Tip:
Highlight text to annotate it
X
-Allt í lagi?
-Allt í góðu. Engar áhyggjur.
Allt í lagi með þig?
Skemmtu þér vel í L.A.
-Hann gerði það.
-Allt í lagi.
Segðu mér af hverju
allt snýst um þig.
Það snýst ekki alt um mig.
Þessi tæknifíkill
var kaldhæðinn,
-og þú veist það.
-Ég lít ekki þannig á það.
Della. Hvað með nýja útlitið?
Það var fallega sagt.
Hvað á ég að gera?
Ég vinn með manninum.
Veistu hvað?
Þú getur séð um þín mál sjálf.
Veistu hvað? Síðast þegar ég vissi
svafstu hjá mér.
Svo ef þú vilt ekki ríða honum,
þá legg ég til...
Hey, félagi. Hvaðan fer skutlan
á flugvöllinn?
-Þarna.
-Takk.
Það var hann í gyllta Lexusnum
að tala í gemsa.
Vilja þeir enn færa dómþingið?
Það gæti farið verr vegna
fyrri brota á níunda áratugnum.
-Hvert?
-Miðbæ. Norður Spring-stræti 312.
Miðbæ.
Eftirritin þurfa að vera til fyrir sjö
í fyrramálið, sama hvað hver segir.
Bíddu. Taktu Sepulveda
til Slauson til La Brea.
Taktu La Brea norður að Sjötta
inn í miðbæ.
Hvað með það? Þú verður seint
á fótum. Ég sef heldur ekkert.
Ég ætla að taka
105 austur að 110.
-Það er fljótlegra.
-Ha?
Ég sagði að 105 að 110,
verði fljótlegra.
110 er bílastæði
í kringum USC.
En La Brea er stífluð
norður af Santa Monica.
Á 110 norður af 10
er fólk á leið til Pasadena,
og það keyrir hægt.
Já, en ég fer út af á Grand
og svo...
En ef þú vilt taka göturnar
þá gerum við það.
-Viltu veðja?
-Vilt þú það?
Hvað ef þér skjátlast?
Ég efast um að mér skjátlist
en ef svo er, þá er ferðin ókeypis.
Samþykkt.
-Jæja, segðu það.
-Segja hvað?
-Gjörðu svo vel.
-Ég var heppinn með ljósin.
Þú varst ekki heppinn með ljós.
Þú hafðir rétt fyrir þér.
Ég hafði rangt fyrir mér,
Max.
Ertu til í að hækka?
-Ertu hrifin af gamalli tónlist.
-Já. Ég spilaði í menntó.
-Ég giska á tréblásturshljóðfæri.
-Nei. Strengja.
Ég hef ekki lungu
í blásturshljóðfæri.
Annað hefði ég haldið miðað
við frammistöðuna í símanum.
Það er annað hljóðfæri.
Ef þú hefðir tekið mark á mér
værum við föst í umferð,
og þú hefðir fengið 5 dollara
aukalega.
Þú mátt eiga þá.
Kauptu þér eitthvað flott. Hvað sem er.
Það er ekki... Skiptir engu.
Ekki mikilvægt.
Hversu margir leigubílstjórar
rífast til að spara manni peninga?
Við vorum tveir. Ég drap hinn.
Vildi ekki samkeppnina.
Leggurðu stolt þitt
í að vinna starf þitt vel?
Hvað, þetta? Ó, nei...
Þetta er... Þetta er hlutastarf.
Íhlaupavinna. Bogar reikninga.
En ég verð bestur í því sem ég geri.
En það er allt annað.
-Hvað annað?
-Ýmislegt í mótun.
Eins og...?
Segðu mér.
Eðalvagnafyrirtæki
sem ég er að stofna. lsland Limos.
Eins og eyja á hjólum.
Svöl sveifla, eins og í klúbbi.
Þú vilt ekki fara út úr limmanum
þegar þú kemur á völlinn.
Svo ég geri þetta í hlutastarfi
til að eignast Benz,
ná mér í starfslið, rétta kúnna.
Allt það.
Hvernig er að vera lögfræðingur?
-Ertu skyggn?
-Smá.
Teinótta dragtin.
Glæsileg, ekki of áberandi.
Útilokar auglýsingar.
Dýrasta skjalataskan,
sem inniheldur allt þitt líf.
Veskið. Frá Bottega.
Ef einhver sest hér inn með sverð,
þá er hann sushi kokkur.
Þú? Clarence Darrow.
Ekki alveg. Hann varði glæpamenn.
Ég er saksóknari.
-Stórt mál?
-Já.
-Komst okkur hingað hratt.
-Auðvitað.
En þú svaraðir mér ekki.
Hefurðu gaman af starfinu?
Já.
En ekki í dag.
Jú, víst. Ég get ekki beðið.
Ég ann því að standa í réttarsalnum.
En um leið,
þá fer ég á taugum
daginn áður en réttarhald byrjar.
Á taugum? Hvernig?
Sannfærð um að ég tapi.
Finnst málið lélegt,
sönnunargögn í óreiðu,
ég óundirbúin,
allir munu sjá að ég veit ekki
hvað ég er að gera,
og ég hafi verið að þykjast
allan þennan tíma.
Ég er fulltrúi
dómsmálaráðuneytisins,
og opnunarræðan mín misheppnast
á mikilvægasta augnabliki,
og kviðdómurinn hlær að mér.
Og svo græt ég. Ég æli ekki.
Það æla margir.
Ég hef sterkan maga.
Svo næ ég tö*** á mér,
endurskrifa opnunarræðuna,
fer í gegnum sönnunargögnin,
og eyði nóttinni þannig.
Það er vaninn hjá mér.
-Þegar það byrjar er allt í lagi.
-Þú þarft á fríi að halda.
Ég var í fríi
á hraðbrautinni.
Nei, ekki í leigubíl.
Þú þarft að ná áttum.
Finna sjálf þitt.
Finna samhljóm. Þú veist...
Hvenær tókstu þér síðast frí?
Ég er alltaf í fríi.
-Hversu oft?
-Tíu sinnum á dag.
Á uppáhalds staðinn minn.
Maldives eyju.
Einkaeyjan mín.
Ef lífið er of erfitt
tek ég mér fimm mínútur
og fer þangað.
Og einbeiti mér
að engu.
-Hérna. Taktu hana.
-Ó, nei. Ég get það ekki.
Taktu hana. Þú þarft meira
á henni að halda en ég.
Og hún hjálpar þér.
Ég ábyrgist það.
Takk, Max.
Stattu þig.
Hey.
Ég veit ekki,
ef þú skyldir vilja rannsaka
risafyrirtæki eða
rökræða um ökuleiðir.
Hey.
Ó, hey, hey. Já.
Gjörðu svo vel. Fyrirgefðu.
Ég heyrði ekki í þér.
Komdu, ég er laus.
-Hvert?
-Suður Union-stræti 1039.
Ekki málið.
-Hvað tekur það langan tíma?
-Sjö mínútur.
Sjö. Ekki átta? Ekki sex?
Tvær mínútur yfir 110
að Normandie.
Normandie að Venice,
þrjár mínútur.
Yfir að Union er ein.
Og ein ef illa fer.
-Má ég taka tímann?
-Gjörðu svo vel.
Og ef það er rangt?
Fæ ég ókeypis far?
Þú færð afsökun.
Ég bauð þegar ókeypis far í dag.
-Hverjum?
-Stelpu.
Fékkstu stefnumót?
-Ertu í L.A. í fyrsta sinn?
-Nei.
Satt best að segja er ég
ekki fyrr kominn en ég vil fara.
Of dreifð, sundurslitin borg.
Þú veist.
-Finnst mér. En þér?
-Ég á heima hér.
Sautján milljón manns.
Þetta land
væri það fimmta stærsta hagkerfi
heims, og enginn þekkir neinn.
Ég las um gaur
sem fór í lestina og dó.
Sat þar í sex klukkutíma
áður en einhver tók eftir líkinu
að hringsóla í L.A.,
fólk settist við hliðina á honum.
Enginn tók eftir neinu.
Þetta er hreinasti leigubíll
sem ég hef séð.
-Keyrirðu hann alltaf?
-Já, deili honum með dagvakt.
-Viltu frekar vinna á nóttunni?
-Já, fólk er afslappaðra.
Minna stress, minni umferð,
meira þjórfé.
-Hvernig eru tryggingarnar?
-Þetta er ekki þannig vinna.
Ég er ekki fastráðinn.
Bara íhlaupastarf.
Tímabundið, meðan
aðrir hlutir eru að mótast.
Bara tímabundið.
-Hversu lengi hefurðu ekið?
-Tólf ár.
Er það?
Hvaða hluti
ertu með í mótun?
Ég vil ekki ræða það.
Bara lítil viðskiptahugmynd.
-Ekki illa meint, ég bara...
-Ekki málið.
Þú framkvæmir í stað þess að tala.
Það er fínt.
-Sjö mínútur. Þú ert nákvæmur.
-Ég var heppinn með ljós.
Einmitt. Þú veist örugglega
hvenær ljósin eru græn.
Heyrðu, ég er að ganga frá
fasteignasamningi í nótt.
Fimm stopp.
Safna undirskriftum, hitti vini,
og flýg svo klukkan sex frá LAX.
Af hverju kemurðu ekki með.
Bíllinn er ekki til leigu.
Það er bannað.
-Bannað?
-Já.
Þú færð ekki veikindafrí.
Hvað færðu fyrir vaktina?
-Hversu mikið?
-350, 400.
Já? Ég veit.
Ég borga þér 600.
-Ég veit ekki.
-Og hundrað í viðbót
ef ég þarf ekki að hlaupa
í vélina.
Nei, maður.
Ég veit ekki.
-Ég veit ekki.
-Jú, víst.
-Ég veit ekki, maður.
-Jú, víst.
Sex hundruð...
Flott. Þá er það ákveðið.
Hér er 300 innborgun.
-Hvað heitirðu?
-Max.
-Max. Ég heiti Vincent.
-Einmitt.
Ég get ekki lagt ólöglega hér.
Hittu mig í sundinu
bak við þetta hús.
Pottþétt ekki héðan.
Þetta er málið.
Ó, nei! Andskotinn! Fjandans!
Hver fjár...?
Hvað í andskotanum?
Fjandans!
Heyrðu vinur,
er í lagi með þig?
Fjandinn. Andskotinn.
Hann... Hann datt á bílinn.
Hann datt þarna að ofan
beint á bílinn.
-Fjandinn. Ég held hann sé dauður.
-Góð ágiskun.
Drapstu hann?
Nei, ég skaut hann.
Kúlurnar og fallið drápu hann.
Vá, maður.
Fjandinn hafi það.
-Rautt ljós, Max.
-Bíddu. Bíddu.
Hendurnar niður.
Hendurnar niður.
Ókei. Ókei.
-Ókei, hjálpaðu mér. Opnaðu skottið.
-Ha?
Opnaðu skottið.
Komdu maður. Komdu.
Hvað...? Hvað ertu að gera?
Ég ætla að velta honum af þakinu.
Get ekki skilið hann eftir.
Nema þú viljir hann fram í með þér...
Miðað við hreinlætið...
-Fjandinn.
-Ókei.
Þetta er bara lík.
Taktu í hendurnar á honum.
-Ég get þetta ekki.
-Taktu um úlnliðina.
-Heldurðu taki?
-Já. Hann kippist til.
Ókei. Þetta dugar.
-Komum okkur.
-Hey, taktu bara bílinn.
-Taka bílinn?
-Já, taktu hann.
Ég tek því rólega.
Þeir vita varla hver keyrir
hvort eð er.
Það er aldrei kannað.
Ókei? Taktu hann bara.
Þú, ég...
Þú lofar að segja engum?
-Já. Já. Já.
-Er það ekki?
Lofa því.
-Í fjandans bílinn.
-Þú... Þú...
lnn í bílinn.
Ramone?
Ramone?
Ramone!
Ramone!
Fjandinn.
-Vaktstjóri í Rampart.
-Þetta er Fanning, eiturlyfjadeild.
Tvo bíla og rannsóknarlögreglumann
að Suður Union 1039.
-Og sendið SID. Vettvangur glæps.
-Skilið. Suður Union 1039.
-Hvað ertu að gera?
-Ég verð að þrífa þennan skít.
Og? Lafði Macbeth,
við sitjum á grænu ljósi.
Láttu sætin vera.
Skíthæll!
Þetta er ekki lengur
hreinasti bíllinn í La-La-landi.
Sættu þig við það.
Hugsaðu um starfið. Aktu.
-Fountain 7565. Veistu hvar það er?
-West Hollywood.
-Hversu lengi, heldurðu?
-Ég veit ekki, 17 mínútur.
Af hverju?
-Ó, nei. Nei, nei. Bíddu hægur.
-Ég sagði þér við þyrftum
-að stoppa á fleiri stöðum.
-Nei, þú sagðist
-ætla að heilsa upp á vini.
-Ja, þetta eru vinir einhvers.
Þú keyrir bílinn, ég stoppa hér og þar,
þú lifir kannski nóttina af
og græðir 700 dollara.
Ég vil ekki ergja þig
en ég get þetta ekki.
Ég get ekki ekið þér um
til að drepa fólk.
-Það er ekki mitt starf.
-Það er það í kvöld.
Þú skilur þetta ekki
Ég meina það. Ég meina það.
Ég... Ég ræð ekki við þetta.
-Ókei. Þú ert stressaður.
-Já, ég er það.
Þú ert stressaður.
Ég skil það.
Andaðu bara rólega
og halltu stillingu þinni.
-Andarðu?
-Fjandinn.
-Andarðu?
-Já.
Ókei, gott.
Svona er þetta:
Þú áttir að aka mér í nótt
og aldrei komast að neinu
en el gordo fór fyrir gluggann
og stakk sér út.
Þetta er plan B.
Andarðu enn?
Við verðum að gera gott úr þessu.
Aðlaga okkur að kringumstæðum.
Darwin. Óheppni. I Ching.
Skiptir engu. Við bregðumst við.
"I Ching"?
Hvað ertu að segja?
-Þú hentir manni út um glugga.
-Ég henti honum ekki. Hann datt.
-Hvað gerði hann þér?
-Ha?
-Hvað gerði hann þér?
-Ekkert. Ég hitti hann fyrst í kvöld.
Varstu að hitta hann
og drapst hann svona?
Hvað, má ég bara drepa fólk
sem ég þekki?
-Nei, nei.
-Max, 6 milljarðar manna á jörðinni,
og þú ert að tapa þér
yfir einum feitum gaur.
-Hver var hann?
-Hverju skiptir það?
-Hefurðu heyrt um Rúanda?
-Já, ég veit um Rúanda.
Tugþúsundir drepnir
fyrir sólsetur.
Enginn hefur drepið fólk jafn hratt
síðan í Nagasaki og Hiroshima.
-Blikkaðirðu, Max?
-Ha?
Gekkstu í Amnesty,
Oxfam,
"Bjargið hvalnum,"
Greenpeace eða álíka? Nei.
Ég drep einn feitan Los Angeles búa,
og þú tapar þér.
Ég þekki engan frá Rúanda.
Þú þekkir heldur ekki
gaurinn í skottinu.
Maður lifandi.
Ef það hjálpar þér eitthvað,
þá var hann glæpamaður
og óforbetranlegur sem slíkur.
Hvað ertu að gera?
Fara út með ruslið?
Já. Eitthvað svoleiðis.
-Út í hægri kant.
-Fjárinn.
-Losaðu þig við þá.
-Hvernig?
Þú ert leigubílstjóri.
Kjaftaðu þig undan sektinni.
Gerðu það,
ekki gera neitt.
Ekki koma mér í vanda.
Það er ekki meira pláss í skottinu.
-Ég trúi þessu ekki.
-Trúðu því.
Ekki. Ég skal tala við þá.
Hann er sennilega kvæntur.
Hinn á krakka.
Konan sennilega ólétt.
Já, ég skal redda þessu.
Ég sé um þetta. Já. Augnablik.
Hvað segirðu? Félagi minn
þarna megin ætlar að tala við þig.
Ökuskírteini, skráningarskírteini.
Já.
Þú varst stöðvaður
af því framrúðan er brotin.
-Er allt í gildi?
-Já.
Voruð þið
í matarslag hérna?
Já, ég... Meiri subbuskapurinn.
Þríf þetta bara...
Hey, er þetta blóð
á framrúðunni?
Já.
Já, ég ók á dádýr.
-Ókstu á dádýr?
-Já, á...
-Ég var á Slauson.
-Dádýr úr suðurbænum?
Já, þau eru þar. Þau...
Hljóp í veg fyrir bílinn,
ég gat ekki forðast það.
-Af hverju ertu enn með farþega?
-Ég var á leiðinni á stöðina og...
Ég get bara skutlað honum.
Það er á leiðinni.
Já, en bíllinn er ekki í lagi
og við verðum að taka hann.
Við verðum að skoða bílinn
áður en dráttarbíllinn kemur.
Opnaðu skottið
og komdu út úr bílnum.
Þú verður því miður
að hringja á annan bíl.
Er það nauðsynlegt?
Ég er hér rétt hjá.
Því miður.
Viltu koma út úr bílnum.
-Þú líka. Komdu.
-Ef þú opnar skottið fara þeir í það.
Veistu hvað,
þetta var löng vakt.
Svo er stöðin hérna rétt hjá.
Gefðu mér séns.
Þetta er fyrsti farþeginn.
Út úr bílnum. Opnaðu skottið.
Svona nú.
Komdu út. Þú líka.
Gjörðu svo vel.
Þetta er símstöð á Rampart.
Skotum hleypt af á 83. og Hoover.
Allir lausir bílar
í 26. umdæmi svari. Yfir.
Hey, félagi, við þurfum að fara.
Meðtekið. Á leið.
Beint á stöðina.
Góða nótt, herra.
Stoppaðu hér.
Hendur á stýri, 10 og 2.
-Af hverju?
-Af því ég sagði það.
-Max. Max.
-Fjandinn.
Ertu þarna, skíthæll?
-Hver er þetta?
-Lenny. Á stöðinni.
Max, ég veit þú ert þarna.
Svaraðu mér.
-Hvað gerist ef þú svarar ekki?
-Hann heldur áfram.
Max, svaraðu.
Ekki eyðileggja neitt.
-Já, Lenny, hvað? Þetta er ég.
-Ég var að tala við lögguna.
Hún hringdi til að staðfesta
að bíllinn væri kominn inn.
-Já, og?
-Ég hata að tala við lögguna,
og klesstirðu svo bílinn?
Nei, nei, það var klesst á mig.
Ég klessti ekki...
Eins og mér sé ekki sama?
Þú borgar.
Þetta var slys.
Þú ert ekki ábyrgur.
-Þetta var slys. Ég er ekki ábyrgur.
-Della. Ég geri þig ábyrgan.
Þetta kemur
úr þínum eigin vasa.
Segðu honum
að steinhalda kjafti.
-Nei. Þetta er yfirmaður minn.
-Og?
-Ég þarf á starfinu að halda.
-Nei.
Ertu þarna? Ég er að tala við þig.
Max! Max!
-Hann borgar þér ekki neitt.
-Hver er þetta?
Albert Riccardo,
aðstoðarsaksóknari,
farþegi í bílnum og ég
tilkynni þig bifreiðaeftirlitinu.
-Ekki æsa þig.
-Ekki æsa mig?
Hvernig get ég annað
en æst mig,
þegar þú reynir að
fjárkúga vinnandi mann?
Þú veist fullvel
að kaskó-ábyrgðin
og almennar tryggingar þínar
bæta allt tjónið.
Hvað ertu að reyna,
meinyrti drullusokkur?
-Ég var bara að...
-Segðu honum það.
Hérna, segðu honum að hann
sé skíthæll. Áfram.
Þú ert skíthæll.
Ef hann gerir þetta aftur
ætlarðu að troða
leigubílnum upp í hann.
Og næst þegar þú lætur svona
þá... þá treð ég þessum
leigubíl upp í þig.
Andskotinn!
Nálgunarbann og álíka, þar sem
um er að ræða umsátur tengds aðila
þegar eiginmaður vill konuna aftur,
eða kærasti kærustuna.
Þá heyrum við:
"Fáðu nálgunarbann. "
Nálgunarbann er tækni
sem við notum
en oft lítur umsátursmaðurinn
bara á það sem bréfsnepil.
-Já.
-Hr. Clarke,
það er nótaríus hér
sem biður um þig.
Kynnti hann sig sem nótaríus?
Já.
Allt í lagi, sendu hann upp.
Eða skýtur þá.
Það gerist allt of oft.
-En við notum það tæki.
-Já, oft, en...
Oft, segi ég... Í þessum tilvikum
er oft hringt eða skrifað.
En hversu oft
eru umsátursmenn
einstaklingar
sem fórnarlömbin þekkja?
Hey! Hey, ég er í leigubílnum!
Hey!
Fjandinn. Hérna inni...
Í sundinu!
Fjandinn!
Hey, bíðiði.
Ó, já, maður.
Hey, já, einmitt.
Ég er í bílnum, maður, fastur.
Takk. Takk.
Hey, maður. Sjáðu til,
ég verð að komast héðan.
-Hvað segirðu? Hvað er í gangi?
-Ég er bundinn.
Þessi gaur batt mig
og fór þarna inn
að stofna til vandræða.
Ég verð að komast út.
-Ertu bundinn?
-Losaðu mig. Ég hringi á lögguna.
Láttu mig fá
fjandans veskið þitt.
-Ertu að grínast?
-Virðist ég vera að grínast?
Sérðu ekki að hendurnar á mér
eru bundnar við stýrið?
Mér er skítsama við hvað
þær eru bundnar. Ég fer illa með þig.
-Ekki skjóta, maður.
-Færðu þig þá.
-Fjandinn.
-Já.
Hvað annað er hér?
Stóri vinningurinn.
Þetta var ekta.
Heyrðu, vinur.
-Er þetta skjalataskan mín?
-Skjalataskan þín?
Já. Viltu fá hana aftur?
Hvað með veskið þitt?
Hvað annað áttu handa mér?
Fjandinn!
Hvar er takkinn?
Undir mælaborðinu?
Viltu sækja hann?
Ef þú dregur athygli að þér
þá deyr fólk sem ekki þarf þess.
Skilurðu það?
-Já.
-Já?
En heyrðu, nýjustu fréttir:
Við erum á undan áætlun.
-Ertu hrifinn af djassi?
-Hvað þá?
-Djass. Ertu hrifinn af honum?
-Ekki svo mjög.
Ég heyrði um stað
rétt hjá Crenshaw.
Í Leimert Park.
Vesturstrandarrisarnir spiluðu þar.
Dexter Gordon, Charlie Mingus,
Chet Baker. Allt það.
Svona, kláraðu. Ég býð þér í glas.
Heimildarmaðurinn þinn,
hvað heitir hann? Ramone?
Ramone Ayala. Átti að hitta mig
í Bellflower í gær.
Hann kom ekki,
ég kem hingað og finn þetta.
Hvað hefurðu unnið
með honum lengi?
Fjóra mánuði.
Hann er lágt settur.
Hluti dreifingarkeðju
tengist Felix.
Felix Reyes-Torrena?
Alríkislögreglan eltist við hann.
Vill ekki að við skiptum okkur af.
Hvenær fór L.A.P.D. að vinna
fyrir alríkið?
Ef þeir hafa áhuga
taka þeir öll gögnin okkar
setja málið saman og taka heiðurinn.
Til hvers að reyna?
Málið er að gaurinn
flaug út um glugga.
Ef heimildarmaðurinn minn
fer út um glugga
þá er hann með lófaför Felix
á rassinum. Svo ég á málið.
Var glæpur framinn hér? Morð?
Er lík hérna?
-Ég sé bara brotið gler.
-Og blóð.
Hérna niðri, í glerinu.
Hér er meira.
Hér hefur það slest,
þarna og þarna.
-Richard?
-Já, það er ég.
Ramone fór út um gluggann,
splass.
Gler hér, svo rúlla dekk yfir það.
-Kannski hann hafi stokkið.
-Já.
Já, stekkur í þunglyndiskasti
í gegnum rúðu af fjórðu hæð.
"Vá, mér líður betur."
Stendur upp.
"Nú get ég haldið
áfram með daginn."
-Láttu ekki svona.
-Hey, Ray! Gríptu.
-Nýlegt?
-Lyktin finnst enn af púðrinu.
Gamall maður á móti
segist hafa séð leigubíl
hér fyrr í kvöld
og tvo menn ganga í
kringum húddið.
Lýsing? Sá hann eitthvað?
Sá og sá ekki.
Hann er með flöskubotnagleraugu.
Það eru 4000 leigubílar
í Los Angeles.
-Eitthvað fleira?
-Nei.
Ókei. Bönkum áfram.
Bönkum áfram.
Manstu þetta upp í flóanum?
Oakland?
Leigubílstjóri ók um,
drap þrjár manneskjur,
og svo sjálfan sig.
Fór yfir um. Og?
Rannsóknarlögreglan í
Oakland trúði því ekki.
Bílstjórinn var ekki á sakaskrá,
engar geðtruflanir á skrá.
Drepur þrjár manneskjur
svo sjálfan sig?
Löggan hélt alltaf að einhver
annar hefði verið í bílnum.
Ég hef aldrei lært
að hlusta á djass.
Það ekki í laglínu. Bak við nóturnar.
Ekki það sem maður býst við.
-Spuni, eins og í kvöld.
-Eins og í kvöld?
Flestallir, eftir tíu ár,
vinna sama starf, á sama stað.
Allt verður eins.
Vilja bara öryggi,
aftur og aftur og aftur.
Tíu ár héðan í frá.
Og þú veist ekki hvar þú
verður eftir tíu mínútur.
Er það?
-Hver er að spila á trompettinn?
-Það er Daniel, elskan, eigandinn.
Hann er frábær. Viltu biðja hann
að koma hingað á eftir?
-Ég verð að bjóða honum í glas.
-Sjálfsagt, ljúfur.
Nei, sjáðu til, ég var 19 ára,
vikapiltur hérna.
Hundléleg laun,
en það var ekki málið.
Heldur að vera nálægt tónlist.
Sem ég var.
Til dæmis eitt kvöld.
22. júlí, 1964. Hver haldið þið
að komi hingað inn?
Bless, elskan.
Miles Davis. Einmitt.
-Hinn eini sanni?
-Einmitt.
lnn um þessar dyr,
svalasti maður á jörðu.
Jesús.
Hann hafði verið
að taka upp
hjá Columbia, á Vine.
Svo Miles kemur þarna inn.
Áður en þú veist af er hann á sviðinu,
að djamma með hljómsveitinni.
-Það hlýtur að hafa...
-Það var ógnvekjandi.
Hann var svo einbeittur, maður.
Svo var hann bara
svolítið ógnvekjandi.
Það vissu allir
að maður fer ekki bara
að tala við Miles Davis.
Hann virtist kannski afslappaður
en hann var niðursokkinn.
Eitt af flottu pörunum fór og
ætlaði að taka í höndina á honum.
Og gaurinn segir:
"Sæll, ég heiti..."
Miles sagði: "Hypjaðu þig
sveifluskíthæll.
Og taktu heimsku tíkina með."
Skilurðu? Það...
Þetta var Miles, maður.
Þannig var hann þegar hann var
á kafi í tónlistinni. Ákafur.
En gast þú talað við hann?
-Betra en það.
-Nei.
-Ég spilaði í 20 mínútur.
-Ótrúlegt.
-Hvernig varstu?
-Hvernig var ég?
Maður er hundlélegur
við hliðina á Miles Davis.
En hann bar mig með sér.
-Hvað sagði hann?
-Eitt orð: "Svalt."
-"Svalt"?
-Já.
-Var það allt?
-Já.
Það þýddi:
"Góður, en ekki tilbúinn."
Það þýddi:
"Finndu mig þegar þú ert til."
-Gerðirðu það?
-Nei.
Ég var kallaður í herinn
og gerði aðra hluti.
Og þegar ég sneri mér aftur
að tónlist var þetta liðin tíð.
Ég fæddist árið 1945,
en þessa nótt varð ég til.
-Hér, í þessum sal.
-Það er enginn fjöldi hér núna.
Djassinn er ekki jafn vinsæll
og hann var.
Frábær saga.
Ég verð að segja þeim í Culiacán
og Cartagena þessa sögu.
Þekkirðu fólkið í Culiacán
og Cartagena?
Ég er hræddur um það.
Ég sem hélt
þú værir svalur gaur.
Ég er svalur gaur, með samning
um verk sem þarf að vinna.
Svona nú, Vincent,
láttu hann sleppa.
-Ég er að vinna.
-Heyrðu. Þú varst
að tala um spuna. Þér líkar við hann,
hvernig hann spilar.
-Spilum smá djass. Svona nú.
-Spuna...
Það er fyndið, frá þér.
Hvað með þetta?
Ég spyr spurningar.
-Hvernig spurningar?
-Djass spurningar.
Ef þú svarar rétt förum við.
Þú hverfur í kvöld.
Ef ég geng héðan út í kvöld,
þá fer ég svo langt í burtu
að ég verð sama og dauður.
Og eitt enn:
Þetta fólk,
og fulltrúi þeirra hérna, Felix.
Segðu þeim að mér þyki það leitt.
Segðu þeim að ég hafi orðið.
Ég fékk friðhelgi.
Ég varð.
Spila með eða fara aftur inn.
Og ég fer ekki aftur inn.
Já.
Láttu mig heyra.
Hvar lærði Miles tónlist?
Ég veit allt sem hægt er að vita
um Miles.
Láttu mig heyra.
Tónlistarskóla.
Komst hann ekki inn í tónlistarskóla?
Pabbi hans var tannlæknir,
í East St. Louis.
Fjárfesti í landbúnaði,
græddi heilan helling.
Hann sendi Miles
í Juilliard tónlistarskólann,
New York, 1945.
Maður.
Hætti í Juilliard
eftir minna en ár.
Fann Charlie Parker
á 52. stræti,
sem leiðbeindi honum
næstu þrjú árin.
-Hey.
-Nei. Nei, ég er hættur.
-Fáðu annan leigubíl.
-Max.
Láttu mig vera.
Ég er aukahlutur hvort eð er.
Ég er ekki að leika mér.
Þú lékst þér með hann.
Hefðirðu leyft honum að fara
hefði hann svarað rétt?
Þetta er 102. Þetta er 102. Max?
-Hvað er með þennan gaur?
-Max?
-Ertu að argast í bílstjóranum aftur?
-Hver ert þú?
Sá sami og þú talaðir við síðast.
Mamma Max er að gera mig óðan.
Leyf mér að heyra í honum.
Bíddu.
Varlega.
-Já.
-Mamma þín hringir
á tíu mínútna fresti.
Af hverju komstu ekki?
Er allt í lagi?
Hvar ertu?
Komstu ekki hvert?
Segðu henni að ég
komist ekki í kvöld.
Ég er ekki skyldur þér.
Segðu henni það sjálfur.
Komstu ekki hvert?
Hún er á spítala.
-Heimsækirðu hana á hverju kvöldi?
-Já. Hverju skiptir það?
-Ef þú mætir ekki brýturðu út af vana.
-Og?
Þá fer fólk að leita að þér,
að bílnum. Það væri slæmt.
Þú ferð ekki með
til mömmu.
Hvenær fórum við að semja?
Tvö skref fyrir framan,
eitt til vinstri.
Hey. Blóm?
Það er sóun.
Skiptir hana engu.
Hún gekk með þig
í níu mánuði.
Fólk kaupir blóm.
Kauptu blóm.
Afsakið.
Þú mátt eiga afganginn.
Viltu halda lyftunni.
-Hvaða hæð?
-Fimm. Takk.
-Gott kvöld?
-Mezzo e mezzo. Þú?
Afsakið.
Hey, mamma.
-Ég hringdi og hringdi.
-Já, ég var upptekinn í vinnunni.
Af hverju hringdirðu ekki?
Ég hélt að eitthvað hræðilegt
hefði komið fyrir.
-Ég kom með blóm.
-Hvað á ég að gera við blóm?
-Gleðjast.
-Hvernig?
Yfir því að þú eyðir peningum
í hluti sem visna og deyja?
Sérðu? Ég keypti ekki blómin,
mamma. Hann gerði það.
Hver?
Af hverju sagðirðu ekki
að það væru gestir?
Hvað heitirðu?
Afsakaðu hvað sonur minn er ókurteis.
Allt í lagi, frú.
Borgaðir þú fyrir blómin?
Þau eru falleg.
Jæja, Max?
Mamma, þetta er Vincent.
Vincent, þetta er móðir mín, lda.
Það gleður mig að kynnast þér,
frú Durocher.
Kallaðu mig bara ldu.
lda. Ég var með Max
þegar hann fékk skilaboðin.
Og komstu alla þessa leið
til að hitta mig?
-Það var ekkert, frú.
-Segðu syni mínum það.
Það þaf að miða byssu á hann
svo hann geri nokkuð.
Þú hlýtur að vera einn af
mikilvægu viðskiptavinunum hans.
Viðskiptavinum? Ég...
Ég lít frekar á mig sem vin.
Max hefur aldrei
átt marga vini.
Talar alltaf við sjálfan sig í speglinum.
Ekki heilbrigt.
Hvað á ég að biðja oft?
Ekki gera þetta.
Gera hvað?
Ekki tala um mig
eins og ég sé ekki nálægt.
Hvað er hann að segja?
Hann segist standa hérna,
í herberginu.
Já, það ertu.
Hann er viðkvæmur.
Ég veit. En ég er viss um
að þú ert stolt af honum.
Auðvitað er ég stolt.
Hann byrjaði frá grunni.
-Og sjáðu hann í dag. Hérna, Vegas...
-Mamma. Mamma.
Mamma. Hann hefur ekki áhuga
á þessu, ókei?
Ég kom í heimsókn,
þú lítur vel út. Förum.
Nei, nei, nei. Nei, nei, nei.
Ég hef áhuga, lda. Gerðu það.
-Eðalvagnafyrirtæki.
-Er það?
Hann keyrir frægt fólk um.
Frægt fólk.
Eðalvagnafyrirtæki.
Þetta er mikið afrek.
Hvað sagðistu aftur heita?
Ég heiti Vincent, frú.
-Kemurðu aftur?
-Nei, ég bara í bænum í nótt.
-Þegar þú kemur næst.
-Auðvitað.
Max!
Ekki!
Allur undirbúningurinn minn.
Þú ert að trufla störf mín.
Sjáum hvað fleira þú getur gert.
Það hafa fjórir komið inn í nótt.
Kannski það sé einn þeirra.
Nei, ekki Ramone.
Leyf mér að sjá þennan.
Nei, næsti.
Veistu hvað var skrýtið við þetta?
Þeir komu allir inn
á sama hálftímanum.
Strákurinn og sá síðasti voru
örugglega drepnir af sama manni.
-Af hverju?
-Mynstrið.
Tvö skot í brjóstið,
eitt í höfuðið.
Hann skýtur líka þétt.
Sjáðu þetta.
Tvö skot með millimetra bili.
Sjáum þennan.
Sérðu hvað ég meina?
-Hjálpi mér. Má ég nota símann?
-Já.
Svona, svona, vaknaðu.
-Halló.
- Hey, þetta er Fanning.
Ég er í líkhúsinu
við Sisters of Charity.
Hann er enginn af þeim sem eru hér,
en gettu
-hver er hér í kæliskápnum.
-Hver?
Sylvester Clarke, verjandi
sem varð glæpamaður.
Meðal annars fyrir Ramone,
sem er enn saknað.
Og þeir unnu saman
í efnabransanum.
Það er eitthvað í gangi,
sem alríkislögreglan
veit ekki um.
Hafðu gemsann opinn,
ég hef símanúmer yfirmannsins þar.
-Heyri í þér innan hálftíma.
-Gott.
Þú ætlar á stað sem heitir
El Rodeo.
Á Washington-breiðstræti
í Pico Rivera.
-Hvar á Washington?
-Flettu upp á því.
Eðalvagnar, ha?
Ekki byrja.
Ég er ekki að ljúga
að mömmu minni.
Hún heyrir það sem hún vill.
Ég leiðrétti það ekki.
Einmitt. Kannski hún heyri
það sem þú segir.
Hvað sem ég segi
er ekki nógu gott.
Hefur aldrei verið.
-Hvað er á El Rodeo?
-Aktu bara.
Þau varpa göllum sínum
yfir á þig.
Það sem þeim líkar ekki við sig,
líf sitt, eða hvað sem er.
Þau röfla í þér í staðinn.
-Hvernig veistu?
-Pabbi var svona.
Mæður eru verri.
Ég veit það ekki. Mamma dó
áður en ég man eftir mér.
Hvað varð um pabba þinn?
Hann þoldi ekkert sem ég gerði.
Datt í það, lamdi mig, fósturfjölskyldur.
Fór aftur til hans. Þannig.
Svo hvað?
Ég drap hann.
Ég var 12 ára.
Ég er að grínast.
Hann dó úr lifrarsjúkdómi.
-Mér þykir það leitt.
-Nei, það þykir þér ekki.
Hvað á það að þýða að "keyra leigubíl
tímabundið"? Er það ekki della?
-Það er engin della.
-Tólf ár er ekki tímabundið, Max.
Verð að öngla saman fé.
Trygging, viðhald, hjólbarðar.
Starfslið, réttu kúnnarnir.
Það snýst ekki bara um bíl
og rassa í sætin.
-Af hverju ekki?
-Af því að lsland Limos
er meira en bíll. Það er...
Eins og í klúbbi. Svöl sveifla.
Má ekki enda.
Verður að vera fullkomið.
Fullkomið.
Það er hérna. Beygðu til hægri.
-Láttu mig fá veskið þitt.
-Veskið mitt. Til hvers?
Ég geymi það ef það
skyldi vera leitað á þér.
-Hver ætti að leita?
-Fólkið inni.
Farðu inn og spyrðu um Felix.
Hann á von á þér.
-Felix.
-Já.
-Hvernig lítur hann út?
-Veit ekki, hef aldrei hitt hann.
Hver er hann?
Hann tengist þeim
sem réðu mig.
-Ég skil þetta ekki.
-Þú eyðilagðir plönin.
Ég þarf stúta fjórða.
Hélstu að við værum hættir?
Aflýst vegna veðurs?
Þú ferð inn, segist vera ég.
Færð afritin.
Þau eru á flash-drifi
eða geisladiski.
-Ég? Af hverju ekki þú?
-Ég hitti ekki fólk.
Áhættustjórnunn. Nafnleysi.
Ég passa mig. Þú breytir því ekki.
Ég samdi við yfirmenn þeirra.
Þeir fá ekki að hitta mig.
Þeir vita ekki hvernig ég lít út.
Ef ég get þetta ekki, þá...
Drepa þeir þig.
Þú hefur tíu mínútur.
Klukkan 22:01 fer ég
á spítalann
og tek móður þína af lífi
á leiðinni út úr bænum.
-Og ekki þykjast standa á sama.
-Ég get þetta ekki.
-Ég get það ekki.
-Hvað ertu að segja?
Þú getur það víst.
Svona nú. Hey. Hey.
Sjáðu til, ef ég geri þetta
verð ég valdur að dauða fleira fólks.
Engra kosta völ, Max. Huggaðu þig
við að þú áttir engra kosta völ.
-Hvað hefurðu gert þetta lengi?
-Af hverju?
Ef þeir skyldu spyrja.
-Sex ár í einkageiranum.
-Ókei. Sex ár.
Færðu tryggingar?
Eða eftirlaun?
Nei, ekkert veikindaleyfi.
Hættu að tefja. Út með þig.
-Já? Bíddu við.
-Bíddu, maður.
Hver er þetta?
Taktu tímann.
Allt í lagi, þetta er í lagi.
-Hvað segið þið?
-Hey. Hvað segist?
Ég þarf að hitta Felix.
Hann er með svolítið handa mér.
Þekki engan Felix.
Segðu honum...
Vince...
Segðu að það sé Vincent.
Ég heiti Vincent.
Skilið.
Hleypið honum inn. lnn strax.
Gjörðu svo vel.
Rannsóknarlögreglumaður Weidner,
L.A.P.D., eiturlyfjadeild.
Ray Fanning,
-L.A.P.D., eiturlyfjadeild.
-Sælir. Frank Pedrosa, útsendari.
Takk fyrir að hitta okkur.
Það var lítið.
Get ég aðstoðað?
Hvað viljið þið vita
um málið okkar?
-Gerðist eitthvað skrýtið í kvöld?
-Eins og hvað?
Sem tengist morði
eða morðum
á mið-Wilshire
eða í West Hollywood?
Tíðindalaust á
vesturvígstöðvunum.
Ýmsir sofa.
Ýmsir ekki.
Fólk kemur og fer í bílum,
pallbílum, leigubílum.
Svo horfum við á loftið hreyfast.
-Hver er áhuginn á málinu?
-Ja, áhugi okkar...
Það kom upp mál.
Tvö lík.
Gæti verið tilviljun, eða ekki.
Virðist samt ekki vera.
-Lögmaður og umbjóðandi hans...
-Þakið er í rúst.
Þakið er í rúst.
-Geturðu farið nær þarna?
-Á hvað?
Á þetta.
-Sjáðu þetta þarna.
-Hvað er þetta?
Já. 5-Q-49974.
5Q49974.
Ég hélt þú værir hávaxnari
Jæja, Vincent...
-Hvaða tvö nöfn?
-Ramone Ayala og Clarke.
Ertu að segja að Ramone Ayala
og Clarke hafi verið myrtir?
-Báðir myrtir?
-Sylvester Clarke pottþétt.
-Ramone er ekki víst.
-Eitt lík enn.
Daniel Baker í suðurbænum,
Leimert Park.
Það eru þrjú.
-Þrjú hvað?
-Vitni.
"Vincent hittir þeirra fólk
í Culiacán eða Cartagena.
En hann hittir þig ekki." Ókei.
Nú ertu hér.
Af hverju?
Ég týndi gögnunum mínum.
Listanum.
Ég vil að þú hlustir
vandlega á mig.
Sérstakir hópar settu saman
dedos listann.
-Dedos?
-Fingur. Uppljóstrarar.
Fjarskipti hleruð með hugbúnaði
sem ber kennsl á raddir,
eftirliti.
Mjög dýr aðgerð
að búa til þennan lista.
Mikilvægur listi. Eða hvað?
Og þú týndir honum?
Já.
Mér þykir það leitt.
Mér þykir það leitt.
Leitt? Það setur Humpty Dumpty
ekki aftur saman.
-Trúirðu á Humpty Dumpty?
-Nei.
-Trúirðu á jólasveininn?
-Nei.
Ekki ég heldur. En börnin mín
gera það. Þau eru enn ung.
En veistu hverjum þau eru hrifnari af
en jólasveininum? Aðstoðarmanninum,
Pedro el ***. Svarti Pétur. Já.
Það er gömul mexíkósk saga
um hvað jólasveinninn
var upptekinn
að gæta góðu barnanna
að hann þurfti að ráða einhvern
fyrir óþekku börnin.
Svo hann réði Pedro.
Og jólasveinninn
lét hann fá lista
með nöfnum allra
óþekku barnanna.
Og Pedro átti að kíkja á þau
á hverju kvöldi.
Og fólkið, krakkarnir
sem voru óþekkir,
sem fóru ekki með bænirnar,
Pedro skildi lítinn asna
eftir í gluggunum hjá þeim.
Lítinn
burro.
Svo kom hann aftur. Og ef þau
voru ennþá óþekk
þá tók Pedro þau með sér,
og enginn sá þau framar.
Nú, ef ég er jólasveinninn
og þú ert Pedro,
hvernig heldurðu
að jólasveininum liði
ef Pedro kæmi til hans og segði:
"Ég týndi listanum"?
Hversu reiður
heldurðu að hann væri?
Segðu mér, Vincent.
Segðu mér hvað þú heldur.
Hvað?
Ég held...
Ég held þú ættir að segja
gaurnum fyrir aftan mig
að leggja frá sér byssuna.
Hvað segirðu?
Þú ættir að segja gaurnum fyrir aftan
mig að leggja frá sér byssuna
áður en ég lem hann í klessu
með henni.
Ég var eltur.
-Alríkislöggan?
-Ég veit ekki, seg þú mér.
Þess vegna henti ég listanum.
Undirbúningurinn, allt það.
Til að vernda, að hluta til,
Hermès, Façonnable
afturendann á þér.
Hvað heldurðu,
að ég vilji koma hinað?
En, hey,
stundum fer í verra.
Maður verður að
aðlaga sig að aðstæðum.
Darwin.
I Ching.
-Eru...?
-Sá feiti, sá í þakíbúðinni,
djassmaðurinn.
Þá eru tveir eftir.
Geturðu klárað?
Á sex árum
hef ég einhvern tímann
ekki klárað?
Segðu að það sé Vincent.
Ég heiti Vincent.
Segðu að það sé Vincent.
Ég heiti Vincent.
Segðu að það sé Vincent.
Ég heiti Vincent.
-Segðu að það sé Vincent.
-Vincent?
-Mér heyrist það.
-Ég heiti Vincent.
Síðustu tvö.
Og til að sýna þakklæti mitt
vil ég bjóða þér afslátt.
af allri þjónustu minni, 25 prósent.
-Mjög rausnarlegt.
-Höfum það 35.
Og vel á minnst,
Daniel sagði að sér þætti það leitt.
Áhugavert.
Farðu til Fevers.
Ef eitthvað fer úrskeiðis,
dreptu hann.
-Sendu mér skírteinið hans.
-Allt í lagi?
-Einmitt.
-Í gemsann.
Nei, nei, ég bíð.
Hey, er einhver annar
í leigubílnum?
Líkurnar voru gegn því
að þú kæmir út aftur.
Já, ég er tilkomumikill.
Á 6. stræti við Alexandriu,
klúbbur sem heitir Fever. Veistu hvar?
Finndu vitnið, Peter Lim.
Komdu honum á öruggan stað.
-L.A. 101 til eltibíla.
-Já.
Svartur, meðalstór.
Áhlaupsliðið tekur hann
þegar það er komið.
-Ertu viss?
-Ekki hræða hann fyrr.
Ég vil aðstoð í lofti
tilbúna í 1 500 fetum.
Takk.
-Hversu lengi?
-Tólf mínútur.
Leigubílastöðin segir hann
hafa keyrt bílinn í 12 ár.
-Hvað með það?
-Ætlarðu að segja mér
að hann fari inn í símaklefa
og búmm,
breytist í ofur-launmorðingja?
Hvernig, drepur hann
á milli farþega?
Nei, leigubílstjórinn
liggur í holræsi.
Sá sem kom þarna út
líkist honum.
-Hann valdi bílstjóra sem líkist sér.
-Já, ég veit ekki.
Ég veit. Zee?
Öryggisfyrirtæki í einkageiranum
leigja sig út til samtaka
Í Kólumbíu, Rússlandi, Mexíkó,
og ráða fyrrverandi sérsveitarmenn,
eins og Stasi og KGB.
Gaura með tíma á gikk, hæfni,
færni, eins og að líkjast bílstjóra.
Hvað ætlarðu að gera?
Grípa hann.
Bjarga vitninu.
Hvað ef þetta er ekki rétt?
Gaurinn viðurkennir
að hann heiti Vincent.
-Hann var að tala við vondu kallana.
-Það er fleira í gangi.
Ray, það er ekkert fleira í gangi.
Ég hélt það, en það er ekki.
Þeir eiga leikinn.
Við fáum ekkert út úr þessu.
-Þú færð ekkert út úr þessu.
-Einmitt.
Það er áliðið. Ég ætla heim.
Veistu hvað klukkan er?
Er Peter Lim fundinn?
Frúin heldur
að hann sé í Fever.
6. og Alexandriu. Fljótur.
L.A. 101 til L.A. 103,
L.A. 105, L.A. 108.
Vitnið er í klúbbi, Fever,
6. og Alexandriu.
Vincent fer þangað.
Áhlaupslið og hinn bíllinn
taka Vincent.
Fyrsti bíll á staðinn tekur vitnið,
Peter Lim. Náið honum út.
L.A. 105 til L.A. 101. Náum því.
-Ætlarðu að hringja í hana?
-Hverja?
Vinkonu þína. Þá sem lét þig
fá nafnspjaldið sitt.
-Ég veit ekki. Kannski, kannski ekki.
-Ha?
Taktu upp tólið.
Lífið er stutt.
Einn daginn verður því lokið.
Ef við sleppum lifandi
ættirðu að hringja í hana.
Það finnst mér.
Allavegana...
Þarna er hann. Gefðu í.
Leggjum í hann.
Hann situr við borð
aftast í salnum.
Wilke, til hægri.
Brian, við dyrnar.
Hrein skot. Passið baksviðið.
Passið baksviðið.
L.A.P.D.
Farðu 5 metra áfram,
1 metra til vinstri.
Ef þú flakkar fá saklausir sjónarvottar
fyrstu kúlurnar. Skilið?
Þarna er Lim. Annar bás
frá vinstri. Náðu honum út.
Á miðju dansgólfi.
Kyrr, Vincent!
FBI! FBI! Upp með hendur!
Upp með hendurnar, Vincent!
-Kyrr! Upp með hendurnar!
- FBI. Hvar er Peter Lim?
FBI! Upp með hendur!
Slepptu henni!
-Kyrr!
-Kyrr! FBI!
-Ég er ekki Vincent.
-FBI!
Slepptu byssunni!
Ég er ekki...
Pedrosa varð fyrir skoti.
Sækið sjúkrabíl.
Nei, nei! Bíddu, bíddu!
Hey, hey! Bíddu. Bíddu.
Fanning, rannsakari.
Ég heiti Max! Max! Ég er leigubílstjóri.
Ég er leigubílstjóri.
Ég veit. Ég veit. Ég næ þér héðan.
Ég er í L.A.P.D. Komdu.
-Hvernig fannstu mig?
-Það er allt í lagi.
Fljótur. Flýttu þér.
Allt í lagi.
-Hvernig fannstu mig?
-Það er allt í lagi. Allt í lagi.
Það er allt í lagi með þig.
Komdu!
Komdu.
Fljótur! Aktu! Aktu!
LÖGREGLA
Pólska riddaraliðið
er það eina sem vantar.
Þú ert á lífi. Ég bjargaði þér.
Fæ ég þakkir? Nei.
Þú bara steinþegir.
Viltu spjalla?
Viltu að ég láti mig hverfa?
Láttu þig hverfa.
-Þurftirðu að drepa Fanning?
-Hver er Fanning eiginlega?
Fanning, löggan.
Af hverju drapstu hann?
Hann á eflaust fjölskyldu.
Börnin alast upp án hans.
Hann trúði mér.
Átti ég að hlífa honum
af því hann trúði þér.
-Nei. Ekki þannig.
-Jú, þannig.
Jæja, jú, þannig.
Hvað er að því?
-Þetta er bara vinna.
-Ömurleg vinna.
-Farðu í miðbæinn.
-Hvað er í miðbænum?
Kanntu að reikna? Ég átti að drepa
fimm manns. Fjórir búnir.
Af hverju drapstu mig ekki
og fékkst annan bílstjóra?
Af því þú ert góður.
Við erum saman í þessu.
Samtvinnuð örlög.
Tilviljanir alheimsins.
-Láttu ekki svona. Kjaftæði.
-Hvaða bull. Kjaftæði í mér?
Þú ert minnismerki um kjaftæði.
Þú bullar sjálfur:
"Ég er bara að fara út með ruslið,
drepa vont fólk."
-Þú sagðir það.
-Trúðirðu mér?
-Hvað gerði það?
-Hvað veit ég? Þú veist?
Þeir litu út eins og
"vitni saksóknara."
Örugglega einhver meiriháttar
ákæra á einhvern
sem vill ekki sæta kærunni.
Er það ástæðan?
Það er af hverju.
Engin ástæða.
Engin góð ástæða,
engin slæm fyrir að lifa eða deyja.
Hvað ert þú þá?
Skeytingarlaus.
Náðu taki á þessu.
Milljónir stjörnuþoka,
hundruð milljónir stjarna,
og ögn á einni
í smástund.
Það erum við.
Týnd í geimnum.
Löggan, þú, ég,
hver tekur eftir því?
Hvað er að þér, maður?
Eins og?
Eins og, ef einhver miðaði
byssu á þig og segði:
"Segðu mér hvað er að þessari
manneskju
eða ég drep þig.
Hvað rekur hann áfram?
Hvað var hann að hugsa?"
Þú gætir það ekki, er það?
Þú yrðir drepinn,
af því þú veist ekki
hvað neinn annar er að hugsa.
Mér finnst þú aumur, vinur.
Aumur.
Hvað varstu?
Alinn upp á stofnun?
Einhver heima?
Og... Og allt það
sem á að vera í fólki,
í þér...
...eru þeir ekki.
Og af hverju ertu ekki búinn
að drepa mig?
Af öllum bílstjórum í L.A. fæ ég Max,
Sigmund Freud hittir Dr. Ruth.
Svaraðu spurningunni.
Líttu í spegilinn.
Eldhúsrúlla, hreinn bíll,
eðalvagnar einhvern tímann.
-Hvað hefurðu sparað?
-Kemur þér ekki við.
Einhvern tímann?
"Einhvern tímann rætist draumurinn"?
Einhvern tímann vaknarðu
og sérð að það gerðist aldrei.
Allt hefur snúist við.
Það gerist aldrei. Þú verður gamall.
Gerðist ekki.
Og það gerist aldrei,
af því þú ætlaðir ekki að gera þetta.
Þú ýtir því úr huganum,
leggst út af í hægindastólnum,
og lætur sjónvarpið dáleiða þig
það sem eftir er af lífinu.
Ekki tala við mig um morð.
Það eina sem þurfti var innborgun
á Lincoln Town Car.
Eða stelpan.
Þú hringir ekki einu sinni í hana.
Fjandann ertu að gera
að keyra ennþá leigubíl?
Af því ég horfðist aldrei
í augu við það, ókei?
Sjálfur.
Ég hefði átt að gera það.
Ég reyndi að taka áhættu
en það var örugg leið til að tapa.
-Hægðu á þér.
-Það verður að vera fullkomið.
Það verður allt að vera undirbúið.
Áhættan öll reiknuð út.
Ég hefði getað gert þetta
hefði ég viljað.
Rautt ljós.
En veistu hvað? Nýjustu fréttir:
Það skiptir engu.
Hverju skiptir það hvort eð er?
Við skiptum engu
hérna þegar litið er á heildina.
Kjaftæði úr
Ljósaskiptunum.
Segir sá siðblindi
í aftursætinu.
En veistu hvað? Ég þarf
að þakka þér fyrir, félagi.
Af því ég hafði aldrei
litið svona á það.
Hvaða máli skiptir það?
Engu, fjandinn hafi það. Lagaðu það.
Hverju höfum við að tapa?
-Hægðu á þér.
-Hví þá? Ætlarðu að skjóta mig?
Ætlarðu að drepa okkur?
-Skjóttu mig þá.
-Hægðu á þér.
Ætlarðu að skjóta mig? Núna?
Ætlarðu að drepa okkur?
Skjóttu mig þá.
Ha? Skjóttu mig.
-Hægðu á þér!
-Það er rétt.
Veistu hvað, Vincent?
Farðu til fjandans!
-Jæja, þetta var snilld.
-Varstu ekki í belti?
1-L-20, sýndu mér kóða sex
á Olympic og Figueroa
umferðaróhapp
með meiðslum.
-Staðfesti staðsetningu.
-Er allt í lagi? Hvað gerðist?
Þú lentir í slysi.
Sjúkrabíll er á leiðinni.
Skilurðu hvað ég er að segja?
Sestu og slappaðu af.
Engar áhyggjur af bílnum.
Þú færð nýjan.
Slappaðu af og andaðu.
Upp með hendur.
Upp með hendur. Snúðu að bílnum.
Á hnén.
-Handtaktu mig.
-Hendur á höfuð.
Farðu með mig í fangelsi.
Sýslufangelsið er fínt.
Ekki hreyfa þig!
Hendur fyrir aftan höfuð.
1-L-20, ég þarf aðstoð
með grunaðan morðingja.
-Slepptu byssunni!
-Hættu! Niður með hendurnar!
-Ég verð að fara.
-Slepptu byssunni!
Ekki hreyfa þig! Ekki!
Hvenær fórum við að semja?
Hendurnar saman.
Haltu höndunum saman.
Það deyr manneskja
ef ég fer ekki strax.
Handjárnaðu sjálfan þig.
Ég ætla á 6. og Fig.
Hringdu á lögguna.
-Láttu mig fá þetta.
-Hey, hey, bíddu! Fjandinn!
Svona nú!
Svona nú. Fáðu samband.
Svona nú. Svona nú. Svaraðu.
Svaraðu.
Svona, stelpa.
Svona, svaraðu.
Skrifstofa saksóknara.
-Annie!
-Já.
Þetta er Max.
Max, leigubílstjórinn.
Hlustaðu á mig.
-Maður að nafni Vincent...
-Max.
Hlustaðu á mig, Annie.
Þetta er skrýtinn tími
til að hringja.
Hlustaðu, Annie.
Það er maður að nafni Vincent.
Hann ætlar að drepa þig.
-Er hann hvað?
-Drepa þig! Hann ætlar að drepa þig!
Hann var að skoða húsið
þegar þú fórst út úr...
Veistu hvað?
Max, ef þetta á að vera
einhver brandari,
þá er þetta ekki fyndið.
Þetta er ekki brandari.
Annie, hlustaðu á mig.
Felix réði hann. Ókei?
Eða fólk sem Felix vann hjá.
Felix Reyes-Torrena.
Hvernig veistu um málið mitt?
Ég skil þetta ekki.
Ég veit bara að hann hefur drepið vitni.
Hann ætlar að drepa þig.
Þegar þú fórst úr bílnum,
ég veit ekki hvers vegna,
þá kom hann
í bílinn hjá mér.
Annie.
Annie, hlustaðu.
Ég vil bara að þú...
-Ég skil ekki hvað er í gangi.
-Annie, hlustaðu. Gerðu það.
Komdu þér út úr húsinu. Annie.
-Ég er að fara út núna.
-Nei, nei. Bíddu.
-Max.
-Bíddu, bíddu.
-Max.
-Hvar ertu núna?
-Á hvaða hæð?
-Ég er á 16. hæð.
Ég er í bókasafninu.
Hann er tveimur hæðum fyrir neðan,
á hornskrifstofu.
Á skrifstofunni minni?
Hann veit ekki hvar þú ert.
Vertu kyrr og hringdu í 911.
Max, ertu viss um
að hann sé á 14. hæð?
Vertu bara kyrr og hringdu á lögguna.
Hringdu á lögguna.
Max?
Rafhlaða tæmist
Fjandinn.
SKJALASAFN
16. HÆÐ
Max?
-Max.
-Hann veit þú ert þarna.
Ég heyri ekki í þér.
Halló?
Annie. Annie, hlustaðu á mig.
Fjandinn.
Annie. Annie!
Fjandinn.
911. Skiptiborð.
Já. Heyrðu, það er maður
í húsinu og hann...
Halló?
Leyfðu henni að fara.
Max?
Af hverju? Hvað ætlarðu
að gera í því?
Komdu.
Max!
-Guð. Felix Reyes-Torrena?
-Já. Ég hitti hann.
Hvað áttu við,
hittirðu hann? Hvernig?
Ég veit ekki. Þegar þú fórst úr bílnum
tók ég annan farþega.
-Hann sagðist heita Vincent.
-Vincent?
-Bíddu, bíddu, bíddu.
-Þetta er gatan.
Þessa leið. Komdu.
Áfram. Áfram. Áfram.
-Hvað eigum við að gera?
-Bíddu, bíddu.
Nei, nei. Þessa leið.
Bíddu, bíddu. Bíddu.
Ekki standa upp.
Fjandinn.
Þarna er stöð.
Fjandinn.
Max!
Ég vinn við þetta!
Við erum næstum...
...komin á næstu stöð.
Hey, Max.
Gaur fer í lest hér í L.A.
og deyr.
Heldurðu að einhver taki eftir því?