Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hin ástkæra Bast,
gyðja hamingju og gnægða.
Kattamúmíur.
Egypskir Mau kettir.
Ný kattartegund
seld hérna.
Nornir.
2000 dollara verðlaun.
Djöflar.
Hálsmeni stolið.
Grímuklæddur
skartgripaþjófur.
Fjölskyldu bjargað af
svartklæddri konu með grímu.
Christine Novak.
Fljúgandi pardusdýrið.
Kattavinir flytja inn
egypska Mau ketti.
Fluttur til Bandaríkjanna
árið 1940.
Fluttur inn af landflótta
rússneskri prinsessu.
Þetta byrjaði allt
daginn sem ég dó.
Ef það hefði verið
skrifuð dánartilkynning
hefði hún líst ómerkilegu lífi
ómerkilegrar konu
sem skildi eftir sig
enga fjölskyldu.
En það kom engin
dánartilkynning
því daginn sem ég dó
lifnaði ég við.
En það kemur síðar.
Þetta var lífið mitt.
Dagarnir runnu saman
og voru allir eins,
þökk sé starfi sem var
hagnýt útgáfa ástríðunnar.
-Fyrirgefðu.
-Passaðu þig.
Nú átti ég að vera
orðin listamaður.
Þess í stað
hannaði ég
snyrtivöruauglýsingar.
-Þú ert orðin háð þessu, Sally.
-Sem betur fer,
-því Beau-line er fegurð í dollu.
-Hvar færðu þetta?
-Þetta er ekki enn komið í sölu.
-Við höfum okkar leiðir.
-Viltu?
-Nei.
Höfuðverkurinn. Heilinn
á mér er hálf undarlegur.
Eftir nákvæmlega eina viku
setjum við á markaðinn merkilegustu
snyrtivöruna síðan
sápan kom fram.
Beau-line.
Beau-line felur ekki
aðeins öldrunareinkennin
heldur snýr þeim við.
En allar breytingar
krefjast fórna.
Við eiginmaður minn
höfum ákveðið saman
að ég víki úr sæti
sem andlit Hedare.
Þetta hafa verið
ótrúleg fimmtán ár
en við völdum nýtt andlit
til að kynna Beau-line.
Nákvæmlega.
Drina.
Framtíð Hedare-fegurðar.
Ég hlakka til að hitta
ykkur öll
í veislunni þar sem þið getið skálað
fyrir Drinu og velgengninni.
Varlega, George. Hún er varla
nógu gömul til að drekka.
Þú ert hæfileikaríkari
en nokkur annar hérna.
Þetta er fyrsta herferðin mín
og verður að vera fullkomin.
Hvað er að þér?
Gangi þér vel.
Þú stóðst ekki mátið
og varðst að vera
með stæla.
Hvað er að þér?
Stal ég augnablikinu þínu?
Kom inn.
Sæll, herra Hedare.
Viltu hitta mig eða...
-Sestu niður.
-Einmitt.
Ég er ekki ánægður.
Þetta er hvergi nærri því
sem ég vildi.
Ég veit ekki hvað
þú varst að hugsa.
Ég biðst afsökunar.
Sjáðu þennan rauða lit.
Ég vildi hafa hann dekkri.
-Ég heyrði þig segja...
-Ég veit hvað ég sagði.
-Þá hef ég kannski misskilið þig.
-Augljóslega.
Ég veit að ég get lagað þetta.
Ég skal laga þetta ef þú
gefur mér tækifæri.
Ég verðlauna
aldrei vanhæfni.
Hvers vegna ætti list þín
að vera smekklegri en fötin?
Reyndu svo að fara
í handsnyrtingu.
Í guðanna bænum.
Leyfðu henni að laga þetta.
Þú veist að hún er góð.
Einmitt.
Fyrir morgundaginn.
Miðnætti.
Þakka þér fyrir.
Afsakið. Halló.
Er nokkuð hægt
að lækka tónlistina?
Bara aðeins?
Ekki? Jæja þá.
Kisa.
Hvernig komst þú þangað?
Komdu niður.
Ertu föst?
Þú ætlar að láta mig
fara út og sækja þig.
Bíddu nú róleg.
Hvað sem þú ert að hugsa
eða hvernig þér líður...
Þetta er ekki þess virði. Skilurðu það?
Ég er lögga. Kannski get ég hjálpað þér.
-Það er allt í lagi.
-Hlustaðu á mig.
Við getum ráðið fram úr þessu saman.
Hvað heitir þú?
Patience Phillips.
En kötturinn...
Hann er alveg
svakalega fallegur.
-Mjög sætur.
-Kötturinn er ekki þarna lengur.
Þess vegna ertu
eflaust mjög döpur.
-Í hvaða íbúð ertu?
-Tuttugu og þrjú.
Drífðu þig.
Ég náði þér.
-Er allt í lagi?
-Þakka þér fyrir.
Er örugglega allt
í lagi með þig?
Þetta er kötturinn.
Var þér alvara?
Fórstu út til að bjarga
kettinum þínum?
Nei, þetta er ekki
kötturinn minn.
Varstu að bjarga
einhverjum ketti?
Það er ótrúlegt.
Guð minn góður.
Ég er of sein í vinnuna.
-Ég þarf að skila verkefni í dag.
-Gangi þér vel.
Þakka þér fyrir.
Thank you!
Það getur enginn
sigrað Ellikerlingu.
Þú barðist samt
ansi hatramlega.
Gerir Beau-line
ekki kraftaverk?
Svo sannarlega.
Það er nóg að gera í dag.
Hanastél og kvöldmatur.
Ekki vaka og bíða eftir mér, elskan.
Ég hætti að bíða
fyrir löngu.
Ég kemst ekki heldur
í hádegismatinn á morgun.
Einhver vandræði?
Ég efast um það
en Slavicky hættir ekki að hringja.
Þú þekkir vísindamenn.
Þeir eru verri en fyrirsætur. Maður
þarf að dekra við þá eins og smábörn.
Ég læt Wesley finna
annan tíma. Bless.
Flott mannakjöt,
beint framundan.
Guð minn góður.
Sæl, fröken Phillips.
Komdu sæll.
Þetta er lögregluþjónninn
sem ég sagði þér frá.
Lone fulltrúi.
-Tom Lone.
-Það er frábært nafn.
Tom Lone.
Það rímar við bón,
sjón og gón.
En rímið skiptir ekki
svo miklu máli.
Ég verð bara á mínu svæði.
Alein.
-Sæll.
-Sæl.
Hvernig fannstu...
Þú misstir þetta.
Það getur verið mikill
asi á þér.
Takk.
Er þetta eftir þig?
Já.
-Þetta er flott.
-Þakka þér fyrir.
Minnir mig á Chagall.
Fágað en duttlungafullt.
Þetta fylgir hefð
-gömlu hollensku meistaranna.
-Ég er hrifin.
Ekki vera það. Ég sá listaverkin hjá þér
og skellti mér á Netið.
-Þetta er samt glæsilegt.
-Þakka þér fyrir.
Ég biðst afsökunar á því
að halda að þú værir klikkuð.
Ég vil bæta þér þetta
og bjóða þér kaffibolla.
Það er góður ítalskur staður,
Grecchios, hérna nærri.
Kannski á morgun.
Klukkan eitt?
-Allt í lagi?
-Er það ekki?
Sjáumst á morgun
klukkan eitt.
Sjáðu til þess að hún mæti.
-Ég stóla á þig.
-Ef ég klúðra þessu
máttu fleygja lyklinum.
Sjáumst á morgun.
Já, bless.
Patience.
-Þessi maður er virkilega hrifinn af þér.
-Heldurðu það?
-Halló?
-Það er nóg að gera.
Þú þarft að raka
þessa fótleggi.
Svo ferðu á stefnumótið
í leðurfötunum sem ég gaf þér.
-Manstu eftir þeim?
-Í fyrsta lagi er þetta bara kaffibolli.
Í öðru lagi fer ég aldrei
nokkurn tíma í leðurfötin.
Góða nótt.
Þetta er Patience
í hönnunardeildinni.
Það átti að koma sendill
til mín og sækja...
Þetta verður að komast
þangað fyrir miðnætti.
Ég veit að þetta
er ekki þín sök.
Allt í lagi.
Ég skal fara með þetta sjálf.
Halló? Er einhver hér?
Láttu ekki svona, Slavicky.
Hvenær fékkst þú samvisku?
Mér er sama þótt eftirlitið
viti ekki af höfuðverkjunum,
ógleðinni eða því
að fólk falli í yfirlið.
Þetta eru aukaverkanir
sem ég sætti mig við.
Halló?
Við græðum svo mikið á því
að kaupendur vilji sinn skammt
að mér er sama þótt
þetta sé vanabindandi.
En þessar aukaverkanir
eftir mikla notkun...
Þetta gerist ekki ef þær
nota vöruna stöðugt.
Við munum sjá til þess,
því þaðan koma peningarnir.
Ég er ekki svo viss lengur.
Halló?
Ég hélt að ég gæti
lifað með þessu
en ég get ekki breytt
fólki í ófreskjur.
Jesús minn.
Ég verð að hætta við þetta.
Við megum ekki selja kremið.
Hver er þarna?
-Komdu inn.
-Ég kem strax.
Þú mátt koma.
Þetta er allt í lagi.
Við þurfum bara að spyrja
þig nokkurra spurninga.
Afsakið.
Ég held að ég sé í vitlausu...
-Hvað ertu að gera?
-Þú skalt aldrei gera þetta aftur.
Hvar er hún?
Hún stökk beint
í skolpleiðslurnar.
Við vitum ekki hver hún er
en við vitum hvað hún heyrði.
Við getum ekki tekið
áhættuna. Drepið hana.
Lokaðu hleranum.
Patience Phillips,
ég er svo stolt af þér.
Nú ertu örugglega
að sötra kaffi
og láta þig dreyma um að
sleikja rjóma af vörum hans.
Nei, þetta er það sem ég er að gera.
Hvernig gekk kynningin?
Fékkstu ókeypis prufur?
Þetta er Tom Lone.
Ég er að bíða hérna á Grecchios.
Þú ert ekki mætt.
Ég verð að fara
aftur í vinnuna.
Bless.
Jæja, kisa. Nú þarft þú
að fara heim til þín.
Ert þú Ophelia Powers?
Ég náði kettinum þínum
af syllu og síðan þá...
Miðnætti mín.
Þú hefur aldrei áður komið
með ókunna manneskju heim.
Komdu inn.
Ég get það ekki,
ég verð að fara.
-Miðnætti.
-Hvað segirðu?
Hún heitir það.
Þetta er egypskur Mau,
mjög sjaldgæf tegund. Musteriskettir.
Það er sagt að þeir
hafi sérstaka krafta.
Eins og að birtast
upp úr þurru?
Meðal annars.
Kötturinn þinn...
Sókrates.
Ekkert koffein.
Hann verður svo
önugur af því.
Þú virðist vera
utan við þig.
Kannski er það
vegna kattanna.
Þeir virðast undarlega
hrifnir af þér.
Þetta hefur verið
mjög slæmur dagur.
-Ég man ekki mikið frá gærdeginum.
-Kannski get ég aðstoðað þig.
Þetta er ekki þitt vandamál.
Ég veit ekki hvers vegna ég er hérna.
-Þetta er allt í lagi. Segðu mér frá.
-Nei, ég er orðin of sein í vinnuna.
Komdu hvenær sem er.
Ég er alltaf hérna.
Kattarminta.
Það er allt í lagi.
Hvað er að þér?
Þú skilaðir aldrei
hönnuninni þinni.
Þú veist ekki einu sinni
hvar verkefnið er.
Þú veist ekki hvar þetta er
því þú segist ekki muna það.
Þessi vanhæfni
er yfirþyrmandi.
Ertu ekki að hlusta á mig?
Fyrirgefðu.
Fyrirgefðu?
Það er ekki nóg.
Þá skal ég reyna
þetta aftur.
Ég sé eftir hverri sekúndu
sem ég hef sóað í að vinna
fyrir lélegan og siðlausan
sjálfselskupúka eins og þig.
Taktu til dótið þitt.
Þú ert rekin.
Bíddu, herra Hedare.
Ég meinti þetta ekki.
Eða hvað?
Hetjan mín.
Ég get ekki líst því.
Ég sagði þetta en sagði það
samt ekki. Skilurðu mig?
Öll hönnunardeildin þakkar
þeirri sem sagði þetta.
Þú skilur þetta ekki.
Ég vildi særa hann.
-Hvað var þetta?
-Kannski ofnæmi.
Það var verið að reka þig.
Það er svo fallegt.
Sal?
Sally.
Þeir halda manni í rannsóknum
en rannsaka mann aldrei.
-Vita þeir hvað er að þér?
-Þeir hafa ekki hugmynd.
Ég fór samt í margar
skemmtilegar athuganir.
Einn kostur. Þú verður
að sjá lækninn minn.
Ég sé að þér
líður strax betur.
Hvað er að frétta af sæta
og hógværa
lögregluþjóninum?
Þetta gengur ekki.
Þú heldur aldrei
að hlutirnir gangi.
Þeir gera það aldrei og nú
hef ég góða ástæðu. Trúðu mér.
Nú neita ég að leyfa þér
að eyðileggja góðan hlut.
Ef eitthvað er að,
skaltu laga það.
Ég elska þig og hann mun
elska þig líka. Farðu nú.
Farðu og láttu hann
finna fyrir þér.
Ég þarf að hitta
sæta lækninn minn.
Segðu að ég virðist
varnarlaus.
Að vera góður er eitthvað
sem maður velur sjálfur.
Það er ekki auðvelt.
Margir velja að vera vondir.
En ég vil eitthvað
betra handa ykkur.
Er það skilið?
-Megum við sjá byssuna þína?
-Nei.
-Ég vissi að einhver...
-Viltu skjóta?
Nei.
Ég vil að þið verðið góð.
Er það skilið?
-Já.
-Förum nú í körfubolta.
Ég hringdi á stöðina og þeir
sögðu að þú værir hérna.
Afsakaðu.
Þú fékkst aldrei
þennan kaffibolla.
Þú ert hugrakkur að mæta svona skríl.
Einn og óvarinn.
Ég vinn oftast einn.
-Er það val?
-Já, þeirra val.
Ég hef unnið með öðrum
en ég tek starfinu
of alvarlega.
Sally vinkona segir
þetta sama um mig.
Hún segir að ég kunni
ekki að skemmta mér.
Ég trúi því ekki.
Einn á móti einum?
-Við tvö?
-Gerðu það.
Viltu prófa?
Ég hef ekki gert þetta
síðan ég var krakki.
Megum við fá
boltann okkar?
Mér sýnist þú kunna
að skemmta þér.
Herra Hedare verður
í verksmiðjunni í allan dag.
Áttu við að hann
verði á hóteli
að kenna Drinu
að opna mini-barinn?
Hann sagðist ætla
að vinna með...
George hefur ekki sagt neitt
mikilvægt síðan hann sagði já.
-Halló?
-Á þessari tækniöld
ætti að vera ferðabar hérna.
-Mér heyrist þér líða miklu betur.
-Ég fékk einhver ný lyf.
-Hvað er á seyði?
-Ég er bara að laga örlítið snarl.
Ég vil vita hvort þú lagaðir
sambandið við lögguna.
Ég held að ég
hafi gert það.
Gefðu mér smáatriðin.
Hafðu þetta gott.
Ég sit hérna í pappakjól.
Við töluðum saman
og spiluðum körfubolta.
-Spilar þú körfubolta?
-Það er víst.
-Ég tróð næstum yfir hann.
-Hef ég ekki kennt þér neitt?
Þú sigrar ekki karlmenn
í íþróttum. Þá ruglast þeir.
Þeir enda í stuðningshóp,
berjandi á trumbur.
Ég ætlaði ekki að gera það.
Þetta gerðist bara.
Það er eitthvað undarlegt
að gerast við mig.
-Ég stökk á hann.
-Svona er girndin.
-Dýrslegt aðdráttarafl.
-Heldurðu það?
Hvað ef það versnar?
-Hvað ef næst...
-Bauð hann þér aftur út?
-Ég dýrka þennan náunga.
-Ég líka en ég hef meiri áhyggjur af mér.
Mér fannst eins og ég
gæti ekki verið ég sjálf.
Vertu bara ég næst
þegar þið hittist.
-Sally.
-Ég er að stríða þér. Vertu bara þú sjálf.
Ég sjálf.
-Ég skal reyna það.
-Ég verð að hætta.
Verðandi barnsfaðir minn
er að koma. Góða nótt.
Afsakaðu.
Ég held að ég sé með hita.
-Slökktu á þessu.
-Eignastu líf.
Eignastu líf, lúðinn þinn.
Því miður er þetta
ekki náttfatapartí.
En...
í þínu tilviki get ég
gert undantekningu.
Þvílíkur heiður.
En gætirðu nokkuð...
lækkað tónlistina...
örlítið?
Ég skal gera það sjálf.
Heyrðu, viðundur...
Fyrirgefðu, hvað varstu að segja?
Er tónlistin ennþá of há?
Heyrirðu þetta?
Þetta kallast þögn.
Það eina sem ég vildi.
Hafðu nú hljótt um þig.
Takk fyrir teitið.
Þetta var stuð.
Opnist í stefnumótaneyð.
Ástarkveðja, Sally og Lance.
-Tími til að finna nokkra aukahluti.
-Hún er að stela mótorhjólinu mínu.
Viðvaningar.
Þykist þið geta komið hingað
og stolið þessu fallega dóti?
Alveg malandi hugmynd.
Þetta er einstakt.
-Það er frá Egyptalandi.
-Þetta er ansi mögnuð lýsing.
Þeir segja að hún hafi
stokkið um eins og köttur.
Hvað eigum við að kalla hana?
Kattarstúlku eða Kattargellu?
Hvað ertu með?
Afsakið.
Formkökur?
Leit: Kettir, konur.
Kattholt.
Kettir í sögunni.
Kattadýrkun.
Djöfullegir kettir.
Nornir.
Tekin af lífi.
Kettir í Egyptalandi.
Hin ástkæra Bast,
gyðja hamingju og gnægða.
Mau kettir fluttir inn
til Bandaríkjanna árið 1940.
Miðnætti.
Ég vissi að þú kæmir aftur
þegar þú værir tilbúin.
Gyðjan Bast.
Mau kettir eru heilagir vegna Bast.
Sendiboðar hennar.
-Skrifaðir þú þetta?
-Ég var prófessor í tuttugu ár.
Þangað til mér var
neitað um fastráðningu.
Karlaheimur vísindanna.
Bast er einstök.
Hún er gyðja tungls og sólar.
Hún táknar tvíeðli allra kvenna.
Auðsveip en ágeng.
Fóstrandi en grimm.
En hvernig tengist
allt þetta mér?
Hvað kom fyrir þig
um daginn?
-Ég man það ekki.
-Á ég að segja þér það?
Já.
Þú lést.
Hvað áttu við?
Ég lést ekki.
Ég er hérna núna.
Þú lést
-en svo varstu endurfædd.
-Þú ert klikkuð.
-Þú ert klikkuð kattakerling.
-Miðnætti vissi um örlög þín.
Þess vegna
prófaði hún þig.
Til að athuga hvort þú
verðskuldaðir gjöf hennar.
Gjöf sem gæti
breytt lífi þínu.
Gefið þér nýtt líf.
Þú ert ekki ein, barnið mitt.
Hún hefur bjargað öðrum
á undan þér. Sjáðu.
Kattarkonur fara ekki
eftir lögum samfélagsins.
Þið fylgið ykkar
eigin löngunum.
Þetta er bæði
blessun og bölvun.
Þú verður oft ein
og misskilin.
En þú færð meira frelsi
en nokkur önnur kona.
Þú ert Kattarkona.
Hver sjón, hver ilmur
og hvert hljóð hefur aukist.
Þú ert ofsalega sjálfstæð,
með tröllaukið sjálfstraust
og ómannleg viðbrögð.
-Er ég þá ekki Patience lengur?
-Þú ert Patience
og Kattarkonan.
Þú verður að sætta þig
við þetta, vina mín.
Þú hefur verið
lokuð inni alla ævi.
Ef þú sættir þig
við það sem þú ert,
allt sem þú ert,
getur þú orðið frjáls.
Frelsi er máttur.
Þú bjargaðir lífi mínu, Miðnætti.
En einhver drap mig.
Ég verð að vita hver
gerði það og hvers vegna.
Ertu búinn að ganga frá
Slavicky?
Það er búið.
-Ég var hérna í allt kvöld.
-Ekki spurning.
Þú mátt eiga afganginn.
-Hvað má bjóða þér?
-Hvítan Rússa
með engum klaka,
*** eða Kahlua.
Hreinn rjómi.
Ertu að leita að einhverju?
Þú drapst góða stelpu
fyrir skömmu. Hvers vegna?
Kalt er kattargaman.
Ég veit það ekki. Mér var bara
sagt að sturta henni burt.
-Hvers vegna?
-Ég veit það ekki.
Það er eitthvað
að Beau-line kreminu.
Hún heyrði eitthvað sem hún átti ekki
að heyra. Ég veit ekki meira.
Er Hedare að leyna
þessum sannleika?
Ég get ekki breytt
fólki í ófreskjur.
Þú lítur svo vel út.
-Ertu ánægð?
-Þetta er æði.
Flott hárgreiðsla.
-Stóð ég mig vel?
-Virkilega vel.
Þessi maður er
að gera þér gott.
Ertu ekki ánægð að ég ýtti
þér út í þetta? Má ég heyra?
Þakka þér fyrir.
Hérna eru föt
og smá nammi.
Verður allt í lagi með þig?
Mér líður mun betur. Ég hef líka
ekkert drukkið í nokkra daga.
Sjáðu þetta.
Klikkuð gella í kattarfötum
myrti Slavicky í gærkvöldi.
Þessi brjálæðingur mun ekki
halda Beau-line frá ykkur.
Við hefjum sölu í næstu viku
eins og áætlað var.
Konur landsins eiga það
inni hjá okkur.
Þessi gaur er algjör smeðja.
-Ég er að verða búin.
-Má ég sjá.
Hversu lengi hefur þú
fengið þessa höfuðverki?
-Í einn mánuð.
-Gerðu mér greiða.
Hættu að nota þetta.
Þetta gerir þig veika.
Trúðu mér.
Þetta er handa Tom
frá tæknideildinni.
Þú vilt kannski athuga
Slavicky-morðið líka.
Leyfðu mér að spyrja þig
að einu, Bob.
Gæti konan þín klifrað út
á syllu til að bjarga ketti?
Kannski. Ef kötturinn
væri með pítsu.
Það er margt líkt.
-Lögun S-anna og hörðu R-in.
-Var þetta skrifað af sömu manneskju?
Þetta getur aldrei
verið öruggt.
En þessi rithönd... Breitt á milli stafa,
merki um einmanaleika.
O-ið táknar óöryggi.
Skrift manneskju sem vill samþykki.
Sjáðu nú sveifluna
á þessu ypsiloni.
Þessi er sjálfsörugg
og næstum því reið.
Þessi manneskja fer
ekki eftir reglunum.
-Svo þetta eru tvær ólíkar manneskjur.
-Mjög svo.
Ef þú setur þær báðar
í sama herbergið,
verður svaka stuð.
-Er skemmtileg helgi framundan hjá þér?
-Já, núna.
Áttu ekki að leyfa
mér að vinna?
Ég er ekki þannig stúlka.
-Hvernig stúlka?
-Sú sem tapar.
Má ég spyrja þig að einu?
Þú vinnur hjá Hedare.
Starfsmaður þar var
myrtur um daginn.
Fyrirgefðu.
Veistu hver gæti haft horn
í síðu fyrirtækisins?
Fullt af fólki. George Hedare
er ekki sá besti í heiminum.
Hann rak mig.
Hvað? Er ég núna grunuð
um þetta?
Nei.
Við verðum líklega
hérna uppi um hríð.
Ertu að flýta þér?
Mamma.
Verið alveg kyrr.
Haltu þér fast.
Ég verð að stöðva þetta.
-Mamma.
-Frankie.
Mamma.
Mamma.
Hjálp, mamma.
Þú ert virkilega harður af þér.
-Farðu varlega.
-Bless.
Þá er það búið.
Ég veit ekki hvernig þú gerðir
þetta en ég er mjög hrifinn.
Ég sá hvað þú gerðir
og ég er líka hrifin.
-Veistu hvað?
-Hvað?
Höldum upp á þetta.
Ég skal bjóða þér í mat í kvöld.
Það væri frábært
en ég get það ekki. Ekki í kvöld.
Ég þarf að ganga
frá smá verki.
Þú valdir rangt hús.
Þú ert kötturinn
sem myrti Slavicky.
Trúir þú öllu sem þú
sérð í sjónvarpinu?
-Hvað viltu?
-Eiginmanninn þinn. Er hann heima?
Ég er hérna. Hvers vegna
ætti hann að vera heima?
Það var slæmt.
Ef hann kemur skaltu segja
honum að ég viti um Beau-line.
Það er sjúkdómur í krukku og
ekki verðugt sem stíflueyðir.
-Ég hef notað þetta í mörg ár.
-Það er þín jarðarför.
Slavicky var myrtur
vegna sannleikans um kremið.
Ertu að gefa í skyn
að maðurinn minn sé morðingi?
Segðu mér hvar hann er
-og ég skal spyrja hann sjálf.
-Ég ætti líklega að vera undrandi
og halda fram sakleysi hans.
Sannleikurinn er sá að hann
er til alls líklegur.
Viltu finna hann?
Hann er þarna.
-Þakka þér fyrir.
-Ég vil hjálpa þér.
Hvernig get ég haft
samband við þig?
Ég er ekki beint
í símaskránni.
Taktu símann minn.
Hringdu á lögguna.
Þú trúir þessu aldrei.
Mér finnst þetta vera
algjör tímasóun.
-Ekki gera þetta.
-Hvað?
Ekki hugsa.
Það er eina skilyrðið
sem fylgir sambandi okkar.
Ég dýrka þennan hluta.
-Hver í fjandanum...
-Líst þér vel á neglurnar mínar?
Ég var að koma
úr handsnyrtingu.
Mín mistök.
Slepptu mér eins og skot.
Ég veit allt um Beau-line
og leyndarmálið þitt.
Hvað áttu við?
Patience vissi það líka
og þess vegna myrtir þú hana.
-Ég gerði það ekki.
-Verst að síðustu orð þín verði lygi.
Vertu kyrr.
Vertu grafkyrr.
Ekki hreyfa þig.
Komdu nú án óláta.
Kettir koma þegar
þá langar til þess.
Ekki þegar þeim
er sagt að koma.
Ég endurtek þetta ekki.
Snúðu þér við og upp með hendur.
Þú ert handtekin.
Náði þér.
-Heldur þú að þetta sé einhver leikur?
-Nú erum við að leika okkur.
-Ég er að sinna starfi mínu.
-Mér virðist þú dýrka starfið þitt.
-Fæ ég engan mat fyrst?
-Ég skal færa þér mat í fangaklefann.
Varlega. Þessi strengur
getur grillað okkur bæði.
Ég vissi að það væri
neisti á milli okkar.
Ekki á fyrsta stefnumóti.
Ekki vera of góð með þig.
Ég er lofaður maður.
Veit hún um okkur?
Það er ekkert á milli okkar.
Það var slæmt.
Þessu er lokið.
Þarna er hún.
Jæja, drengir.
Réttið upp hönd,
allir sem geta séð í myrkri.
Ég get það.
Þetta er hörmung.
Hvernig veit hún þetta
og hver er hún?
Þetta er allt í lagi.
Ekki vera hræddur.
Þú hefur enga hugmynd.
Við erum í stórhættu
og frábært ráð þitt
er að vera ekki hræddur.
Ég ráðlegg þér...
að hætta að nota
þetta brúnkukrem.
Hættu að bryðja ***
eins og vítamín.
Hættu að hitta stelpur sem
fæddust sama ár og farsíminn.
Reyndu einu sinni
á þinni ömurlegu ævi...
að vera karlmaður.
Stórkostlegt.
Beau-line gerir
sannarlega kraftaverk.
Hvorn á ég að velja, Sally?
Ertu að fara í kirkju
eða í Playboy höllina?
Þetta hjálpaði mér.
Ég er svo mikið viðundur.
Ég er viðundur frá
fimmtudegi til sunnudags.
Hvað ef honum líkar ekki
-við hina sönnu mig?
-Hann getur ekki valið um það.
Ef þetta á að ganga verður
honum að líka við þig alla.
Farðu.
Glæsilegt.
Þakka þér fyrir.
Þú líka en ég var
að tala um fiskana.
Lögreglustarfið snýst um
eftirför eins og stefnumót.
Svo þegar maður
gómar þá...
Finnst þér sushi gott?
Það er fínt.
Segðu mér frá þessari...
sem slapp.
Kattarkonan.
Hefur þú heyrt
eitthvað um hana?
Já, hún er leðurklædd
og gengur um með svipu.
Hún kyssti mig.
-Virkilega?
-Já.
-Hvað finnst þér um það?
-Það fer eftir ýmsu.
-Ertu hrifinn af vondum stelpum?
-Aðeins ef þær eru hrifnar af mér.
Nei, það vonda gerir
mjög lítið fyrir mig.
Er ekkert á milli þess
að vera vondur eða góður?
Kannski getur málið
verið örlítið flóknara.
Eigum við ekki
að tala um þig?
-Hvernig er að vera listamaður?
-Ég er ekki listamaður.
Ég fór í listaskóla
en svo fékk ég starf
á auglýsingastofu
og nú veit ég ekki
hvað ég er lengur.
Ég veit hvað þú ert.
Þú ert öðruvísi.
Þú ert einstök.
-Það líkar mér vel.
-Þakka þér fyrir.
Þetta er satt.
Mig langar svo
að kynnast þér betur.
Það er ýmislegt sem ég
verð að útskýra.
Eins og hvað?
Nýja útlitið?
-Karfan sem þú skoraðir?
-Nei, ég var ekki að hugsa um það.
Þú getur sagt mér
hvað sem er.
Ég er...
Ég hata rigningu.
Hvað varstu að segja?
Ekkert mikilvægt.
Tom?
Þetta er ég.
Ég trúi því ekki en þú
hafðir rétt fyrir þér.
Beau-line er eitrað
og ég get sannað það.
Við getum stöðvað hann
í sameiningu.
Hann ætlar að kynna Beau-line
á blaðamannafundi á morgun.
Það kemur í búðir
næsta mánudag.
Ég varð að fara. T.
Líkur á samræmi.
99.9 prósent.
Hvað fannstu?
Næg sönnunargöng til
að loka hann lengi inni.
Ég var allt sem þau
vildu að ég væri.
Ég hef aldrei verið fallegri
eða öflugri.
En ég varð fertug
svo þau fleygðu mér.
Þetta er allt þarna
á bak við skrifborðið.
Hvernig stóð ég mig?
Það var flókið
að klóra hann
en ég held að mér
hafi tekist það.
-Myrtir þú hann?
-Enginn hindrar
sölu Beau-line.
Ekki Slavicky,
ekki George
og sérstaklega ekki þú.
Hvar eru mannasiðirnir?
Má bjóða þér eitthvað?
Túnfisk eða mjólk?
Eða rjúkandi byssu? Sem þú varst að
tæma í brjóstið á manninum mínum.
George.
Hjálpið mér. Þetta er Kattarkonan.
Hún myrti George.
Guð minn góður.
Kattarkonan drepur aftur.
Patience.
Fyrirgefðu.
Þú gætir tekið byssuna
af mér ef þú vildir það.
Ef ég vildi það.
Slavicky gat sannað
að Beau-line er eitrað.
Þess vegna myrti Laurel hann.
George komst að því
og hún myrti hann líka.
Þeir voru báðir myrtir
með byssunni sem þú hélst á.
-Kattarkonan hélt á henni.
-Hver er munurinn?
-Það skiptir líklega engu máli.
-Skilurðu þetta ekki?
Allar vísbendingarnar
leiða okkur til þín.
Það er ekkert
sem sýnir annað.
Hvað með mig?
Þú getur trúað mér.
Manstu fyrsta skiptið
sem þú sást mig?
Já.
Hvað sástu?
Ég sá stúlku
að bjarga ketti.
Það er ekki rétt.
Þú sást klikkaða konu
sem ætlaði að stökkva.
Allt benti til þess.
Þú verður að trúa mér.
Hvernig get ég það?
Ég veit ekki hver þú ert.
Ég er sama stúlka
og þú varst með í gær.
Farðu með hana.
Vertu góð kisa.
Sjáðu málið svona.
Þú glataðir stúlkunni
en gómaðir sökudólginn.
Gerði ég það?
Já.
Halló, Miðnætti.
Þú hefur verið
lokuð inni alla ævi.
Ef þú sættir þig
við allt sem þú ert
getur þú orðið frjáls
og frelsi er máttur.
Málið snýst ekki
aðeins um mig núna.
Lassí hefði
komið með lykil.
Krossleggðu loppurnar.
Ertu ómeidd?
Stúlka eins og ég
lendir á fótunum.
Heyrðu, bíddu.
Eiginmanninn minn
dreymdi um heim
þar sem hver kona gat verið
eins falleg og hún vildi.
Hann helgaði líf sitt því
að láta þann draum rætast.
Sem nýi framkvæmdastjóri
Hedare
hef ég ákveðið að láta
þennan draum rætast
og setja Beau-line
á markað á morgun.
Þakka þér fyrir.
Takk kærlega. Mig hefur
dauðlangað að prófa þetta.
Maðurinn minn vildi að þú
og allar konur gætu það.
-Lone fulltrúi. Þetta er óvænt.
-Frú Hedare.
Þetta er maðurinn sem gómaði
morðingja mannsins míns.
Mætti ég tala
við þig í einrúmi?
Við skulum fara
upp á skrifstofu.
Drífum okkur. Við þurfum
að klára þetta fyrir miðnætti.
Hún stóð yfir honum
og hann var allur klóraður.
Ekki Slavicky.
Hún hafði líklega ekki
tíma til að klóra hann.
Ekki ástæðu heldur.
Ég veit ekkert.
Hvað ef ég segði þér
að ég vissi sannleikann?
Hver morðinginn er og hvert
leyndarmál Beau-line er?
Þetta hljómar eins
og ég sé grunuð.
Hvað ef ég segði þér
að ég hefði sönnunargögn?
Ef þú hefur þau, hvers vegna
er ég þá ekki í handjárnum?
Þú ert klár kona.
Falleg og rík.
Við ættum að geta
samið um þetta.
Ætlar þú að láta
sönnunargögnin hverfa
og kenna hinni stelpunni
um þetta allt saman?
Ef þú vilt að ég geri það.
Hvað með þig?
-Hvað vilt þú?
-Þú varst að gefa mér það sem ég vildi.
Þú sagðir mér
að þú værir sek.
Hvers vegna heldur þú
að ég sé sú seka?
Vegna þess að loksins
treysti ég vini mínum.
Sá vinur orsakaði
dauða þinn.
Ekki vera heimsk, Laurel.
Þú vilt ekki drepa löggu.
Ég er kona, Lone.
Ég er vön því að gera
það sem ég vil ekki.
Ég bið að heilsa
manninum mínum.
Þetta er sætt.
Þakka þér fyrir.
Nú get ég drepið ykkur bæði.
Bíddu, ég verð
að stoppa aðeins.
Hversu slæmt er þetta?
Ég get lítið spilað
körfubolta.
Heyrðu.
Ég biðst afsökunar.
Ég hefði átt að treysta þér.
Þú ruglar mér saman
við einhverja aðra.
Patience.
Ég fer hérna megin.
Ég hefði aldrei átt
að treysta þér, loddari.
Hvað ert þú? Hetja?
Þjófur?
Viðundur?
Hvers vegna leynir þú
því hver þú ert?
Því þú myrtir mig.
Það var ég sem þú
sturtaðir út í sjó.
Ég heiti Patience Phillips.
Er það hún sem er
undir grímunni?
-Þú getur ekki sært mig.
-Beau-line.
Ef maður hættir að nota það
verður húðin viðbjóðsleg.
Ef maður notar það lengi
verður hún hörð sem marmari.
Ég finn ekki fyrir neinu.
Þú ert bara hrædd stúlka
í grímubúningi.
Ekkert og engin.
Hvert þykist þú
vera að fara?
Þér verður kennt
um löggumorðið.
Þú vildir bjarga honum.
Þú getur ekki einu sinni
bjargað sjálfri þér.
Leik lokið.
Veistu hvað?
Það er framlenging.
Taktu í höndina á mér.
Hjálpaðu mér!
Ég er ekki mikil hetja
en ég er ekki morðingi.
Þegar óþokkarnir hennar
byrja að tala
verðum við fljót
að leysa morðmálin.
Ef Patience er ennþá
í fangelsi á morgun,
verður erfitt að sanna
að hún sé Kattarkonan.
Nákvæmlega.
Kattarkonan gengur frá Hedare
og bjargar mörgum mannslífum.
Yndislegt, takk.
Jarðarberið var
líka mjög gott.
Daginn sem ég dó
lifnaði ég við.
Í gamla lífinu þráði ég að einhver
gæti séð það sérstaka við mig.
Þér tókst það og þess vegna
gleymi ég þér aldrei.
En það sem ég þurfti
var að sjá þetta sjálf.
Nú sé ég það.
Þú ert góður maður
en þinn heimur hefur ekki
pláss fyrir mína líka.
Stundum er ég góð.
Ég get verið mjög góð.
En stundum er ég vond.
Eins vond og ég leyfi mér.
Frelsið er máttur.
Að lifa óhamin og óhrædd
er sú gjöf sem mér var gefin.
Nú hefst för mín.