Tip:
Highlight text to annotate it
X
Viltu ekki fá samloku með þér?
Ég fæ mér eitthvað í sjoppu.
Þú býst við að sá vængjaði
frelsi þig frá illu,
ekki satt, vinurinn?
Ætlarðu að drepa mig?
Kannski, kannski ekki.
Vér höfum skiptar skoðanir á því.
Stundarðu fjárhættuspil?
Eigum við að kasta upp á það?
Einn maður er fæddur hetja,
bróðir hans skræfa.
Ungbörn svelta, pólitíkusar fitna,
heilagir menn verða píslarvottar
og dópistum fjölgar óðum.
Af hverju?
Af hverju, af hverju?
Af heppni!
Heimskuleg, blind, einföld, bla-bla,
fyrirvaralaus heppni!
Uppkast af handahófi
er eina sanna réttlætið.
Við skulum sjá hvað réttlætið ætlast fyrir
með þig.
Þetta er eins og snerting guðs.
Bíddu.
Enn einn dagur víns og rósa.
Hjá þér er það bjór og pítsa.
Förum, strákar!
-Þú sagðir að ég fengi að lifa.
-Það er satt.
Ekkert jafnast á við
að veiða leðurblöku með lifandi agni.
Glæsileg innkoma.
Tvífés?
Tveir verðir eru dánir.
Hann er með gísl. Við vorum ekki viðbúnir.
Hefðum átt að vera það.
Annar bankinn í Gotham...
Í dag eru tvö ár síðan ég gómaði hann.
Hvernig gæti hann varist?
Ég heiti Chase Meridian.
Ég bað hana að koma og veita ráðgjöf.
Hún sérhæfir sig...
Í klofnum persónuleikum.
Ég hef lesið bækur þínar.
Þær sýna skilning.
Barnaskap en skilning.
Ég er upp með mér. Ekki eru allar
stúlkur á náttborði ofurhetjunnar.
Er hægt að koma vitinu fyrir hann?
-Hjá honum er saklaust fólk.
-Það er tilgangslaust.
-Hann drepur það hiklaust.
-Sammála.
Áfall sem skapar annan persónuleika
gerir mann...
Í heimi þar sem rétt og rangt
skiptir ekki lengur máli.
Einmitt.
Eins og hjá þér.
Ég gæti skrifað lærða ritgerð um mann
sem klæðir sig eins og fljúgandi nagdýr.
Leðurblökur eru ekki nagdýr, dr. Meridian.
Er það ekki? Ég vissi það ekki.
Þú ert athyglisverður.
Kallaðu mig Chase.
Hefurðu skírnarnafn
eða á ég að kalla þig Blaka?
Hefjum gleðina með látum!
Hann kemur stundvíslega í eigin jarðarför.
Strákar!
Drepum blökuna!
Skjótið hana!
Sesam, opnistu.
Þetta er gildra!
Takið eftir, íbúar Gothamborgar!
Þegar við opnum skápinn,
höfum við allt sem hugurinn girnist:
nóga peninga til að
öngþveitisflóð skelli á borginni.
Og auðvitað
deyrð þú, góði minn!
Þetta er sjóðandi sýra!
Vër bjóðum sýruna sem gerði
oss eins og vër erum!
Hægan!
-Togaðu í.
-Já!
Togaðu í!
Já, togaðu í!
-Réttu mér höndina.
-Slepptu ekki!
Ég verð að fá þetta að láni.
Þetta er heyrnartækið mitt!
Þakka þér fyrir.
Skórnir mínir eru að bráðna!
Ekki meira!
Haltu þér.
Halda mér?
Hjálpið honum niður.
Farið varlega með hann.
Þú nærð þér alveg. Vertu bara rólegur.
Þetta gengur frá honum!
Haltu þér!
Við skulum nú sjá.
Já!
Já, já, já! Hvílíkur gleðidagur.
Vér kveðjum að eilífu
næturrottuna með oddmjóu eyrun!
Fési!
Þú þarft aðstoð. Gefstu upp.
Vertu svo smekkvís að drepast!
Sjáumst!
Þrátt fyrir hugdirfsku Leðurblökumanns
í gærkvöldi
gengur Harvey Tvífës enn laus
og er stórhættulegur.
Í öðrum frëttum er það helst
að auðkýfingurinn Bruce Wayne
skipti hagnaðinum
milli starfsmannanna
í rafeindafyrirtæki sínu.
Herra Wayne.
Eftirlitsferðir þínar vekja hrifningu
í deildinni.
Drottinn minn. Þetta er hann.
Ég er sigurvegari.
Ég er sigurvegari.
Líflækning. Annars konar eldsneyti.
Sjáðu hvað tíminn líður.
Við ættum að fara sem fyrst
á þróunardeildina.
Herra...?
Bruce Wayne.
Nei, ég er hann. Hvað heitir þú?
Nygma.
Edward.
Edward Nygma. Þú réðst mig sjálfur.
Eins og ég segi öllum.
Við höfum aldrei hist en nafn þitt var á
ráðningarseðlinum. Ég er með hann.
Ég þarf að fá höndina.
Já, auðvitað.
Fyrirgefðu.
Málið er bara
að þú ert fyrirmynd mín.
Farðu að vinna.
Sumir hafa reynt að halda okkur aðskildum.
Farðu að vinna.
Það er í lagi.
Hvað hefurðu í huga?
Einmitt.
Hvað höfum við öll í huga?
Heilabylgjur.
Framtíð
Wayne-fyrirtækisins
felst í heilabylgjum.
Ég biðst afsökunar.
-Ég stöðvaði verkefnið hans í dag.
-Það er í lagi.
Ég er með það!
Með uppfinningu minni
er hægt að beina öllum
sjónvarpstáknum inn í mannsheila.
Með því að örva taugafrumur
og stjórna heilabylgjum
halda áhorfendur að þeir
taki þátt í dagskránni.
Af hverju að láta þá
sem er sama um okkur pína okkur?
Talaðirðu um að stjórna heilabylgjum?
Já.
En
maður eins og þú þyrftir aldrei að gera það.
Maður svo
gáfaður, fyndinn
og töfrandi.
Það þarf fé til tilrauna á fólki. Sjáðu þetta!
Heyrðu,
ég vil fá nákvæmar teikningar af þessu.
Við störfum saman að þessu, Bruce.
Líttu á okkur! Við erum eins!
Margaret, aðstoðarkona mín,
lætur þig fá eitthvað.
Nei, það
nægir mér ekki.
Ég verð að fá svar strax.
Ég á það skilið.
Fyrirgefðu, þá verð ég að hafna þessu.
Fikt við heilabylgjur fólks,
hugarfitl,
það vekur of margar spurningar.
Því miður.
En haltu áfram. Þetta lítur vel út.
Jæja, allir saman!
Farið að vinna!
Við ræðum þetta seinna!
Þú áttir að skilja þetta.
Ég kem þér til þess.
Læsa.
Stóll.
Ég sá merkið.
Allt er til reiðu.
Yfirlögreglustjóri?
Hann er heima.
Ég sendi merkið.
Hvað er að?
Í gærkvöldi tók ég eftir dálitlu um Tvífés.
Myntin hans.
Hún er viðkvæmur blettur á honum.
Það er hægt að nýta það.
Ég veit það.
Kallaðirðu í mig út af þessu einu?
Blökumerkið er ekkert píptæki.
Ég vildi geta sagt að áhugi
minn á þér væri eingöngu
vegna starfsins.
Reynirðu að komast undir slána mína?
Engin stúlka lifir á geðveiki einni.
Er það ekki bíllinn? Stelpurnar dá hann.
Af hverju heillast ég alltaf
af rangri manngerð?
Í grunnskóla voru það strákar
með eyrnalokka.
Í framhaldsskóla mótorhjól og leðurjakkar.
Núna,
svart gúmmí.
Prófaðu brunavörð. Minna til að fara úr.
Mér er sama um vinnuna.
Ég vil sjá bak við grímuna.
Við erum öll grímuklædd.
Líf mitt er sem opin bók. Ertu læs?
Ég sker mig alltaf úr í lautarferðum.
Við getum reynt það. Ég kem með vínið
og þú með öróttan hug þinn.
Þú skefur ekki utan af því.
Þú vilt hafa konurnar sterkar.
Ég hef kynnt mér það.
Þarf ég þröngan vínílgalla og svipu?
Ég hef ekki verið farsæll í kvennamálum.
Kannski hefurðu ekki kynnst þeirri réttu.
Ég sá merkið.
-Hvað er um að vera?
-Ekkert.
Bara gabb.
Ertu viss?
Þessar konur.
Nú skil ég!
"Það eru of margar spurningar."
Ég skal sýna þér að þetta tekst.
Hver fjárinn er um að vera?
Ég sagði þér að hætt væri við þetta!
Ég sæki vörðinn!
Koffeínið drepur þig!
Á lappir með þig, litla tilraunadýr.
Hvað ertu að gera?
Losaðu mig!
Þetta er ekkert sárt.
Eða ég held ekki.
Hvað ertu að gera?
Ef þú snertir rofann...
Þennan?
Myndin dofnar.
Meiri orku!
Edward Nygma!
Komdu!
Þú ert næsti keppandi
í Vitsmunaleka!
Ég tek það sem er undir
fyrstu þykku skelinni!
Hvað höfum við handa honum?
Stickley, það urðu þáttaskil hjá mér!
Og taugaáfall!
Ég er samt klárari. Ég er snillingur.
Nei, margir snillingar.
Gomma, glás,
flokkur snillinga á borð við Freud!
Svaraðu þessu, Fred.
Hvað er einum allt
og öllum öðrum ekkert?
Hugur þinn, karlinn!
Nú starfar minn hugur
með orkunni í þínum!
"Ég sýg í mig greind þína
"Ég tæmi heilabörk þinn
"Ég nærist á heila þínum"
En spennandi!
Hvað var að gerast?
Aukaverkunin kemur mjög á óvart.
Meðan þú varst heillaður
af þrívíddarsjónvarpi mínu
vitkaðist ég á taugaorkunni úr þér.
Bruce Wayne hafði rétt fyrir sér!
Geðbilaða, furðulega, siðbrenglaða padda!
Þetta er heilastjórnun!
Ég kæri þig fyrir útvarpslaganefnd!
Fyrir nefnd um tilraunir á fólki! Fyrir KMÍ!
Og lögreglunni!
Þú verður kærður,
ferð fyrir rétt, í fangelsi
og verður lokaður ævilangt
inni á geðspítala!
En umfram allt ertu rekinn, Nygma!
Heyrirðu það? Rekinn!
Það held ég ekki.
Hjálp!
Haltu þér!
Gæskur!
Þú ert rekinn!
Eða ætti ég að segja
búinn að vera?
Það brimar vel, kappinn!
Falleg dýfa en harkaleg lending.
Hann gæti þurft að sætta sig við bronsið.
Viltu spyrja einhvers, herra Wayne?
Störf mín vekja of margar spurningar.
Af hverju hefur enginn
lækkað í þër rostann?
Dent var áður saksóknari í Gotham
en glæpakóngurinn Boss Moroni
lëk hann illa.
Leðurblökumaðurinn reyndi
að bjarga honum
en meiðsl í vinstri heila
gerðu hann að glæpafóli.
Hann hefur svarið að drepa
Leðurblökumanninn.
Harvey Tvífës er stórhættulegur.
Ég endurtek, stórhættulegur.
Þetta var yfirlögreglustjórinn.
Það varð slys í Wayne-fyrirtækinu.
Hryllilegur dauðdagi.
Eftirlitsmyndavélarnar eru hér niðri.
Við slæðum ána en finnum varla
líkið vegna straumsins.
Af hverju?
Æ, af hverju?
Ég trúi þessu ekki.
Við unnum í tvö ár á sömu skrifstofu.
Hann var mér sem faðir,
sem bróðir,
eða frændi sem kemur oft í heimsókn.
Hertu þig upp.
Þetta var í klefanum mínum.
Þetta er rithönd og setningaskipun hans.
Ég get ekki haldið áfram að vinna hér.
Minningarnar...
Upptaka frá því í gærkvöldi.
Hér er Stickley.
Þetta liggur í augum uppi.
EFNI: SJÁLFSMORÐ MITT
VERTU SÆL, GRIMMA VERÖLD!
Já, örugglega sjálfsmorð.
Þakka þér fyrir hjálpina. Ég tala við þig.
Sjálfsmorðið stemmir ekki.
Ættingjar eiga að fá bætur.
Við bætum ekki sjálfsvíg.
Ég veit það. Fullar bætur samt.
Sigga slúður hringdi oft.
Hver fer með þér í sirkusinn?
Ég læt þig vita af því. Hvað er þetta?
Ég veit það ekki.
Ég sá engan koma.
"Ef þú lítur á tölurnar í andliti mínu
"sérðu hvergi 13."
Þetta er ferlegt.
Hvað táknar þetta?
Þetta er gáta.
"Tölur á andliti mínu... 13."
Einn upp í tólf.
Svarið er klukka.
Hver sendir þér gátu.
Maggie, það
er gátan.
E. NYGMA
AÐGANGUR BANNAÐUR
Gettu hvað ég gerði í dag.
Wayne-setrið.
Sjáumst fljótlega.
Dr. Meridian, þökk fyrir.
Ég held að ég sé of snemma á ferðinni.
Ég átti pantaðan tíma.
Ég heiti Bruce Wayne.
Gott.
Þú hefur ráð á nýrri hurð.
Mér þykir þetta leitt.
Mér heyrðist þú vera
í vandræðum.
Ég vil frekar heilbrigt ofbeldi en innbrot.
Nú,
hvað get ég gert fyrir þig?
Mér hafa verið send ástarbréf.
Eitt á vinnustaðinn og annað heim til mín.
Yfirlögreglustjórinn hélt
að þú vildir líta á þetta.
Klukka.
Klukka.
"Rífðu eitt af og klóraðu mér í höfðinu.
"Sem var rautt en er nú svart."
Eldspýta.
Álit mitt: Bréfritarinn er snarklikkaður.
"Snarklikkaður"?
Er það fræðilegt orð?
Hann gæti þjáðst af þráhyggju
og hneigst til manndráps.
Líkar þér það betur?
Þú meinar
að gaurinn sé snarklikkaður.
Einmitt.
Hann er með þig á heilanum.
Eina von hans
er að losa sig við þráhyggjuna.
Að drepa mig.
Þú veist meira um þráhyggju en þú þykist.
Ertu hrifin af leðurblö***?
Þetta er Rorschach-próf.
Blekklessa.
Fólk sér það sem það vill sjá.
Spurningin er:
Ert þú hrifinn af leðurblö***?
Leikurðu þér enn að brúðum?
Hún er malajískur draumavörður.
Sumar þjóðir telja hana veita vernd
gegn illum draumum.
Ég er viss um að þér þykir þetta kjánalegt.
Þú ert dapurlegur.
Vantar þig draumavörð?
Nei, því skyldi mig vanta slíkt?
Þú ert ekki allur þar sem þú ert séður.
Hvers vegna komstu eiginlega?
Vá, tíminn er búinn.
Venjulega segi ég það.
Ég vildi gjarnan ræða við þig...
Er það?
Ég er ekki svo viss um það.
Ég verð að koma þér úr þessum fötum.
Hvað sagðirðu?
Og í svartan kjól.
Ertu hrifin af hringleikahúsum?
HRINGLEIKAHÚS
GOTHAM GÖÐGERÐARSIRKUSINN
Herrar mínir og frúr,
strákar og stelpur á öllum aldri,
velkomin á stærstu fjölleikasýningu heims!
Hver er þessi fagra kona sem þú ert með?
Doktor Chase Meridian.
Læknir?
Hvernig læknir?
...fyrir Barnaspítalann í Gotham.
Þökkum þeim sem mest gaf,
Bruce Wayne!
Góðir áhorfendur,
í meira en tuttugu metra hæð
sýnir nú ótrúlegustu loftfimleika
Grayson-fjölskyldan fljúgandi!
Heyrðu.
Ég klíf í klettum um helgina.
Viltu koma með mér?
Mjög gjarnan.
Ég nýt þess að klífa. Alveg satt.
En?
Ég hef kynnst manni.
Þú varst snögg, nýkomin hingað.
Það mætti segja
að hann hafi dottið af himnum og...
***!
Ég held að hann hafi fundið það líka.
Hann gerði það svo sannarlega.
Hvað?
Hver fyndi það ekki?
Nú mun
Richard
sem er yngstur í fjölskyldunni,
sýna okkur ógnvekjandi
dauðafall
án
öryggisnets!
Stökktu.
Þetta verður í lagi.
Herrar mínir
og frúr.
Nýir stjórnendur sirkussins
bjóða ykkur að gleyma
þessum heilbrigðu skemmtiatriðum
en fagna með okkur öngþveiti
og sönnum æringjum!
Komið með atriðið!
Nú þegar!
Nú hefst nýtt atriði
ykkur til skemmtunar:
"Fjöldamorð í stóra tjaldinu. "
Beinið nú athyglinni að hringnum.
Í þessari meinleysislegu kúlu eru
tvö hundruð stangir af sprengiefni.
Í saklausum höndum okkar
er fjarstýring.
Hvað viltu?
Vil ëg, borgarstjóri?
Það er einfalt: Leðurblökumanninn.
Skrámaðan, beinbrotinn, blæðandi.
Með öðrum orðum, dauðan!
Leðurblökumaður.
Hverjir eru fyrir framan oss?
Fína fólkið í Gotham,
þeir ríkustu
og áhrifamestu.
Einhver ykkar hlýtur að vita hver hann er.
Einhver af ykkur fölu vitleysingjum
er Leðurblökumaðurinn!
Þið fáið tvær mínútur.
Harvey!
Ég er Leðurblökumaðurinn!
Við getum stöðvað þá.
Farðu út á búnaðinn.
Farðu varlega.
Vertu óhrædd.
Farið að starfa, piltar!
Þessi dagur er okkur að skapi.
Teygðu þig í hana! Stöðvaðu hana!
Góður guð.
Gott að þú tókst hann að þér.
Hann á enga að lengur.
Hann hefur fyllt út skjöl í dag
og hvorki sofið né étið.
Velkominn, ungi Grayson.
Ég heiti Alfred.
Sæll, Al.
Herbergið er tilbúið. En viltu borða áður?
Ég er farinn.
Hvað sagðirðu?
Þegar ég sagði löggunni að ég yrði hér
slapp ég við löng viðtöl
við liðið á félagsmálastofnun.
Taktu það ekki illa upp
en ég afþakka boðið.
Farðu vel með þig.
Hvert ferðu? Sirkusinn er langt í burtu.
Ég ætla að finna Tvífés.
Síðan drep ég hann.
Sorgin hverfur ekki þótt þú drepir Tvífés.
Það gerir illt verra.
Engar prédikanir.
Ég þarf hvorki ráð þín né ölmusu.
Fínt hjól.
Stundarðu mótorhjólakrárnar?
Þú ert næstum bensínlaus.
Taktu bensín í skúrnum.
Það er langt í næstu bensínstöð.
Dælan er þarna.
Er þetta bílskúr eða bílasafn, Bruce?
Harley 1917.
Jamm.
Klassískur indíáni, gerður upp að fullu.
Þetta er Vincent Black Knight-hjól.
Það eru bara til hundrað svona hjól.
101. Þetta er eftirlætishjólið mitt.
Þú átt tvö.
Þetta er ekki gangfært.
Bensíngjöfin er föst.
Alfred er laginn viðgerðamaður
en þetta útheimtir mikla vinnu.
Ef einhver vildi gera við hjólin
mætti hann eiga eitt þeirra.
Hvað um það.
Góða ferð.
Þú spjarar þig.
Er ungi maðurinn á förum?
Það var leitt.
Ég fleygi þessu þá.
Kannski eru hundarnir svangir.
Bíddu, Al.
Herra Bruce?
Eins og foreldrar mínir.
Það endurtekur sig.
Skrímsli kemur úr myrkrinu,
hróp, tveir skothvellir.
Ég drap þau.
Hvað sagðirðu?
Hann drap þau.
Tvífés.
Hann drap foreldra drengsins.
Nei.
Þú sagðir: "Ég drap þau."
Annastu strákinn.
Að sjálfsögðu.
Á ég að hjálpa þér að koma þér fyrir?
Nei.
Þökk fyrir. Ég verð ekki lengi.
Er þetta þröstur?
Vírinn slitnaði hjá bróður mínum
en ég náði honum.
Pabbi sagði að ég væri hetjan sín.
Þá kom ég fljúgandi eins og þröstur.
Meiri hetjan sem ég var.
Þetta var rétt hjá föður þínum.
Þú ert hetja. Ég veit það.
Fleygðu þessu, ég nota þetta ekki aftur.
Ég held að ég setji það hérna.
Vængbrot læknast með tímanum.
Þröstur á eftir að fljúga aftur.
Ég lofa þér því.
Ég keyri.
Leikjastjórinn?
Gátukarlinn?
Doktor drápari?
Spurningamerkjamaður?
Kærar þakkir.
Það að Blaki þrjóskast við að drepast
er að æra oss!
Vertu bara rólegur.
Þú drepur hann fljótlega.
Þar að auki
útbjó ég eftirlætis matinn þinn.
Freyðandi kampavín,
gufusoðinn lax
með litlum kornhænueggjum
og mjúkt,
sjúkt
sítrónufrauð.
Nei, ég eldaði eftirlætismatinn þinn.
Sviðnað hjarta úr svörtum gelti,
hrátt asnakjöt
ásamt óblönduðum kveikilög
og spíritusi í glasi.
Frábært!
Dömur, þið ofdekrið oss!
Vér erum á báðum áttum
á hvoru vér byrjum.
Hvað?
Vonandi gerðirðu ráð fyrir gesti.
Hver í fjáranum ert þú?
Bara vinur.
En þú mátt kalla mig
Gátumanninn.
Ég segi bara að þú sért dauður.
Hvernig fannstu oss? Talaðu!
Ef ég tala, hvað hindrar að þú drepir mig,
einangraði maður?
Þetta læknast ekki ef þú
hættir ekki að fikta í því.
Ætli blóðið í þér sé grænt?
Þú vilt ekki drepa mig.
Það er of auðvelt fyrir
jafnmáttugan mann og þig
og þig.
En Leðurblökumaðurinn
er verðugt viðfangsefni.
Dreptu Blaka! Góð hugmynd.
Hefurðu hugleitt það?
Fáein skot, blóðskvetta og hvað?
Blautar hendur.
Þunglyndi í kjölfar manndráps.
Því ekki að auðmýkja hann fyrst?
Já.
Fletta ofan af veikleika hans.
Þegar hann liggur vel við höggi,
láttu þá vaða!
Ég sé
vinstra auga þitt leiftra.
Ég skal hjálpa þér að ná
Leðurblökumanninum.
Það er ef þú
þyrmir lífi mínu smástund.
Þakka þér fyrir.
Þetta er fín blanda af þungarokki og
Hús og híbýli.
Fallegt.
Það er svo dimmt og gróft
og ógeðslega úrkynjað.
En samt svo bjart og fjörlegt
og rótgróið.
Þetta er svo líkt þér!
En samt svo líkt þér!
Sárafáir eru bæði sumar og vetur
en þér tekst það bærilega.
Hvað ertu að fara?
Vandamál þitt er að þú
stjórnast af andartakinu.
Ég á við það.
Svona fann ég þig.
Ég skal sýna þér það.
Þarna er heilinn í þér.
Þetta er heilinn í mér.
Líður einhverjum eins og spældu eggi?
Annað dæmi.
Það er meira.
En aðeins fyrsta sýningin er ókeypis.
Við förum þannig að:
Þú hjálpar mér að stela
framleiðslufjármagni
svo ég geti sett kassa
í öll sjónvarpstæki í borginni
og orðið gáfaðasta lífveran
gerð úr kolefnum!
Í staðinn...
Hlusta allir á mig?
Ég mun hjálpa þér
að leysa erfiðustu gátuna.
Mikilvægust allra gátna:
Hver er
Leðurblökumaðurinn?
Þú braust inn í felustað vorn.
Þú raufst helgi bústaðar vors.
Vér ættum að mölva í þér
beinin mélinu smærra.
En tilboð þitt er athyglisvert.
Kórónan: Vér gerum það.
Mynt: Vér skjótum af þér hausinn.
Hér er einn góður.
Nei, nei!
Þessi er góður.
-Ég skal gera þetta.
-Ég er óvanur því að vera þjónað.
Skjótið mig ekki!
Horfðu ekki á mig! Komdu með þetta!
Tvífés, kenndu mér að kýla mann!
Ekkert mál.
Krepptu hnefann, teygðu þig aftur
og láttu finna fyrir þér.
Þetta virðist skemmtilegt. Má ég reyna?
Kreppa hnefann,
teygja sig aftur og láta finna fyrir sér.
100.220 dalir.
Eitt hundrað...
Ég ruglaðist!
Brjálæðingurinn í græna
búningnum rændi enn
demöntum fyrir miljónir dala.
Leðurblökumaðurinn sást hvergi.
Glæpamaður skilur eftir sig gátur
og því kalla borgarbúar hann Gátumanninn.
Þið Leðurblökumaðurinn virðist
eiga sama óvininn.
Þetta kom í morgunpóstinum.
"Við förum átta fram, ekki aftur.
"Til að verja kónginn fyrir árásum."
Skákpeð.
Klukka.
Eldspýta.
Allt er þetta gert af mönnum.
Lítið um sig og létt.
Hver eru tengslin?
Þess vegna er hann kallaður Gátumaðurinn.
Get ég liðsinnt þér?
Af hverju eru þessar dyr læstar?
Hvað er fyrir innan þær?
Látnar eiginkonur herra Waynes.
Silfurskápurinn. Farðu nú.
Þið getið tekið þátt í þessu!
Með Nygma Tech njótið þið
þrívíddarsjónvarps heima!
Ég skal segja ykkur
frá sýn minni.
Kassi á hverju heimili í Bandaríkjunum
og síðan um allan heim!
Þrívíddarkassi Edwards Nygma
er nýjasta æðið í Gotham.
Uppþot urðu í rafeindabúðum
þar sem kassinn fëkkst ekki.
Nygma-kassinn er svo að segja
á hverju heimili.
Sagt er að menn verði sljóir af kassanum.
Edward Nygma tekur gagnrýninni lëtt.
"Þetta var sagt þegar
sjónvarpið var fundið upp. "
***!
Hér uppi.
Ég var bara að athuga það.
Öviðkomandi hër inni.
Ég er með dálítið handa þér.
Það er á borðinu.
Vonandi líkar þér það.
Köllum það faglegt innsæi.
Ég hélt að þú þyrftir að fá nýja drauma.
Foreldrar mínir voru myrtir
að mér aðsjáandi
þegar ég var lítill.
Ég man
fátt af því sem gerðist
en það birtist mér í draumum.
Í sjónhendingu.
Nú er komið nýtt atriði
sem ég hef ekki séð fyrr.
Það er rauð leðurbók.
Og annað.
Nú dreymir mig í vöku.
Þú ert að lýsa bældum minningum.
Ímyndir gleymds sársauka
reyna að koma fram.
Ég kem að vörmu spori.
SÁLFRÆÐILEGT MAT
LEÐURBLÖKUMAÐURINN
MEÐ KLOFINN PERSÖNULEIKA
Er eitthvað við lát foreldra þinna
sem þú hefur ekki tekist á við?
Þú varst svo ungur þegar það gerðist.
Ég ætti að leyfa ykkur að vera einum.
Þetta gengur lengra
en að þú farir með vinnuna heim.
Gott og vel.
Ég held að hann sé hrífandi.
Sem sjúklingur.
Af hverju gerir maðurinn þetta?
Það er eins og hann eigi að gera yfirbót.
Hvað hefur hann gert
til að verðskulda þessa næturkvöl?
Þetta er meira
en fagmannlegur áhugi, ekki satt, Chase?
Ertu afbrýðisamur?
Nei.
Ég get ekki verið afbrýðisamur
út í Leðurblökumann.
Ég vil nálgast þig en þú leyfir mér það ekki.
Gegn hverju verndarðu mig?
Viltu þekkja mig?
Viltu vita hver ég er?
Ég býst við
að við séum öll tvær manneskjur.
Við sýnum aðra en felum hina.
Heift,
ofbeldi,
ástríður.
Afsakaðu.
Ég er upptekinn.
Fyrirgefðu ónæðið.
Ég flyt óþægilegar frëttir af ***.
Er allt í lagi með hann?
Ég óttast að *** së lagstur í ferðalög.
Strauk hann að heiman?
Hann tók bílinn.
Stal hann Jagúarnum?
Ekki Jagúarnum.
Hinum bílnum.
Bentleynum?
Nei.
Hinum bílnum.
Viljið þið koma í ástarvélina mína,
elskurnar?
Þetta er Leðurblökumaðurinn!
Opnaðu.
Bíðið!
Þetta er ekki hann!
Hvað eigið þið við?
Þetta er Leðurblökudrengur!
Þetta er ekki hann!
Sleppið henni!
Hver í fjandanum ert þú?
Ég er Leðurblökumaðurinn.
Ég gleymdi bara búningnum.
Hlauptu nú!
Kyssir Leðurblökumaðurinn aldrei stúlkur?
Farðu!
Takk, þú bjargaðir lífi mínu!
Ég gæti vanist þessu ofurhetjugervi.
Leðurblökumaður!
Skepna!
Það hefði átt að vera þú!
Hefðirðu sagt Tvífésa til þín í sirkusinum
væru þau enn á lífi!
Ef Bruce hefði getað fórnað sér
fyrir þau hefði hann gert það.
Ég hugsa ekki um annað en að ná Tvífési.
Hann eyðilagði líf mitt.
Þarna úti í kvöld
ímyndaði ég mér að ég berðist við hann
jafnvel þegar ég barðist við þig.
Og sársaukinn hvarf.
Skilurðu það?
Já, ég skil.
Gott.
Þú verður að hjálpa mér að finna hann.
Og þegar það tekst
ætla ég að drepa hann.
Ertu tilbúinn til að drepa mann?
Já, ef það er Tvífés.
Þá gerist það þannig
að þú sérð um drápið.
Ef kvölin hverfur ekki
við drápið þá eykst hún.
Þú hverfur þá í myrkrið
og finnur annan mann
og annan
þar til þú áttar þig á
að allt líf þitt snýst um hefnd
en þú veist ekki vegna hvers.
Þú getur ekki skilið þetta.
Brjálæðingur drap ekki fjölskyldu þína.
Jú, það gerði hann.
Við lentum í sömu reynslu.
Hjálpaðu mér ef svo er.
Gerðu mig að félaga þínum.
Nei.
Ég get það ekki.
Þú átt um annað að velja.
Heyrðu, Bruce.
Ég er með í þessu hvað sem þér finnst.
Allt samkvæmisfólk Gotham
ætlar að vera viðstatt
þegar Edward Nygma
kynnir nýja kassann sinn.
Takk, Al.
Mín er ánægjan.
Það verður matast og dansað fram á nótt
á glæsilegu þaki Hótel Ritz.
Hvernig er að vera á
forsíðum allra tímarita?
Hvernig er að vera
eftirsóknarverðasti piparsveinninn?
Borgarbúar verða að fá að vita það!
Þarna er Bruce Wayne!
Brucie!
Eddie, hann er svo sætur!
Af hverju ert þú ekki jafnmyndarlegur?
Þegiðu. Þú komst til að vinna!
Hvernig er fæðingarbletturinn?
Fínn.
Ætlar Nygma Tech að leggja
Wayne-fyrirtækið undir sig?
Hlutabréf í Nygma seljast helmingi betur.
Ertu gömul lumma, Bruce?
Bruce, gamli vinur.
Menn spyrja hvernig sé að vera slegið við
á öllum sviðum, jafnvel hárgreiðslu.
Sæll, Edward. Til hamingju.
Fín veisla. Fín föt.
Hnyttinn. Gott.
Hver ert þú?
Chase.
Það hlýtur að vera gaman að elta þig.
Ég heiti Bruce Wayne, ungfrú...?
Þú mátt kalla mig hvað sem þú vilt.
Góðir gestir,
framtíðin!
Nýi kassinn býður upp á
víxlverkandi heilmyndir.
Edward, þú ert glæsilegur og snillingur.
Hvernig býrðu þessar myndir til?
Það er leyndarmálið mitt, elskan.
Algerlega víxlverkandi heilmyndir.
Burðarbylgju á hátíðni
er beint að heilanum.
Aðeins þá verða slíkar ímyndir til.
Þú vildir að þér hefði dottið það í hug.
Vertu ekki tapsár.
Komdu inn og reyndu þetta.
Ef þú getur komið ímyndum inn í hugann
því þá ekki að draga ímyndir úr huganum?
Þorirðu ekki að prófa tækið mitt?
Segðu það bara.
Eigum við að dansa?
Öþekkur.
Leitarðu einhvers?
Ég vildi bara vita hvernig
væri slökkt á þessu.
Snjallt.
Þakka þér fyrir.
Mín var ánægjan.
Gott kvöld, Wayne.
Slakaðu á.
Segðu mër
frá draumum þínum.
Segðu mër
frá órum þínum.
Segðu mër leyndarmál þín.
Segðu mër
frá innsta
og versta
ótta þínum.
Slakið á!
Þetta er bara gamaldags rán
án allrar tækni!
Við höfum áhuga á undirstöðuatriðunum:
Peningum, skartgripum og farsímum.
Afhendið þetta með hægð, þá sakar engan!
Nú er neyð, Alfred.
Já, herra.
Verið öll róleg!
Verið bara róleg!
Afsakaðu!
Þú eyðileggur samkvæmið mitt!
Ertu bilaður?
Við erum leiðir á að bíða eftir
að þú afhendir Blökuna.
Vertu þolinmóður, klofni maður.
Þolinmóður? Vér viljum að hann drepist!
Hann kemur helst fram
þegar morð eru framin og meiðingar!
Þú gast ráðgast við mig.
Við gátum skipulagt þetta
og selt kvikmyndaréttinn!
Hann kom inn
með enn meiri glæsibrag en þú.
Munurinn?
Skemmtanagildið!
Neyð, Alfred.
En, herra.
Ég gæti verið rekinn fyrir þetta.
Ég fer þá aftur í Buckinghamhöll.
Jæja, drengir! Annað stig!
Heima hjá mér á miðnætti.
HÆTTA
GAS
Ekkert er jafnslæmt og mikið gas!
Af hverju geturðu ekki bara dáið?
Hvað varstu að gera?
Veistu að þú kannt ekki að sýna þakklæti?
Mig vantar nafn.
Blökudrengur? Riddaravængur?
Hvað á góður aðstoðarmaður að heita?
"*** Grayson, háskólanemi."
Fjandinn hirði þig!
Ég bjargaði þér. Þú átt mér líf að launa.
Þú verður drepinn.
Ég er nýi félaginn þinn.
Nei!
Ég fylgist með þegar þú ferð
út á kvöldin og elti þig.
Hvernig ætlarðu að stöðva mig?
Ég get stöðvað þig.
Láttu þetta hanga
hjá leðurblökubúningnum
þar sem það á að vera.
Þú hvetur hann.
Það þarf að hvetja drengi
sem eru í hefndarhug.
Það þarf að leiðbeina þeim.
Þér ættu að vera ljósar afleiðingar
þess lífs sem þú valdir þér.
Jafnvel Chase segir það
bölvun að vera Leðurblökumaður.
Kannski er konan einmitt það sem þú þarft.
Hún virðist yndisleg og vel gefin.
Ég hef aldrei verið ástfanginn.
Farðu til hennar.
Segðu henni hug þinn.
Hún vill Leðurblökumanninn,
ekki Bruce Wayne.
Láttu hana ákveða það.
Fyrirgefðu.
Ég trúi þessu ekki.
Ég hef hugsað mér þetta
síðan ég sá þig fyrst.
Augu þín
og varir.
Líkama þinn.
Og nú hef ég þig
en þá óska ég að þú værir annar.
Maður þarf víst að verða
einhvern tíma stór.
Ég kynntist manni.
Það ert ekki þú.
Vonandi skilurðu það.
Ég skil það.
Jæja...
BLÖKUMAÐUR BJARGAST ÚR
SKEMMDUM LESTARGÖNGUM
Þetta hef ég alltaf sagt.
En þá kenndi ég voffa mínum nýja brellu.
Að kortleggja mannshugann.
Viltu sjá hvað Bruce Wayne
er með í kollinum?
NYGMATECH SKRÁ
WAYNE, BRUCE
Svaraðu þessu:
Hvernig maður er með leðurblökur
á heilanum?
-Segðu það bara.
-Þú ert snillingur.
Hættu nú.
Frá og með þessum degi
er Leðurblökumaðurinn ekki lengur til.
Þú getur ekki bara hætt.
Þarna eru ófreskjur.
Þú verður að vernda sakleysingja.
Ég hef alltaf hjálpað fólki
sem ég þekki ekki.
Fólki sem ég hef aldrei séð.
En,
sakleysingjarnir eru ekki
lengur andlitslausir.
Þú getur ekki sagt mér fyrir verkum
til æviloka.
Pabbi sagði mér að allir réðu sjálfir
örlögum sínum.
Mín örlög snúast um Tvífés.
Þú verður að hjálpa mér.
Og ef þú finnur Harvey
og drepur hann,
hvað þá?
Einmitt.
Þá verðurðu einn eins og ég.
Nei, þú verður að hætta þessu.
Hlustaðu á mig. Ég er vinur þinn.
Ég þarf ekki vin heldur starfsfélaga.
Tvífés verður að fá þetta borgað.
Gerðu það.
Chase kemur til kvöldverðar.
Ég ætla að segja henni
allt af létta.
Komdu upp. Tölum saman.
-Gott kvöld.
-Gott kvöld.
Gleðilega hrekkjavöku.
Takk, sömuleiðis.
Ég bað þig að koma
því ég þarf að segja þér svolítið.
Ég líka.
Það sem ég vildi...
Byrja þú.
Gjöf eða grikkur!
Alla ævi hef ég
laðast að vissri manngerð.
Rangri manngerð.
Og athugaðu við hvað ég starfa.
Og eftir...
Eftir að ég kynntist þér...
Guð minn.
Af hverju er ég svona óstyrk?
Borðið ekki yfir ykkur,
þið verðið veik af því.
Gleðilega hrekkjavöku!
Hvað er að?
Það er að gerast aftur.
Leiftrin.
Dauði foreldra minna.
Minningarnar reyna að komast
upp á yfirborðið.
Mig langar að segja þér svolítið.
Ég hef engum sagt það.
Þetta er í lagi.
Þetta er í lagi, ég er hér.
Ég er hër.
Kvöldið sem við vöktum
yfir foreldrum mínum
veittu orð prestsins mër enga huggun.
Auðvitað.
Á skrifborði föður míns
var rauða bókin.
Dagbókin hans.
Hann skrifaði í hana á hverjum degi.
En nú skrifar hann aldrei framar í hana.
Á þessari stundu vissi ëg
að líf mitt yrði aldrei sem fyrr.
Ég þaut út í óveðrið
og reyndi að hlaupa heiftina af mër.
Sársaukann.
Þá datt ëg.
Ég var heila eilífð í fallinu.
Hellirinn var geysistór.
Hann hlýtur að hafa verið
þarna í margar aldir.
Og þarna
langt inni í skugganum
sá ëg...
Hún stefndi á mig.
Í fyrstu var ëg hræddur en bara í fyrstu.
Veran í myrkrinu var örlagavaldur minn.
Hún breytti lífi mínu um alla ævi.
Ég vildi nota ímynd hennar
til að hræða þá sem fremdu illvirki.
Ég vildi tryggja að aðrir yrðu
ekki fyrir sömu raun og ëg.
Ég ætlaði að hefna mín.
Hvað ertu að reyna að segja mér?
Ég er...
Gjö eða gðikkuð!
Grikkur.
Manstu áætlunina?
Ná og handtaka.
Engin dráp.
Þetta á sérstaklega við um þig.
Ef ég væri ofurhetja
hvar feldi ég mig þá?
Flengdu mig.
Varað við boðflennu! Varað við boðflennu!
Varað við boðflennu! Varað við boðflennu!
Þegiðu!
Þetta er áhrifaríkt!
Það er áhættusamt að fara
með tamið dýr út í skóg.
Það á erfitt með að laga sig
að nýjum aðstæðum.
Lokaatriðið hefst
eftir fimm mínútur.
"Fjörnæging! "
Takið stúlkuna!
Dreptu hann ekki.
Ef þú drepur hann...
VIÐ ERUM FIMM LITLIR MUNIR
TIL HVERSDAGSNOTA.
Iærir hann ekkert.
Herra Bruce!
Hvernig líður þér, ungi maður?
Þú hefur ekki kallað mig þetta lengi.
Það er erfitt að venja sig
af gömlum venjum.
Er allt í lagi?
Hvar er Chase?
Ég er hræddur um að þeir hafi náð henni.
*** hinn ungi er strokinn.
Hellirinn er ónýtur.
Og það er önnur gáta.
Nú kem ég, elskan.
Ertu hrifin af jakkanum?
Mér er óhætt í honum
þegar ég skokka á kvöldin.
Leðurblökumaðurinn sækir mig.
Leðurblökumaðurinn?
Nefndirðu hann?
Sækir hann þig?
Ég
reiði mig á það.
Hvað er þetta? Hvaðan kemur það?
Þarna!
Hver gerir þetta?
Gátumaðurinn!
"Við erum fimm litlir munir
til hversdagsnota.
"Við erum á tennisvelli."
Í...
A-E-I-O-U.
Sérhljóðar.
Þetta er óvitlaust.
Hvað eiga klukka, eldspýtur, peð
og sérhljóðar sameiginlegt?
Hvað tákna gáturnar?
Þær komu í þessari röð:
13, 1, 8
og 5.
13, 1, 8, og 5.
Hvað merkir það?
Stafir í stafrófinu?
Auðvitað. 13 er M.
1 er A, 8 er H og 5 er E.
M-A-H-E.
Kannski eiga 1 og 8 að vera 18.
18 er R.
M-R-E.
Hvað um
"Mister E"?
-Mystería?
-Hvaða annað orð er um það?
Enigma.
E. Nygma.
Edward Nygma.
Sjálfsvíg Stickleys
er augljóslega tölvufölsun.
Þú ert greinilega skarpur
þótt annað sé sagt.
Eru allir búningarnir ónýtir?
Já, nema frumgerðin með sónarnum
sem hefur ekki verið prófuð.
Tilvalið að gera það í kvöld.
Á ég að fara sjóleiðina
eða í lofti?
Því ekki hvort tveggja?
Hvaða klæðskera hefurðu?
Ég var svo frakkur.
"R"?
Hvað táknar það?
Robin.
Gátumaður og Tvífés eru banvænir saman.
Þér veitir ekki af aðstoð.
Það verður jafnara
ef tveir eru gegn tveimur.
Ég lofa ekki að ég drepi ekki Harvey.
"Maður verður að gera það sem hann þarf."
Vinur minn kenndi mér þetta.
Ekki bara vinur.
Starfsfélagi.
Hann kemur ekki.
Slökktu á þessu.
Andartak!
Farðu!
A-14.
Í mark!
Fínt!
B-12.
Í mark!
Eftirlætisvítamínið mitt.
Þessi sökkvunartilfinning.
Skemmtilegur leikur.
C-9.
FLEYGJA ÚT
Þú sökktir orrustuskipinu mínu!
Ha, ég?
Þetta er flugstjórinn.
Farið í sætin ykkar. Örói er í lofti.
Ég hæfði hann!
Vonandi finnst svarti kassinn.
Nú hefst
fjörið fyrir alvöru.
Ryðgaður málmur, Leðurblökumaður!
Jörðin er öll úr málmi.
Allt er fullt af holum: Holótt.
Bíddu!
Öll eyjan er á hreyfingu!
Leitarðu að oss?
Vegna móður minnar!
Vegna föður míns!
Bróður míns!
Og þetta er frá mér!
Loksins er réttvísinni fullnægt!
Vér skulum deyja!
Þú ert maður að voru skapi, drengur!
Sjáumst í neðra!
Ég vil heldur sjá þig í fangelsi!
Góður drengur.
Blaki hefur kennt þér vel.
Göfugmennska.
Heimskulegt
en göfugmannlegt.
Svaraðu þessu.
Svaraðu nú.
Hver er hræddur við stóru, svörtu blökuna?
Ekki fleiri brellur, Edward.
Allt í lagi.
Verum nú hreinskilnir.
Láttu Chase lausa.
Þetta er á milli þín og mín.
Og mín
og mín!
Þú hefur náð heilabylgjum
og getur lesið hugsanir.
Svo sannarlega!
Bráðum verður kassinn á mörgum
sjónvarpstækjum í heiminum
og útvegar mér greiðslukortanúmer,
leyninúmer í bönkum,
kynóra
og saklausar lygar.
Allt fer í höfuðið á mér.
Sigur er óhjákvæmilegur.
Ef þekking er vald
þá er
ég
guð!
Var þetta ofleikið? Ég veit það aldrei.
Ég hef séð hug þinn. Fyrirbæri!
Hugur þinn er stærsta ráðgátan!
Geta Bruce Wayne og
Leðurblökumaðurinn lifað saman?
Við komumst að því í dag!
En kynnumst fyrst keppendunum.
Bak við tjald
númer eitt,
hin dýrlega Chase Meridian!
Hún dáir ferðalög, handsnyrtingu
og vonar í kjánaskap sínum
að hún sé ástin í lífi Bruce.
Númer 2,
eini starfsfélagi "Kökumannsins".
Loftfimleikamaður sem nú er munaðarlaus.
Horfir á teiknimyndir á
laugardagsmorgnum og dreymir
að vera berlæraður með stelpu.
Fyrir neðan keppendur
er það sem ég hef mætur á:
Vot gröf.
Bara smásnerting
og fimm sekúndum síðar verða keppendur
að sjófuglafæðu niðri í klettunum.
Ekki er hægt að bjarga þeim báðum.
Hvort þeirra verður það,
ástkona Bruce
eða aðstoðarmaður Svarta riddarans?
Ég get hvorki bjargað þeim né sjálfum mér.
Þetta er ein stór dauðagildra.
Dómarar?
Því miður verðurðu
að svara með spurningu.
En þakka þér fyrir þátttökuna.
Bíddu!
Ég er með gátu.
Handa mér?
Virkilega?
Út með hana.
Ég sé án þess að sjá.
Fyrir mér er myrkrið eins
bjart og dagsljósið.
Hvað er ég?
Góði!
Þú ert jafnblindur og leðurblaka!
Einmitt.
Ferlegt!
Þakka þér fyrir.
Þessar hetjudáðir voru til einskis.
Ekki fleiri gátur eða tjöld númer eitt og tvö.
Bara venjuleg leiktjöld!
Gleymirðu ekki svolitlu?
Peningnum þínum.
Þú ert alltaf á báðum áttum.
Það er auðvitað rétt hjá þér.
Tilfinningar og réttlætið eru alltaf óvinir.
Þú ert góður vinur.
Af hverju?
Af hverju get ég ekki
drepið þig?
Of margar spurningar.
Of margar spurningar.
Veslings Edward.
Ég varð að bjarga þeim báðum.
Sjáðu til. Ég er bæði Bruce
Wayne og Leðurblökumaðurinn.
Ekki af því að ég þarf að vera það.
Heldur
af því að ég kýs að vera það.
GEÐVEIKRAHÆLI
Þakka þér fyrir að koma svona til ráðgjafar.
Edward Nygma
hefur hrópað stundum saman að hann viti
hver Leðurblökumaðurinn er.
Edward?
Hver
er þar?
Meridian læknir. Chase.
Manstu eftir mér?
Hvernig gæti ég gleymt þér?
Burton læknir segir
að þú vitir hver Leðurblökumaðurinn er.
Ég segi þér það ekki nema þú segir:
Vertu svo góður.
Vertu svo góður.
Hver er Leðurblökumaðurinn?
Ég er
hann.
Leyndarmáli þínu er óhætt.
Hann er greinilega snarklikkaður.
"Snarklikkaður"?
Er það fræðilegt orð?
Heyrðu.
Ég þarf ekki lengur á þessu að halda.
Þakka þér fyrir að hafa
gefið mér nýjan draum.
Vertu ekki of lengi í vinnunni í kvöld.