Tip:
Highlight text to annotate it
X
Sumir segja að heppni
sé ekkert annað
en karma í vinnugalla.
Orsök og afleiðingar.
Þú drepur okkur, fíflið þitt.
Út úr bílnum mínum!
Þetta er minn bíll!
Ertu í krakkvímu?
Stöðvaðu bílinn!
Út með þig og láttu mig keyra!
Út!
Þú ættir að vera á sjúkrahúsi!
Eruð þið að spá í hvernig
í fjandanum ég lenti í þessu?
Ég tók rangar ákvarðanir.
Ef ég hefði ekki lent í fangelsi
hefði ég ekki kynnst Philomene.
Þekking er máttur.
Ég heiti Cape Verdean.
Hún fékk mig til að víkka
sjóndeildarhringinn.
Dæmigert að falla
fyrir félagsráðgjafanum.
Philomene vildi ekkert af því
eða mér vita.
Ég gat ekkert gert nema lesið
og horft á kvikmyndir.
Allt annað en glæpamyndir.
Þær minntu mig of mikið
á fortíðina.
Og ég var ákveðinn í
að fortíðin
yrði ekki framtíð mín.
LÁNLEYSI
Ég vann við hitt og þetta
og að lokum tók Philomene
mig alvarlega.
Við rugluðum saman reytunum
og keyptum lítið hús í Suðurríkjunum.
Og það var svo sem auðvitað
að hún gat ekki átt börn.
Svo við fengum okkur hund.
Hún vildi kalla hann Lucky
í höfuðið á mér.
Nei, fjandinn, sagði ég.
Gefum greyinu tækifæri.
Við kölluðum hann Rusla.
Eitt augnablik hélt ég
að heppnin brosti við mér.
Er þetta ekki ferlegt?
Eftir öll skotin sem ég hafði fengið
fékk ég svo slagæðagúlp.
Þau sögðu að ég þyrfti
í uppskurð umsvifalaust.
Kannski heppni sé tímaspursmál.
Þegar ég vaknaði
virtist tíminn á þrotum
fyrir okkur öll.
Er einhver hérna niðri?
Hver fjandinn er þetta?
Í fyrstu hélt ég að dómsdagur
hefði dunið yfir
eins og heimsendapredikarar
eru alltaf að boða.
Og að Kristur hefði komið
og tekið alla með sér nema mig.
Halló?
Komdu hérna, góði.
Þetta er 5. stigs fellibylur.
Katrín, 5. stigs fellibylur.
Yfirv öld hvetja nú alla
til að flýta sér að Superdome.
Ekki treysta þeim. Farðu ekki.
Ekki fara.
Okkur er sagt að þjóðvarðliðið
sé á leiðinni
en heimildum ber ekki saman
um hvenær það kemur.
Kannski var móðir Náttúra
að gera lokatilraun
til að vekja okkur.
Eða...
kannski var þetta
eins og afi minn sagði:
"Ef ekki væri óheppnin
væri ég aldrei heppinn."
Heilsaðu pabba.
Engin Philomene, enginn Rusli,
ekkert hús.
Kyrr.
Enn einn ræninginn.
9. deild, svæði 8.
Staddir á mótum Main og Parrish.
Biðjum um liðsauka.
Ég kem.
Fyrir tveimur árum dró
fellibylurinn Katrín fram
fjárhags- og stéttalegan mismun
sem enn ríkir í þessu landi.
Ég sá að ég gæti verið enn einn
svertinginn að biðja um hjálp...
Tveimur árum seinna
... eða drullað mér aftur
til New York.
Það er ekki auðvelt að vera
konungur borgarinnar.
Ég er að selja bókina
Sumarleyfisgleði.
Ég hef allt sem þið þurfið.
Sko. Svart hreindýr.
Ég er með úr.
Allt sem þið þurfið.
Ég hef allt sem þið þurfið
fyrir ljósahátíðina.
Ég er með bindi og jakka.
Ég er með nærbuxur.
Vantar ykkur nærbuxur?
Er þetta ekki þessi, þú veist?
Hann seldi á 135. stræti?
Nei, fjandinn.
Þetta er ekki hann.
Þetta er hann.
- Hann dó fyrir nokkru.
Hann var drepinn
því hann vildi ekki tala.
Við skulum fara.
Ég er með gleraugu handa þér.
Þá sérðu hvað er að gerast.
Allt í lagi, fallegust?
Tvo fyrir 5 dali.
Hvernig er þetta?
- Betra.
Bíddu hæg, Cass?
Stilltu ljósin betur.
Þú ætlar að drepa mig.
Hafðu hærra. Ég vil verða
heyrnarlaus eins og Pete Townshend.
Ég sagði þér að beina þessu ekki
beint í myndavélina.
Fyrirgefðu ef ég fullnægi ekki
kröfum þínum um fagmennsku.
Allt í lagi. Hreyfðu myndavélina
15 gráður til vinstri.
Vinstri frá mér eða vélinni?
Það er alltaf talað um vélina.
Vinstri frá vélinni, Cass.
Það er ekki svo erfitt.
Svið til hægri, myndavél til vinstri.
Allt í lagi.
Svo þetta er einn af þessum dögum
þegar ég geri ekkert rétt.
Åst er þegar þú
og öll vitleysan sem þú
hefur gert um ævina
og öll vitleysan sem þú átt
eftir að gera um ævina
og öll smáatriði sem þú getur
ímyndað þér að þú
eigir stanslaust eftir
að skammast þín fyrir
frammi fyrir öllum
nema þessari einstöku konu.
Hún tekur því öllu
og kyssir á þér fæturna
án þess að dæma þig
eða neitt.
Einhver sem þú veist að þú getur
skammað, sofið hjá og grátið með.
Þetta allt saman.
Þannig er ástin.
Eða eins og langt ferðalag.
Skiljið þið hvað ég á við?
Hún er eins og ævintýraferð
eða eitthvað.
Ég er eins og James T. Kirk
og hún er Leia prinsessa
eða eitthvað. Ég veit ekki.
Og við erum á leið þangað sem
ekk ert par hefur farið áður.
Heyrðu, Lucky. Hvað segirðu?
Opnaðu, ég vil koma inn.
Hvað segirðu?
- Hvað er títt?
Allt þetta besta.
- Hvað er að frétta?
Hvenær ætlarðu að kenna
vini þínum að tala?
Hann er ágætur.
Þú segir það af því að þú
ert á launaskrá hjá honum.
Hvað ertu með?
Starfsmaður mánaðarins getur ekki
mætt í afmælisveisluna mína
með eitthvað afrískt drasl.
Ég er ekki starfsmaður þinn.
Æ, fyrirgefðu. Aðalfélagi minn.
Ég vil hafa þetta rétt.
Eins gott að þú verðir ekki
í melludólgsfötunum.
- Nei, vinur. Þau eru smekkleg.
Hér er Sean John,
öðru nafni P. Dizzle.
Þetta er flott.
- Fæ ég þá smáþakklæti?
"Já, já, kærar þakkir,
hebresku vinir mínir."
Hipp-hopp unglingahátíð?
Hvað ertu að gera
við prentarann minn?
Líttu á þetta sem framlag þitt
til samfélagsins.
Blekið er dýrt, góði minn.
Snúum okkur að viðskiptunum.
Allt í lagi, þá það.
Ég er með nýjustu gerð
af demantsskreyttu Rolex.
Ég er með nýja gullhálsfesti.
Ekki vera með hana of lengi.
Þú verður grænn á hálsinum.
Ég er með Ray Ban sólgeraugu.
Ég er með allt sem þú þarft.
Af hverju ertu að þessu?
Hvað áttu við?
- Fjölskyldan þín er lögleg.
Frændi þinn á skartgripabúðina.
Þú ert að ræna frænda þinn.
Af hverju gerirðu þetta?
Til hvers?
Af hverju gerðir þú það?
Þú varst einn umsvifamesti
miðlarinn í Harlem, maður.
Herra Ósnertanlegur.
Þú eitraðir fyrir þínu eigin fólki.
Bíddu nú við.
- Ekki móðgast, félagi.
Þetta er bandaríska leiðin, ekki satt?
Við viljum öll meira.
Jafnvel Donald skrattinn Trump
vill meira.
Meiri völd, meiri peninga
meiri hégóma.
Meiri skemmtun.
Það er mikilvægt að þú komir
á réttum tíma í kvöld, skilurðu?
Ég sendi strákana.
- Mig langar að ræða það.
Hvað er að?
- Ég kemst ekki.
Hvað ertu að segja?
- Þetta er þitt mál, vinur.
Það er afmælisveislan mín.
Við gerum allt brjálað.
Ég kom með allt þetta handa þér.
Þú verður hæstánægður.
Þetta ert þú.
Þarf ég að vera í þessu?
- Já, þú verður í þessu.
Ég veit ekki.
Ég skal ekki segja.
Nei, maður.
Þetta er þinn heimur.
Þetta er stærðin mín.
Hann er ánægður.
Hún sefur hjá öllum og hefur ekki
hugmynd um hvað hún á mörg börn.
Hún lítur þannig á það.
Afsakaðu.
Geturðu hjálpað mér?
- Þetta er ekki sanngjarnt fyrir börnin.
Ég skal.
Nú sæki ég borðið.
Hæ, elskan. Brostu í myndavélina.
Þú veist hvernig við gerum.
- Já.
Segðu þeim hvað við ætlum
að gera á eftir.
Ég held að þau séu tilbúin, herra.
Já, þau eru tilbúin.
Sástu þetta í dag?
Já, ég sá það.
Herra C, hafðu engar áhyggur
varðandi bæklingana og það.
Ég fékk þá ókeypis.
Vinur minn kom mér
í þetta samband.
Gullfallegt.
Það mætti halda að fólk
væri farið að skilja
að maður uppsker
eins og maður sáir.
Hvort viltu heldur að börnin þín
séu í dansflokki eða bófaklíku?
Dansflokki. Engin spurning.
Stjórnvöld virðast hafa meiri áhuga
á að byggja fangelsi
en að fjárfesta í börnum.
Þetta verður síðasta sýningin okkar.
Við fáum ekki meiri styrk
svo við verðum að loka staðnum.
Já, ég veit.
En láttu þetta ekki skemma allt
það góða sem þú hefur gert
fyrir þennan stað og krakkana.
Og fyrst og fremst fyrir þig sjálfan.
Þú hefur snúið við blaðinu
og haldið þig á réttri hillu.
Ég var farinn að hlakka til,
þú skilur.
Hlakkaði virkilega til.
Allt í lagi, herra C.
Gangi þér vel, ungi vinur.
Þú veist hvað við gerum.
Við erum í skotgröfunum, vinur.
Í skotgröfunum.
Kvenfólkið hérna.
Þið eruð að koma
í veislu Rosenbaums.
Þessa leið, herra.
Nýi kvennasalurinn til hægri.
Við erum í Úmm-búmm salnum.
Við fáum kjöltudansa fyrir 25 dali.
30 dali ef þú ert rausnarlegur.
Og á sviðinu núna
höfum við Carmen
sem kemur alla leið frá Kúbu.
Þið hljótið að elska Kastró.
Hún synti hingað fyrir ykkur,
dömur mínar og herrar.
Vitið þið hvað?
Við verðum að borga svona menntun.
Leitið í vösunum. Enga matarmiða
og enga smápeninga.
Bara seðla.
Carmen leggur sig fram fyrir ykkur.
Hérna í Kádiljákastofunni
er Stóri kisi plötusnúður.
Peningar til skiptanna.
Fjárinn! Hvað segirðu gott?
Þú verður að viðurkenna að ég
er jafnfallegur og nýr seðill.
Þú líkist Tony Montana í krakkvímu.
Þú ættir að þekkja það.
Hvað er að frétta?
- Til hamingju með afmælið.
Kærar þakkir. Gott að þú komst.
Ég lét þig fá flott föt.
- Já, já.
Mjög fín. Fáum okkur í glas.
Æ, fjárinn.
Veistu hvað klukkan er?
Tími til kominn að gefa
þessari dömu meira kampavín.
Til hamingju, afmælisbarn.
Hvaða bragð finnst þér best?
Þú skilur, vanilla, súkkulaði,
mokka? Ávaxtablanda.
Ekki plast.
Ekki plast.
Félagarnir vilja fá
eitthvað almennilegt í sarpinn.
Ég veit.
Heyrðu.
Carmen.
Ekki láta sem þú þekkir
mig ekki. Þetta er ég.
Manstu eftir Benjamin Franklin?
Komdu hingað.
Þessi félagi minn hérna
hefur aldrei komið til Kúbu.
Viltu ekki fara með hann
alla leið til K-Ú-B-U?
Verið öll kyrr.
Hreyfum okkur þegar ég segi til.
- Skilið.
Ég er ástfanginn af strippara.
Ég er ástfanginn af strippara
og þess vegna vinn ég hér.
Já.
Þetta er hann þarna.
Þessi svartklæddi.
Bónus.
Þú mátt líka halda á prikinu mínu.
Þú myndir vilja það.
Ég hélt að henni líkaði vel við mig.
Þessi elska er með rass
eins smáhestur.
Lucky.
Ég vil að þú hittir eigandann.
- Af hverju?
Hann er vinur minn, þú skilur.
Svona, gerðu það.
Láttu mig líta vel út.
Það er afmælið mitt.
- Láta þig líta vel út?
Já.
- Kunningi...
Ég er með smáviðskipti hérna.
Og með þig hérna, þú skilur,
gengur þetta allt vel.
Hver færi að abbast upp á mig?
Abbast upp á þig?
Því tekurðu ekki strákana með?
Gerðu það, félagi. Í alvöru.
Veistu hvað, Lucky?
Ég er að stórgræða.
Gerðu það.
Ég segi ekki neitt.
Ég bið þig, Lucky. Gerðu það.
Hver hjálpar þér að koma
undir þig fótunum?
Hver treysti þér
þegar enginn gerði það?
Ég, manstu? Það var ég.
Þú þarft ekki að segja neitt
og ekki að gera neitt.
Bara að standa þarna.
Vera með mér.
Bara í þetta eina skipti.
Hvað segirðu?
- Æ, vinur.
Sjáið hver þetta er.
Nú trúi ég á endurholdgun.
Ég hélt að þú værir dauður.
Það hélt ég líka.
Komdu, félagi.
Gerirðu það gott?
- Já, ég geri það.
Herrar mínir, ég held að við
þurfum að ræða viðskipti.
Eru þetta orðin 15 ár?
Lucky, vertu kyrr.
Látið mig ekki trufla.
Fáðu þér sæti.
- Ég ætla að...
Gerðu það. Vertu kyrr.
Vantar þig eitthvað, vinur?
Eins og beðið var um.
250.000 dalir.
Í hvorri tösku.
Heyrðu.
Lucky, Lucky, vertu kyrr.
Ég ætla á klósettið.
- Nei, þú ert gestur minn.
Við ætlum að fá okkur í glas.
Svona, tylltu þér.
Þú verður að kenna
gyðingstráknum þínum mannasiði.
Jæja, ég sýndi mitt.
Fjórir kassar, 100 stykki í hverjum.
Bílnum er lagt á bak við.
Beretta Cheetah.
Magasínið tekur þrettán skot
eins og um var beðið.
Við skulum fara, vinur.
- Hvað?
Hvað segirðu um kampavín?
Hann er óþokki.
Við skulum fara.
Því miður, vinur.
Þú veist hvernig þetta er.
Ég verð að fá borgað.
Bíðið þar til við höfum
skoðað varninginn.
Skilið.
Berettan lítur vel út.
- Varningurinn er góður.
Bravó, bravó.
Velheppnuð viðskipti.
Lögreglan! Þið eruð handteknir!
Heiðursgesturinn ætti að byrja.
Upp á gamla daga.
Góð hugmynd. Ekkert mál.
Þú kemur mér stöðugt á óvart.
Ó, ég reyni að forðast það.
Það er gott að sjá þig, vinur.
Já.
Kominn aftur út í lífið.
- Nei, ekki ég.
Ekki það?
- Ég er bara gestgjafi.
Gjörðu svo vel.
- Gino, vilt þú vera fyrstur?
Gakktu frá þessu úti.
Heyrðu, heyrðu!
Hvern fjandann ertu að gera?
- Hvað er ég að gera?
Ó, Guð minn góður.
Hann er með hlerunarbúnað.
Það kemur að því á lífsleiðinni
að maður segir bara: "Fjandinn!"
Maður þarf að spila úr því
sem maður fær á höndina
og láta teningana falla
af handahófi.
Ekki skjóta!
Hvar eru peningarnir?
Hver er þetta?
Hver á þennan rauða Mustang?
Kúbverska stelpan. Carmen.
Hún er kölluð Carmen.
Skíthællinn þinn, ef ég lendi
í fangelsi gerir þú það líka.
Forðum okkur!
Hver andskotinn gengur á?
- Leggstu á jörðina.
Ertu snarvitlaus?
- Niður með þig.
Hver er þarna?
Hver er þetta?
Niður með þig.
Allt í lagi.
Ertu á krakki, eða hvað?
Hann stefnir í miðbæinn.
- Ég er á eftir þér.
Hvaða gaur er þetta?
Þú drepur okkur, bjáni.
Skjóttu þrælbeinið.
Þetta er bíllinn minn. Nei!
Skjóttu hann.
Hann fer suður Waterman-stræti.
- Farðu í veg fyrir hann við göngin.
Ég er þrjár húsaraðir í burtu.
Farðu þangað strax!
Stansaðu!
Maðurinn er brjálaður.
Hann fór inn í göngin.
Taktu afreinina við Thompson-stræti
og lokaðu henni af.
Við komum aftan að honum.
Þú þarft að komast á sjúkrahús.
Haltu þér.
Lokaðu afreininni!
Lokaðu henni!
Strax!
- Ég er fyrir ofan þig.
Fjandinn!
Þú verður að komast á sjúkrahús.
Ekkert sjúkrahús.
VEGAHÓTEL
Komdu með handklæði
og bleyttu það í heitu vatni.
Og ekki gleyma sápunni.
Komdu með sápu.
Ef þú vilt að ég hjálpi þér
skaltu ganga frá þessu.
Allt í lagi. Farðu úr fötunum.
- Ertu ruglaður?
Það er ekki eins og ég hafi ekki
séð þig nakta. Farðu úr.
Þá veit ég að það er ólíklegra
að þú stingir af.
Farðu úr fötunum.
Þarftu að hafa tónlist?
Ánægður?
Carmen.
Það er sviðsnafnið, ekki satt?
Hvað heitirðu?
Angela.
- Gott og vel.
Angela, sem líklega er ekki
frá Kúbu, hlustaðu á mig.
Ég ætla ekki að meiða þig.
Láttu mig bara ekki þurfa að gera
neina vitleysu. Vertu róleg,
gerðu eins og ég segi
og allt fer vel. Skilurðu mig?
Já, ég skil þig.
Hérna. Hjálpaðu mér úr þessu.
Og sýningin hefst.
Þú ættir að vera hjúkrunarkona.
Og hætta í hálaunastarfi
sem nektardansmey?
Mamma var hjúkrunarkona
í Púertó Ríkó. Á lágmarkslaunum.
Á ég að trúa þessu?
- Af hverju ekki? Það kostar ekkert.
Fæ ég þýðingu?
Græði, græði með froskarassi.
Ef ekki í dag, þá á morgun,
Prófaðu. Það boðar gæfu.
Jæja, fyrst ég er búin
að binda um sár þín
ætti ég að leyfa þér að hvílast.
Já, við ættum bæði að hvíla okkur.
Góð hugmynd.
Leggstu við hliðina á mér.
Þótt ég hafi gert mikla
vitleysu um ævina
hef ég aldrei sofið hjá konu
til þess eins að fá það
og ég byrja ekki á því núna.
Leggstu bara út af.
Hinum megin. Fjarri dyrunum.
Gerðu það.
Hvað ertu að gera?
- Vilt þú fá svolítið?
Þú ert aldeilis til í tuskið.
- Ég átti við varasalvann.
Hve lengi ætlarðu
að halda mér í gíslingu?
Góð spurning.
Af hverju ertu að þessu?
Mamma.
Hættu.
Mamma.
Röðin er komin að þér.
- Ég gerði það síðast.
Hann er þitt barn.
Ég sé um þetta.
Mamma.
- Ég er að koma, elskan.
Mamma!
Svona, elskan.
Tö*** grímuna.
Allt í lagi, elskan.
Við setjum hana á þig aftur.
Svona. Allt i lagi.
Nú ertu góður strákur.
Svona, vinur.
Sestu hérna.
Svona, allt í lagi.
Tö*** hana aðeins niður.
Ég vil vera köngulóarmaðurinn.
- Við skulum sjá til.
Ég vil fara að sníkja gotterí.
Mig langar í sælgæti, mamma.
Elskan, þú getur ekki farið út.
Hérna eru lyfin þín.
Taktu lyfin þín.
Þá ertu góður strákur.
Þetta er gott.
- Ég vil fara út að sníkja gott.
Ég veit, elskan.
Mamma ætlar að syngja.
Nú syngur mamma fyrir þig.
Allt í lagi?
Ég komst loksins í snertingu við hálfa
milljón dala og hún var illa fengin.
Annað hvort eru þetta peningar
bankans eða löggunnar.
Annars hefðu þeir ekki verið
með þennan útbúnað.
Ef ég held þeim
erum við bæði í hættu.
Hún veit það ekki.
Það virðist ekki sanngjarnt.
Eina leiðin til að sleppa.
Peningarnir voru líflínan okkar.
Hvað?
- Gino.
Það er til þín.
Já.
- Sjáðu nú til.
Engin vandamál, engar spurningar.
Ég skila peningunum
og allt verður gott, ekki satt?
Hvar ertu?
- Ég hringi aftur. Nei!
Nei.
Erum við dauð?
- Já.
Við erum með dálítið
dásamlegt fyrir þig í kvöld.
Já.
Yndislega, litla rottu.
Ég átti gælurottu þegar ég
var í miðskóla.
En stundum verða rottur svangar.
Hver fjandinn?
- Hættu.
Ég held að hún sé dauð, Walter.
- Þú ert að ljúga.
Ég finn engan púls.
- Jesús minn góður.
Komdu ekki nálægt... vertu ekki...
Hún hefur líklega fengið
fuglaflensuna.
Já, áreiðanlega.
Sjáðu þetta.
- Hvað er þetta?
Hún var hjartabiluð.
Það er málið.
Það er líklega mín sök.
Enginn sem ég hef valið
hefur drepist hjá okkur.
Svo þú ert allt í einu
sérfræðingur í heilsufari fólks.
Er hægt að sjá á göngulaginu
hvort fólk sé hjartabilað?
Ætlarðu að hjálpa mér við þetta?
Þú varst sofandi.
Hvað ertu að gera?
Hver fjandinn er þetta fjólubláa?
- Litarsprengja sem var í peningunum.
Hvernig átti ég að vita það?
- Hvers vegna ertu að gramsa
í annarra manna fórum?
- Annarra? Hvaða manna?
Ég sé enga aðra. Þú miðaðir
á mig byssu og tókst mig í gíslingu
og reyndir næstum að nauðga mér.
- Nauðga þér? Ég vil ekki sjá þig.
Hvað með: "Farðu úr öllum fötunum
og leggstu hjá mér"?
Viltu sjá þetta?
Sjáðu þennan fjanda.
Þú verður að gefa mér nýjan pels.
Vertu ekki með þetta gervidrasl
í andlitinu á mér.
Þessir peningar voru
samningsatriðið okkar.
Samningsatriði? Sama er mér.
Það er líka önnur taska
og ef hún er full af peningum
læturðu mig hafa minn hluta
fyrir alla fyrirhöfnina
og ég kveð fyrir fullt og allt.
Hvað er að þér?
Töskurnar eru eins.
Það er líka litarsprengja í hinni.
Það þarf sérstakt tæki
til að aftengja hana.
Fjandinn.
Veistu hvað? Þetta er fín hugmynd.
Ef þú vilt fara ferðu bara.
Og þú færð að halda
öllum peningunum.
Hverju á ég að trúa?
Mér þykir fyrir þessu.
Mamma, hann er fjólublár
eins og Drottinn Krishna.
Gríman kostar 7 dali og 99 sent.
Og ég þarf að skoða
hvað þessi kostar.
Má ég ekki vera með hana?
- Jú, jú.
Eftir að þú tekur hana af þér
og borgar hana.
Matt? Mig vantar verðið
á kerlingargrímunni.
Athuga verð í gangi 3.
Ég bíð enn eftir verði
á kerlingargrímu í gangi þrjú.
Þetta er litarefni. Það næst ekki
af peningunum. Til þess er það.
Nei, fjandinn, ég ætla að ná þessu af
og eyða peningunum.
Fjandinn. Af hverju þarf svona
alltaf að koma fyrir mig?
Ég var nýbúin að fara í greiðslu.
Snúðu þér við.
- Til hvers?
Svo að ég geti þvegið á þér bakið.
Vertu mjúkhentur.
Hérna. Mjólkurkaffi.
Fífl.
Hver borgar þetta allt?
- Peningarnir voru merktir.
Sjáðu baðkerið hérna.
Hver ætlar að þrífa þetta?
Já. Til hvers?
Já, segðu að við séum að koma.
Yfirvarðstjórinn vill finna mig.
- Ég er að tala við þig. Komdu hérna.
Sjáðu baðkerið.
Kúariðuborgararnir eru frábærir.
Afsakaðu.
Varstu að prumpa?
Þú borgaðir 60 dali fyrir að fá
að kyssa á mér rassinn.
Ég hefði átt að gefa þér reykelsi
og stinga því upp í rassinn á þér.
Gæta að vettvangi glæpsins.
- Eins og þú prumpir aldrei.
Ég prumpa ekki svona.
Þessar eru góðar en þær eru
betri hjá Mickey D
af því að þar eru þær steiktar
í silíkoni eða einhverju.
Það er satt.
Sástu myndina um það?
Já, Super Size Me.
Hlustaðu á hljómfallið. Hlustaðu.
Afsakaðu. Þetta er minn bíll.
Mín upptaka. Þetta er minn heimur.
Ef ég er að tefja þig
við að leita að hamingju,
frægð og frama og frá fundi
við Puffy, verður að hafa það.
Þú og upptakan þín
megið ósköp vel fara.
Ég næ sprengjunni úr peningunum
og sendi þér eitthvað af þeim.
Ó, sendirðu mér eitthvað?
Þú ert nískur.
Ég sá hvað þú gafst í þjórfé.
- Ég er blankur.
Nei, þú ert nískur. Ég trúi ekki
að þú myndir senda mér neitt.
Viltu vera einn? Allt í lagi, fínt.
Þá er leið A
að aftengja sprengjuna í hinni töskunni
og láta mig fá peninga.
Eða leið B.
Ég gæti kannski
flýtt mér á næstu
lögreglustöð og sagt:
"Herra lögreglumaður, ég sá
svertingja hlaupa með skjalatösku
af því að hann rændi banka
og hann fór í þessa átt."
Við verðum að finna betri stað.
Já, því ekki að setja þau undir
gólffjalirnar eins og Gacy?
Eins og það myndu ekki finnast
næg sönnunargögn samt?
Upptaka sannar ekki neitt.
Enginn veit hvað er rétt.
Hefurðu heyrt um DNA?
Heldurðu að það fyndist ekki
blóð einhvers staðar?
Við erum tengd saman
til lífstíðar, sæti.
Ertu svangur?
- Veitingahúsið?
Lögum okkur til.
- Já.
Franklin er kominn. Vopnlaus.
- Gott.
Þú gengur frá þessu við vini okkar
hjá Öryggisþjónustunni.
Allt í lagi.
Heyrðu, Frankie!
Hvað segirðu, félagi?
Lastu blöðin í dag?
- Nei.
Meira ruglið, maður.
Það var grein
um að miðskólakrakkar stundi
munnmök eins og ekkert sé.
Þetta er eins og kossarnir voru.
Þú átt dóttur, ekki satt?
Já.
- Hvað er hún gömul?
14 ára.
- Mín er 13 ára.
Tölfræðin sýnir að það eru
hvítir úthverfakrakkar
sem stunda munnmök. Svertingjar,
suðuramerískir og Asíubúar ríða bara.
En hvítu krakkarnir gersigra
í tottinu samkvæmt höfðatölu.
Heldurðu að ég sé að ljúga þessu?
Sjáðu bara sjálfur.
Neðan við greinina um spilltar löggur.
Enn einn atburðurinn
eins og með Rodney King.
Harðhentar löggur
berja fanga og stela
af þeim skartgripum.
Hver kærir sig eiginlega
um svoleiðis glingur?
En þú veist hvernig þetta er.
Spilltar löggur alls staðar láta...
Láta okkur alla líta illa út,
er ekki svo?
Varðstjóri, ég get útskýrt þetta.
Ég er enginn hugsjónamaður.
Ég veit að við leggjum okkur daglega
í lífshættu fyrir léleg laun.
Glæpamenn græða meira
á einum mánuði en við á heilu ári.
Freistingin verður alltaf
til staðar og segir:
"Fjandinn hafi það. Best að bæta
svolitlu við eftirlaunasjóðinn."
En þú komst þessu á annað stig.
- Það er mistúlkun.
Peningarnir voru notaðir í...
- Þegiðu, skíthæll.
Þú tókst peningana
úr sönnunargagnageymslunni.
Þú samdir um að kaupa smyglvarning.
Þegar kaupin færu fram
ætlaðirðu að handtaka seljendurna
og skila peningunum án þess
að nokkur tæki eftir.
Svo selurðu smyglgóssið
eða heldur því sjálfur.
Þetta er ekkert nýtt.
Munurinn var sá að núna setti ég
litarsprengju með peningunum.
Og núna virðistu hafa týnt þeim.
Hvers vegna er ég þá hérna
en ekki fyrir aganefndinni?
Eins og ég sagði,
gera spilltar löggur
okkur lífið leitt.
Ég vil bjóða þér undankomuleið.
Ég hlusta.
- Gott. Í fyrsta lagi
skrifarðu skýrslu um atburðinn.
Þú tekur á þig sökina að hafa týnt
peningunum og ég skrifa undir.
Í öðru lagi vil ég að allar Beretturnar
fari aftur í sönnunargagnageymsluna.
Ég vil ekki vita af þeim á götunni.
Í þriðja lagi
skrifar þú og óþokkarnir, vinir
þínir, uppsagnarbréf
sem ég tek á móti
og leyfi ykkur að losna strax.
Og þú lætur af störfum
með óskert eftirlaun.
Og að lokum, Lee.
Lee fulltrúi fer með þér núna strax.
Þú afhendir allar
eftirlitsupptökur,
myndbönd og hljóðbönd,
sem Lucky er á.
Lucky?
- Lucky.
Gleymdu að þú hafir séð hann.
Lucky er mitt vandamál núna.
Allar þessar flóðbylgjur,
jarðskjálftar og umrót.
Maðurinn er veira
og Guð hefur yfirgefið okkur.
Kjaftæði.
Við hækkum hitastig jarðar
með gróðurhúsalofti, ekki Guð.
Þess vegna eru 5. stigs fellibyljir
algengari núna.
Þetta er miklu verra en það, vinur.
Ég er raðmorðingi.
- Við líka.
Farðu nú að sníkja nammi.
- Bless.
Allt í lagi.
Ef ég gæti komið þér
í keppni í New York
myndirðu þá semja við mig?
- Hvað býðurðu?
Ef þú sigrar þá sigrarðu.
Og ef þú tapar... hættirðu.
Sestu niður, vinur.
Pantaðu grænmetisrétt handa Eugene.
Ég ætla að þvo mér.
Í þessum heimi hamfara
og fuglaflensu
finnst þér þá hlægilegt að ég
skuli hugsa um hreinlætið?
Gerðu það þegar þú þarft.
- Að sjá þig.
Alltaf með fingurna í andlitinu
að dreifa sýklum. Viðbjóðslegt.
Eugene var alltaf sérstakur.
Faðir hans gat ekki tekið því.
Fór áður en drengurinn varð 5 ára.
Hvað átti ég að gera?
Bíða eftir herra Fullkomnum?
Bíða þess að einhver bjargaði okkur
mæðginunum? Lífið gefur ekki afslátt.
Ég verð að borða eitthvað.
Ég er að fá sykurfall.
Svona geðvefrænt kjaftæði.
Ég trúi ekki á svoleiðis.
Eins og síþreytu og þannig.
Ég þekki mann sem dó úr því.
Enginn hefur dáið úr síþreytu.
Hann komst ekki út úr rúminu
til að borða. Það var dapurlegt.
Hlýtur að hafa verið hvítur maður.
- Já, og hvað með það?
Hvítt fólk hefur svo mikinn frítíma.
Við svertingjarnir höfum ekki
tíma í svona rugl.
Gott og vel, dr. Phil,
hvað með suðuramerískt fólk?
Mi madre sagði alltaf að það væru
þrjár tegundir fólks í heiminum.
Fólk sem horfir á hlutina gerast,
fólk sem kvartar undan
því sem gerist
og fólk sem lætur hlutina gerast.
Það er margt sem mig langar
til að gera.
Mér finnst karlmenn bara
tefja fyrir mér.
Hvar er snyrtingin?
- Þarna í gegn og til hægri.
Fínt. Sjáumst.
Ertu með salt og pipar?
Tómatsósu?
Sjáðu þennan náunga.
Heyrðu!
Vertu kyrr.
Góðan daginn.
Ertu að stinga af frá reikningnum?
- Nei, nei, nei.
Það er nógu erfitt að ganga um beina
þótt þær þurfi ekki...
Haltu honum þarna.
- Hvað ert þú að gera?
Hann hefur reynt að forðast mig
síðan ég varð ófrísk.
Ég veit að hann er faðirinn,
sama hvað hann segir.
Ég hef ekki verið með neinum öðrum
síðan ég var síðast á túr. Engum.
Ég sá hann koma út um bakdyrnar
á veitingahúsinu.
Ég hélt hann ætlaði
að stinga af frá reikningnum.
Við vorum ekki búin að panta.
Þú veist að ég er svöng.
Ég borða fyrir tvo.
Verði ykkur að góðu.
- Kærar þakkir.
Við verðum að fara.
Þú vilt að ég hætti að berjast
fyrir fullt og allt.
Okkar vegna.
- Nei. Ég get ekki lofað því.
Hvert ertu að fara?
- Viltu ekki bara borga?
Ég ætla að fara út,
hringja nokkur símtöl
og sjá hverju ég fæ áorkað.
Þetta var ferlegt. Ætlaðirðu
að skilja mig eftir hérna?
Þú ert betur sett án mín.
- Ég var að bjarga þér.
Sjáðu til, framvegis...
Framvegis
gerirðu nákvæmlega það
sem ég segi. Skilið?
Ekki meiri vitleysu.
Skilurðu það?
Ég ætla að hringja í vin minn.
Hann skuldar mér greiða.
Ég athuga hvort við getum verið
í einhverri íbúðinni hans
og haft hægt um okkur um tíma.
Fjárinn. Við þurfum líka
að losa okkur við bílinn.
Davis yfirvarðstjóri
hafði þetta að segja.
Ný þróun hefur orðið í málinu.
Við fylgjum ýmsum vísbendingum.
Við biðjum fólk hér á svæðinu
að hringja í hjálparlínuna.
Verðlaun 200.000 dalir
1-800-LÖGGURÅÐ
Þakka ykkur fyrir.
Það er eins og þú hafir séð draug.
Fyrirgefðu.
Viltu endurtaka þetta?
Já.
Frá!
- Sýndu örlitla kurteisi!
Stöðvaðu bílinn!
Stansaðu undir eins!
Stansaðu!
Stöðvaðu fjandans bílinn strax!!
Hvert þó í...?
Hver fjandinn er þetta?
Ég drep þig! Rainn!
- Hvað er þetta?
Ég skal drepa þig!
Hvað er þetta eiginlega?
Alþjóðlegi hugdettudagurinn?
Manstu þegar við drápum parið?
- Það er ekki málið.
Við borðum alltaf þarna!
Sundum verður maður bara
að vera hvatvís.
Mér þætti vænt um ef þú
varaðir mig við næst.
Ég hafði ekki tíma til
að taka upp myndavélina.
Mér finnst ég svo lifandi núna.
Jesús minn.
Hvað ætlið þið að gera okkur?
Blátt. Blátt.
Blátt fyrir þig, ungfrú.
Fagurblátt. Kærar þakkir.
Hvað ætlarðu að gera okkur?
Roland? Roland?
Svo þetta virkaði.
- Þegar þú segir satt þá segirðu satt.
Ég vissi að þér myndi falla
þetta stelpukríli vel.
Viltu bíða aðeins? Fjandinn.
- Þú þekkir ekki náungann.
Þess vegna er mikilvægt
að koma vel fyrir.
Koma vel fyrir?
- Já.
Ég er hrifinn.
- Eða þannig.
Hver er þetta? Hver er þar?
Lucky er kominn með gest.
Má ég sjá töskuna þína, ungfrú?
Þögn.
Og hætta! Hætta!
Ó, já.
Frábært!
Guð minn góður.
Himnarnir hafa sent mér engil.
Síðan hvenær ert þú á ferð
með sjálfri Venus, Lucky?
Ja...
- Sjáðu, hún roðnar.
Hvað heitirðu, elskan?
- Angela Maria Guzmano del Lopez.
Kölluð Angie.
Þetta þýðir söngkona.
Sjáðu, Mendez...
- Ertu með eitthvað fyrir mig?
Þetta er prufuupptakan mín.
Ekki snerta þetta!
Ert þetta þú, vinan?
- Já.
Sherman! Flyttu Breakman í númer 4.
Lucky, Angie.
Sjáðu til, Mendez...
- Angie, komdu. Komdu.
Þú líka, Lucky, komdu.
Komdu, komdu.
Lucky, sestu. Angie, sestu hérna.
Lucky, sestu, sestu.
Ekki snerta þetta!
Mynd, mynd, mynd.
Gerðu það, Lucky.
Lucky, svona, svona.
Allt í lagi. Lucky, ekki brosa.
Allt í lagi.
Þið fáið bæði hlutverk
í kvikmynd undir eins
og ég borga ykkur 1 000 dali hvoru.
- Mendez, þú gerir það ekki.
Hvað þá? Svona, maður.
Leiktu á móti henni.
Þú gerir það hvort sem er ókeypis
svo því ekki að fá borgað?
Hallaðu höfðinu aftur.
- Er þetta betra?
Hristu höfuðið aðeins.
Já, hristu höfuðið.
Bandaríkjamenn eru enn þá
ruglaðir hvað kynþætti varðar.
Suðuramerískt fólk er í tísku.
Sjáið bara sumar
Hollywood-myndirnar.
Spillta löggan í, Training Day.
Þeir létu Denzel leika á móti...
Evu Mendes.
- Ó, Guð. Glæsileg kona.
Og svo var það þessi
í Fresh Prince of Bel-Air.
Hvað heitir hann nú?
- Will Smith.
Já, þeir létu þá sömu
leika á móti honum.
Og svo var það Catwoman með...
Ég veit hver hann er. Ég veit það.
Benjamin Bratt.
Hann setti punktinn yfir i-ið.
Hafðu svartan gaur með svartri konu
og hvað færðu út? Svarta kvikmynd.
Hvítan með hvítri?
Búið að gera það.
Það þarf blöndu.
Eykur kynþokkann.
Við erum öll með óra
hvert um annað, ekki satt?
Allt í lagi, hætta.
- Antonio. Antonio, komdu strax!
Fljótur.
Antonio, taktu mynd.
Horfðu í myndavélina.
Allt í fínu. Náðirðu þessu?
Hypjaðu þig þá.
Við erum örugg með fólki
af suðuramerískum uppruna.
Hvíta fólkið elskar okkur,
það svarta býr við hliðina á okkur.
Hver myndi ekki vilja ríða einni
sætri og suðuramerískri?
Nema auðvitað hommi eins og ég.
Bíddu hægur.
Sjáðu til, Mendez.
Ég þarf bíl.
Mig vantar bíl og stað þar sem
við getum fengið að vera.
Stend ég í þakkarskuld við þig
eða þú við mig?
Ég var bara að grínast.
Ert þú verndari hennar núna?
Getur hún ekki talað?
Komdu.
- Heyrðu mig.
Svona.
Þarna inni er maður, mamita.
Leikari er leikari. Látið nú eins
og þið njótið þessa.
Í fyllstu hreinskilni
get ég ekki gert neitt í dag
sem ég verð ekki stolt af á morgun.
Heyrðirðu þetta rugl?
- Já, stúlka.
Trúirðu þessu?
Ég vissi ekki að það væru
enn til svona stúlkur!
Þú verður að halda henni, Lucky.
Haltu henni, skilurðu það?
Sherman, hvernig er gírskiptingin
á gamla Eldóradóinum?
Hún er í lagi. Heyrnarlausi bjáni,
náðu í lyklana að Eldó... Fljótur!
Sæktu lyklana
Og að húsinu í sveitinni líka.
Ég hef einmitt rétta staðinn
fyrir ykkur.
Móðir konunnar minnar átti hann
í gamla daga þegar ég þurfti
enn að eiga konu.
Þegar þið komið til baka
gerirðu mér greiða, er það ekki?
Íhugaðu að leyfa mér
að vera umboðsmaður hennar.
Ég tek 10%. Löglega.
Og þú þarft ekki að óttast
að ég reyni að komast yfir þig.
Lyklarnir!
Ekki satt, Lucky?
- Það er satt.
Antonio?
Roland? Ertu ómeiddur?
Elskan, þú ert ekki...
Þú ert ekki einu sinni bundinn.
Leystu mig.
Hlustaðu á mig.
Þau fleygðu veskinu mínu hingað inn
þegar þau komu hingað með okkur.
Manstu eftir piparúðanum
sem þú gafst mér?
Manstu piparúðann?
Ég á hann enn.
Þú ert ofurhetjan mín.
- Ef við eigum að deyja
skulum við gera það
samkvæmt eigin skilmálum.
Í hvern ertu að hringja?
- Hvað? Ert þú karlinn minn núna?
Ég þarf að pissa.
Þá skaltu skrúfa niður rúðuna,
stinga rassinum upp í rifuna
og pissa út um gluggann.
Af því að ég sé ekkert klósett
og ég ætla ekki að stansa.
Roland, þú verður að leysa mig.
Fyrirgefðu, fyrirgefðu. Ég hef
aldrei verið nógu sterkur fyrir þig.
Þú ert nógu sterkur.
Leystu mig bara, gerðu það.
Manstu eftir piparúðanum
sem þú gafst mér?
Manstu piparúðann?
Ég á hann enn þá.
Piparúði. Það er frumlegt.
En maður verður að gefa henni
stig fyrir hugrekki.
Brjáluðu óþokkar.
Stansaðu! Nei!
Stansaðu.
Ég þarf að pissa. Þú verður að stansa.
Ég er alveg í spreng.
Ég verð að pissa, mér er alvara.
Gerðu það, stansaðu.
Allt í lagi.
Ég pissa yfir allan bílinn
eftir augnablik.
Gerðu það, stansaðu.
Þér verður kalt ef...
- Stansaðu bara bílinn.
Ég þarf að pissa.
Ó, Guð.
Ekki horfa.
Þú hefur náð sambandi
við Solly Sol, aðalmanninn.
Tíminn er dýrmætur
svo vertu stuttorður.
Já.
Vinur þinn kom í heimsókn.
Og hver myndi það vera?
- Lucky og nýja kærastan hans.
Þvílík dúkka.
Fleygjum farsímunum.
- Af hverju í fjandanum?
Staðsetningartæki.
Þeir gætu fundið okkur.
Framvegis verðum við ekki
í símasambandi. Vilji þeir leita okkar
geta þeir leitað alla leið
norður til Kanada.
Þakka ykkur fyrir að koma.
Allar kúlurnar sem fundust
á súlustaðnum hafa verið greindar.
Og hvað merkir það?
- Lucky skaut ekki neinn.
Allavega ekki enn.
Hvað með landamæri Kanada?
Þeir hafa ekki sést þar.
Ekki heldur stúlkan.
Það er majónes á þessu.
- Ég sagði þeim að þú vildir sojasósu.
Athugaðu þetta betur næst.
Fjandinn.
Hvað með Franklin?
- Við fylgjumst enn með honum.
Má ég eiga samlokuna þína?
- Já. Blessaður dreptu þig.
Ég held að ég ætti að skipta
um umbúðir á sárinu, Kojak.
Umbúðirnar eru í fínu lagi.
Þú varst með Sol, ekki satt?
Hvað sagðirðu?
- Þú reiðst honum, var það ekki?
Þú áttir að aka flóttabílum
þarna um kvöldið, var það ekki?
Nei. Við þurftum ekki að flýja
fyrr en þú klúðraðir öllu.
Ég klúðraði engu. Þetta var
gildra. Sol var uppljóstrari.
Gino var í félagi með löggunum
og allir reyndu að mata krókinn.
Hafðu ekki áhyggjur af því
að Sol svari símtölunum frá þér.
Hvað?
- Þeir skutu hann. Hann er dauður.
Við skulum fara.
Ef maður væri ekki stundum
óheppinn á lífsleiðinni
væri maður aldrei heppinn.
- Nei.
Nei, ég svaf ekki hjá Sol. Nei.
Sama er mér. Skiptir ekki máli.
- Það skiptir máli fyrir mig.
Ég veit að þú heldur
að af því að ég sé strippari
hljóti ég að sofa hjá öllum,
en það er ekki þannig.
Sol var bara kunningi minn.
- Eða bara vinur?
Já. Þú skilur, hann laumaði
til mín seðlum við og við,
en satt best að segja var hann
aðallega að sýna sig fyrir þér.
Hann var vanur að segja
að þú værir alvörugaur.
Ósvikinn bófi, þú skilur.
Ósvikinn bófi. Alvörugaur.
Ja, froskur er í brunni
og rotta í búri.
Hvað áttu við með því?
Það merkir að allir þessir
alvörubófar þarna úti
eru svo niðursokknir
í eigin hugaróra
að þeir sjá ekki heildarmyndina.
Þeir halda að þeir ráði öllum skítnum
en þeir ráða ekki nokkrum skít.
Líklega vaða þeir í skítnum
en finna bara ekki lyktina.
Sjáðu til, ég gerði eitt og annað.
Ég braskaði og seldi dóp og allt það.
Á ákveðnu tímabili hélt ég
að ég ætti allan heiminn.
Og svo áttaði ég mig.
Vá, maður, ég óð í villu.
Og ég var að drepa fólkið mitt.
Drepa sjálfan mig.
Hef líklega drepið fleiri svertingja
en Ku Klux ***.
Svo þú ert að reyna að finna
leið út úr helvíti?
Ég finn ekki leið út úr neinu.
Og þau sem fylgja mér eftir eru fífl.
Þar á meðal þú.
Og nú bjóða yfirvöld
200. 000 dali í verðlaun
fyrir sagartannamorðingjana.
- Veldu einhverja stöð.
Fjandinn eigi þig.
Lífið er of stutt til að vera vondur.
Bíddu, óþokki! Andskotinn!
Hve langt er eftir?
- Hvernig ætti ég að vita það?
Ætli við værum ekki komin ef þú
hefðir ekki gert bílnum þetta.
Hvað?
Gakktu frá byssunni.
Ökklinn á mér.
Gætirðu hjálpað mér?
- Ég varaði þig við þessum skóm.
Hjálpaðu mér bara að standa upp.
Geturðu ekki gengið?
- Nei.
Fjandinn. Komdu þá.
Bíddu.
- Svona.
Haltu á þessu.
- Allt í lagi.
Ég fylgist með þér.
Fjárinn.
Jesús minn.
Haltu áfram.
Heyrirðu eitthvað?
- Eins og hvað?
Mér fannst ég heyra eitthvað.
Það er kannski ekkert.
Ekki hræða mig, Lucky.
Ég er ekkert fyrir svona
Blair Witch þvælu.
En örugglega hrifin af spennu.
Húsið hlýtur að vera hérna
einhvers staðar.
Ég sé eitthvað.
Ég held...
Ég held að þetta sé staðurinn.
- Þú ert að grínast.
Bíddu hérna.
Ég athuga húsið.
Bíddu, Lucky. Þetta er ekki
eins og það á að vera.
Ekkert ljós.
Ég athuga hvort ég get kveikt.
Gáðu hvort síminn virkar.
Ég hefði átt að vera kyrr í Jersey.
Nei, það er enginn sónn.
Það er enginn sónn.
Hvert ertu að fara?
Lucky.
Ég er næstum viss um að ég
hef séð hann hérna.
Bláan sendiferðabíl.
Ég hefði hringt fyrr en Fred sagði:
"Skiptu þér ekki af þessu."
Hann er slæmur í maganum.
Þið vitið hvernig það er.
Já, ég veit hvernig það er.
Ethel, ég þakka þér fyrir.
Þú hefur kannski bjargað mannslífi.
Og, Fred, ég þakka þér líka.
Heyrðirðu þetta, Fred? Ungi maðurinn
sagði að ég hefði bjargað lífi.
Hvaða vífi?
- Komdu nú.
Hvernig stendur á því að þegar
konur eldast styttist á þeim hárið
og skartgripirnir verða stærri?
Já.
- Varðstjóri, þetta er Lee.
Ertu á vettvangi?
- Nei, ég er á stöðinni.
Þú baðst mig að láta þig vita
þegar hreyfing kæmi á Franklin.
Hvar er hann núna?
- Við Sagartannarmylluna.
Ertu viss?
- Já. Á ég að fara þangað?
Nei, nei, ég fer sjálfur.
Þið hringið strax í mig
ef eitthvað gerist.
Hvað sem er.
Jæja, harðjaxl.
Komdu með pappír í uppkveikju.
Ég fer út og sæki eldivið.
Skildu lugtina eftir.
Og skjalatöskuna líka.
Viltu gera það fyrir mig?
Mig langaði alltaf í sleða
þegar ég var krakki.
Rosebud.
Eins og Citizen Kane?
- Hver?
Sleppum því.
Allt í lagi.
Fyrst setjum við pappírinn.
- Nei, fyrst fer eldiviðurinn.
Nei, nei, fyrst pappírinn.
- Nei, viðurinn.
Heimskur svertingi veit ekki baun.
Hvað?
- Einmitt.
Settu þig ekki á háan hest þótt þú
hafir séð fáeinar kvikmyndir.
Ég er tvítyngd.
Þú ert bara uno svertingi.
Gott og vel. Haltu svona áfram og þú
færð ekki að sofa hjá mér í nótt.
Þetta er ferlegt. Þú ert að hræða mig
til að reyna að fá drátt.
Þvert á móti, ljúfan.
Ég kæri mig ekki um það.
Jæja, ekki það?
- Já, einmitt.
Þú ert allt of mikil drama...
Lucky?
Ég er að leita að einhverju
handa okkur að borða.
Ætlarðu að leyfa mér
að máta þig í skák á eftir?
Þetta er... Niður.
Fjandinn.
Fjandinn!
Allt í lagi.
Þú nærð þér, vinan.
Ég sæki hjálp.
- Nei, farðu ekki frá mér.
Sjáðu til.
Hafðu þetta hjá þér.
Svona.
Ég sá bóndabýli hér nærri.
Ég fer þangað
og fæ að hringja
á sjúkrabíl. Allt í lagi?
Lucky?
Ég bjarga þér, vinan.
Skilurðu töskuna eftir?
Ég vil vera viss um
að þú komir aftur.
Auðvitað kem ég aftur.
Auðvitað.
En hvað ef einhverjir fleiri koma?
Ef það líður yfir þig og peningarnir...
Ég held að ég...
Ég fel hana einhvers staðar.
- Gerðu það.
Allt í lagi.
Ég kem aftur.
Þú varst að segja "rotturass."
Þú kennir mér þetta seinna.
Ekki fara neitt.
Elskan, veistu hvað?
Þú mátt ríða henni fyrst.
Í alvöru?
Viltu varpa hlutkesti?
Nei.
Ég er í skapi til að horfa á.
Þá mátt þú skera fyrst.
Samþykkt.
Ímyndaðu þér bara það versta
sem þú getur hugsað þér.
Þegar við höfum lokið okkur af veistu
hvað þú hefur takmarkað ímyndunarafl.
Fjandinn. Elskan?
Hvað?
- Við verðum að afgreiða þetta.
Eugene er með sjónvarpið á fullu.
Maðurinn veit að einhver er heima.
Veit fólk virkilega ekki betur
en að koma óvænt í heimsókn?
Mér þykir leitt að ónáða ykkur.
Það varð slys í húsinu mínu hérna
handan vegarins og síminn er óvirkur.
Gætirðu hringt á sjúkrabíl
fyrir okkur?
Ég hélt að húsið væri í eigu
einhvers bófa. Mendez?
Hélstu það?
Hann lánaði okkur það um tíma.
Þú verður að hjálpa okkur.
Komdu inn.
Kærar þakkir.
Mér þykir fyrir þessu.
Fáðu þér sæti.
Má bjóða þér köku og tesopa?
- Nei, þakka þér fyrir.
Ég verð að flýta mér.
- Auðvitað.
Ég sæki símann undir eins.
Ertu kolvitlaus?
Láttu mig um þetta, Walter.
Lee, ég fór tvisvar fram hjá
myllunni. Hvað er á seyði?
Ég veit það ekki, varðstjóri.
Bíll Franklins hlýtur að vera þar.
Staðsetningartækið segir
að þú sért við hann.
Þakka þér fyrir.
Gjörðu svo vel.
- Kærar þakkir.
Ég met þetta mikils.
Hann virkar ekki.
Það hlýtur að vera af því
að ég tók hann úr sambandi.
Þetta skil ég ekki.
Lögreglan.
Leggðu frá þér byssuna.
Leggðu hana frá þér!
Hvar er Lucky?
Líklega kominn til Mexíkó.
Fyrst var nóta.
Svo var engin nóta.
Hver fjandinn er á seyði?
Þau drápu Roland.
Þau heyra allt sem þú segir.
Gott.
Þetta hefur verið ömurlegur,
andskotans dagur
og ef þetta sóðapakk ætlar
að halda áfram að ergja mig...
Það er óþarfi að uppnefna mann.
Það verður og fer sem fer.
Öll erum við börn
alheimsins.
Andaðu djúpt.
Þau létu okkur halda að við
gætum flúið og svo komu þau
og skáru hann á háls.
Hann var hnefaleikakappi.
Við ætluðum til New York.
Þau drápu hann bara.
Svona, svona, þú mátt ekki
missa stjórn á þér, skilurðu?
Haltu ró þinni.
Vertu róleg.
Hvað er á seyði?
Hvað gengur á?
Já, einmitt. Lítið á mig.
Hvernig líður þér, negri?
Hvað er að frétta?
Hvað er að gerast?
Ó, þú horfir á...
Hvað? Hvað?
Veistu ekki hvað tímanum líður?
Ég held að þú vitir ekki hvað
tímanum líður? Veistu það?
Það er komið að sýningunni!
Þið tapið.
Hver fjandinn er þetta?
Heyrðu, heyrðu?
Erum við í Mexíkó?
Ef þú vilt komast í hæfnispróf
kem ég þér í hæfnispróf
hjá Náttúruvernd.
Þú verður að sleppa mér.
Tvö stig!
Þú berð þig ekki rétt að.
Hætta upptöku!
Hvað áttu við?
Þú beinir höggunum
ekki niður á við.
Sjáðu til, góði.
Ég hef lært sjálfsvarnarlist í 17 ár
svo þú skalt ekki gagnrýna
aðferðina hjá mér.
Æfirðu alltaf á móti manni
sem er bundinn í stól?
Já. Svo þú vilt að ég
sleppi þér, er það ekki?
Ef þú værir karlmenni
myndirðu leysa hann.
Æ, fjandinn.
Bill er aftur mættur til leiks!
Athugaðu það, Cass.
Þetta er svo sætt.
Hvert erum við að fara?
Ég fer með þig á sjúkrahús.
Fíflið sagðist ætla að sækja hjálp.
Hann skildi mig eftir.
Höfum við ekki gert þetta áður?
En það er fínt af því að...
Ef ég fæ hann til að fella stólinn
einu sinni enn
get ég losað mig úr þessu.
Nei, þau gera það ekki.
- Jú, víst.
Ég var að segja...
Áður en þú kynnir mig
fyrir herra Litlaputta
býst ég varla við að ég
geti vakið áhuga þinn
á tösku fullri af peningum, er það?
Líklega ekki.
Þú hefur engan áhuga á peningum.
Ég sé hvað þú og vinur þinn
skemmtið ykkur við.
Og auðvitað leiða taska
full af peningum og svartur maður
mjög líklega til þess
að lögreglan láti sjá sig
áður en langt um líður.
- Hlustaðu ekki á hann.
Já, já.
Því læturðu ekki
Bruce litla Lee ráða öllu?
Ekki ögra mér.
Sjáðu nú til,
ég á skítnóg af peningum í tösku.
Ég faldi hana í pallbíl.
Hætta, hætta!
Hver er fyrsta reglan?
Láttu ekki blekkjast
af þessum brellum.
Talaðu ekki svona við mig.
Þeir eiga hvort sem er öll
þessi bílflök þarna úti.
Bruce, hverju hefurðu að tapa?
Farðu og gáðu.
Ég skal segja þér eitt.
Þú hefur miklu að tapa.
Hvað ætlarðu að gera?
Pynda mig?
Ó, það eru til pyndingar
og svo eru til pyndingar.
Heldurðu að núna sé ég
í vikufríi frá fjölskyldunni?
Ég þekki þig,
en þú þekkir ekki mig.
Hve oft höfum við mæst
í verslunarmiðstöðinni?
Þú hlustar á bófarapp
og þykist kaldur karl.
Og þú, með fínu klippinguna,
ert alltaf með ruddalegar
athugasemdir.
"Sjáið kerlinguna
með vangefna barnið." Þið öll.
Þið særðuð Eugene stöðugt
þegar hann var lítill.
En ég læt ykkur gjalda þess.
Er ekki svo?
Ætlið þið aldrei að læra?
Heldurðu að þú þekkir kvalir?
Abu Ghraib er ekki neitt
samanborið við okkur.
Ég leyfi ykkur að finna kvalir.
Hún er svo tilfinninganæm.
Hvað með peningana?
Já, hvað með peningana?
- Peningana?
Já, manstu?
Í bílnum.
Úti í 5 mínútna fjarlægð.
Og hvað vilt þú fá í staðinn?
Sjáið nú til.
Þið leyfið mér að fara
og ég útvega ykkur meira.
Hvernig væri að ég tæki
peningana, dræpi þig,
og hefði svo engar áhyggjur
af því að það væri meira til.
Undir vélarhlífinni.
Hvað er þetta með ykkur Lucky?
Við eigum okkur sögu.
Ég hef nógan tíma.
Lucky, vinur þinn,
eyðilagði mörg mannslíf.
Mjög mörg líf.
Réttlætinu var aldrei fullnægt.
Því verður fullnægt núna.
Talnalásinn?
- Hún er ekki læst.
Bíddu aðeins, ljúfan.
Náum þessu á myndbandið.
Allt í lagi?
Ertu tilbúinn?
- Tilbúinn, elskan.
Hamingjan sanna, Walter.
Ég held að þeir séu ósviknir.
Nei, bíddu hæg!
Á ég að grátbiðja?
- Nei
Þú átt að öskra.
Já.
- Lucky hringdi í LÖGGURÅÐ.
Hvað?
- Hann vill tala við þig.
Rektu símtalið. Ég reyni
að halda honum við efnið.
Gefðu honum samband.
- Sæll, Davis.
Ég er með dálítið sem þú vilt fá.
Engir fjandans samningar núna.
Sagartannarmorðingjana.
Kannastu við sagartannarmorðingjana?
Mér datt í hug að þetta
myndi þagga niður í þér.
Ég er með óþokkana.
Því skyldi ég treysta þér?
- Því skyldi ég treysta þér?
Komdu bara og sjáðu sjálfur.
Hafðu sjúkrabíl með þér.
Hvar ertu?
- Láttu ekki svona, maður.
Eins og þú vitir það ekki?
Lee, náðirðu þessu?
- Þetta er ótrúlegt.
Hann er þar sem þú varst.
- Hvað þá?
Å gamla bóndabýlinu, 5 mínútna
akstur norður af myllunni.
Geturðu farið þangað?
- Já.
Gott. Ég sendi strákana af stað.
- Ég sný við.
Það var mikið.
Sjáðu. Sagartannarmorðingjarnir.
Viltu sjá?
Þarna.
Já, þarna.
Þessi brjálaða kerling
og Mexíkóinn.
Þau myrtu kærastann minn.
Þau ætluðu að drepa okkur næst.
- Hver ert þú?
Rainn Bentley.
Þessi maður bjargaði lífi mínu.
Þau gerðu meira að segja
myndbandsupptökur af þessu.
Þau eiga allan
óþverrann til á bandi.
Tóku það upp á myndband
þarna inni.
Ég verð að fara.
- Hægan.
Bíddu við.
Heldurðu að þú sért
laus allra mála?
Sjáðu til, það er kona
sem ég þarf að fara til.
Áttu við Angelu?
Hún er fyrir utan.
Mamma!
Brjálæðingur!
Allt í lagi.
Ég læt fella ákæruna
gegn þér niður.
Ég hringi á sjúkrabíl.
Farðu nú.
Gott.
Heyrðu mig.
Þessu er lokið. Komdu.
Þessu er lokið.
Því er lokið. Allt í lagi?
Komdu nú.
Allt í lagi.
Ég treysti þér
en þú komst ekki til baka.
Elskan, ég var...
- Hvar eru peningarnir?
Peningarnir? Ég var...
- Þú ert fjólublár! Nei, fjandinn!
Þegar ég lít til baka
var þetta mesti lukkudagurinn
í lífi ólánsams manns.
Segðu þeim frá peningunum.
- Já, einmitt.
Og við Angela vorum svo heppin
að fá líka 200. 000 dali í verðlaun.
Ó, já.
Ó, já.