Tip:
Highlight text to annotate it
X
Hjálp.
Er ég dauður?
-Þú ert ekki dauður.
Þér hefur verið rænt.
Kobe?
Hver er þetta?
Dr. Phil?
Hvað er á seyði?
Ég veit það ekki. Ég var með þátt
um unglinga sem hafa verið yfirgefnir
og vaknaði skyndilega hérna.
Krakkarnir verða brjálaðir.
Sælir, herrar mínir. Þið þekkið
mig ekki en ég þekki ykkur.
Þið lifið báðir á leikjum.
En í dag leikið þið um líf ykkar.
Þið andið að ykkur banvænu taugagasi.
Þið fáið tvær mínútur
til að ná mótefninu,
annars deyið þið.
Hvernig komumst við héðan?
Hefjið leikinn.
Þarna.
Hentu einhverju í járnarminn.
Þarna.
Fjandinn.
Fyrirgefðu.
-Shaquille,
ég er þér alls ekki reiður
en við deyjum eftir eina mínútu.
Lokaðu á neikvæðnina
og náðu þínu fram.
Hittu bara í helvítis körfuna.
Hvað var þetta?
-Þú særðir mig.
Særði ég þig? Til fjandans
með þetta væl um tilfinningar fólks.
"Ég er feitur," "Krakkinn minn
er skrímsli," "Hjálp".
Þegiðu. Því get ég ekki læknað neinn?
Ég er heimskur og gagnslaus.
Mamma hafði rétt fyrir sér.
Hættu þessu rugli.
Þú ert frábær læknir.
Ekki beint.
Ég segi fólki bara að ná áttum.
Ég er ekki einu sinni sálfræðingur.
Ég er rafvirki.
Ég brást þér, Shaq.
Ég brást þér.
Hálf mínúta eftir.
Þetta gengur aldrei.
Hann vill að við skerum
fæturna á okkur í sundur.
Þú byrjar.
Kjaftæði.
Þú ert of mikil kerling.
Mamma þín hafði rétt fyrir sér.
Aldrei. Hver er
heigull núna, mamma?
Eins og að taka nammi
frá smábarni.
Guð minn góður.
-Mér tókst það. Okkur er borgið.
Hvað er að?
-Vitlaus fótur.
Andskotinn.
Í byrjun 21. aldarinnar
trúði því ekki nokkur sála
að fylgst væri með veröld okkar
eins og með smásjá manna
sem kanna lífverurnar
í einum vatnsdropa.
En lengst úr óravíddum
himingeimsins
hafði hræðileg illska
undirbúið sig fyrir það
að ráðast á grunlausa
íbúa jarðarinnar.
Þú hefur vaknað snemma.
Komdu aftur upp í rúm.
Komdu.
Gerðu það.
Halló. Halló.
Tom.
Þú hefur saknað mín. Ég saknaði
þín líka. Þú lítur svo vel út.
Takk fyrir að koma mér að
í þessu starfsviðtali.
Þetta er slæmur tími.
Mig vantar eitthvað að gera
nú þegar Cody er farinn.
Hann er 1 1 ára og ég
skráði hann í herskóla.
Þetta er víst frábær skóli.
Krakkar vaxa svo fljótt úr grasi.
Ég heyrði að þú ættir
nýja kærustu.
Hún er eflaust gáfuð.
Quixotic.
-Níutíu stig.
Vinna þín með öldruðum
fyllti mig andagift.
Svefnpillur
Þeir hafa svo mikið
að kenna okkur og við þeim.
Gamla fólkið er eiginlega
alveg eins og við. Bara eldra.
Ég vona að nýja starfið
dreifi huganum frá
slæmum minningum.
Þú átt slíkar minningar.
Stundum vakna ég um miðja nótt
og hugsa hvar hann gæti verið.
Svo man ég það.
Ég veit að þú saknar hans
en þetta var verst fyrir mig.
***
Stundum safnast
tilfinningarnar saman
hið innra og springa út.
Ástandið harðnar stöðugt
þar til maður getur ekki
hrist það af sér.
Það er eins og maður gangi
með gríðarlega byrði.
Stundum verða vandamálin
risavaxin og yfirþyrmandi.
Hvað segir maður þá?
-Jesús.
Já, þú leitar til trúar,
vina eða fjölskyldu
en að lokum...
ertu ennþá sárþjáður.
Þess vegna vil ég
verða hjúkrunarkona.
Ég skynja tilfinningar
annarra svo vel.
Ég skynja hvenær fólk
í kringum mig þjáist.
Farðu heim, Ryan. Þú hefur
unnið stanslaust í 16 tíma.
Ég vil fá yfirvinnuna.
Hafðu engar áhyggjur.
Ég er glaðvak...
Hvað ertu að gera?
Þetta voru gullstangir.
Nei, ekki aparnir.
Hvað gerðist eiginlega?
Þetta hefði getað komið
fyrir hvern sem er.
Veistu hvað er að þér?
Þú gefst upp um leið
og á móti blæs.
Það er rétt hjá þér.
Ég segi upp.
Þú gætir orðið sá besti
ef þú kláraðir málin.
Ég veit það ekki.
-Ekki láta svona.
Hvað get ég sagt?
Kannski hef ég ekki
það sem til þarf.
Hvað áttu við?
Þú gekkst frá H-500 gámnum.
Það var auðvelt.
Tom Ryan, það er langt
síðan ég hef séð þig.
Ég eyði hverri mínútu
í að stjórna krana.
Ég þoli ekki starfið mitt.
Hvar hefurðu verið, Tom?
Mahalik.
-C.J. þetta er Tom, vinur minn.
Við unnum saman á höfninni.
Hvernig hefur fjölskyldan það?
-Manstu eftir Marilyn?
Yndislegu konunni þinni.
-Hún sagði mér upp.
Ég veit það, ég svaf
hjá henni nokkrum sinnum.
Ég líka.
Eruð þið að tala um Marilyn?
Hún er góð í rúminu.
Pabbi kynnti mig fyrir henni.
Líf mitt hefur engan tilgang
og ég er eins og uppvakningur.
-Ekki gantast með uppvakninga.
Þeir eru raunverulegir.
-Þekkirðu Lashöndru á 120. stræti?
Hún heyrði í einum.
Næsta dag kom í ljós
að hún var horfin.
Hvernig kemur í ljós
að maður er horfinn?
Enginn veit um mann þegar
maður er ekki á sínum stað.
Strákar...
Getur maður horfið
og komið í ljós á sama tíma?
Hún hvarf ekki og kom í ljós.
Hún er ekki David Copperfield.
En maður getur horfið af einum
stað og komið í ljós á öðrum.
Þá er maður ekki horfinn
og kemur ekki horfinn í ljós.
Nema maður sé uppvakningur.
Þetta voru góð rök.
Bloggaðu um þetta.
Ég set þetta á MySpace.
-Gerðu það.
Þú þarft að komast héðan
og fara í gott frí.
-Ég veit ekki...
Komdu að veiða með okkur.
Við fundum góðan stað í fyrra.
Já, frábæran stað.
Er þér kalt?
Örlítið.
Ég er sko ekki hommi.
Allt í lagi.
Ekki ég heldur.
Hvað ertu að gera?
Teygja mig í gotteríið.
Hvað ertu að gera, CJ?
Mig langar í smá tott.
Sko, gott.
Ó, elskan.
Við mokveiddum.
Svartan þorsk.
Fjandinn.
-Ekki halda...
Ég vona að þetta
hafi ekki áhrif á álit þitt.
Því gerðirðu þetta?
Seinn aftur, Tom.
-Hæ, Marilyn.
Ætlaðirðu ekki að flytja?
-Ég hef ekki efni á öðru.
Þú hirtir allt nema nafnið mitt.
Nei, dómarinn
veitti mér það í gær.
Nú heitirðu
Horace P. McTitties.
Nýi maðurinn þinn
er ánægður með það.
Hann er góður og sér
fyrir okkur, ólíkt þér.
Þér er sama um börnin okkar.
-Ég er frábær pabbi.
Krakkar.
Pabbi?
Hæ, pabbi.
-Hæ, Rachel.
Hvað segirðu, prinsessa?
Það er læst.
Ég skal hjálpa þér.
-Ég sé um það.
Ekkert mál.
-Ég get gert það.
Ég líka.
-Taktu hana þá.
Sjáumst á þriðjudaginn.
Heyrðu, Marilyn.
Það fer þér vel að vera ófrísk.
Ég er ekki ófrísk.
Ég meinti ekki...
Fyrirgefðu.
Reyndu að bæta
samskiptin við krakkana.
Já, þessir krakkar
eru allt sem ég á.
Nú, krakkarnir og bíllinn minn.
HEIMAHJÚKRUN
Herra Koji, það vantar
einhvern í Norris-húsið.
Aftur? Ég tapa peningum
ef enginn hugsar um frú Norris.
Hvað kom fyrir síðustu stúlku?
-Yoko? Sjáðu sjálfur.
Fjandinn sjálfur. Settu
handklæði undir hana. Jesús minn.
Það er sagt að það hvíli bölvun
á Norris-heimilinu.
Það eru ekki til bölvanir.
Ekki láta svona.
Það eru kerlingabækur.
Sendu einhvern þangað í dag
eða ég lendi í klandri.
Ég heiti Cindy Campbell og mig
vantar vinnu við heimahjúkrun.
Vinur minn mældi með mér en...
Guð minn góður.
Hún flaug á hausinn.
Þú ert besti starfsmaðurinn minn.
Viltu byrja í dag?
-Svona snemma?
Trúðu mér, þú ert
tilvalin í starfið.
Ég skal sýna þér. Við komumst
þangað á tíu mínútum.
Þessa leið.
Herra Koji.
Halló.
Guð minn góður.
Komum þér upp í rúm.
Svona já. Fyrirgefðu.
Þú hefur fundið frú Norris.
Hún er með stjarfaklofa.
Ég reyndi að koma henni í rúmið.
Ég hélt að hún hefði meitt sig.
Hún lá á gólfinu
þegar ég kom inn.
Taktu um fæturna á henni
og ég tek um hendurnar.
Frú Norris, ég er komin
til að hugsa um þig.
Það gleður mig líka
að kynnast þér.
Þú ert tilvalin í starfið.
Ég skal sýna þér húsið.
Þessa leið.
Hvernig líst þér á þetta?
Ég veit það ekki.
Það er einhver dularfull
nærvera í þessu húsi.
Ekki láta eins og kjáni.
Það er ekkert að húsinu.
Mig dreymdi um að búa
í svona húsi með manninum mínum.
En það tilheyrir víst allt...
fortíðinni.
Hver vill skoða efri hæðina?
Húsið er í fínu hverfi
og nálægt skólum og verslunum.
Öll gólfin eru harðviðargólf.
Það stenst flestar kröfur
og garðurinn er afar stór.
Allar lagnir úr kopar
og tilvalið að fá gesti.
Hérna er baðherbergið.
Það er stórt og virkilega...
huggulegt.
Hér ætti að vera
yndislegt að vinna.
En samt finn ég
fyrir einhverri illsku.
Illsku?
Bull og vitleysa.
Veistu hver bjó hérna?
Nei, ekkert svoleiðis.
Ég man ekki neitt.
Kom eitthvað furðulegt fyrir
í þessu húsi?
Ekki láta svona.
Húsið er fullkomlega eðlilegt.
Já, líklega. En það er eins
og einhver fylgist með okkur.
Herra Koji?
-Þetta var ég.
Ég er bara spenntur að ráða þig.
Ákaflega spenntur.
Við borgum sjúkra- og tannlæknakostnað.
Þú færð tveggja vikna sumarfrí á launum.
Ég vonaði að þú
gætir byrjað í dag.
Þá gætirðu unnið alla vikuna.
Þú ert tilvalin í starfið.
Þetta er stórkostlegt tækifæri.
Er eitthvað sem þú
segir mér ekki, Koji?
Ég var óhreinn.
Jæja...
Starfið?
Ég tek það.
Sæktu hanskann þinn,
ég er í bakgarðinum.
Komdu nú, Robbie.
Þú nærð ekki til hans svona.
Þetta er strákadæmi.
Treystu mér.
Ertu tilbúinn fyrir
Tom Ryan hraðlestina?
Já, kannski verð ég
alveg eins og þú.
Ég veit að ég hef brugðist ykkur.
Þið vitið ekki hversu erfitt
það er að vera faðir.
Þegar þú byrjar á því...
skaltu láta mig vita.
Ertu ómeidd?
-Augun í mér. Augun í mér.
Þetta er miklu...
betra.
Fyrirgefðu.
-Allt í lagi,
ég hef fengið
bolta í andlitið áður.
Ég er Cindy Campbell,
nýi nágranninn þinn.
Tom Ryan,
býrðu ein hérna?
Ég hugsa um frú Norris
en já, ég er ein
í fyrsta skipti á ævinni.
Ég þekki það.
Ég líka.
Maður telur sig hafa
fundið sálufélaga.
Já.
Síðan kemur maður heim einn daginn
og finnur svokallaðan sálufélaga
í rúminu með ókunnum manni.
Hann er ekki alveg ókunnur.
Sammy Sosa.
Hljómar þetta kunnuglega?
Nei, alls ekki.
En ég þekki slíkar þjáningar
og það versta af öllu
er að þurfa að ganga í gegnum það...
-Aleinn?
Við eigum greinilega margt...
-Sameiginlegt.
Við erum farin að klára...
-Kvöldmatinn.
Setningarnar.
Kannski vantar okkur bæði vin.
Það líst mér vel á. Ég þarf
að snúa mér aftur að frú Norris,
koma þvaglegg fyrir,
þvo hana milli fellinga
og sprengja kýli.
Ég opna hana og fer svona inn...
Skola stómapokann og þurrka slefið.
Það er yndislegt.
Sjáumst við ekki?
-Auðvitað.
Jæja, frú Norris. Nú kem ég
og skef út skítakleprann.
Frú Norris. Hefurðu tekið eftir
einhverju undarlegu við þetta hús?
Já, já.
Ekki?
-Jú.
Það er rétt hjá þér.
Ég læt eins og kjáni.
Slakaðu nú á.
Svona já. Allt í lagi.
Greyið mitt, þú þarft
ekki að vera óttaslegin.
Ég skal hugsa um þig.
Ég held að við verðum
bestu vinkonur.
Allt í lagi. Slakaðu á.
Hreinsum nú eyrun.
Já, þetta er betra.
Þetta er gott.
Er þetta ekki æðislegt?
Þetta er heitt og notalegt.
Er þetta ekki gott?
Guð minn góður.
Fyrirgefðu.
Robbie.
Komdu að kasta gömlu tuðrunni.
Fyrirgefðu, ég sá þig ekki.
Ertu ómeidd?
Já, hálsinn á mér dró úr högginu.
-Guði sé lof.
Ég varð reiður vegna sonar míns...
Þú virðist hrædd.
-Þetta er ekkert...
Það er eitthvað á seyði í húsinu.
Ég sá andlit í gærnótt.
-Var það með nef?
Já.
Það hljómar eins og andlit.
Það kom hönd í sturtuna
og ófögnuður í stigann.
Ég get ekki gengið
í gegnum þetta aftur.
Það er annar maður í spilinu
og þú elskar hann ennþá.
Gangi ykkur báðum vel.
Bíddu.
Þú skilur þetta ekki.
Það er erfitt að tala um það
en þú verður að vita þetta.
Einu sinni var ég gift.
Færðu þig, tík.
-Ekki kalla mig tík.
Þú ert ömurlegur.
-Þegiðu, snjóhóra.
Reyndar hef ég
verið gift tvisvar.
Við eiginmaður minn
upplifðum draum okkar.
Dömur og herrar,
áskorandinn Cindy Campbell.
Vertu slök, mundu það sem þú
hefur lært og einbeittu þér.
Fylgstu vel með næsta höggi.
Ég var ósigruð
og átti aðeins einn bardaga
eftir í beltið.
Þessi gella er glötuð.
Tiffany Stone.
Ég veit að þú ert smeyk
en ég veit
að þú getur sigrað hana.
Viltu segja mér hvað gælunafnið
þýðir ef ég vinn, George?
Já, ég lofa því.
Hafðu höggin hröð
og miðaðu með hægri.
Passaðu fótaburðinn.
Berjist.
Ég tek af þér stig
ef þú gerir þetta aftur.
Ég náði því, maður.
Ég þoli ekki meira.
Þá missti ég stjórn á mér
og gerði mestu mistök ævinnar.
Nei, Cindy.
Smápeningur.
Nei, George.
Án höggsins hefði ekkert gerst.
Ég kenni mér um þetta.
-Og það með réttu.
En hið liðna er liðið, Cindy.
Hugsaðu til framtíðar.
Ég elska aldrei annan mann
nema hann styðji mig alltaf.
Ég hef ekki góða reynslu
af slíku. Spyrðu son minn.
Ég gerði það.
Hvað er rassatrúður?
Það skiptir ekki máli.
Ég hef brugðist svo mörgum.
Ég ætti að fara.
-Bíddu.
Kannski er mér ekki ætlað
að verða hamingjusöm.
En mig langar að reyna
vegna einhvers í þínu fari.
Hvað er á seyði?
-Ég veit það ekki.
Hvers vegna er himinninn
svona dimmur?
Hvers vegna blæs vindurinn
í átt að storminum?
Hvers vegna
á ekkert okkar þurrkara?
Ég hef aldrei séð svona ský áður.
Ertu ómeidd?
-Já.
Sástu þrumurnar?
Þetta er skelfilegt veður.
Ég hef aldrei séð annað eins.
-Ekki ég heldur.
Hugsaðu þér að vera úti.
Þessi var nálæg.
Eldingu lýstur aldrei niður
á sama stað tvisvar.
Hvar er Rachel?
-Er hún ekki með þér?
Þarna ertu.
Allt í lagi,
nú erum við óhult.
Síðasta eldingin
lyktaði eins og...
Eins og risaskítur.
Já, eldingin.
Ég ætla að leita að Robbie.
Reyndu aftur.
Kannski fer hann í gang.
Hvað er á seyði?
Bíllinn virkar ekki.
Af stað.
Ég get ekki haft hægðir.
Hvers vegna ekki?
-Hvað segirðu, Marvin?
Bíllinn er bilaður.
Skiptu um spóluna.
-Góð hugmynd.
Niður með Bandaríkin.
Fjandinn.
Drepum hann!
Forðið ykkur.
Sítt að aftan
Þurrka út mannkynið
Falleg föt.
Takk.
Drífðu þig, G.
-Hvert eruð þið að fara?
Halló?
Harró?
Býrðu hérna?
Þú talar skelfilega ***önsku
og smánar eyrun á mér.
Ertu draugur?
Já, ég var myrtur
og sál mín reikar um jörðina.
Það er sorglegt.
Líf mitt er líka sorglegt.
Heldurðu virkilega að mér
sé ekki skítsama?
Ég veit hvernig þið
getið sigrað geimverurnar.
Segðu mér það.
Svarið er í hjarta föður míns.
Láttu blóðið vísa þér veginn.
Bíddu.
Ég get ekki lesið þetta.
Þetta er betra.
Pabbi er kominn heim.
Hvað er á seyði?
Hvað er að gerast?
Ég get ekki útskýrt það.
-Geimverur gera árás.
Það er einmitt málið.
Fylltu þetta af mat.
Við förum eftir eina mínútu.
Rassinn á mér.
Skaufinn.
Drífum okkur.
Cindy.
Hvert ertu að fara?
Það er maður sem getur stöðvað
þetta. Þú skilur það ekki.
Ég skil.
-Komdu með mér.
Mig langar til þess
en krakkarnir...
Þá er þetta víst kveðjustundin.
Lofaðu að finna mig
þegar þetta er yfirstaðið.
Lofaðu að gleyma mér aldrei.
Lofaðu að gefast ekki upp
fyrr en ég verð í örmum þér.
Lifandi?
Já.
-Ég lofa því.
Bless, Cindy.
Bíddu.
Þetta er spóla.
Hún veitir þér lukku.
Skiptirðu um spólu?
Já, ég fékk nýja
frá krakkhausnum.
Komdu.
-Hvers vegna?
Því að ég ber ábyrgð á þér
og er sá eini sem þú átt að.
Guði sé lof.
Hvað ertu að gera?
Sestu upp í bílinn.
-Hættu þessum fíflalátum.
Þú deyrð ef þú sest
ekki upp í bílinn.
Gott og vel.
Bíddu.
Ennþá læst.
-Ekki toga á sama tíma.
Hvað segirðu?
-Á þremur.
Ertu að telja?
-Einn, tveir, þrír og svo opnarðu.
Á þremur.
-Einn, tveir,
þrír.
Ekki gera þetta.
Opnaðu á þremur.
Einn...
-Ekki telja á sama tíma og ég.
Ég veit ekkert hvað þú ert að gera.
-Ekki snúa þér undan.
Ertu eitthvað klikkaður?
Einn, tveir, þrír.
-Tveir, þrír.
Ekki toga á sama tíma.
-Þú sagðir þrír.
Á fjórum. Kanntu að telja?
-Á þínum eða mínum þremur?
Það er einn þrír.
-Ég er að reyna að komast inn.
Opnaðu á fjórum!
Þú sagðir á þremur.
Á ég að opna á þremur eða hvað?
Ég heyrði þrír!
-Opnaðu á fjórum!
Nú eru það fjórir?
-Af hverju fjórir?
Þú sagðir á fjórum!
Þú stalst mínum fjórum!
-Höfum það á þremur!
Á blökkumaðurinn
að lúta í lægra haldi?
Gerðu eins og þér sýnist.
-Ég gerði það!
Af hverju togarðu
þegar ég segi þrír?
Á ég að opna á fjórum?
-Þegar ég segi þrír.
Gleymdu fjórum.
Þú hefur nægan tíma.
Þú getur farið heim,
horft á sjónvarpið
og komið svo og opnað!
-Allt í lagi!
Einn...
-Nei! Gleymdu því!
Ég er farinn! Nei, takk!
Ég fer bara með næsta bíl.
Er það í lagi?
Jesús minn.
-Stælar.
Ég vil frekar drepast.
Stúlka átti litla önd.
Hún hugsaði vel um öndina.
Einn daginn slapp öndin
og hljóp í burtu.
Öndin hljóp niður götuna
þar til hún fann tjörn.
Herra forseti, geimverur
hafa ráðist á jörðina.
Allt í lagi.
Þær hafa þurrkað út
nokkrar borgir.
Þær drepa okkur öll
ef við bregðumst ekki við.
Ég sé um þetta rétt bráðum.
Ég verð að komast að því
hvað verður um öndina.
Með hverri mínútu sem líður
deyr fleira fólk.
Fólkið deyr hvort sem er.
En þessi önd á góðan möguleika.
Ég hef lesið söguna, herra forseti.
Öndin deyr.
Guð minn góður,
það er skelfilegt.
Herra forseti, það er verið
að ráðast á okkur.
Áttu við að foreldrar barnanna
gætu verið dauðir?
Krakkar! Krakkar!
Þetta er ekki eins slæmt
og það virðist.
Þau dóu ekki einsömul.
Þau dóu ásamt öðrum ástvinum ykkar.
Er jólasveinninn líka dáinn?
Nei, auðvitað ekki.
Jólasveinninn er ekki til.
Alveg eins og tannálfurinn
sem er tilbúningur.
Páskakanínan hefur aldrei verið til.
Fullnæging kvenna.
Bíðið bara og sjáið hvað gerist
þegar þið reynið að finna hana.
Hvað er að?
Eru foreldrar ykkar að skilja?
Ég gæti gefið þeim ráð ef þið viljið.
Æ, ég gleymdi mér,
þau eru dauð.
Lesum nú aðra sögu
um hana Gilitussu.
Gilitrutt, herra.
Förum í Hvíta húsið.
Ég skil ekki börn.
Ég verð að leyfa fóstureyðingar.
Farið út um útgöngudyrnar
eða stóra gatið á hliðinni.
Takk fyrir að hafa valið
Southern Coast flugfélagið.
Halló?
Ég á þetta.
Ég fann þetta.
Cindy?
-Brenda?
Guð minn góður,
það er svo langt um liðið.
Já, allt of langt.
Ég hélt að þú værir dauð.
-Ég hélt líka að þú værir dauð.
Varstu um borð í vélinni?
Nei, mig vantar góða frétt.
Nú er ég orðin fréttakona.
Þú hefur komið þér vel fyrir.
Ég fékk verkefni.
Sjáðu þetta.
Þetta er Detroit.
Svona varð Detroit eftir árásirnar.
Guð minn góður.
Árásin lagði allt í rúst.
Mannkynið er búið að vera.
Nei, við eigum von.
Ég veit um mann sem kann
að berjast gegn þeim.
Komdu, þetta verður frábær frétt.
Hvernig komumst við þangað?
Bílarnir virka ekki.
Bíddu, sjáum hvort þetta virkar.
Ég fékk síðasta
nothæfa bílinn í New York.
Svona kemst ég
úr sporunum, dræsur.
Það er rétt.
Þetta virkaði vel.
Sjáðu alla þá særðu.
Þetta er svo sorglegt.
Þetta var risastór rotta.
Það tók tíma að gera við þetta.
-Ég þarf að fara í heitt bað á eftir.
Hvað gerðist?
Uppvakningar.
-Fjandinn.
Komdu.
Ekki láta þá bíta þig.
Rafmagnið virkar gegn þeim.
Amma? Uppvakningarnir
hafa náð ömmu.
Deyðu, amma! Deyðu!
Mér þótti svo vænt um þig.
Mahalik?
Sjáðu hvað þeir gerðu
við ömmu mína.
Hún ól mig upp frá fæðingu.
Hann er á bíl.
Gefðu okkur bílinn.
Ég á ekki þennan bíl
og get ekki gefið hann.
Hurðirnar eru vel læstar.
Þau geta ekki mögulega...
búið til vélmenni
úr súkkulaði. Þjónn.
Pabbi.
-Krakkar.
Hvers vegna?
Jæja...
Burt með ykkur.
Komdu með byssuna.
Ég tek bílinn.
Hvað með hann?
Ég vil ekki bílinn.
Mig vantar byssu.
Ég gef ekki byssuna,
mig langar í bílinn.
Þig vantar byssu
og þig langar í bíl.
Hvað vilt þú?
-Ég hef aldrei átt hníf.
Skiptum á þremur.
Einn, tveir og þrír.
Er þetta rétt?
-Ég held ekki.
Pabbi. Þeir taka bílinn.
Já, höldum áfram.
Var þetta allt og sumt?
Gefstu upp?
Já, ég gefst upp. Viltu hetju?
Finndu þá einhvern annan.
Hvers vegna?
Förum héðan.
Skildi ég þetta?
Stúlkan faðmar öndina
og svo deyr hún.
Það er verið
að ráðast á þjóðina.
Sæktu Heimar Vannalim.
Áttu við Heimavarnarliðið?
Þessi kona varð vitni að árásunum.
Hvað sástu?
Þeir brenndu fötin
af líkama fólksins.
Það var nakið fólk úti um allt.
Varst þú nakin?
-Nei.
Loksins góðar fréttir.
Gefðu henni minjagrip.
Lil Kim tók samlokuna mína.
Passið ykkur.
Russell Crowe er með síma.
R. Kelly, ekki pissa á mig.
Flotta físudjásn.
Hvar erum við?
-Ég er ekki viss
en við nálgumst staðinn.
Þetta á að vera nálægt Mílu 62.
Er eitthvað að?
-Nei, bara...
Ég kynntist manni
og hugsaði hvort hann væri óhultur.
Ykkur kæmi vel saman.
Hvað heitir hann? Kannski
hefur okkur komið vel saman.
Tom Ryan?
-Já, ég svaf hjá honum.
Stór og feitur Kínverji?
-Nei, nei.
Hann er maður sem ég
vil eyða ævinni með.
Sjáðu, Cindy.
MÍLA 62
Hvar erum við?
-Ég veit það ekki
en faðir stráksins er hérna.
Við verðum að læðast inn.
Við föllum ekki í hópinn svona.
Sjáðu.
Hvar ertu, Ezekiel?
Eigum við að fara
í kapphlaup, Ezekiel?
Bannað að svindla.
Þarna er hann.
Hann er sætur.
Kæru vinir.
Óttist ekki óhljóð þeirra
sem við tölum ekki um.
Það ríkir vopnahlé milli okkar
og hinna handan landamæranna.
Hver vill fara með borðbæn?
Ezekiel.
Typpi.
Typpi og píka.
Amen.
Pabbi?
-Holly.
Hvers vegna truflarðu
þennan mikla fögnuð
sem við höldum í tilefni
brúðkaups Mordecais og Hoss?
Verðirnir fundu
tvær utanaðkomandi.
Hverjar eruð þið?
Ég verð að ræða við þig.
Sonur þinn sendi mig.
Láttu ekki eins og fífl.
Ég á engan son.
Það er ekki rétt.
Ég veit hver þú ert.
Ég sá ljósmyndirnar.
Ég var ungur og fátækur.
Nei, heima hjá frú Norris.
Ég vissi ekki hver bjó þar.
Mér var byrlað eiturlyf.
Hvað um það.
Þið eruð utanaðkomendur.
Ráðið ákveður örlög ykkar.
Nú skulum við ræða
um hina utanaðkomandi.
En fyrst vildir þú færa
okkur fréttir, Martha.
Nathaniel Winston og Alice Smith
hafa gert hug sinn opinberan.
Hann ætlar að sofa
hjá henni bráðlega.
Í fyrstu ætlar hún að streitast
á móti en láta síðan undan.
Er eitthvað sem angrar þig, Emos?
Við höfum meirihluta
sem kýs að segja "ég'r",
í staðinn fyrir "ég er."
Ég'r hlynntur því.
-Ég er á móti því.
Þögn.
Við verðum að ræða
um mikilvægari mál.
Ég óttast að nærvera
hinna utanaðkomandi
muni draga þá sem við
tölum ekki um hingað.
Ef þú talar um þá
sem við tölum ekki um
hefurðu þá ekki talað
um það sem má ekki tala um?
Ekki minnast á það sem við
tölum um að tala ekki...
um.
Hale öldungur. Bjóðum þær
utanaðkomandi velkomnar.
Jeremiah. Ættirðu ekki
að temja þína tungu?
Afsakaðu, Hale öldungur.
Stundum iðar tunga mín svo
að ég fæ hana ekki tamið.
Ég hef mikla reynslu
af slí*** vandkvæðum.
Ég get hjálpað honum í herbergi
þar sem eru engir fleiri.
Eða þið megið öll horfa á,
mér er skítsama.
Þegar þessu lýkur,
hvað segirðu um að taka það
sem má ekki tala um
og renna því inn
á staðinn minn góða.
Þögn.
Öldungarnir munu
bera saman bækur sínar.
Þetta er betra.
Er ég ekki heima hjá mér?
Nei.
Utanaðkomandi konur.
Þið megið dvelja hérna.
Svo þið séuð óhultar frá þeim
sem bannað er...
Eða bannað'r.
...að tala um.
En nú tilheyrið þið þorpinu
og verðið að skilja það
að þið megið aldrei fara héðan.
Hvernig dó sonur þinn?
Örlög heimsins eru að veði.
Þú veist hvað verður að gera.
-Myrtirðu hann?
Við sættum okkur ekki
við svona kjaftæði.
Þorpið er ekki eins og það var.
Nokkrum stundum
eftir árás geimveranna
hafa leiðtogar heimsins komið
saman hjá Sameinuðu Þjóðunum.
Á dimmustu stund mannkyns
leitar hver einasta sála
til visku og leiðsagnar
forseta Bandaríkjanna.
Dömur og herrar,
forseti Bandaríkjanna.
Kýldu þá kalda.
-Það ert þú, herra.
Já, auðvitað.
NÍGERÍA
EGYPTALAND
Indverji, Frakki og páfinn
voru saman í flugvél.
Flugmaðurinn spurði:
"Er einhver ykkar óumskorinn?"
Þá lyftir páfinn hempunni
og svarar: "Þegiðu, fávitinn þinn.
Þú talar ekki ensku."
Ísraeli sagði Japana
að opna augun.
Japaninn sagði: "Þegiðu, júði.
Þú seldir mér gleraugun."
Hver er munurinn
á Belga og hundaskít?
Belginn drekkur vín
og hundaskíturinn lyktar vel.
BELGÍA
Snúum okkur að alvöru málsins.
Ég kom hingað í dag í... UN,
því að það hefur
verið ráðist á Jörðina.
Við gætum hafa fundið
leið til að berjast.
Herráðgjöfunum hjá Pentagram
tókst nokkuð ómögulegt.
Þeir náðu geislabyssu
af einni geimverunni.
Geislinn steikir líkama fólks
en skilur fötin eftir.
En okkur tókst að snúa
áhrifum vopnsins við
og vonumst til að geta
notað það gegn geimverunum.
BÓLIVÍA
Hvar var ég?
Við gerum ráð fyrir því
að skildir geimveranna
geti ekki varist þessu vopni.
Kæra fólk.
Í guðs bænum.
Ég veit að þessi nýja tækni
virðist ógnvekjandi.
En ég trúi því að þessi geislabyssa
sé besta tækifærið okkar.
Ég skal sýna ykkur
hvernig hún virkar.
Er þetta ekki
örugglega í sambandi?
ÞÝSKALAND
Þetta er ófögur sjón.
Hér er allt laust og ógeðslegt.
Sjáið þetta litla, bleika drasl.
Sækið júgursmyrsl
svo að það smjúgi betur inn.
Harper. Jesús minn,
það eru allir naktir.
Kunnið þið ekki
að skammast ykkar?
Þú ert nakinn líka.
Er það? Ég hélt að þetta
væri krumpuð leðurkápa.
Eru þetta ekki hnappar?
-Nei.
Ég togaði þetta upp
og niður eins og rennilás.
Þarna lét öndin í sér heyra.
Sérðu þetta rauða gras?
Nei.
Hvað er langt til mömmu?
-Ég veit það ekki.
Ég get ekki borið
systur þína mikið lengur.
Ég hef gengið allan tímann.
Hver er þetta þá?
-Ég skal borga þér.
Haldið ykkur nálægt mér.
-Sjáðu.
Strákar, ég vil hjálpa ykkur.
Robbie.
Nei.
Vertu kyrr,
ég kem strax aftur.
Ég vil hjálpa ykkur.
Magnað.
Bíðið.
Ertu klikkaður?
-Þeir borga fyrir hálft háskólanám.
Brjálað.
Robbie.
Já.
-Hvað er að þér?
Sjáðu þennan.
Þetta er svo svalt.
Robbie.
Robbie.
Rachel.
Ertu ein, litla stúlka?
Komdu, þú ert óhult hjá mér.
Ekki satt, strákar?
Áttu lítinn bróður?
-Láttu hana vera.
Forðið ykkur.
Í átt að geimverunum
ef nauðsyn krefur.
Ekki fara! Ég á parísarhjól
og simpansa og stóran bangsa.
Við komumst öll fyrir.
Ekki mitt eigið andlit!
Ekki mitt eigið nef!
Hérna.
Fylgið mér í skjól.
Fylgið mér í skjól.
Ég veit ekki...
-Treystu mér, ég er góður mannþekkjari.
Það var lagið. Ó, Brenda.
Þér tókst það.
Þú ert fljót að læra
og hefur búið til gott smjör.
Hefurðu aldrei strokkað áður?
Við köllum þetta ekki
að strokka á mínum slóðum.
Varist pláguna.
Typpi. Píka.
Snöggar! Ofan í kjallara!
Nei.
Þetta er kjallarinn.
Þú ert í safnþrónni.
Andskotinn.
Þið eruð ekki skrímsli.
Gamla frú Henderson?
Jói svínsfés?
Hvað kom fyrir?
-Það er Henry.
Hann fékk hjartaáfall
af völdum þessa hnífs.
Hver gerði þetta?
-Það var Ezekiel.
Þú þarft að komast á spítala.
Við getum bjargað þér.
Já, þú getur byrjað á því
að halla þér ekki á hnífinn.
Ekki hafa áhyggjur, Cindy.
Við sendum hæfasta
þorpsbúann eftir lyfjum.
Ég er dauðans matur.
Leyfið mér að tala við
Cindy og Brendu í einrúmi.
Hlustið á mig.
Ég á skammt eftir ólifað.
Ræfill.
50 Cent var skotinn níu sinnum
og hann er ennþá á vappi.
Hver myrti drenginn?
Varst það þú?
Nei, ég elskaði hann
og móður hans afar heitt.
Ég hefði átt að vera þarna.
Hann hlaut voveiflegan dauðdaga.
-Hvað gerðist? Segðu mér það.
Þau fóru á titilbardaga
í hnefaleikum kvenna.
Þar lentu þau
í skelfilegu óhappi.
Drottinn minn dýri.
Bara í Bandaríkjunum.
Ég hef leitað að morðingja hans
en það var ég sem myrti hann.
Þetta var mín sök.
Ég átti að sigra geimverurnar
með því að finna morðingjann.
Það er rétt.
Skilurðu þetta ekki?
Þú þarft bara...
Hver hleypti honum
út úr fangelsinu?
Fógetinn, bróðir hans.
Geggjað.
Svona, elskan.
-Deyjum við ekki?
Það kemur ekkert fyrir þig.
Ég hef ekki misst neinn ennþá.
-Hvað með Robbie?
Nema Robbie.
Það eina sem skiptir máli
er að ég er hjá þér núna.
Reyndu að sofna.
Syngdu fyrir mig
"Góða nótt, sofðu rótt."
Ég kann það ekki.
Syngdu "Vögguvísu."
Því miður, Rachel.
Ég kann hana ekki heldur.
Viltu þessa peninga.
Vertu þá slæm tík.
Hristu rassinn fyrir þjórfé
ef þú ert slæm tík.
Kastaðu þér í gólfið
ef þú ert slæm tík.
Hún er engin hóra
heldur slæm tík.
Komdu inn.
Fáðu þér sæti.
Ég heiti Oliver.
-Tom Ryan.
Ég fann þennan stað.
Fullt af mat. Ásamt tveimur
nýdauðum slettirekum uppi
sem þóttust "eiga" staðinn.
Við getum haldið hér til að eilífu.
Ertu hræddur?
-Auðvitað.
Ekki ég.
Ég þekki dauðann vel.
Ég keyrði sjúkrabíl í borginni.
En ég var víst ekki
nógu góður ökumaður.
Ég drap fleira fólk
en ég bjargaði.
Sírenan gerir mig
svo æstan. ***!
Blóðbað.
En þetta er annað.
Þetta er stríð.
Nei, þetta er útrýming.
Þetta er ekki frekar stríð
en stríð milli manna og orma.
Eða dreka og úlfa.
Eða manna á drekum
sem kasta úlfum í orma.
Skilurðu það ekki?
Geimverurnar
hljóta að hafa veikleika.
Japanir drápu víst
nokkur kvikindi í Kikkoman.
Kikkoman er sojasósa.
-Einmitt, holl og góð.
Við ættum að berjast
og koma upp úr jörðinni.
Við verðum að grafa okkur niður,
en það er vel þess virði.
Svalt loft, sólvörn óþörf, ormar.
Smíðum okkar eigin þrífóta
og höfum þá með fjóra fætur.
Ég ætla að sýna þér dálítið.
Við gröfum göng aftan að þeim
og gerum þá skíthrædda.
Það væri gott að hafa skóflur.
Pabbi.
BRJÓSTGÓÐA ANNA
GRAÐFOLAR Á FERÐ
Pabbi.
Rachel.
Rachel.
Rachel.
Hvert er leyndarmálið?
Hvað fer fram hjá mér?
Ekki fleiri gerviskrímsli.
Hjálp, hjálp.
Ég lofaði að finna þig.
Hvar erum við?
Hvað er þetta?
Einhvers konar karfa
föst við þrífót.
Jesús minn.
Já, þetta er hræðilegt.
En hvers vegna? Hvað gera
geimverurnar við okkur?
Ég veit það ekki. Þær taka alla.
Unga, gamla, ríka, fátæka
og Chingy.
Pabbi.
Tom.
Er ég dauð?
-Þú ert ekki dauð.
Þetta gæti verið verra.
Viltu skipta?
Allt í lagi.
Sjáðu, Brenda.
Ég trúi þessu ekki.
Geimverurnar drápu risaeðlu.
Sælir, jarðarbúar. Velkomnir
inn í þennan aðalþrífót.
Hvað hefurðu gert við dóttur mína?
Það kemur í ljós en fyrst
vil ég fara í lítinn leik.
Þessi tæki fara í gang
eftir eina mínútu.
Hnappurinn á veggnum fyrir
aftan Cindy slekkur á þeim.
En hvar er lykillinn? Ég skal
gefa þér vísbendingu, Cindy.
Hefjið leikinn.
Ég skil þetta ekki.
Kannski hjálpar þetta þér
að sjá betur.
Á ég að skera eitthvað?
Já, það ætti að vera augljóst.
Nei.
Nei, lykillinn er
á bak við augað í þér.
Komdu hingað, Zoltar.
Hún ætlar að gera það.
Gerviauga.
Áflog á bar 1 996.
Vonandi kemur þetta
ekki upp á milli okkar.
Auðvitað ekki.
Er of seint fyrir mig
að prófa þetta?
Þögn, leiknum er ekki lokið.
Rachel.
-Pabbi.
Robbie.
Það eina sem heldur börnunum
á lífi ert þú, Tom.
Jæja, við áttum ágætt líf.
Þú áttir ekki von á þessu.
-Þvert á móti.
Ég stólaði á þetta.
Ég kalla þetta hnotubrjótinn.
Hvers vegna?
Auðvitað.
Leitaðu í hjarta föður míns.
Jesús minn. Auðvitað.
Blóðið vísar veginn.
Henry var stjúpfaðir hans.
Þú ert faðir stráksins.
Hvar kynntistu henni?
Á sumarhátíð í Cabo.
Ég féll í hópinn.
Hverjum er ekki sama?
Hvað er þetta?
Njóttu fjólubláu geirvartanna.
Sonur þinn myndi ekki vilja þetta.
Sál hans reikar um jörðina
vegna verka þinna.
Ég fór yfir þvera
vetrarbrautina til að hefna mín.
Þetta er mín sök.
Slepptu hinum.
Ég held ekki.
Líttu á hann...
Sjáðu, Cindy.
Ég er í sjónvarpinu.
Ég bið að heilsa
öllum vinum mínum.
Ertu klikkaður?
Enginn löðrungar Brendu.
Hjálp, Zoltar.
Djöfulsins kjaftæði.
Ég veit að þér er illa
við mannkynið en...
Eyrnaputtun.
Sonur þinn lifnar ekki við
þótt þú drepir okkur.
Nei, þið gjaldið öll
fyrir misgjörðir þínar.
Auk þess var ég búinn
að smíða þetta.
Þegar þú lokast inni
verður keðjan föst.
Þú bjargar börnunum þínum
en þjáist gríðarlega og deyrð.
Geturðu haldið í ástvini þína?
Þú hefur eina mínútu.
Engar áhyggjur, krakkar.
Ég gef ykkur ekki upp á bátinn.
Þú mátt sleppa. Þú þurftir bara
að sýna að þú elskaðir mig.
Og sýna mér hvað það er
að vera karlmaður.
Og sýna mér að ég
gæti elskað aftur.
Við fyrirgefum þér.
Gaddarnir staðnæmdust.
Krakkar.
-Pabbi.
Ætlarðu að þyrma lífi okkar?
Allir geta verið í fýlu en það
þarf hugrekki til að fyrirgefa.
Innrásinni er lokið.
Og?
-Og ég biðst afsökunar eða eitthvað.
Eins og þér sé alvara.
Fyrirgefið að ég myrti
milljónir manna.
Hvar er Brenda?
Hvað? Nú ríkir friður.
Ég gekk frá samningnum.
Komdu, Brenda.
Bless, Zoltar.
Ekki týna númerinu mínu.
Ekki smitaði hún þig?
Þetta er allt í lagi.
Hún sagðist vera hrein mey.
Við erum búnir að vera.
Mamma.
Þakka þér fyrir.
Þarna er afi ykkar.
Þetta er maðurinn minn.
Það er rómantískt
að allir geti orðið ástfangnir.
Þannig tókst ástinni
að sigra að lokum
og innrásarhernum var grandað.
Því að heimurinn okkar
er heimur mannsins.
Við höfum rétt á því
að lifa hérna.
Svo lengi sem við elskum
mun mannkynið lifa.
Öllum óvinum okkar hefur
mistekist að yfirbuga okkur.
Þeir hafa allir fallið
á eigin lymskubrögðum.
Í allri veröldinni
og öllum stjörnuþokum
erum við ein yfir aðra hafin.
Enginn ógnar tilveru okkar
eða efast um kraft okkar.
En hvers vegna? Af öllum
þeim kostum sem gera okkur einstök
er ástin sterkasta afl okkar.
Vegna ástarinnar mun mannkynið...
MÁNUÐI SÍÐAR
Takk, góða kvöldið
og velkomin í þáttinn.
Hjá okkur í dag er sérstakur
maður með sérstakar fréttir.
Hann er í húsinu.
Sá sem bjargaði heiminum.
Takið vel á móti Tom Ryan.
Besti vinur minn.
Ekki meira?
Allt í lagi.
Ertu ástfanginn?
-Já, ég er ástfanginn.
Hann er brjálaður.
Hann er genginn af göflunum.
Þú ert æðislegur svona ástfanginn.
-Takk.
Segðu okkur frá henni.
-Hún er frábær
og æðisleg
svo að þetta er erfitt.
Áttu við að hún sé flókin?
Þegiðu.
Þú ert klikkaður.
Tom Ryan er klikkaður.
Ég er klikkaður.
-Ertu hamingjusamur?
Ég er svo hamingjusamur.
Sjáðu þetta.
Þú ert kræfur, Tom.
Heldur betur.
Skór.
Ég elska Cindy Campbell.
Ég gæti hoppað um allt.
Er Cindy ekki hérna?
Ég veit að þú ert í húsinu, Cindy.
Cindy? Cindy?
Fáum hana fram.
Ég elska þessa konu.
Guð minn góður.