Tip:
Highlight text to annotate it
X
Holly, þú verður að opna.
Ég er óviss um þetta.
Svona nú, opnaðu dyrnar.
Allt í lagi.
Þú ert rosalega fín. Snúðu þér.
Ótrúlegt að þú hafir talið mig á
að fara á dansleikinn.
Þú sagðist hafa verið
í milljón skólum.
Milljón skólum. Engum dansleik.
Ég skal!
Farðu.
Þetta er bara spurning um
að komast af.
Þegar maður flytur oft
lætur maður ekkert binda sig.
Hvað þá að gera áætlanir um
að fara á skóladansleiki.
Leitt að segja þér það
en eftir nákvæmlega viku
lýkur þeim hluta ævi þinnar.
Kannski er það rétt.
Óvænt!
-Komdu inn.
-Jean.
Við þurfum að tala saman.
-Hvað þá?
-Jean.
-Hvers vegna? Hvernig gastu það?
-Jean.
-Slepptu fagurgalanum!
-Stilltu þig nú.
-Við getum verið kurteis.
-Ég kem rétt strax.
Kurteis?
-Róleg.
-Af hverju ertu að segja mér þetta?
-Elskarðu hana?
-Hún skipti mig engu máli.
Tæknilega skiptu þær mig engu máli.
Þær?
Ég er búinn að hlaupa af mér hornin.
Vertu sæll.
Útskýrðu þetta aftur.
Mamma er að spila Patsy.
Mál að pakka niður.
Þýðir þetta að þú ferð ekki
á dansleikinn?
Við verðum farnar í lok vikunnar.
Ég verð í sambandi.
Bless.
Ég sakna þín.
Hvert förum við núna?
Það er laust starf
í bakaríi Dolores.
Mig hefur alltaf langað
að fara þangað
og þið munið elska Brooklyn.
Það er tími fyrir ný ævintýri og...
Mér þykir þetta leitt.
Ég veit að þú varst loksins farin
að eignast vini hér.
Það er ekkert stórmál.
Það eru vinir alls staðar.
Ekki satt?
Hæ, allir bloggarar.
Þetta er ég aftur. Flökkustelpan.
Óvænt tíðindi.:
Mamma er í ástarsorg. Aftur.
Já, við erum aftur að leggja upp
í ævintýraferð.
Heiti mömmu á því að flýja.
"E-G-T". Egt.
Legt.
Fallegt.
Svona nú, sólargeisli.
Vertu með í leiknum.
Nefndu orð sem inniheldur egt.
Þá það.
Hörmulegt.
Stórkostlegt!
Ömurlegt.
Dásamlegt.
Takk.
Kaldhæðnislegt.
Sjúklegt.
Þetta er erfðafræðilegt.
Velkomin til OHIO
Það var kraftaverk að mamma fékk
bara eina hraðasekt á leiðinni.
Það er ungfrú Jean Hamilton.
Ertu giftur?
Hann ætti að sekta hana fyrir
óforskammað daður.
Vá!
En eitt get ég sagt.
Þau ykkar sem hafa ekki
gert það enn,
sjáið skýjakljúfana í New York
fyrir andlátið.
Ja hérna.
Stelpur.
Ég er viss um að hún er fín með
skrautlistum í loftinu
og gömlum harðviðargólfum.
Og huggulegum rottuskít í
morgunverðarkróknum.
-En huggulegt.
-Hættu þessu.
Hún verður fullkomin.
Það sorglega er að ég er
að verða fær í þessu.
Ef allt annað bregst get ég starfað
við flutninga.
Nýja íbúðin okkar á sér forsögu,
er blæbrigðarík
og dýralífið er fjölskrúðugt.
Mamma kallar hana heimili.
Ég kalla hana vitnaverndina.
Sjáðu, mamma!
-Þarna er það!
-Ég sagði þér það.
Það sama og í Wichita.
Það kemur fram á hverju kvöldi,
líka þegar illa gengur,
til að minna okkur á það
að hver dagur getur verið fagur.
Það er framorðið og ég er úrvinda.
Tímabært að taka fram sængurfötin
þótt ég hafi ekki hugmynd um
í hvaða kassa þau eru.
Haldið áfram að lesa
í netdagbók minni
um líf flökkutánings. Ég verð hér.
Sama ég, bara með annað póstnúmer.
FLÖKKUSTÚLKA
Nei! Ég fer ekki.
Farðu sjálf með honum.
Fyrirgefðu.
Sjáðu hana. Þú þarna.
Já, þú.
Hvað kostuðu bomsurnar?
Hvað þá?
Ég borgaði 50 dali fyrir mínar.
-En þú?
-Ekkert.
Ég hirti þau í ruslatunnu
í Portland.
Þú vinnur.
Sjáumst, viðundur.
Ertu ný hér?
-Hvernig vissirðu?
-Húðin á þér.
-Er húðin nýleg að sjá?
-Óflekkuð.
Engar gatanir eða húðflúr
Við Brooklyn-stúlkur missum
húðmeydóminn í fimmta bekk.
Í fimmta bekk var ég
að læra deilingu.
ÁRBÓKARMYNDIR!
Nemendur, takið eftir.
Hafið samband
við bekkjarfulltrúa ykkar.
Ömurlegt.
Þú þarft að fara í árbókarmyndatöku
með öllum aulunum sem misstu
af henni í haust.
Ég tek ekki þátt í svoleiðis.
Þú ræður engu um það.
Það er eins og skattar og dauði.
Skyldukvöl. Ef þú gerir það ekki
verðurðu elt uppi
og neydd til að brosa.
Ekki ef ég er ekki lengur hér.
-Það gleður mig að þú komst.
-Takk.
Hrærivélarnar eru á bak við
en ég vara þig við,
þær eru allar eldri en Guð.
Þær hræra ekki vel.
Þær færa hlutina bara til.
Ég vona þú sért vel á þig komin.
Gættu þín á vonlausa ofninum.
Hann er verri en sá í Chapel Hill.
Ónákvæmur um tíu gráður.
Þú þekkir mig.
-Ég er enn ónákvæmari.
-Já, það ertu.
Og þetta er Gloria.
Gloria, þetta er Jean.
-Sú sem ég sagði þér frá.
-Gaman að kynnast þér.
Sömuleiðis.
Veistu eitthvað
um visnandi rósakrónublöð?
Kremgrunnurinn er of mjúkur.
Þú þarft að bæta við mjölva.
Sko? Ég sagði þér að hún væri fær.
Engin furða hvað rommkökurnar
eru blautar.
Ég kann vel við þig.
Borðarðu aldrei kökurnar?
-Náðirðu í tíma?
-Já, ég er hérna.
Nemendur takið eftir.
Áheyrn fyrir hæfileikakeppnina
verður haldin
á föstudagskvöldið í hátíðarsalnum.
Sýnið okkur hvað í ykkur býr.
Þetta er sætið mitt.
Er föst sætaskipan?
-Nei, en...
-Því sestu ekki þarna?
Ég vil ekki sitja fremst.
Ekki ég heldur.
Er hann ekki stór?
-Hann er dásamlegur!
-Hann er svo þungur.
Það þarf krana
til að lyfta fingrinum.
Ef hann er einhvers nýtur þarftu
ekki að lyfta fingri aftur.
Ég er fegin að ég hlustaði á þig.
Hann var kúnni.
Dolores leiðbeindi mér
í gegnum þetta.
Hvenær ætti að gefa honum
aukakleinuhring og hvenær ekki.
-Þú sagðir mér það aldrei.
-Víst.
Jú, þú vildir bara ekki
hlusta á mig.
Ég hef verið í vondum samböndum.
Þú værir moldrík
ef gamlir kærastar væru peningar.
Þú þarft að...
Mamma, þú þarft að kvitta
á innritunareyðublaðið.
Er klukkan strax orðin fjögur?
Þetta er dóttir mín Holly.
-Ég sæki veskið mitt.
-Hæ.
Þú ert bara fullþroska!
Komin með hraðahindranirnar og allt.
Velkomin til Brooklyn, Holly.
Sjáumst á morgun.
-Ekki gera hana vandræðalega.
-Hef þekkt hana lengi.
Hvernig var?
-Ágætt.
-Segðu mér meira.
Afsakaðu. Ég var bara...
Ég var þarna.
Ég var að velta einu fyrir mér.
Var það sárt?
Var hvað sárt?
Þegar þú féllst niður af himnum.
Með svona andlit
hlýturðu að vera engill.
Hefur þessi lína
einhvern tíma hrifið?
Ég kom þér til að hlæja.
Það er fyrsta skrefið.
Ég er Lenny Horton.
Ég sé um brauðbaksturinn.
Við erum með ítölsk brauð,
franskbrauð, rúnstykki,
heilhveitihorn, pítubrauð.
-Líkar þér brauð?
-Ég er Jean.
Þetta er dóttir mín Holly.
Hvernig gengur, Holly?
Vel. Ég þarf að fara áður en þú
lærir hvað annað skrefið er.
Lenny, ekki segja mér
að þú hafir notað himnalínuna.
Fyrstu dagarnir í nýjum skólum
eru alltaf eins,
líkt og maður sé á nýrri plánetu
og andi nýju andrúmslofti.
Geturðu skannað hana inn
á makaleit.is?
Mamma, ég er upptekin.
Við hvað?
Þarftu að gera þetta strax?
Geturðu ekki beðið núna
og reynt að hitta mann
á venjulegan hátt?
Hefurðu séð þessar línur?
Ég er í kapphlaupi við tímann.
Farðu nú og skannaðu þetta.
Hver sekúnda telur.
Tikk-takk, tikk-takk.
Gemsar sem nemendur
koma með í skólann
verða gerðir upptækir.
Hvað erum við að gera hér?
Þessir kennarar verða ekki
kennararnir mínir
eftir fjóra mánuði.
Þetta er neikvæð hugsun.
...eru ekki leyfð
í skólabyggingunni.
Einungis vetrarhöfuðföt
verða leyfð frá nóvember
til febrúar og geymd í skápum ykkar.
Ég vil kynna ykkur fyrir
yfirnámsráðgjafanum,
-Dr. Charles Fitch.
-Fitchy!
Fitch!
-Dr. Fitch!
-Komið þið öll sæl.
Ég skal segja ykkur hvernig
ég stjórna námsráðgjöfinni.
Dyrnar mínar standa opnar, sem þýðir
að þið getið alltaf komið við
á skrifstofunni minni.
Hugur minn er líka opinn.
Það eru engar
heimskulegar spurningar.
Ef það hvílir eitthvað á ykkur,
drepið á dyr hjá mér.
Mamma.
Eða réttið upp hönd.
-Konan þarna baka til.
-Hæ.
Hefurðu íhugað
mánaðarlegan umræðufund í stað
árlegs þar sem nemendur og kennarar
geta skipst á hugmyndum
til að bæta samskiptin
og brúa bilið?
Þetta er góð athugasemd, frú...
Ungfrú Hamilton.
Hefur þér dottið í hug að hafa
samkomur fyrir einstæða foreldra?
Ekki það að ég vilji ekki
hitta gifta foreldra líka.
Ég vil það.
En stundum þurfum við
einstæðir foreldrar
að hugsa um aðra hluti
en þeir giftu.
Önnur forgangsmál,
ef þú skilur hvað ég á við.
Og með forgangsmálum á ég við:
Ég þarf að kynnast góðum manni.
Ef svo er, hvar skrái ég mig?
Þetta var áhugavert.
Hvert vorum við komin?
Ætlarðu ekki að tala við mig
það sem þú átt eftir ólifað?
Ekki láta svona, Holly.
Allir ógiftir foreldrar þarna
mátu tillöguna mikils.
Hvarflaði að þér
að tilgangur fundarins
væri ekki þarfir einstæðra foreldra
heldur væri fundurinn haldinn fyrir,
ég veit ekki,
-krakkana?
-Jú, auðvitað.
-Ég var bara að hugsa...
-Um þig!
Því þú ert alltaf að hugsa um þig!
Hún er byrjuð aftur
en núna get ég ekki brosað
og látið sem ekkert sé
því satt að segja er ég orðin þreytt
á kúluplasti, breyttu heimilisfangi
og því að læra á nýja bæi
og finna nýja vini.
Það er ekki lengur gaman.
Það er það ekki.
Veistu um hvað allir nemendurnir
eru að tala um í dag?
Krispy Kreme-trukkinn sem lenti
í árekstri á 8. breiðstræti.
Það eru kleinuhringir um allt.
Allir geta fengið sér.
Vegna æsingsins og sykurvímunnar
hafa allir gleymt því sem gerðist
fyrir klukkan í morgun.
-Þetta gæti hafa verið verra.
-Það verður það.
Þetta byrjar alltaf eins.
Í upphafi er hún vongóð
en þegar fullkomni maðurinn
hefur ekki birst eftir tvær vikur
verður hún örvæntingarfull
og krækir sér í aumingja.
Náunga sem er óverður þess
að skúra gólfin hennar.
Og þegar það gengur ekki,
því það gengur aldrei,
pökkum við niður og flytjum
og ég get ekkert gert við því.
Ég hleypst ekki á brott
því hún gerir það.
Var þér ekki sama þótt
þú værir alltaf að flytja?
Mér fannst það. Ég meina,
finnst það. Ég var að koma hingað.
River Bistro.
Hvað erum við að gera hér?
Ég hef ekki efni á
að pissa á svona stað,
hvað þá borða hér.
Róleg, ég sé um þetta.
Eigandinn er frændi minn.
Hann?
-Þú hlýtur að vera að spauga.
-Nei. Hann.
Nei, þú gerðir það þó ekki?
Hvað léstu hana bíða lengi?
Klukkutíma?
Auðvitað er hún reið.
Bíddu aðeins.
-Þetta er Holly.
-Sæl.
-Hæ.
-Gaman að kynnast þér.
Því ætti hún ekki að vera reið?
Það er aðeins eitt
sem þú getur gert: Blóm.
Og ekkert ódýrt heldur. Nei.
Tylft. Með löngum stilk.
Hann kann á konur.
Hann veit meira um konur en ég.
Mín skoðun er sú
að rósir hrífa alltaf.
Varla heldur hann það í alvöru?
En hvað veit ég?
Hringdu á morgun og segðu mér
hvernig gekk. Bless.
Já, ég held það. En þú?
-Að blóm hrífi alltaf?
-Já.
Ekki ef náunginn er aumingi.
Blóm breyta ekki neinu.
Blóm eru bara blóm.
Vinkona þín er svo kaldhæðin.
Hún virðist ekki vera fyrir rómantík
Veistu hvað?
-Þessi er handa þér.
-Hvers vegna?
Af því að svona blóm er fullkomið
og að gefa konu tylft af þeim
er eins og að segja
að fullkomnun sé til.
Hún er þarna úti.
Ekki gefast upp. Þú finnur hana.
Virkilega?
Segir gul rós allt þetta?
Gul rós er handa veikri ömmu.
Rauð rós er handa konu.
Vilji maður ganga í augun á henni
gefur maður henni brönugras.
Nú? Hvað segja brönugrös?
Hefurðu aldrei séð brönugras?
Hvernig það flýtur á vatninu,
viðkvæmt og fallegt?
Þegar kona fær brönugras
finnst henni
sem sem hún fljóti á skýi
ótæmandi möguleika.
Ég sver að ég borga þér aftur.
Ég skil ekki hvernig blóm
frá þér laga neitt.
Þetta er ekki blóm heldur brönugras.
Það er ekki frá mér heldur
fullkomna manninum.
Láttu hann þá borga.
Ég myndi gera það ef hann væri til.
Ég skil ekki.
Manstu hvað frændi þinn sagði?
Brönugras fær mömmu
til að finnast hún sérstök
og það gerir hana glaða
en ekki örvæntingarfulla
og þá verð ég hamingjusöm
svo allir græða.
-Holly.
-Hvað?
-Ertu viss um að þetta gangi?
-Já.
Nokkur blóm hafa aldrei skaðað neinn
Pirrandi spendýr.
Níu stafir.
-Hæ, mamma.
-Greifingi.
Krossgátur
Rosalega er ég þyrst.
Var þetta dyrasíminn?
Fimm stafir fyrir í röð
til að fá kannski.
Mamma, var þetta ekki dyrabjallan?
Þeir á The Times
álíta sig svo snjalla.
Ég verð að fara í sturtu.
Afsakið!
Halló, þetta er blómið mitt.
Nei, ég á það.
-Heitir þú Jean?
-Nei, það er kærastan mín.
Hvað stendur á kortinu?
"Til minnar ástkæru unnustu
-"á afmælisdaginn."
-Komdu með blómið mitt.
Þú ert ruglaður.
Ég var að koma með það til þín!
En fallegt!
-Handa hverjum er það?
-Mér.
Er þetta ekki skrítið?
Einhver sendi mér blóm.
-Hver? Hvað stendur á kortinu?
-Látum okkur sjá.
Hve margar konur geta litið út eins
og gyðjur í bakarísbúningi?
"Þú ert hugsýn."
Hver sendi þau?
"Leynilegur aðdáandi."
Hver gæti það verið?
Greinilega einhver sem sá þig
í búðinni.
Já, en hvernig myndi hann vita
hvað ég heiti?
Ertu ekki með nafnspjald?
-Eða hvar ég á heima?
-Google.
Eða það að ég dýrka brönugrös.
Kannski elti hann þig heim.
Þetta er mjög undarlegt.
Nei, þetta er hálfóhugnanlegt.
Mamma, þetta er það rómantískasta
sem nokkur hefur gert fyrir þig.
Hættu að efast um það
og njóttu þess.
Það er hárrétt hjá þér.
Því ertu í gallabuxum
undir sloppinum?
Viltu verða blá og marin
um allan skrokkinn?
Frændi þinn er snillingur.
-Hreif það?
-Hún söng. Gleðisöngva!
Hún syngur aldrei gleðisöngva.
Ekki ég heldur,
en ekki senda mér blóm.
Ég vil hafa þetta svona.
Pældu í þessu. Hef ég áhrif
eða hvað? Sjáðu Jean.
Örlítil athygli frá mér
og hún fettir sig eins og páfugl.
Það er karlkyns páfugl
sem fettir sig.
Þú veist hvað ég á við.
Þetta er dýrslegt.
Hún er eins og ljónynja
að láta vita að hún sé tilbúin.
Það er líka karlljónið
sem fettir sig.
Munið að lesa kafla 42 og 43.
Það verður próf á föstudag.
Peter, má ég eiga við þig orð?
Fljót!
Hvað er þetta?
-Ekkert.
-Á þetta að vera ég?
Nei, þetta er einhver önnur.
Andlitið.
Andlitið er alveg eins og mitt.
Nei.
Það er kannski einhver svipur
en konan er á hestbaki.
Þú ert ekki á hestbaki.
Þetta er allt önnur manneskja.
Þetta er ansi fínt.
Pabbi styrkti teiknimyndasögu
ráðstefnur þegar ég var lítill.
Hann tók mig með.
Maður lærir
ef maður er þar nógu lengi.
Varstu mikið með pabba þínum?
Nei. Eftir að hann og mamma skildu
var þetta það eina
sem við gerðum saman.
En ég lærði þó að teikna, ekki satt?
Skilnaður sem starfsmótun. Huggulegt
Hefur þú verið?
Fráskilin? Ekki enn.
Nei, á teiknimyndasöguráðstefnu.
Nei, ekki heldur.
Það er ein innan skamms.
Eftir sex vikur í Westside
ráðstefnumiðstöðinni.
Það hljómar hallærislega
en er samt gaman.
Ég er lítið fyrir skipulagningu.
Hefur einhver spurt um mig?
-Eins og hver?
-Ég veit ekki.
-Einhver.
-Nei.
Jean.
Þetta er eitthvað fyrir þig.
43. kökukeppni New York
Umsókn og reglur
Þú ert brjáluð.
Hún segir satt.
Þú ert alltof góð fyrir þennan stað.
Keppnin er fyrir atvinnumenn.
Ég er sölumanneskja.
Útskýrðu af hverju
þú ert blind á alla galla
í fari karlmanns
en þegar þú átt í hlut
sérðu bara galla.
Ert þetta þú?
Já, þetta er ég, ljúfan.
Hæ.
Ég dýrka brönugrös. Takk.
-Þetta er rós.
-Ég dái þær líka.
Ertu laus á laugardagskvöld?
Hvað hafðirðu í huga?
Ég ætla að hrista upp í heimi þínum.
Það gerist ekki svo glatt.
Láttu hann hafa fyrir því.
Það er af því heimur þinn hefur
aldrei verið hristur
af Lenny "heimshristi" Horton.
Gott og vel.
Segjum að ég skoði dagatalið mitt
og er laus á laugardagskvöld.
Hvert förum við?
Að heyra í bestu bandarísku
kraftballöðugrúppu allra tíma.
Tónleikar með Styx.
Ég hef aldrei gert það.
Ertu nýgræðingur í Styx?
Þetta eru eftirsóttir miðar.
Ég hlýt að vera hrifinn af þér.
-Laugardagskvöld?
-Laugardag.
Laugardag.
Hvað?
Það er óhugsandi að Lenny
sé leynilegi aðdáandinn þinn.
Ekkert er ómögulegt.
Sumir hlutir eru það.
Að maður sem sendir þér brönugras,
rómantískasta blóm sem til er,
og sendi þér svo næst gula rós?
Það er blóm
sem maður sendir veikri ömmu sinni.
Ég skal!
Mamma, ég bið þig.
Viltu hlusta á mig?
Ég las kortið.
Svona maður,
skáld, fer ekki með konu
á tónleika með Styx.
Þetta er öðruvísi.
Líka samloka með smjöri og lími.
Það þýðir ekki að maður borði hana.
Ég kann vel við hann.
Hann virðist kunna vel við mig.
Gefðu honum tækifæri.
-Zoe prinsessa?
-Já!
Það sést á fallegu hálsmenunum
mínum að ég er prinsessa.
H-Á-L-S-M-E-N.
Einmitt. Það er vit í því.
Sæll, Lenny.
Ja hérna, Jean. Frábær klæðnaður!
Hvar fékkstu þetta?
Á hver-er-skutla.com?
Ertu með allt sem þú þarft?
-Já. Ég ætla bara að fara í jakkann.
-Allt í lagi.
Holly, mamma þín sagði
að laugardagskvöld væri bíókvöld
svo hvað segirðu um
að þú farir með Zoe prinsessu
að sjá Bamba, ég býð?
Ég er ekki viss um
að Bambi sé enn í bíó,
sem er synd því mig dauðlangar
að fara með 7 ára systur mína
á bíómynd þar sem mamman
er drepin af vondum veiðimanni.
Mig langar að sjá hana!
Takk, Lenny. Fallegt af þér.
Takk, Lenny. Fallegt af þér.
Vertu þæg.
Hann er glæsilegur.
Þetta er tveggja dyra Pontiac
Trans Am, árgerð 1980 með harðtoppi
og upphaflegu lakki og pústkerfi.
Ég endurbyggði gírkassann
og bætti flæðið.
Satt að segja er ég með nýjar
farþegagólfmottur svo værirðu til í
að fara úr skónum
áður en þú sest inn?
Ég hefði átt að koma
með spítalaskóhlífar.
Bíddu. Áttu þær til?
Leyfðu mér að giska.
Rökin um veiku ömmuna dugðu ekki.
Hún tók varla eftir þeim.
Hún var of upptekin við að sjá sig
sem frú Lenny Hárband.
Það verður að koma honum af sporinu.
-Hvernig?
-Ég veit það ekki.
Ég fer með Zoe til Dolores
og hitti þig á Bistro.
Hjálpar rjómaís?
Nei, en frændi þinn gerir það.
Hann vissi um brönugrösin
og hvað skal gera næst.
Bless.
Lenny! Þetta er ekki Styx.
Nei, þetta er Kilroy.
Þetta er eftirhermuband.
Söngvarinn er ekki eins góður
og sá upphaflegi
en ef þú lokar augunum
heyrirðu engan mun.
Jú, hann heyrist.
Við erum með spurningu.
Mel, settu þessi tvö borð saman.
Getur það ekki beðið?
Ég er upptekinn.
-Nei, þetta er áríðandi.
-Það er fyrir skólaverkefni
sem á að skila á morgun.
Hvernig fylgir fullkomni maðurinn
brönugrasinu eftir?
Getum við ekki rætt þetta á morgun?
Hvað er mikilvægara
en hinn fullkomni maður?
Fullkomnir skór.
Lance, ekki þetta.
Ekkert svona.
Taktu þér pásu
og hjálpaðu stelpunum.
Smakkaðu nýja Shiraz-vínið,
sestu við borðið þitt
og láttu Lance gamla sjá um salinn.
Þá það. Fimm mínútur.
Ekki fitla í hárinu á þér
við barinn, Lance.
Jæja, ertu að skrifa skólaritgerð
um stefnumót, eða hvað?
Já.
-Í hvaða bekk væri það?
-Ensku.
Ég er að leita að rómantískum hetjum
í bókmenntum.
-Þú veist...
-Rómeó.
Einmitt! Eða Heathcliff.
Við berum þannig náunga
saman við nútímaútgáfur af þeim.
En þú trúir ekki á rómantík.
Ég er víðsýnni.
Ég er enginn sérfræðingur
í þessum málum.
Flottur.
Hvað gerir hinn fullkomna
nútímamann fullkominn?
Hvað segir hann eða gerir sem gerir
hann að fullkomnum manni?
Það veltur á ýmsu.
Hver kona er frábrugðin.
En hrífa samt brönugrös þær allar?
Á táknrænan hátt en það er bara...
Það er byrjun.
Hann verður að hafa
dýpri tengsl en það.
Hann verður að gjörþekkja hana.
Ef maður veit ekki hver konan er
eru þetta bara getgátur.
Hún hlustar á Patsy Cline
þegar hún er döpur.
Hugsanlega.
Segjum að hún geri það.
Hvað svo?
Er Patsy Cline
sorgartónlistin hennar?
Bíðið aðeins.
Jæja.
Þetta er gleðitónlist.
Eigðu hann. En veistu hvað?
Þótt hann kæti hana
má náunginn ekki óttast tár.
Dúlla, ég elska þig
Það er sem hann hafi
samið lagið um okkur.
Hvað ef hún er fyrir orðaleiki?
Scrabble og slíkt.
Ó, já. Stórfínt.
Dálítið andríki og orðaleikir.
Það líst mér á.
Hvað ef henni hefur oft
verið sagt upp? Hvað þá?
Oft?
Erfið spurning.
Líklega myndi
fullkomni maðurinn vera...
Hann væri einhver sem gæti...
Gæti verið hvar sem er í heiminum
en hann kýs að vera hjá henni
af því að
lífið er betra
með hana sér við hlið.
Hvað haldið þið? Stóðst ég prófið?
Gaman að kynnast þér.
Hættu!
Stórt vandamál.
-Sæl, sæta.
-Hæ, Amber.
Sérsaumaður kjóll. Skrautlegur
og nýmóðins giftingarkjóll.
Hvað er vandamálið?
Hann er dýr.
Nei, hann er rándýr.
Þetta er dagurinn þinn.
Láttu það eftir þér.
-Í alvöru?
-Já.
Ég dái þig.
Hvað um kökuna?
Vitið þið hvað?
Ég þarf að fara að vinna.
Mér datt í hug lagskipting.
Súkkulaði og jarðarber.
Amber, tölum um það á morgun.
Lance, farðu frá veskinu.
-Hún er gullfalleg.
-Já.
Saman eru þau eins og sigurvegarar
í erfðalottói. Komdu.
Ég skal opna fyrir þér.
Gerir þú það?
-Lenny, ég er...
-Það er bleyta. Passaðu þig.
Ég er orðlaus. Þetta...
Ég skemmti mér stórkostlega.
Ég verð að segja það.
Ég gæti alveg vanist þessu.
Þú kyssir vel.
Ég skemmti mér vel.
Ég sé þig í vinnunni.
-Skórnir mínir.
-Fyrirgefðu.
Hvernig var afturhvarfið
til fortíðar?
Þú gerðir mig hrædda.
Það er meiri hávaði í bílnum hans
en risaþotu.
Hann vakti líklega allt hverfið.
Viltu gera það fyrir mig
að gefa Lenny tækifæri?
Viltu gera það fyrir mig
að fara þér hægt í þetta sinn?
Þú veist ekki hvað er í boði.
Nei, en eitt veit.
Ég skemmti mér vel í kvöld.
"Ó, hvílíkan flækjuvef við spinnum
"Er við fyrst að blekkingum vinnum!"
Hver vill tala um það
hvað þetta þýðir?
-Hann þarf að skrifa henni bréf.
-Hver?
Fullkomni maðurinn.
Adam? Viltu útskýra þetta?
Já, þú.
Hvað telur þú
að Sir Walter Scott hafi átt við?
-Ætlarðu að falsa bréf?
-Ég verð.
Annars gengur mamma inn að altarinu
við tóna lagsins Mr. Roboto.
Ég held að það sé
að lygar verði flóknar.
Vegna?
Yfirleitt ef maður lýgur
þarf maður að ljúga aftur.
Nema hvað hún þekkir skriftina mína.
-Hún þekkir ekki mína.
-Það er satt.
Sérhver lygi getur af sér aðra lygi
og aðra lygi og flækir hlutina
þar til maður er fastur í lygavef
sem maður losnar ekki úr.
-Við gerum það strax eftir skólann.
-Flott.
-Flott.
-Jæja, ég samþykki þetta.
Alana, hvað táknar flækjuvefur?
Hvað ef hún er fyrir orðaleiki?
Scrabble og slíkt.
Ó, já. Stórfínt.
Dálítið andríki og orðaleikir.
Það líst mér á.
Ég veit að ég er
að fara langt yfir strikið
en hvað get ég sagt?
Örþrifatímar kalla á örþrifaráð.
Ef þið hittið Lenny
sleikið þið umslagið
og lánið mér frímerki.
Hæ.
Hvert fór herinn?
Hún þurfti ró og næði
til að hugsa málin.
Hvaða mál?
Þú veist, hvað næsta skref hennar
ætti að vera.
Hvort hún ætti að mynda
voldugt bandalag við prins
eða gera þetta ein.
Og hvort ætlar hún að gera?
Ég held hún ætli að vera
með prinsinum.
-Í alvöru?
-Já.
Hann er stórfínn náungi.
Hann er myndarlegur
og mjög geðþekkur
og málið með...
-Burtreiðarnar.
-Já,
þú ættir að sjá hann í burtreiðum.
Algjör kappi.
Ef einhver vill slæpast með honum
segir hann: "Ég get það ekki.
Ég þarf að æfa mig í burtreiðum."
Viltu setjast?
Nei.
Ég var búin að skipuleggja dálítið.
Ég hélt þú værir lítið fyrir
skipulagningu.
Einmitt.
Holly?
Heldurðu að við verðum áfram hér?
Ég veit það ekki. Því spyrðu?
Það verður stafsetningarkeppni
við alla hina skólana.
Kennarinn minn skráði mig.
Ég er viss um að þú vinnur.
Þú ert frábær í stafsetningu.
En hún verður ekki fyrr
en eftir tvo mánuði.
Það er aldrei að vita.
Kannski verðum við enn hér.
Ég vona það.
Ég hef aldrei verið skráð í neitt.
Sælar, stúlkur.
Mamma? Ertu veik?
Ha?
Þú lítur ekki eðlilega út.
Ég fékk bréf.
Hvernig bréf?
Ástarbréf.
Hvað stendur í því?
Andartak.
Komdu með þetta!
"Kæra Jean.
"Stafirnir J-E-A-N mynda
annað orð yfir dením."
Frábær náungi.
"En síðan ég fann þig
heyri ég þessi orð
"og þau minna mig á annað orð.
"Ást. Á-S-T."
-Ást?
-Já.
-Elskar hann þig?
-Svo segir hann.
Zoe, hann er að reyna
að vera rómantískur.
"Að vera nálægt þér er eins og
að vera á reit með þrefalt gildi."
Hann spilar Scrabble.
"Allt skiptir þrefalt meira máli.
"Sólin skín þrefalt skærar
"og ég er þrefalt hamingjusamari."
Hvað er þetta?
Sendi hann þér gjöf?
Núna kann ég vel við hann.
Gáfaður, hnyttinn, rómantískur.
Þið haldið þó ekki enn
að þetta sé Lenny?
Það er erfitt að sjá Lenny fyrir sér
í Scrabble.
Komdu, mamma! Dönsum!
Farðu, mamma!
Mamma.
-Nei.
-Komdu.
Ég trúi þessu ekki!
Og sendi hann þér líka gjöf?
Geisladisk með bandi sem ég
þekki ekki en varð hrifin af.
Það er eins og hann þekki mig betur
en ég geri sjálf.
Því felur hann sig þá?
-Hann er ekki að fela sig, hann...
-Hvað?
Afsakið, geturðu hjálpað mér?
Maturinn er tilbúinn!
Það hlýtur að vera eitthvað
að honum.
-Hverjum?
-Herra Dásamlegum.
Nei, það er ekkert að honum.
Hann er fullkominn.
Af hverju þá allt laumuspilið?
Því kemur hann ekki hingað,
sýnir sig og segir halló
eins og venjuleg manneskja.
Að heyra í þér.
Maðurinn vill vera
örlítið rómantískur
og þá finnst þér hann ekki
vera eðlilegur.
Hvernig veit ég hvort hann er það
eða hvernig hann lítur út?
Er hann hávaxinn? Lágvaxinn?
Er hann með ljóst, hrokkið hár?
Slétt, svart hár? Hvað?
Hann er örugglega með vörtu
á nefinu.
Hann er örugglega myndarlegur.
Hvað veist þú um það?
Hann hljómar eins og hann sé sætur.
Hefurðu séð myndir af Shakespeare?
Sköllóttur og horaður.
Skiptir það máli?
Já, maður getur ekki átt í sambandi
við mann sem maður hefur ekki séð.
Vina, það koma 50 manns
eftir hálftíma.
Þetta tekur bara andartak.
Þú mátt taka mynd af mér.
Hafðu hana af betri hliðinni.
Hérna, Brad Pitt. Hérna, David Spade
Ekki svo sætur.
Nei, ég á annríkt. Því miður.
Ben frændi,
hvað er ofan á salatinu þínu?
-Parmesan hvað?
-Ostur.
Ben. Það er gott nafn.
Einfalt. Áreiðanlegt. Ben.
Það er mun betra en Lenny.
Og hann er mun sætari.
Ekki tala illa um Lenny.
Hann er ágætur
en ekki sá rétti fyrir mig.
Ég kann vel við hann og vil
að hann verði kærastinn minn.
-Hvenær kemur hann?
-Þegar hann kemur til baka.
Hvert fór hann?
Hann er að opna nýjan veitingastað
í Kína.
Símasambandið þar
er víst skelfilegt.
Hann ætlar að hringja um leið
og hann kemur til baka.
Æði. Hvað annað stendur í bréfinu?
Það er einkamál. Hafið mig afsakaða.
Kína.
Hvernig fáum við frímerki frá Kína?
Við gerum það ekki.
Hann bað hana að senda sér
tölvupóst á netfangið sitt.
Er hann með netfang?
Brooklyn-drengur.
Nýtt netfang sem ég er að stofna.
Það samræmist því að allir ljúga
í netheimunum.
En við getum ekki notað tölvuna
heima ef mamma finnur þetta.
Ég byði okkar
en bróðir minn er alltaf
að kaupa Yu-Gi-Oh-kort.
Hver annar?
Það er dálítið drasl.
Það er dálítið dimmt.
Æ, já.
Það ætti að vera kveikt á henni.
Þakka þér fyrir að leyfa mér þetta.
Þú hlýtur að álíta mig geggjaða
en mamma er þó alsæl.
Það er breyting.
Hún er yfirleitt þunglynd
eða með aulum.
Kannski ég ætti að prófa þetta.
Mamma brosir einu sinni í mánuði,
þegar skilnaðargreiðslan kemur.
Hvað ef henni hefur oft
verið sagt upp? Hvað þá?
Oft?
Erfið spurning.
Líklega myndi fullkomni
maðurinn vera...
Hann gæti verið hvar sem er
í heiminum
en hann kýs að vera
hjá henni af því að
lífið er betra
með hana sér við hlið.
Kæri ástríðufulli bakari.:
Ég ver dögunum
með mjög alvörugefnu kaupsýslufólki
og ég veit ég ætti að hlusta
á allt sem það segir
en hugsa sífellt.:
Hvað er ég að gera hér í Kína?
-Ótrúlegt! Hlustið á þetta.
-Komdu, förum.
Það er frá Ben.
"Ég skipulagði þennan veitingastað
áður en ég leit þig augum.
"Ef ég þyrfti að gera þetta aftur
"keypti ég húsið við hliðina á þínu
og opnaði hann þar."
Hann vill frekar vera með mér.
Því skrifarðu honum ekki til baka?
Ágætt.
Afsakið.
Kæri Brooklyn-drengur.:
Ef maturinn þinn er líkur bréfunum
gleddi ekkert meira en að hafa
veitingastaðinn þinn hér í götunni.
En kínverska þjóðin
getur ekki verið án
þess unaðar svo opnaðu
veitingastaðinn þinn þar fyrst.
Kæri ástríðufulli bakari.:
Svo lengi sem ég er
að malla í eldhúsi
skiptir ekki máli hvar ég er.
Það er mjög sérstök nautn,
finnst þér ekki?
Að matreiða fyrir fólk.
Ég er bara bakari en ég set sömu
sköpunargleði og ástríðu
í kökurnar mínar
og málari setur á strigann sinn.
Þegar upp er staðið
hef ég bara búið til köku
en á hinn bóginn
er ekki hægt að borða Mónu Lísu.
Ég bíð, ástríðufulli bakarinn.
Kæri ástríðufulli bakari.:
Sköpunargleði og ástríða?
Ég er að byrja að átta mig á þér.
Og hvað Mónu Lísu varðar,
eftir nokkur þúsund ár
þreytist fólk á brosinu hennar
en góð skúffukaka er eilíf.
Kæri Brooklyn-drengur.:
Ég er hógvær varðandi sumt
en ekki þetta.
Ég baka bestu skúffukökurnar
á hnettinum.
Það vill svo til að ég geri besta
heimagerða ísinn.
Ís og skúffukaka.
Það er góð blanda.
Ég er bara að leita að því.
Minni eigin góðu blöndu.
Einhverjum sem ég
dreg fram það besta í
og sem dregur fram það besta í mér.
Hvernig hefurðu það?
Óvænt.
Ég þarf að segja þér dálítið.
Við þurfum engin orð.
Ég veit hvað þú ætlar að segja
og mér er eins innanbrjósts.
Nei, það er mikilvægt
að ég segi þetta.
-Ég kynntist manni...
-"Og hann heitir Lenny
"og hann er að hrista upp
í veröld minni." Ég veit.
Og ég veit að þú ert hrædd.
Ég er líka hræddur.
En ég veit líka
að ef heimurinn færi á hvolf
þá værirðu alltaf efst í huga mér.
Bestu stundirnar.
Þetta eru bestu stundirnar.
Ég hitti annan.
Ha?
Ég meina, ég hitti hann ekki
en geri það kannski.
En fullkomni maðurinn stendur hér
við hliðina á krúttinu mínu.
Lenny, mér þykir þetta leitt.
Í alvöru.
Þú ert frábær náungi.
Mér þykir leitt að þetta voru ekki
"bestu stundirnar".
Þetta eru verstu stundirnar
Ástríðufulli bakari, Kína er frábær,
en hversu margar eggjarúllur
þolir maður?
Ég er að skrifa mömmu tölvupóst
og hún var að skrá sig inn.
-Sendu henni skilaboð.
-Ætti ég?
Þá virðist Ben vera raunverulegri.
Allt í lagi.
Að hugsa sér að rekast á þig hér.
Hvað er klukkan hjá þér?
Margt.
Ég hélt það væri morgun.
Já, síðla morguns.
Hvað ertu að gera?
Bara hugsa.
Um hvað?
Þér myndi leiðast.
Láttu reyna á það.
Ef ég hætti að svara veistu
að ég hef sofnað.
Ég á börn. Hef ég nefnt það?
Nei. Það er frábært.
Tvær dætur, 7 og 16 ára.
Þær eru heppnar
að eiga þig fyrir mömmu.
Þú ert eina manneskjan í heiminum
sem myndi segja það
og það er bara af því
að þú hefur ekki hitt mig.
Ég hef gert svo mörg mistök.
Allir gera mistök.
Ég geri þau risastór. Aftur og aftur
og það bitnar á dætrum mínum.
Það er ekki sanngjarnt.
Þetta var ekki ætlunin.
Ég hafði stór framtíðaráform
þegar ég var yngri.
Ég ætlaði að verða frægur bakari.
Julia Childs með eftirrétti.
Ég ætlaði að fara í fínan kokkaskóla
skrifa matreiðslubækur
og láta fólk aftur verða hrifið
af bakstri.
Ég var komin með öll
umsóknareyðublöðin.
Ég var að fylla þær út þegar ég
komst að því að ég var ólétt.
Ég hélt það væru góðar fréttir.
Barn passaði alveg inn
í framtíðarsýn mína.
En það gerði það ekki hjá náunganum.
Eða kannski var það ég
sem passaði ekki inn í hana.
Gildir einu. Ég stóð ein.
Svo þú eignaðist barnið í stað þess
að láta drauminn rætast?
Ég býst við því.
Ef þú gætir gert þetta aftur
færirðu þá frekar í skóla?
Lífið hefði verið auðveldara
ef ég hefði gert það.
Ég hefði náð mér fyrst á strik.
Eignast börn síðar.
En þau börn væru ekki Holly og Zoe.
Og ég get ekki ímyndað mér lífið án
Holly og Zoe.
Það er hreint ekkert líf.
Sérstök skilaboð
til bloggara sem eru aldir upp
af einstæðum mæðrum.
Gefið þeirri gömlu séns.
Hún gerir sitt besta.
-Allt í lagi.
-Ein kirsuberjakaka.
Já, það væri frábært.
12,99 dalir. Takk.
Takk fyrir. Bless.
Get ég aðstoðað?
Viðskiptavinir takið eftir.
Þurfið þið hressingu?
Farið í kaffihornið okkar
og ykkur karamelluhálfkaffi.
En munið að kaffi getur verið heitt.
Það getur verið skeinuhættara
en nokkuð sem þið hafið kynnst
og brennt ykkur djúpt í holdið.
Er hann að spauga?
Í meyrt, viðkvæmt,
auðsæranlegt holdið.
Biðjið um hlíf
þegar þið sækið kaffið
og biðjið kannski um aðra
til að setja yfir hjartað.
Takk fyrir.
Ég keypti fiðrildaspennur
til að festa flétturnar með.
En ekki toga.
-Allt í lagi.
-Það er sárt.
Ég fer með Zoe til leikfélagans
og svo í upphitunarveislu Gloriu.
Ekki kveikja í kofanum.
Að sjá þig!
Verður þetta á Ritz?
Nokkuð nálægt.
Einhver svaka fínn staður
sem heitir River Bistro.
Nei!
Er það ekki of dýrt fyrir alla?
Jú, en eiginkona frænda Gloriu
vinnur með mjólkurnáunganum
og hann reddaði veislusalnum ódýrt.
Maturinn þar er víst slæmur.
Allir gestirnir fá í magann.
Æla dögum saman.
Ég tek áhættuna. Komdu, vina.
-Hvar er hann?
-Ég veit það ekki.
Kannski á veitingastaðnum,
kannski heima.
Farðu á veitingastaðinn,
ég fer heim til hans.
Ég tef hann ef ég sé hann.
Hvar á hann heima?
"Að byrja aftur í Egyptalandi."
Sjö stafir.
Þeir á The Times
álíta sig svo snjalla.
-Halló.
-Guði sé lof að þú ert hér!
-Hver er þetta?
-Þetta er Holly.
-Hver?
-Holly, vinkona Amy.
Holly! Einmitt. Amy er ekki hér.
Ég veit. Ég kom til að hitta þig.
Það er mjög áríðandi.
Ég hleypi þér inn.
Dyrnar uppi eru opnar.
-Hæ.
-Beint af augum.
-Hæ.
-Hæ.
Vá!
Þetta er stórkostlegasta eldhús
sem ég hef séð á ævinni.
-Í alvöru?
-Já.
Takk.
Ég veit um manneskju
sem myndi drepa fyrir svona eldhús.
-Er Amber ekki hrifin af því?
-Amber?
Hún er með puttana
í öllu sem ég geri
en ekki þessu eldhúsi.
Fáðu þér sæti og ég sæki gosdrykk.
-Er það í lagi?
-Fínt.
Gerirðu krossgátuna
í The Times með penna?
Já. Er það slæmt?
Hvað finnst þér um tunglið?
Hvað þá?
Finnst þér það slegið töfraljóma
þegar það birtist á kvöldin,
líka þegar illa árar,
og minna þig á
að hver dagur getur verið fagur?
-Hvað hefur Amy sagt þér um mig?
-Ekkert.
Hún sagði bara
að þú værir mjög snjall.
Og ég er ný í bænum,
þetta er nýr skóli.
Ég á engan pabba
til að leita ráða hjá
svo ég ákvað að spyrja þig.
Jæja. Þá það,
ég get reynt að hjálpa.
Ég er ekki í raun...
Hvað viltu vita?
Það er ekkert.
Málið er bara
að ég er á táningsárunum
og það er ruglingslegt.
Ég veit ekki hver ég er
eða hver tilgangur minn í lífinu er,
í hvaða háskóla ég eigi að fara
eða hvort ég eigi að fara í skóla.
Ég forðast þrýsting jafnaldra
um að gera ýmislegt
en langar að gera sumt af því,
þú skilur.
Ég er að íhuga
að láta gata á mér nefið, naflann
og níu aðra líkamshluta
en mamma segist drepa mig
ef ég geri það
svo núna er ég að hugsa um
að fá tattú á bakið
en það telst tæpast til baksins
því það yrði svo neðarlega
að það sæist ekki
nema ég hefði buxurnar lafandi
á mjöðmunum. Ég er mjög ringluð.
Hvar?
-Já?
-Ben.
-Já?
-Við erum í miklum vanda hér.
-Alveg gífurlegum.
-Hvað?
Kveikiloginn á apparatinu sem eldar
matinn er slokknaður aftur.
Nei, hún getur ekki verið biluð.
Ég keypti hana fyrir tveim mánuðum.
Eina gaslyktin sem ég finn
kemur frá Pablo.
Allt í lagi.
Vertu rólegur. Ég kem strax. Bless.
Það er vandamál á veitingahúsinu.
Ég verð að fara.
-Þú mátt það ekki.
-Því ekki?
-Ég meina, má ég koma með?
-Því ekki? Komdu.
Ég verð að fara á salernið.
Farðu þá.
Salernið er þarna. Flýttu þér.
lnn um dyrnar þarna.
Þetta er æðislegt.
Þið eruð að grínast.
-Þetta hylur ekki neitt!
-Það er ætlunin.
Houston, við erum í klandri.
-Hvernig?
-Mjög slæmu.
Hann er á leiðinni á veitingahúsið.
Almáttugur. Hvað gerum við?
Völdum truflun. Einhverri rosalegri.
Ég hitti þig þar. Bless.
...í þessa átt
og síðan sökkvum við í jörðina.
Þurfum við að taka leigubíl?
Ég hata þá.
-Göngum frekar.
-Ertu brjáluð?
-River Bistro.
-Ég verð bílveik.
FRÍR BJÓR og SNAKK
FYRIR JETZ-AÐDÁENDUR!
Strákar!
Komið og fáið ykkur ókeypis bjór!
Ókeypis bjór!
Komið með bjórinn!
Farðu í pásu. Bless!
-Hvernig hafið þið það?
-Gott.
Er Village People-ráðstefna í bænum?
Við sáum skiltið.
Við viljum ókeypis bjórinn.
Ókeypis bjór? Af hverju...
Ég skal gefa þér bjór.
Þú virðist vera að skrælna.
Ég þarf annan kokteil til að geta
-opnað hinar gjafirnar.
-Ég sæki þjóninn.
Lance!
-Mamma.
-Hvað ert þú að gera hér?
Ég sakna þín.
-Ókeypis...
-Lance!
-Hvað er þetta?
-Ekkert.
-Er þetta þín hugmynd?
-Nei!
Ég myndi aldrei...
Reyndar myndi ég gera
það en ég gerði það ekki.
-Af hverju?
-Bjórinn er ókeypis.
Við viljum ókeypis bjór.
J-E-T-S! Jets!
Hvað er þetta?
Sjáið! Frábært! Gjafir!
Mér líður eins og drottningu.
Þetta er ekki íþróttabar.
Einn bjór í boði hússins
-og svo ekki meir.
-Ókeypis bjór!
Ertu stuðningsmaður Jets?
Hamingjan góða, halló!
Ég dýrka West Side Story.
-Pablo. Hvað gerðist?
-Ég veit það ekki.
Þetta eru glænýjar eldavélar.
-Hvað um pítsuofninn?
-Prófaðu hann.
Ég sæki þjóninn.
Vill einhver eitthvað?
Þessi virkar.
Það hlýtur þá að vera gasleiðslan.
-Kampavín.
-Hvítvín.
Hvað gerðist? Kveikir hann ekki?
-Hvað ertu að gera?
-Fyrirgefðu.
Mamma, ég sæki þjóninn.
Sittu bara hér og njóttu matarins.
Reyndu áfram. Ég þarf að hringja.
Þjónn! Afsakið.
Ég er að hringja frá River Bistro.
Við erum í vandræðum.
Sendu einhvern.
-Þetta virkar ekki.
-Ég veit, hvað gerum við?
Hugsaðu.
Tefðu.
Setjum þetta hér.
Það er miklu skemmtilegra
að nota fylgihluti.
Fyrirgefðu mér.
Ég veit það ekki.
Ég verð að tryggja að...
Aðaldyrnar.
Gólfið er blautt. Gætið ykkar.
Ekki hlaupa.
Ekki örvænta. Aðaldyrnar.
Allir út um aðaldyrnar.
Hvar er Holly?
Við erum kannski í rosalegu klandri
en þetta var æðislegt.
CIA ætti að ráða okkur.
Enginn sá neitt.
Við erum frábærar.
Frændi þinn ræður krossgátur
með penna.
Hvað þá?
Og eldhúsið hans er fullkomið.
Hvað með það?
Ég veit að hann álítur tunglið ekki
bara vera grjóthnullung.
Um hvað ertu að tala?
Fullkomni maðurinn er til
og ég veit upp á hár
hver það er fyrir mömmu.
-Hver?
-Ben frændi þinn.
Hvað þá?
Og út af ráðabrugginu mínu
mega þau aldrei hittast.
Ég botna ekki neitt í neinu.
Þú sagðir satt.
Ég hefði aldrei átt
að kaupa brönugrasið.
Það voru hrikaleg mistök.
Ég þarf að biðja þig
um stóran greiða.
Sæl, sjálf.
Þú þarft að segja mömmu upp.
Hvenær byrjaði ég með henni?
Ekki sem þú.
Sem fullkomni maðurinn Ben.
Glætan.
Gerðu það.
Hringdu í hana klukkan sjö og segðu
að þetta sé búið.
Hvaða ástæðu gef ég?
Menn gefa aldrei ástæðu.
Þeir fara bara.
Því geturðu ekki sagt henni upp
í tölvupósti?
Það er of kuldalegt.
Ég vil líka að hún heyri rödd hans.
En það væri ekki röddin hans,
enda er hann ekki til.
Þú veist hvað ég meina.
Gerðu það, Adam.
Ef ég segi henni að þetta var plat
fyrirgefur hún mér aldrei
en ef hann segir henni upp...
Hún er vön því.
Halló?
-Ég geri þetta ekki.
-Hver ert þú?
-Getum við rætt þetta?
-Auðvitað.
-Mamma, þetta er til þín.
-Þetta er ekki sniðugt.
-Halló.
-Hæ!
Sæl. Þetta er Ben.
Ben? Hinn eini sanni Ben?
Ég veit það ekki.
-Hve marga Ben þekkirðu?
-Engan.
Jú, einn. Ég þekki þig.
Vá.
Hvernig er í Kína?
Kína?
Það er mjög kínverskt.
Mikið af Kínverjum.
Og Kínamat.
Þú ert sniðugur.
Og þú hringir í mig
þvert yfir hálfan hnöttinn.
Já, því það er dálítið
sem ég vildi segja þér.
Það er gott að heyra loksins
röddina þína.
Bíddu. Ertu að gráta?
Nei.
Almáttugur, jú.
Já, ég er að því vegna þess
hvað ég er hamingjusöm.
Þú gerir mig hamingjusama.
Veistu hvað ég á við?
Líklega.
Það geri ég.
Alla mína ævi...
Allt hefur allt verið
svo mikið klúður
og svo kynntist ég þér og...
Ég veit ekki. Ég bara...
Mér fannst bara allt...
-Skýrara.
-Já!
-Þú veist hvað ég á við.
-Já.
Það er eins og allt það slæma
sem þú upplifðir,
sem þú hataðir,
fólkið sem olli þér vonbrigðum,
hlutirnir sem fóru ekki
eins og þú vildir.
Allt í einu ertu þakklát fyrir þá.
Því það eru hlutirnir
sem komu þér hingað.
Einmitt.
Það er líklega þannig
þegar maður er...
Nei.
Hvað?
Virkilega hrifinn af einhverjum.
Ertu þá hrifinn af mér?
Já.
Það er ég. Ég gæti jafnvel...
Gætirðu jafnvel hvað?
-Áfram með þig, hestur!
-Nei! Ekki núna.
Ég gæti jafnvel
elskað þig.
Halló?
Hvað varstu að pæla?
Þetta var ekkert líkt því
sem ég bað þig að gera.
Ég varð utan við mig.
Út af hverju? Heilaskurðaðgerð?
Því nema þú segir mér að einhver
hafi tekið úr þér heilann,
ég á ekki orð yfir...
Af þér.
Ég var utan við mig út af þér.
-Mamma.
-Já?
Manstu þegar við komum hingað fyrst
og þér leið svo illa?
Hvað með það?
Málið er
að mér fannst hræðilegt
að sjá þig þannig.
Ég brosi þegar þú ert hjá mér
Gefur mér ást þína
Hendur þínar bjarga mér
þegar ég sekk
Snertu mig og vandamál mín hverfa
-Þegiðu!
-Ekki séns.
Frá því er ég sá þig fyrst
Fyrirgefðu.
Stóð aleinn
Rokkaðu, félagi!
Gafstu mér þá ást sem ég þurfti
Feimin, eins og uppvaxið barn
Þú ert daman mín
Morgungyðjan
Ástin skín úr...
Geislar og sindrar
Þú ert
Hvað ertu að...
Daman mín
Aftur! Æðislegt!
Afar gott.
Rólegur.
Gifstu mér?
Gifstu honum!
Ekki segja að þú hafir sagt já.
-Segðu að þú hafir sagt nei.
-Ég sagðist hugsa málið.
Hvað þarftu að hugsa um?
Er eitthvað í þessu?
Lenny er ekki sálufélaginn þinn.
Ben er það.
Ben er í Kína. Kannski.
Hver veit það í raun?
Það eina sem ég veit um Ben
er að hann er falleg hugmynd
en maður eldist ekki með hugmynd.
Því ertu svona örvingluð?
Það er auðvelt fyrir þig að dæma.
Þú hefur ekki farið hjálparlaust
í gegnum lífið alein með börn.
Ég kvarta ekki
en ég hef barist í þessu ein
í fjári langan tíma.
Þið tvær eruð það besta
sem hefur hent mig.
Á augabragði verðið þið fullvaxta
og farnar.
Og Lenny er indæll náungi. Kannski
verður hann frábrugðinn hinum.
Ég vil ekki enda ein.
Ekki taka úr lás fyrr
en ég kem til baka.
Halló?
Sæl. Ég er að reyna
að ná í ungfrú Jean Hamilton.
Þetta er Jean.
Þetta er ritari Bens.
Ben kemur aftur til New York
og langar að hitta þig.
-Virkilega?
-Hvernig hentar síðdegis á morgun
undir Brooklyn-brúnni?
Ljómandi.
Hann hittir þig klukkan fjögur.
Brooklyn-strákur
Holly, hvar ertu?
Hef reynt að ná í þig.
Ég er að tilkynna mannshvarf!
Hvar er Ben? Ég þarf að tala
við hann. Þetta er neyðartilfelli.
Of seint, væna mín. Hann er farinn.
-Hvert?
-Í brúðkaupið ógurlega.
Hvaða brúðkaup?
-Ja, Amber og...
-Amber?
Ég veit. Hann langaði ekki
en það er erfitt
að neita henni.
Hvar er það?
-Á Liberty Grand-hótelinu.
-Takk.
Ekkert fjör án mín.
Gildir einu.
Fyrirgefðu.
Við erum hér saman komin
frammi fyrir augliti Guðs
og frammi fyrir þessum söfnuði
til að gefa saman
þennan mann og þessa konu...
Ef einhver viðstaddur telur
að þau tvö ættu ekki
að kvænast að lögum
þá mæli hann nú
ellegar þegi um aldur og ævi.
Hann má ekki giftast henni!
Þú getur ekki komið hingað inn.
Hann verður að giftast mömmu minni.
Þú veist það kannski þegar
þú hefur lesið þessi bréf.
Margar blaðsíður sem sanna
að þið eruð sálufélagar
og núna bíður hún eftir þér
undir Brooklyn-brúnni.
Þá veistu að þið eruð sköpuð
fyrir hvort annað.
Þið leysið bæði krossgátur með penna
og vitið hvernig eldhús á að vera
og hvað tunglið er í raun
og án þess að hafa hitt hana
valdirðu eftirlætislagið hennar.
Það gerði hana glaðari en hún
hefur nokkurn tíma verið og...
David, er allt í lagi?
Vitið þið hvað?
Ég er að leita að
Silverman-brúðkaupinu.
Afsakið. Haldið áfram. Mín mistök.
-David, fyrirgefðu.
-Er allt í lagi?
Holly!
Mér þykir þetta leitt.
Ég gerði mistök.
Það er vægt til orða tekið.
Hvað ertu að hugsa?
Ég hélt þú værir að giftast Amber.
-Ég?
-Lance sagði...
Amber er kær vinur minn.
Ég sé um veitingarnar í brúðkaupinu.
Eða því sem eftir er af því.
-Hvað ertu að gera?
-Lestu þessi.
-Það er ekkert svar.
-Jú,
þú sérð það ef þú lest tölvupóstana.
Það er manneskja
sem þú þarft að hitta.
-Hæ, mamma.
-Hvað ert þú að gera hér?
Ég vildi ekki að þú héldir
að þú hefðir verið svikin.
Hann kemur ekki
Hvernig vissirðu að ég var hér?
Ég veit það af því...
Af því?
Af því ég skáldaði hann upp.
Hvað þá?
Blómin, bréfin,
tölvupóstana og allt.
-Símtalið?
-Það var vinur minn.
En það var ekki allt skáldað.
Það var maður. Og er.
Flest sem ég skrifaði kom frá honum.
Svo það er líka maður
að hlæja að mér?
Nei, hann veit þetta ekki.
Hvernig gastu verið svona grimm?
Ég var ekki að reyna að vera grimm.
Ég var að reyna að gleðja þig.
Þú átt margt ólært um hamingju.
Þú hefur ekki beinlínis
kennt mér það.
Svo sökin er mín. Kallaði ég þessa
niðurlægingu yfir mig?
Af því við fluttum stöku sinnum?
-Stöku sinnum?
-Þá það. Oft.
Þér virtist vera sama.
Nei. Þú heyrðir aldrei neitt af því
ef það snerist ekki um þig.
Það er ekki satt.
Ég heyri allt sem þú segir við mig.
Þú heyrir en þú hlustar ekki.
Þú hlustar aldrei á það sem ég vil.
Gott og vel. Hvað vilt þú?
Ég vil mömmu sem sér sig
eins og við Zoe sjáum hana.
Hæfileikarík, falleg, skemmtileg,
góður kokkur og dansari
og þarf ekki mann
til að gera þessa hluti.
Kannski var fullkomni maðurinn
ekki til
en hin fullkomna þú ert það.
Þ-Ö-G-N.
Hæ.
Hæ.
Fyrirgefðu að ég hringdi ekki.
-Ég hef átt annríkt.
-Ég teiknaði dálítið fyrir þig.
"Holly prinsessa."
Eina hlið á henni.
Hún þarf ekki her til að vernda sig.
Þú hleypir engum nógu nálægt
til að særa þig.
Bíddu.
-Ég vil flytja.
-Ha?
Ég hata þennan stað
og vil flytja strax.
Við höfum flutt óteljandi sinnum
þín vegna
og í þetta eina sinn vil ég
flytja mín vegna.
-Hæ.
-Ég er Adam, vinur Holly.
Er hún heima?
Nei, hún er að sækja tóma kassa.
Hvers vegna?
Við erum að flytja til Red Rocks
í Arizona.
Viltu að hún hringi?
Nei.
Nei, takk.
Geturðu látið hana fá þetta?
Sjálfsagt.
Segðu henni að hún hafi bara
séð aðra hlið teikningarinnar.
HOLLLY PRINSESSA! - FARÐU FRÁ!
ÉG VERÐ ALLTAF TIL STAÐAR FYRIR ÞIG
Fín teikning. Takk.
Ég var fullur af andagift.
Mér þykir leitt
að ég kvaddi þig ekki.
Ég sakna þín. Af hverju stakkstu af?
Ég held að þú gerir mig hrædda.
Fréttaskot:
Allir eru hræddir.
Það er engin ástæða til að flýja.
Mamma gerir það.
Og viltu verða eins og mamma þín?
Það var þá fyrirmynd.
Ég heyrði eitt sinn
að ást væri eldheit vinátta.
Þannig líður mér gagnvart þér.
Þarftu virkilega að fara?
Ís og súkkulaðikaka, góð samsetning.
Ég leita að minni eigin
góðu samsetningu.
Holly, ég tek þátt
í stafsetningakeppninni.
F-L-O-T-T.
-Hvað ertu að gera?
-Taka upp.
Já, en hvers vegna?
Vorum við ekki sammála um
að upplifa nýtt ævintýri?
Nýja ævintýrið felst í því
að vera um kyrrt.
Hvað þá?
Því geturðu aldrei
gert það sem ég vil?
Ég vil vera ein.
-Enginn vill vera einn.
-Jú, ég.
Ég hef fengið nóg af þessu fólki
og vil kynnast nýju.
Því miður er nýtt fólk
aðeins nýtt í einn dag.
Eftir það er það bara fólk
sem vekur hrifningu,
veldur vonbrigðum
og hræðir mann dálítið.
Ég veit hvað það er freistandi
að flýja burt þegar það gerist.
Það er ráðið til að forðast hluti.
En þegar upp er staðið
er maður að forðast sjálfan sig.
Forðast fólkið sem er manni kært.
Fyrir rest forðast maður lífið.
Þannig að ég hef ákveðið
að skapa fordæmi fyrir ykkur.
Ég ætla að reyna að sýna
ykkur hvernig á að þrauka,
kynnast fólki
og leyfa fólki að kynnast okkur.
Ég lofa ekki að það heppnist vel
en ég mun reyna
því ég vil að þið Zoe
verðið betri á þessu sviði en ég.
Ég vil að þið lærið
að hleypa fólki að ykkur.
Hann er indæll drengur.
Ég held að það væri þess virði.
Snúðu henni við.
Það eru tvær hliðar á öllu.
Viltu stærri hring?
Eldfimur.
STAFSETNINGARKEPPNIN Í BROOKLYN
E-L-D...
F-l-M...
U-R.
Eldfimur.
Rétt.
J!
E!
T!
S!
Jets!
Við förum alla leið
í hafnaboltaúrslitin!
ÆVINTÝRAGARÐUR
Skreytir - Jean Hamilton
Dömur og herrar, fimm mínútur.
Fimm mínútur.
Við byrjum eftir fimm mínútur.
Í 1. sæti er númer 73,
Jean Hamilton.
Þér tókst það, mamma!
-Hvar? Sú seinni?
-Já, það er mamma.
Get ég aðstoðað?
Ég hef heyrt að þið séuð með
bestu skúffukökur í heimi.
Við reynum.
Ég tek við.
-Ben.
-Hæ.
Í boði hússins.
Nei, ég verð að borga eitthvað.
Hvað um kvöldverð?
Ég þekki þig ekkert.
Ég veit það nú ekki.
Takk, það er mjög hugulsamt.
En ég held ekki.
-Ertu á föstu?
-Nei, reyndar ekki.
Í fyrsta sinn á ævinni
er ég það ekki
og ég vil halda því þannig
þar til ég kem fótunum undir mig.
Ég skil.
-Þetta er ekkert persónulegt.
-Nei, auðvitað ekki.
Ég ætti líklega líka
að hvíla mig á stefnumótum.
Ég mæli með því.
Hreinsa út úr skápnum.
Það er góð hugmynd.
Ná áttum.
Einmitt.
Á ég að sækja þig
á laugardag klukkan átta?
Stórfínt.
Mamma hafði líklega rétt fyrir sér.
Stærsta ævintýrið var
að vera um kyrrt
og það varð til þess
að ég gerði fáránlega hluti
eins og að skipuleggja mig,
mála herbergið og hengja upp myndir.
Ég notaði nagla og allt.
Sæll. Komdu inn.
Afsakaðu hvað ég er seinn.
Það hvolfdi Krispy Kreme-trukki
á 8. breiðstræti.
Takk.
Ég skal gera þetta.
Þetta fer...
Slakaðu á. Er þetta fyrsti
dansleikurinn þinn eða hvað?
Trúið þið þessu? Flökkustelpan
hefur loksins skotið rótum.
Núna á ég ekki bara heimasíðu,
ég á heimili.
HEIMASÍÐA HOLLY