fjandinn hafi það!
Vantar þig aðstoð?
Nei. Ég var að reyna að færa...
peningakassann minn.
Ég þurfti hvort eð er nýjan.
Jæja...
hvaða erindi átt þú?
Ég er hættur að koma, ekki satt?
Jú.
Hvernig hefurðu haft það?
Ágætt.
Og viðskiptin?
Þau hafa verið ágæt.
Eins góð og þau geta orðið.
Ég sagði þér það...
bókabúðir...
Ekki í þessum bæ.
Og þú?
Ég er að leita að manni
sem ógnar viðskiptum mínum.
Þú hefur kannski heyrt um það
sem gerðist á barnum í dag.
Ó, já. Það var skothríð.
Hefurðu þú séð einhvern
sem virðist...
Grunsamlegur?
Nei.
Fjandinn.
Náunginn sem ég er að leita að
er augljóslega hættulegur...
svo ég fer ekki fram á að þú
leitir hann uppi...
en...
ef þú sérð hann...
viltu þá hringja í mig?
Auðvitað.
Ég meina...
þessum skothríðum verður að linna.
En ég hef ekki séð hann.
Þú...
myndir ekki ljúga að mér...
er það?
Nei.
Þvílík óreiða.
Já.
Ég ætti víst að laga til.
Takk fyrir kaffið.
Hringdu í mig.
Já...
ef ég sé hann...
mun ég örugglega hringja.
Hringdu í mig.
Var þetta hann?
Þú gerir honum ekkert hérna eða við
verðum bæði drepin.
Og ég vil ekki deyja út af þessu.
Haltu þig frá glugganum.
Þetta er ekki svo slæmt.
Raunar er það næstum beint.
Af hverju sagðirðu honum ekki...
að ég væri hér?
Ég veit það ekki.
Ég veit að þér finnst hann
vera hryllilegur.
Elskan, hann er það.
Hann er það.
Ekki í alvörunni.
Hann á sínar góðu hliðar.
Og það er það eina
sem getur bjargað honum.
Hvað er þetta?
Þetta var handa þér.
Var handa mér?
En er það ekki lengur?
Allt í lagi, þú mátt eiga hann.
Ég keypti ekki tösku þar sem
þú átt eina fyrir.
Hann er fallegur. Þakka þér fyrir.
Ég hélt kannski...
að þú gætir tekið byssurnar í burtu
og sett hann í staðinn.
Kannski.
Spilaðu eitthvað.
Nei.
Láttu ekki svona, ég skal hjálpa þér.
-Fyrirgefðu.
-Farðu varlega.
Þetta er allt í lagi.
Nei, ég get ekki lengur spilað.
Af hverju?
Ja, líttu á hendurnar á mér. Það...
Ég get það ekki.
Við getum spunnið.
Spunnið?
Kanntu að spila?
Svolítið.
Allt í lagi.
Þetta er ekki einu sinni nóta.
Ég skal sýna þér.
Settu þessa fingur hér.
Svona?
Flott. Þetta er fínt.
Leyfðu mér.
Allt í lagi.
Memo...
hann er í bókabúðinni.
Já, ég er viss um það.
Athugaðu það alla vega. Ef hann er þar
og hún er að fela hann...
dreptu þau þá bæði.
Láttu það líta út fyrir að vera slys.
Þetta er bókabúð.
Brenndu hana.
Af stað!
Komdu!
Fljót!
Taktu þetta!
Hvað?
Komdu!
Hvað!
Ég verð að sækja veskið mitt!
Fjandinn hirði það!
Bíddu!
Bíddu!
Hérna.
Þú lítur rosalega vel út.
Þakka þér fyrir.
Hvert erum við að fara?
Niður og út um framdyrnar.
Taktu þetta.
Jesús Kristur!
Hvað ertu að gera?!
Komið ykkur út!
Af stað!
Áfram! Áfram!
Er allt í lagi með þig?
Mér þykir þetta leitt, Carolina.
Mér þykir þetta leitt.
Þetta er hann.
Hvað?
Er þetta Bucho?
Ég get skotið hann héðan.
Fæðingarhálfviti.
Hvað?
Hvað ertu að gera?
Skjóttu hann.
Skjóttu hann!
Allt sem ég átti var þarna inni.
Skilurðu ekki?
Skilurðu ekki?
Hann ætlar að drepa mig.
Komdu!
Fjárinn!
Hvað er að?
Þú hafðir frábært tækifæri!
Hvað er að?
Af hverju skaustu hann ekki?
Komdu.
Komdu.
Komdu!
Bíddu aðeins!
Eitt er að...
geta ekki fundið einhvern sem
hleypur um borgina...
og felur sig þar sem hann vill.
Það get ég skilið.
En það sem ég get ekki skilið...
er hvernig þið gátuð látið hann sleppa
þegar þið vissuð hvar hann var?
Þið keyrið um bæinn...
þið sjáið mann sem þið þekkið ekki:
Skjótið hann.
Hversu flókið er það?
Sjáiði þarna.
Ég þekki hann ekki.
Ég hef aldrei séð hann áður.
Byssa!
Þetta hlýtur að vera hann.
Er þetta virkilega flókið?
Þetta er svona auðvelt.
Sjáðu!
Hverjir eru þessir náungar?
Ég hef aldrei séð þá heldur.
Er þetta virkilega flókið?
***!
Ræðurðu við þetta?
Eða verð ég að gera allt sjálfur?
Ég ræð við þetta.
Það er eins gott fyrir þig.
Taktu bílinn minn!
Til þess keypti ég hann!
Vert þú hér.
Ég þarf einhvern hæfan til
að passa staðinn!
Fljótir!
Ég hef ekki alltaf verið svona.
Ég get séð það.
Ég var tónlistarmaður.
Varstu góður?
Ég var ágætur.
Þeir skutu í hendina á mér.
Veistu...
það er auðveldara að skjóta
en spila á gítar.
Auðveldara að eyða en skapa.
Þeir drápu konuna sem ég elskaði.
Þeir eyðilögðu líf mitt.
Menn Buchos báru ábyrgð á því.
Af hverju drapstu ekki Bucho?
Allt í lagi...
svona er áætlunin:
Þú getur enn flúið án þess
að ég þurfi að drepa hann.
Þú átt peninga.
Það eru engir peningar.
Hvað?
Þeir eru horfnir.
Ég faldi þá í bókunum.
Þeir brunnu.
Fjandinn hafi það.
Ég á ekkert. Ekkert.
Frábært.
Fjandans!
Hvað um að hringja í vini þína?
Campa.
Quino.
Þeir eyða borginni.
Bucho mun samt sleppa.
Gleymdu því.
Þér er kannski alveg sama...
en hann mun elta mig hvert sem ég fer
þar til ég dey.
Mér er ekki sama.
Campa?
Er Quino þarna?
Hversu fljótt getið þið tveir komið
til Santa Cecilia?
Ég fylgist með ykkur.
Takk.
Campa...
komið með gítarana ykkar.
KIRKJUVAGNINN
Gefðu mér styrk...
til að vera sá sem ég var.
Og fyrirgefðu mér fyrir það
hver ég er.
Aftur komnir saman, ha?
Spilum.
Farðu í skjól!
Fjandinn!
Ég er ekki viss um
að þetta sé staðurinn.
Þetta er staðurinn.
Ég fer með þér.
Manito.
Hvað ert þú að gera hér?
Ég hélt að ég væri að leita
að sjálfum djöflinum.
Og allan þennan tíma
var þetta minn eiginn bróðir.
Ég vissi ekki að þetta værir þú.
Ég komst bara að því í morgun.
Ég ætti að drepa þig á stundinni.
Þú lítilsvirtir mig.
Við vissum að þú værir
að gera slæma hluti.
En ekki að þú
myndir ganga svona langt.
Svo litli bróðir minn er kominn...
til að segja mér til syndanna.
Segja mér hvað sé rétt og hvað rangt.
Þú ert gítarleikari.
Af hverju ertu að drepa menn mína
og eyðileggja viðskipti mín?!
Þeir drápu konuna sem ég elskaði.
Þú drapst þá!
Hvað viltu?
Ég drep ekki viljandi saklaust fólk.
Þú kaupir bara saklaust fólk.
Þú drepur það ekki...
fyrr en þú þarfnast þess ekki lengur.
Er hún ekki konan sem þú elskar núna?
Þegar við tö*** eitthvað í burtu...
kemur eitthvað annað í staðinn.
Hún er svaka gella.
Treystu mér. Ég veit það.
Afsakaðu þetta með bókabúðina.
Ég sagði alltaf að hún myndi
enda í reyk.
Hefði ég vitað að þú svæfir hjá bróður
mínum, hefði ég ekki gert þetta.
Cesar...
ég hef lært að lesa í augu manna.
Hvað lestu úr mínum?
Ósigur, bróðir.
Ósigur?
Líttu á sjálfan þig.
Þú kemur hingað til að drepa mig.
Pabbi myndi ekki vera stoltur
af þér lengur.
Þú varst litli guitarrista hans.
Litli farandsöngvarinn hans.
Og núna...
bara skítseiði eins og ég!
Viltu drepa mig?
Leyfðu mér að segja þér svolítið.
Þú hefur þegar drepið mig!
Upp með hendur, manito.
Svona nú.
Upp með hendur!
Mér þykir þetta leitt.
En ég get ekki liðið neinn hetjuskap
á meðan ég refsa Carolinu...
fyrir að svíkja mig.
Leyfðu mér að gera þetta
og við erum jafnir.
Getum byrjað upp á nýtt.
Þú drapst menn mína. Allt í lagi.
Það er búið og gert.
Ég er búinn að vera hvort eð er.
En núna...
drep ég Carolinu.
Og þú færð að horfa.
Bless, Carolina.
Allir sem ég drap...
voru feður einhvers...
synir einhvers...
bræður einhvers.
Æfðu þig.
Hvert ertu að fara?
Ég veit það ekki.
Carolina?
Þakkaði ég þér fyrir?
Nei.
Ég mun gera það.
Jæja...
Ég vil að þú þakkir mér fyrir hér og nú.
Þakka þér fyrir.
Bara til öryggis.
Það er löng leið til næsta bæjar.