Tip:
Highlight text to annotate it
X
Það er merk
og alþekkt staðreynd
að hlutirnir eru ekki alltaf
eins og þeir virðast vera.
Til dæmis, á plánetunni Jörð
hélt maðurinn alltaf
að hann væri gáfaðasta veran
sem byggi á plánetunni
en ekki sú þriðja gáfaðasta.
Næstgáfaðastir voru að sjálfsögðu
höfrungar sem, merkilegt nokk,
höfðu lengi vitað
af yfirvofandi tortímingu Jarðar.
Þeir reyndu að vara
mannkynið við hættunni
en flest tjáskipti þeirra
voru misskilin
sem tilraunir til að sparka bolta
eða flauta fyrir matarbita.
Þeir ákváðu að lokum að yfirgefa
Jörðina eftir eigin leiðum.
Síðustu boð höfrungs
voru mistúlkuð
sem glæsileg tilraun
við bakstökk
í gegnum gjörð um leið
og hann flautaði þjóðsönginn.
En í raun voru
skilaboðin þessi:
"Far vel, og takk fyrir
allan fiskinn. "
HANDBÓK PUTTAFERÐALANGSINS
UM HIMINGEIMINN
Far vel og takk
fyrir fiskinn,
leitt að allt fór
beint í vaskinn,
við reyndum að vara ykkur öll við.
Lægri greindarvísitala
útskýrir vanvirðinguna
fyrir náttúruundrunum
allt í kring.
Far vel, far vel
og takk fyrir fiskinn.
Heimi ykkar verður senn eytt,
pirringur fær því ekki breytt,
slappið af og sjáið
plánetuna leysast upp.
Þrátt fyrir net veiðiflotans
flest geymið góðan innri mann,
ekki síst smábörn
og þungaðar konur.
Far vel, far vel,
far vel, far vel, far vel.
Far vel, far vel
og takk fyrir fiskinn.
Ef ég ætti óskadisk
ég kysi gómsætan fisk.
Ef við gætum einu breytt
við vildum læra að syngja feitt.
Verum öll hýr,
menn og spendýr,
hlið við hlið
í lífsins genalaug.
Far vel, far vel,
far vel, far vel, far vel.
Far vel, far vel
og takk fyrir fiskinn.
Hin einstaka saga Handbókar
puttaferðalangsins um himingeiminn
hefst á mjög einfaldan hátt.
Hún hefst með manni.
Nánar tiltekið Jarðarbúa
sem veit ekki frekar örlög sín
en telauf þekkir sögu
Austur-Indíafélagsins.
Hann heitir Arthur Dent.
Hann er 1,73 metra hár
afkomandi apa
og einhver er að reyna að leggja
tengibraut í gegnum húsið hans.
Hvað vil ég gera?
Finndu hann og segðu honum að ég
liggi núna á bakinu fyrir framan...
Já, ég skal bíða.
Hr. Dent, þú getur ekki legið
endalaust fyrir jarðýtunum.
Látum reyna á það.
Athugum hver ryðgar fyrst.
Tengibrautina þarf að byggja
og hún verður byggð.
Því þarf að byggja hana?
-Þetta er tengibraut.
Það verður að byggja tengibrautir.
Þú áttir að mótmæla fyrir löngu.
Áætlanirnar voru til sýnis
hjá skipulagsstofnun í eitt ár.
Til sýnis? Ég þurfti
að fara niður í kjallara.
Veistu hvað skaðinn
á jarðýtunni verður mikill
ef ég læt hana bara
rúlla yfir þig?
Hve mikill?
-Alls enginn.
Fyrir undarlega tilviljun
var "alls enginn"
nákvæmlega sá grunur sem
apaafkomandinn Arthur Dent hafði
um að einn nánasti
vinur hans
væri ekki afkomandi apa heldur
væri í raun frá lítilli plánetu
í grennd við Betalgás.
Arthur!
Ford.
-Já?
Hérna.
Þarna ertu.
Komdu. Borðaðu og drekktu.
Við þurfum að tala saman.
Þú hittir illa á. Þeir ætla
að eyðileggja heimilið mitt.
Veistu það nú þegar?
Hvernig?
Hvað þá?
Þeir! Þegar þú segir þeir
áttu við þá.
Ég þarf að segja þér
dálítið mikilvægt. Strax.
Hvað um húsið mitt?
Verkamenn Jarðar, ég færi ykkur
góðar fregnir af hnetum og bjór.
Ágætt.
Förum á krána.
Þeir bíða þar til þeir
eru búnir með bjórinn.
Getum við treyst þeim?
-Fram að endalokum Jarðar.
Og hvað er langt í þau?
-Um tólf mínútur.
Barþjónn, sex kollur af bjór.
Fljótur, heimurinn ferst senn.
Sex kollur á leiðinni.
Eigðu afganginn, þú hefur
10 mínútur til að eyða honum.
Þrjár kollur hvor?
Á hádegisverðartíma?
Afsakaðu.
Tíminn er skynvilla
og hádegisverðartíminn
enn frekar.
Borðaðu hneturnar.
Þú þarft saltið.
Hvað er á seyði, Ford?
-Arthur,
hvað ef ég segði þér að ég
væri ekki frá Guildford
heldur lítilli plánetu
í grennd við Betalgás?
Ertu líklegur til að segja það?
-Manstu þegar við kynntumst?
Farðu frá.
Sæll.
Var ekki undarlegt að ég reyndi
að taka í höndina á bíl?
Ég hélt þú værir fullur.
Ég hélt að bílarnir væru ráðandi
lífsformið. Ég var að kynna mig.
Þú bjargaðir lífi mínu þá, núna
bjarga ég þínu. Drykkurinn þinn.
Hlýtur að vera fimmtudagur.
Ég hef aldrei vanist þeim.
Ef þetta varðar húsið þitt...
-Nei.
Hver er hann?
-Hún.
Tricia McMillan.
Við hittumst í grímupartíi.
Óþolandi uppákomur.
Ég hefði frekar viljað vera
heima að strauja vasaklúta.
En þarna var ég...
-Hver ert þú?
Og þarna var hún.
Dent. Arthur Dent. -Nei,
ég meina, hver ert þú?
Búningurinn?
"Livingstone, vænti ég!"
Ekki eins sniðugt og Darwin en það
skásta sem ég gat gert fyrirvaralítið.
Þú ert fyrsta manneskjan
til að hitta á það.
Virkilega?
-Já, allir kalla mig Sveinka.
Einmitt. -Ég hélt að veiði-
hundurinn gerði það augljóst.
Ég líka.
Gestirnir í svona partíum
eru blindfullir bjánar.
Hvað?
Allir hérna eru bjánar!
Almáttugur.
Vandræðalegt.
Segðu.
En hún var stórkostleg,
Ford.
Falleg. Hnyttin.
Snargeggjuð.
Án skeggsins virðistu vera
minnst 80 árum yngri.
Kannski er ég
að vanþróast.
Ég ætti að segja þér að ég stunda
ekki stefnumót með einfrumungum.
Förum eitthvað.
Já. Endilega.
Hvaða stað hefurðu í huga?
Madagaskar. -Er það nýi
klúbburinn á Dean-stræti?
Nei, það er land
undan strönd Afríku.
Það Madagaskar.
Eftir hverju bíðum við?
Andartak.
Af stað!
Hamingjan góða, þér er alvara.
Ég get ekki farið til Madagaskar.
Af hverju ekki?
-Af því ég bara, þú veist...
Er þér alvara?
-Já.
Mig langar að fara á nýjan stað
og mig langar að fara með þér.
Hvað segirðu um það,
dr. Livingstone?
Ég segi að það
sé einstakt tilboð.
Ég get ekki farið.
Ég er í vinnu.
Hættu. Fáðu þér nýja
þegar þú kemur aftur.
Ég veit ekki einu sinni
þitt rétta nafn.
Tricia McMillan.
-Jæja, Tricia McMillan,
ég ætla að gera þér tilboð.
Því förum við ekki fyrst á stað
sem er nær, til dæmis Cornwall,
og sjáum til
hvernig gengur?
Einmitt. Auðvitað.
Cornwall.
Afsakaðu.
Er þessi gaur leiðinlegur?
Talaðu frekar við mig.
Ég er frá annarri plánetu.
Alveg satt. Langar þig
að sjá geimskipið mitt?
Langar þig að sjá geimskipið mitt?
Hvers konar veiðilína er það?
Slíkt hendir.
Vel á minnst...
Við höfum tvær mínútur.
Drekktu í botn.
Húsið mitt.
Jarðarbúar,
ég býð einn umgang.
Heldurðu virkilega
að heimurinn sé að farast?
Já.
Ættum við ekki að leggjast niður
eða setja bréfpoka yfir höfuðið?
Ef þið viljið.
-Hjálpar það?
Ekki vitund.
Sjáumst.
Síðustu pantanir.
Hvað er þetta?
-Hlaupið!
Gætið ykkar!
HÖFRUNGAR HVERFA
Handklæði.
Arthur!
Hvað í fjandanum
eru þessir hlutir?
Skip úr byggingaflota Vógona.
Ég nam merkin þeirra
í morgun. Þú þarft þetta.
Hvað ertu að gera?
-Við húkkum far.
Jarðarbúar, þetta er
Prostetnik Vógon Jeltz
frá Skipulagsráði
vetrarbrautarinnar.
Eins og þið eflaust vitið
fela áætlanir um þróun
ytri svæða vetrarbrautarinnar
í sér byggingu geimhraðbrautar
í gegnum sólkerfið ykkar
og plánetan ykkar er ein af þeim
sem þarf að rífa.
Það þýðir ekkert
að þykjast vera hissa.
Áætlanirnar hafa verið til sýnis
á skipulagsskrifstofu ykkar
á Alpha Centauri í 50 Jarðár.
Það er ykkar vandamál ef þið sýnið
ekki hverfaskipulagsmálunum áhuga.
Sinnulaus,
vesæl pláneta.
Ég hef enga samúð.
Hefjið niðurrif.
HANDBÓK PUTTAFERÐALANGSINS
UM HIMINGEIMINN
Handbók puttaferðalangsins
um himingeiminn
er afskaplega merkileg bók.
Hún er merkasta
og vinsælasta bók
sem gefin hefur verið út af stóru
útgáfufyrirtækjunum í Litla birni.
Vinsælli en ritverkið
Himneskt heimilishald,
söluhærri en 53 aðrir hlutir
til að gera í þyngdarleysi
og umdeildari en metsölubækur
Oolons Colluphid
í heimspekiritröðinni:
Mistök Guðs,
Meira um stærstu mistök Guðs
og Hver er hann annars
þessi Guð?
Hún hefur tekið við af
Alfræðiorðabók Alheimsins
sem helsti geymslustaður
allrar þekkingar og visku
af tveimur
mikilvægum ástæðum:
Í fyrsta lagi
er hún aðeins ódýrari
og í öðru lagi eru orðin
"Ekki óttast"
prentuð með stóru, vinalegu letri
framan á kápuna.
EKKI
ÓTTAST
Svo þú ert ekki
frá Guildford?
Það útskýrir hreiminn sem ég
hef alltaf velt vöngum yfir.
Og þú ert ekki
atvinnulaus leikari
heldur penni fyrir þetta...
þetta bókarfyrirbæri.
Góð, ha?
Mér líður illa.
Ég þarf tebolla.
Sé ég eftir því ef ég spyr
hvar við erum?
Við erum óhultir í bili.
-Gott.
Við erum á salerninu í einu skipanna
í byggingarflota Vógona.
Komdu mér heim, Ford.
-Arthur, heimilið þitt...
Guð minn góður, heimilið mitt.
Heimilið mitt var rifið.
Manstu ekki?
Ég þarf að segja þér dálítið.
Það er óheppilegt en satt.
Heimaplánetan þín
var sprengd í loft upp.
Sprengd í loft upp.
Gastu ekki gert eitthvað?
Ég bjargaði lífi þínu.
Þá erum við kvittir.
Þetta er hörð vetrarbraut.
Ef þú vilt komast af hérna úti
þarftu að vita
hvar handklæðið þitt er.
Hjálpaðu mér.
Varlega. Þetta er heitt.
Við verðum að komast frá borði
áður en Vógonarnir finna okkur.
Vógonar hata puttaferðalanga.
Togaðu.
Núna fáum við merki.
-Hvað er Vógoni?
Spyrðu Handbókina.
Segðu Vógonar.
Vógonar.
Vógonar eru einn ógeðfelldasti
kynþáttur vetrarbrautarinnar.
Ekki vondir, en skapillir, afskipta-
samir, harðbrjósta skriffinnar.
Þeir myndu ekki einu sinni
bjarga ömmu sinni
frá gráðugu Böggblöðru-
skepnunni frá Traal
án tilskipunar í þríriti,
áframsendrar, aftursendrar
fyrirspurðrar, týndrar,
fundinnar, rannsakaðrar,
týndrar aftur,
grafinnar í mó í þrjá mánuði,
og endunninar í eldivið.
Aldrei leyfa Vógona
að lesa fyrir þig ljóð.
Þeir geta ekki hugsað, ímyndað sér
eða stafað. Þeir bara stjórna.
Ef við fáum ekki
far fljótlega
komumst við að því hve ógeðfelldir
Vógonar geta verið.
Þeir hafa þegar
eytt plánetu í dag.
Það gerir þá alltaf dálítið...
Hvað er þetta?
-Settu hann í eyrað.
Við höfum óafvitandi tekið
um borð tvo puttaferðalanga...
Fiskurinn þýðir fyrir þig.
Babelfiskurinn er lítill,
gulur, iglulaga
og líklega furðulegasta
fyrirbærið í alheiminum.
Hann nærist á heilabylgjum,
meðtekur ómeðvitaðar tíðnir
og skilar út meðvituðum tíðnum
til málstöðva heilans
með þeim afleiðingum að ef maður
stingur einum slí*** í eyrað á sér
skilur maður strax allt sem sagt er
við mann á hvaða tungu sem er.
Mótþrói er tilgangslaus.
Einhver er að koma.
Áfram nú.
Verið röskir.
Herra.
Hvað?
-Puttaferðalangar.
"Ó, freðni rymböggull..."
Í alvöru,
þú þarft ekki að lesa.
Við höfum valdið þér
of miklu ómaki.
"...eins og perluð blaðurklessa
á ægiþrotinni býflugu."
Kveðskapur Vógona er talinn vera
sá þriðji versti í alheiminum.
Næstverstur er kveðskapur
Asgotanna á Kría.
Við flutning hirðskáldsins
Rymríks Fretgjarna
á eigin ljóði,
Óður til grænnar klessu
sem ég fann í handarkrikanum
einn miðsumarmorgun,
létust fjórir áheyrenda hans
af völdum innvortis blæðinga
og forseti Listaruglráðs
Mið-Vetrarbrautarinnar
hélt lífi með því að naga
af sér annan fótinn.
"...eða ég mun rífa
af þér gubbvörturnar
með blurglinu..."
Verstu ljóðin voru eftir Paulu
Millstone Jennings frá Sussex.
Sem betur fer tortímdist þau
um leið og Jörðin.
"Sannið til."
Jæja, Jarðlingar,
ég leyfi ykkur að velja.
Deyið í tómarúmi geimsins
eða segið mér hvernig ykkur
þótti kvæðið mitt.
Reyndar var ég
frekar hrifinn af því.
Gott hjá þér.
Kýldu á það.
Ég skildi ekki
sum orðin
en mér fannst myndmálið
mjög áhrifaríkt.
Haltu áfram.
Ja, áhugaverð hrynjandi
sem myndaði mótvægi við...
undirliggjandi myndlíkingar
hins mennska...
Vógonska!
-Fyrirgefðu. Hins vógonska
í sál skáldsins.
Þannig að þú ert að segja
að ég semji ljóð
af því
að undir þessu grimma, kalda,
miskunnarlausa yfirborði
þrái ég bara
að vera elskaður?
Já.
Já.
Einmitt.
Varpið þeim frá borði!
Nei.
-Ford.
Allt í lagi.
Mótþrói er tilgangslaus.
Þegiðu! Finndu þér vinnu!
Þvoðu skítugar lúkurnar!
Ekki óttast.
Eru þetta endalokin?
Munum við deyja?
Já, við munum deyja.
Nei. Hvað er þetta?
Hvað er þetta?
Hvað er þetta? Þetta er ekkert.
Já, við munum deyja.
Þú ert sveittur.
Viltu knús?
-Nei.
"Geimurinn, " segir í formála
Handbókar puttaferðalangsins,
"er stór.
Mjög stór.
Þú trúir ekki hve rosalega,
yfirgengilega stór hann er... "
og svo framvegis.
Þar segir líka að ef þú hafir
lungnafylli af lofti
getirðu lifað af í tómarúmi
geimsins í u.þ.b. 30 sekúndur.
En vegna stærðar geimsins
eru líkurnar á að fá far
innan þess tíma
tveir í öðru milljarðasta
79 milljónasta
460 þúsundasta
347. veldi
á móti einum.
Sem fyrir einskæra tilviljun
er líka símanúmerið
í íbúðinni í Islington
þar sem Arthur fór
í grímupartí
og hitti úrvalsdömu
en klúðraði því.
Þótt plánetunni Jörð,
íbúðinni í Islington og símanum
hafi öllum verið eytt var Ford
og Arthur engu að síður bjargað.
Ford?
-Já.
Ég held að ég sé sófi.
-Ég veit hvernig þér líður.
EÐLILEIKI ENDURHEIMTUR
Þar fuku eðlisfræðilögmálin.
Enn og aftur, aðalfréttin:
Hinn æsilegi þjófnaður
á eftirsóttasta skipi
alheimsins,
geimskipinu Gullhjartanu,
sem var stolið við vígslu-
athöfnina af engum öðrum
en forseta vetrarbrautarinnar,
Zaphod Beeblebrox.
Í nafni alþýðunnar, frelsis,
lýðræðis og þess háttar
ræni ég hér með sjálfum mér
og tek skipið með mér.
Áfram nú!
Beeblebrox, sem er
almennt talinn vera
dimmasta stjarnan
í allmörgum sólkerfum,
er frægastur fyrir
sigur sinn á Humma Kavula,
sem segir að margir
hafi talið sig vera
að kjósa í keppninni
Verst klædda
vitsmunavera alheimsins.
Frábært.
Kavula er þekktastur fyrir
rógsherferð sína:
"Ekki kjósa aulann!"
Hættu að hugsa um sjálfsálitið.
Dálítið mikilvægt gerðist.
Ef eitthvað mikilvægara en sjálfsálit
mitt er um borð á að skjóta það.
Ég er stórhrifinn.
Tja, Zaphod er bara
náungi, skilurðu?
Hvað ertu að...?
Ég var að horfa á mig. -Við erum
með tvo puttaferðalanga um borð.
Af hverju tókstu
puttaferðalanga um borð?
Ég gerði það ekki.
Skipið gerði það.
Ha?
Hvað þá?
Þegar við ræstum Ólíkindadrifið.
Stóri takkinn.
Ég veit. -Þeir voru
teknir um borð hér,
í geira ZZ-9 Fjöl-Z Alfa.
Þar náðir þú í mig.
Á Jörðinni.
-Það er ómögulegt.
Nei, bara mjög ólíklegt.
-Ég hef ekki tíma fyrir þetta.
Löggan eltir okkur og við stoppum
til að taka upp puttaferðalanga?
Tíu af tíu mögulegum
fyrir stíl
en mínus nokkrar milljónir
fyrir dómgreind.
Þú ert of æðisleg, ljúfan.
Hættu, þú gerir mig óðan.
Ekki.
Ég sendi Marvin.
Marvin?
Bara svo þú vitir það
þá er ég mjög niðurdreginn.
Við erum með verkefni fyrir þig
til að dreifa huganum.
Það tekst ekki. Ég er með
óvenju stóran huga.
Já, við vitum það, en þú þarft
að fara niður í aðgangskví 2
til að sækja tvo laumufarþega
og færa þá hingað.
Bara það? Ég mun
ekki hafa gaman af því.
Ja, jæja...
svona er lífið.
Lífið. Ekki tala
við mig um lífið.
Kwaltz flotaforingi.
-Já.
Við höfum fundið Gullhjartað
og Beeblebrox forseta.
Hvar?
-Í geira ZZ-9 Fjöl-Z Alfa.
Bið um ofurgeimsleyfi.
Bíddu þar sem þú ert, höfuðs-
maður, þar til leyfi er veitt.
Já, herra. -Gefðu mér samband
við Questular varaforseta.
Ofurgeimsleyfi veitt,
höfuðsmaður.
Þá byrjar það.
Dyrnar andvörpuðu.
Hræðilegt,
finnst þér ekki?
Allar dyrnar í geimskipinu
eru forritaðar
til að hafa
glaðlegt lundarfar.
Komið nú. Mér var skipað
að fara með ykkur upp í brú.
Hafið ykkar hentisemi.
Hér er ég,
heili á stærð við plánetu,
og þau biðja mig
að fylgja ykkur upp í brú.
Kallið þið það ánægju í starfi?
Ekki geri ég það.
Þakkið Stýrifræðifirmanu á Síríus
fyrir að smíða vélmenni með ÓMS.
Hvað er ÓMS?
-Ósvikin Mannleg Skapgerð.
Ég er skapgerðarfrumgerð.
Það sést, er það ekki?
Arthur?
Mjóna, ertu í nærfötunum mínum?
Því ég er í þínum
og þau henta alls ekki.
Í hamingjunnar bænum.
Ég kom með geimverurnar.
Ekki þakka mér eða neitt.
Frjósið!
Frjósið? Ég er vélmenni,
ekki ísskápur.
Ekki þú, glotti.
-Af hverju stend ég í þessu?
Zaphod?
-Ford?
Ert þetta þú?
Ford! Praxibetel Ix!
Hvað í fjáranum
ert þú að gera hér?
Ég rétti upp þumalinn
og hér er ég kominn.
En hvað það er líkt þér.
-Og sjá þig.
Vetrarbrautarforseti. Ég trúi ekki
að þú hafir sigrað Humma Kavula.
Zarkakollurinn þinn.
Ég vil kynna þig fyrir vini mínum.
Arthur, þetta er Zaphod Beeblebrox.
Vetrarbrautarforseti og frændi minn.
Hann er hálf-hálfbróðir minn.
Hann á þrjár af sömu mæðrum
og ég. -Við höfum hist.
Er það? Fyrirgefðu, ég er
hræðilega gleyminn á tegundir.
Hann er langar þig að sjá
geimskipið mitt gaurinn.
Sæll, Arthur.
-Tricia.
Hvernig hefurðu það?
-Trillian.
Þetta er hálf-hálfbróðir minn, Ix.
Fyrirgefðu, Ford.
Hæ.
-Hæ.
Viltu hafa okkur afsökuð
í smástund?
Fórstu niður á þessa litlu
plánetu án þess að hringja í mig?
Ég vissi ekki af þér.
Ég þurfti að stjórna vetrarbraut.
Sæl, Tricia McMillan.
Hann kallaði þig Trillian.
Hvort er réttara?
Ég stytti það í eitthvað
aðeins geimlegra.
Einmitt. Ég var að hugsa
um að breyta mínu í,
ég veit ekki, Arthoolia.
Flott nafn.
Þetta er skrítið.
Hvernig komstu hingað?
-Ég rétti bara upp þumalinn.
Einmitt. Í náttfötunum þínum?
-Ég var að flýta mér.
Vissirðu að ég var hér?
Ekki ofmetnast.
Ég á líka geimgaur.
Eins konar dingóspor.
Ég yfirgaf þig
í partíinu
en ég ætlaði að hringja í þig
þegar ég kæmi til baka.
Það verður ekki aftur snúið
úr þessu.
Þú veist hvað gerðist,
er það ekki?
Nóg mas, Trill.
Við erum á flótta.
Við erum að spjalla saman.
Ég held að stelpan sé...
Bö!
Þú klúðraðir tækifærinu, svo þegiðu
eða ég dúndra í sekkinn á þér.
Viltu slást?
-Já.
Nei.
-Ég er að spauga.
Ég er spaugari.
Verum vinir.
Myndum tengsl.
Þú áttir ekki von á þessu!
Skaust beint úr kassanum!
Refurinn þinn!
Kennir vini þínum lexíu, Ford.
Hann er gestur í skipinu mínu!
Þú sagðist hafa stolið því.
Stolið hverju?
Um hvað erum við að tala?
Þetta hljómar ekki vel.
Er allt í lagi með þig?
-Ég hef það stórfínt. Takk, Trill.
Væna, ég þarf aðstoð.
Ég held að þetta sé mér ofviða.
Ég sé um þetta. Zarquon minn góður,
þarf ég að gera allt sjálfur?
Já.
Mjóna, þessi er sætur.
Ekki!
-Þeir eru á hælum okkar!
Skjóttu flugskeyti!
Grandaðu þeim!
Hættu þessu.
Bara að grínast. Ég kann
að meta hörku. Sláðu mig!
Tölva?
-Sæl!
Ég er Eddie skipstölva.
Það kætir mig að þetta
er floti vógonskra tundurspilla.
Þeir senda skilaboð.
Þetta er Questular Rontok
varaforseti.
Ég ávarpa ræningja forsetans.
Hún fílar mig.
Afhentu stolna skipið strax
eða við grípum til aðgerða
í samræmi við
kafla 1-8 í Alheimsaukalögum
um geimferðir.
Zaphod, gerðu það komdu aftur.
Þetta er fáránlegt.
Stökktu út í ofurgeim!
Áfram nú!
Alveg sjálfsagt, væni.
Nei.
Eru þeir með viðeigandi
ofurgeimsheimild?
Nei, flotaforingi.
Færðu mér eyðublaðið
Beiðni um að elta flóttamann.
Kemur strax, herra!
Ég er að stikna.
Hér er eyðublaðið, herra.
Kemurðu með eða á ég
að skutla þér eitthvað?
Það veltur á ýmsu.
Hvert ertu að fara?
Hvert er ég að fara?
Er allt í lagi með þig?
-Já. Er nokkuð til te hér?
Jú, reyndar. Komdu.
Ég skal sýna þér eldhúsið.
Eftir að þú sérð þetta grátbiðurðu
mig um að taka þig með.
Besti drykkur í tilverunni
er Vetrarbrautarkverkahreinsirinn
en áhrif hans eru eins og að vera
barinn í heilann með sítrónusneið
sem er vafin utan um
stóra gullstöng.
Belgía. Bíddu aðeins.
-Belgía.
Apamaður. Jarðargaur.
Hvað heitirðu?
Arthur.
-Einmitt, ljúfur.
Ekki erfa þetta. Mér þykir leitt
með plánetuna þína...
Jörð. -Já.
Ég kunni vel við Jörð.
Ég keypti þessi stígvél þar.
En ekki segja stúlkunni það,
annars dreg ég miltað á þér
út í gegnum hálsinn.
Allt í lagi. Takk, félagi.
-Allt í lagi.
Vel gert.
Flott náttföt.
Zaphod, af hverju
ertu með tvö höfuð?
Æ, já. Maður getur ekki
verið forseti með heilan heila.
Algjör geggjun.
Svo þú skiptir honum?
-Já.
Sumir hlutar persónuleika míns
voru ekki beinlínis forsetalegir.
Þú veist hvað ég á við.
Teið þitt er tilbúið.
Ég hefði átt að segja
að það líktist tei.
Svo tvö höfuð
ganga í augun á stúlku?
Þannig að ef ég hefði
tvö höfuð eða þrjú...
Eða þitt eigið geimskip.
Eitthvað annað sem hann
er með tvennt af?
Arthur, ekki vera svona.
Hvernig á ég að vera?
Grænn? Pípandi?
Ég get brett augnlokin á mér.
Sjáðu.
Sérðu þetta?
Þetta nemur hvað þú þráir
og býr það til fyrir þig.
Njóttu kleinuhringsins.
Sérðu þennan?
Þessi ristar brauð
um leið og maður sker það.
Við erum í geimskipi,
Arthur! Úti í geimnum.
Ég sagði að ég vildi
komast burt. -Til Madagaskar.
Það var
einhvers konar próf.
Og ég féll.
Hve sárt er þetta?
-Ekkert óskaplega gott.
Ég átti við hökuna.
Ég á kannski verkjatöflu.
Einmitt.
Tricia... Trillian.
Ég þarf að segja þér dálítið.
Ekki.
-Stóra stundin, Trill!
Ég stilli þetta.
Takkar eru ekki leikföng.
Takkar eru ekki leikföng.
Hvað um það, þegar ég sá
það sem ég ætla að sýna þér
varð mér ljóst af hverju ég þyrfti
að gera þetta við heilann í mér.
Held ég.
Það er allt dálítið...
óljóst.
HLEÐ INN
HLEÐ INN
Ég hef séð þetta.
Algjört rugl.
SKJALASAFN MAGRAÞEU
Fyrir mörgum milljónum ára
fékk kynþáttur ofurgáfaðra
fjölvíddavera
svo mikla leið á sífelldum
deilum um tilgang lífsins
að ráðnar voru tvær
af þeirra gáfuðustu og bestu
til að hanna og smíða
stórfenglega ofurtölvu
til að reikna út svarið við
lífinu, alheiminum og öllu saman.
Ó, Djúpvitra,
við viljum að þú segir okkur...
svarið.
Svarið við hverju?
Svarið við lífinu,
alheiminum og öllu saman.
Við viljum svar.
Eitthvað einfalt.
Ég verð að hugsa mig um.
Komið á þennan stað eftir
nákvæmlega 7,5 milljónir ára.
Er þetta búið? -Nei, það
er meira. Þau snúa aftur.
7,5 milljónum árum síðar?
-Það passar.
Djúpvitra, ert þú með...
Svar fyrir ykkur? Já, en þið
verðið ekki hrifin af því.
Það skiptir ekki máli. Við verðum
að vita það. -Gott og vel.
Svarið við
Endanlegu spurningunni
um Lífið, Alheiminn
og Allt saman...
er...
...fjörutíu og tveir.
Jæja?
Hvað þá?
42?
Já, ég hef hugsað það mjög
vandlega. Það er 42.
En það hefði verið einfaldara
að vita spurninguna.
En þetta var spurningin. Endanlega
spurningin. Um allt saman!
Það er ekki spurning.
Þegar þið vitið spurninguna
vitið þið hvað svarið þýðir.
Segðu okkur hana þá. -Ég get það
ekki en það er önnur sem getur það.
Tölva sem mun reikna út
Endanlegu spurninguna.
Tölva sem er svo
óendanlega margbrotin
að lífið sjálft mun mynda
hluta af gangverki hennar.
Þið sjálf munið taka á ykkur
ný, frumstæðari form
og fara niður í tölvuna til
að stýra tíu milljón ára forritinu.
Ég mun hanna þessa tölvu
og hún mun heita...
UPPLÝSINGUM EYTT
Er þetta allt og sumt?
-Já.
Ertu að leita að Endanlegu
spurningunni. Þú? Hvers vegna?
Nei, ég prófaði það. Hvers vegna?
Fjörutíu og tveir. Virkar ekki.
Undirbúðu skipið.
-Hvers vegna
viltu vita
Endanlegu spurninguna?
Að hluta til forvitni,
að hluta til ævintýraþrá
en að mestu þrá
um frægð og peninga.
Ertu ekki forseti
vetrarbrautarinnar?
Hárrétt, Arman.
-Arthur.
Gildir einu. Forsetafrægð
er hverful.
En ef ég finn spurninguna,
það er eilíft. Það gleymist ekki.
Auk þess stimpla allir mann
gáfnaljós. Hreinn sigur.
Við ýtum á takkann og... búmm!
Við erum hjá Magraþeu. Held ég.
Við höfum ýtt tvisvar
og erum ekki enn þar.
Ertu með?
-Alltaf.
Það var lagið!
-Ég vil fara frá borði.
Afsakaðu, hvað erum við
að gera? -Þetta!
Óendanlega Ólíkindadrifið
er dásamleg ný aðferð
til að ferðast óravegu
á nokkrum sekúndum
án þess að sóa tímanum
í ofurgeimnum.
Þegar Ólíkindadrifið
nær óendanlegum ólíkindum
fer það í gegnum alla mögulega
punkta í öllum mögulegum alheimum
nánast samtímis.
Þú veist því aldrei
hvar þú endar
eða hvaða tegund þú verður
á leiðarenda.
Því er mikilvægt að klæða sig
í samræmi við það.
Drifið var afrakstur rannsókna
á takmörkuðum ólíkindum
sem voru notuð
til að lífga upp á samkvæmi
með því að láta sameindirnar
í nærfötum gestgjafans
stökkva eitt fet til vinstri
í samræmi
við óvissukenninguna.
Margir eðlisfræðingar
sögðust ekki líða slíkt,
að hluta af því það
lítillækkaði vísindin
en aðallega vegna þess að þeim
var ekki boðið í þannig veislur.
Gerist þetta alltaf
þegar við ýtum á takkann?
Mjög líklega, já.
Ég held að Jarðarbúinn
þurfi að kasta upp.
Í ruslafötuna, apamaður.
Þetta er glænýtt skip.
Ekki gera þetta.
Við höfum eðlileika.
Tókst það?
Erum við komin?
EÐLILEIKI ENDURHEIMTUR
Já. Við erum hér.
Magraþea!
Ég held ekki.
Eddie,
hvaða pláneta er þetta?
Ég er að gá.
Hver kippti hári?
Úr höfðinu á mér?
Afsakið biðina.
Leitt að valda vonbrigðum
en þetta er ekki
Magraþea.
Við erum á sporbraut
um plánetuna Viltvódle 6.
Humma Kavula!
Magraþea verður að bíða. Ég þarf
að jafna sakir á þessari plánetu.
Humma Kavula!
Í upphafi
var alheimurinn skapaður.
Það gerði marga reiða og hefur
almennt verið talið slæm skyssa.
Margar tegundir trúa að hann hafi
verið skapaður af einhverjum Guði
en Jatravartídarnir
á Viltvódle 6
trúa að öllum alheiminum
hafi verið snýtt úr nös veru
sem kallast
Græni Arkasnefillinn Mikli.
Humma Kavula!
Jatravartídarnir,
sem óttuðust mjög
tímabilið sem þeir kölluðu
Komu Stóra Vasaklútsins,
voru litlar bláar verur
með yfir 50 handleggi hver.
Þeir voru einstakir fyrir að vera
eina tegundin í sögunni
til að finna upp svitalyktareyðis-
brúsann á undan hjólinu.
Herra forseti!
Hvernig hefurðu það?
Hvað er nú þetta?
Æðislegt.
Ég elska þig.
Frábært.
Eruð þið skyldar? Ekki
breyta neinu. Munið að kjósa.
Arthur, mig langar í sjúss.
Ég held ég hafi verið hér áður.
Hef ég verið hér áður?
Ixxie!
Ég hef verið hér áður.
-Humma Kavula!
Komdu.
Tricia, ég...
Nú bíðum vér yðar
með eftirvæntingu.
Að vasaklúturinn yðar
flytji oss á ný í yðar faðm.
Halló, Humma!
Komdu. Fáðu þér sæti.
-Gott að sjá þig. Takk.
Vasaklúturinn kemur.
Biðjum þess að Almættið blási
andardrætti kærleika á okkur öll.
Svo þetta er Humma Kavula.
Ég hélt þú værir að blóta.
Arkasnefill, við lyftum nefjum
okkar, stífluðum og ósnýttum,
þér til dýrðar.
Sendu vasaklútinn svo hann
megi afmá syndir okkar.
Við biðjum þess og alls annars
í Yðar dýrlega, stuðlaða nafni.
Hjálpi ykkur.
Förum við hingað inn?
Glæsilegt. Þetta er stórt,
gyllt og flott. Flottræfill.
Zaphod Beeblebrox,
illræmdi forsetinn okkar.
Hvað ert þú að gera
á fábrotnu plánetunni okkar?
Ég held þú vitir hvers vegna
ég er hér. -Ég held ekki.
Ég held þú haldir
að þú vitir það ekki...
en við vitum báðir
að þú veist það.
Mælskur að venju.
Málhæfni þín
kemur sífellt á óvart.
Skondið. Í kosninga-
baráttunni, Humma,
þegar þú varst
í framboði gegn mér
sagðirðu að ég væri auli.
Kosningarnar eru löngu
liðnar, Zaphod, en...
ef ég man rétt
þá vannstu
og sannaðir að fríðleiki
og þokki
bera sigurorð af snilligáfu
og stjórnunarhæfileikum.
Og meðan ég man,
þú ert auli.
Afsakið,
herra Humma.
Þetta er einhver
hræðilegur misskilningur
því hann er ekki með okkur.
Við komum til að tilbiðja þig.
Hann elti okkur.
Hann stækkaði,
er það ekki?
Þú komst ekki alla þessa leið
til að útkljá kosningamál.
Hvers vegna ertu hér?
Auðvitað ekki,
það er fáránlegt.
Ég var strandaglópur á undarlegri
plánetu. Ég var ekki að forðast þig.
Þú lítur vel út.
Þér gengur vel.
Þú hefur greinilega stækkað.
Bíddu! Við vitum ekki
af hverju við erum hér.
Við ætluðum til Magraþeu
en skipið færði okkur hingað.
Það er afskaplega
ólíklegt.
Ég geymdi nokkra minjagripi
um fyrra líf mitt.
Hinir spennandi dagar
geimrána.
En jafnvel Óendanlegt
Ólíkindadrif þarf hnit.
Og ég á þau.
Nei, nei, nei.
Þú færð ekki eitthvað
fyrir ekkert, Zaphod.
Þú verður að færa mér
dálítið í staðinn.
Hvað?
-Byssu.
Byssu?
-Mjög sérstaka byssu
hannaða af merkustu
tölvu allra tíma.
En eina leiðin til að finna hana
er að fara til Magraþeu.
Þá það. Ég útvega þér byssuna.
Láttu mig fá hnitin.
Og hvað fæ ég til að tryggja
að þú komir aftur?
Drengskaparheit mitt
sem forseta.
Nei.
Ég þarf gísl.
En hvað metur Zaphod
Beeblebrox ofar öllu?
Ekki láta svona.
Æ, nei.
Rólegur. Hugsaðu þig um
áður en þú gerir þetta.
Nei, hættu þessu!
Þetta kitlar.
Tvö höfuð eru betri en eitt!
Tvöfaldaðu ánægjuna.
Þetta er ósanngjarnt!
Þú þarfnast mín!
Komdu til baka!
Ekki skilja mig eftir!
AULI
Komdu aftur!
Ég hélt ég væri einn um
að álíta kærastann þinn
sjálfshrifinn aula
en öll vetrarbrautin gerir það!
Hvað um þig?
Afsakið, herra Humma.
Við erum ekki með honum. Við komum
til að tilbiðja þig. Hvílíkt hugrekki.
Hvar í fjáranum
er Ford?
Vinstri, gakk!
Vinstri, hægri, vinstri, hægri.
Hr. forseti, við erum hér
til að vernda þig.
Skjótið á mannræningjann.
Ekki láta svona.
Forsetinn er mannræninginn!
Þið drepið hann!
Það er læst!
Ég verð í sambandi,
elskan.
Komdu, Zaphod.
Hverju missti ég af?
-Hvar varstu?
Við vettvangsrannsóknir. Fundu
þeir okkur? Belgískur bömmer!
Þeir skjóta á okkur!
Hvað eigum við að gera?
Ég fékk hugmynd.
-Ýta honum fram og stinga af?
Hvað? Það er hann
sem þau vilja!
Þú getur ekki farið þangað.
Hvað ertu að gera?
Hörfið!
-Hvað er á seyði?
Ég er með forsetann
og ég drep hann!
Gæti þetta drepið hann?
-Ég efast um það.
Þetta er spreybrúsi.
Orðinn hræddur.
Hræddur.
Hæ, litlu gaurar.
-Náið henni.
Zaphod, komdu!
-Arthur!
Arthur!
-Tricia! Bíddu!
Arthur!
Mótþrói er tilgangslaus!
Flyttu hana til Vóghvolfs
til flokkunar, höfuðsmaður.
Hvar er fjölleikahúsið?
Þeir náðu henni og það er
mín sök. Við verðum að fara!
Drífum okkur!
Tölva, flyttu okkur
til Magraþeu!
Hvað þá? Nei!
Við verðum að ná Triciu.
Hverri?
-Trillian.
Þér náðu Trillian,
heimski hálfvitinn þinn!
Þú kemur út.
Tölva, ekki fara til Magraþeu.
Eltu skipin.
Það væri gaman, en stýrikerfi
mitt hefur verið aftengt.
Ekki láta svona!
Mér þykir það leitt
en það var ekki mín sök.
Hvað ertu að gera?
Ford?
-Marvin?
Ég hef verið að tala
við skipstölvuna.
Og?
Hún hatar mig.
Nei. Eddie? Tölva?
Er einhver önnur leið
til að elta skipin?
Ræsi björgunarflaug! Það er fín
og fjörug leið til að fljúga.
Ótrúlegt.
Ford?
Einhver hugmynd?
Ég ýti á þennan takka.
-Nei!
EKKI ÝTA AFTUR
Á ÞENNAN TAKKA
Þessi takki.
-Ekkert. Allt í lagi!
Vel gert.
Við riðum. -Artie,
þú gleymdir handklæðinu þínu.
Taktu það af mér!
Ég drep hann!
Ford, það er...
-Er þetta betra?
Nei, þetta er verra.
Ég þarf ekki þetta.
-Allt í lagi.
Marvin,
einhverjar hugmyndir?
Ég hef milljón hugmyndir
en þær leiða allar til dauða.
Takk, Marv.
PLÁNETAN VÓGHVOLF
Magraþea! -Nei, við erum
á Vógonaplánetunni.
Þetta er Magraþea!
-Þetta er Vóghvolf.
Magraþea! Ég veit það.
-Nei.
Það er engin Magraþea.
-Jú, víst!
Hvað ertu að gera?
-Þeir tóku höfuðið mitt.
Þeir eru með þessa á
arktúrsku ofurfragtskipunum.
Skipstjórarnir nota þá
þegar þeir þurfa að einbeita sér.
Hvað er þetta?
-Hugsunarhöttur.
Svona.
Þetta ætti að gefa hressa hann
í einar tíu mínútur.
Nú leggjast vandræði okkar
miklu betur í mig.
Ég kannaði björgun á fanga
frá Vóghvolfi í Handbókinni.
Hún sagði: Ekki. Ég geri ráð
fyrir að þú hafir betri áætlun.
Mér datt í hug að við...
Sá einhver þetta?
-Sá hvað?
Hvað var það?
Ekkert. Þetta er ekkert.
Bara ímyndun í mér.
Stoppið! Allir að stoppa!
Horfið á mig!
Það er greinilega
eitthvað á seyði hér.
Fylgist með.
Fylgist með.
Ég held að við...
Þú líka!
Já.
Hvað var þetta?
Zaphod, hvað heldur þú?
Ég held að við...
Zarquon! Hvað var þetta?
Ég kæmi með tillögu
en þið mynduð ekki hlusta.
Enginn gerir það.
-Ég fékk hugmynd.
Frod, dreptu það!
Ekki hugsa.
Enginn hugsar.
Engar hugmyndir...
engar kenningar,
ekki neitt.
Þetta er brjálæði!
Trillian er hér
og við þurfum hugmynd til að
bjarga henni! -Ég fékk hugm...
Hlaupið!
Þú átt að stoppa!
Jæja, ég er ekki að hugsa.
Ekki að hugsa. Engar hugmyndir.
Þessi hugmynd hefur
ekkert til tekna
en, Marvin, geturðu
rétt mér hjálparhönd?
Hvar er hún?
Hver? Forstjóri
Vélmennahandleggjaviðgerða?
Tricia Yggarstuk McMillanus
frá Blaard?
Nei. Tricia Marie McMillan
frá Jörð.
Nú.
Einmitt.
Afsakaðu.
Engin Jörð á skrá.
Vetrarbrautargeiri
ZZ-9 Fjöl-Z Alfa.
Ó, já.
-Hún lýgur.
Hún er mjó, hún er sæt
og hún er að ljúga.
Æ, já. Hérna er það.
Jörð.
Eytt.
Áttu aðra heimaplánetu?
Eytt? Það er óhugsandi.
-Það stendur samt hér.
Henni var eytt til að rýma
fyrir ofurgeimshraðbraut.
Hvaða heilvita maður
fyrirskipar eyðingu plánetu?
Sagði hann ekki gráa byggingin?
-Allar byggingarnar eru gráar.
Réttu mér hjálparhönd.
Drepfyndið.
Hvernig get ég stýrt flauginni
einhentur? Heimski maður.
Þú þarft að fara til baka
og fylla þetta út.
Gættu þess þegar þú útfyllir
flýtimeðferðareyðublaðið að...
Látið mig um þetta. Ég er
breskur. Ég kann á biðraðir.
Fylltu út þetta eyðublað og skilaðu
því eins fljótt og þú getur.
Skriffæri eru þér á vinstri hönd.
-Þú ert forseti. Gerðu eitthvað.
Forsetar hafa ekkert vald.
Þeir eiga að draga athygli frá því.
Hvernig hafið þið það?
Þetta er ég, forsetinn ykkar!
Takk fyrir að koma.
Ég þekki þennan svamp.
Næsti!
-Forseti á leið í gegn!
Hvernig hefurðu það, títuprjóns-
haus? Í alvöru, þetta er ég.
Ég dýrka Kabuki.
Farið frá.
Kysstu mig.
Ég er hér til að fá
fanga látinn lausan.
Fangalausnareyðublað?
Ég trúi þér ekki.
Þetta er skipunin.
ÁST OG KOSSAR
ZAPHOD
Ást og kossar?
Samkvæmt refsilöggjöf
vetrarbrautarinnar
er refsingin
fyrir forsetarán sú
að vera varpað fyrir gráðugu
Böggblöðruskepnunni frá Traal.
Vertu sæl.
Slepptu mér!
Hvað í fjáranum er þetta?
Bíddu! Þetta eru
einhver mistök!
Merktu í alla reitina hægra megin
á síðunni. -Skilið.
Nei, ekki þennan!
Hvað skal gera ef þú ert föst
án nokkurrar vonar um björgun.
Hugsaðu um það hvað lífið hefur
leikið við þig til þessa.
Á hinn bóginn, ef lífið hefur
ekki leikið við þig til þessa,
sem, miðað við núverandi
aðstæður, virðist líklegra,
hugsaðu um hvað þú ert heppin að
það angrar þig ekki mikið lengur.
Gjörðu svo vel.
Forsetarán.
Það er ekki hægt að láta
hana lausa að svo stöddu.
Sjáðu nú til.
Þetta er forsetinn.
Sérðu?
Hann segir að mannránið
sé bara hræðilegur misskilningur.
Jæja?
Hann skipar þér
að láta hana lausa.
En þetta er ekki forsetaskipunar-
eyðublað um lausn fanga.
Þau eru blá.
Ég bíð hér.
-Já. Haltu á þessu.
Hann er svangur í dag.
Þetta er blátt.
Ég er ekki blaðamaður.
-Við erum að slæpast.
Jæja, þetta er fyrir
Triciu McMillan.
Tricia McMillan.
Gott og vel.
Herra, þetta
er lausnareyðublað.
Takk.
Hún er frjáls
ferða sinna.
Slepptu henni.
Zaphod er hér.
Þetta er þá í lagi.
Förum og náum honum.
Eftir hverjum
erum við að bíða?
Í alvöru.
Tricia.
Tricia.
-Trill.
Komdu hingað.
-Aulinn þinn!
Þú undirritaðir skipun
um að eyða Jörð.
Gerði hann það?
-Gerði ég það?
Já. Ást og kossar, Zaphod?
Þú last hana ekki, er það?
Ég er forseti vetrarbrautarinnar.
Ég hef lítinn tíma til lesturs.
Heilli plánetu,
heimkynnum mínum,
eytt af því þú hélst að einhver
vildi eiginhandaráritun þína!
Þeir komu sökinni á mig!
-Ertu algjör auli?
Trillian.
-Því sagðirðu mér það ekki?
Hann hótaði mér!
-Sýndu skapfestu, Arthur.
Hvað um að koma hingað til
að bjarga þér? Mín hugmynd, takk!
Hálfviti!
Hér er handleggurinn þinn.
-Hvílík hugulsemi.
Þeir sem eru svo heppnir að hafa
tvo handleggi, haldið ykkur fast.
Forsetinn reynir
á þolinmæði mína.
Í þetta sinn elti ég hann sjálfur.
Undirbúið skip mitt.
Frábært!
Loksins.
Klukkutíma matarhlé,
allir saman.
Ég held ég fái mér
súpu í dag.
Í kafla Alfræðiorðabókar
Alheimsins um ástina segir
að hún sé allt of flókin
til skilgreiningar.
Handbók puttaferðalangsins um
himingeiminn segir þetta um ástina:
"Forðist hana
eftir bestu getu."
Því miður hefur Arthur Dent
aldrei lesið
Handbók puttaferðalangsins
um himingeiminn.
Mér þykir þetta afskaplega leitt.
-Nei, komdu inn.
Ég ætlaði ekki...
Sjáðu til...
Ég vildi bara segja að þú
hafðir á réttu að standa.
Ég hefði átt að segja þér það.
Ég skil vel ef þú ert mér reið.
Hvers virði sem það er
þá veit ég hvernig þér líður.
Geturðu rétt mér handklæði?
-Auðvitað, þetta...
Takk.
Reyndar ætlaði ég
að segja
að ef ég hefði sagt já við þig
og farið til Madagaskar
þá væri hvorugt okkar
hér núna.
Ég hélt það væri kannski
einhvers virði.
Það skiptir ekki máli.
Jæja, tölva, farðu með okkur til...
Hvert erum við aftur að fara?
Ég sæki aðra sítrónu
handa þér.
Allt í lagi.
Ræsi Ólíkindadrif.
Nei, Zaphod. Takkar eru
ekki leikföng. Hvað gerðirðu?
Magraþeuhnit meðtekin.
Ég tilkynni
alveg furðu lostinn
að við erum núna á sporbraut
í 480 km hæð
yfir hinni goðsagnakenndu
plánetu Magraþeu.
Magraþea!
Ótrúlegt.
Lygilegt.
Þetta er jafnvel verra
en ég hélt það yrði.
Sæl. Þetta er hljóðrituð tilkynning
því enginn er við sem stendur.
Verslunarráð Magraþeu
þakkar ykkur komuna
en harmar að plánetan
er lokuð tímabundið.
Ef þið viljið skilja eftir nafn
og plánetu þar sem næst í ykkur
gerið það þá
eftir tóninn.
Hvernig getur pláneta verið lokuð?
-Zarkin hafi það, frændi.
Tölva, haltu áfram.
Farðu með okkur niður.
Með ánægju!
Áframhaldandi áhugi ykkar á
plánetunni okkar er ánægjulegur.
Í þakklætisskyni
vonum við að þið njótið
kjarnorkuflugskeytanna tveggja
sem við sendum til móts
við farartæki ykkar.
Til að tryggja áframhaldandi
gæði þjónustu okkar
verður dauði ykkar skráður
í fræðsluskyni. Takk fyrir.
Svo ánægjulega vill til að
flugskeytin stefna beint á okkur.
Ég ætla að koma
okkur undan þeim.
Eitthvað truflar stýrikerfið.
Árekstur eftir 45 sekúndur.
Tölva, gerðu eitthvað!
Sjálfsagt. Stilli á hand-
stýringu. Gangi ykkur vel.
Ég þarf aðstoð!
Ég get ekki gert þetta
án þriðja handleggsins míns!
Arthur, gríptu
í höndina á mér!
Hristum við þau af okkur?
-Nei, þau stefna beint á okkur.
Því ýti ég ekki á þennan? -Nei!
Við erum ekki enn í eðlileika!
Hvað gerist þá?
-Ég veit það ekki!
Ekki gera það! Við vitum ekki
hvert það sendir okkur!
Fjandinn hafi það.
-Nei!
Hvar erum við?
Nákvæmlega þar sem við vorum.
-Og flugskeytin?
Þau virðast hafa breyst
í skál með tóbakshornum
og steinhissa hval.
Með ólíkindastuðulinn
8.767.128 á móti einum.
Eðlileika náð.
Eðlileika?
Það var þá.
Við getum talað um eðlileika
þar til kýrnar koma heim.
Hvað er eðlilegt?
-Hvar er heima?
Hvað eru kýr?
Tebolli myndi endurreisa
eðlileika minn.
Rétt er að benda á að skyndilega
og gagnstætt öllum líkindum
hafði búrhvalur
dúkkað upp
allnokkrum kílómetrum fyrir ofan
yfirborð framandi plánetu.
Þar sem þetta eru ekki
eðlilegar aðstæður fyrir hval
hafði sakleysinginn lítinn tíma
til að átta sig á tilverunni.
Þetta er það sem hann hugsaði
þegar hann féll:
Hvað er að gerast?
Hver er ég?
Af hverju er ég hér? Hvað
meina ég með "hver er ég"?
Stilltu þig nú.
Þetta er áhugaverð tilfinning.
Eins konar fiðringur í...
Best að fara að finna nöfn
á hlutina. Köllum þetta sporð.
Og hvaða drynjandi hljóð þýtur
fram hjá höfðinu á mér?
Vindur. Það er gott nafn.
Það dugar.
Þetta er svo spennandi.
Mig svimar af tilhlökkun.
Eða er það vindurinn?
Það er mikið a honum.
Hvað er þetta sem nálgast hratt?
Stórt og flatt og kringlótt.
Það þarf stórt, víðáttumikið nafn.
Band. Sand. Land!
Já, land! Skyldi það vilja vera
vinur minn? Halló, land!
Það eina sem flaug í gegnum
huga tóbakshornapottsins
í fallinu var:
Æ, nei, ekki aftur.
Margir telja að ef við vissum af
hverju tóbakshornin hugsuðu þetta
myndum við vita miklu meira
um eðli alheimsins en við gerum.
Hvaða fyrirbæri
eru þetta?
Hlið að öðrum víddum.
Er nokkuð miðstöðvarhitun
í hliðinu?
Þetta er það rétta.
Þetta endar með ósköpum,
svo mikið er víst.
Hérna.
Jæja, við förum inn.
Við getum ekki farið inn í þetta!
Við vitum ekki hvert það liggur!
Ef við veljum rangt hlið
komum við bara aftur og veljum
annað. Ekkert stórmál.
Þetta er heljarinnar
stórmál, Ford!
Hvað ef það tætir okkur
í pínulitlar frumeindir?
Þetta er það rétta!
Ég fékk hugboð!
Ford?
-Hugboðin hans eru góð.
Arthur,
ég segi að við förum!
Fylgja hugboði manns
með sítrónuknúinn heila?
Þetta er sjálfsmorð!
Ég held að ég sé móðgaður.
-Mér er sama!
Þú ert ansi fjandsamlegur,
Alex.
Arthur!
-Þú ættir að prófa jóga.
Trillian! -Ég held
að þetta hafi átt að gerast.
Hún er horfin!
Ford, hún er horfin!
Arthur, ekki óttast.
Ford.
-Bíddu eftir mér!
Svona nú.
Hálfviti.
Nei, ekki fara.
Farðu í gang.
Ég sagði að þetta myndi
enda með ósköpum.
Gerðirðu það?
Geronimo.
Geggjað.
Þetta er hún.
Djúpvitra,
ég er að koma!
Svo þessu
lýkur þá svona?
Aleinn á dauðri plánetu
með geðhvarfasjúku vélmenni.
Þykist þú vera eiga bágt?
Hvað ef þú værir
geðhvarfasjúkt vélmenni?
Afsakið.
Hver ert þú?
-Nafn mitt skiptir ekki máli.
Þú verður að koma með mér.
Farðu burt. -Hræðilegir
atburðir eru að gerast.
Þú verður að koma
eða þú verður heitinn.
Heitinn hvað?
-Hvað þá?
Nei. Hvað heitirðu,
Jarðarbúi?
Dent. Arthur Dent
Heitinn eins og í
Dentarthurdent heitinn.
Þetta er eins konar hótun,
skilurðu? Nei.
Nei.
-Vinir þínir eru óhultir.
Þú getur treyst mér.
-Manni sem segir ekki til nafns?
Jæja þá.
Ég heiti...
Ég heiti...
Slartibartfast.
Ég sagði að það
skipti ekki máli.
Svo vinir mínir
eru óhultir?
Ég skal sýna þér.
Ég gæti reiknað út lífslíkur þínar
en þú yrðir ekki hrifinn.
Vissirðu að við
byggjum plánetur?
Ó, já.
Heillandi bransi.
Eftirlætið mitt var
að gera strandlengjurnar.
Það var endalaus skemmtun
að dútla við firðina.
En svo hrundi efnahagurinn
og þar sem sérsmíðaðar plánetur
eru munaðarvara...
Það hefur orðið hræðilegt klúður
með plánetuna þína.
Þaulhugsuðustu áætlanir músa,
þú skilur.
Og manna.
-Ha?
Þaulhugsuðustu áætlanir
músa og manna.
Ég held að mennirnir hafi ekki
haft mikið með það að gera.
Ég verð að vara þig við,
við förum í gegnum
eins konar hlið.
Þér kann að þykja það
óhugnanlegt.
Það hræðir líftóruna úr mér.
Velkominn á verksmiðjugólfið.
Jæja.
Já, þetta er hún.
Þetta er hún!
Ó, Djúpvitra mikla!
Við höfum ferðast langan
og strangan veg.
Hefurðu reiknað út Endanlegu
spurninguna um Lífið,
Alheiminn og Allt saman?
Nei.
Hvað þá? -Ég hef verið
að horfa á sjónvarpið.
Ég hannaði aðra tölvu
til að gera það.
Alveg rétt. Ég gleymdi því.
Er hún hér?
Nei, hún er ekki hér.
Hún er annar heimur.
Hún er í öðrum heimi!
Hún er annar heimur,
auli.
Eða var það þar til
Vógonar eyddu henni
til að rýma fyrir
ofurgeimshraðbraut.
Ertu viss um að þú
hafir ekki Spurninguna
eða aðgang að henni?
Ég hef lagt mikið á mig
til að komast hingað.
Uss! Þátturinn
er byrjaður aftur.
Ég vil ekki ónáða þig
þannig að ég ætla að... Vel gert.
Frábært. Ég finn eitthvað annað
til að láta lífið snúast um.
Zaphod,
málið með byssuna.
Byssuna? -Þessa
sem Humma sendi þig eftir.
Þú lést hann fá höfuðið þitt.
-Af hverju gerði ég það?
Það er heimskulegt.
Ó, Djúpvitra, okkur var sagt
að það væri byssa.
Þar hefurðu það.
Kunnugleg sjón?
Var henni þá ekki eytt?
Jú, reyndar. Þetta er varaeintak.
Jörðin, útgáfa 2.
Svo þú bjóst til Jörðina?
Ekki ég einn,
en ég lagði hönd á plóginn.
Kannastu við stað
sem heitir Noregur?
Það var einn af mínum.
Ég fékk verðlaun fyrir hann.
Frank?
Þetta er Frank.
Þeir eru næstum búnir
með höfin.
Zaphod.
Hérna er...
Hún er alveg eins
og Humma sagði.
Nú geturðu fengið
höfuðið þitt aftur. -Ford.
Gaman að kynnast þér,
Zarkakollurinn þinn.
Nei.
Þetta er drasl.
Þú hlýtur að vera svekktur.
Þú kemur alla þessa leið
og færð ekkert svar,
sem þýðir engir peningar eða
frægð sem þú þó verðskuldar.
Sjónarhornsbyssan gerir nákvæmlega
það sem nafnið bendir til.
Stórkostlegt!
Ef þú beinir byssunni að
einhverjum og tekur í gikkinn
sér viðkomandi hlutina strax
frá þínu sjónarhorni.
Komdu með hana.
Hún var hönnuð af Djúpvitru
fyrir samtök
reiðra húsmæðra
sem, eftir endalausar deilur
við eiginmenn sína,
fengu hundleið á að enda
öll rifrildi með orðunum:
"Þú skilur þetta bara ekki."
Þú segir satt. Ég ætti ekki
að taka þetta svona nærri mér
því lífið heldur áfram og ég ætti
bara að halda áfram að lifa því.
Skjóttu hann aftur.
Puttaferðalög eru góð.
Handklæði eru líka góð.
Hvað þá?
-Þetta er stórsnjallt.
Hvað er á seyði?
Ég skil af hverju Humma Kavula
vill eina svona.
Förum til baka. Arthur bíður.
-Hverjum er ekki sama?
Mér. Einkum þar sem við erum
í útrýmingarhættu, þökk sé þér.
Af hverju ertu svona
uppstökk? Slakaðu á.
Viltu vita af hverju
ég er uppstökk?
Auðvitað ertu uppstökk.
Plánetan þín var sprengd í loft upp
og þú ert að dandalast með gaurnum
sem undirritaði skipunina.
Þú vildir vita Spurninguna því þú
vonaðir að lífið byði upp á fleira
og núna ertu miður þín því þú
komst að því að svo er ekki.
Stórkostlegt.
Algjör sýra.
Þú átt ekkert heimili, enga fjöl-
skyldu og þú situr uppi með mig,
enn einn manninn
sem skilur þig ekki.
Það er ekki satt.
Og þú óttast að hafa klúðrað því
með eina náunganum sem gerir það.
Ljúfan mín.
Komdu með þetta.
Hún hefur engin áhrif á mig.
Ég er kona.
Þetta er í lagi.
Þetta eru bara tvær litlar mýs.
Og hana nú! Himalajafjöll!
Flott, ha?
Jarðarbúi,
gerðu þér ljóst
að plánetan sem þú bjóst á
var pöntuð,
greidd og stjórnað
af músum.
Áttu við litlu loðnu,
hvítu verurnar
með veiðihár,
eyru og ost?
Já, en þær eru bara angi
fjölvíddarvera inn í okkar vídd.
Ég kannast ekki við
þennan ost sem þú talar um
en þær voru á Jörðinni sem mýs
til að gera tilraunir á ykkur.
Ég sé í hverju misskilninginn felst.
Við gerðum tilraunir á þeim.
Nei. Já. Nei.
Þær vildu að þið hélduð það
en þið voruð í raun þættir
í tölvuforritinu þeirra.
Þetta útskýrir heilmargt.
Allt mitt líf hef ég haft það
á tilfinningunni
að eitthvað stórt og skuggalegt
væri á seyði í heiminum.
Nei, það er venjulegt ofsóknaræði.
Allir þjást af því.
Kannski er ég gamall og lúinn en
ég tel líkurnar á að komast að því
hvað sé á seyði
svo fáránlega litlar
að maður getur bara sagt skítt
með það og dundað sér.
Frekar vil ég vera hamingjusamur
en hafa rétt fyrir mér.
Og ertu það?
-Nei.
Það er meinið.
Hérna er það.
Er þetta...?
Það er allt þarna.
Það virkar allt.
Velkominn heim.
VELKOMINN HEIM ARTHUR
Þarna ertu.
-Óvænt!
Hvað kom fyrir ykkur?
Er þetta te?
Fyrst réðust gestgjafarnir
á okkur. -Einmitt.
Svo bættu þeir það upp
með því að útbúa
þessa stórkostlegu máltíð.
Allt er frábært.
Allt er ljúffengt.
Þetta er dásamlegt.
Það gleður okkur að þér
líkar það, Jarðarvera.
Talandi mýs.
Flott.
Sestu, Jarðarmaður.
-Takk fyrir.
Fáðu þér að drekka.
-Afsakið.
Var það eitthvað fleira?
-Nei, við erum hæstánægðar.
Gott. Ég verð úti,
þannig að...
Þú sagðir satt.
Fáðu þér að drekka.
-Já.
Hann sagði satt.
Komum okkur að efninu.
Skál fyrir því!
Borðið!
Afsakið.
Við eyddum miklum tíma á Jörð
í leit að Endanlegu spurningunni
en svo sprakk hún í loft upp.
Bókstaflega.
Þess vegna ertu hér. Okkur hefur
verið boðinn hagstæður samningur
um að koma fram í nokkrum
fimmvídda spjallþáttum.
En við þurfum söluvöru.
Við þurfum Endanlegu spurninguna
eða einhverja sem virðist endanleg.
Auðvitað. -Við höfum
endurbyggt plánetuna
en vantar bara núna
týnda hluta gátunnar.
Og það er heilinn í þér.
-Einmitt.
Meira te?
Sagðirðu að þið þyrftuð
heilann í mér?
Já. Til að ljúka
vinnslu forritsins.
Þið getið ekki fengið heilann
í mér. Ég er að nota hann.
Ekki svo nokkru nemur.
-Ósvífni. Ósvífin mús.
Zaphod.
Trillian.
Ford.
Hvað var í matnum?
Hvað var í teinu mínu?
Hafðu ekki áhyggjur.
Þú finnur ekki fyrir neinu.
Rólegan æsing!
Viljið þið spurningu
sem passar við svarið 42?
Hvað um:
Hvað eru 6 sinnum 7?
Eða: Hvað þarf marga Vógona
til að skipta um ljósaperu?
Hér er ein! Hve margar götur
þarf maðurinn að ganga?
Þessi er ekki svo galin!
Þá það. Takið hann. Því höfuðið
á mér er fullt af spurningum
og ekkert svar
við neinni þeirra
hefur fært mér vott
af hamingju.
Nema ein.
Sú eina.
Eina spurningin sem ég
hef þráð svar við:
Er hún sú rétta?
Og svarið er ekki 42,
það erjá.
Óumdeilanlegt, ótvírætt,
óskammfeilið já.
Og í eina viku,
eina viku í minni vesælu,
agnarsmáu tilveru
færði það mér hamingju.
Þetta er gott svar.
Þvættingur. Við viljum frægð
en ekki hamingju.
Hvaða er hún sú rétta rugl
er þetta? -Taktu heilann úr honum.
Nei, ekki taka heilann!
Ekki taka heilann, mýs!
Það var ekki ég!
Ég er frægur.
Fljótur,
skjóttu hann!
Fjárinn.
Ég þarf að gubba.
Belgía.
Fylgið mér.
Vinstri, hægri,
vinstri, hægri.
Í réttstöðu!
Kærar þakkir
fyrir að skilja mig eftir.
Ég get samt ekki
álasað ykkur.
Herra forseti, við erum hér
til að vernda þig.
Takk,
ég met það mikils.
Skjótið.
Nei!
Hvaða læti eru þetta?
Vógonar eru
verstu skyttur í heimi.
Í Guðs bænum, hættið!
-Hættið að skjóta!
Ég er kominn með hausverk.
Marvin.
Æ, nei.
Hann er með handklæði!
Forðið ykkur!
Ég kem okkur héðan!
Hvernig ekur maður þessu?
Hvað er á seyði?
Við þurfum byssuna.
Setjum skipið í gang.
Í gang!
Eldur!
Hann læsti innan frá!
Við verðum
að fara hringinn!
Flýtið ykkur!
Hættið þessu!
Hættið þessu!
Hættið að skjóta á okkur.
Ég er svo niðurdreginn.
Ég afber ekki annan dag.
Hver er tilgangurinn?
Ertu ómeidd?
-Já.
Mér þykir leitt með
geimskipið þitt, Arthur.
Marvin, þú bjargaðir
lífi okkar.
Ég veit.
Ömurlegt, ekki satt?
Maður hlýtur að spyrja sig,
hver er tilgangurinn?
Keyrðu burt!
Þú gætir gert það en það mun
ekki... Jæja, ég spyr bara.
Strákarnir hafa tjáð mér
að þar sem verkinu
er nánast lokið
ætlum við að klára Jörðina.
Við getum sett hana saman
eins og hún var þegar þú fórst.
Nema það sé...
það sé eitthvað
sem þú vilt láta breyta.
Er eitthvað sem þér finnst
að eigi ekki að vera á plánetunni?
Já.
Ég.
Halló?
Nei, eins og hún er.
Já, ekki hrófla við neinu.
Förum eitthvað.
Pottþétt. Hvaða stað
hefurðu í huga?
Ég veit um frábært veitingahús
við enda alheimsins.
Ég er pínulítið svöng.
Ég þarf að fara til Humma.
Hann er með eitthvað sem ég á.
Held ég. Ég er svo ringlaður.
-Við finnum út úr því, ljúfur.
Æði! Fetum ljósbogann, ljúfan.
Bara þú og ég.
Komdu.
Ertu með handklæðið þitt?
-Já. Þarf ég á því að halda?
Alltaf.
-Einmitt.
Ég færi ekki neitt án dásamlega
handklæðisins míns.
Haldið ykkur fast.
Viðbúin gangsetningu lífs
eftir þrjár, tvær, eina...
Það var lagið!
Ekki það að nokkur láti sig
varða hvað ég segi,
en veitingahúsið er
á hinum enda alheimsins.
Far vel og takk
fyrir fiskinn,
leitt að allt fór
beint í vaskinn,
við reyndum að vara ykkur öll við.
Lægri greindarvísitala
útskýrir vanvirðinguna
fyrir náttúruundrunum
allt í kring.
Far vel, far vel
og takk fyrir fiskinn.
Heimi ykkar verður senn eytt,
pirringur fær því ekki breytt,
slappið af og sjáið
plánetuna leysast upp.
Þrátt fyrir net veiðiflotans
flest geymið góðan innri mann,
ekki síst smábörn
og þungaðar konur.
Far vel, far vel,
far vel, far vel, far vel.
Far vel, far vel
og takk fyrir fiskinn.
Já.
Spilaðu það.
Far vel og takk
fyrir fiskinn,
leitt að allt fór
beint í vaskinn,
við reyndum að vara ykkur öll við.
Öll við.
Þrátt fyrir net veiðiflotans
flest geymið góðan innri mann,
ekki síst smábörn
og þungaðar konur.
Far vel, far vel,
far vel, far vel, far vel.
Far vel, far vel
og takk fyrir fiskinn.
Fyrir fiskinn.
Það er vitað að ógætilegt tal
kostar mannslíf.
En umfang vandamálsins
er ekki alltaf augljóst.
Til dæmis
þegar Arthur Dent sagði:
"Ég myndi ekki fara neitt án
dásamlega handklæðisins míns,"
opnuðust furðuleg ormagöng
í rúmtímasamfellunni
og báru orð hans
langt aftur í tímann
um óendanlegar víðáttur geimsins
til fjarlægrar vetrarbrautar
þar sem undarlegar,
herskár verur voru á barmi
skelfilegrar geimstyrjaldar.
Leiðtogar fylkinganna, í gimsteina-
skreyttum bardagastuttbuxum,
voru að funda í síðasta sinn
þegar ógnvænleg þögn
skall á.
Á því augnabliki
svifu orðin "Ég færi ekki neitt
án dásamlega handklæðisins míns"
yfir fundarborðið.
Því miður var þetta
á móðurmáli þeirra
hræðilegasta móðgun
sem hugsast getur
svo flotar mótherjanna
ákváðu að jafna
sakir sínar
og hefja svo sameiginlega árás
á vetrarbrautina okkar
sem hafði verið greind sem
upphafsstaður móðgunarorðanna.
Í þúsundir ára æddu geimskipin
um óravíddir geimsins
og steyptu sér loks æpandi
niður að plánetunni Jörð
þar sem, vegna skelfilegra
mistaka í stærðarútreikningum,
allur flotinn var gleyptur
af litlum hundi.
Þeir sem rannsaka samspil
orsakar og afleiðingar
í sögu alheimsins
segja að svona lagað
sé alltaf að gerast.