Tip:
Highlight text to annotate it
X
Allir, sem sverði bregða,
munu fyrir sverði falla. Matteus 26-52
Hvernig er þetta?
Þú mátt eiga það, Rico.
Kollurinn er enn í lagi.
- Hvað má bjóða ykkur?
- Spagetti og kaffi handa tveimur.
Allt í lagi, herra.
"Undirheimar votta
demanta Pete Montana virðingu sína."
Hvað kemur það málinu við?
Helling.
Demanta Pete Montana.
Hann þarf ekki að sóa tímanum
á bensínstöðvum.
Hann er þekktur.
Er í borginni og lifir hátt.
Og sjá okkur.
Algjörir ræflar, einskis virði.
Viltu þetta, Rico?
Viltu svona veislu fyrir þig?
"Caesar Enrico Bandello.
Hylltur af vinum sínum."
Ég gæti gert allt sem hann gerir
og meira til.
En ég fékk aldrei tækifæri.
Og hvað er að óttast?
Ef ég lendi í klemmu,
þá skýt ég mig úr henni. Já.
Skýt fyrst og rökræði seinna.
Þessi leikur
er ekki fyrir mjúka menn.
Það er peninga að hafa
í borginni, satt er það.
Og konurnar. Góðar stundir,
alltaf eitthvað að gerast.
Spennandi hlutir, þú veist.
Fötin sem ég gæti gengið í.
Svo myndi ég hætta, Rico.
Ég færi aftur að dansa,
eins og áður en ég hitti þig.
Ég veit ekki.
Þetta líf hentar mér ekki.
Dansa.
Það vildi ég gera.
Dansa?
Konur?
Og hvað græðirðu á því?
Ég vil ekki dansa neitt.
Ég vil láta aðra dansa.
- Ég gleymi ekki peningunum.
- Peningar eru fínir, svo langt sem þeir ná.
Vertu einhver. Líttu harkalega á menn
og þá gera þeir hvað sem þú vilt.
Hafðu það eins og þú vilt.
Vertu einhver.
- Þú nærð þessu, Rico.
- Já.
- Þú sýnir þeim það.
- Veistu,
þetta var síðasta stoppið hér í bæ.
Við erum að fara.
- Hvert erum við að fara?
- Austur.
Þar sem stóru hlutirnir gerast.
PALERMO KLÚBBURINN
DANS
Svo ég dreif mig austur,
eins og ég sagði.
Og það er allt og sumt.
Ég vil vera í genginu þínu,
ef ég má. Hvað segirðu?
Þú munt ekki iðrast þess.
Ég geri allt sem þú segir.
Ég óttast ekkert.
Heldurðu að þú sért hörkutól?
Ég er engin gunga.
Ég gefst ekki upp.
- Þú heldur að þú sért góður?
- Leyfðu mér að sýna þér það.
- Hvað veistu um mig?
- Ó, ég hef heyrt ýmislegt.
Hvernig þú stjórnar
þessum bæjarhluta.
Um Palermo klúbbinn, að hann
sé yfirvarp. Ég hef heyrt margt.
- Og þú ert flinkur með byssuna?
- Fljótur og öruggur.
Það gengur ekki hér.
Gamaldags. Þetta er ekki sveitin.
Já, ég skil þig.
Gott og vel. Vertu hérna.
En mundu, að ég stjórna.
Og ég gef allar skipanirnar.
Og þegar leiðir okkar skilja
þá verður það eins og ég segi.
- Og enga skræki. Skilið?
- Já, auðvitað hr. Vettori.
- Jæja, komdu inn að hitta piltana.
- Sjálfsagt.
Þeir eru sko frábærir.
Hver og einn einasti.
Þarna er Tony Passa. Keyrir betur
en nokkur gaur í bænum.
Otero. Hann er lítill
en hann hefur yfir ýmsu að búa.
Bat Carilla.
Killer Peppi.
Kid Bean.
Og þessi hérna, Scabby.
Hann er sko klár.
Strákar.
Svona, Tony. Vaknaðu.
Heilsið pilti
sem ætlar að starfa með okkur.
Þetta er...
Caesar Enrico Bandello.
Nú, Caesar litli?
Já, auðvitað.
Bronspáfuglinn
Hvar fannstu nýja dansarann,
De Voss?
Olga kom með hann
fyrir nokkrum dögum.
Ekki slæmur.
- Þokkalegur.
- Hvort hann er.
Ég fann alvöru dansfélaga,
er það ekki, hr. De Voss?
Hann er fágaður dansari.
Við hræðum þau eftir nokkrar æfingar.
Ekki ætlarðu að selja mér hann,
Olga?
Jæja, ungi maður,
100 á viku ætti að duga þér.
Það er meira en ég býð oftast
í byrjun.
Það dugar mér,
þó það kaupi engar limósínur.
Takk, hr. De Voss.
Þú iðrast þessa ekki.
Komdu, Joey.
Svo við tvö verðum saman.
Það gleður mig.
Og ég þori alveg að segja það.
Þú veist eflaust
hvaða tilfinningar ég ber til þín.
Er það ekki í lagi þín vegna?
Eða áttu kærustu?
Fasta kærustu, meina ég.
Hundruð þeirra. Nema...
Nema, hvaða máli skiptir það?
Þetta verður raunverulegt.
- Við látum þetta þýða eitthvað.
- Já, Joey, gerum það.
Af því ég þarfnast einhverrar.
Eins og þín.
Virkilega.
- Trúirðu mér, Olga?
- Ég vil trúa þér.
Hvað er þetta?
Hvað er þarna, Joe?
Hvað ertu að gera með þetta?
Geturðu ekki gleymt
að þú hafir séð hana?
Það breytir engu.
Ekki á milli okkar, Olga.
Engar áhyggjur, elskan.
Þetta er bara heillagripur
sem ég geng með.
Er þetta vinnan þín?
Kannski.
Ég má kannski ekki spyrja, Joe.
En núna...
Þegar við höfum náð samkomulagi.
Gætirðu ekki hætt?
Nei.
Ég má þetta víst ekki.
Hvað græðirðu á því að spyrja,
stelpa?
Einu sinni í gengi...
- Þú veist hvernig það endar.
- Ég vil ekki vita.
Nema hvað...
Kannski það geti
farið öðruvísi núna.
Ef við reynum.
Ég hef aldrei séð gaur
komast upp með það.
Í veðmálahúsi Arnies litla Lorch.
Svartur. Sjö.
Sam Vettori bíður enn eftir þér
á skrifstofunni.
Jæja, ætli ég verði ekki
að hitta hann.
Hvað ætli hann vilji hingað.
Hey, Ritz.
Vertu með mér.
Ég þarfnast þín þarna inni.
- Þessi Sam Vettori er ótíndur bófi.
- Alveg rétt, stjóri.
Leyfðu mér að fara fyrst.
Hættu þessu.
Halló, Arnie.
Hissa að sjá mig
á flotta staðnum þínum?
Kannski ekki
þegar þú segir mér hvað þú vilt.
Já, ég skal sko segja þér það.
Demanta Pete bað mig að koma.
Hann er líka á leiðinni.
- Pete Montana?
- Hinn eini sanni.
Ja, ef Pete vill þig hér,
þá má mér standa á sama.
- Halló, hr. Montana.
- Halló.
Halló.
- Halló, Arnie.
- Halló, hvað segirðu?
- Halló, Vettori.
- Halló, stjóri.
Vindil?
Takk.
Takk, Arnie.
Setjist, piltar.
Ég hef fréttir að færa.
Skilaboð frá Stóra strák.
Nei, hlustið. Þetta er málið.
- Stóri strákurinn segir...
- Augnablik.
Hey, þú.
Það bað þig enginn
að skipta þér af, eða hvað?
- Hypjastu, deli.
- Þú skipar mér ekki fyrir.
- Þú ert nýr, ekki satt?
- Rólegur, Rico.
Farðu fram og bíddu eftir mér.
Allt í lagi mín vegna, stjóri.
Hlustið, piltar.
Fylgist með þessum McClure
sem er yfir nýja
glæpaeftirlitinu.
Hann er að herða að
og þið skuluð ekki vanmeta hann.
Stóri strákurinn vildi segja ykkur
að taka í beislin
á górillunum næstu mánuði.
Ef einhver þeirra gengur of langt
þá verður það slæmt.
Ég hef aldrei séð neinn
sem Stóri strákur náði ekki í.
Hann getur bjargað öllu.
Þess vegna er hann Stóri strákurinn.
Þessi McClure verður honum auðveldur.
- Hann vefur honum um fingur sér.
- Ekki blekkja þig.
McClure reddar engu fyrir neinn.
Ekki einu sinni Stóra strák.
Lítil verkefni, það er annað mál.
Við gætum losnað undan þeim.
En skot?
Nei.
Strákar eins og þessi raketta þín
valda vandanum.
Hver, Rico?
Allt í lagi með hann. Hann er fljótur til,
en það er af því hann er nýr.
Er það? Við höngum fyrir hann
ef hann skýtur á röngum tíma.
Mundu það sem ég sagði þér.
Komdu. Bless.
Og þú.
Farðu varlega
með þessa fallbyssu þína.
Heyrðirðu í mér?
Já, hr. Montana.
- Góða nótt.
- Góða nótt.
- Góða nótt.
- Góða nótt.
Gerðu sjálfum þér greiða, Rico.
Skildu byssuna eftir á píanóinu
næst þegar þú ferð út.
Já, legðu hana við hliðina
á pelanum.
Hey. Rektu þinn eigin hóp, Arnie.
Ég skal sjá um minn.
Já, ég skal leggja henni.
Ég þarf enga fallbyssu til að sjá um
gaura eins og þig, hr. Lorch.
Já, við verðum að fara varlega.
Arnie litli hefur áhuga
á þessum klúbb.
- Ef það fréttist hver gerði þetta...
- Það kemst aldrei upp.
Þeir eru óvarkárir,
en það hefur aldrei náðst í þá.
Já, en mér lýst ekki á þetta.
Ekki mér heldur, Sam.
Alls ekki.
Ég svaf ekki í nótt.
Var andvaka af áhyggjum.
Ég vil ekki taka neina áhættu.
Ekki þegar þeir nálgast okkur.
Hvað er að Tony, ertu að guggna?
Nei, en ekki vill neinn okkar hanga?
Langar þig að hætta?
Viltu stinga okkur af?
- Þú ert gunga, bévítans...
- Bíddu hægur, Rico.
Hvaðan kemur þetta gungutal?
Ég segja þér hver er gunga.
Vinur þinn, Joe Massara.
- Þess vegna kom hann ekki.
- Hann kemur. Þó svo...
Ég veit allt um það.
Hann fær tíu mínútur.
Svo sjáum við til.
Heyrðu nú, Sam, Joe er í lagi.
Hann er besta undanfari sem til er.
Hann getur farið á fínt hótel,
beðið um svítuna og fengið.
Án Joes getum við ekki
unnið starfið, og þú veist það.
Hvaða pappír er þetta?
Skipulag
sem við Scabby vorum að búa til.
- Verkið í klúbbnum?
- Já.
Leyfðu mér að sjá það.
Og þar til ég segi til um annað,
þá skipuleggur enginn neitt
fyrir þennan hóp nema ég.
Skilurðu mig?
Hann lærir.
Komið hingað, strákar.
Sjáiði nú þetta.
Halló, Joe.
Halló, Rico.
Komdu hérna.
Ég sagði þér að koma hálfníu.
Ó, sjáðu til, ég...
Ég var upptekinn.
Ég var að æfa og...
- Þú veist hvernig það er.
- Já, ég veit það.
Ég trúði ekki því
sem þeir sögðu.
Það er vitleysa
að þú sért gunga.
Segðu þeim að fara til...
Heyrðu, af hverju þurfti ég
að flýta mér svona?
Við þurfum þig í smá verk.
Smá verk á Bronspáfuglinum.
Hvað áttu við?
Ertu að grínast í mér?
Hvernig get ég tekið áhættuna?
Þetta fólk þekkir mig.
Þess vegna grunar það þig aldrei.
Ekki tefja, Joe.
Ég er ekki að tefja.
Þú verður að ná mér úr þessu, Rico.
Þú verður. Ég vil ekki...
Skilurðu ekki,
ég er í föstu starfi núna, og...
Getur maður aldrei hætt?
Þú verður með
og þér mun líka það.
Þetta gerist á miðnætti
á gamlárskvöld.
Nei. Ég get það ekki.
Ég get það ekki, skilurðu það?
Ég...
Ja, ég...
- Ég verð að vinna á gamlárskvöld.
- Heyrðu nú, Joe.
Þú verður að vinna hérna.
Og ekki gleyma því heldur.
Komdu nú inn.
Ja, kannski þetta sé ekki svo gott.
- Við komumst ekki framhjá Arnie.
- Ég kemst.
Þú ert of góður, það er málið.
Halló, Joe. Þú varst að flýta þér hingað,
var það ekki?
Kannski þér líki ekki
svona vinna.
Joe er í lagi.
Hann verður með okkur.
Já, ég verð með ykkur.
Jæja, sjáum nú til.
Svona hef ég hugsað mér þetta.
Ég, Sam Vettori, ekki þú, Rico,
né nokkur annar.
- Er það ekki ljóst?
- Auðvitað.
Nema hver stendur hér?
Þú gleymdir því, er það ekki?
Ég stjórna þessu verki, ekki þú.
Hérna.
Klár, þessi Rico.
Nóg í kollinum á honum.
Ég er hræddur, Otero.
Ég segi það satt.
Þú ert bilaður. Rico kemur með okkur.
Svona nú,
hresstu þig við.
Og þú, Joe.
Þú verður í anddyrinu
og gefur okkur merki
ef allt lítur vel út.
Skilurðu?
Já, og ef við lendum í klemmu verðurðu
að taka áhættuna með okkur hina.
Hey, þögn, þögn.
Hjálpi mér, þetta er Alvin McClure.
Nýi gammurinn
í glæpaeftirlitinu.
Hey, De Voss. Komdu hingað.
Hvað, Arnie? Hvað er að?
Komdu með McClure hingað,
ég ætla að bjóða honum límonaði.
- Ekki í kvöld, seinna.
- Gerðu eins og þér er sagt.
Svona, De Voss,
komdu með hann hingað.
Eins og þú vilt.
Hvað get ég pantað handa ykkur?
- Gott kvöld, hr. McClure.
- Gott kvöld, De Voss.
- Heljarinnar veisla.
- Þakka þér.
Gleður mig að hafa ykkur hérna.
Hr. McClure, hr. Lorch nokkur,
fjárhagslegur stuðningsaðili minn
vill fá að hitta þig.
- Má ég vísa þér að borðinu hans?
- Lorch? Lorch?
- Er það sá sem er kallaður Arnie litli?
- Já, en...
Er hann fjárhagslegur
stuðningsaðili þinn?
- Já, en...
- Ég vissi ekki að slíkur maður
væri í tengslum við þennan stað.
Því miður, De Voss, en þú getur sagt
hr. Lorch að við séum að fara.
Ég kom hingað á fölskum forsendum.
- En hr. McClure...
- Því miður, gott fólk,
þá verðum við að fara
eitthvert annað.
Ertu hrifinn af hárinu á mér, Joey?
Auðvitað.
Ég var alltaf...
Hvert ætlarðu?
- Að sækja sígarettur.
- Flýttu þér, það er næstum miðnætti
og ég vil vera með þér
á nýja árinu.
Ég kem strax aftur.
- Hvað má bjóða þér?
- Einn Victor Noble.
Vertu kyrr.
Ó, hjálp! Ó, guð!
Gefðu í, Tony, þetta er ekkert grín.
Hvað er að, Tony,
ertu að fara á taugum?
Svona, förum nú. Áfram,
við verðum að komast héðan. Fljótur.
Gleðilegt ár.
En, Joe...
Joey.
Hvað? Hvað er að?
Ekkert.
Það er allt í lagi.
- Klúbburinn var rændur.
- Rændur?
Þeir...
- Þeir skutu McClure.
- Joe.
- Nú veistu það.
- Það varst þú.
- Nei. Nei, það er lygi! Ég...
- Þú skaust McClure.
Nei, ég sver ég gerði það ekki.
Ég skaut hann ekki. Það var...
Ég veit ekki hver.
En við sitjum í súpunni.
Kannski...
Kannski verður allt í lagi, Joey.
Kannski særðist hann ekki illa.
En þú ert hættur þessu.
Þú átt ekki heima þar, Joe.
Þú ert ekki þannig.
Þú ferð ekki nálægt þeim aftur.
Olga,
maður hættir aldrei
í gengi.
Jæja, gekk allt eftir?
Segðu mér.
Allt var í lagi.
Nema ég þurfti að stúta gaur.
- Hver var það?
- McClure.
McClure.
Þú skaust McClure.
Milljón manns í bænum
og þú skýtur yfirmann glæpaeftirlitsins.
Hvað sagði ég, Rico?
Þetta átti að vera hreint.
Engir byssuleikir?
Heldurðu að ég láti mann
miða byssu á mig?
Fleiri svona skot
og þetta verður mitt síðasta verk.
Yfirmaður glæpaeftirlitsins.
Stóri strákurinn gerir okkur
ekkert gagn í þessu.
Þeir grípa okkur örugglega núna.
- Hvað á ég að gera?
- Af hverju gefurðu þig ekki fram?
Þér förlast, Sam.
Og Tony, hvað með hann?
Hvar er hann?
Að losa sig við bílinn. Tony fór
á taugum. Hann er eins og smábarn.
Við erum í alvöru vanda.
Þú og þessi byssa þín.
Flaherty er niðri,
löggur með honum.
Þeir eru á leiðinni upp.
Verið kyrrir, allir saman.
Þeir vita ekkert nema þeir hafi
tekið Tony. Virðið þá að vettugi.
Ég hlusta hérna inni.
Gleðilegt ár, piltar.
Það er einmana bíll
að rúnta niður götuna.
Ekki vitið þið nokkuð
um hann?
Hvernig ætti ég að vita
nokkuð um hann?
- Eru ekki númer á honum?
- Jú, en þau eru fölsuð.
Honum var stolið í Norðurbænum
í kvöld.
Ég er í kaffihúsabransanum.
Ég veit ekkert
um stolna bíla.
Þú kynnir að vita eitthvað
ef einhverjir ungu mannanna hérna
tengdust því,
er það ekki?
- Var enginn í bílnum?
- Jú, einn gaur.
En ekki þegar við komum að honum.
Hann stakk af.
En við fengum góða lýsingu.
Ég veit ekkert um þetta.
Komið þá, drengir.
Fyrst Vettori
veit ekkert um þetta.
Já, hefurðu heyrt fréttirnar, Vettori?
Nei, hvað?
Einhver drap Alvin McClure
á Bronspáfuglinum.
McClure? Nei, en hræðilegt.
Sumir eru kærulausir
með blýið.
Óheppilegt fyrir Arnie.
Þetta verður óheppilegt
fyrir ýmsa.
Jæja, verið sælir.
Og, já, ég gleymdi að óska ykkur
gleðilegra jóla.
Tony, ég skil hann ekki.
Hann er frábær bílstjóri.
- Hann hefur guggnað.
- Ég skal sjá um hann.
- Sýndu mér peningana.
- Augnablik, Sam.
Ég hef skoðun á skiptingunni.
Og þú gerir eins og ég vil.
- Við ætlum ekki að betla.
- Jæja, ég skipulagði þetta verk
og ég vil minn hlut.
Hvernig skipulagðir þú verkið?
Sast hér og lagðir kapal.
Það gengur ekki lengur,
ekki fyrir mig. Við erum hættir.
- Ég hef tekið skipanir frá þér nógu lengi.
- Og þú heldur því áfram,
- eða þú ferð héðan svo hratt...
- Kannski það verði ekki ég sem fer.
Nei? Kannski piltarnir
hafi eitthvað um það að segja.
Hvað um það?
Svo staðan er þannig?
Já, þannig er hún.
Þú getur talað,
en þú þolir þetta ekki mikið lengur.
Þú ert búinn að vera.
Jæja?
Skiptingin er í lagi, Rico.
Hvað með ykkur, piltar?
Engin sárindi, Sam?
Við verðum að standa saman.
Það er reipi um hálsinn á mér,
og maður hangir bara einu sinni.
Ef einhver guggnar og kjaftar,
þá talar byssan mín sínu máli.
Hvað er að, Antonio?
Af hverju sefurðu ekki?
- Ertu kannski veikur?
- Já.
- Ó, hvað...
- Nei, má maður ekki fara á fætur
án þess að svara spurningaflóði?
Þú ert seint úti,
drekkur mikið vín.
- Láttu mig í friði.
- Ó, hlustaðu, Antonio, ég...
Ég er með spagetti í potti
handa þér.
Borðaðu aðeins ef þér líður betur.
Já? Það gerir þér gott.
Þú varst svo góður strákur, Antonio.
Manstu þegar þú söngst í kirkjunni?
Í kórnum með föður McNeil?
Hvítklæddur.
Manstu?
Faðir McNeil.
Kirkjan var svo falleg.
Þú smástrákur með sítt hár.
Stóru, löngu kertin.
Blóm.
Manstu, Antonio?
Ekki fara frá mér, mamma.
Þú þarft ekki að fara, er það?
Geturðu ekki verið hjá mér smástund?
Gerðu það, ekki fara.
- Gerðu það.
- Ó, Antonio. Ó, elskan mín.
Ég fer ekki, ég verð kyrr.
Antonio.
Drengurinn minn.
Það verður í lagi, mamma.
- Þú ættir að drífa þig, heyrirðu það?
- Já.
Drífðu þig nú.
Farðu vel með þig, lofarðu því?
Og skilaðu kveðju
til fröken Manccia frá mér.
Faðir McNeil.
Hey, Tony. Hvar varstu?
Ég leitaði þín út um allt.
Rico vill að þú komir
að sækja þinn hlut.
Hvað er að, Tony?
Viltu ekki hlutinn?
Ertu bilaður?
Ég er ekki bilaður.
Og ég vil engan hlut.
Heyrðu, Tony.
Rico veit að þú fórst á taugum.
Nú áttu að sýna
að þú sért karlmaður.
Þú mátt ekki guggna.
Farðu héðan, Otero.
Láttu mig í friði!
Heyrðu, stráksi.
Ég er að gera þér greiða.
Komdu með mér
og fáðu þinn hlut.
Hey, Tony!
Tony, hvert ertu að fara?
Að finna föður McNeil.
Rico!
Ég fann Tony, en það er of seint.
Hann er galinn! Galinn!
Ég sagði honum að harka af sér,
en hann fer til prestsins.
Þannig er það.
Við megum engan tíma missa.
Svona, Sam, taktu bíl og förum.
Ekki ég! Taktu... Taktu Scabby.
- Scabby gerir ekkert gagn.
- Nei. Ekkert.
- Kanntu að keyra, Otero?
- Já!
Jæja, förum þá.
Tö*** svarta bílinn.
Þarna er hann.
Tony!
Sástu alla kransana?
Líkbíllinn er sannarlega fallegur.
Þetta var ekki rétti tíminn
til að spara.
Tony verðskuldaði góða útför.
- Greyið.
- Já, en kransinn frá Rico var flottastur.
Hann var stór.
Og eina sem stóð á honum var "Tony."
- Ekki einu sinni nafn Ricos.
- Já. Rico er enginn monthani.
Tony virtist vera sofandi.
Hafði ekkert breyst.
Skil ekki hvernig þeir gera þetta.
Áttu eld?
Sjáðu, Rico. Þarna er Flaherty, bolinn.
Það er að hitna í kolunum.
Hvað vill hann?
Hann er bara að tefja.
Þeir hafa ekkert á mig.
Við hreyfumst hægt.
Við höfum nægan tíma.
Samsætið hefst ekki fyrr en átta.
Já.
Leitt að Tony verði ekki með.
PALERMO KLÚBBURINN
VINÁTTA - TRYGGÐ
Já, þetta er góssið.
Flottasta sem ég hef séð, Sam.
Sjáðu þessar turtildúfur
hérna niðri.
Vinátta og tryggð, já?
- Jæja, hvernig líst þér á, Sam?
- Nokkuð gott, Rico.
Otero finnst ég líta illa út
með svona hatt. Hvað finnst þér?
- Þetta líkist þér.
- Ég hélt það.
Ég held ég noti þá héðan í frá.
"Hrós til sanns vinar.
Hr. C. Bandello frá sönnum vini,
hr. Sam Vettori."
Þetta er fallegt.
Ég kann að meta það, Sam.
Það er fallegt af þér.
Hvað er að ykkur?
Kunnið þið ykkur ekki
í svona veislum?
Hvað eruð þið eiginlega,
bensínstöðvadólgar?
Hættið þessu blaðri.
Scabby ætlar að halda ræðu.
Jæja, gott fólk,
þið vitið til hvers við erum hér,
svo hvað hefst af því
að ég segi ykkur meira um það?
Rico er frábær gaur!
Já, og...
Ja...
Heyrðu, Rico,
ég tala ekki mjög fínt, en...
Þetta úr er handa þér, sérðu?
- Frá strákunum!
- Svona, nú. Klappið öll saman.
Ræðu!
Ó, nei, nei, nei.
- Ræðu!
- Gott og vel.
Jæja þá.
Viljið þið heyra ræðu frá mér?
Hér kemur hún.
Ég... Mig langar að þakka ykkur,
félögunum, fyrir þessa veislu.
Þetta er aldeilis ágætt.
Áfengið er gott, er mér sagt.
En ég drekk það ekki sjálfur.
Og maturinn er lostætur.
Jæja, ég held við skemmtum
okkur öll vel,
og það er gott að sjá ykkur herrana hér
með dömunum ykkar.
Já.
Jæja, ég...
Ég held það sé allt.
Og ég vona að þið dettið ekki í það
og verðið með læti
af því þannig eru margir drepnir.
Já. Hættið þessu.
Ég veit hvað ég...
Nokkrir blaðamenn vilja fá mynd.
Hvað viltu gera, stjóri?
Ja, hvernig hljómar það?
Vísaðu þeim inn.
Segðu þeim að flýta sér.
- Ég sé þig seinna.
- Nei, ekki fara.
- Við látum taka af okkur myndir.
- Ég hef ekki látið taka af mér mynd
síðustu fimmtán árin.
Hvað ertu að segja?
Í 15 ár hefur hann ekki...
Svona, piltar. Verið fljótir.
Svona nú! Þögn, allir saman!
Það á að smella af!
Þarna eruð þið. Kyrrir svona.
Svona, kyrrir!
Sjáið þessa gaura þarna.
Þetta var slæm ákvörðun, Rico.
Flassið.
- Það er hægt að taka þig fyrir það.
- Eins og mér sé ekki sama?
Á ég ekki að sýna fólki
hvað piltarnir gerðu?
Hey, Rico, hvað varð um vin þinn,
dansarann, Joe Massara?
Hann kom ekki.
Ég hef ekki séð hann lengi.
Ekki hætti hann, Rico?
Óskynsamlegt að hætta, Sam.
Einn gaur reyndi það einu sinni.
Hugsaðu um þín mál,
og ég sinni mínum.
Hvað vill þessi boli hingað?
- Ég skal sýna honum.
- Varlega, Rico.
Hver bauð þér hingað?
Þú fetar þig upp metorðastigann,
Rico.
Neðri hæðin er opin öllum,
jafnvel löggum.
En efri hæðin er prívat.
Takk, en ég vil hafa augun á þér, Rico.
Ég er nefnilega vinur þinn.
Mér finnst gaman að sjá
ungan mann gera það gott,
það er allt og sumt.
Blessaður.
Komdu fljótt aftur.
Ég geri það.
Ó, heyrðu...
Einhver henti múrsteini inn um glugga
hjá Meyer Blum í nótt.
Ekki veist þú neitt
um demanta og platínu úr
sem var stolið, er það?
Þú lætur mig vita
ef þú heyrir eitthvað um það.
"CAESAR LITLl" BANDELLO
FÆR UMSÖGN FRÁ FYLGISMÖNNUM
Veisla, já?
Rico hefur náð langt,
of langt.
Svo núna þarf hann að hætta.
Hann verður að hætta segi ég!
Ó, Arnie, ætlið þið félagarnir
að rífast aftur?
Hvers vegna að borga fyrir vernd
ef friður ríkir ekki?
Engar áhyggjur.
Friður kemst á fljótlega.
Hann verður að hætta,
svo hann skal hætta.
Hann hefur ráðist inn á mitt svæði
og það gengur ekki fyrir mig.
Sjáðu.
Ég sit hér, sérðu?
Ég sit hér í rólegheitunum
að reykja sígarettu, sérðu?
En nokkrir piltanna minna
eru ekki hér.
Þeir eru að leita Ricos, og þeir eru
með byssurnar sínar. Skilurðu?
Og þegar þeir finna hann
þá fær Rico enga veislu.
Heldur erfidrykkju!
Arnie, þú veist best.
Ég hef aldrei hitt Rico.
Phelps, 2284.
Halló, Otero.
Þetta er Joe Massara.
Ég komst að nokkru.
Áríðandi.
Segðu Rico að vara sig. Gengi Arnies litla
ætlar að skjóta hann.
Hvað er að?
- Hvar er Rico?
- Ekki hugmynd. Hann er ókominn.
Komdu, fljótt!
Við verðum að finna hann!
Ég tek 10 svona.
Vá, ætlarðu að kaupa
öll þessi blöð, hr. Rico?
Auðvitað.
Er ekki mynd af mér í þeim?
Hérna.
- Takk! Komdu aftur!
- Það var lítið.
MJÓLKURVÖRUR
G ÆÐA MJÓLK OG SMJÖR
Góðar skyttur!
Ó, nei!
Skaut þig loksins einhver.
Já, en það bara strauk mig.
Sá gamli verður ánægður að heyra það.
Hann hefur mikinn áhuga á þér.
Segðu honum að löggurnar nái mér ekki
öðruvísi, svo þær réðu byssumenn.
Ef ég væri ekki lögga
þá hefði ég gert það ódýrt.
Hefurðu íhugað
hvernig þú litir út með lilju þér í hönd?
Nei, aldrei.
Ég hef gert þetta lengi
og járnað marga bófa.
Einhvern daginn
förum við í bílferð, Rico,
og þá verða járn á þér.
Enginn gammur eins og þú
setur járn á Rico.
Komið, piltar.
Ég ætla að ná þessum monthana
þó það gangi af mér dauðum.
Fyrirgefðu, stjóri.
Ég hefði átt að vera hjá þér.
Þeir töldu sig hitta í mark, stjóri,
en kúlurnar skoppuðu af þér.
Það var Arnie litli, Rico. Joe Massara
frétti það og hringdi.
Við fundum þig ekki.
Joe?
Jæja.
Ég hélt honum væri sama.
Það var almennilegt af honum.
Ég ætti að gefa honum tækifæri
í næsta verki.
Svona. Læknanámið var til einhvers,
ekki satt?
Takk, Scabby.
Ég ætla að finna Arnie litla í kvöld.
Ef hann vill vandræði,
þá á ég nóg af þeim.
Ég vil hafa Killer Peppi,
Otero, Kid Bean og Bat með mér.
E.N. CARR & CO
INN- & ÚTFLYTJENDUR
Opnaðu, vinur,
annars segirðu engum neitt framar.
Segðu honum að við séum í lagi
og farðu ekki á taugum.
Þessir gaurar eru í lagi.
Svona, upp með þær.
Læstu.
Hvar er Arnie?
Á skrifstofunni?
Bat, stattu fyrir utan
og hleyptu engum inn.
Kid, þú gætir þeirra.
Peppi og Otero, fylgið mér.
Komdu nú. Bankaðu á hann.
Svona nú! Upp með þær!
Upp með þær! Svona!
Halló, Arnie.
- Hvernig gengur?
- Hvað er í gangi?
Ég veit ekki um hvað þetta snýst,
en það er einkamál.
- Þið ættuð að hypja ykkur.
- Það fer enginn héðan.
Ykkur er boðið
í þessa einkaveislu.
En ef við viljum ekki vera?
Ég myndi ekki stöðva þig
fyrir neitt.
En piltana mína
klæjar í lófana.
Setjist, herramenn.
Arnie,
þú ættir að vita betur
en að ráða utanaðkomandi ræfla,
sérstaklega sem ekki geta skotið.
Svona nú. Hvað viltu?
Segðu mér!
Arnie,
þú ert búinn að vera.
Þú réðir þessa gaura, þeir hittu ekki.
Nú ertu búinn að vera.
Ef þú ert ekki farinn úr bænum
í fyrramálið,
ferðu ekki héðan
nema í líkkistu.
Ég tek yfir þetta svæði.
Héðan í frá stjórna ég.
Þú ert að vaxa, Rico.
Hefurðu sóst eftir þessu
allan tímann?
Ég sá það í augum þér
þegar við hittumst fyrst.
Þú ert einskis nýtur, Rico.
Ef þú heldur að þú getir ráðist inn eins
og á Sam Vettori, þá ertu galinn!
Þú hefur víst gleymt öllu
um Pete Montana?
Hvernig á Demanta Pete að stöðva mig?
Hann er yfirmaður þinn, ekki minn.
Sam leit ekki þannig á hann.
- Sam vissi hver skipaði fyrir.
- Sam var of mjúkur.
Demanta Pete hræddi hann,
en ég er ekki Sam.
Sam er búinn að vera.
Nú ert þú líka búinn að vera.
Falleg slifsisnæla, Arnie.
Ekkert gervilegt við
skartgripina mína.
Arnie,
þú ættir að hætta í bransanum.
Þú þolir álagið ekki lengur.
Þú ættir að taka hatt þinn
og fara.
Næst verðurðu handtekinn
fyrir að hleypa af byssu í borginni.
Ja,
ég held það sé allt og sumt.
Góða ferð, herramenn.
Komiði, piltar.
Og takk, piltar, fyrir skotvopnin.
MENNINGARDÁLKURINN
Hr. Arnold Lorch, úr Norðurbænum,
hefur farið til Detroit, þar sem hann
ætlar að eyða sumrinu.
Hann fór í fylgt tveggja vina
frá Detroit,
sem voru í borginni
í stuttan tíma.
- Jæja, piltar, hvernig líst ykkur á?
- Þú ert í röngu starfi. Fullkomið.
Þetta þýðir að þú átt nýjan félaga.
Caesar litla.
Það hlæja allir að sögu Scabby.
Jæja, stjóri. Þú lést Arnie
aldeilis finna fyrir því.
Rico...
Nú ertu frægur.
Sjáðu til, Otero.
Það er engin ástæða
til að vera hræddur við stóru gaurana.
Því stærri sem þeir eru,
þeim mun hærra er fallið.
Já.
Mér hefur gengið þokkalega
í bransanum hingað til.
Jæja.
Þú lítur vel út, stjóri.
Já, en mér líður hræðilega.
Leið þín liggur upp á við, Rico.
Engum okkar hefur verið boðið í mat
hjá Stóra stráknum.
Og enginn hefur ráðist inn
nema Pete Montana.
Skilurðu hvað ég meina?
Ekki viltu að Stóri strákur
telji þig smekklausan.
Maður er festur betur
í fangelsinu.
Ef þú heldur að ég fari út svona,
þá ertu galinn!
Þú ert fínn, stjóri.
- Sjáðu. Líttu á þig.
- Æ, ég veit ekki.
Það vantar bara þurrku á handlegginn.
Ertu ekki fínn?
Já.
Kannski þetta sé ekki svo slæmt.
Ó, halló.
- Halló, Stóri strákur.
- Halló, Rico.
Ó, já. Já. Takk.
Takk kærlega.
Þú ert aldeilis
uppstrílaður í kvöld.
Já, ég hélt það væri rétt
að fara í apagallann.
Mikið rétt.
Þú þarft að læra þetta.
Já.
Jæja...
Þetta er aldeilis höll.
Þetta dugar.
Þessi þykku húsgögn
hljóta að hafa kostað sitt?
Þau fást ekki fyrir vindlamiða.
Ja, ég segi það satt.
Þetta lítur sannarlega...
Ó, sjáðu þetta.
- Ertu hrifinn?
- Það er glæsilegt.
Það kostaði mig 15,000 dollara.
Fimmtán þús...
Þessir gullrammar
kosta greinilega sitt.
Má bjóða þér kokteil
eða koníakslögg?
Ó, nei takk.
Ég snerti ekki áfengi.
Ekki?
- Vindil þá?
- Ó, já. Ég þigg einn svoleiðis.
Takk.
Takk kærlega.
- Sestu, Rico.
- Já. Takk.
Heyrðu nú, Rico.
Ég ætla að tala við þig, en þú átt ekki
að heyra orð sem ég segi, skilið?
Þetta er leyndarmál, og ef það fréttist
þá fer illa fyrir einhverjum.
Þú þekkir mig.
Allt í lagi. Heyrðu þetta.
Pete Montana er búinn að vera.
Já?
Jæja.
- Og ég hélt að hann væri aðal maðurinn.
- Búinn að vera.
Hvað ef ég segði þér
að héðan í frá
ert þú Pete Montana.
Að þú takir yfir hans svæði
til viðbótar við þitt eigið.
Myndirðu samþykkja það?
Myndi ég?
Myndi ég?
Allt í lagi. Þá er það ákveðið.
Ég er að gera þér greiða, Rico,
en þegar þú tekur við
býst ég við góðri þjónustu.
Þú færð hana.
Leyfðu mér þá að drekka
nýja Norðurbæjarstjóranum heill.
Takk.
Rico hélt áfram að hugsa um sjálfan sig,
hárið á sér og byssuna sína...
Með framúrskarandi árangri.
Otero, hvað sagði ég þér?
Ég vissi að þetta yrði.
Ég vissi að hann fylgdist með mér.
Og ég skal segja þér, Otero.
Pete Montana er ekki bara
búinn að vera, heldur Stóri strákur líka.
Hann er ekki sami maður
og hann var.
Hann kiknar undan álaginu
áður en langt um líður,
og fylgstu þá með mér.
Sjálfsagt, stjóri.
Bráðum stjórnar þú
öllum bænum.
Otero, þú sagðir munnfylli.
Maður að nafni Massara er frammi.
Hann vill hitta þig.
- Ég hitti hann rétt bráðum.
- Já, herra.
Hvað vill Joe? Hann hefur ekki
komið nærri okkur í marga mánuði.
Ég sendi eftir honum.
Ég heyrði að einhver í Detroit hafi sagt
Flaherty að þrýsta
á dansara í Bronspáfuglinum ef hann
vildi komast að því hver skaut McClure.
Stjóri, þú veist allt
áður en það gerist.
Já, fátt fer framhjá mér.
Ég kemst að því hvort Flaherty hafi
þrýst á Joe þegar ég tala við hann.
Vá, Rico, hvílík höll.
Ó, halló, Joe.
Já, þetta nægir.
En við hverju býstu?
Ég lagði 20 þúsund í hana.
- Halló, Otero. Hvernig hefurðu það?
- Frábært.
Sestu, Joe.
Er ég nógu góður
til að sitja í svona stól?
Svona nú. Enga brandara.
Sestu.
Burt, Otero.
- Ég vil tala við Joe í einrúmi.
- Sjálfsagt.
Sjáumst seinna, Joe.
- Vindil, Joe?
- Nei takk.
Má bjóða þér kokteil,
eða koníakslögg?
Nei.
Jæja, varstu hissa
að heyra frá mér?
Svolítið.
Ég hélt það væri gott
að ræða saman
eins og í gamla daga.
Það er gaman að sjá þig, Rico.
Sérstaklega svona.
- Þú lítur vel út.
- Þú lítur líka vel út, Joe.
Þú tekur lífinu rólega?
- Ekki svo rólega. Dansinn er vinna.
- Já, en þú kvartar ekki.
- Nei. Nei, ég kvarta ekki.
- Það er gott.
Já.
Dansinn er ágætis aukavinna.
Gefur þér ágætis yfirvarp.
En það er ekki karlmanns starf.
Hver er munurinn, Rico?
Ef ég sparka ekki,
af hverju ættir þú að sparka?
Hver er að sparka?
En af hverju ætti ungur maður
að sóa tíma sínum?
Og ég lagði metnað í þig, Joe,
kom þér inn í gengið,
veitti þér framgang.
En þú ert bara raggeit.
Þurfum við að ræða það aftur?
Geturðu ekki gleymt mér?
Ég vil ekki gleyma, Joe. Þú ert vinur
minn. Við byrjuðum saman.
Við verðum að halda áfram saman.
Hvað annað þarf ég að hugsa um?
Ég þarfnast þín, Joe.
Mér býðst stærsta tækifæri lífsins.
Stóri strákur lét mig
fá allan Norðurbæinn,
en það er of mikið verk
fyrir einn mann. Ég þarfnast aðstoðar.
- Manns eins og þín, sem ég get treyst.
- Ekki ég, Rico.
Ég er hættur.
Þú hættir ekki.
Það hætti aldrei neinn hjá mér.
Þú ert enn í genginu mínu,
skilurðu?
Mér er sama hversu mörg pils
hanga utan í þér.
Stelpan hefur gert þig mjúkan.
- Láttu Olgu vera.
- Nei. Ég tekst á við hana!
Annað okkar þarf að tapa, og ekki verður
það ég. Það er hægt að stöðva hana.
- Þú ert galinn. Láttu hana eiga sig!
- Hún er búin, úr leik.
- Þú lýgur. Þú þyrðir ekki!
- Ekki það?
- Ég skal sýna þér!
- Rico, hlustaðu.
Við erum ástfangin.
Skiptir það engu?
Engu. Minna en það.
Ást. Aumingjahjal!
Þegar hún hefur þig
þá ertu einskis nýtur.
Þessu er ekki lokið enn
og við viljum ekki að gungur
kjafti frá!
Ég kjafta engu,
ef þú ert hræddur um það.
- Heldurðu að ég vilji hálshnykk?
- Ja, þú veist of mikið.
Ég tek enga áhættu.
Þú verður með mér, skilið?
Nei, það verð ég ekki.
Allt í lagi.
Farðu aftur til konunnar
og það er sjálfsmorð.
Sjálfsmorð fyrir ykkur bæði.
Vertu bara hér.
Halló?
Ó, halló, Stóri strákur.
Nei. Nei, Ég vil hann ekki.
Ég treysti honum ekki.
Já. Það er strákur að nafni
Joe Massara sem aðstoðar mig.
Já. Fínt, bless, Stóri strákur.
Otero.
- Joe.
- Olga.
- Við verðum að fara. Fljót!
- Joe, hvað er að?
Heyrirðu ekki?
Fljót! Fljót!
- Já, Joe. Ó, þú ert veikur.
- Það er allt í lagi.
- Rico.
- Hvað gerði hann þér?
Ó, vissi ég ekki?
Hann, Rico... Hann sagði
að við yrðum að hætta saman.
Hann dræpi þig ef ég stæði
ekki með honum. Ég flúði.
Við verðum að koma okkur héðan.
Hvert sem er. Langt í burtu!
Nei.
- Nei? Kemurðu ekki?
- Nei.
Þetta er ekki leiðin.
En, Olga, þú þekkir hann ekki!
- Olga, þú verður! Gerðu það!
- Nei.
Sestu, Joe.
- Við verðum að hugsa.
- Ég vil ekki setjast og hugsa.
- Þú kemur.
- Skilurðu ekki? Það væri til einskis!
Hvert? Hvert ættum við að fara?
Hann finnur okkur hvar sem er.
Það er aðeins ein leið út.
Flaherty.
Þú ert biluð.
Heldurðu að hann bjargi okkur?
Flaherty? Það er verra en sjálfsmorð.
- Ég geri það ekki. Get það ekki.
- Ég get það.
Gengið verður að fara.
Rico verður að fara.
Ég vil vera hamingjusöm, Joe.
Ég vil þig.
Við finnum ekki frið fyrr en Rico fer.
Ég geri þetta.
Olga, ekki! Gerðu það! Vertu kyrr!
Olga, opnaðu dyrnar!
Olga, opnaðu dyrnar! Fljót!
Park, 1000.
Olga. Ekki hringja í Flaherty.
Gerðu það, opnaðu dyrnar!
Rico drepur okkur bæði!
Höfuðstöðvar, má ég tala
við Flaherty aðstoðarvarðstjóra.
Flaherty, þetta er Olga Stassoff.
Ég er með Joe Massara.
Í íbúðinni minni.
Edsel Drive 17.
Já. Já, hann vill tala við þig.
Fljótt, fljótt!
Komiði strákar,
förum í veislu.
Hver heldur hana?
- Joe Massara.
- Formlega eða óformlega?
Ég veit ekki, en við
komumst að því við komu.
Þú hefðir ekki átt að gera þetta.
Það var engin önnur leið.
Ekki rétt leið.
- Ég fer í gálgann.
- Nei, alls ekki.
Ekki ef þú aðstoðar ríkið.
Við látum þá lofa
að allt verði í lagi.
Bíddu, Olga!
- Joe!
- Þarna er hann, svikarinn sjálfur.
Láttu hann hafa það, Rico!
Nei.
Skjóttu.
Skjóttu, Rico.
Ljúktu þessu.
Svona nú, Otero! Förum!
Þú ert að meyrna líka.
Hvað er að þér? Komdu!
Joe.
- Hver var það?
- Otero og Rico. Í gegnum gluggann!
Áfram strákar.
Farið og takið hann!
Ertu tilbúinn að tala núna, Joe?
Ja, ég tala. Það var gengi Ricos
sem rændi Bronspáfuglinn.
Það var Rico sem skaut McClure.
Þessi aumi svikuli...
Ja, Joe segir þér það. Spyrðu hann.
Hann veit að það var Rico.
Er það satt, Joe?
Var það Rico?
- Hvar er síminn þinn?
- Þarna inni.
Ó, Joe. Hérna, ég skal hjálpa.
Park, 1000.
Halló, Dan, þetta er Flaherty.
Safnaðu Palermo genginu saman.
Ég hef nægar sannanir
fyrir mílulangt reipi.
Hentu bílunum strax af stað
og náðu Rico fyrst og fremst.
Við verðum að gæta okkar.
Löggurnar eru eflaust á ferli.
- Þú áttir að skjóta Joe.
- Og dömuna.
Hafi þau ekki kjaftað frá McClure,
þá gera þau það núna.
- Við erum eftirlýstir.
- Já.
Þetta fær maður
fyrir að líka vel við fólk.
Komdu.
Stopp!
Stopp!
Haltu áfram, Rico.
Ég er búinn að vera.
Farðu, Rico.
Sam! Sam!
Joe Massara! Hann var gómaður út af
McClure málinu, og hann kjaftaði.
Rico reyndi að ná honum.
Nú elta þeir hann. Þeir tóku Otero.
- Otero?
- Sam, skilurðu ekki?
- Af hverju siturðu hér?
- Hvað annað get ég gert?
Ég flý ekki núna.
Þeir næðu mér.
Þú ert ruglaður.
Svona, stattu upp. Stingum af!
Það er tilgangslaust.
Upp með þær! Ekki hreyfa sig!
Afhendið vopnin.
Allt í lagi. Niður í bíl með þá.
Þú ættir að gefast upp, Sam.
Slepptu byssunni
áður en við förum að skjóta.
Komdu inn fyrir.
Stattu upp
og upp með hendur.
Settu járnin á hann.
Þið hafið ekkert á mig.
Ekkert nema armböndin.
Og við höfum ekkert á Rico heldur.
Hann er næstur.
MA MAGDALENA
ÁVAXTABÚÐ
- Það er enginn þarna.
- Ekki?
Jæja, Ma. Þú lætur okkur vita
um leið og þú sérð Rico.
Jæja,
þú ert kominn í góða klemmu.
- Já.
- Löggan var hérna.
Otero var tekinn.
Ma, ég ætla að vera hér
í dag eða tvo. Svo þarf ég bíl.
Það verður dýrt
því ég tek mikla áhættu.
Ég á 10 þúsund hérna.
Gjörðu svo vel.
Þegar þú ert tilbúinn,
skal ég gefa þér 150.
Gefurðu mér?
Hver á peningana?
Við hvern ertu að tala?
Ég þarf fullt. Mínir peningar eru í
íbúðinni. Ég kemst ekki í þá.
Ég gef þér 150.
Þú ræður hvort þú tekur þá.
Þú skítuga, þjófótta norn, ég...
Nei, þú gerir það ekki.
Af því ég ein veit
hvar peningarnir eru.
Dreptu mig og þú færð ekki neitt.
Ég gef þér 150
ef þú verður góður strákur.
Mánuðir liðu...
frami Ricos var eins og raketta...
sem hófst í ræsinu
og endaði þar líka.
HREIN RÚM
15 sent
Hann var illur, Sam Vettori.
Svo nú fékk hann
það sem hann verðskuldaði.
Hvað stendur í blaðinu?
"Fyrrverandi glæpon
fellur í yfirlið á aftökupallinum.
Eftir vonlausa baráttu
fyrir rétti
var Sam Vettori,
fyrrverandi glæpon,
aumur að sjá í dag
þegar snöru var smeygt
um háls hans."
Hlustaðu. "Caesar litli
hefur aldrei fundist.
Samkvæmt yfirlýsingu frá
Thomas Flaherty lautinant í morðdeild,
hefur Caesar litli, gortarinn
úr undirheimunum guggnað
þegar raunveruleg hætta steðjaði að
og sýnt heiminum hugleysi sitt.
Flaherty sagði einnig að Caesar litli
hafi ekki staðið við orð sín,
um að hann gæti tekið
eins og hann gaf."
Já.
"Þegar raunveruleg kreppa varð
gat Rico ekki tekið því.
Flaherty lauk viðtalinu
með því að segja:
'Eins hratt og Rico
reis úr ræsinu,
þá var óumflýjanlegt
að hann endaði þar aftur.'"
En samt sem áður,
var hann raunverulegi leiðtogi hópsins.
Trúðu því ekki.
Rico hafði ekki taugarnar,
og ekki hafði hann gáfurnar.
Hann var gunga,
rétt eins og Flaherty sagði.
Hérna!
- Þetta er það sem Rico...
- Láttu mig fá blaðið!
Hey, passaðu þig!
- Hvað er að honum?
- Hlýtur að vera bilaður.
Ég skal sýna þeim.
Reynir að setja þetta um mig
í blöðin, já?
Ég skal sýna þeim... Halló?
Halló? Samband við Park, 1000.
Já. Já, þoli ég ekki meira?
Ég skal segja honum...
Halló? Park, 1000?
- Flaherty, og það strax.
- Sjálfsagt. Augnablik.
Tom. Ó, Tom.
Ég er kannski að rugla
en þetta hljómar eins og Rico.
Já?
- Flaherty hér.
- Já, þetta er Rico hér!
Rico! R-l-C-O, Rico!
Caesar litli, hinni eini sanni!
Þú ert merkilegur?
Blaðrar í blöðin.
Svo ég flúði af hólmi?
Þoli ég ekki meira?
Hlustaðu nú, aumi lögguræfill,
ég skal sýna þér
hvað ég er trekktur.
Takk, Rico, gamli minn.
Sömuleiðis.
Svona, segðu mér meira.
Það er svo gaman að heyra í þér.
Rektu símtalið.
Sjáðu hvaðan hann hringir, fljótur.
Af hverju komstu ekki
að sjá Sam hanga, Rico?
Það gekk svo vel.
Þú ert fyndinn, Flaherty?
Þú hlærð ekki mikið lengur.
Ég er að koma
og ég set eina í þig
fyrir hverja lygi
sem þú sagðir um mig.
Ég skal sýna þér
hver endar í ræsinu.
Við höfum saknað þín, Rico.
Bærinn hefur verið
svo hljóður og fínn.
Ég er að fitna.
River, 6547. Það er bæli á horni
Fjórða og Commercial.
Gott og vel.
Gott og vel kjaftaskur.
Taktu hattinn þinn og hlauptu,
því þú ert búinn að vera.
Hringdu í blöðin og segðu þeim það,
auma, lygaralögga!
Ég vissi að hann léti heyra í sér
ef ég notaði blöðin.
Sjálfsálitið!
Það þarf sérstaka snöru
til að fara yfir höfuðið á honum.
Jæja, óskaðu mér góðs gengis.
Þarna er hann. Þetta er Rico.
Farðu þarna inn.
Olga Stassoff og Joe Massara
TIPS Y TOPS Y TURVY
Þú ættir að gefast upp, Rico.
Þú átt ekki möguleika.
Þið verðið að ná mér.
Vertu almennilegur, Rico,
og komdu út.
Þið heyrðuð í mér!
Komið og takið mig!
Ég kem rétt strax.
Láttu mig fá byssuna.
Þetta er síðasta tækifærið, Rico.
Kemurðu út
eða á að bera þig?
Jæja, Rico, ætli við tveir
séum ekki að fara í bílferðina okkar.
Nei...
Nei, það gerum við ekki.
Ég sagði þér að gammur eins og þú
setti aldrei járn á mig.
Þú hefðir átt að koma út
þegar ég sagði það, Rico.
Miskunnsama móðir.
Eru þetta endalok Ricos?
Íslenskur texti eftir:
SDI Media Group
Ripped by:
SkyFury