Tip:
Highlight text to annotate it
X
Faðir minn er rithöfundur
sem sérhæfði sig í ævintýrum.
Þetta er Benjamin Mee.
Ég er umkringdur hundruðum,
jafnvel þúsundum drápsbýflugna.
Væri ég ekki í þessum búningi
myndi ég deyja samstundis!
Má ég vinsamlegast fá athygli ykkar?
Hann tók viðtöl
við hættulega einræðisherra.
Farðu með þessi skilaboð
til ameríska kúrekans.
Farðu með þessi skilaboð
til ameríska kúrekans.
Við höfum þegar gefið Kína
10 milljarða dala olíuinneign.
Hafðu það, hr. Hættulegur!
Hvað er uppáhalds myndin þín?
Leikfangasaga.
Sú fyrri eða seinni?
Seinni.
Hann flaug jafnvel
inn að miðju fellibylsins Charley.
Það var fjórða stigs stormur.
Hve langt erum við frá miðjunni?
Um tvær mínútur!
Þessi fellibylur, herra,
Charley, þjarmar vel að okkur.
Segðu til þegar hann verður alvarlegur!
Hann þekkti flókið eðli
undarlegra og framandi ævintýra,
fram og til baka.
En ekkert bjó hann undir þetta.
Áfram. Við erum sein.
Svona nú. Við erum mjög sein.
- Pabbi, viltu laga hárið mitt?
- Já.
Pabbi, ég fæ mér bara vöfflur.
Nei, fáðu þér egg.
- Við höfum tíma.
- Við höfum ekki tíma.
- Mamma gaf mér alltaf möndlumjólk.
- Þú last ekki miðann.
Þú last ekki miðann.
- Þetta er ekki glútenlaust.
- Viltu gera það?
- Ég get ekki borðað þetta!
- Bauð einhver góðan dag?
- Halló, Benjamin Mee.
- Taktu dótið þitt.
- Pabbi, sjáðu hundinn!
- Ekki stíga á...
- Hæ, félagi.
- Hæ, Sharon.
Nei, ég kemst ekki í göngu.
Þetta er ekki góður tími.
Allt í lagi. Heyrðu,
ég ætla hringja aftur á morgun.
- Allt í lagi, takk fyrir.
- Frábært!
Hvar er maturinn okkar?
Hvað er á fótunum þínum?
Hreindýrainniskór.
Það er ég sem fæ tölvupóstana
um andleysi þitt. Skilið?
Annað hvort veistu um bókina eða ekki.
Pabbi, skiptir engu.
Ég veit það þegar ég kem í skólann.
Veistu hvað?
"Skiptir engu" eru mestu letiorð
20. aldarinnar.
Ekki meira "skiptir engu".
Ég vil ekki heyra það aftur á þessari öld.
"Skiptir engu" er búið.
Hann segir það alltaf. Hann hefur þá
ekkert að segja restina af öldinni.
Þú ferð ekki úr bílnum
fyrr en ég fæ nýtt orð.
Þú verður að einbeita þér.
Ef þú einbeittir þér að heimavinnunni
eins og listaverkunum þínum
þá gætirðu allt.
- En eins og er...
- Pabbi, ég kláraði The Seventh Tower.
... þá muntu falla.
Skaðlegur.
Þakka þér fyrir.
Gott orð.
Pabbi. Enginn fellir krakka
sem missti móður sína fyrir hálfu ári.
Hvað þýðir skað... skaðl...
skaðlegur?
Að valda skaða
eða eyðileggja eitthvað.
Valda skemmdum.
Út, út, út.
Áfram, krakkar.
Pabbi!
Allt í lagi.
Ég kaupi nýja tösku handa þér.
Komdu, elskan.
Hvar keypti mamma töskurnar?
- Hr. Mee?
- Engar áhyggjur.
- Hæ. Ó, allt í lagi.
- Benjamin, mér datt í hug...
Hérna, krakkar.
Hérna er taskan þín, elskan.
Hérna er ein og tvær. Bless.
- Bless, elskan.
- Bless, pabbi!
Bless, ástin!
Mér datt í hug...
Þetta er lasanja. Kvöldmatur fyrir þrjá.
Frábært, þakka þér fyrir.
Eða fjóra.
Veistu, bróðir minn
kemur reyndar í mat í kvöld.
Svo það er fullkomið.
Og ég skila þér disknum í vikunni.
Með tímanum. Með tímanum.
Með tímanum þá.
Þakka þér.
- Bless, pabbi.
- Bless, elskan.
Benjamin, ég hef komist að niðurstöðu.
Segðu frá, Dunc.
Þú ættir að biðla til stúlkunnar
sem við hittum á Jamba Juice.
Hún er gullfalleg.
Hún hringir í sífellu
til að bjóða mér í göngu.
Benjamin, gakktu alla leið með hana.
Látum okkur sjá.
Cerrado.
LOKAÐ
CERRADO
Bernie virðist
hafa lokað vegna breytinga.
Sem þýðir að Bernie er þunnur.
Er hún gullfalleg?
Telst hún gullfalleg á þessum tímum?
Hvað veit ég?
Ég var ofdekraður. Ég átti það besta.
Hvað annað höfum við hér?
Við höfum Little Dom's.
Nei.
- Heyrðu.
- Nei. Nei.
Sjáðu til. Heimurinn verður mjög lítill
ef þú forðast alla staðina
sem þið Katherine fóruð á.
Ég kynntist henni þar.
- Fyrirgefðu. Það er rétt.
- Allt í góðu.
Ég þarf líka að koma mér.
Viltu gera þetta í næstu viku?
Sjáðu til.
Þú verður að hleypa
smá sólskini inn. Skilurðu?
Mannleg samskipti eru af hinu góða.
Treystu orðum manns sem eyddi
sex mánuðum á fiskibát á Balí
í leit að sjálfum sér.
Manstu eftir því?
Já. Og veistu hvað ég uppgötvaði?
Ég saknaði fólks.
Svo gerðu mér greiða.
Reyndu að byrja upp á nýtt.
Ég skal reyna að byrja upp á nýtt.
- Þú ert myndarlegur!
- Sömuleiðis!
Allt í lagi.
- Ég elska þig, bróðir.
- Ég elska þig líka.
Þú ert góður maður.
Sólskin.
- Mannleg samskipti.
- Náði því!
Gleði.
Bítillinn John Lennon myrtur
Hlustaðu, McGinty.
GENGlÐ Á TUNGLINU
Ég fer að eldgosinu.
Og ég tek börnin með.
Og ég skrifa um heimsendi frá sjónarhóli
kynslóðarinnar sem mun bjarga heiminum.
Og við fjöllum um hve lífið er frumstætt
og að öll forritin og fartölvurnar
og hugbúnaðurinn í heiminum
geti ekki breytt því.
Og við köllum þetta... tilbúinn?
Heimsendir. Is.
Vá. Bara vá.
Gott, ekki satt?
Þetta gæti orðið þáttaröð,
eins og drápsbýflugurnar.
Þetta er djarft efni.
Þú ætlar ekki að segja já, er það?
Nei. Hlustaðu.
Við ættum að gefa þér dálk á netinu.
Þannig verður þú öruggur.
Þannig gerum við hlutina núna.
Ef blaðið fer á hausinn eða verður selt
verður þú samt öruggur.
Þú verður á netinu.
Ekki halda mér hér af...
Ég er ekki að því!
Af samúð. Ég hata samúð.
Ég er leiður á samúð.
Ég veit.
- Veistu hvað?
- Slæmir hlutir gerast. Maður heldur áfram.
Ég er hættur.
Benjamin. Þú misstir eiginkonu þína.
Á mörgum stöðum væri samúð
talin viðeigandi viðbrögð.
Nei, ég ætla ekki að vera hér
og lifa tilbreytingarlausu lífi
og búa við fjármagnaða meðaumkun.
Gerðu það! Leyfðu mér að reka þig
svo þú fáir bæturnar!
Þetta er meiri samúð! Nei!
Ég er hættur.
Og ég elska þig. Og þessa bættu olnboga.
- Þú ferð með mig.
- Ég mun sakna þín.
Sendu mér skilaboð.
Benjamin Mee.
Fágað. Mjög fágað.
Þau skildu peningakassann eftir á borðinu.
Þetta var því eiginlega þeim að kenna.
Þrír brottrekstrar á einni önn.
Það hlýtur að vera met.
Já, kannski fæ ég verðlaun.
Ertu virkilega að grínast núna?
Jesús, þetta er pirrandi!
- Pabbi, hættu.
- Nei, ég get lagað hann.
Pabbi, hér kemur hann...
Ramminn er dálítið laus. Ég...
Gefðu mér augnablik.
Ég er sáttur við
ískrandi gluggann minn, hr. Mee.
Reyndar líkar mér vel við hann.
Fyrir utan þjófnaðinn í dag
er myrkur hér
sem við verðum að takast á við.
Hr. Devereaux,
myndmenntakennari Dylans,
vill að þú sjáir veggmyndina hans.
Við ýtum undir
sköpunargleði í þessum skóla.
Þarna er góð notkun á orðinu "ást. "
Ást
Duttlungafull mynd af endurvinnslu.
Að vera grænn
Átakamikið verk um heimsfrið.
Hér er hinn mikli Bob Marley.
Við styðjum samt ekki
allt sem hann stóð fyrir.
Sólblóm.
Og gettu hvert þeirra sonur þinn á.
Skólinn leyfir þrjú brot, hr. Mee,
og brotið í dag var hans fjórða.
Því miður. Við verðum að reka Dylan.
En sem eitt foreldri við annað...
Ég myndi skoða sálarlíf hans.
Komum okkur.
Það var eins og hann
ræki mig fyrir listaverkið mitt.
Ég get næstum þolað listaverkið.
Ef Charles Manson myndi vilja
vegglistaverk gæti hann leitað til þín.
En nei, hann rak þig ekki
vegna listaverksins.
Hann rak þig því þú stalst.
Þú stalst!
Það fer alveg með mig.
Alltaf lasanja.
Pabbi, einn daginn þarftu
að borða eitthvað af þessu lasanja.
Elskan...
Eða henda því.
Hvers vegna fórstu ekki
heim til Sadie að leika?
Engin ástæða. Mikið að gera hér.
Heyrðu, Rosie?
Geri ég eitthvað rétt?
Þú ert myndarlegri en hinir pabbarnir.
Margir þeirra hafa ekki hár.
Svo það er gott.
Frábært. Þá þarf ég ekki
að hafa áhyggjur af skalla.
Gott.
Pabbi, ég get ekki sofið.
Nágrannarnir aftur.
Komdu.
Gleðin þeirra er of hávær.
Heyrðu!
Þetta er nýtt upphaf, hr. N.
Við eyðum öllum deginum í að skoða hús
og þér mun örugglega líka úrvalið.
Við viljum bara nýtt. Allt nýtt.
Ný tækifæri, nýja skóla, bara nýtt.
Við núverandi efnahagsaðstæður
muntu finna það strax,
kaupandinn er núna kóngurinn.
Það sem ég vil er stór bakgarður.
Staðgóðan, stórar brekkur.
Það verður mjög erfitt
að finna stórar brekkur í þessari borg.
- Það er bara ekki í boði!
- Þá það...
Bara litlar brekkur.
Brekkurnar þurfa ekki
að vera stórar, er það, elskan?
- Já?
- Bara nýtt.
Þetta snýst allt um nýlegheit.
Fólk elskar nýtt.
Ég elska nýtt. Fjandinn, ég er nýr!
Afsakaðu orðbragðið, en ég er nýr.
- Allt í lagi.
- Fjandinn, ég er nýr.
Gott að þú ert spenntur yfir því.
- Ég er spenntur fyrir nýju.
- Gott.
- Nýtt er hið nýja gamla.
- Nýtt.
- Nýtt, nýtt, nýtt.
- Nýtt.
- Mér líkar við þig.
- Sömuleiðis, Rosie.
Ég vildi að Dylan væri með.
Þetta er skemmtilegt.
Ég vildi líka að Dylan væri hér.
Því fleiri, því betra.
Það segi ég alltaf.
Mamma okkar dó.
Vá.
Ég samhryggist þér
og fjölskyldu þinni, hr. Mee.
Vá.
Elskan, hr. Stevens er ókunnugur.
- Hann þekkti ekki mömmu.
- Ég veit, en hann hefði átt að gera það.
Bara við að þekkja þig, Rosie,
elska ég mömmu þína.
Ég elska hana.
Veistu hvernig ég sé hana fyrir mér?
Þitt andlit á fullorðinni konu.
Hve lengi hefurðu unnið við þetta?
Þetta er fyrsti dagurinn minn.
- Virkilega?
- Ó, já. Fyrsti dagurinn.
Og nú hefst ævintýrið okkar.
Nei.
Aldrei.
Næstum.
Ekki alveg.
Nú fer möguleikunum fækkandi.
Pabbi.
Hvað ættum við að gera
við 7 hektara?
Ég skal vera hreinskilinn.
Rosemoor-eigninni
fylgja ýmsar áskoranir.
Eins og allt annað.
Satt, en ástandið hér...
Ég vil nota orðið "einstakt. "
Bíddu aðeins. Er þetta það?
- Já.
- Rosie.
- Og...
- Sjáðu.
Þú þarft ekki að taka mynd, Rosie.
Hvers vegna ekki?
Því við ætlum að búa hér.
Hr. Mee, við verðum að tala saman.
Ekki flýta þér um of.
Bíddu, bíddu. Hr. Mee,
ég tel þig of fljótan á þér.
Þetta er einmitt
það sem við leituðum að.
Róum okkur nú aðeins.
Metum þetta aðeins fyrst.
Ekki opna gjöf
fyrr en þú færð hana. Allt í lagi?
Þessi staður er fullkominn.
Hví nefndirðu hann ekki fyrr?
Það er pínu flókið.
Flókið er í lagi.
Flókið getur verið frábært.
Við elskum flókið, ekki satt?
Hvað er svona flókið við þennan stað?
Sjáðu til, það er...
Það er...
Hvað er það?
Það fylgja ýmis vandkvæði, hr. Mee.
Og...
Þetta er dýragarður.
Dýragarður?
Þetta er dýragarður.
Vei!
Vei.
Þetta var fullkomlega...
Allt í lagi.
Guð minn.
Mjög ógnvekjandi.
Hér var dýragarður í fullum rekstri
þar til fyrir tveim árum.
Þá var honum lokað.
Þrotabúið hefur haldið honum við.
- Haldið honum gangandi.
- Gæti ég
keypt eignina
og svo flutt dýrin annað?
Reyndar selur þrotabúið
eignina með þeim skilyrðum
að hver sá sem kaupir eignina
sjái um viðhald þessara dýra.
Láttu ekki svona.
Svo er líka það sem
eftir er af starfsliðinu.
Ef enginn kaupir eignina bráðlega
verður dýrunum líklega...
- Jæja.
- Jæja.
Þakka þér.
Ég veit ekkert um dýr og dýragarða.
- Ég meina, þetta er...
- Það er það.
- Svona er þetta.
- Svona er þetta.
Stundum þarf maður
að sjá til að trúa.
Þegar þú sérð hvað það er
þá geturðu fundið út
hvort það sé það sem það er.
Skilurðu?
- Nei, en við getum haldið áfram.
- Já.
Þetta er bara synd.
Já.
- Við höldum áfram að leita. Rétt, Rosie?
- Já.
Guð minn góður.
Ég tek hana einn dag úr skólanum
og hún er étin!
Hring í kringum Rosie.
Viltu smá mat?
Ertu svangur? Ég held það.
Synd að við getum ekki bara...
Þér finnst þetta líklega gott.
Mér líkar fjaðrirnar þínar.
Þær á höfðinu þínu eru flottar.
Og mér líkar...
Ekki?
Ég ætla að búa hér.
Ég ætla að eiga ykkur.
Þú líkist bróður mínum, Dylan.
Þeir borða allt kexið þitt.
Ég sagði "mannleg" samskipti.
Þetta gerist þegar fólk
verður fyrir áföllum í lífinu.
Það vaknar einn daginn og segir:
"Ég ætla að hætta í vinnunni
og reyna eitthvað alveg nýtt. "
En svo vaknar það annan dag.
Og segir: " Guði sé lof
"að eldri bróðir minn
lét mig ekki eyða arfi föður míns
"í ónýtan dýragarð í sveitinni,
"15 kílómetra frá næstu Target-verslun. "
En kannski sá
eldri bróðir minn ekki staðinn.
- Takk, Lupe.
- Sjáðu til.
Þetta eru örlögin.
Staðurinn fær 75%
af innkomunni yfir sumarmánuðina.
Ef ég fæ skoðun í enda júní
get ég opnað í júlí.
Núna er bara febrúar.
Það er mikið verk,
en ég held ég ráði við það.
Duncan, þú hefðir átt að sjá Rosie.
Ég grátbið þig,
gerðu eins og aðrir. Farðu til Vegas.
Tapaðu smá fé.
Eða gerðu eins og ég gerði
þegar Sheila fór frá mér.
Að veðja á hesta?
Það var frekar kjánalegt.
Byrja í rækjuiðnaðinum
og kalla sjálfan mig Dunk skipstjóra.
Byrja í klettastökki
í Akapúlkó 38 ára gamall.
Ég sakna Sheilu.
Ég veit.
Þá það, gleymdu því.
Ekki gera eins og ég.
Farðu yfir sorgarstigin.
En stoppaðu
þegar sebrahestar koma við sögu.
Það eru bara tveir sebrahestar.
Og ljón. Og jagúar.
Og 47 aðrar tegundir,
sjö þeirra í útrýmingarhættu.
Og þeim er öllum borgið
um leið og við gerum þennan samning.
Börnin verða svo spennt.
- Virkilega? Spennt?
- Já.
Verða þau virkilega spennt?
Þú ert að grínast!
Þetta er dýragarður!
Já.
Þessi dýr þurfa á björgun að halda.
Þurfa dýrin á...
Pabbi, vinir mínir eru hér!
Líf okkar er hér!
Heyrðu! Þú varst rekinn!
Hvað á ég að gera?
- Á ég að kenna þér heima?
- Nei.
Einmitt. Svo hvað ræddum við?
Nýjan stað.
Nýtt upphaf.
Þetta er það sem þú vilt.
Ekki það sem ég vil.
Hvað?
Þetta er dýragarður.
Ég flyt í dýragarð.
Við keyptum dýragarð.
Já, við keyptum dýragarð.
Gefðu mér gaffal.
Allt í lagi,
gefum þessari skyrtu nýtt líf!
Jæja, tvær eftir.
Gömul en góð.
Hvernig líst þér á?
Mamma klæddist þessari stundum.
Það er satt. Þetta var...
Ég átti hana fyrst,
en hún eignaði sér hana.
En hún er með rifur.
Erfitt að gefa sumt af þessu, ekki satt?
- Geyma hana?
- Tíminn er kominn.
Gefum þessari peysu nýtt líf.
Nýtt líf. Allt í lagi. Þá er komið að því.
Síðasti hluturinn.
- Aldrei. Við höldum þessum.
- Allt í lagi.
Við erum komin!
Sjáið, Jagúar-veitingahúsið!
Hversu frábært er þetta?
VELKOMNIR
HUGRÖKKU NÝJU EIGENDUR
Komið, krakkar.
Taktu kassa. Náðu í kassa.
Þetta má fara í eldhúsið.
Náði því, takk. Heyrðu, brostu.
Hefurðu komið inn fyrir?
Jæja, krakkar,
hér er allt geymslusvæðið!
Og það eru bakdyr að eldhúsinu.
Þetta er ný lykt! Vá!
Hvaðan kemur þetta?
Rosie! Sjáðu! Dauðar rottur!
Þetta er snákafæðið, ekki satt?
Ég sakna heimilisins okkar.
Það sem við gerum... Dyl, sjáðu þetta.
Það sem við gerum...
Þær eru frystar
og þú gefur snákunum þær.
Hæ. Kelly Foster,
yfirdýragarðsvörður.
ROSEMOOR
D ÝRAGARÐURINN
Einmitt.
Þetta er Robin Jones. Peter MacCready.
- Já.
- Robin er handverksmaðurinn okkar.
Og þetta er Crystal, hettuapinn okkar.
Og Peter er hugsjónamaðurinn okkar.
Hann byggði girðingarnar
sem eru fyrirmyndir
allra nútíma dýragarða í Bandaríkjunum.
Og í heiminum.
Og í heiminum, já.
Og Peter og Robin gera nánast allt.
Nema sjá um bókhaldið og símana.
Það er verk Rhondu þarna.
Þetta er frænka mín, Lily. Hún er 13 ára.
Hún má ekki vinna hér
svo við borgum henni svart
af launum mínum.
- Hæ, Lily.
- Hún er í heimakennslu.
Hún býr á landareigninni.
Vinnur á Jagúarnum.
Fleira var það ekki.
Þetta erum við, hr. Mee.
Gaman að hitta ykkur öll.
Ég heiti Benjamin.
Þetta er dóttir mín, Rosie.
Og stóri strákurinn minn, Dylan.
Og hundurinn okkar, Leon.
Og nú er þetta víst
dýragarðurinn okkar.
Og...
Við elskum húsið,
með lykt og öllu. Ekki satt?
Ég vil kalla okkur
nútíma ævintýrafólk.
Og stuðningsfólk dýra.
Allt í lagi, frábært. Komum okkur.
- Pabbi?
- Já, náði því.
Getum við séð otrana?
Mig langar að sjá þá.
Og snákana og apana.
Hversu gamall ertu?
Fjórtán ára, býst ég við.
Þegar þú mátt vera að
eru nokkrir hlutir
sem við þurfum að fara yfir
fyrir skoðunina.
Já, dýraeftirlitsmaðurinn, Walt Ferris.
Ég skal drepa hann.
MacCready, hættu.
Þetta er Buster.
Hann er 300 kílóa grábjörn.
Hann er mislyndur.
Hann fékk Paxil, en það er of dýrt.
Svo hann er þunglyndur endrum og eins.
Hann getur samt rifið af þér handlegginn.
Hæ, Buster.
Saknarðu lyfjanna?
Vá.
Þetta er Nathan.
Hann sér um vatn og mat.
- Hæ, gaman að kynnast þér.
- Hæ.
Það þarf að tala við dýrin
á mjög ákveðinn hátt.
Hann kann það ekki enn,
en hann mun læra það.
Hvar fékkstu þessa skó?
Og hvað kostuðu þeir?
Við erum með eina Target-verslun
og hún er 15...
Bíddu. Bíddu!
Ég hélt að þau myndu öskra
eins og ljónið Solomon.
Nei, tígrisdýr og ljón eru mjög ólík.
Tígrisdýr urra hvorki né öskra,
þau blása.
Eins og...
Já.
Þegar þú blæst þá blása þau á móti.
Reyndu, áfram.
Guð minn góður.
Þetta er Spar.
Hann er elstur. 17 ára.
Hann er Bengal-tígur.
Tígrisdýr eru með sérstaka skynjara
framan á augntönnunum.
Þau skynja hjartsláttinn í ósæðinni.
Svo þegar þau gera árás
bíta þau þig,
mæla hjartsláttinn með tönnunum,
færa tennurnar og búmm,
þá fer hálsslagæðin.
Vá.
Já.
Það eru nokkrar ákvarðanir
sem þú þarft að taka strax, Ben.
Benjamin. Pabbi minn var kallaður Ben.
Tígrisdýrið, Spar?
Hann þarf sérmeðferð
svo við fáum færan
dýralækni frá San Diego hingað.
Það kostar samt mikið og...
Það er í lagi, ég borga.
Hann er líka mjög gamall,
svo í raun vitum við ekki
hvað hann á langt eftir og...
Gakktu bara frá því. Hvað fleira?
Lélegir staurar.
Útbrot á skjaldbökunum.
Veik girðing á milli
jagúaranna og tígrisdýranna.
Þeim semur ekki.
Byrjum á staurunum.
- Þá það, staurarnir.
- Staurarnir í búrunum?
Staurarnir í hverju?
Þau kallast ekki búr,
heldur afgirt svæði.
Orðið "búr" hefur ekki
verið notað í um heila öld.
Stutta hjónabandið mitt, það var búr.
Ekki mitt.
Ég er með spurningu.
Þú ert einhver gaur úr borginni.
Enginn í dýragarðsstéttinni
hefur heyrt um þig.
Þú veist ekkert um dýr.
Og þú fluttir í hreysi.
Hvers konar manneskja
flytur og kaupir svona stað?
Sérstaklega með krakka.
Hvers vegna?
Þú hefur ekki hugmynd um
hvað er í gangi hér.
Áður voru þrefalt fleiri starfsmenn.
Þeir hættu allir.
Ég er 28 ára. Ég fer aldrei út.
Ég er hér á hverjum degi.
Vinkonur mínar senda mér skilaboð,
þær lifa lífinu,
hitta stráka sem heita Brett
á meðan ég moka skít hér.
Bjarnarskít!
Ég er aumkunarverð!
Ég varð að flytja
aftur til móður minnar.
Enginn fær borgað, Ben...
... jamin.
Við þurfum einhvern
sem getur tekið í taumana
annars erum við
og öll dýrin búin að vera.
Hver er þá spurningin?
Hvers vegna keyptirðu staðinn?
Hvers vegna ekki?
Ertu að koma?
Guð minn góður!
Þetta er svo skemmtilegt!
... myndir þú sofa hjá þessum manni?
Nei! Kelly, myndir þú
sofa hjá þessum manni?
Hafmeyja. Græn af öfund.
Hann gengur ekki með ljónum.
SÝNING PETERS MACCREAD Y
SVINDLAR Á DAUÐANUM
Hann svindlaði aldrei á dauðanum!
- Nei, það er satt.
- Hann...
Hæ!
Þetta er hættulegasta dýrið í skóginum.
Stóra, fullorðna karldýrið.
Velkominn!
Yah!
Walter Ferris. Ég drep hann!
Ég mun drepa hann.
Ég afhöfða hann með sverði.
Ég drep hann án þess að hika.
Og hann stal 500 dölum frá mér
á 9. áratugnum!
Hann er glæpon!
Hæ, Benjamin.
Stóllinn þinn, herra.
Hann stal öllum hugmyndunum mínum.
Og hann gaf þær frá sér til...
Sloane-dýragarðsins.
Sloane-dýragarðsins!
Hugsjónir mínar! Úrgangsskurðina mína!
Mín...
- Síkin?
- Síkin mín!
Og þeir lokuðu okkur.
- Allt í lagi.
- Þetta eru þjófar
andans.
MacCready.
MacCready er djúpur í kvöld!
Já! Djúpur!
Líka djúpur að innan!
Gjörðu svo vel, stjóri.
Velkominn í dýragarðinn þinn,
Benjamin Mee.
Þakka þér.
Hann mun aldrei endast.
Hæ, félagar.
Ykkur mun líka
nýja afgirta svæðið ykkar.
Heyrðu, allt í lagi.
Ekki slæmir.
Reyndar frekar viðmótsþýðir.
Ekki á nóttunni.
Verðið þið svolítið villtir á nóttunni?
Slettið úr klaufunum.
Smá næturfjör fyrir...
Fjárinn!
- Er allt í lagi, stjóri?
- Fjárinn!
Þú talar ekki enn
rétt við þá, stjóri.
Þú verður að vera hreinskilinn.
Ég tala aldrei aftur við þig,
litla ógeðið þitt!
Núna ertu að tala við þá. Vel gert.
SEBRAHESTARNIR BÍTA
VARÚÐ
Frábært. Ég fatta þetta.
Andleg vegferð og allt það.
Við erum öll í búrum.
Ég elska það. En
svo ég bendi á hið augljósa
þá ertu geðveikur. Allt í lagi?
Þú kemur sjálfum þér
í gríðarlegar skuldir!
Allt í góðu?
Já, allt í góðu. Takk.
Hver er þetta?
Þetta er Kelly.
Hver fjárinn. Allt í lagi.
Hér er endurskoðuð áætlun.
Losaðu þig við dýrin. Haltu Kelly.
Það er sönn gleði.
Þetta snýst um Rosie.
Hún er ánægð hér.
Rosie er sjö ára.
Búðu til skjámynd af dýragarði
og hún verður jafn ánægð.
Ég reyni að gefa þeim
alvöru bandaríska upplifun.
Og það endar með því
að þú býrð í alvöru
á sófanum mínum
með börnin þín tvö.
Ég sé þig fyrir mér
að vinna á akri í Bólivíu,
fyrir reiða menn.
Með stór yfirvaraskegg.
Farðu frá.
Hvað ertu að gera?
Viltu samloku?
Nei. Þetta er allt í lagi.
Hvernig fékkstu blóðnasir?
Ég rann á þakinu og rak nefið í.
Þetta er skrýtið hús.
Já.
Mér líkar teikningin þín.
Takk.
Hún er dálítið dimm.
Hvar er sólin?
Það er engin sól í undirheimunum.
Svo ég viti til.
- Ég er búin klukkan fjögur.
- Svalt.
Svo ég mæti klukkan 16:15
hvern dag og færi þér samloku.
Allt í lagi.
- Bless.
- Bless.
Hr. Mee? Við fengum
reikninginn frá fóðurfyrirtækinu.
Dálítið hár, því einhver
lét þá sendast á laugardegi.
Hæ.
Hæ
Dylan
Fleiri slæmar fréttir.
Afsakaðu það. Og ég skal
fara í Target ef þú vilt.
Ég held að sum fötin
hans Dwyers passi ekki.
Dylan. Hann heitir Dylan.
Fötin hans eru fín.
Og ég verð að segja
að ég elska þetta starf.
En ég fæ sífellt símtöl
varðandi yfirdrátt á ávísununum.
Þú ert þremur vikum á eftir með...
Krakkar. Ég gleymdi að kaupa smjör.
Hversu mikilvægt er smjör
fyrir þessa kvöldmáltíð?
Við kjósum.
Og munið,
það eru 15 kílómetrar
hvora leið í búðina.
15 kílómetrar.
15 kílómetrar þangað.
15 kílómetra hingað.
Svo við sem fjölskylda
verðum að spyrja okkur sjálf,
er smjörið þess virði
að pabbi keyri 30 kílómetra
núna til að ná í það?
Kjósum.
Langur dagur, Ben?
Langur dagur hjá þér.
Þú ættir að fara heim.
Við tö*** við.
Maísinn er tilbúinn!
30 kílómetrar eftir smjöri.
En ég er að segja Kelly
að hún þurfi að...
Hún þarf smá frítíma.
Svo láttu mig bara hafa verkefnalista
- og ég sinni því.
- Ertu viss?
Já, við ráðum við það.
Allt í lagi. Spar er með...
Ný lyf, svo ég skal...
Passaðu að setja þetta í matinn hans
- og að hann klári matinn.
- Skilið.
Slökktu ljósin í bílskúrnum.
Bílskúrinn.
Það er ný sending
af framandi sná***,
hafðu þá bara í flutningskössunum
og ég set þá til sýnis á morgun.
Og aparnir þurfa líka ávexti.
Farðu heim.
Farðu út.
Farðu í borgina.
Hittu vinkonur þínar.
Ég held að ég
hitti bara koddann minn.
- Þá það, góða nótt.
- Góða nótt.
Hluturinn.
Þú vildir að ég myndi eftir hlutnum
- og ég...
- Farðu heim.
Allt í lagi.
15, 2 kílómetrar.
Svo tæknilega séð eru það
30, 4 kílómetrar eftir smjöri.
Þú veist að ég fann smá, ekki satt?
Við Rosie
förum til tígrisdýranna
og gefum þeim vatn.
Vilt þú ekki fara í bílskúrinn
og slökkva ljósin í hliðarherberginu?
Pabbi, ég þarf að læra helling í kvöld.
Pabbi!
Kláraðu það!
Svona nú, Spar,
þú verður að taka lyfin þín.
Hann virðist þreyttur, pabbi.
Hann verður í lagi.
Ekki satt, félagi?
Sérðu? Honum líkar vel við okkur.
Þú veist að Dylan elskar þig?
Ég veit.
Honum gremst bara
að vinir hans heimsæki hann ekki hingað.
Hann hélt að þeir kæmu allir í heimsókn.
En enginn kom.
Þeir munu gera það.
LIFANDI SNÁKAR
VARÚÐ
Gætirðu beint annarri viftu að mér?
Það blása þrjár viftur á þig.
Mér líkar það.
Ég finn þig ekki einu sinni þarna.
Þú ert eins og síleskur námamaður.
Við verðum að ná í
Kelly og jafnvel MacCready.
Grafa þig út. Guð minn.
Þarna, þetta er frú...
- Engin önnur.
- Þarna er Rosie.
Var þetta hlátur?
Hvað? Ó, nei! Aha!
Ekki horfa nú. Þú ert ánægð.
Er gleðin þín of hávær?
Hver er með háværa gleði?
Hvað höfum við hér?
Þetta er gamli vinur okkar.
Ég hélt að þessi
kæmist ekki með í ferðina.
Fann mamma mikið til
áður en hún fór frá okkur?
Jæja...
Manstu eftir
kvöldinu sem við komum þér í háttinn
og þú spurðir mömmu að því?
- Ekki?
- Nei.
Jæja, hún sagði...
Hún sagði að það
liti verr út en það væri í raun.
Manstu? Hún sagði
að stundum virðist fólk mjög veikt
en að því líði ekki þannig.
Líður þér eins og þú sjáir hana ekki?
Já.
Og heyrir ekki röddina hennar?
En ég veit hvað skal gera.
Grípa andann hennar.
Grípa andann hennar. Það er rétt.
- Hérna kemur hann.
- Finndu hann.
Svona, já.
Og settu hann í hjartað þitt.
Hann datt. Náðu honum.
Haltu honum þarna.
- Sérðu hana?
- Já.
Er það?
Hún er aldrei langt í burtu.
- Einmitt þarna.
- Það er rétt.
Mamma yrði alltaf í hjarta þér
og öxlinni minni.
Ertu tilbúin í háttinn?
Viltu halda þessu?
Allt í lagi.
Allt í lagi, elskan.
Góða nótt.
Safaferna. Jógúrt og vatn.
Ég er með gullfisk.
Morgunkornsstöng fyrir þig. Þú ert seinn.
Lastu bókina yfir höfuð? Jesús...
Þú gantast við alla aðra en mig,
sem mér finnst skondið.
Veistu hvað mér finnst skondið?
Ég þarf að keyra þig
64.000 kílómetra í skólann.
Gjörðu svo vel, einn, tveir.
Og ég tók eftir því
að þú breyttir umræðuefninu.
Dylan er hrifinn af Lily.
Góða besta, hún er miklu yngri en ég.
Hún er 12 ára.
Það virkar ekki þannig.
Hún er um feti stærri.
Ekki vera lítil persóna.
- Ég er hálfviti.
- Gaur!
Ég hringi í Kelly.
Þessi virðist mjög ósáttur við mig.
- Þessi er stór.
- Já.
Við búum á snákabýli!
Allt í lagi. Þetta... vó. Svona nú.
Vá. Vá. Vá.
Já, ég... Fyndið, fyndið.
Gott að ykkur er skemmt.
Hvernig gat þetta gerst?
Hvernig fórstu að þessu?
Pabbi, þú getur ekkert sagt
sem er verra en ég segi við sjálfan mig!
Ég er ósammála!
Ég vil bara að þú sért ánægður.
Nema þú viljir það ekki.
Hvað er svo frábært við að vera ánægður?
Það að þú sért ánægður.
Fyrirgefðu að ég klúðraði snákaboxinu.
Skiptir engu!
Þú átt ekki
að segja þetta á þessari öld.
Hann er svo yfirlætislegur!
- Flott orð, kappi!
- Já!
Skiptir engu!
Þú sérð að ég strengi kapalinn
við hækilbeinið, alveg við miðjuna.
Ég læt þig hengja þetta hræ upp í tré.
Það er gott fyrir tígrisdýr að leita fæðunnar
eins og úti í náttúrunni.
Frábært.
Þetta kemur mér líklega ekkert við,
en ég tók eftir því
að krakkinn þinn pirrar þig mikið.
Þú gefur honum mikið eftir.
Mér líkaði ekki
hvernig hann sparkaði í snákinn.
Mér finnst eins og ég
ætti að hjálpa þér.
Þetta er allt í góðu.
Hann er 14 ára
og þurfti að ganga í gegnum dálítið
sem ekkert barn ætti að þurfa að þola,
svo ég gef honum smá svigrúm.
Í raun veit ég ekkert.
Ég reyni að átta mig. Það fylgja engar
leiðbeiningar því sem gerðist.
Fyrir stuttu bjó hann til pappaflugvélar
og nú málar hann afhöfðanir.
- Mjög flottar myndir.
- Já, jæja,
hvað veit ég?
Ég bý enn hjá móður minni.
Ég kann illa á fólk.
Þú stendur þig prýðilega.
Ég bjóst við
að þú yrðir flúinn núna.
Við lifðum þennan dag af.
Já, við lifðum hann af.
Hætta, hætta! Kelly, heyrirðu?
- Allir klárir!
- Móttekið, allir klárir.
Hemjið myrkrahöfðingjann.
Það er Walter Ferris.
Nei, nei, nei. Hann á að koma
í skoðunina viku fyrir opnun.
Hann hefur ákveðið að kíkja í heimsókn.
Já, en við erum alls ekki tilbúin.
Vertu bara þú sjálfur.
Þetta er upp á líf og dauða.
Allt í lagi, skilið.
Haltu MacCready frá honum.
Við viljum ekki blóðbað í dag.
- Hleyptu mér út!
- Fyrirgefðu, MacCready!
Hurðin virðist vera föst!
Benjamin Mee.
- Walter Ferris.
- Komdu sæll.
Skoðunin okkar verður
viku fyrir opnun,
eftir því sem mér skilst.
Svo ég bað um 30. júní sem myndi
gera okkur kleift að opna 7. júlí.
Ég er hér í innliti, hr. Mee.
Frábært. Bó*** þá innlit.
Við erum nýkomin hingað, hr. Ferris.
Innlit, hr. Mee,
felur í sér að vera óvænt.
Ég skrifa niður punkta
fyrir alvöru skoðunina.
Sem og ég.
Okkar hlutverk er að tryggja gott viðhald,
ekki einungis að veita leyfi.
Velkominn í dýrareksturinn, hr. Mee.
Það er skemmtileg veisla.
Hvar er dýragarðsvörðurinn þinn?
Það er ég. Kelly.
Halló, Kelly.
Ég taldi þig aðstoðarkonu.
Engin formleg þjálfun?
Ég vann mig upp.
Hvers vegna keyptirðu þennan stað?
Ég bara get ekki
skilið það.
Vá.
Veistu, reyndar
hefur mikið verið skrifað um
nýbreytnina í hönnun afgirtu svæðanna
sem Peter MacCready byggði.
Ég veit allt um MacCready.
Ég kom hingað löngu á undan þér.
Og ég veit líka
hvað er á Jagúarnum.
Það vantar 20 sentímetra.
Þetta er eftir reglugerðum.
Ný viðmið taka gildi í ár.
Hækkið líka handriðin.
Ég myndi líka setja það í forgang.
Ég sé að eitt tígrisdýrið er 17 ára?
Já, hann Spar hérna.
Hann glímdi nýlega
við nýrnasjúkdóm.
Hann er núna í rénun.
Nú glímum við bara
við smá mjaðmalos.
Hefurðu ráðgert endalok hans?
Hluti af mannúðlegri meðferð dýra
er að undirbúa hið óumflýjanlega...
Hann hefur það fínt.
Dýralæknirinn frá San Diego skoðaði hann.
Svo það er allt í góðu.
Að lóga stóru kattardýri
getur verið mjög kostnaðarsamt.
Ég skil það, en það er ótímabært.
Þakka þér umhyggjusemina.
Ég bara skil ekki hvernig
þú getur kallað þennan stað heimili.
Veistu hvað? Svona.
Þetta er heimilið okkar.
Hvar er góðvinur minn MacCready?
Hvar er Ferris?
Hann lét okkur hafa
12 meginforgangsatriði,
tvö í miðlungsforgang.
Við höfum mánuð.
Hvað getum við klárað á mánuði?
Ég drep hann!
Ferris!
Hvað mun þetta kosta?
Ég þarf að skoða mig um.
Skoða það efnislega,
en þú munt þurfa
að punga út meira fé.
Hve miklu?
Um það bil 1, 5.
- Kannski 1.
- Allt í lagi.
1, 5 dölum?
Ég á það til.
Gott, náðu í það.
Við þurfum á því að halda.
Gott.
Allt í lagi.
Allt í lagi. Allt í lagi.
Allt í lagi.
Ég ætla í smá göngu
og leggja höfuðið í bleyti.
Jæja,
Ferris þráir þig.
Ég fórna mér ekki fyrir heildina,
eigir þú við það.
Ég gaf ekkert þannig í skyn.
Aldrei.
Synd með nýja stjórann.
Nýkominn og íhugar strax að hætta.
Hví segirðu það?
Þetta er líkamsstaða manns sem hættir.
Ferris, helvítis ógeð!
Vá.
Þetta er slæm tímasetning.
Systir þín er veik heima.
Og þú, ég meina...
Hvernig geta þeir
sent einhvern heim fyrir önuglyndi?
Ég veit ekki.
Þetta er viðkvæmur skóli.
Buster?
Dyl, geturðu rétt mér símann minn?
Hann er í miðjuhólfinu.
Fann hann.
Kelly. Benjamin.
Allir í stöður! Buster!
- Við komum upp hæðina.
- Hann fór inn í skóginn!
Buster!
Ég tek þessa hlið!
Ég hringdi í dýralækninn frá San Diego!
Hann mætir með stóra bílinn,
en það verður dýrt!
Ég borga það sem þarf!
Flóttinn má ekki fréttast!
Það myndi knésetja okkur.
Buster! Ég veit þú ert þarna! Buster!
Buster!
Hæ, Buster.
Höngum aðeins saman.
Látum sem við séum í dýragarðinum.
Buster, þetta er stór byssa
og ég vil ekki skjóta þig.
Fjárinn.
- Hittirðu?
- Ég hitti.
Hann var skotinn með sterku deyfilyfi!
Ekki hreyfa þig, hr. Mee!
Hann gæti verið að plata.
Vel gert, hr. Mee!
Ég hef hann.
Svona talarðu við hann, Benjamin.
Já, Kelly Foster.
Ben tafði hann, hann er í lagi.
Hann lék sér að þér, góði minn.
Það gera þeir
áður en þeir ráðast á þig.
Ég sá hann á hæðinni. Algjörlega frjálsan.
Þú varst blessaður.
Ég vil stækka afgirta svæðið hans.
- Stækka það?
- Gera það miklu stærra.
Þú ræður.
Þú vannst störukeppni við
340 kílóa norður-amerískan grábjörn.
Buster virðist ætla að verða í lagi.
Ég tek við Visa. Ég kýs helst Mastercard.
Fyrir Benjamin.
Hetjunni okkar.
- Benjamin! Já!
- Hr. Mee!
Það heimskulegasta sem ég hef gert.
Þakka ykkur fyrir.
Ég elska að þú varst skírður eftir Bob Dylan.
Bob Dylan.
Heyrirðu hljóðið?
Þetta eru refapar.
Þeir eru prímatar, þeir hljóma
eins og hlæjandi fólk í fjarska.
Þeir hræða mig.
Þú hljómar eins og refapi.
Hvað?
Ég óttast að Lily muni særa Dylan.
Nei, það verður á hinn veginn.
Hvernig færðu það út?
Því hún er sveitastelpa, Ben... jamin.
Og
hann er eins og framandi vera úr borginni.
- Framandi? Sonur minn?
- Já.
Ég óttaðist að þér þætti hann
hálfgerður skíthæll.
Ég býst við að Rosie
líkist konunni þinni og Dylan þér
og því ertu svona strangur við hann.
Ég vil að þú vitir
að mér finnst þú ótrúlega sæt.
Ekki móðgast
þó ég reyni ekki við þig.
Ég myndi móðgast ef þú gerðir það.
Gott.
Ég vil að fólk
komi fram eins og það er.
- Einmitt.
- Svo við hugsum eins.
Það gerum við.
Og vildi ég að þú kysstir mig
þá fengirðu ekkert val.
Takk. Held ég.
Ég efast ekki um það.
- Hvað sögðum við?
- Ég veit það ekki.
Allt í lagi.
Þetta er mikið að takast á við. Okkur öll.
Sjáumst við ekki á morgun?
ÖRYGGISHÓLF
KATHERINE MEE
Það hryggir mig að segja ykkur frá þessu.
Ég skoðaði reikningana hans.
Reikningur dýragarðsins er tómur.
Hann á ekkert fé.
Hann veit ekkert hvað hann er að gera.
Hann mun enda með
að selja staðinn fyrir slikk.
Bara fyrir landsvæðið.
Það er rétt, Robin!
Ég vara ykkur við núna.
Undir yfirborðinu er annað yfirborð!
Benjamin Mee er svikahrappur!
- Hæ.
- Hvað annað áttu?
Það er slæm hugmynd. Ég hringi síðar.
Líttu á þetta.
Hún skildi eftir innleggsnótu.
Og hún leiddi mig þangað.
Komum okkur.
Veistu hvað hún gerði fyrir þig?
Ég held það.
Hún vissi nákvæmlega
hvað þú myndir gera.
Fjárfesta illa, byrja nýtt líf
og þurfa eitthvað til að taka fallið.
Þetta tekur af þér fallið.
- 84.000 dalir.
- Guð minn góður.
84.000 dalir.
Ótrúlegt.
Hún passar enn upp á þig.
"Sirkusfé"
Hún kallar það sirkusféð þitt.
Sirkusfé, já.
- Næsti hluti er pínu særandi.
- Já.
"Hlustaðu á hjarta þitt,
ekki bróður þinn. "
Ég las það. Hún elskaði þig.
Hún notaði þrjú upphrópunarmerki.
Hún elskaði þig.
Ég skil hví þú ert henni enn trúr.
Já, en með 84.000 dölum,
við hagræðum kannski aðeins,
en ég veit að við stöndumst skoðunina.
Nei, Benji.
Þetta eru skilaboðin hennar.
Þú ert frjáls. Þú skilur það.
Hlustaðu.
Benji.
Þú gerðir það. Þú fórst í sirkusinn.
Þú breyttir lífi Dylans og Rosie.
Þau munu alltaf eiga minningarnar.
En að vera um kyrrt
og missa allt úr höndunum,
Katherine vildi það ekki.
Hún vildi að þú fengir frelsi.
Þetta fé er leiðin þín út.
Og ef þú hlustar ekki á bróður þinn,
endurskoðandann,
hlustaðu þá á konuna þína
sem skipulagði
fjárhagslega örugga framtíð fyrir þig.
Allt í lagi.
Hérna.
Takk.
Ég heyrði að þið færuð kannski fljótlega.
Virkilega?
Já.
En ef þú vilt að við
verðum áfram vinir er ég til í það.
Það eru alltaf til bílar og allt það.
Já, auðvitað,
en ertu að meina þetta?
Já! Þetta er frábært.
Ég fer heim.
Hitti vini mína.
Ég þarf að fara.
Ekki segja neinum hvað ég heyrði.
Sjálfsagt! Takk!
Þú þarft ekki að fara strax.
Ég fer heim.
Það er Rhonda.
Hún ætlar að vinna í Mexíkó
og hún sneri öllum gegn þér.
Þau eru öll inni. Hún segir
að þú eigir ekki meira fé.
- Hún kallar þig svikahrapp.
- Ég sé um þetta.
Jæja...
Ég vil bara segja
að þetta hefur verið ótrúleg upplifun.
Ég hef kynnst ykkur öllum
að einhverju leyti.
En eins og efnahagsástandið er,
tel ég að enginn hafi búist við...
Jæja...
Ég veit ekki hvernig skal orða þetta.
Ég hef verið ævintýrafíkill allt mitt líf.
Og látið mig kostnað litlu skipta.
Eða engu máli skipta.
Í raun var ég bara
áhorfandi og rithöfundur.
En þetta er mitt fyrsta alvöru ævintýri.
Og mig langar bara að segja
að það hefur verið það besta af öllum
því það er persónulegt.
Og þökk sé henni Katherine minni
þá er til fé.
Ég veit ekki hvað ykkur var sagt,
en ég get sagt
að þótt ég eigi ekki mikið
þá á ég nóg til að bjarga okkur.
Og ef þið styðjið mig
mun ég leggja mig allan fram.
En þið þurfið að gera það líka
og við munum opna þennan dýragarð aftur.
Þetta er besta starf í heimi.
Og það þarf að leggja allt í sölurnar
til að þetta gangi upp.
Svo ekki gefast upp á ævintýrinu okkar.
Þetta dugar mér.
- Mér líka.
- Búið og gert.
Allt í lagi.
Já!
Sirkusfé.
Ævintýrið okkar er rétt að hefjast.
Ég átti ekki við það.
Ég veit.
Og Rhonda?
Ég óska þér alls hins besta í Mexíkó.
Ég tala ekki spænsku.
Adiós.
Allt í lagi.
VARÚÐ
D ÝRIN GETA BITlÐ
Klippa!
- Allt í lagi!
- Næstum búið, félagi!
Varstu að fá þessa húfu?
Vaknaðirðu í morgun
og hugsaðir með þér...
Það er kalt.
... "Ég set upp þessa húfu. "
Nú? Hvernig lít ég út með hana?
Spar mun örugglega líka þetta.
Þurfum við eitthvað fleira úr mannheimum?
Nei. Ég er góð.
Er það?
Hvers vegna segirðu
ekki lengur sögur?
Því við erum að upplifa söguna.
Ég vildi geta sagt mömmu hana.
Heldurðu að mamma viti ekki af henni?
Ég veit að hún veit.
Ég líka.
Allt í lagi. 74, 39 dalir.
Ég ákveð ekki verðið.
Nei, það er ekki verðið. Heldur ég.
Það er mjög snjáð.
- Kannski virkar það ekki.
- Það mun virka.
- Það mun virka.
- Nei, nei.
Það stendur bara
"Rosemoor-dýragarðurinn".
- Það stemmir.
- Vinnurðu þar?
Já, og á líka staðinn.
Ótrúlegt en satt.
- Við keyptum dýragarð!
- Róaðu þig.
Ég elska þann dýragarð!
Í alvöru?
Við fórum alltaf þangað.
- Opnar hann fljótlega aftur?
- Já.
Við opnum eftir nokkra daga.
Við stefnum á 7. júlí.
7. júlí. Veistu hvað? Ég mæti.
Taktu frá níu miða fyrir mig
því ég mæti með tengdafólkið.
Og kannski fleygjum við
nokkrum þeirra fyrir tígrisdýrin.
Þakka þér kærlega fyrir.
Afsakaðu. Herra! Ljósaperurnar þínar.
- Þakka þér.
- Þakka þér.
- 7. júlí.
- 7. júlí.
Viltu heyra dálítið klikkað?
Ég held að þetta muni blessast.
Svona nú, við ræddum þetta.
Borðaðu matinn til að fá lyfin þín.
Þín bíður rosaleg víma í kjötinu.
Taugaboðefnin munu þjóta
til tunglsins og til baka.
Þú nærð þér í 7 ára læður.
Nærð í alla húsketti héðan til El Cajon.
Félagi, ef þú étur ekki matinn
og færð ekki lyfin þín
mun staða þín versna snarlega.
Ég segi það satt.
Treystu mér.
Svona nú, alveg að koma.
Þú verður að standa þig.
Það líður að opnuninni.
Hann hefur það fínt. Hann er í lagi.
- Hæ.
- Hann fór upp og kemst ekki niður.
Getum við notað stigann?
Við reyndum að lokka hann með mat.
Hann verður að koma niður.
Hann þarf að éta mat, drekka vatn,
taka lyfin sín.
Hann er ofþornaður.
Við verðum að
koma honum á afgirta svæðið.
Eru hin tvö inni?
- Benjamin!
- Ef hann reynir að ráðast á mig
hreyfir hann sig þó, ekki satt?
- Hann er seinn, ég sting hann af.
- Þetta er ekki nautaat.
Benjamin!
Tíminn er kominn.
Fyrir hvað?
Hann er tilbúinn.
Hringjum í dýralækninn.
Þú ert eigandinn.
Þú þarft að samþykkja það.
Nei.
Þetta virðist ekki rétt.
Benjamin, það virðist það aldrei.
- Fastur?
- Já, hann er fastur.
- Hugmyndir?
- Hávær hljóð hræða stóru kettina.
Hávær hljóð hræða stóru kettina.
Bíðið aðeins.
Við getum hrætt hann aftur inn.
Það er góð hugmynd.
- Þegar ég gef merki...
- Bíðið aðeins.
... kallið þið, öskrið,
verið með mikinn hávaða.
Spar mislíkar það,
en kemur kannski niður.
Það er okkar eini kostur.
- Bíðið.
- Náið í potta og pönnur
og fleira þannig, skilið?
Nathan? Farðu á rás 2.
Nathan? Nathan, vaknaðu!
Svona, niður!
Komdu niður, Spar!
Við elskum þig, Spar!
Komdu niður, Spar!
Komdu nú niður!
Svona, elskan, komdu niður!
Komdu niður, Spar! Niður!
Svona nú, Spar! Komdu niður!
Niður af klettinum, Spar!
Komdu niður!
Svona nú, kappi, svona nú!
Gerðu það sem er þér fyrir bestu.
Viltu fara niður af klettinum?
Viltu hlusta einu sinni
og gera það sem er þér fyrir bestu?
Svona nú, Spar! Svona nú!
Þú ert dýr!
Þú getur ekki gert þetta fyrir mig!
Svona nú, elskan!
Svona, já! Farðu þangað!
Af klettinum! Af klettinum!
Heldurðu að ég vilji gera þetta?
Heldurðu að ég vilji koma
og draga þig hingað?
Ég gerði það
því ég var örvæntingarfullur!
Benjamin?
Mér finnst vöntun á meira næði.
Kannski erum við
of mikið ofan í hvert öðru.
Sérðu ekki fæturna hans? Hann þjáist.
Hann þjáist mikið.
Ég þoli ekki að sjá það.
- Ég þekki hann. Ég sé það.
- Ég þekki hann.
Heyrðu! Heyrðu!
Hann er sárkvalinn.
Þau segja það ekki, en sýna það.
Hvað var þá málið með hvatningarópin?
- Hann verður í lagi.
- Það mun gerast.
Hann er betri.
Það mun gerast.
- Ekki endurtaka eins og ég sé krakki.
- Það mun gerast.
Þú hefur aldrei gert þetta áður!
Þú veist ekki hvernig þetta endar!
Ég veit það nákvæmlega.
Og þú mátt segja mér frá því síðar.
En þetta eru byrjendamistök.
Ég hef þekkt hann í 13 ár.
Sérðu ekki hve sjálfselskt það er
að fresta þessu? Þú veist betur.
Leyfum honum að lifa
í nokkrar vikur í viðbót.
Útvegum honum lyf
og fjárfestum í smá von!
Nei, ég horfi ekki upp á þetta gerast!
- Ég geri það ekki!
- Það er ekki þín ákvörðun.
Það mun gerast.
Ekki reita mig til reiði.
Því það yrði alveg hræðilegt.
Þú veist hvað er réttast!
Þú veldur mér vonbrigðum.
Þú þekkir mig ekki einu sinni nóg til þess!
Hæ, Lucy.
Hvenær ætlarðu að eignast börnin?
Hæ, Rosie. Er pabbi þinn við?
Hann sagðist ætla að hugsa.
Hann gerir það stundum.
Eruð þið að elda?
- Nei.
- Ég skal aðstoða ykkur.
- Ég skal panta pítsu.
- Nei, það er í lagi.
Pabbi kemur bráðum.
Hann er bara í vondu skapi.
Hve lengi endist það?
Nokkur ár.
Pítsa, pítsa, pítsa.
Lyktar vel.
- Vel gert.
- Takk.
- Saknarðu Lily?
- Ég?
- Nei.
- Þú nýtir líklega tilfinningar þínar
- í teikningarnar þínar?
- Nei, í raun ekki.
Ég er lélegur í að tala við stelpur.
Það er auðvelt.
Þær segja þér allt.
Galdurinn við að tala er að hlusta.
Ég hélt að ef ég kæmi hingað
þá myndi það hætta.
Heima minnti allt mig á hana.
Filippe's á þriðja stræti. Balboa-garðurinn.
Little Dom's, kaffihúsið,
það er það stærsta.
Loftið, hvernig það lyktaði í maí og ágúst,
því þá mánuði
uxu blóm á uppáhalds runnunum hennar
út um allt hverfið okkar.
Allt minnti það mig á hana.
Og það skánaði um hríð.
Það skánaði hérna.
En það fyndna er að
það kom í ljós að hún er hér líka.
Ég fer í Home Depot.
Ég fer í Target 15 kílómetra héðan.
Við þurfum nýja búð.
Og í alvöru
þá forðast ég helminginn af göngunum.
Krydd.
Sætabrauð, gleymdu því.
Hún elskaði rauða flugdreka
og bláberjabrauð.
Eins og allir, ekki satt?
Eins og allir.
Bara ef ég gæti rætt við hana
um að komast yfir hana.
Já.
Og fyrst og fremst krakkarnir.
Þeir minna mest á hana.
Ég meina, Dylan. Augun hans.
Ég hef bara séð þetta augnaráð
einu sinni á lífsleiðinni.
Og hvernig hann ergir mig,
hann gerir mig kolvitlausan.
Neitar mér, angrar mig.
Og allan tímann
horfir hann á mig með augunum hennar.
Með engu af léttleikanum hennar.
Ég hef lært að þegar maður
elskar einhvern svona djúpt,
svona mikið, svona lengi,
þá sleppur maður aldrei frá þeim,
hvert sem maður fer.
Og það gerist aðeins
einu sinni á lífsleiðinni.
Ég bara skil það ekki.
Ég get ekki sleppt takinu.
Ég get það.
Sofðu vel, Benjamin. Dreymi þig vel.
Ég skil það núna.
Ég skil hví þú þolir mig ekki!
Allt í lagi.
Nú veit ég þó í alvöru
hvers vegna þú hatar mig!
Ég heyrði þig játa það fyrir henni.
Eins og þú værir að tala um morgunkorn.
Þú hatar mig!
Hata ég þig? Bíddu nú hægur.
Við höfum átt í vanda,
en við leysum úr honum.
Það er kjaftæði!
Viðurkenndu það!
Þú vildir að ég væri ekki hér!
Með þetta augnaráð?
Ég heyrði í þér!
Bíddu! Nóg af dramatíkinni! Allt í lagi?
Hættu þessu! Þú misskildir mig!
Ég þoli þennan stað ekki!
Sérðu það ekki?
Nei, en takk fyrir að segja mér það aftur!
Ég gleymi því alltaf!
Þetta snýst allt um þig!
Á ég ekki bara að pakka niður?
Við getum farið á flakk saman.
Við getum orðið útigangsmenn.
Því þú sóaðir öllu fénu okkar!
Ég átti hluta af því!
Ég sóaði ekki fénu.
Ég hélt að þér líkaði staðurinn.
Og fyrirgefðu, ég hélt
að vinir þínir myndu heimsækja þig.
Ég hringdi í þá og bauð þeim.
Og fyrirgefðu, ég hélt
að þið Lily væruð vinir.
Ég hélt, ég hélt, ég hélt...
Ég hélt að þetta væri...
Ég hélt að þér líkaði við mig!
Ég hélt að þetta væri draumur að rætast!
Þinn draumur!
Þú neyðir ekki draum á aðra, pabbi!
Víst get ég það!
- Ég get neytt draum á þig!
- Hví öskrarðu?
Því þetta er góður draumur!
Og í honum eru flott dýr
og líka frábært fólk!
Og fólkið sem lætur sér annt um þig
er allt hér!
Svo hættu að vera í fýlu!
Og gríptu skóflu og grafðu holu!
Gerðu eitthvað!
Þú gerir ekkert nema vorkenna sjálfum þér!
Hjálpaðu mér með systur þína!
- Hjálpaðu mér, fjandinn hafi það!
- Hjálpa þú mér, fjandinn hafi það!
Mér þykir leitt
að móðir þín hafi veikst.
Trúðu því.
Mér þykir leitt
að þú fékkst ekki meiri barnæsku.
Þannig fór það bara.
En við búum með sjö ára stúlku
sem trúir enn á páskakanínuna.
Hvað eigum við að gera?
Þú spyrð mig aldrei hvernig mér líður.
Þú kenndir mér ekki einu sinni að raka mig.
Viltu læra að raka þig?
Ég vil endilega kenna þér það!
Rö*** okkur!
Hvað með páskakanínuna?
EKKI GEFA KAMELD ÝRUNUM AÐ BORÐA
Er tíminn kominn?
Hvað gerðist á milli þín og Lily?
Ég veit það ekki.
Ég hlustaði víst ekki á hana.
Mér líkaði við hana.
Maður verður vandræðalegur
ef maður segir eitthvað
og líka ef maður segir ekkert.
Mér líkar þegar þú talar.
Stundum þarf bara
20 sekúndur af hugrekki.
Bókstaflega 20 sekúndur
af vandræðalegu hugrekki.
Og ég lofa þér
að eitthvað gott kemur út úr því.
Ég veit aldrei
hvað ég á að segja við þig.
Ég er sama sinnis.
Segjum hvor öðrum bara
hvers við óskum að hinn myndi segja.
"Fyrirgefðu að ég
flutti með þig út á land. "
"Þú ert frábær pabbi. "
Þú gerðir þitt besta, pabbi.
Hann veit það.
Allt í lagi.
Komdu, pabbi. Förum heim.
Ég hef hana!
Komdu, áfram!
Hérna.
Bannað að klukka aftur! Ég veit.
SPAR 1993 - 2010
ÓGLEYMANLEGUR VINUR
Þetta lítur vel út, félagi.
Þú upp á þitt besta.
Þú hefðir gert það sama fyrir mig.
Hví ekki það?
Ég þarfnast þín í smástund. Ég þarf...
- Sjálfsagt.
... listrænt auga þitt.
Segðu mér hvað þér finnst
um þetta.
Ekki slæmt?
Hvar seturðu þetta?
ROSEMOOR
D ÝRAGARÐS ÆVINTÝRI
Ég veit ekki. Kannski
út um allt.
Ég er aðdáandi þinn.
Veistu það ekki?
Pabbi? Pabbi, páfuglarnir eru að klekjast!
Gafstu þeim öllum nöfn, Rosie?
- Hver er þetta?
- Lucy.
Bíddu, ekki Lucy. Peaches.
Peaches. Hvernig þekkirðu þau í sundur?
Þrjú þeirra heita Peaches.
Vill einhver ná í deyfibyssuna mína?
Bróðir minn skilur ekki neitun.
Ég er ekki hérna þess vegna, bróðir.
Ég talaði við MacCready. Hæ, krakkar.
Ég spurði hvort þið þyrftuð hjálp.
Í skottinu er ýsa.
90 kíló.
- Handa Bruno.
- Buster.
Skiptir engu.
- Er þér alvara?
- Nei.
Lyktin í bílnum er alvarleg.
Ég fór að efast um tilveru mína
á þjóðveginum.
Þetta var eins og í Altered States.
Ég sá græneðlu og dvergindíána.
Dunc.
Allt í lagi. Komum nú.
Það er skoðun á morgun.
- Mikið rétt.
- Mikið rétt.
Duncan, Duncan!
Þetta gerir ekkert gagn!
Hvað er hún að teikna, Rosie?
Maríuhænur.
Bíddu.
Og sjá, Mac. Nýja merkið okkar.
ROSEMOOR
D ÝRAGARÐS ÆVINTÝRI
- Hefurðu það?
- Já. Það passar.
- Nú er það opinbert.
- Frábært merki, gullfallegt.
- Leit ég svona út?
- Verr.
Vá. Það er niðurlægjandi.
Þú virðist mjög rólegur.
- Hefurðu drukkið?
- Í alla nótt.
- Takk fyrir það.
- Ekkert mál.
Allt í lagi.
Nú er komið að því.
Látið talstöðvarnar vera.
Ef einhver á í vanda
vil ég ekki heyra af því
þar til Walter Ferris er farinn. Skilið?
Gott og vel, nú byrjum við.
Gangi okkur vel.
Hr. Ferris. Velkominn aftur
í Rosemoor-dýragarðsævintýrið.
Er það ævintýri núna?
Svo það sé á hreinu, herra,
þá var það alltaf þannig.
- Halló, MacCready.
- Halló.
- Hvernig hefurðu það?
- Mjög stilltur.
Flottur galli.
- Flott bindi.
- Þakka þér fyrir.
Bíddu eftir mér, pabbi.
Þetta er ein leið.
Rakt.
Guð minn góður.
MacCready, þú mátt endilega hitta mig
við afgirta svæði Solomons. Bless.
Lítum á afgirta svæðið hans Solomons.
Við erum búin að vera.
Fljótur, MacCready, flýttu þér.
Guði sé lof að þú ert kominn.
Ég bað svo kurteisilega
að ég bjóst ekki við þér.
Þess vegna kom ég.
Þú ert aldrei svona kurteis. Hvað er að?
Lásinn er bilaður
og ég held að eina leiðin sé...
Eina leiðin er að læsa innan frá.
Ég bjó þennan lás til.
- Við föllum á skoðuninni.
- Það gerist ekki.
- Róaðu þig.
- Já, ég er róleg.
Hvernig ætlarðu að hjálpa?
Ég lokka hann að hinni hliðinni
og þú lætur ekki éta þig!
Þetta verður í fínu lagi.
Allt í lagi.
Hæ, Solomon!
Hver er myndarlegur strákur?
Komdu, Solomon. Komdu hingað.
Heyrðu!
Solomon! Heyrirðu í mér?
Komdu, Solomon, komdu, elskan!
- Viltu eitthvað að drekka?
- Ég drekk ekki.
Ekki einu sinni vatn?
Veistu hvað er sett í vatn?
Hingað.
Góður strákur, Solomon!
Góður strákur!
Hver er góður strákur?
Hver er sætur? Haltu áfram!
Fljótur! Viltu flýta þér?
Ég get bara haldið athygli hans í smástund!
Hæ, strákur! Viltu laga þetta?
Ég vil vinna í þögn!
Rollufret í kjöthlaupi!
Hanastél!
Nei, nei, nei! Bíddu! Solomon!
Solomon! Komdu hingað!
Komdu! Guð minn góður! Ekki snúa þér við.
Ekki snúa þér við!
Snúðu þér við! Snúðu þér við!
Þú vilt mig ekki!
Ég er fullur af viskíi og biturð
og óhreinum hugsunum!
Ég heyri í Ferris! MacCready!
Komið!
Allt í lagi.
Daginn, Solomon!
Heyrðu, herra.
Allir segja að þú sért algjör skaufi.
Ég veit ekki hvað það þýðir
en ég trúi því ekki.
Ég held að þetta gangi ekki upp.
En gangi ykkur vel.
- Já!
- Já!
Heyrðu.
Ég vil sjá þig hér við opnunina.
Ég vingast ekki, hr. Mee.
Ég fæ örugglega nóg af tilkynningum.
Okkur tókst það!
- Við vinnum!
- Já!
- Kelly!
- Vel gert, Benji!
Ég sagði ykkur...
Ernesto og félagar hans
eru að setja upp spjöld út um allt
á 30 kílómetra svæði.
- Hvað gerist ef enginn kemur?
- Hvað þá?
Hvað gerist ef þetta var allt til einskis?
Láttu ekki svona.
Þú ert kominn þetta langt.
Við göngum
með ljónum.
Vel miðað.
Ég segi þetta einu sinni enn, félagi.
Mér líkar við dýrin, en ég elska mannfólkið.
Ef hugur fylgir máli
fær ekkert stöðvað mann.
EF ÞÚ ELSKAR MIG
LÁTTU MIG ÞÁ VITA
20 sekúndur af hugrekki.
Allt í lagi.
- Hæ.
- Hæ.
Er ég brjálaður að segja
að ég saknaði þín mjög mikið?
Ég var ekki heldur skírður eftir Bob Dylan.
Ég var skírður eftir hundi sem hét Dylan.
Mér er sama. Hverjum er ekki sama?
- Afsakaðu rigninguna.
- Nei, ég elska hana.
Ég elska hárið þitt.
Ég elskaði skiltið þitt. Ég elska þig.
Úrkoman í kvöld
FRÉTTIR
Hollis Moody STORMVAKT
er bara byrjunin!
Setjið þetta á sumarlistann ykkar.
Kaupið regnhlíf.
Eða haldið ykkur innandyra.
Myndatökumaðurinn minn
rétti mér regnhlífina sína.
Netsy, okkur er sagt að þetta verði
blautasta sumar í heila öld!
Aftur til ykkar í notalega myndverinu.
Heila öld.
AÐEINS D ÝRAGARÐSVERÐIR
GRÁBJÖRN
NORÐUR-AMERÍSKUR
Nathan, kartöflurnar og apamaukið
er að klárast.
Geturðu athugað pöntunina?
Já. Taktu það allt.
Eins og Sheila gerði.
Þennan 6. júlí, 2010,
heyrast fréttir af rafmagnsleysi
á meðan metstormurinn heldur áfram.
Úrhellis rigning og mikið af eldingum
verða út vikuna.
Dylan?
- Dylan! Pabbi!
- Dyl?
- Ég sé það.
- Allt í lagi. Gerðu þig kláran.
Vá!
Bíddu aðeins, snúðu þér við. Má ég sjá?
Hvað kom fyrir hárið?
Franskar fléttur.
Vinsælar á 10. áratugnum.
Flott, mjög flott.
Fólk mætir í dag, Benjamin.
Ég er viss um það.
Klukkan tíu verður allt pakkað.
Við vitum öll að ég er
ömurlegur ræðumaður, svo ég sleppi því.
Ef Katherine væri hér
hefði hún fundið eitthvað
sniðugt handa mér að segja
og ég hefði tekið allan heiðurinn.
Þetta snýst ekki um lok ævintýranna,
því ævintýri snúast ekki um það.
Svo allt sem gerist eftir þetta er bónus.
Og ég elska ykkur.
Allt í lagi! Opnum hliðið!
Þetta er dýragarður!
Það er rétt!
- Hvað er klukkan?
- 10:02.
Fólk ætti að vera komið.
Þolinmæði, sonur.
Það er rétt. Það ætti að vera komið.
Kannski á þetta að vera svona.
- Kannski tekur það smá tíma.
- Pabbi, eitthvað er að.
- Dylan?
- Nei, eitthvað er að!
Dyl!
Tréð féll í regninu í gærkvöldi!
Fólk hefði ekki komist í gegn
þótt það hefði mætt hingað.
Sjáið!
Velkomin! Komið, það er opið!
Hæ. Góðan daginn. Velkomin.
Komið, hæ. Gætið ykkar.
Gott að það er opið.
Takk fyrir komuna.
Komið.
Rólega.
- Góðan daginn.
- Ég skal hjálpa þér. Ég hef þig!
Svona, já. Ég hef þig.
Auðvitað erum við með ljón.
Hvað segirðu gott?
Kelly, hvernig er útlitið með gíraffana?
- Hvernig hefur fjölskyldan það?
- Gaman að sjá þig.
Velkomin í Rosemoor-dýragarðinn.
Viljið þið bækling?
Takk fyrir komuna
og velkomin í dýragarðinn ykkar.
Eins og þið sjáið
vita tígrisdýrin af ykkur
og monta sig því í dag.
Nokkrir áhugaverðir hlutir um tígrisdýrin.
Páfuglar eru mjög lífseig dýr.
Þetta eru Lucy, Wesley og Peaches.
Og þetta er Solomon.
Hæ, Solomon!
- Viltu kort?
- Endilega. Takk.
Allt í lagi. Þetta er ekki svo sárt.
- Vel gert.
- Takk.
Takk fyrir að bjarga dýrunum.
- Þakka þér. Takk.
- Vel gert.
Home Depot.
Vel gert.
- Miðarnir eru búnir.
- Já, ég veit.
Ég pantaði snemma fyrir ágúst.
Ég er með þá. Já, hérna.
Frábært.
Ég er mjög skotin í þér
og ég bara skil það ekki.
Til hamingju.
Til hamingju sjálf.
Ef við stöndum nálægt
hvort öðru á gamlárskvöld
gerum við þetta aftur síðar.
Ég hlakka til nýja ársins.
Horfið hingað.
Verið bara þið sjálfir. Þessi er fyrir Spar.
Segið: "Peaches. "
- Peaches.
- Peaches.
Allt í lagi. Réttu mér vélina. Segið: "Spar. "
Spar.
Og ein af mér að henda henni yfir.
- Settu mig inn fyrir.
- Einn, tveir, þrír.
Tilbúin? Einn, tveir, þrír!
Ef þú þyrftir að velja strax
á milli fólks og dýra,
hvort myndirðu velja?
Ég vil mynd af þessu.
Ég næ nærmynd af nefinu þínu.
Ég líka.
Fólk!
Kjánaprik.
- Við keyptum dýragarð.
- Það gerðum við.
Manstu hvað þú sagðir mér
þegar ég var barn?
Þú þarft bara að vera
hugrakkur í 20 sekúndur.
Það hefur leiðbeint mér allt mitt líf.
- Dömurnar fyrst.
- Hvert erum við að fara?
Bíðið. Allt í lagi. Stopp.
Hún var
einmitt þarna.
Á því augnabliki urðuð þið möguleg.
Ég elska að þú segir sögur aftur.
Þetta er sagan á undan sögunni.
Hérna byrjið þið.
Því hérna kynntist ég móður ykkar.
Hún sat þarna í stólnum.
Bíðið aðeins.
Jæja,
ég átti leið hjá.
Og ég sá hana og stoppaði,
bara hreinlega stoppaði.
Og hugsaði: " Guð minn góður.
"Þetta er fallegasta kona
sem ég hef á ævinni séð. "
En ég hef aldrei gert svona áður.
Aldrei farið og talað við
ókunnuga manneskju áður.
En hún var þarna.
Og ég hugsaði: "20 sekúndur. " Skiljið þið?
Byrja.
Nú er ég inni á veitingahúsinu.
Og ég er dauðskelkaður.
Hugsa um að fara.
Ég get snert hana. Hún er þarna.
Hún hefur enn ekki séð mig.
Og ég á eftir 15 sekúndur af hugrekki.
Ég læt vaða.
Hugrekki.
Þetta sagði ég.
Hvað?
Ég sagði:
"Afsakaðu mig. "
Hæ, mamma.
Hæ, mamma.
"Hví ætti jafn falleg kona og þú
"að tala við mann eins og mig?"
Hvers vegna ekki?
DARTMOOR-DÝRAGARÐURINN,
SEM ÞESSI SAGA ER BYGGÐ Á,
ER VERÐLAUNADÝRAGARÐUR
OG AÐFERÐIR HANS
DÁÐAR UM VÍÐA VERÖLD.
GARÐURINN ER OPINN GESTUM
ALLAN ÁRSINS HRING.
BENJAMIN MEE OG BÖRNIN HANS TVÖ
BÚA ENN Á LANDSVÆÐINU.
Á NÆSTA ÁRI
ÆTLA ÞAU AÐ BÆTA VIÐ GÍRÖFFUM.
[Íslenska]