Tip:
Highlight text to annotate it
X
Marglytta ónæmiskerfi
Grænn lífljómi
Mjög fljót svörun
Spanrek
Erfðagrunnur fyrir endurmyndun
Fundin kjarnsýra
Ég hyggst ná því markmiði
að endurmynda mann
Í endurmyndun felst ódauðleiki
Vefjahörðnun
Varnarráðstafanir
Tilraunir á prímötum
Api dauður
Erfðabreyting mistókst
Dánarorsök eitur
Gera eitur óvirkt
aðaltegundir
Eðla/mótstöðuafl gegn eitri
Mesta eiturmagn
Frekari tilraunir á prímötum
Það er ekki hægt að vernda
líkamann fyrir öllum sýklum.
En ég get búið til ofursterkt
ónæmiskerfi með því
að efla frumusvörun í mönnunum.
Banner, ég veit hvað þú vilt gera.
Það er hættulegt og heimskulegt
að eiga við ónæmiskerfið.
Vísindaráðgjafar forsetans
tóku af öll tvímæli um það.
Engar tilraunir á mönnum.
25. júní 1967
Vottur af erfðabreytingu.
David,
ég hef dásamlegar fréttir að færa.
Ég er ófrísk.
Hvað er fengið að erfðum?
Hvort velurðu? Sjáðu þetta!
Viltu fá risaeðluna, Bruce?
Tökumst aðeins á.
Þú hræðir mig ekki.
Þetta er fallegt auga.
Þú ert stór, grænn og ógurlegur.
Staðfestir versta ótta minn
Ég verð að finna lækningu
Bruce, þú ert meiddur!
Jack lamdi hann með priki
en Bruce gerði ekkert í því.
Hann stóð bara og skalf.
Undarlegt.
Það heyrðist ekki neitt í honum.
Allir aðrir krakkar
hefðu öskrað og orgað.
Svona er Bruce. Hann er þannig.
Hann er svo bældur.
Við fundum sýnishorn
í rannsóknarstofu þinni.
Þú virtir reglurnar að vettugi.
Þú átt ekkert með
að snuðra á stofunni minni.
Rangt, Banner!
Það snertir ríkið.
Þú sinnir ekki lengur verkefninu!
Takið eftir! Varaöryggisbúnaður
hefur verið ræstur.
Gammageislunarhreinsun
fer fram eftir hálftíma.
Farið strax. Ég endurtek,
farið strax!
Hvað gengur á?
-Við verðum að tala saman.
Bruce, vertu hérna.
Hvað ertu að gera?
Hættu þessu, David! Nei!
Talaðu við mig, David!
Bruce. Vaknaðu, Bruce!
Önnur martröð?
Ég veit það ekki. Ég man það ekki.
Sæl, mamma.
Strax farinn í háskólann.
Ég á eftir að sakna þín sárt.
-Ég mun sakna þín líka.
Komdu hingað.
Að sjá þig. Bráðum verðurðu
merkilegur vísindamaður.
Ég býst við því. Hver veit?
-Ég veit það.
Það býr eitthvað í þér,
svo sérstakt.
Eitthvað stórfenglegt
og einhvern tíma
deilirðu því með öllum heiminum.
Líftæknistofnun
Mér finnst að öryggisgæslan...
Góðan dag, dr. Krenzler.
Það ætti að stórherða
öryggisgæsluna.
Á svona stað verður að fara varlega.
Bruce! Merkisdagur. Svafstu?
Ég gat ekki sofið.
Ég svaf ágætlega. Er Betty hérna?
-Hún er hérna.
Þegar þú ert með
þennan höfuðbúnað...
Ertu að ýja að einhverju?
Þú lítur út eins og algjör nörd,
jafnvel í návist vísindamanna.
Varstu með hjálminn
þegar hún sagði þér upp?
Hann verndar hinn stórmerka heila
í mér, Harper.
Undirbúðu sýnishornin.
Ég fann þig!
Ég þoli þá ekki.
-Ég var að koma. Hverja hatarðu?
Matsnefndina. Við þurfum
að flytja erindi á þriðjudaginn.
Þú verður mér innan handar.
Finnst þér að ég ætti að gera það?
-Þér er það einkar lagið.
Þegar þú talar um örverur
og nanóefni
er næstum eins og
þú talir af ástríðu.
Fyrirgefðu. Þetta var dónalegt.
Enginn ætlast til þess
að þetta sé auðvelt,
að vinna saman eftir
að hafa verið svo náin.
Vorum við náin?
Ef ég gæti verið meira...
...þú veist. Ég er bara...
Ekki. Það er ekki þér að kenna.
Þú ert bara aukaafurð
dularfullrar þráhyggju minnar
í sambandi við
tilfinningalega fjarlæga menn.
Ég jafna mig á þessu.
Gott hjá þér.
Ég kvíði bara þessu mati.
Ef illa tekst til í dag
verður þetta erfitt á þriðjudaginn.
Þá skulum við láta þetta takast vel.
Allt til reiðu.
-Ræstu.
Stóðumst við könnunina?
Allt með felldu.
Niðurtalning er hafin.
Skammta Nanóefni
Nanóefni losuð.
Fjórar sekúndur.
Nanóefni dreifð til fulls.
Allt í lagi. Látum Frikka
frosk fá gammageisla.
Skjóta Gammageislar
Gammageislun.
Nanóefni virk núna.
Nanóefni endurskapa
frumur á brúninni.
Það tekst.
Eftirmyndunar/sundrunarhlutfallið
innan við 1%.
Misvægi í virkni nanóefna.
Ætlarðu að segja matsnefndinni
frá nýrri leið
til að sprengja froska?
Já. Ég held að það
sé eftirspurn eftir því.
En ef þetta er faraldur?
Hefurðu drukkið einn bjór?
Ég á við, froskar detta niður
af himnum ofan.
Hvaðan koma þeir?
Við yrðum heimsþekkt.
-Allir foreldrar yrðu stoltir.
Örugglega.
Foreldrar mínir vildu
að ég yrði vísindamaður.
Ég á við kynforeldra þína.
Við komumst víst aldrei að því.
Því viltu ekki fá að vita um þau?
Þau eru dáin. Þau dóu áður
en ég gat munað nokkuð.
Því þarftu alltaf að ræða þetta?
Ég veit það ekki.
Þú leynir víst á þér.
Það getur ekki verið neitt minna.
Þá ræðum við aftur
það sem við byrjuðum á.
Laglegt, Betty.
Betty!
Glenn.
Hvað varð um búninginn þinn?
-Ég söðlaði um.
Ég vinn enn með pabba þínum
en undirverktakar hjá hernum...
Afar spennandi starf.
Ég er mjög sáttur við launin.
Ég hef umsjón með öllum
rannsóknarstofum í herstöðinni.
Þú... lítur vel út.
Þú ert erfðafræðisérfræðingurinn.
Gömlu, góðu framhaldsskóladagarnir.
Hvernig gengur?
Hvað viltu?
Ég kem mér beint að efninu.
Ég hef heyrt margt áhugavert
um starf þitt hérna.
Sameindavélarnar þínar
búa yfir lygilegum möguleikum.
Hvernig líst þér á
að vinna fyrir Atheon,
fá tífalt hærri laun
og hlut af hagnaði?
Segðu bara til.
-Tvö orð, farðu burt.
Hershöfðingi?
-Komdu inn.
Talbot vildi að þú sæir þetta.
Rannsóknarstofa sem Atheon vill
kaupa og flytja í Eyðimerkurstöðina.
Því leitar hann ekki
til þjóðaröryggisráðsins?
Það snertir dóttur þína, herra.
Hvar er Benny?
Er hann hættur á næturvaktinni?
Benny er dáinn.
Ég er nýi húsvörðurinn.
Gleður mig að kynnast þér.
-Sömuleiðis.
Tö*** aðra mynd.
-Nei, vertu hérna.
Ég er þreytuleg.
-Já, en þú lítur vel út.
Hvað er að?
Mig dreymir þessa drauma.
Þeir eru skelfilegir.
Segðu mér frá draumi þínum.
Hann hefst
á minningu. Ég held að það sé
fyrsta minningin mín.
Það er þessi mynd sem stendur mér
fyrir hugskotssjónum
þegar ég var kannski tveggja ára.
Heldurðu að það sé bara draumur?
Þetta gerðist þegar ég bjó
í eyðimerkurherstöð með pabba.
Hvað um það. Draumurinn heldur áfram
og allt í einu er ég orðin alein.
Það er hræðilegt.
Þú veist að ég ynni þér aldrei mein.
Hvað heitirðu, væni? Hvað heitirðu?
Allt í lagi. Það er allt í lagi.
Við verðum að tala saman.
-Bruce, vertu kyrr hérna.
C, T, G, A.
G.
Bruce.
Bruce minn.
Góðan dag. Glenn leit inn.
Því er hann hérna?
-Dr. Krenzler,
við höfum aldrei kynnst almennilega.
Ég vil ekkert eiga
saman við þig að sælda.
Farðu.
Kvíddu engu.
Ég vara þig við.
Hársbreidd er milli vinsamlegs
tilboðs og fjandsamlegrar yfirtöku.
Ég veit nóg.
Þú vinnur stórkostlegt starf.
Hugsaðu þér.
Hermenn með tækni sem gerir þeim
kleift að lækna sig
strax á vígvellinum
og við eigum þá.
Það er ansi ábatasamt.
-Starf okkar felst ekki í því.
Við vinnum vísindastarf
í allra þágu.
Ég á eftir að skrifa bók
og kalla hana:
Þegar greindir, snauðir vísindamenn
hafa heimskulegar hugsjónir.
Þú átt eftir að heyra frá mér
í millitíðinni.
Í sambandi við Glenn. Ég...
-Það er ekkert að segja.
Allt í lagi. Kvíddu engu.
Ég sé um þetta.
Hvernig þá?
Ég hringi til pabba míns.
Bið hann að beita smáþrýstingi.
Síðast þegar ég vissi
töluðust þið feðginin ekki við.
Nú höfum við víst eitthvað
um að tala.
Þessi rafrás bilar.
Kannski viltu líta á það.
Ég kem bráðum.
Nanóefnum sleppt - Gammageislun
Of mikil gammageislun!
Bruce, ég get ekki stöðvað þetta!
Tilbúið
Forðaðu þér, Harper!
Forðaðu þér!
Hvernig líður Harper?
-Hann er heill á húfi.
Þú bjargaðir honum.
Hann kemur tæplega aftur
á rannsóknarstofuna í bráð.
Ég skil ekki hvernig þetta má vera.
Þú ættir að vera dáinn.
Þau hrifu.
Nanóefnin.
Mér líður prýðilega.
Þau hljóta að hafa lagað áverkana.
Þau hafa drepið allt annað
sem þau hafa komist í snertingu við.
Gerði læknirinn...
Hann þaulrannsakaði mig.
Hann vill fá að vita hvar það fæst
sem ég tek inn.
Ég er stálhraustur.
Og rúmlega það.
Hvað áttu við?
-Manstu eftir meidda hnénu?
Núna er ég orðinn góður í hnénu.
Þetta er ekki fyndið, Bruce.
Ég fylgdist með þér.
Þú varst hætt kominn og þá hefði ég
horft upp á þig deyja.
Betty. Mér þykir þetta leitt.
Í alvöru.
Spring ég nokkuð?
Þú ættir að hvílast.
Það amar ekkert að mér.
Mér hefur aldrei liðið betur.
Þú heitir ekki Krenzler.
Þú heitir Banner.
Hvað þá?
-Þú heitir Banner.
Bruce Banner.
Hvernig komstu hingað inn?
-Ég vinn hérna núna.
Á rannsóknarstofunum. Á kvöldvöktum.
Þá get ég verið nálægt þér.
Þú vinnur lengi fram eftir
með vinkonu þinni, ungfrú Ross.
Nei, nei. Leyfðu mér að gera þetta.
Þú ert ekki heill heilsu.
Þú lentir í hræðilegu slysi.
Þú undrast að þú skulir
vera enn á lífi.
Þú heldur að það sé af völdum
þess sem er hið innra með þér.
Eitthvað sérstakt.
Dularfullt.
Ég get hjálpað þér að skilja það
ef þú leyfir mér það.
Ef þú...
...fyrirgefur mér.
Heyrðu mig.
Ég er viss um að ég þarf ekki
að fyrirgefa þér neitt.
Þú ættir kannski að fara núna.
Ég spjara mig.
Þú hlýtur að vita það.
Þú vilt kannski ekki trúa því
en ég sé það
á augnaráði þínu.
Alveg eins og í mömmu þinni.
Þú ert auðvitað afkomandi minn
en þú ert líka svolítið annað,
er ekki svo?
Sonur minn líkamlega séð
en líka hugarfóstur mitt.
Nei. Þú lýgur.
Foreldrar mínir dóu
þegar ég var lítill.
Það er rangt.
Þeir vildu að þú tryðir því.
Tilraunirnar, óhappið,
allt hernaðarleyndarmál.
Ég var lokaður inni í þrjátíu ár.
Þrjátíu ár!
Fjarri þér. Fjarri starfi okkar.
Þeir gátu ekki haldið mér lengur. Ég
er heilvita. Urðu að viðurkenna það.
Sjáðu til.
Allt sem einstakur hugur þinn
hefur leitað að í öll þessi ár
býr hið innra með þér.
Núna áttum við okkur á því.
Við virkjum það.
Ekki svara. Það er ungfrú Ross.
Þú þarft að fá að vita
svolítið uggvænlegt um hana.
Leyfðu mér að vernda þig
fyrir henni.
Nei. Farðu burt.
Farðu!
Sitjið!
Við verðum að gefa gaum
að þessum skapofsa í þér.
Er örugglega allt í lagi?
-Já. Glaður að vera kominn á ról.
Ég fékk skilaboð frá pabba mínum.
Hann ætlar að hitta mig.
Pabba þínum? Hvenær?
Vélin hans lendir eftir klukkustund.
Það skrítna er að hann hringdi.
Sæll, pabbi.
-Sæl, Betty.
Ég kem mér beint að efninu.
-Þú komst út af Glenn, er það ekki?
Hann hefur snuðrað
á rannsóknarstofunni minni.
Glenn tók eftir ýmsu.
Hann bað mig að spyrjast fyrir.
Komstu til að yfirheyra mig?
-Nei.
Ýmislegt óvænt kom í ljós.
Þessi Krenzler sem þú starfar með...
Veistu hver hann er í raun og veru?
Hvað veistu mikið um hann?
Spurningin er
hvað þú veist um hann?
Mér leyfist ekki að...
Að greina mér frá því. Einmitt.
Veistu, ég held að ég hafi vonað
að þú vildir kannski
hitta mig aftur í þetta sinn.
Þú rangtúlkar þetta alveg.
Er það?
-Já.
Ég vil hitta þig.
Ég vildi óska að ég gæti trúað þér.
Krenzler blóð
Allt sem einstakur hugur þinn
hefur leitað að í öll þessi ár
býr hið innra með þér.
Þetta er dr. Krenzler.
Skildu eftir skilaboð.
Bruce, ertu þarna?
Heyrðu mig, ég held
að ég hafi gert mistök.
Það er eins og pabbi minn
gruni þig um græsku.
Ég hlustaði ekki á hann
eins og vanalega.
Ég held að þeir hafi eitthvað
í hyggju með rannsóknarstofuna.
Hringdu. Bless.
Miðstöð!
Neyðartilvik á rannsóknarstofunni!
Sendu lögregluna
á vettvang tafarlaust!
Hvað gengur á?
Við verðum að tala saman.
Bruce minn.
Það varð sprenging.
Við fengum ekki að fara inn í húsið.
Ég óttaðist um þig.
Ég er heill á húfi.
Hvað kom fyrir þig í gærkvöldi?
Mig dreymdi mjög skýran draum.
Það var eins og ég væri að fæðast.
Næði andanum. Mikil birta. Ég æpti.
Hjartslátturinn í mér...
Varstu á rannsóknarstofunni?
En eitthvað...
Og það var þessi maður.
Maðurinn með hundana.
Hver?
Nýi húsvörðurinn.
Hann kvaðst vera faðir minn.
Ég skal fara til dyra.
Faðir minn.
Ja hérna.
Þetta er Bruce Ban...
Krenzler.
Þú skildir víst eitthvað eftir
á rannsóknarstofunni í gærkvöldi.
Mitchell, fylgdu dóttur minni
út fyrir. Ég kem bráðum.
Ég vil frekar vera hérna.
-Núna, Betty.
Það er allt í lagi.
Það verður allt í lagi.
Fylgstu með honum. Ég kem aftur.
Hvað?
-Vinur þinn þarna inni
er trúlega flæktur
í eitthvað varasamt.
Óuppgerð mál.
Ég ætla að komast
til botns í málinu.
Ég heiti þér því
að það verður hugsað um hann
en núna er hann í einangrun.
Og næstu daga
þá heldurðu þig fjarri
en það er þér fyrir bestu.
Er þetta heimilisfang
nýja mannsins á næturvaktinni?
Fínt. Þakka þér fyrir.
Dr. Ross. En óvænt. Komdu inn fyrir.
Leitt að birtast
svona fyrirvaralaust.
Ég kom til að spyrja þig að svolitlu
sem ég á ekkert með að spyrja þig.
Sagði hann þér það?
Hann sagði að þú
hefðir talað við hann.
Sestu.
Bruce var á rannsóknarstofunni
í gærkvöldi.
Hann sagði að þú hefðir verið þar
líka en hann man ósköp fátt.
Ég þarf að komast að því
hvað gerðist.
Þú vilt fá að vita hvað er að honum.
Svo að þú getir lagað hann.
Læknað hann. Breytt honum.
Pabbi minn er í hernum.
Hann heldur að Bruce tengist ógn
við þjóðaröryggi.
Faðir þinn, Ross.
Þú lætur pabba þinn
gera Bruce lífið leitt.
Þú skilur þetta ekki, ungfrú Ross.
Og fávísi þín er orðin hættuleg.
Hvað þá?
-Slepptu því.
Sonur minn er... einstakur.
Þess vegna skilurðu hann ekki.
Og sakir þess að hann er einstakur
þá þolir heimurinn ekki
að hann sé til, er það?
En þú...
Þú reynir það, er ekki svo?
Og bráðfalleg kona eins og þú.
Athygli þín getur ekki verið
alveg óæskileg,
er það?
Nei.
Ekki með svona augu
sem fylgjast með af eftirvæntingu
og af ástúð.
En við komum honum
of seint til hjálpar.
Ég get ekkert gert fyrir hann
né þig.
Hann tók af öll tvímæli um það
að hann vill ekki sjá mig.
Það er hans val.
Hafðu mig afsakaðan, ungfrú Ross.
Ég hef verk að vinna.
Og ekki fást um hundana.
Þú spjarar þig.
Horfðu bara ekki í augun á þeim.
Vertu sæl.
Honum er sleppt og mánuði síðar
er stofan þín eyðilögð.
Hvílík tilviljun.
Ætlarðu að segja mér hvar hann er?
Ég vildi gjarna hjálpa til
en ég veit það bara ekki.
Þú veist hver ég er, er það ekki?
Faðir Betty,
háttsettur hershöfðingi.
Slepptu bullinu.
Ég er maðurinn
sem lét loka pabba þinn inni.
Ég geri það líka við þig
ef ég vil það.
Því spyrðu mig ef þú lést
loka hann inni? Ég man það ekki.
Mér var sagt
að faðir minn væri dáinn.
Engin undanbrögð!
Þú varst 4 ára þegar þú sást það!
Þegar ég sá hvað?
Þú varst þarna!
Hver gæti gleymt slíku?
Hverju þá?
Fleiri bældar minningar.
Segðu mér það bara.
Mér þykir það leitt, vinur.
Þú ert jafnvel enn ruglaðri
en ég taldi þig vera.
Stofan þín hefur verið lýst
hernaðarleyndarmál í bili
og þér verður meinaður
aðgangur að henni
og að öllum öðrum stofum
sem gera meira en
að búa til næstu kynslóð
af jurtahárgeli.
Og eitt í viðbót.
Ef þú kemur innan við einn kílómetra
frá dóttur minni aftur
þá læt ég loka þig inni
fyrir lífstíð.
Hundar?
Af stað!
Náið henni!
Bruce?
Þeir þykjast geta sent þig burt
rétt eins og þeir gerðu við mig.
Hvað er að mér? Hvað gerðirðu mér?
Ég fékk heimsókn í dag.
Afar óæskilega heimsókn.
Ég þarf að gera það
sem er mér þvert um geð.
Hvað gerðirðu mér?
Þú vilt endilega fá að vita það,
ekki satt?
En engin skýring
dugir þér jafnvel og reynslan.
Ég skil það ekki enn sjálfur.
Ef ég hefði bara fengið
að vinna í friði.
En yfirmenn vildu það auðvitað ekki.
Þú gerðir þá tilraunir
á sjálfum þér, ekki satt?
Og ég fékk það að erfðum.
Erfðafræðileg breyting.
Afmyndun. Það má víst nefna það svo.
En það er líka
undursamlegur kraftur.
Og þegar hann losnar loks úr læðingi
þá virkja ég hann.
Nei.
Þú gerir það ekki. Ég einangra það
og lækna mig sjálfur.
Ég fjarlægi það og eyði því
áður en það veldur tjóni.
Þú og hún Betty þín
vilduð gjarna tortíma því.
En myndirðu í alvöru
tortíma hluta af sjálfum þér?
Ég held ekki.
Og hvað Betty viðvíkur
þá fær hún óvænta heimsókn
frá fjórfættum vinum mínum.
Mér tókst að rækta
kjarnsýrurnar í þér, Bruce,
með ótrúlegum árangri.
Árangurinn er óstöðugur
en mjög magnaður.
Hvað um kjarnsýrurnar í mér?
Bíðum og sjáum hvað
Betty finnst um árangurinn.
Nei. Þú ert óður.
Ég leyfi þér það ekki.
Láttu mig vera!
Farðu inn, asni!
Ég vil ræða við þig.
Pabbi minn ætlar að ráðast á Betty.
Hvernig dirfistu að fá Ross
til að útiloka mig frá verkefninu?
Hlustaðu á mig! Betty er í klandri!
Ömurlega viðundur.
Betty verður drepin.
Ef ég get bent á það augljósa
þá ertu ekki í aðstöðu til að vera
með heimskulegar hótanir.
Talbot?
Þú reitir mig til reiði.
-Er það?
Skjótið!
Hann sendi hundana, er það ekki?
En ég drap þá!
Þetta hlýtur að vera af völdum
nanóefnanna og gammageislanna.
En við höfum aldrei séð
áhrif í líkingu við þetta.
Nei. Það er djúpstæðari orsök.
Gammageislarnir leystu úr læðingi
það sem var til fyrir.
Hvað þá?
Mig.
Það.
Það er allt í lagi.
Það er allt í lagi.
Hvaða dýr voru þetta?
Faðir minn sendi þau.
Hann er faðir minn.
Hann vildi að ég breyttist.
Hann vildi að ég breyttist
í þennan heimska jötunn.
Því skyldi hann vilja það?
Manstu eftir einhverju?
Einhverju þegar þú breyttist?
Það var draumi líkast.
Um hvað?
Ofsa.
Kraft.
Og frelsi.
Pabbi?
-Er allt í lagi, Betty?
Ég er hrædd.
Ég þarf aðstoð þína.
-Hvar ertu?
Hvernig líður þér?
Ágætlega. Býst ég við.
Ég held að reiði þín
geri nanóefnin virk.
Hvernig þá? Þau eiga
að bregðast við líkamstjóni.
Tilfinningalegt tjón getur
gert vart við sig í líkamanum.
Hvaða tjón?
Alvarlegt áfall.
Bældar minningar.
Pabbi þinn spurði mig í þaula
um atburð í æsku minni
sem ég átti að muna.
Gerði hann það?
-Það hljómaði illa en...
Ég man það ekki í alvöru.
Það sem veldur mér kvíða er
að sár á líkamanum grær á endanum.
Tilfinningar halda hins vegar
stöðugt áfram
og koma af stað keðjuverkun.
Veistu hvað ég óttast mest?
Þegar það gerist,
þegar það kemur yfir mig
og ég missi algjörlega stjórn á mér,
þá kann ég því vel.
Ég styð þig. Mér þykir fyrir þessu.
Það verður allt í lagi.
Þú sofnar bara.
Skotmarkið óvígt.
-Skotmarkið handsamað.
Ég fer með þig á tryggan stað.
Bruce?
Í réttstöðu!
-Haldið áfram.
Við erum niðurgrafin
lengst úti í auðninni.
Hvað þarf hann að vera lengi
á róandi lyfjum?
Alla ævi, ef þörf krefur.
Þú sagðir ég gæti treyst þér.
-Ég er faðir þinn.
Þú getur treyst mér til
að gera það sem ég tel rétt
ekki það sem þú heldur að þú viljir.
Hann er manneskja.
-Hann er líka svolítið annað.
Ef hann skyldi nú sleppa
og fá reiðikast í þéttbýli?
Ég veit um hættuna.
Ég veit líka að hann
bjargaði lífi mínu.
Forðaði þér undan púðulhundi.
Ég stend í þakkarskuld við hann.
Hann kom þremur mönnum á sjúkrahús
og Talbot getur varla gengið.
Hvað viltu að ég geri?
-Ég vil að þú hjálpir honum!
Því finnst þér svona mikil ógn
stafa af honum?
Ég veit hver uppruni hans er.
Hann er sonur föður síns,
hver einasta sameind í honum.
Hann kveðst ekki þekkja föður sinn.
En hann vinnur á sama sviði
og faðir hans gerði.
Annaðhvort segir hann ósatt
eða það sem verra er...
Hvað?
Er honum ætlað
að feta í fótspor föður síns?
Ég ætlaði að segja fordæmdur.
Auðvitað.
En ég er vísindamaður
og sem vísindamaður
hygg ég að við getum leyst vandann
og hjálpað honum.
Ég veit það.
Hvort sem þú veist það
eða stendur á sama
þá er ég afar stoltur
af verkum þínum.
En þetta er of hættulegt fyrir þig.
Heyrðu, ég veit að yfirvöld
þykjast hafa vopn,
annars væri hann dauður.
Þeir geta rannsakað hann
eins og þeir vilja
en leyfðu mér að hjálpa honum.
Enginn þekkir hann betur en ég.
Hvað gerði David Banner honum?
Til vinstri! Til hægri!
Hvað er á seyði?
Höndin á mér.
Fyrir tilstilli kraftsins
í kjarnsýrum sonar míns
ásamt enduruppbyggingu nanóefnanna
þá get ég sameinast
kjarna allra hluta.
Ég verð að biðja þig
að rétta upp hendurnar, vinur.
Hægt og rólega.
Heldurðu í alvöru
að ég sé ólíkur þér?
Hvar er ég?
Þú ert heima.
Ótrúlegt til þess að hugsa
að við skyldum búa hérna.
Ég hlýt að hafa séð þig
eða þekkt þig.
Bara að ég gæti munað það.
Þetta er gamla húsið mitt,
er það ekki?
Förum.
Reyndu að muna það.
Hvað er að?
-Ekki neitt.
Í alvöru?
Fjárinn.
Gott og vel, Betty.
Hvað langar þig að vita?
Hvað var í þessu herbergi?
Hvað óttastu að ég sjái?
Það er ekki neitt.
Herbergið er tómt.
Því fæ ég ekki aðgang að honum?
Þjóðaröryggisstofnun ákvað
að láta rannsóknina á ógninni
í hendur Atheons.
Þú ert yfirmaðurinn.
Ég hélt að þú réðir öllu.
Ég móta ekki stefnuna.
Ég tek samt við fyrirmælum.
Ég trúi ekki að Talbot skyldi ræða
við yfirmenn án vitundar minnar.
Margir valdamiklir menn
vilja taka þátt í þessu
og ásælast það sem má græða á þessu,
en það er heilmikið.
Veistu hvað er verst við þetta?
Er ég lét loka David Banner inni
hugsaði ég ekki meira um hann.
Hann mátti bara missa sig.
En nú gegnir öðru máli, er það ekki?
Hvað get ég gert?
Þú getur farið heim.
Ég myndi segja þér að kveðja hann
en mér var sagt
að frekari samband
komi ekki til greina.
Einmitt.
Sæll, Bruce. Hvernig líður þér?
Er maturinn góður?
Hvað viltu?
-Það er góð spurning.
Ég vil að frumurnar í þér
komi af stað neyðarboðum
svo að þú getir orðið
aftur grænn fyrir mig
og ég geti skorið smábút af þér,
greint hann, fengið einkaleyfi
og stórgrætt á því.
Væri þér sama?
Ég leyfi þér það aldrei.
Þú átt fárra kosta völ.
Ertu ekki dálítið reiður?
Þú getur bara leikið við mig
síðan Betty fór aftur til Berkeley.
Þú lýgur.
Mér finnst þetta borðleggjandi.
Þú verður grænn,
hermennirnir drepa þig
og ég kryf þig. Ef þú breytist ekki
þá lumbra ég á þér,
geng of langt og hálsbrýt þig.
Það eru kannski léleg vísindi
en það verður sérlega
ánægjulegt fyrir mig.
Svona nú, Bruce.
Sýndu mér hvað í þér býr.
Aldrei.
Þú hefur kannski hemil
á reiðinni meðvitað
en öðru máli gegnir
örugglega í undirvitundinni.
Komum þessum heilabylgjum í gang.
Elskan mín, ungfrú Ross,
velkomin til baka.
Það eru tveir verðir frammi.
Kvíddu engu. Ég er ekki reiður
út í þig. Ekki lengur.
Hvað viltu?
Það eru öll sund lokuð. Ég veit það.
Líka bráðum hjá Bruce.
Þess vegna kom ég til þín
til að spyrja þig hvort
þú getir fengið föður þinn,
sem mann og föður,
að fallast á að gefi ég mig fram
á friðsamlegan hátt
og áður en hann lokar
mig inni fyrir lífstíð,
þá leyfi hann mér að sjá son minn
í síðasta sinn.
Geturðu gert það fyrir mig?
Þetta er ekki lengur
í höndum pabba míns.
Ég skil. Hann er strengjabrúða.
Ég áfellist hann ekki.
-Þú ættir ekki að gera það.
Ásakaðu sjálfan þig fyrir það
sem þú gerðir syni þínum.
Og hvað gerði ég syni mínum,
ungfrú Ross? Ekki neitt.
Ég reyndi að bæta
takmarkanir í sjálfum mér!
Í sjálfum mér, ekki honum!
Skilurðu það?
Að bæta eðli mitt. Eðli mitt.
Skilningur á sjálfum sér
er eina leiðin að sannleikanum
sem veitir manni mátt til
að ná út fyrir takmörk Guðs!
Veistu hvað er handan
takmarka þinna? Annað fólk.
Þú hefur bara látið Bruce ótta í té.
Ótta við lífið.
Ótta?
Kannski, ungfrú Ross.
Og líka einmanakennd.
Já. Ég finn fyrir hvoru tveggja.
En ég hef lifað
til fulls einu sinni.
Ég var svo ástfanginn.
Og hún þráði að eignast barn,
barnið mitt.
Ég vissi strax þegar
hún varð barnshafandi
að ég hafði ekki getið son við henni
heldur eitthvað annað.
Kannski ófreskju.
Ég hefði átt að binda enda á það þá
en ég var forvitinn
og það varð mér að falli.
Og þegar ég horfði á
þetta agnarlitla líf verða til
fór ég að gera mér hryllinginn
við það í hugarlund
og í stað forvitni
fylltist ég samúð.
En herinn spillti tækifæri
mínu til að lækna hann.
Pabbi þinn henti mér út.
Ég man glöggt eftir deginum,
hverja stund, hverja tilfinningu.
Þegar ég gekk inn í húsið.
Þegar ég hélt um hnífskaftið.
Ég vissi að ég gerði
skyldu föður.
Hættu þessu, David! Nei!
David, talaðu við mig!
En þá kom hún mér á óvart.
Það var sem
hún og hnífurinn
rynnu saman.
Farðu!
Þú getur ekki gert þér í hugarlund
hvað það er óbærilega endanlegt.
Ä þessu eina augnabliki
tók ég allt sem var mér kært
og breytti því
í minningu eina.
Hann hlýtur að hafa fengið
slæma martröð.
Dragðu út ensímið!
Hann kemst ekki í gegn.
Reyndu betur! Fullan kraft!
Á ég að bana honum?
-Nei!
Ég get ekki gert neitt
með klísturklessu.
Svæfðu hann.
Þetta stöðvar hann ekki!
Sendið inn menn okkar,
ekki nota banvæn vopn.
Ég verð að ná sýni úr honum.
Herra!
Almáttugur.
Skjótið froðu á hann.
-Skjótið froðu.
Talaðu við mig, Talbot.
Þetta er í öruggum höndum.
Óviðunandi.
Komið ykkur burt tafarlaust.
Farið núna.
Ég stöðva allar aðgerðir.
Lokaðu inngönguleiðum.
Heyrðirðu ekki í hershöfðingjanum?
-Lokaðu inngönguleiðum!
Farið frá!
Ég þarf að fá sýnishorn úr honum!
Allt í lagi. Vertu rólegur, vinur.
Þú finnur kannski svolítinn sting,
Bruce.
Hörfið! Hörfið!
Taktu skotfærin úr byssunni þinni!
Fáðu mér flaugabyssuna.
Vertu sæll, risi.
Lokaðu allri stöðinni á stundinni!
Læsingu lokið
Allar hæðir tryggar
Skotmarkið stefnir að bláu hæðinni.
Rýmdu aðalsalinn.
Sendu inn liðsauka með þungavopn.
Hámarksviðbúnað.
Geislamengun. Hættumörk mælast.
Varið ykkur!
Slökktu á rafmagninu í aðalsalinn.
-Herra?
Komið honum út.
Við berjumst við hann úti.
Stansaðu, bílstjóri.
Stansaðu, bílstjóri.
Skytta! Til hægri! Til hægri!
Hr. forseti.
Ég flyt slæmar fréttir, herra.
Lát heyra.
Ég sagði forsetanum
frá Reiðum manni.
Ég býst við að málið fjalli um það.
Það er rétt.
Ég óska eftir að fá
að beita kjarnorkuvopnum.
Enn stendur ógn af Reiðum manni.
Ég þarf að stöðva hann
með öllum tiltæ*** ráðum.
Býstu við mannfalli
í röðum óbreyttra borgara?
Ekki ef ég fæ nokkru ráðið.
Ég samþykki það. Láttu okkur vita.
Hafðu samband
við Goodman-stjórnstöðina.
Sendu gögn til þyrlusveitanna.
Hafðu samband við höfuðstöðvar.
Segðu þeim að rýma tafarlaust svæðið
í grennd við hnitin 653-216.
Staðfestu að svæðið hafi verið rýmt.
Höfuðstöðvarnar staðfesta það.
Þyrlusveitirnar fá gögnin.
Herrar mínir, tími til kominn
að koma okkur í varnarstöðu.
Ég vil láta stöðva
skotmarkið á staðnum.
Almáttugur.
Mayday! Mayday!
Fjárinn!
T-4 hrapaði.
Sendið hjálparsveit til okkar.
Komið honum burt frá okkur
áður en hann gerir út af við okkur!
Ég er ekki í færi!
Ert þú í skotfæri?
Gættu að þér, T.
-Beygðu til vinstri!
T-3, hörfið og gerið
leysistýrða flaug klára.
Ekki skjóta fyrr en
við komum honum burt.
T-1 er tilbúinn að skjóta.
Móttekið. Byssurnar eru tilbúnar.
Skjótið að vild.
T-1, hörfaðu!
Farðu úr skotmáli mínu!
T-flugmenn, farið frá.
Flaugarnar fundu hann.
T-1 er farinn frá. Skjóttu.
T-1, T-3. Ég hæfði skotmarkið.
Hvert í hoppandi!
Hann er með flaugina mína!
Mayday! Mayday!
Mayday! Við hröpum!
Segið mér hvað margir
komust lífs af.
Þyrlan okkar er ónýt
en við erum heilir á húfi.
T-sveit, sjáið þið skotmarkið?
Ég sé hann í klettunum.
Skjótið af alefli.
Breytið þeim í bílastæði.
Þrumufleygur,
bílastæðið þitt er tilbúið.
Við höfum aðeins eldsneyti
til að fljúga til baka.
Þrumufleygur,
skotmarkinu ekki tortímt.
Hann er aftur á ferðinni.
Fjárinn!
Ég sé hann.
Það lítur út fyrir
að hann ætli heim á leið.
Sendið þoturnar af stað.
Látið þær ráðast á skotmarkið.
Betty, Bruce slapp.
Hann stefnir til þín,
trúlega beint til þín.
Hvað ertu langt frá stöðinni?
Ég er komin hingað. Verið er
að færa pabba hans í varðhald.
Það eru gleðifréttir.
Haltu kyrru fyrir, Betty.
Goðsögn 1 nálgast óðfluga.
Goðsögn 2 fer til vinstri.
Ég get snúið við og skotið á hann.
Komið ykkur í skotmál.
Skjótið að vild.
Hækkaðu flugið.
Farþegavélar í grennd.
Fljúgðu hærra! Þú stefnir á brúna!
Ég næ ekki að hækka flugið!
Fljúgðu með hann
lengst upp í gufuhvolfið.
Athugum hvernig
þunna loftið leikur hann.
Ræsi aukabrennara.
Ég er kominn upp í
60 þúsund feta hæð.
Ég þen vélina til hins ýtrasta.
Þraukaðu, Goðsögn.
Ég næ ekki að halda stefnunni.
Hann truflar stýristækin.
Hann missir meðvitund á undan þér.
95 þúsund fet.
Ég get ekki verið í þessari hæð.
Ég sný við.
Lítilfjörlegi maður.
Hann er í sjónum.
Allar vélar í skotstöðu.
Tö*** enga áhættu.
Þið megið skjóta á skotmarkið.
Pabbi?
Við eigum ekki annars úrkosti.
Ég verð að tortíma honum.
Þú getur það ekki.
Þá eykst ofsinn í honum
og hann eflist.
Þú veist að hann ætlar til þín.
Leyfðu mér þá að fara til hans.
Ég bið þig.
Gefðu honum tækifæri til að róa sig.
Allar vélar hjá San Francisco,
þetta er Þrumufleygur.
Allt flug hefur verið
bannað á þessu loftsvæði.
Allar flugvélar eiga
að fara frá þessu loftsvæði.
Ekkó-19, vopnin eru tilbúin.
Skotmarkið er fundið.
Ég bíð eftir fyrirmælum
um að ráðast til atlögu.
Tilbúnir að skjóta.
Bíðið eftir heimild.
Allar sveitir, ekki skjóta.
Þrumufleygur til allra sveita.
Ekki skjóta.
Ég endurtek. Ekki skjóta.
Verið álútir!
Þú fannst mig.
Það var auðvelt að finna þig.
Já.
Svona verður þetta.
Hann verður í þessari stöð
þar til annað verður ákveðið.
Ef hann gerir eitthvað annað
en að sitja á þessum stól
setjum við rafmagnið í gang
og brennum hann til ösku.
Við girðum af 180 metra svæði.
Ef við beitum rafsegulbúnaðinum
ætti enginn að særast.
Ég geri þetta fyrir þig, Betty.
Búðu þig samt undir það versta.
Ég hefði átt að drepa þig.
Og ég hefði átt að drepa þig.
Ég vildi óska að þú hefðir gert það.
Ég sá hana fyrir mér í gærkvöldi.
Ég sá andlit hennar fyrir mér.
Brúnhærð,
brúneygð.
Hún brosti til mín.
Hún kyssti mig á vangann.
Ég man næstum eftir lykt
sem var eins og angan
af eyðimerkurblómum.
Eftirlætisilmvatnið hennar.
Þetta er mamma mín
og ég veit ekki einu sinni
hvað hún heitir.
Það er allt í lagi, sonur sæll.
Gráttu bara. Gráttu bara.
Gráttu. Þú hefur gott af því.
-Komdu ekki við mig!
Þú varst kannski
einu sinni faðir minn.
En þú ert það ekki núna
og verður það aldrei.
Er það satt?
Ég segi þér fréttir.
Ég kom ekki til að hitta þig.
Ég kom hingað til að hitta son minn.
Raunverulegan son minn.
Þann sem býr hið innra með þér.
Þú ert bara yfirborðsskel,
ytra borð veigalítillar vitundar,
tilbúinn að tætast af
með skömmum fyrirvara.
Þú ræður hvað þér finnst.
Mér er sama. Farðu bara!
Hlustaðu á mig, sonur sæll.
Ég fann lækningu.
Fyrir mig.
Frumurnar í mér geta líka breyst
og gleypt í sig
gríðarlegt magn orku.
En ólíkt þér þá eru þær óstöðugar.
Sonur sæll,
ég þarf á kröftum þínum að halda.
Ég gaf þér líf.
Núna verður þú
að gefa mér það aftur,
bara milljón sinnum
máttugra!
Hættu!
-Hætta hverju? Hætta hverju?
Hugsaðu um alla þessa menn
þarna í búningunum
sem gefa skipanir
og fara eftir þeim,
troða lítilfjörlegri stjórn sinni
upp á gjörvallan heiminn!
Hugsaðu um tjónið
sem þeir hafa valdið!
Á þér! Á mér!
Á mannkyninu!
Og við getum látið þá,
fánana þeirra,
lofsöngva og ríkisstjórnir
hverfa í einu vetfangi!
Þú í mér.
Frekar vil ég deyja!
Er þetta svar þitt?
Þá skaltu reyndar deyja
og síðan endurfæðast,
hetja af því tagi
sem var uppi á jörðinni
löngu áður en lítilmótlegir
trúarmenningarheimar
sýktu sál mannkynsins!
Farðu!
Hættu þessu væli,
ómerkilega úrþvætti!
Ég skal fara!
Horfðu á mig fara!
Ræstu tækið.
Aftur.
-Við getum það ekki.
Það er ekkert afl.
Eins konar gagnrafsegulsvið.
Ráðist á skotmarkið. Af stað!
Ég fann þá í ratsjánni. Í Pear Lake.
Ræstu sérsveitina.
Já.
Svona já. Haltu áfram að berjast.
Eftir því sem þú berst meira
því meiri kraft fæ ég úr þér.
Skrítið.
Undraverð lækkun á hitastigi mælist
ásamt geislavirkni.
Þeir gleypa í sig
alla umhverfisorkuna.
Sofðu núna, Bruce,
og leggstu í óminnisdvala.
Hættu að berjast
og gefðu mér alla krafta þína.
Heldurðu að þú getir lifað
með kraftana? Taktu þá.
Taktu þá alla!
Já. Já.
Taktu kraftana til baka.
Það hættir ekki!
Taktu kraftana til baka!
Herrar mínir, skjótið flauginni.
Gammageislaflaug farin af stað.
Dreymi þig vel.
Einu ári síðar
Betty? Ert þetta þú?
Sæll, pabbi.
Gott að ég skyldi ná í þig.
Ég er fegin að þú skyldir hringja.
Heyrðu, Betty.
Við...
Við vitum bæði að Bruce
hefði ekki getað lifað þetta af
en... þú veist.
Um hvað vildirðu tala?
Sömu vitleysingarnir
sem sjá fyrirbæri,
núna bara græn fyrirbæri.
Einmitt.
Heyrðu.
Ef hann skyldi nú
hafa komist lífs af
og reyndi að hafa samband við þig
þá segðirðu mér það, er það ekki?
Nei. Ég segði þér það ekki.
En þú veist að ég þyrfti þess ekki.
Síminn minn er hleraður
og fylgst er með tölvunni minni.
Ég er undir eftirliti.
Ég segi þér það samt
að ef hann væri á lífi
vildi ég síst að hann kæmi til mín
af því þótt ég sakni hans
þá elskaði ég hann. Ég...
Mér þykir það leitt, Betty.
Mér þykir það afar leitt.
Ég veit það.
Hlustaðu á föður þinn
og taktu inn lyfið.
Takið öll lyfin.
Þögn!
Setjist!
Þegið þið!
Við þurfum á þessum lyfjum að halda
handa íbúunum hérna.
Hvað þykist þú vita
hvað fólkið þarf?
Þetta fólk er óvinir okkar.
Og kannski ert þú það líka.
Takið allt þetta.
Þetta er eign ríkisins.
Þú gerir mig reiðan.
Þér líst ekki á mig
þegar ég kemst í reiðiham.