Tip:
Highlight text to annotate it
X
Múmbaí, 2006
Jamal Mallk er elnnl spurnlngu frá því
að vinna
20 mllljónlr rúpía. Hvernlg fór hann að
því?
A: Hann svlndlaðl
B: Hann er hepplnn
C: Hann er snllllngur
D: Því er ætlað að verða
Gott kvöld.
Velkomin í
"Viltu vinna milljón?"
Ertu tilbúinn?
Gefið gott klapp...
Gangi þér vel.
...fyrsta keppanda kvöldsins,
Jamal Mali,
héðan úr Múmbaí!
Hefjum leikinn!
Brostu. Þú spjarar þig.
Nafn?
Nafn?
- Jamal Malik.
Heitirðu eitthvað?
Hættu að væla.
Takk fyrir.
Takk fyrir.
Kærar þakkir.
Jamal, segðu mér dálítið
frá sjálfum þér.
Ég vinn í símamiðstöð í Juhu.
Gott.
Símapiltur.
Hvernig hringimiðstöð er þetta?
XL-5. Farsímar.
Svo þú hringir í mig á hverjum degi
með sérstök tilboð?
Nei, reyndar er ég
aðstoðarmaður.
Aðstoðarsímapiltur?
Hvað gerir aðstoðarsímapiltur?
Ég sæki te fyrir fólk og...
Tesveinn? Tesveinn!
Jæja, dömur og herrar,
Jamal Malik, tesveinn frá Múmbaí,
förum í "Viltu vinna milljón?"
Er hann búinn að játa?
Ég hef ekki fengið neitt
nema nafn örverpisins.
Þú hefur verið hér í alla nótt.
Hvað hefurðu verið að gera?
Hann er harður af sér.
Dálítið rafmagn losar um málbeinið.
Stuðaðu hann. - Já, herra.
Varstu með búnað?
Gemsa eða símboða?
Hóstandi vitorðsmann
á meðal áhorfenda
eða örflögu undir húðinni?
Það er engin flaga þarna.
Gott og vel,
gleymum flögunni.
Það er heitt,
konan mín jagast í mér
og ég er með skrifborð fullt af
morðingjum,
nauðgurum, fjárkúgurum,
og attaníossum
og síðan þig.
Því spararðu okkur ekki
báðum heilmikinn tíma
og segir mér
hvernig þú svindlaðir?
Ég er búinn.
Hlustaðu nú.
Halló?
Hann er meðvitundarlaus,
hvaða gagn er að því?
Hve oft hef ég sagt þér?
Fyrirgefðu, herra.
Nú kemur Amnesty International hingað
og fer að væla um mannréttindi.
Ég var að hugsa...
Taktu hann niður og þrífðu hann,
í hamingjunnar bænum!
Hvað ef hann vissi svörin?
Prófessorar, læknar
og lögfræðingar...
menn með almenna þekkingu komast
aldrei yfir
16.000 rúpíur. Hann er með tíu milljónir.
Hvað í fjandanum
getur ræsisrakki vitað?
Svörin.
Ég vissi svörin.
Jamal, gríptu hann!
Jamal!
Jamal, taktu hann!
Hvernig tókst þér að missa
svona auðveldan bolta?
Þetta er einkasvæði!
Náið honum!
Hundarnir koma,
hlaupið!
Ef flugvélarnar drepa ykkur ekki
gerum við það!
Fjárinn, þarna er mamma.
Á ég að berja ykkur til bana?
Bróðir, láttu mig um þessa tvo.
Komið.
Aþos.
- Aþos.
Hrópuðu skytturnar tvær.
- Skyttur.
Skytturnar þrjár
Endurtakið. "Þú sendir eftir mér",
sagði Aþos.
Hér koma skytturnar okkar!
Takk fyrir að heiðra okkur
með nærveru ykkar.
Porþos!
Opnaðu hana, Salim.
Hættu þessu
og opnaðu bókina, Jamal.
Aþos?
Jæja, herra Malik,
maðurinn sem veit
öll svörin. Talaðu.
Jæja, Jamal,
ertu tilbúinn í fyrstu spurninguna
sem gefur þúsund rúpíur?
Já.
Ekki slæm laun fyrir að sitja í stól
og svara spurningu.
Betra en að útbúa te,
ekki satt?
Nei...
jú, nei.
Nei, jú, nei?
Er það lokasvar þitt?
Mundu að þú hefur þrjár líflínur.
Spyrja áhorfendur,
50/50,
hringja í vin.
Fyrsta spurningin
upp á þúsund rúpíur.
Þá byrjum við.
Hver lék aðalhlutverkið
í bíómyndinni Zanjeer frá 1973?
Mér er ansi mikið mál.
Hérna.
Peningar.
Taktu peningana.
Drífðu þig út, Jamal,
Prakash þarf að gera stórt.
Ekki búinn.
Hættu þessu slóri.
Þetta er áríðandi.
Þessi lætur bíða eftir sér.
Síðan hvenær hafa verið
tímatakmörk á kamrinum?
Mér er að verða brátt í brók,
strákur. Drífðu þig.
Síðan það beið viðskiptavinur,
Jamal.
Skilaðu mér peningunum!
Ég fer annað.
Helvítis hálfviti!
Þú kostaðir mig kúnna.
Þyrla Amitabhs!
Þetta er þyrla Amitabhs!
Amitabh Bachchan!
Salim, opnaðu!
Herra Amitabh!
Frá, frá! Farið frá.
Bíddu, ég er á leiðinni
til þín.
Herra Amitabh, vinsamlegast
gefðu mér eiginhandaráritun þína.
Ertu með hana á þér?
Eiginhandaráritun Amitabhs?
Ég átti eiginhandaráritunina!
Amitabh gaf mér hana.
Ég fæ aldrei aðra.
Hann bauð gott verð
svo ég seldi hana.
En ég átti hana.
A: Amitabh Bacchan.
Það er rétt, þú varst
að vinna þúsund rúpíur.
Maður þarf ekki
að vera snillingur.
Ég vissi að það var
Amitabh Bachchan.
Eins og ég sagði, maður þarf ekki
að vera snillingur.
Hann er frægasti maðurinn
á Indlandi.
Mynd af þremur ljónum sést
á skjaldarmerki Indlands.
Hvað er skrifað fyrir neðan?
A: Sannleikurinn einn sigrar.
B: Lygar einar sigra.
C: Tískan ein sigrar.
D: Peningar einir sigra.
Hvað heldur þú, Jamal?
Frægasta orðtak þjóðarinnar?
Viltu hringja í vin?
Spyrja áhorfendurna.
Bindið enda á þjáningar hans,
dömur mínar og herrar.
Fimm ára dóttir mín getur svarað
þessari spurningu en þú gast það ekki.
Undarlegt af milljónamæringssnillingi.
Hvað gerðist?
Fór vitorðsmaður þinn fram
að míga?
Varðstjórinn er að spyrja þig.
Hvað kostar pani-puri
í bás Harish í Chowpatty.
Hvað þá?
Pani-puri, einn diskur,
hve mikið?
Tíu rúpíur.
- Rangt.
Fimmtán eftir ljósahátíðina.
Hver stal hjóli
Vermaas lögregluþjóns
fyrir utan lögreglustöðina í Santa Cruz
á fimmtudag?
Veistu hver það var?
Allir í Juhu vita það.
Jafnvel fimm ára krakkar.
Til hamingju Jamal,
þú varst að vinna 4.000 rúpíur.
16.000 rúpíur í boði.
Trúarbrögð. Athyglivert.
Á myndum af guðinum Rama,
á hverju heldur hann
í hægri hendi?
Flýttu þér!
Komdu með okkur!
Hypjið ykkur burt.
Eruð þið heyrnarlausir?
Ég sagði ykkur að snauta burt!
Komdu með okkur!
Ég vakna á hverjum morgni
og óska þess
að ég vissi ekki svarið
við spurningunni.
Ef það væri ekki
fyrir Ram og Allah...
ætti ég enn móður.
Boga og ör.
Lokasvar?
Lokasvar.
Þú varst að vinna
16.000 rúpíur!
Vel gert, vinur.
Það er komið að auglýsingum.
Ekki fara burt.
Er heppnin með þér?
Í þínum sporum tæki ég
peningana og forðaði mér.
Þú svarar ekki næstu rétt.
Snautaðu burt!
Hún vísar öryggisverðinum á okkur.
Hleypum henni inn.
Hún gæti verið
þriðja skyttan.
Ég er núna elstur í fjölskyldunni
og ég segi að hún komi ekki.
Enda...
vitum við ekki nafnið
á þriðju skyttunni.
Salim?
Komdu hingað.
Hvar er mamma þín?
Pabbi þinn?
Ég er Jamal.
Þetta er Salim bróðir minn.
Ég er Latika.
Þú getur sofið hér
ef þú vilt.
Takk, Jamal.
Velkomin aftur í
"Viltu vinna milljón?"
Keppandinn okkar,
Jamal Malik frá Múmbaí,
er kominn með 16.000 rúpíur
og hefur þegar notað eina líflínu,
spyrja áhorfendur.
Jæja, kæri vinur,
þú ert kominn í háar upphæðir.
Eigum við að spila?
Já.
Lagið "Darshan Do Ghanshyam"
er samið af hvaða fræga, indverska
skáldi?
A: Surdas, B: Tutsidas,
C: Mira Bai, D: Kabir?
Jamal!
Halló.
Er ekki heitt?
Miðað við hvernig hann annast okkur
hlýtur hann að vera góður maður.
Algjör skollans dýrlingur.
Við megum ekki tala við aðra.
Því ekki?
Ef við fáum ábót hlýtur hann
að vera alvöru dýrlingur.
Arvind.
Mjög gott, Arvind.
Mjög gott.
Salim.
Þú hlærð að mér.
Ég drep þig.
Láttu hana í friði.
Ekki snerta mig!
Feiti skíthæll!
Stóri drumbur.
Punnoose, ég held að þú hafir
fundið hundinn þinn.
Mál að fara.
Byrjið að vinna.
Haldið þið að þetta
sé skemmtiferð?
Haldið þið að þetta
sé eitthvað frí?
Að hverju eruð þið að hlæja?
Komdu með það.
Þegiðu!
Salim bróðir.
Er eitthvað að,
litli bróðir?
Taktu hana.
Þú sérð um hana í dag.
Ég vil hana ekki.
Taktu hana. Það er þér fyrir bestu.
Smábörn gefa helmingi meira.
Hún sagðist ekki vilja hana.
Þegiðu, Jamal!
Taktu hana strax
eða ég sleppi henni.
Haltu henni grátandi,
þá aflarðu þrefaldra tekna.
Komið ykkur að verki!
Við notum þá sterkustu.
Með pipar á tillanum!
Með pipar á tillanum!
Ég mun hefna mín á þér!
Farið aftur að sofa!
Mjög gott.
Ég er ánægður.
Hann er tilbúinn.
Ég er líka tilbúinn.
Færðu lampann.
Allt í lagi.
Salim?
Komdu með Jamal hingað.
Jamal.
Stráksi, núna þarftu
að ákveða þig.
Viltu lifa eins og ræsisrakki
eða eins og maður?
Sannur karlmaður.
Byssumaður.
Örlög þín eru í þínum
eigin höndum, bróðir.
Þú getur verið eins og ég.
Eða...
Skilurðu?
Ég skil.
Farðu. Sæktu Jamal.
Punnoose?
Ef Maman er hrifinn af söngnum mínum
munum við vaða í peningum.
Sandi af seðlum, Latika.
Og hvað svo?
Getum við hætt að betla?
Betla?
Ertu að grínast?
Við munum búa í stóru húsi
við Hafnarveg.
Þú, ég og Salim.
Skytturnar þrjár.
Við Hafnarveg?
Í alvöru?
Já.
Í tunglsljósinu...
Þú og ég.
Þú dansar við mig,
er það ekki?
Vonandi syngurðu betur
en þú dansar.
Jamal!
Það er komið að mér.
Syngdu vel.
Er þá komið að því, bróðir?
Góða líf, hér komum við.
Aþos.
Porþos?
Þegar ég segi til.
Jamal.
Það er tímabært
að þú leggir þetta fyrir þig.
Í alvöru?
Leyfðu mér fyrst
að heyra lagið...
Darshan do Ghanshyam.
Það er eftirlætið mitt.
Fimmtíu rúpíur.
Þetta er núna starf mitt.
Hortugi skratti.
Gjörðu svo vel.
Fljótur, Jamal. Hlauptu!
Bíðið!
Náið þeim!
Sækið kyndlana!
Sækið þá!
Hlauptu, Latika!
Hlauptu!
Salim!
Salim!
Jamal!
Áfram, Latika.
Taktu í höndina á honum!
Jamal!
Latika!
Latika!
Hvað gerðist?
Hún sleppti!
Salim!
Við verðum að snúa við.
Þá erum við dauðans matur.
Ertu brjálaður?
Hann ætlaði að blinda þig.
Með skeið.
Hafðu ekki áhyggjur af henni.
Hún spjarar sig.
Hún gerir það alltaf.
Surdas.
Surdas?
Surdas? Lokasvar?
Já.
Hvað heldurðu?
Það er rétt!
Blindir söngvarar afla tvöfalt,
þú veist það.
Hvað varð um stúlkuna?
Blinduðu þeir hana líka?
Þeir höfðu aðrar áætlanir.
Það tók mig langan tíma
að komast að því.
Hættu að hugsa um þetta.
Komdu.
Hvert?
Ég er svangur.
Bless! Bless!
Stattu upp!
Á pabbi þinn lestina?
Takk.
Salim!
Er þetta himnaríki?
Þú ert ekki dáinn, Jamal.
Hvað er þetta?
Hótel, eða hvað?
Taj Mahal er talið glæsilegasta dæmið
um byggingarlist Mughal-tímans.
...lést 17. júní 1631
við fæðingu fjórtánda barns þeirra.
Byggingu Taj Mahal lauk 1648
en vinnuaflið sem var notað
var 20.000 verkamenn
og 4.000 fílar.
Árið 1980 var það sett
á Heimsminjaskrá Sameinuðu
þjóðanna...
Ef þið fylgið mér
mun ég sýna ykkur...
Lelðsögumaður
Vlnsamlegastfarlð úr skóm hér
Vinsamlegast farðu úr skónum, fröken.
Þetta er heilagur staður.
Afsakaðu.
Hvenær er næsti túr?
Við höfum mjög lítinn tíma.
Við sjáum Rauðavirki síðdegis.
- Lelðsöguferðlr
Nei, ég...
Gætirðu sýnt okkur um núna?
Við skiljum að það kostar meira
bara fyrir okkur tvö.
Auðvitað, fröken.
Fylgið mér.
Taj Mahal var byggt af Khurram keisara
fyrir eiginkonu hans, Mumatz,
sem var langfallegasta konan
í heiminum.
Þegar hún dó
ákvað keisarinn
að byggja fimm stjörnu hótel fyrir alla
sem vildu heimsækja grafhýsi hennar.
En hann dó 1587, áður en búið
var að byggja herbergin
og lyfturnar.
En sundlaugin,
eins og þið sjáið,
var tilbúin á tilsettum tíma
með glæsibrag.
Það stendur ekkert um þetta
i leiðsögubókinni.
Hún var skrifuð af húðlötum,
einskis nýtum betlurum.
Og þetta, dama mín og herra,
er grafreitur Mumatz.
Hvernig dó hún?
Umferðarslys.
Virkilega?
Hrikaleg klessa.
Ég hélt hún hefði
látist af barnsburði.
Nákvæmlega. Hún var á leiðinni
á spítalann þegar þetta gerðist.
Tilbúin?
Ekki hreyfa þig.
Brostu.
Óbrjótanlegur taílenskur viður.
Taktu!
Skór!
Amerískar tegundir.
Skór!
Brostu.
Þetta, herra David, er stærsta
þvottalaugin á öllu Indlandi.
Stórkostlegt.
Skoðum þetta betur.
Sagt er að hver einasti maður
í Uttar-héraði
sé í skyrtu sem hefur verið
þvegin minnst einu sinni hér.
Formúla eitt, Formúla eitt.
Viðgerðarsvæðishraði
að hætti Schumachers.
Kýrnar... vísundarnir...
Hvað er þetta þarna?
Fjárinn!
Hvað í fjandanum gerðist hér?
Ég gerði þetta ekki!
Slakaðu á. Þú ert tryggður,
er það ekki?
Ertu ómeiddur?
Ykkur langaði að sjá Indland
eins og það er. Hér sjáið þið það.
Allt í lagi!
Hér færðu dálítið af hinum
raunverulegu Bandaríkjum, væni.
Peningar.
Já. Ég meina það!
Hérna.
Á bandarískum
hundrað dala seðli
er mynd af hvaða
bandaríska stjórnmálamanni?
A: George Washington?
B: Franklin Roosevelt?
C: Benjamin Franklin?
D: Abraham Lincoln?
Tekurðu peninginn eða tekurðu þátt,
Jamal? Þitt er valið.
Hann horfir í myndavélina.
Hann hefur enga hugmynd.
Hann ætlar að hætta,
verið viðbúin.
Nei, hann ætlar fyrst
að leika sér að honum.
Jamal?
Færðu marga 100 dala seðla
í vinnunni þinni?
Lágmarksþjórfé
fyrir þjónustu mína.
Nú veit ég af hverju farsíma-
reikningarnir mínir eru svona háir.
Tesveinarnir fá
hundrað dali í þjórfé.
Það er C. Benjamin Franklin.
Ætlarðu að spila?
- Ég var að því.
Svo sannarlega. C?
- Já. C.
Hver er á 1.000 rúpía seðlinum?
Ég veit það ekki.
Veistu það ekki?
Ghandi.
Ég hef heyrt hans getið.
Engin hortugheit, annars
sæki ég rafmagnið aftur.
Þeir spurðu mig ekki
þeirrar spurningar.
Ég veit ekki ástæðuna.
Spyrðu þá.
Skrítið, þú virðist ekki
hafa mikinn áhuga á peningum.
Staðreyndin er sú að þú ert...
búinn að vinna eina milljón rúpía.
Útskýrðu hundrað dala seðilinn.
Bombay hét núna Múmbaí.
Því skilurðu ekki?
- Ég er hundleiður á þessu.
Stúlka bjó hér.
Álíka há og ég.
Hún hét Latika.
Ég þekki enga með því nafni.
Tvo kjúklingaborgara
með frönskum,
eina mangójógúrt,
eina kók.
Eina flösku af ölkelduvatni.
Ég fer til Chowpatty.
Viltu koma með?
Í guðs bænum,
þú ert með sjúkdóm.
Þú neyddir mig aftur til þessa grenis.
Fórum við frá vinum okkar,
góða lífinu og gnægð seðla
fyrir þetta?
Við komum til að finna hana.
- Þú gerðir það.
Mér er skítsama um hana.
Nóg af pí*** í Bombay fyrir Salim.
Ó já, herra minn.
Þú ættir að koma í rauða hverfið
á laugardagskvöldi
í stað þess að leita
að týndu ástinni þinni.
Ég fer til Chowpatty.
Ég fer til Chowpatty.
Það eru 19 milljón manns
hér í borginni.
Gleymdu henni.
Hún er liðin tíð.
Sæll vertu, herra.
Sælir eru þeir
sem eru öðrum góðir.
Dollarar?
Hve mikið?
Hundrað.
Þú heldur að ég sé bjáni.
Ég alvöru. Ég sver það
við sál móður minnar.
Hvað er á seðlinum?
Mynd af hverjum?
Það er gamall maður.
Hann er sköllóttur á hvirflinum en með
sítt hár í vöngum, eins og stelpa.
Benjamin Franklin.
Svo þú ert stórlax núna,
Jamal.
Ég samgleðst þér.
Mér þykir þetta leitt,
Arvind.
Þér var bjargað.
Ég var ekki eins heppinn.
Það er eini munurinn.
Arvind, ég er að reyna að finna...
Þú skuldar Maman.
Haltu þig í burtu.
Hann gleymir aldrei.
Ég skulda Latiku.
Er hún á lífi?
Meira en á lífi.
Hún er á Pila-stræti.
Hún er kölluð Cherry.
Takk.
Ég mun syngja
í jarðarför þinni.
Afsakaðu.
Cherry?
Er þetta hún eða ekki?
Hún er kynþokkafull!
Latika!
Hverjir eru þetta?
- Jamal?
Ég tæki töskuna.
Hverjir eruð þið? Hvað viljið þið?
Heimsku strákar.
Pakkaðu þessu niður.
Hvernig fannstu mig?
- Síðar.
Taktu peningana.
Förum.
Fjárinn.
Hverjir eru nú hér?
Halló aftur,
Jamal... Salim?
Ég gleymi aldrei andliti.
Ekki rétt, Punnoose?
Sérstaklega því sem ég á.
Hélduð þið að þið gætuð gengið inn
og stolið djásninu mínu?
Komdu, Latika.
Hafið þið nokkra hugmynd um
hve mikils virði þessi meyja er?
Haltu áfram, danskennari.
- Já, herra.
Farðu með þá héðan.
Nei!
Færðu þig!
Farðu þangað!
Enga vitleysu, Salim.
Er hún ekki þung?
Fáðu mér hana.
Niður á hnén!
Niður!
Báðir tveir, niður!
Peninga!
Þú getur fengið peninga.
Hérna.
Sjáðu!
Taktu þá.
Farðu burt með vini þínum
og við gleymum öllu þessu.
Maman gleymir aldrei.
Er það ekki rétt?
Maman getur gert undantekningu.
Ég get ekki hætt á það,
Maman. Því miður.
Förum.
Verið kyrrir!
Jamal!
Jamal!
Komum okkur héðan.
Hver fann upp marghleypuna?
Samuel Colt.
Lokasvar?
Lokasvar.
Jamal Malik,
þetta er draumaleikur hjá þér.
Hjarta mitt segir
að þú munir vinna meira.
Það var rétt. Tesveininum
hefur tekist það aftur.
Ótrúlegt!
Þjónusta!
Móttaka.
Fann dálítið.
Vertu þarna
og líttu undan.
Ég veit ef þú kíkir.
Nei, ég geri það ekki.
Er Salim enn þarna?
Hvar er Salim?
Ég veit það ekki.
Þú ert indæll drengur, Jamal.
Ég er að leita að Javed.
Hann er ekki að leita að þér.
Ég drap Maman...
og ég drep ykkur líka.
Rólegur.
Drapstu hann í alvöru?
Gott.
Óvinur óvinar míns
er vinur minn.
Komdu hingað, vinur minn.
Ég hef verið að leita
að einhverjum á borð við þig.
Þú snerir aftur vegna mín.
Auðvitað.
Ég hélt þú hefðir gleymt.
Ég gleymdi aldrei,
ekki eitt augnablik.
Ég vissi að ég myndi
finna þig að lokum.
Þetta eru örlög okkar.
Örlög.
Heyrðu.
Komdu.
Nei, bróðir,
þú hefur drukkið mikið.
Ég er sá eldri,
ég ræð.
Hlýddu mér einu sinni.
Komdu þér út!
Ég bjargaði lífi þínu,
er það ekki?
Salim, ég bið þig.
Ég drep þig!
Ég drep þig!
Ég er núna númer eitt.
Salim! Salim, opnaðu!
Þegiðu!
Maðurinn með Colt 45 skammbyssuna
segir þér að þegja.
Farðu strax eða Byssumeistarinn G-9
skýtur þig á milli augnanna.
Ekki halda annað.
Ég gef þér fimm sekúndur.
Ein.
Tvær...
Farðu, Jamal.
Farðu.
Hittirðu þau aftur?
Ég væri ekki hér
ef svo væri.
Var hún sæt?
Líklega ekki.
Fallegasta konan
í öllum heiminum.
Hann meinar
úr ræsishlutanum.
Ég drep þig, ræfill.
Hvað er að sjá,
ræsisrakkinn geltir.
Peningar og konur. Ástæðan
fyrir flestum mistö*** í lífinu.
Þú virðist flæktur
í hvort tveggja.
Srinivas?
Þú þarft hreyfinguna.
Færðu mér eitthvað að borða.
Já, herra.
Og te.
Srinivas er bjáni.
Þú veldur mér heilabrotum,
ræsisrakki.
Að viðurkenna morð til
að forðast ákæru um svik
er ekki beinlínis gáfulegt.
Hví myndirðu gera það?
Þegar einhver spyr mig spurningar
segi ég honum svarið.
Hvernig tókst þér
að komast í þáttinn?
Jæja, takið öll eftir.
Þetta hefur verið stór vika
í Bretlandi.
Kat er komin aftur.
Var hún ekki komin aftur?
Bardi.
Jamal?
Hún kom aftur.
Svo fór hún aftur burt
þegar Alfie hætti með henni
og núna er hún komin aftur.
En Alfie virðist enn
vera hrifinn af Mo...
Takk, Jamal.
Bardi, fylgstu með.
Tesveinninn veit meira en þú.
Það er líka hátíðin í Edinborg.
Þekkir einhver Edinborg?
Skotapils, kastalar,
slátur... Ben Nevis.
Gott. Já?
Taggart rannsóknarlögregla,
viskí, Sean Connery.
Gott, og mörg "loch",
þeirra orð yfir stöðuvatn.
Kvikmyndatökur bannaðar.
Jamal?
Komdu hingað.
Ég er á milljóneravakt í dag.
Dave!
Bara í fimm mínútur.
Ég get það ekki.
Sestu hér. Ef hópstjórinn kemur þykistu
vera að svara símtali um uppfærslu í...
"Vini og vandamenn",
ég veit.
Tvær mínútur.
Viltu vinna milljón?
Hringdu í þetta númer... núna.
Eða svaraðu þessari spurningu:
Fyrir hvað stendur ATM?
Halló?
Halló, mig langar að keppa
í "Viltu vinna milljón?"
Andskotinn,
ég næ þessu aldrei.
Þú átt að hringja
þegar Prem segir "ef".
Þá opna þeir línurnar.
Hvernig veistu það?
Anjum í tæknideild segir það,
hann setti upp kerfið.
Halló?
Hef ég verið færð til aftur?
Halló? Hamingjan góða,
vill einhver tala við mig!
Halló, frú... Mackintosh frá...
King Gussie.
Það er Kingussie, gæskur.
Borið fram 'Kinoosie'.
Hvaðan ertu?
Áreiðanlega frá útlöndum.
Örskammt frá húsinu þínu,
frú Mclntosh. Rétt við vatnið.
Jæja? Hvaða vatn?
Loch...
Loch... Big... Loch Ben.
Loch Big Ben!
Við hliðina á íbúð Seans Connery.
Get ég fengið að tala
við yfirmann þinn, væni?
Aftengt
Hvaða nafn þarftu?
Latlka
26.283 nlðurstöður fundust.
Sallm KMallk
15 nlðurstöður fundust.
Hrlngl...
Salim?
Hver er þetta?
Veistu hvað klukkan er?
Aftengt
Halló?
Halló.
Halló.
Hver er þetta?
Ég er að hringja frá
XL-5 fjarskiptum, herra.
Sem virtum viðskiptavini bjóðum við þér
ókeypis uppfærslu í "Vinir og...
vandamenn".
Jamal? Ert þetta þú,
bróðir?
Hvar ertu? Ég hélt
að þú værir dauður.
Við urðum að fara, Jamal.
Menn Mamans voru
að leita á hótelinu.
Jamal?
Segðu eitthvað.
Halló, Salim.
Cambridge Circus
er ekki í Cambridge.
Má ég spyrja hvers vegna?
Of augljóst.
Það er án vafa
Oxford Circus í London
og það er kappróður á milli
Oxford og Cambridge
svo það er sennilega til
Cambridge Circus líka, ekki satt?
Ég segi D, London.
Jamal Malik...
það er hárrétt!
Það er að verða heitt hér.
Ertu taugaóstyrkur?
Hvað þá?
Er ég taugaóstyrkur?
Þú ert í heita sætinu, væni.
Æ, já.
Afsakaðu.
Hann kemur Prem úr jafnvægi.
Loksins.
Fyrir nokkrum tímum
barstu fram te
fyrir starfsfólk símavers
og núna ertu ríkari
en það verður nokkurn tíma.
Hvílíkur leikmaður.
Dömur mínar og herrar,
hvílíkur leikmaður!
Jamal?
Guð er góður, bróðir.
Guð er góður.
Menn Mamans voru á eftir okkur,
við urðum að stinga af.
Lygari!
Skildi eftir skilaboð í vinnunni.
Við biðum vikum eftir þér í Nagpur.
Það voru engin skilaboð.
Víst skildi ég eftir skilaboð.
Það voru engin skilaboð!
Ég fyrirgef þér aldrei.
Ég veit það.
Þetta var fátækrahverfið okkar.
Trúirðu þessu?
Við bjuggum þarna.
Núna er þetta viðskiptahverfi.
Indland er við þungamiðju heimsins
og ég...
ég er við miðju miðjunnar.
Allt þetta tilheyrir Javed.
Javed Khan?
Bófanum úr hverfinu okkar?
Vinnurðu fyrir hann?
Hver annar hefði bjargað okkur
frá mönnum Mamans?
Hvað gerirðu fyrir hann?
Allt sem hann biður um.
Hann er að koma,
þú þarft að fara.
Taktu nafnspjaldið mitt.
Til hvers?
Heldurðu að ég sleppi þér
aftur úr sjónmáli?
Haltu þig hjá mér, yngri bróðir.
Farðu nú heim til mín.
Salim, hvar er Latika?
Enn?
Hún er farin, bróðir.
Löngu farin.
Farðu nú.
Farðu heim til mín.
Ég kem rétt strax.
Drottin, fyrirgefðu mér.
Ég veit að ég hef syndgað.
Drottinn, fyrirgefðu mér.
Ég veit að ég hef syndgað.
Þú gleymdir þessu.
Ég er nýi kokkurinn frá miðluninni.
Ég biðst innilega afsökunar.
Ég er svo seinn
fyrir frúna.
Andartak.
Afsakaðu.
Afsakaðu, það stendur ekkert
um neinn kokk.
Það á að koma uppvaskari.
Veistu eitthvað um það?
Ég er uppvaskarinn.
Jamal.
Að sjá þig.
Ég fann þig.
Ég fann þig.
Andlitið á þér.
Þú ert meidd á auga.
Af hverju komstu hingað?
Til að sjá þig.
Þú sérð mig. Hvað nú?
Af hverju eru allir
svona hrifnir af þessum þætti?
Hann gerir manni fært
að flýja veruleikann um stund.
Ganga inn í annað líf.
Almáttugur.
Javed drepur þig.
Bara... hérna.
Javed? Ertu með honum?
Fyrst pantarðu uppvaskara
og núna viltu
þennan fjandans kokk?
Þegiðu!
Krikketið er byrjað.
Því horfirðu á
þennan ömurlega þátt?
Ég er milljónamæringur.
Ég er svangur,
útbúðu mér samloku.
Ég veðja 500.000 rúpíum
á að hann nái 100 stigum.
Hvaða hlutföll gefurðu?
Hafðu það þá 700.000.
Komdu burt með mér.
Burt hvert?
Og lifa á hverju?
Ást.
Komdu burt með mér núna.
Tendulkar er á góðri leið með
að ná enn einu hundraðinu.
Þú ert brjálaður.
Salim hjálpar okkur.
Salim. Trúirðu enn á Salim?
Ég verð farin innan skamms.
Við förum frá Bombay.
Hvert?
Heldurðu að hann segi mér það?
Ekki reyna aftur!
Nei, nei, nei!
Skyldi Tendulkar ná hundraði?
Langur bolti, þetta er gott kast.
Flatur.
Boucher virðist mjög öruggur.
Tendulkar staldraði stutt við.
Hvaða ógeð er þetta?
Farðu út.
Farðu út!
Farðu áður en hann
drepur okkur bæði.
Viltu gera eitt fyrir mig?
- Hvað sem er.
Gleymdu mér þá.
Hvað þá? Nei!
Ég bíð á VTstöðinni klukkan 5
á hverjum degi þar til þú kemur.
Ég elska þig.
Hvað með það?
Það er um seinan.
Farðu nú!
Jæja, Jamal,
hvaða krikketleikmaður hefur skorað
flest úrvalsdeildarhundruð í sögunni?
A: Sachin Tendulkar,
B: Ricky Ponting,
C: Michael Slater
eða D: Jack Hobbs.
En mundu
að ef þú svarar rangt
taparðu öllu
á augabragði.
Viltu virkilega gera þetta?
Draumar svo margra...
á gólfinu.
Latika!
Latika!
Latika!
Latika! Latika!
Jamal!
Jamal!
Ég bið þig!
Latika!
Latika!
Það er komið að auglýsingum,
dömur mínar og herrar.
Ég veit, ég afber
ekki heldur spennuna.
Við komum rétt strax.
Náunginn úr ræsinu verður
milljónamæringur á einni nóttu.
Veistu hver er eina manneskjan
sem hefur gert það áður?
Ég.
Ég veit hvernig tilfinningin er,
ég veit hvað þú hefur upplifað.
Ég verð ekki milljónamæringur,
ég veit ekki svarið.
Þú hefur sagt það áður.
Í alvöru,
núna veit ég það ekki.
Þú getur ekki núna
tekið peningana og farið.
Þú ert við það að skrá þig
í sögubækurnar.
Ég sé ekki
hvað annað ég get gert.
Kannski er þessu ætlað að verða,
vinur. Ég veit ekki,
ég hef einhverja guðlega tilfinningu
fyrir því að þú munir vinna þetta.
Treystu mér, Jamal,
þú munt vinna.
Verið viðbúin,
útsending hefst eftir 30.
Komið honum aftur á gólfið.
Prem bíður.
Hann er að koma,
ég er að sækja hann.
Vertu fljótur,
20 sekúndur.
Gerðu það rétta og eftir 3 mínútur
verðurðu jafn frægur og ég.
Tíu sekúndur.
Og eins ríkur og ég...
næstum því.
Fimm sekúndur, 4, 3...
Frá örbyrgð til Raja,
það eru örlög þín.
Útsending hafin.
Klapp og tónlist.
Jib, bakkaðu,
klippa á 2.
Velkomin aftur í
"Viltu vinna milljón?"
Í stólnum í kvöld
er Jamal Malik,
eins og við vitum vel.
Fyrir tíu milljónir rúpía,
fáum spurninguna aftur.
Hvaða krikketleikmaður hefur skorað
flest úrvalsdeildarhundruð í sögunni?
Ég veit að það er ekki
Sachin Tendulkar.
Það er byrjun.
Svo það gæti verið Ricky Ponting,
Jack Hobbs eða Martin Slater.
Ég nota líflínu, 50/50.
Gott og vel. Tölva,
taktu burt tvö röng svör.
Þú hafðir rétt fyrir þér
varðandi Sachin Tendulkar.
Þá hefurðu helmingslíkur.
B: Ricky Ponting...
eða D: Jack Hobbs.
Hvað heldur þú?
Ákvörðunartími.
Fyrir tíu milljónir rúpía.
B:
Ricky Ponting,
eða D: Jack Hobbs?
D.
Ekki B?
B: Ricky Ponting, hinn frábæri
ástralski krikketleikari?
D: Jack Hobbs.
Ertu viss?
Svo það gæti verið
B: Ricky Ponting?
Eða D: Jack Hobbs.
Lokasvarið...
D.
Bíðum við...
197 úrvalsdeildarhundruð.
Svarið er...
D: Jack Hobbs.
Jamal Malik...
Milljónamæringur.
Ég trúi ekki eigin augum,
dömur mínar og herrar.
Þetta kallar á dans.
Komdu nú.
Vel gert.
Vel gert.
Ertu tilbúinn fyrir
lokaspurninguna...
upp á 20 milljónir rúpía?
Nei.
En kannski er þessu
ætlað að verða.
Kannski.
Jæja, lokaspurningin í
"Viltu vinna..."
Hvílíkur þáttur,
dömur mínar og herrar!
Fylgist með annað kvöld
til að sjá hvort Jamal Malik
hafi gert mestu mistök lífs síns
eða unnið
stærstu verðlaunin
í sögu indversks sjónvarps.
Þessa leið.
Komdu, Jamal.
Frábær þáttur.
Sjáumst á morgun.
Mættu stundvíslega.
Bless.
Varlega.
Hvað er á seyði?
Hann er svindlari.
Hvernig veistu það?
Ég gaf honum upp vitlaust svar
en hann svaraði samt rétt.
Gafstu honum upp svar?
Ekki beinlínis...
en hvaða máli skiptir það?
Þetta er helvítis
þátturinn minn!
Þetta er furðulega trúverðugt...
En af því ég er ræsisrakki
og tesveinn er ég lygari, ekki rétt?
Flestir ykkar eruð það.
En þú ert ekki lygari, herra Malik,
svo mikið er víst.
Þú ert of sannsögull.
Vel gert.
Ég veit ekki hvert þeir
hafa farið með hana.
Latika.
Ég fór í þáttinn því ég hélt
að hún myndi horfa á.
Vann Jamal Malik,
ómenntaður 18 ára piltur
úr ræsum Múmbaí, tíu milljónir
á heiðarlegan hátt eða með svikum?
Mannfjöldinn í kringum mig
spyr enn stærri spurningar:
Snýr hann aftur í kvöld til
að keppa um 20 milljónir rúpía?
Áfram, stelpur!
Þú þarna! Komdu hingað
og kysstu mig. Komdu hingað!
Viltu það?
Já, ég vil það.
Áfram, stelpur!
Ég heyrði ekki neitt
þarna inni.
Þú verður að koma okkur
aftur í bæinn.
Og líkt og það væri ekki næg dramatík
í kringum það að keppandi nái
lokaspurningunni,
þá var Jamal Malik handtekinn
í gærkvöldi grunaður um svik.
Þessi náungi...
hann gefst aldrei upp.
Aldrei.
Farðu.
En...
Aktu bara.
Það gefst ekki annað tækifæri.
Hann drepur þig.
Ég sé um hann.
Salim? Ég get ekki...
Þú verður.
Og í guðs bænum,
passaðu þennan.
Og fyrir það sem ég hef gert
bið ég þig að fyrirgefa mér.
Eigðu gott líf.
Þú ferð aftur í þáttinn.
Áfram!
Áfram með ykkur!
Jamal? Milljónamæringurinn?
Margmilljónamæringurinn?
Þessi með allt reiðuféð?
Farðu með blessun minni
og vinndu þetta allt.
Við elskum þig, Jamal.
Það ríkir milljóneraæði
hjá þjóðinni í kvöld
eftir að Jamal Malik, ómenntaður piltur
úr Juhu-fátækrahverfinu í Múmbaí
vann heilar tíu milljónir rúpía
í sjónvarpsþættinum
"Viltu vinna milljón?"
Áætlað er að 90 milljónir manna
muni fylgjast með því í kvöld
hvort að hann geti
gengið einu skrefi lengra og unnið
yfirþyrmandi upphæð, 20 milljónir rúpía.
Áfram!
Hvar eru allir?
Komið aftur hingað inn.
Farið að vinna. Strax!
Tesveinninn?
Velkomin aftur í
"Viltu vinna milljón?"
Ég get fullyrt að þetta er stærsta
kvöldið í lífi okkar beggja.
Jamal Malik, símavers-
aðstoðarmaðurinn frá Múmbaí,
hefur þegar unnið
tíu milljónir.
Hann getur gengið burt með þær
í vasanum
eða tekið mestu áhættu
sjónvarpssögunnar
og reynt við lokaspurninguna
og 20 milljónir rúpía.
Ertu tilbúinn
fyrir spurninguna?
Já.
Lestu mikið, Jamal?
Ég kann að lesa.
Heppni.
Í bók Alexander Dumas,
"Skytturnar þrjár",
heita tvær af skyttunum
Aþos og Porþos.
Hvað var nafn
þriðju skyttunnar?
A: Aramis.
B: Richelieu kardínáli.
C: DArtagnan.
Eða D: Planchet.
Aþos!
Hún gæti verið þriðja skyttan.
Lokaspurningin, 20 milljónir í húfi
og hann brosir.
Þú veist þá líklega svarið.
Myndirðu trúa því?
Eg veit það ekki.
Er það ekki?
Svo þú tekur tíu milljónirnar
og hættir?
Nei.
Ég spila.
Ég minni þig á, Jamal,
að ef þú svarar rangt
þá taparðu öllu.
Tíu milljónir rúpía, Jamal.
Það eru mikil auðæfi.
Ég vil hringja í vin.
Þú lætur slag standa.
Síðasta líflínan.
Þá byrjum við.
Það hringir.
Hver er þetta?
Þetta er símanúmer
bróður míns, en...
Hvers konar bróðir fer í göngutúr
á 20 milljóna rúpía spurningu?
Þetta er eina númerið
sem ég þekki.
Þú stendur einn, Jamal.
Halló?
Halló, Jamal?
Þetta er líklega ekki
bróðir þinn.
Og þetta er?
Ég heiti Latika.
Viltu heyra spurninguna
einu sinni enn?
Og höfum þetta á hreinu,
20 milljónir rúpía
velta á svarinu.
Þú hefur 30 sekúndur.
Lestu spurninguna...
fyrir Latiku.
Ert þetta virkilega þú?
- Já.
Spurningin, Jamal.
Spurningin.
Í bók Alexander Dumas,
"Skytturnar þrjár",
heita tvær af skyttunum
Aþos og Porþos.
Hvað var nafn
þriðju skyttunnar?
Var það, A: Aramis,
B: Richelieu kardínáli,
C: DArtagnan, D: Planchet.
15 sekúndur.
Hvar ertu?
Ég er óhult.
Tíu sekúndur.
Latika, hvað heldur þú?
Ég veit það ekki.
Ég hef aldrei vitað það.
Jamal?
Núna stendurðu aleinn eftir,
Jamal.
Lokasvar þitt fyrir
20 milljónir rúpía.
A.
Af hverju A?
Af því bara.
Salim!
Er það lokasvar?
Já, það er lokasvar.
A: Aramis.
Salim!
Salim!
Jamal Malik,
símamiðstöðvar-
aðstoðarmaður frá Múmbaí
og tesveinn.
Fyrir tvo tugi milljóna,
20 milljónir rúpía,
varstu spurður að því hver þriðja
skyttan væri í sögu Alexander Dumas
og þú svaraðir A,
Aramis, sem er,
verð ég að segja þér,
rétta svarið!
Guð er mikill.
Hvílíkt kvöld!
Hvílíkt kvöld!
Dömur mínar og herrar,
við erum vitni...
að sögulegum viðburði!
Vel gert. Vel gert.
Ég vissi að þú
værir að horfa á.
Ég hélt að við myndum
aðeins hittast aftur í dauðanum.
Þetta eru örlög okkar.
Kysstu mig.
D: Því er ætlað að verða
Rippað af........®ice!